Lögrétta - 29.07.1908, Qupperneq 3
LöGRoETTA.
135
fylgja mjer á fundinn, og þvf varð mjer
þessi upphrópun á. Mig furðar stór-
lega á því, að enginn skuli hafa stung-
ið upp á mjer til fundarstjóra, þar sem
þó allir vita, hvað jeg er hjólliðugur til
að snúa mjer eftir skoðunum manna, en
það álít jeg aðalkost hjá fundarstjóra;
hann á enga fasta meiningu að hafa,
og hana hef jeg heldur ekki. Sjerstak-
lega furða jeg mig á, að Ungmennafje-
lagið, sem er hjer til staðar svo fjöl-
ment, skuli eigi velja mig, m i g, sem
hef svo fagurlega kveðið um það, hvað
þeir væru vel staddir, sem æskan rjetti
sína örfandi hönd . . .« Lengra komst
hann ekki, þvf nú reis alt ungmenna-
fjelagið upp og hrópaði eiuum munni:
»Við veljum SteinaL Var þá Þorsteinn
talinn löglega kjörinn fundarstjóri, en
þó líkaði ýmsum það illa, einkum dr. Jóni,
sem strauk skeggið fagra, fjekk sjer væna
tölu, reisti kollhúfur, en sagði neitt eitt.
Nú var tekið til starfa, en það var
að stinga upp á þingmannaefnum fyrir
kaupstaðinn og var stungið upp á ýms-
um, og kom svo að lokum, að nálega
hafði verið stungið upp á öllum, sem
við voru, nema Einari Zoéga. Kom
mönnum þá saman um, að viðhafa skrif-
lega kosningu, og eftir ftrekaðar kosn-
ingar fjekk dr. Jón ioo atkv. og Magn-
ús Blöndal 66 atkvæði. Var því tekið
með lófaklappi og gengið af fundi.
Rjetta fundargjörð staðfestir:
Atli.
ísland erlendis.
Glímumennirnir. Þeir æfðu sig
í fyrstu á vellinum, þar sem ólymp-
isku leikarnir voru síðar haldnir, og
áttu íþróttamenn frá ýmsum þjóðum
þar kost á að sjá til þeirra, þótti ný-
stárlegt og ljetu yfirleitt vel yfir.
Laugardaginn II. júlí gltmdu þeir
opinberlega og var glímunnar getið
í mörgum af Lundúnablöðunum og
sum fluttu myndir af glímumönn-
unum.
Merkilegt þótti, að þetta, sem hjer
var sýnt, væri íþrótt, sem tíðkuð
hefði verið af víkingunum fornu, en
á þá er oft minst í enskum bók-
mentum.
Jóhannes Jósefsson tók þátt í grísk-
rómverskri glímu í ólympisku leikj-
unum 20. júlí. Stóð hann sig þar
svo vel, að hann varð einn af fjór-
um, er glíma skyldi lokaglímuna, fyr-
ir verðlaunum. En símað hefur verið,
að hann hafi orðið að hætta við
glímuna, ekki verið feldur, en ekki
heldur fengið verðlaunin. Hefur hann
að líkindum veikst á meðan á glím-
unni stóð.
Á laugardaginn var fjekk „Lögr."
símskeyti frá einum af glímumönn-
unum og segir þar, að þann dag
glími þeir í annað sinn opinberlega
„fyrir drotninguna".
Ágúst Flygenring konungkj. al-
þm. og kaupmaður í Hafnarfirði hef-
ur á fiskisýningu Norðurlanda hinni
stóru f Þrándheimi í sumar fengið
tvær medalíur, gullmedalíu og silfur-
medalíu. Gullmedalíuna tjekk hann
fyrir verkun á saltfiski, en silfurmeda-
líuna fyrir bát með íslensku lagi,
tveggja manna far, er Bjarni Brynj-
óifsson í Engey smíðaði fyrir hann.
Lagið á bátnum er Faxaflóalagið,
eða nánar tiltekið: hið svo nefnda Eng-
eyjarlag.
Islensku sýningarmunirnir voru í
sjerstakri deild, en minni hluttaka var
hjeðan en vera hefði átt. Að vinna
gullmedalíu fyrir verkun á fiski á
þessari sýningu er mikils vert, því
Jíýja ljósmynðastoju
hefur Magnús Gíslason sett á stofn
í Bankastræti 14.
Lágt verð, vöndnð vinna
og fljót afgreiðsla.
víða er um það getið og eftir því
tekið af þeim mönnum erlendis, sem
við fiskverslun fást.
Sambandsniálið í norskum blöð-
nm. Um greinar þær í norskum blöð-
um, sem óvinablöð sambandslagafrum-
varpsins hafa verið að prenta upp,
segja hin merkari blöð Norðmanna úr
öllum flokkum, svo sem „Verdens
Gang", „Morgenbladet", „Bergens
Tidende" o. fl., að hvorki höfundar
þeirra nje blöð þau, sem þær birtast
í, hafi nein almenn áhrif í Noregi.
