Lögrétta - 22.07.1908, Síða 4
132
L0GRJETTA.
felssýslu. Tvær stúkur stofnaði hann
á því ferðalagi, aðra í Stöðvarfirði,
og heitir hún „Svanhvít", en hina á
Eskifirði, og heitir sú „Bergþóra".
Einnig heimsótti hann ýmsar stúkur
og starfaði að undirbúningi aðflutn-
ingsbanns-atkvæðagreiðslunnar. Hann
læturvel af útlitiþessmálsþareystra.—
Nú hefur hann verið um tíma heima
og Ieggur svo aftur á stað í nýjan
leiðangur, þar til atkvæðagreiðslan
fer fram í haust.
Fyrirmyndargjöf. Herra Tryggvi
Gunnarsson bankastjóri hefur nýlega
gefið Hvítárbakkaskólanum mikið af
bókum, 6o—70 bindi. —
Þesskonar gjafir tíðkast mjög er-
lendis; telja fræðimenn, ritstjórar og
bóksalar það sæmdarauka, að gefa
mentastofnunum fræðibækur, tímarit
og dagblöð, og sumir efnamenn gefa
jafnvel peninga að mun.
Hvenær skyldu íslenskir bóka- og
blaðaútgefendur alment taka þessa
rausn útlendra stjettarbræðra sinna til
fyrirmyndar? S.
Laust prestakall. Viðvík í Skaga-
fjarðarprófastsdæmi (Viðvikur,- Hóla-
og Hofstaðasóknir og Rípursókn í
Hegranesi, samkvæmt hinum nýju
lögum frá x6. nóvbr. 1907 um skip-
un prestakalla), sem auglýst var 7.
jan. þ. á., auglýsist af nýju til um-
sóknar, með því að sá, sem veitingu
fjekk fyrir því, hefur afsalað sjer því.
Veitist frá síðastliðnum fardögum með
launakjörum eftir nýju prestalaunalög-
unum. Auglýst 20. júlí. Umsóknar-
frestur til 5. sept. næstk.
„Kjalarnes44 á ný og stór niður-
suðuverksmiðja að heita, sem setja
skal á stofn í Brautarbolti af hluta-
ijelagi, sem nú er nýmyndað og í
eru Norðmenn og Islendingar. Höl-
uðstóllinn er 150 þús. kr. og er megn-
ið af hlutabrjefunum þegar selt. Fyr-
ir fjelagsstofnuninni hata gengist þeir
bræður Sturla Jónsson kaupmaður,
eigandi Brautarholts, og Friðrik Jóns-
son (í utanför þeirri, sem hann er nú
nýkominn úr), en formenn fjelagsins
eru Sturla Jónsson og Thor Lútken
hæstarjettarmálafl.maður í Kristjaníu.
Verksmiðjan á að sjóða niður bæði
fisk og kjöt, en mjólkina leggur
Brautarholtsbúið til. Verksmiðjan á
að verða útbúin að öllu leyti eins og
þær verksmiðjur sömu tegundar sem
fullkomnastar eru erlendis. Ráðgert
er að byrja á húsagerðinni í Braut-
arholti í sumar.
Þetta er byrjun á atvinnurekstri
hjer, sem að líkindum á mikla fram-
tíð. En til fiskiniðursuðunnar þarf
mikið af mjólk, og hún fæst hjer ekki
nægileg fyrri en járnbraut er lögð
austur yfir fjall, svo aðflutningarnir
verði greiðari og ódýrari en þeir nú
eru.
I)áinn er 11. þ. m. Ólafur Sigurðs-
son dbrm. í Ási í Hegranesi, iædd-
ur 19. sept. 1822, merkur maður og
fróður. Hann var þingmaður Skag-
firðinga 1865—67. Kona hans var
Sigurlaug Gunnarsdóttir bónda á Skíða-
stöðum, og eru þrír synir þeirra á lífi:
Guðmundur bóndi í Ási, Sigurður
bóndi á Hellulandi og Björn augna-
læknir í Reykjavík.
Prestskosning er nýlega um garð
gengin í Ólafsvík og Guðmundur Ein-
arsson kand. theol. þar kosinn með
öllum fjölda greiddra atkvæða.
Fundur um aðflutningslbannið var
nýlega haldinn á Seljalandi í Rang-
árvallasýslu, að afloknum stjórnmála-
fundi. Þar var þá Jón Þórðarson
kaupmaður hjeðan frá Reykjavík og
lætur hann mjög vel af undirtektunum.
Brennuyargur. Sannast hefur um
mann á ísafirði, Bjarna Sigurðsson
að nafni, að hann hafi látið kveykja
í húsi sfnu, er brann 1. þ. m., og
hafði hann haft kunningja sinn einn,
Sigvalda Guðmundsson, með í ráðum.
Seljalandsfundurinn, sem minst
var á í síðasta blaði að til stæði, var
haldinn 16. þ. m. Þar voru um 60
kjósendur. Með sambandslagafrumv.
mæltu þar : síra Eggert Pálsson, Ein-
ar á Geldingalæk, síra Kjartan Ein-
arsson, síra Þorst. Benediktsson og
Björgvin sýslumaður, en á móti þeir
Þórður í Hala og Sigurður á Sela-
læk. Tillaga var samþykt með frum-
varpinu með öllum greiddum atkv.
