Lögrétta - 09.12.1908, Page 1
LOGRJETTA
== Ritstjóri: PORSTEINN GÍSLASON, Þingholtsstræti 17.
M &G.
Heykjavík 9. desember 1908.
III. árg.
■V
HAFNARSTR 17 18 t920 21-22-KOUS I 2-LÆKJAKT I-2
• REYKJAVIK*
cSesfa
handa konunni, kærustunni eða
dótturinni er:
Sbinnhúfa frá 2,00—10,00,
Skinnkragi frá 1.30—22,00,
Skinn-»Múffa« frá 1,80—ió.ooeða
Tetrarhanskar frá 1,00—2,50.
En besta
Jólagjöfín
handa manninnm, kærastanum eða
syninum er:
Silkihálsklútur frá 1,00—6,00,
Sklnnhúfa 0,75—14,00,
fíöngustafur frá 0,50—7,50,
úr
HThAThomsen- M
Arinbj. Svembjarnarsonar
hetur til sölu:
Ljóðabækur.
Söngbækur.
Fræðslubækur.
Sögubækur.
Barnabækur.
Pappír og ritfong af ýmsum tegundum
með ágætu verði.
10 aura brjefsefnin góðu o. fl.
Vatnsveitan.
í „Lögrjettu" 2. þ. m., hefur land-
læknir Guðmundur Björnsson gerst
alifjölorður um tilboð, er vatnsveitu-
nefndin hefur sent húseigendum um
að leggja vatnsæðarnar í hús þeirra.
Þykir honum sá galli vera á.tilboð-
inu, að verðið er ekki tilgreint. Hjer
til liggur það svar, að verðið var
ekki hægt að tilgreina nákvæmlega
fyrirfram, af því það fer eftir gerð
og gildleika æðarinnar. Var því
farin sú leið, að láta einn starfs-
mann vatnsveitunnar athenda tilboð-
ið í hverju húsi, og átti hann jafn-
framt því að veita aðrar leiðbeining-
ar, að skýra hverjum húseiganda frá,
gnarkaupljela
H.
Hverfisg-ötu 12,
get'ur frá því í dag og til næstkomandi áramóta milc-
iiin afslátt á allskonar Álnavöru, þar á meðal Silki-
tauum, tilbúnum Fatnaði, Ullartauum, Skófatnaði, Leirvörum, Glys-
varningi, Lömpum, Járnvörum, Saum o. m., m. fleira.
hve mikið innlagningin kostaði hjer
um bil, alt ettir stærð og gerð hús-
æðarinnar. Um þetta gat líka hver
húseigandi aflað sjer vitneskju á vatns-
veituskrifstofunni. Hjer var því ekki
farið í pukur með neitt.
Annars hugði jeg, að það eitt, að
nafn borgarstjóra stóð undir tilboðinu,
nægði til að útiloka þá hugsun hjá
nokkrum borgara, að hjer væri um
nokkra skrumauglýsingu að ræða, og
því síður, að bak við lægi nokkur
blekkingartilraun, eins og jeg hef
heyrt, að gefið hafi verið 1 skyn á
borgarafundinum 8. f. m.
í annan stað vítir Guðmundur land-
læknir það, að vatnsveitunefndin skuli
ekki þegar hafa löggilt nokkra vatns-
veitumenn til að vinna að húsæðum.
Ef bæjarstjórnin hefði gert þetta,
hefði hún útilokað sig frá, að geta
útvegað húseigendum jafnódýrt til-
boð og hún nú býður. Það var
bundið við það, að mikið efni væri
keypt í einu. Með því að fylgja
ráðum verkmeistaranna í þessu efni,
en ekki annara, sem minni þekkingu
hafa á þessu —, vænti jeg, að hús-
eigendum bæjarins sparist að sam-
töldu þúsundir, ef ekki tugir þús-
unda króna. En að sjálfsögðu verða
síðar löggiltir menn til að leggja æð-
ar í hús, og hver af húseigendunum
getur þá valið, hvern af hinum lög-
giltu mönnum hann lætur leggja æð-
ina í hús sitt.
Reykjavík 7. des. 1908.
Páll Einarsson.
❖ *
„Verðið var ekki hægt að til-
greina" — segir borgarstjóri.
Það var vel hægt að tilgreina verð á
vatnsleggjum, krönum og öðru efni;
það var vel hægt að tilgreina sennilegt
vinnuverð miðað við lengd æðar;
við húseigendur getum vel ætlast á
um lengd húsæðanna og við vitum,
hvað við viljum hafa marga krana;
vel mátti gera tilboðið svo ljóst, að
við sæjum hjer um bil, hvað húsæð-
in mundi verða okkur dýr, ef bær-
inn gerði hana, og gætum athugað,
hvort aðrir vildu gera hana ódýrari.
Þetta sjá allir bæjarbúar — nema
ef vera skyldi borgarstjórinn.
Þeir sjá einnig, að þá hefði spar-
ast þessi starfsmaðar, sem borgar-
stjóri segist hafa til þess að hlaupa
hús úr húsi með tilboð hans — til
að skýra það.