Þau segjast ekki einu sinni hafa veitt
þessum greinum neina eftirtekt fyr
en farið hafi verið að rita um þær í
dönskum blöðum. Þar hefur og Ragnar
Lundborg ritstj. í Uppsölum kynst
þessum norsku blaðagreinum og þykir
honum ekkert í þær varið, en telur
þær geta spilt málstað íslendinga í
augum annara þjóða.
Dáin er nýlega í Khöfn frú Ingi-
björg Schulesen, ekkja Sigfúsar Skúla-
sonar fyrrum sýslumanns í Þingeyjar-
sýslu (d. 18Ö2), hálfnfræð. Dóttur á
hún á lífi í Khöfn, sem Fanney heitir,
ógift, en sonur hennar og Gísla skóla-
kennara Magnússonar, Beinteinn, and-
aðist í Khöfn 1897.
Frá fjallatindum til fiskimiða.
Frá Akureyri. Bjarni frá Vogi
boðaði til stjórnmálafundar á Akur-
eyri 23. þ. m. og skýrir „Rvík" svo
frá þeim fundi, eftir símskeyti að
norðan:
„Bjarni frá Vogi hjelt fund hjer í
gærkvöld til að ræða um sambands-
málið. Hafði Bjarni boðað til fundar-
ins og sjerstaklega óskað, að þing-
mannsefni kaupstaðarins yrðu við
stödd. Fundurinn var haldinn í stóra
salnum í Templarahúsinu, og var hús-
fyllir.
Bjarni hóf sjálfur umræðurnar og
talaði fyrst í rúman kl.tíma. Fimbul-
fambaði ósköpin öll móti sambands-
lagafrumvarpinu.
Jón Þorláksson verkfræðingur, sem
staddur var á fundinum, svaraði Bjarna
og hrakti allar ástæður hans svo að
þar stóð ekki steinn yfir steini. Guði.
sýslumaður Guðmundsson talaði þá
og inóti Bjarna. Tók Bjarni þa til
máls aftur til varnar, en varð úr hið
mesta vandræða yfirklór. Stefán kenn-
ari Stefánsson og hinir fyrti ræðu-
menn ónýttu alt tal hans; fjekk hann
hina verstu útreið og varð talsverður
hlátur í salnum að frammistöðu hans.
Enginn tók til máls með Bjarna, en
nokkrir skoðanabræður hans ljetu bera
upp tillögu móti frumvarpinu, en hún
var feld með miklum uieiri hluta at-
kvæða, en atkvæði ekki talin. Þá ljet
E. Laxdal bera upp tillögu með frum-
varpinu og var hún samþ. með 43
atkv. gegn 17“.
Yerslunarskuldir. í síðasta tbi
„Reýkjavíkur" skrifar Lárus H. Bjarna-
son lagaskólastjóri grein um verslun-
arskuldir og ráð við þeim. Hann vill,
að landsjóður kaupi allar útistandandi
verslunarskuldir og innheimti þær aftur
á mörgum árum með jöfnum afborg-
unum. Hann áætlar allar þessar skuldir
rúml. 3 millj. kr. og hyggur þær munu
seljast tyrir 33%, eða rúml. 1 millj.
Heílræði.
Gleymið ekki, þegar þjer gerið
samning um smíði á húsi handa yður,
að taka það fram, að það sje klætt
með
Viking-pappa.
Hann fæst hjá öllum verslunum
hf. P. J. Thorsteinsson & Co’s.
Til kaupanna vill hann taka höfuðstól
ríkissjóðstillagsins, sem eftirsambands-
lagafrumvarpinu verður borgaður út,
en hann er 1V2 millj. Landsjóður á
svo aðeins að innheimta hjá skuldu-
nautum þá upphæð, sem fyrir skuld-
ina hefur verið gefin, t. d. af 1500
kr. skuld 500 kr., er afborgast með
t. d. 6%> á 28 árum, eins og ýms
eldri landsjóðslán.
Af Eyrarbabka er skrifað: „Föstu- j
daginn 17. júlí vildi til það óhapp, '
að merkur tómthúsmaður hjer í kaup-
staðnum, Árni Jónsson í Munkakoti,
fyrirfór sjer. Hann var 63 ára gam-
all, hafði búið hjer samfleytt í 36 ár
og ætíð verið vel metinn. Hann læt-
ur eftir sig ekkju, Margrjeti Filipp-
usdóttir, 67 ára, og 3 börn á lífi.
Árni var bú'.iöldur góður og skyldi
vel við heimili sitt. I vösum hans
fanst hjartnæmt brjef, og bað hann
þar nokkra kunnuga menn fyrir ald-
urhnigna konu sína og lasburða dótt-
ir. En orsök vita menn enga til þess,
að hann fyrirfór sjer, aðra en þá, að
líklegt var, að lífskraftar hans væru
þrotnir. Hann hatði fengið hjarta-
slag rjett áður og mun hafa sjeð, að
hann biði þess sjúkleika aldrei bæt-
ur, enda hafði hann verið yfir kom-
inn af veikindum og varla með fullu
ráði eftir. Jarðarför hans fór fram
síðastl. laugardag með almenri hlut
tekningu frá hálfu kaupstaðarbúa og
nágranna hins látna".
