Lögrétta - 05.02.1908, Qupperneq 4
20
L0GRJETTA.
LÖGRJETTA
gefur
nýjum kaupendum
ágæta skáldsögu
N j Ó111 Í1 1111 M1 í 1,
eftir Rudyarð Kipling,
sem í haust fjekk skáldskaparverð-
laun Nóbelssjóðsins.
ingar, þar sem presti og sóknar-
mönnum kemur saman um, en til-
skilið að fræði Lúters sjeu prentuð
framan við það.
Mannalát. 8. f. m. andaðist Hall-
dóra Jónsdóttir, kona Gísla Gísla-
sonar á Ásgautsstöðum, f. 19. febr.
1839.
18. f. m. Jón Jónsson bóndi á Vestri-
Loftsstöðum í Gaulverjabæjarhreppi,
f. 25. sept, 1831.
22. f. m. Stefán Erlendsson bóndi
á Grásíðu í Kelduhverfi, f. 5. nóv.
1854.
10. f. m. Loftur Einarsson prests
Þórðarsonar á Bakka í Borgarfirði
eystra, 17 ára.
Símastöðin á Akureyri. Stöðv-
arstjórinn þar hefur fengið leyfi um
tíma til utaníarar, en í hans stað er
settur þar stöðvarstjóri GísliJ. Olafs-
son, frá símastöðinni hjer, og er
hann nýlega lagður á stað norður,
landveg úr Borgarnesi.
100 ára. Þjóðóltur segir nýlega
lát konu einnar í Skagafirði, Guð-
rúnar Antoníusdóttur, sem varð 100
.ára gömul og 110 dögum betur. Hún
var fædd á Stóru-Ökrum í Blöndu-
hlíð 5. sept. 1807, en andaðist á
Merkigili í Skagafjarðardölum 25. f.
m. Sonur hennar, sjötugur, var dá-
inn nokkru á undan henni. Hún
hafði lesið á bók gleraugnalaust fram
til hins síðasta.
Keykjavik.
Hvassviðri mikið á útsunnan var
hjer í nótt sem leið og fram eftir
degi í dag.
Mjölnir kom í gærkvöld frá út-
löndum og Laura í nótt frá Vest-
fjörðum, en póstur ekki kominn í
land, úr hvorugu skipinu, kl. 2 í dag.
Nýtt lestrarfjelag er nýlegastofn-
að hjer í bænum með miklu hag-
feldara tyrirkomulagi en eldri lestr-
arfjelög hjer. Það hefur útlánsstofu
á Hótel ísland, en lætur ekki bæk-
ur sínar ganga hringferð milli fje-
lagsmanna. Forgangsmenn að stofn-
un þessa fjelags voru þeir: Ág.
Bjarnason kennari, dr. Björn Bjarna-
son og Th. Krabbe verkfræðingur.
Fjelagið heldur útlend blöð og tíma-
rit og kaupir útlendar bækur. Ár-
gjald er IO kr., en auk þess 5 kr.
innritunargjald. Aðkomumenn geta
fengið að nota lestrarstotuna fyrir 2
kr. mánaðargjald.
Sá er þó aðalkosturinn við þetta
fjelag, frarn yfir hin eldri, að það
ætlar ekki að selja bækur sínar ár-
lega, heldur mynda bókasafn. En
bækurnar verða að miklu meiri not-
um en ella, ef þær safnast saman á
einum stað. Gamla lestrarfjelagið
hjerna hefði nú átt gott safn og mik
ils virði af útlendum fagurfræðisrit-
um, ef það hefði frá byrjun haft þá
reglu, að safna bókunum, í stað þess
að tvístra þeim á hverju ári.
Menn ættu að ganga sem fjöl-
mennastir í þetta nýja fjelag.
Samsöngur var haldinn hjer á
sunnudagskvöldið af þeim frú Elisab.
Þorkelsson, frk. Kr. Hallgrímsson,
frk. E. Matthíasdóttur og Þórði Páls-
syni Mýramannalækni, sem hjer er
nú staddur. Samsöngurinn var vel
sóttur og var endurtekinn á mánu-
dagskvöldið.
Ný stúka var stofnuð hjer á sunnu-
dagskvöldið 26. þ. m., af Sigurði
Eiríkssyni regluboða. Hún heitir
„Melablóm" og voru stoínendur nál.