Þeir munu og geta iesið út úr
grein borgarstjóra, að vatnsveitu-
menn hafa ekki verið löggiltir, ein-
mitt af því, að vatnsveitunefnd hef-
ur óttast, að þa kynnu aðrir að bjóða
jafn-ódýrt efni og jafnódýra vinnu.
Nefndin hefur auðsjáanlega ekki fulla
trú á því, að hennar tilboð sje svo
gott, að aðrir muni ekki geta boðið
eins gott eða betra.
Borgarstjóri segir, að síðar verði
löggitir menn til að leggja húsæðar
og þá getum við húseigendur valið
um.
En hvenær kemur þetta síðar? Þeg-
ar bæjarstjórn er búin að selja alt
húsæðaefnið, sem hún hefur keypt?
Nafn borgarstjóra undir tilboðinu
er trygging fyrir því einu, að hann
álíti það gott, en alls ekki fyrir því,
að það sje gott. Jeg segi ekki og
hef ekki sagt, að það sje slæmt. Og
ekki hef jeg talað um blekkingar.
En vafalaust getur borgarstjóra mis-
sýnst og vafalaust getur hann orðið
fyrir blekkingum, eins og aðrir góð-
ir menn — það segi jeg. Og um
„þekkingu" á vatnsveitumáli er það
að segja, að hana mun jeg hafa öllu
meiri en herra borgarstjórinn.
G. Björnsson.
Yfirsetukona,
Kristín Jónasdóttir.
(hefur tekið próf í Kaupmannahöfn)
er sest að í Vesturbænum, býr f húsi
nr. 8 við Stýrimannastíg.
Styrkur
handa fátækum, veikum stúlkubörn-
um í Reykjavík verður veittur úr
Minningarsjóði Sígríð-
ar Thoroddsen.
Aðstandendur sendi beiðni um
styrkinn fyrir nýjár til forstöðunefnd-
ar Thorvalsensfjelagsins, Austur-
stræti 4.
c7unóur
Nýjar bækur.
Sturlunga saga. Búið hefur
til prentunar Björn Bjarna-
son dr. phil. Fyrsta bindi.
Rvík 1908. Útgefandi Sig.
Kristjánsson. 331 bls. Verð:
kr. 1,60.
Það er fyrir löngu kunnugt, að Sig-
Kr. ætlaði að gefa Sturlungu út næst
á eftir Eddunum, og nú er hjer kom-
ið 1. bindið. Alt á ritið að verða
í 4 bindum og nafnaregistur að fylga
hinu síðasta. í þessu bindi eru: 1.
Geirmundarþáttur heljarskinns, 2. Þor-
gils saga og Hafiiða, 3. .Ettartölur,
4. Sturlu saga, 5. Prestssaga Guð-
mundar góða, 6. Guðmundar saga
dýra og 7. Hrafns saga Sveinbjarn-
arsonar. Brotið er hið sama og á
íslendingasögum og Eddunum og frá-
gangur allur hinn sami.
Ódýr alþýðu-útgáfa af Sturlungu
er eigi síður gott verk og þarflegt,
en samskonar útgáfa af íslendinga-
sögum, nema fremur sje.
Skuggamyndir. Alþýðlegar
frásagnir úr sögu páfadóms-
ins eftir Þorstein Björnsson
kand. theol. Rvík 1908. 200
bls. 8vo.
Bók þessi er fyrirlestrar, sem höf.
hjelt hjer í fyrra vetur. Efninu hef-
ur hann safnað úr ýmsum fræðirit-
um og lætur hann þeirra getið í
formálanum. I bókinni er litið yfir
sögu páfadómsins frá elstu tímum og
fram á síðustu daga.
Deila má auðvitað um það, hvort
þeir dómar sjeu rjettir og sanngjarn-
í „c*ram“
flmtudaginn 26. þ. m. á renjuleg-
um stað og tíma.
Jón Jónsson alþingism. frá Múia
talar.
ir, scm höf. fellir yfir pápiskunni, og
víst er um það, að öðruvísi hefði
þetta yfirlit orðið, ef það hefði kom-
ið frá hendi kaþólsks manns. En
ætlunarverk þess er líka, að sporna
móti katóiskunni hjer á landi, og
máli sínu til sönnunar iærir höf. fram
ýmsar sögur um páfa og dýrlinga.
Frá mörgum þeirra er vel sagt og
er bókin í heild sinni vel skrifuð og
skemtileg og töluverður fróðleikur (
henni, þótt segja megi hins vegar,
eins og gert hefur verið í sumum
blöðum, að ýmislegt sje þar fram
tínt, sem eins vel hefði mátt sleppa.
Tekjur Landssimans nm 3. ársíjórðnng 1908.
Símskeyti:
Innanlands ............ kr. 2872,05
Til útlanda kr. 25399,25
Þar af hluti
útlanda ... » 21390,51
Hluti íslands ... ..... » 4008,74
Frá útlöndum........... » 1892.28
Símasamtöl ............. » 8288,80
Talsímanotendagjald. ... » 1039,87
Áðrar tekjur ........... » 945,96
Samtals kr.
Rvík 3. des. 1908
O. Forbe
19047,70