Lögrétta - 15.07.1908, Page 4
128
L0GRJETTA.
I
cHcefylen-ljósið
gefur raikla og þægilega birtu, er einkar
hentugt og hættulaust í meðförum og jafn-
framt ódýrasta ljósið, sem völ er á hér á
landi.
Tilboð um lagning í sraærri og stærri
kaupstaði og þorp, sem og einstök kás
og herbergi, til reiðu.
Stormbiysin
viðurkenndu, ómissandi á öllum fiskiskip-
nra og afarhagkvæm við alla útirinnn að
næturlagi.
■mm
er fallegur að útliti, ber rajög þægiiega
birtu, algerlega hættulaus, og ódýr til
notkunar, — ómissandi
á allar skritstofur.
Gerið svo ve
að leita upplýs
inga og biðja um
verðlista, sem et
sendur ókeypis
hverjum sem ósk’
ar.
Blöndahl & Einarsson.
Lœkjargata 6. Reykjavik Telefon 31.
Telegr. Adr.: Gullfoss.
sem menn hafa á Þýskalaudi. Auk
herra Heinsen og konu hans eru þessir
menn í förinni: Dr. Bruno Ablasz frá
Hirschberg, ríkisþingmaður með konu,
Dr. Waldemar Löbe, kennari í Ber-
lín, Dr. med. Paul Bernstein með
konu, frk. M. Huber kenslukona frá
Wúrzburg, R. Haszkarl, kennari frá
Hamborg, W. Neuerburg, kand. jur.
frá Kiel, Sabrotzky, kennari frá Fúr-
stenwalde, frk. A. Reimers, kenslu-
kona frá Hamborg, F. Harten frá
Klein-Flottback, C. Hofmann, kenn-
ari frá Rumburg, P. Wundram, kenn-
ari frá Hamborg, frk. H. Mertens,
kenslukona frá Breslau, R. Múnzer,
kaupmaður frá Hamborg, O. Wand-
schneider, frá Hamborg, S. Sand,
læknir frá Berlín, M. Asch og H.
Schafifrath, verksmiðjueigendur frá
Berlín, H. Schaffrath, blaðamaður frá
Hannover.
Ferðamenn þessir ætla til Þingvalla
og Geysis og síðan með Sterling
aftur. Þorgrímur Guðmundsen stendur
fyrir ferð þeirra þangað.
Um upphaf konungsvalds á ís-
landi heitir ritgerð, sem nýkomin er
út, eftir prófessor Björn M. Ólsen.
Hún verður einn þatturinn í „And-
vara“ í ár, en er líka seld sjerstök.
Ritgerðin er mjög fróðleg, eins og
vænta má frá þeim höfundi, en grípur
líka beint inn í helsta áhugamál og
umhugsunarefni manna nú, með því
að hún ræðir um „Gamla sáttmála",
hvernig hann hafi orðið til og hvað í
honum felist. Hjer er ekki rúm til að
skýra ítarlega frá ritgerðinni að þessu
sinni, en bent skal þeim mönnum á
að lesa hana, sem í alvöru vilja kynna
sjer það mál, sem hún fjallar um.
Ingólfur og ísafold átelja það
harðlega, að verið var í vetur að
safna undirskriftum í Borgarfirði und-
ir áskorun til Kristjáns háyfirdómara
Jónssonar um að gefa kost á sjertil
þingmensku, og vænta þau þess fast-
lega, að Borgfirðingar kunni að meta
þá aðferð að maklegleikum, þegar til
kemur.
Frá fjallatindum til fiskimiða.
Fnjóskárbrúin, sem verið var að
byggja í vor, eyðilagðist í áköfum
vexti, sem í ána hljóp, seint í síð-
astl. mánuði. Hitar höfðu verið und-
anfarna daga óvenjulega miklir.
,Fálkinn4 bjargaði 12. t. m. ensk-
um botnvörpung frá strandi og dróg
hann inn á Patreksfjörð. Botnvarp-
an hafði flækst um skrúfuna og rak
skipið undan vindi til lands. Það
hjét G. Y. 83, frá Grimsby.
