Lögrétta

Útgáva

Lögrétta - 08.08.1908, Síða 4

Lögrétta - 08.08.1908, Síða 4
144 L0GRJETTA. ordinantsía Chr. III., kirkjulögin öll og kristinrjettir Árna, Þorláks, Ketilsogjóns segja um þessar sakir. Einar er orðinn lotinn og boginn af trítli og áreynslu. Rektor býr sig undir að kenna ráðvendni við skjöl og hús- bóndahollustu, þó sárfættur sje. Jósep er alstaðar nálægur, hvar sem tveir tala saman, þó hann sje bæði haltur og lær- skakkur. ____________ J- Útlendar frjettir. Júnas Lie. Jarðarför hans fór fratn n. f. m. með mikilli viðhöfn og var í heið- ursskyni kostuð af ríkinu. Blöðin hafa nú, meðal annars, afl- að sjer upplýsinga um það. hvemik- ið hafi verið prentað af hverju ein- stöku af skáldritum hans. „Familien paa Gilje“ er hæst, og er prentuð alls í 49,500 eintökum; þá „Den Fremsynte" í 41,500 eint., tvö önn- ur ná yfir 30 þús., en öll yfir 20 þús., nema eitt; það er prentað í 17 þús. Safnrit, með öllum skáldverk- um Lies, var gefið út fyrir nokkru, í 15 þús. upplagi, og er það talið hjer með. Símskeyti frá útlöndum. Khöfn 6. ágúst: Dáinn er á Græn- landi Mylius-Erichsen (skáld og rit- höfundur, er kunnur er hjer frá stú- dentaförinni 1900). Reykjavik. Ráðherra íslands, H. Hafstein, var þann 20. júlí sæmdur orðunni Grand-Officer af heiðursfylkingunni frönsku. Forseti Frakklands heimsótti kon- ung vorn þá daga og var þá mjög mikið um dýrðir í Khöfn. Austur með „Hólum" í gær fóru ráðherrann, Jón Olafsson, Jón í Múla og Árni sonur hans, Björn Ólafsson augnlæknir, Þorst. Erlingsson skáld og Jón Helgason prentsmiðjustjóri frá Hafnarfirði. „Óðinn". Júlíblaðið flutti mynd af Konráði prófsssori Gíslasyni og grein um hann eftirjón Ólafsson; mynd at Páli Melsteð sagnaritara 95 ára; kvæði ettir C. Rosenberg um ísland, ort 1874, en eigi fyr prentað; mynd af Skafta sál. Jósefssyni ritstjóra; mynd af Jóhannesi Jósetssyni glímukappa; tvö kvæði eltir Jónas Guðlaugsson; mynd af Þorvaldi Björnssyni lögreglu- þjóni; mynd af embættismönnum stór- stúku íslands (14) og kvæði eftir A. Hovden til síra M. Joch. Frá fjallatindum til fiskimiða. Frönsk flskiskúta sökk á Hjer- aðsflóa 19. f. m. Skipshöfnin öll, 18 manns, komst í bátana og náði landi við Unaós. Úr Yestmannaeyjum er skrifað: „Ekki leiðist Birni gott að gera — og bendir ekki hvað síst á það grein- aróhæta sú, er hann birtir í andstæðu sannleikans, „ísaf.“, 8. júlí síðastl., þar sem hann minnist á kosninga- smalamensku hjer í Vestmannaeyjum. Jeg hei ekki rekið mig hjer á neinn smalahóp, og því síður, að hr. skrif- stofustjóri Jón Magnússon hafi sent hingað neina menn til smalamensku. Það, sem gert hefur verið að því er snertir áskorun til J. M., hefur verið gert af fúsum vilja, án nokkurrar til- hlutunar hans. En það er eins og tyr, að ekki leiðist Birni gott að gera. ..." ísland erlendis. ísl. prestarnir vestra. Það eru stórtíðindi, sem gerst hafa á kirkju- þingi Vestur-íslendinga í sumar. Síra Jón Bjarnason neitaði að vera í kjöri, er kjósa skyldi formann kirkjufje- lagsins, en stungið hafði verið upp á síra Birni B. Jónssyni ásamt síra Jóni, og var síra Björn því kosinn. En hann hefur alla tíð verið fastur fylgismaður síra Jóns. Á