Lögrétta

Issue

Lögrétta - 12.05.1909, Page 4

Lögrétta - 12.05.1909, Page 4
100 L0GRJETT A. b. Ef það sannast, að skipstjóri hafi af ásettu ráði eða fyrir vítavert hirðu- leysi valdið tjóninu, má draga allt að 20°/o af skaðabótafjenu. Hafi vátryggj- andi 1 sviksamlegum tilgangi tvítrygt hið sama, eða hafi hann gerst valdur að tjóni af ásettu ráði eða fyrir vítavert hirðuleysi, er Samábyrgðin laus allra mála um skaðabótaskyldu. Þó skal Samábyrgðin ávalt skyld að greiða svo mikið af skaðabótunum, sem þarf til að borga lán af almannafje, þar með talin lán úr íslenskum bönkum og sparisjóðum, er veitt hafa verið gegn veði í skipinu eða bátnum; þó er eigi skylt að greiða meira en nemi 8/s tryggingarupphæðinnai, og á Samá- byrgðin þá endurgjaldskröfu á hendur þeim, er sekur er. 8. gr. Fjelagið bætir tjón og skaða, er verður af völdum sjávar, storms eða ann- ars óveðurs, af strandi, af því, er skip ber á sker eða grunn, af skipbroti, kollsigling, ásigling, árekstri, eldi og öðrum slysum. 28. Um gagnfræðakólann á Akureyri. 1. gr. Fræðigreinar þær, semkennaskal | í skólanum, eru þessar: íslenska, danska, enska, saga og landafræði, einkum saga og landafræði íslands, auk yfirlits yfir lög- gjöf þess í landsrjetti og landstjórn, reikn- ingur, rúmfræði og landmæling, náttúru- saga, og telst þar til meginatriði mann- fræðinnar og heilsufræðinnar; ennfremur grundvallaratriði eðlisfræðinnar og efna- fræðinnar, dráttlist, söngur, handavinna og leikfimi. 2. gr. Kennarar skólans eru 4 og er einn þeirra skólameistari. Hefir hann á hendi aðalumsjón með kennurum skólans, nemendum hans, húsum, áhöldum og öll- um eigum. Hann hefur að árslaunum 3000 krónur og auk þess leigulausan bú- stað, ljós og hita, í skólahúsinu. Fyrsti og annar kennari 2000 kr. hvor og þriðji kennari 1600 kr. að árslaunum. 3. gr. í skólanum eru allt aðsoheima- vistir. Skulu nemendur, er heimavist hafa, greiða 6 kr. en allir aðrir nemendur 1 kr. árlega 1 skólasjóð í byrjun hvers skóla- árs. Skólasjóð skal varið skólanum til stuðnings Og efiingar samkvæmt skipulags- skrá, er stjórnarráðið semur eptir tillögum skólastjóra. Hrífuhausar, hrífusköft, orf, þvotta- klemmur, eikarmáluð kúffort af tveim- ur gerðum o. fl. Hvergi eins lágt verð. Sigurður Pjetursson, fangavörður. . Stórkostlegt úrval af M sjolum M af nýjustu gerð, mjög falieg og lásjeð, nýkomin auk niargs annar§ f Th. Thorsteinssoris ver^luri a,ö I n<>ólíshv'oli. Otto Monsteds danska smjörlíki er best. Biðjið kaupmanninn yðar um þessi merki: „Sóley“ „Ingólfur“ „Hekla“ eða „IsafoldL“. Sjerhver hyg'g’in húsmóöir kauplr hel§t vefnaðarvörur í cTfí. cTíiorsfcinssons varsíun, *3ngólfsRvolL Mests úrval, mekklegar, nýjar og ódýrar vörur. Nýkomið í stóru urvali: §ninarfralikar, gott efni, fallegar gerðir, laglegt snið I'eriuing-arföt ein- og tvíhneft, frá 12—24 kr. Svört CliaMiniir-Njöl, einföld, tvöföld, frá 6,50 til 16 kr. I41æöi, úr ull, 2,00—4,50 ljómandi falleg á 3 kr. Brauns versl. „Hamborg6 Talsími 41. Aóalsræti 9. Samsongurinn í Dómkirkjunni verður endurtekinn í kvöld, miðvikud. kl. 9. í síðasta sinn. Aðgöngumiðar 50 aura. ◄ ◄ ◄ ◄ ◄ ◄ ◄ ◄ Marg-arinið besta fæst hjá JES ZIMSEN. ► ► ► ► ► ► ► ► Hlutafjelagið Thomas Tl. Sahroa £ Co„ Aarhus — Danmörku, býr til Kolsýru- kæli-u frysti-vjelar, hefur lagt útbúnað til 600: tjviið er steinkolagas? Síðustu dagana hefur verið borið út meðal bæjarbúa smírit, sem inni- heldur allar mikilverðustu upplýs- ingar um gasið. Það er í fyrsta sinn sem á íslensku birtist sjerfræði- legt rit í samhengju um notkunar- svæði gassins, meðferð, verð