Vjer þolura það vel, þó „ísafold"
þekki engan okkar, sem skrifuðum
undir greinina í „Lögr.": „Vjer þol-
uni það ekki". En — vjer þekkjum
allir vindhanann við Austurvöll.
Einn af sex.
Krenrjettindaijelagsdeild stofn-
aði frú Bríet Bjarnhjeðinsdóttir ný-
lega á Isafirði með 19 konum þar.
Lesið með athygli auglýsinguna
hjer í blaðinu um nýju Ijósáhöldin.
Pjóðhátíðarsamkomu hjeldu Ár-
nesingar við Ölfusárbrú 27. f. m.
Slys vildi til nú rjett fyrir helg-
ina hjá Baldurshaga í Mosfellssveit.
Drengur, sem þar var á ferð með
vagn og hest fyrir, hrökk fram af
vagninum og fór eitt hjólið síðan yfir
höfuð hans og meiddi hann stórlega.
Bátur fórst á Tálknafirði 12. f.
m. og druknuðu 4 menn: Bjarni
Gíslason frá Lambeyri, formaður, Gísli
sonur hans, Níels Þórðarson, lausa-
maður, og maður að nafni Þorleifur.
Þeir Bjarni, Gísli og Þorleifur láta
eftir sig konur og börn. — Veður
hafði verið hvast á norðan, er bát-
urinn fórst.
Stúlka hrapaði til bana 27. f. m.
í Hringsdal í Arnarfirði, Ragnheiður
Bogadóttir, 17 ára gömul.dóttir ekkju,
er þar býr.
Druknun. Nýlega druknaði í Húsá
á Jökuldal Mekkín Ólafsdóttir.
Bát hvolfdi á innsiglingu til Borg-
arfjarðar 10. f. m. og druknaði þar
einn maður, Sigurður Ólafsson að
nafni, en tveimur var bjargað afkill.
Laus emhætti. Snæfellsness- og
Hnappadalssýsla. Umsóknarfrestur til
21. ágúst. Gullbringu- og Kjósar-
sýsla. Umsóknarfr. til 4. septbr.
Skólameistaraembættið við gagnfræða-
skólann á Akureyri. Umsóknarfr. til
12. ágúst.
Fínasti
riklingur
af Vestfjörðum
fæst í
THOMSENSIAGASÍNI.
Sveinn Sjörnsson
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Hajnarstrœli 16.
I*a,lcl£aj;'ord. Á síðastliðnum vetri
varð jeg fyrir því slysi að höggva mig
yfir þvera höndina inn í bein; en þar eð
jeg var vinnumaður á Laugarnesspítal-
anum, var læknir Sæmundur Bjarnhjeð-
insson við hendina og saumaði saman
sárið af mestu snild og annaðist um það
með stakri alúð og umhyggjusemi dn end-
urgjalds. Nú get jeg brúkað höndinatálm-
unarlaust til flestrar vinnu.
Fyrir þetta listaverk; æðstu tegundar,
þakka jeg innilega og bið guð að blessa
lækninn. Rvík í júlí 1908.
Signwndur Gudmundsson.
Hjer með tilkynnist vinum og
vandamönnum, að faðir okkar
elskulegur og tengdafaðir, Pórður
Jónsson, andaðist á Akureyri 22.
júní síðastl.
Elísabet Þórðardóttir. Stefán Pálsson.
]in Kristjánsson
nuddlæknir.
Aðalstræti 18, Talsími 124.
Heima til viðtals daglega frá
kl. 2—3 og 5—6.
tffiúifer
„Guðrún frá Gufunesi“
er tÍI S0lU með
góðu verði og góðum borg-
unarskilmálum.
Semja má við Odd Gísason
málaflutningsmann.
Barnavagn litið brúkaður fæst
keyptur. Ritstj. vísar á.
Slippfjelagid i Reykjavík
selur ódýrast alt sem tilheyrir skipum og bátum.
Skoðið vörurnar og spyrjið um verð þeirra. — Það borgar sig.
Prentsmiðjan Gutenberg.