30. Umboðsmaður stúkunnar er Pjet-
ur Lárusson nótnasetjari, æsti templ-
ar Kristinn Erlendsson trjesmiður og
ritari Halldór Þorsteinsson stúd. art.
Stúkan heldur tundi í Ási, húsi S.
Á. Gíslasonur kand. theol. Þetta er
sjötta stúkan, sem Sigurður hefur
stofnað í vetur hjer í bænum og ná-
grenninu.
Óðinn. Janúarblaðið flytur mynd
af Þórarni kaupm. Guðmundssyni á
Seyðisfirði, Indriða Einarssyni leik-
skáldi, líkneski Jónasar Hallgríms-
sonar í Rvík, Jósatat heitnum Jóna-
tanssyni frá Holtastöðum og Hall-
dóri Bjarnasyni í Hróarsholti í Flóa;
kvæði ettir Guðm. Magnússon og
Þorstein Þorsteinson og grein um Jón-
as Hallgrímsson eftir síra Matth.
Jochumsson.
Yeðurathuganir í Reykjavík
eftir Mag-nús Thorberg.
Jan. Febr 1908. 1 Klukkan 1 Loftvog J millim. ; j (Celsius) | Hiti >• Ct> O O 1 C Ái 1-5 IO V 8 0 Veðrátta
28. 7 743Ó 2.8 VNV 6 Ljettskýjað
1 758.8 -f- 2.5 V 5 Skýlaust
4 760.4 2-5 V 2 Skýjað
10 765.4 -7- 5.0 V I Ljettskýjað
29. 7 769.0 -f- 7-4 A 2 Skýlaust
1 765.2 -7- 4-7 A 5 Skýjað
4 757-4 2.4 A 7 Slcýjað
10 754-J + 2-5 SV 7 Alskýjað
3°- 7 749-7 3-8 VNV 9 Snjór
1 75°-3 -f- 4.0 vsv 9 Snjór
4 750-5 -f- 3-5 vsv 9 Alskýjað
10 754-o -f- 5.2 v 2 Snjór
3i- 7 759.6 -r- 5-9 v 2 Alskýjað
1 763.6 -f- 5-5 Logn O Snjór
4 764.6 -f- 6.1 A 2 Skýjað
10 764.9 -f- 6.4 Logn O Skýjað
I. 7 760.4 -7- 6.0 NA 6 Snjór
1 757-5 + 2.0 A 3 Alskýjað
4 755-5 + 3-2 A 2 Alskýjað
10 750.9 + 4-Q ASA 5 Regn
2. 7 749-4 + 1.8 ssv 5 Regn
1 741-4 0.0 SV 2 Snjór
4 739-2 0.0 VSV 3 Alskýjað
ÍO 742-1 -7- 1.8 VSV 5 Hálfskýjað
3- 7 754-9 -5- 2.6 VSV 6 Snjór
1 762.6 1.0 V 4 Alskýjað
4 765.3 -7- 1.2 VSV 3 Alskýjað
10 765.2 -T- 0.2 A I Alskýjað
Meðalhiti í þessari viku ■— 2.5;
kl. 7 -f- 3.8; kl. 1 -j- 2.6;
kl. 4 -f- 2.1; kl. 10 -f 1.6.
Nýútkomið
í bókaverslun
Guðmundar Gamalíelssonar:
Indriði Einarsson:
Nýársnóttin.
Verð: kr. 1,50.
Árni Thorsteinsson:
Sönglag við: Par sem liáir
hólar eftir Hannes Hafstein.
Sigfús Einarsson:
Sönglag við: Jónas Hallgríms-
son eftir Þorstein Erlingsson.
Fæst hjá öllum hóksölum í
Reykjavík.
Peningabudcla. með nokkru af
peningum í týndist laugard. 1. febr.,
líklega í Austurstr. eða Aðalstr. Finn-
andi skili í afgr.st. Lögr. gegn fundar-
launum.
Hjer með tilkynnist mínum
heiðruðu viðskiptamönnum, að
yfkfýgja-vinnustofa
mín er nú þegar tekin aftur til starfa
d Laugavegi 11.
Virðingarrylst.
Baldvin Einarsson,
aktygjasmiður.