og eiginleika þess, og vænti jeg því, að því verði vel tekið. Frekari ein- tök geta þeir er óska fengið á af- greiðslustofu þessa blaðs og hjá undirrituðum. Erhard Sehoepke verkfræðingur. Hotel ísland „Sjúkur var jeg og þjer vitjuðuð mín“. Eins og mörgum er kunnugt, varð jeg fyrir því böli að liggja mjög lengi og hættulega veikur næstliðinn vetur, og þegar jeg fór lítið eitt að hressast, þá veiktist sá maður á heimili mínu sem helst veitti því forstöðu, og lá einnig hætt og lengi. Heimilið hefði því verið mjög bág- lega statt, ef það hefði eigi notið annara hjálpar. Jeg finn mjer því skylt og ljúft að þakka opinberlega mfnum góðu sveitungum, ná- grönnum og fleirum, fyrir aila hina miklu hjálp og hluttekningu sem þeir auðsýndu mjer f hinum erviðu kringumstæðum. Sjerstaklega vil jeg nefna Varmalækjar- hjónin, Jakob óðalsbónda Jónsson og Her- dísi Sigurðardóttur, og Arnþórsholts-hjónin, Tómas bónda Þorsteinsson og Elsu þórð- ardóttur, sem sýndu mjer og heimili mínu mikla umhyggju og aðstoð á margan hátt. Einnig þakka jeg af hjarta hjeraðslækni Jóni Blöndal, sem annaðist mig með alúð, svo að jeg fjekk góðan bata og fljótan fram yfir vonir. Öllum þessum óeigin- gjörnu og kjærleiksríku mönnum þakka jeg af hrærðu hjarta fyrir hinna margvís- legu hjálp mjer til handa og bið guð að launa þeim þeirra kærleiksverk. p. t. Reykjavfk n. maí 1909. Guðnwndur Auðunsson frá Skálpastöðum. fískflutningaskipa, fiskfrysti- húsa, fiskgeymslustöðva, beitu- frystihúsa, mótorfiskiskipa, gufu- skipa, íshúsa, mjólkurbúa og til ýmislegs annars. X fjarveru minni veiti jeg hjer með Einari lagaskólakennara Arnórs- syni fult og ótakmarkað umboð til þess að innheimta, veita móttöku og kvitta fyrir útistandandi skuldir mín- ar, svo og til að gera samninga um Sjómenn og* bændur! Pið fáið liver<>i eins góð kaup á alíatnaði, ferðajökkum, eríiðisísiínaði, regnkápum, merísitnsiði, höttum og liiifiim, sem í verslun cTR. cTfíorstoinsson & @o. llafnarstræti (hús kaupm. Gunnars Þorbjarnarsonar). Fulltrúi fyrir ísland er: Sísli cJofínsan konsúll í Yestmannacyjum. Rrúkuð íslensk frímerki kaupir Inger Östlund, Austurstræti 17. Uppboð á Blikastöðum laugar- 6aS 15. þ m. á hád.: búshlutir, kýr, hross og hæns. sölu mótorbáta, taka við andvirði þeirra og kvitta fyrir, og eru menn því beðnir að snúa sjer til hans með alt, er þetta snertir. Reykjavík 16. apríl 1909. Matth. Þórðarson. jgy Auglýsingum í „lög- rjeltu“ tekur ritstjórinn við eða prentsmiðjan. Prentsmiðjan Gutenberg. 58 59 því eigi heldur á viðeigandi hátt tekið þátt í þeirri veislu, sem henni er boð- in. Sama er að segja um mig og minn göfuga frænda Aðalstein frá Stóru- borg; við tölum eigi aðra tungu, en tungu feðra okkar, og fylgjum enn þeirra siðum. Við þökkum því boð þitt, göfugi prins, en þiggium það ekki. En jungfrú Róvena mun á morgun setjast að í það heiðurssæti, er riddar- inn hefur kjörið hana til að skipa, með því líka, að val hans hefur verið samþykt með almennum fagnaðaróp- um«. Að svo mæltu tók hann sveiginn upp og setti hann á höfuð Róvenu til merkis um, að hún tæki á móti því valdi, er henni var boðið. »Hvað segir hann?