Björn Jónsson kom ekki á fund-
inn, eins og hann hafði ráðgert, held-
ur sneri hann beint heim af Þjórsár-
brúarfundinum og var svo fýldur yfir
för sinni austur, að hann hafði ekki
skap til að láta Isaf. koma út fyr en
á laugardag.
Strand. 18. þ. m, strandaði gufu-
skipið „Gwent" í þoku við Langanes.
Það hefur lengi verið í förum milli
Englands og íslands og var nú á leið
til Sauðarkróks með kolafarm, en átti
að taka aftur hesta. Með skipinu voru
þeir L. Zöllner og Jón alþm. í Múla.
Menn allir björguðust af skipinu, en
það kvað vera svo mikið brotið, að
engin von sje um, að það náist út.
Sláturhús er nú verið að reisa í
Borgarnesi. Mýramenn hafa skrifað
sig fyrir stofnfje á IO þús. kr. Húsið
á að verða fullgert 25. sept. í haust.
Þetta er útibú frá Sláturfjelagi Suð-
urlands.
Pað hefur margan svikið að trúa
ísaf. gömlu. Nýlega komu tveir menn
norðan af Akureyri og höfðu ætlað,
eins og algengt er orðið nú, að skilja
hesta sína eftir í Borgarnesi og fara
þaðan með flóabátnum suður. Þeir
höfðu lesið í ísafi, að báturinn færi
suður frá Borgarnesi 15- þ- m. En er
þeir komu í Borgarfjarðarhjeraðið,
heyrðu þeir, að hann væri farinn
suður fyrir tveimur dögum og hefði
farið á rjettum áætlunardegi. En ísaf.
hafði farið rangt með þetta, eins og
fleira, og kostaði það mennina land-
ferð alla leið suður hingað, að þeir
höfðu haldið, að talan væri rjett, þó
hún stæði í ísaf.
HugO Gering háskólakennari í
Kiel, einn af frægustu norrænufræð-
ingum vorra tíma, hefur verið að ferð-
ast hjer í sumar; er nýkominn hingað
úr för austan úr Rangárvallasýslu, til
Þingvalla og Geysis, og aftur kom-
inn á stað vestur á Snæfellsnes og
og til Breiðafjarðar.
Dr. K. Kiichler, sem mörgum er
hjer kunnugur og ferðast hefur hjer
áður, fyrir þremur árum, er nú aftur
á ferð hjer við land, var á Akureyri
í gær og fór þaðan inn að Grund.
besta selur
«Jes SZtimsen.
Sveinn i)jörnsson
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Hatnarstrœli 16.
f
i^“Utbod.“^i
Tinnan við gröft fyrir vatnsveitupípum innanbæj-
ar í Reykjavík er boðin út hjá verkfræðing Holger A.
Hansen, Kirkjustræti 10.
Tilboð skulu sendast borgarstjóranum fyrir kl. 12
á hádegi 4. ágúst næstk.
Reykjavík 20. júlí 1908.
^JaínsvQÍíunafnóin.
<3stur
fæst hjá
c7es Siimsan.
r
O
u
cö
0
‘h
pö
*
•H
b
lh dós Fiskabollur .... 0,36.
1/4 — reykt Síld í olíu . 0,24.
V4 — Ansjósur...........0,25.
r/4 — 2 teg. Sardínur . 0,34.
Austurstræti 1.
cTyrirtafís
©í irn 6 ur,
trje, spírur, plankar, óunn-
in borð, rúplægð borð, gólf-
borð og panel,
er nýkomið og selst með
lægsta verði í
ÍNI.
Fínasti
Riklingur
af Vestfjörðum
fæst í
Auglgsingum í „Lög-
rjettu“ tekur ritstjórinn við
eða prentsmiðjan.
Allskonar
laíiar- og Hafskipabryggjur
tek jeg að mjer að smíða.
Guðmundur E, Guðmundsson & Co.
Keykj avík.
Eggert Claessen
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Pósthússtræti 17. Venjulega heima kl. 10—II
og 4—5. Talslmi 16.
Sttilka,
á aldrinum 17—23 ára, getur fengið
að læra ritsíma- og talsímafræði við
landssímastöðina í Reykjavík og vænst
að fá atvinnu frá því í haust við eín-
hverja fyrsta flokks stöð landssímans.
Laun 600 krónur um árið, talið frá
skipunardegi. Umsókn rituð með eig-
in hendi, ásamt læknisvottorði, vott-
orði um siðferði og vitnisburði um
kunnáttu, sendist til landssímastjór-
ans í Reykjavík fyrir 5. ágúst næst-
komandi.
Forberg.
Hjartanlegar þakkir yottum við
öllum þeim, sem með návist sinni
eða á annan hátt heiðruðu útför
okkar elskaða sonar og fóstur-
sonar Jóns sál. Yestdal.
Guðbjörg Jónsdóttir.
Solveig og Sigfús Eymundsson.
jón Kristjánsson
nuddlæknir.
Aðalstræti 18, Talsími 124.
Heima til viðtals daglega frá
kl. 2—3 og s—6.
m
l
selur ódýrast alt sem tilheyrir skipum og bátum.
Skoðið vörurnar og spyrjið um verð þeirra. — Það borgar sig.
Prentsmiðjan Gutenberg.