þinginu var síra Friðriki Berg- mann vikið burt úr kirkjufjelaginu og sagt upp kennaraembættinu í ís- lensku við Wesley College með árs fresti. Einr.ig hafði Magnúsi Magnússyni (frá Chambridge) verið sagt upp kenn- arastöðunni við G. Adolphus skól- ann í Minnesota með sama fyrirvara. Síra Friðrik er prestur Tjaldbúðar- safnaðarins í Winnipeg. Tœkifæriskaup á lystivagni hjá Daníel Daníelssyni. Til leigu 3—4 herbergi í Sivertsenshúsi, Hafn- arstræti 22, niðri, 2 herbergi í Melsteðshúsi, Lækjar* torgi 1, niðri. Semja skal á skrifstofunni í Chomsens jVíagasíni. cJyrirtafis cTimSur, trje, spírur, plankar, óunn- in borð, rúplœgd borð, gólf- borð og panel, er nýkomið og selst með lœgsta verði i THBMSENSIAHASÍNI. Auglýsingum í „Lög- rjettu“ tekur ritstjórinn við eða prentsmiðjan. Skrifstofa borgarstjóra Reykjavíkur er í Veltusundi nr. 1, og er opin hvern virkan dag frá ki. IO f. h. til kl. 3 e. h. Aö farlO sje að prenta hina dönsku lestrarbók mfna í 4. útgáfu, og að hún muni fullprentuð í það mund, er skólar byrja í haust, tilkynnist þeim hjer með, er framvegis vildu nota bókina. Slgr. Thorsleinsson. Jón Kristjánsson nuddlæknir. Aðalstræti 18, Talsími 124. Heima til viðtals daglega frá kl. 2—3 og 5—6. Sveinn Jjörnsson yfirrjettarmálaflutningsmaður. Hajnarstræli 16. JI<‘ð því aö menn fara nú aftnr að nota steinolíu- lainpa sína, leyfum vjer oss aö minna á vorar Yerðið á merkjum vorum, sem viðurkend eru hvarvetna, er þetta (á brúsum): „SólarsRær44.....................10 a. pt. Pensylvansk Standard Wliite 17 a. pt. Pensylvansk Water Wliiíe . . 19 a. pt. í 5 potta og 10 pt. brúsum. Á 40 potta brúsum 1 eyri ódýrari potturinn. Munið eptir því, að með því að kaupa olíuna á brúsum fáið þjer fulla pottatölu og eigið ekki neina rýrnun eða spilli á hættu, eins og þegar olían er keypt í tunnum. Háttvirtir viðskiptavinir vorir eru beðnir um að aðgæta, að á 5 og 10 potta brúsum sjeu vörumiðar vorir á tappan- um og hliðinni; á 40 potta brúsum eru miðar á hliðinni og blý (plombe). P. S. Viðskiptavinir vorir eru beðnir, sjálfs sin vegna, að setja nýja kveiki í lampana, áður en þeir verða teknir til notkunar, því aðeins með því móti næst fult ljósmagn úr olíunni. Með mikilli virðingu. D. D. P. 1 H. D. S. H. F. zh Munid eítiiB klæðskerabúdinni í §B£** Hafnarstræti. ‘Tpf Mest úrval af öllu er að karlmannafatnaði lýtur. fötin þaðait: jara best halða lengst -kosta minst. ÍOOOOOOOOOOOCOOOOOOOOOOOOOOOC niotoröátar í Istaii eru bygðir á byggingarstöðinni „Alpha“ í Reykjavík undir yfir- umsjón skipasmiðs Otta Guðmundssonar. í alla báta eru settir „Alpha£í-mótorar, sem allir viðurkenna bestu mótora, sem flutst hafa til íslands. Bátarnir eru bygðir lir eik eða bestu furu, af þeirri stærð sem óskað er. Allir, sem vilja eignasl mótorbáta, semji við smiðinn sjálfan, undirritaðan, eða, i fjarveru hans, við kaupm. Kr. Magnússon i Reykjavik. Sandgerði 25, júlí 1908. Matth. Þórðarson. iOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOC Slippfj elagid i Reykfavík selur ódýrast alt sem tilheyrir skipum og bátum. Skoðið vörurnar og spyrjið um verð þeirra. — Það borgar sig. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.