Skilagrein
fyrir
mannskaðasamskotafjenn árin 1006—7.
Tekjur:
Samskotin öll, auglýst sund- ' Kr. a.
urliðuð í blöðunum Lög-
rjettu og Fjallkonunni . 33711,19
Vextir af innlögum í Is-
landsbanka .......... 685,99
Kr. 34397.18
Gjöld:
Uthlutað eftirlifandi vanda-
mönnum hinna drukn-
uðu sjómanna .... 30245,26
Ymislegur kostnaður . . 155,37
Inneign í Islandsbanka. . 3996,55
Kr. 34397,18
Reykjavík 9. nóvember 1907.
G. Zoega.
Framanskráða skilagrein höfum við
endurskoðað ásamt öllum fylgiskjöl-
um. Höfum við eigi fundið annað
athugavert en það, sem ræðir um í
meðfylgjandi athugasemdum, og með
því að vjer álítum, að reikningshald-
ari hafi með svörnm sínum gefið full-
nægjandi upplýsingar um þau atriði,
sem athugasemdirnar ræða um, leggj-
um vjer það tii, að honum verði gef-
in fullnaðarkvittun fyrir reikningsskil-
um sínum.
Reykjavík 10. desbr. 1907.
Sighv. Bjarnason. D. Thomsen.
Aðalfundur
hlutafjelagsins Steinar verður haldinn
í Iðnaðarmannahúsinu (uppi) fimtu-
dag 13. þ. m. kl. 5 síðdegis (ekki
fimtudag 6. þ. m.).
Þeir hluthafar, sem vilja nota at-
kvæðisrjett sinn á fundinum, verða
að sækja skírteini til formanns fje-
lagsins fyrir fundinn, eða hafa með
sjer hlutabrjef sín á fundinn.
Stjórnin.
14\«‘iilj<‘lag l’riKírkJn-
safiiaðarins í Reykjavík gaf fyrir
jólin kirkju safnaðarins afar vandað
og dýrt altarisklæði og tvenn dyra-
tjöld. Stjórn Fríkirkjusafnaðarins telur
sjer skylt að minnast með opinberum
lofsorðum þessarar veglegu gjafar og
vottar hún Kvenfjelaginu fyrir hönd
Fríkirkjusafnaðarins álúðar þakkir fyrir
rausnarlega gjöf.
Reykjavík 4. febr. 1908.
Safnaðarstjórnin.
Landsiminn.
Nokkrir duglegir verkamenn geta
fengið góða atvinnu í sumar við síma-
lagningu; menn snúi sjer til land-
símastjórans á landsímastöðinni í
Reykjavík.
Prentsm. Gutenberg.
Jæst i „fiverpool“.
Það er sú ódýrasta mjólk,
sem hægt er að fá; — 8—9 aura
potturinn— ágæt í allan mat og
til bökunar; einnig í Cacao,
Chocolade m. m.
oJomBóla
til ágóða fyrir barnahælið
verður haldin 8. og 9. febrú-
ar næstk. í Bárubúð, og
byrjar kl. 5 síðdegis.
„Liverpool
seliir:
llvítkáls- og rauðkáls-höfuð.
Röðbeder — firuleröclfler —
Piparrót — I4artöHur.
A m e r í s k epli. —
Appelsínur.
Citronur.
Syltað Ingeffer — I>emouaeier.
Pickles — Capers.
Sveinn Jjörnsson
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Kirkjustræti 10.
Jeg undippitadup tek að
mjer allskonar byggingar: grunna,
brunagafla o. fl., og legg til efni, et
óskað er.
Sömuleiðis innanhúss-múrverk:
uppsetningu á eldavjelum o. s. frv.
Alt fljótt og vel af hendi leyst. Það
getur borgað sig að tala við mig, áður
en þið fastgerið samninga við aðra.
Ennfremur hef jeg hús til sölu
og lóð, sem er um 1800 Q álnir,
skamt frá sjó, ofan til í miðbænum.
Reykjavík, Lindargötu 1 B.
Jóhannes Jónsson.
Brent og malað
á 80 au. pd.
fæst í verslun
Kristins Magnússonar.
jgfy Auglýsingum i „Lög-
rjettU“ tekur ritstjórinn við
eða prentsmiðjan.