Úr Húnayatnssýslu. Þar var hald-
inn þingmalafundur, eins og til stóð,
26. þ. m. Mjög fjölment hafði þar
verið og komu þangað margir að
gamni sínu, þótt ekki hefðu kosning-
arrjett. Raðherra var á fundinum og
hjelt þar ræðu. Alt hafði farið þar
vel fram og töluðu margir, ýmist
með eða móti frumvarpinu. Þing-
menskuframboð komu frá Þórarni
Jónssyni á Hjaltabakka, með frumv.,
en Árna á Höfðahólum og síra Haf
steini Pjeturssyni á móti. Sjálfsagt
verða þingmarnaefnin fleiri áður lýkur.
Ettir Birni á Kornsá eru þau um-
mæli höfð frá fundinum, að hann vildi
ekki með breytingum stofna frumv.
í voða. Tillögur voru engar bornar
upp á fundinum.
Fingmannaskúlinn áPingvöllum,
sem reistur var í fyrra og er stórt
hús og fallegt, stendur nú ónotaður
og engum til gagns, en verður auð-
vitað fyrir meiri og meiri skemdum
eftir því sem tíminn líður. Væri ekki
hugsanlegt, að rnenn hjer í Reykja-
vík keyptu skálann í fjelagsskap og
gerðu úr honum sumarbústað handa
börnum? Til þess er skálinn vel fall-
inn, allur bólfaður í sundur, svo að
hver fjölskylda, sem búa vildi þar
einhvern tíma að sumrinu, gæti haft
þar herbergi út af fyrir sig. En svo
væri stóri salurinn sameiginlegur. Og
lóðarblettur fyrir leikvöll þyrfti að
fylgja, enda væri útlátalaust að láta
hann með.
Engin ástæða getur verið til þess,
að halda skálanum í mjög háu verði.
Það yrði lítið úr verði hans, ef hann
væri rifinn, og enn minna verður úr
því, ef hann stendur þarna ónotaður,
þangað til eyðileggingin kemur sjálf-
krafa.
Símskeyti
frá útlöndum.
Khöfn 24. júlí: Alberti er farinn
úr ráðaneytinu.
Falliéres Frakklandsforseti er stadd-
ur í Kaupmannahöfn.
Högsbro er orðinn dómsmálaráð-
herra, Anders Nielsen landbúnaðarráð-
herra, Sanderup samgöngumálaráð-
herra og Neergaard fjármálaráðherra.
Allir hinna nýju ráðherra standa
og hafa um langan tíma staðið einna
tremst í þjóðþinginu. Anders Nielsen
hefur verið foringi stjórnarflokksins
og formaður fjárlaganefndarinnar,
Sanderup framsögumaður fjárlaga-
nefndarinnar og Neergaard foringi
hinna hæglátari vinstri manna og
framsögumaður hinna nýju tolllaga,
vitur maður og hinn vandaðasti. Neer-
gaard og Nielsen sátu í sambands-
laganefndinni, en Sanderup var einn
í tör ríkisþingsmanna síðastl sumar.
Allir þessir menn eru góðviljaðir ís-
lendingum.
Útlendar frjettir.
----- 1
Giitisteina-mnðurinii.
1 vetur var hjer í blaðinu sagt frá
frönskum verkfræðingi, Lemoine að
nafni, sem hjelt því fram, að hann
hefði fundið aðferð til þess að búa
til gimsteina og hafði fengið stórfje
fyrir uppgötvunina hjá stjórn ensks
námufjelags í Suður-Afríku. Nú er
það komið upp, að þetta var ekki
annað en svik og prettabragð hjá
manninum. Hann þóttist hafa lýst
aðferð sinni í ritgerð, er hann lok-
aði í umslagi og lagði til geymslu í
enskan banka. En þegar mál hans
skyldi dæmast og umslagið opnað í
París í sumar, þá strauk Lemoine,
enda var engin ritgerð í umslaginu.
1. þ. m. var hann tekinn fastur suð-
ur í Rúmeníu. Stjórn námufjelags-
ins, sem hann hafði svikið fje út úr,
höfðaði sakamálið gegn honum, eins
og áður var frá skýrt.
Spitsbergen.
Þangað hafa haldið stóru ferða-
mannaskipin þýsku, sem hingað hafa
komið í sumar. En þar dvelur Hka
í sumar fólk, sem þangað hetur far-
ið frá Noregi, bæði náttúrufræðing-
ar, málarar og veiðimenn, sem þar
eru sjer til skemtunar. Alltíðar ferð-
ir eru nú milli Tromsö í Noregi og
Spitsbergen.
Reykjavik.
Frá Fýskalandi eru hjer ýmsir
merkir menn á terð í sumar, auk
þeirra, sem áður hafa verið nefndir
hjer í blaðinu. Sonur Baldvins Ein-
arssonar, Einar, og sonur hans, Bald-
vin Einarson, sem dr. Helgi Pjeturss
hefur áður sagt frá í ferðabrjefi hjer
í blaðinu, eru nú komnir hingað og
dvelja hjer um hríð hjá frænda sín-
um, Páli Einarssyni borgarstjóra.