« sagði Jóhann prins og ljet sem hann skildi ekki engilsaxneskuna, þótt hann reyndar væri vel að sjer í málinu. Samt voru orð Siðriks þýdd fyrir hann á frönsku. »Það er gott«, svaraði hann þá. »Á morgun ætla jeg sjálfur að leiða þessa þöglu drotningu til hásætis hennar. — »En þú, herra riddari«, sagði hann og sneri sjer til sigurvegarans, er beið þar skamt frá, — »þú kemur þó að minsta kosti í veisluna«. Riddarinn svaraði stutt og afsakaði sig með því, að hann værri þreyttur, en yrði að búa sig undir næsta dag. »Þaðergott«,svaraðiprinsinn drembi- lega. »Þótt jeg sje slikri undanfærslu óvanur, þar sem hvorki sá maður, sem hamingjan hefur fylgt íleikunum í dag, nje heldur hans kjörna íegurð- ardrotning, vill heiðra veislu mina með nærveru sinni, mun jeg samt reyna að njóta hennar sem best jeg get«. Að svo mæltu sneri hann hesti sín- um við og bjóst til að ríða út af leik- sviðinu, en það var merki um, að þá væri öllu þar lokið þann dag. En þegar prinsinn hafði riðið nokk- ur skref, sneri hann hestinum aftur við, því hann var að eðlisfari bæði til- tektasamur og hefnigjarn og hafði reiðst. Hann festi augun á óðalsbónd- anum, sem honum hafði mislíkað við áður um daginn, og sagði við þjóna sína, sem næstir voru: »Látið þið þenn- an pilt ekki komast í burtu án þess að jeg hafi nánara tal af honum«. Óðalsbóndinn ljet sjer hvergi bregða, fremur en áður, en svaraði brosandi: »Jeg hafði ætlað mjer að vera hjer tvo næstu daganahvort sem er. Jeg fer ekki án þess að líta á, hvernig þeir draga bogana hjerna frá StaíTellshjeraðinu og Byrgishjeraðinu, — það hljóta að alast upp góðar bogaskyttur hjer í Naut- hólaskóginum og í Kárastaðakógi. »Jeg ætla að sjá, áður en lýkur, hvernig hann dregur bogann sjálfur«, sagði Jóhann prins við fjelaga sína; »og reynist hann ekki eins vel fær og hann lætur, þá skal hann hafa verra af«. »Það væri timi til þess kominn, að farið væri að lækka á einhvern hátt rostann í bændunum«, sagði Breki. Valdimar Orrason yfti öxlum og þagði. Hanu hugsaði með sjer, að þetta yrði ekki til að auka prinsinum lýð- hylli, og honum gatst ekki að því. En nú reið Jóhann prins út af leiksviðinu og áhorfendurnir tvístruðust í allar áttir. Menn gengu burt í smáhópum út yfir grundirnar. En langflestir stefndu þó til Ásbæjar. Margir af göfugustu gest- unum gistu þar í kastalahöllinni, en aðrir höfðu leigt herbergi til og frá í bænum. Þar á meðal voru flestir riddaranna, sem tekið höfðu þátt í burtreiðunum, eða ætluðu að gera það næsta dag. Þeir riðu hægt áleiðis til bæjarins og ræddust við um það, sem gerst hafði um daginn, en þeim var heilsað með gleðiópum af fólkinu báðu megin við veginn. Sömuleiðis var Jó- hanni prinsi og fylgdarsveit hans fagn- að með gleðiópum, og áttu þeir menn það þó meira að þakka skrautklæðum sínum en lýðhylli. Með langmeslum og almennustum fagnaðarópum var þó tekið á móti sigurvegaranum. En honum var ekki um, að vekja mikla eftirtekt, og hann reið ekki langt burt frá leiksviðinu, en tók sjer gisting í tjaldi, sem umsjónar- menn leikanna buðu honum. Þegar hann var hOríinn inn í tjald sitt, þynt- ist manngrúin mikið, því margir höfðu heðið þess eins að sjá, hvert hann færi. Nú tók fjörið að þverra kring um leiksviðið, og ópin þögnuðu þar, en ómarnir bárust enn þangað frá hóp- unum, sem fjarlægðust. Eftir nokkra stund heyrðust þau ekki heldur leng- ur og alt varð kyrt og hljótt kringum leiksviðið. En skamt utan við það höfðu nokkrir smiðir sett niður smiðjur sínar og það- an sást bjarmi af eldum í rökkrinu, því nú urðu vopnasmiðirnir að vaka og vinna um nóltina og gera við þau vopn og herklæði, er skemst höfðu í viðureigninni um daginn, en áttu að notast aftur næsta dag. En fjölda varðmanna var skipað um leiksviðið, og áttu þeir að vaka yfir því um nóttina, hver flokkur um sig tvo og tvo klukkutíma í senn. X. Undir eins og Arflaus riddari kom inn í tjald sitt, þustu að honum ridd- arasveinar og þjónar og buðu honum að hjálpa honum til að komast úr herklæðunum, færa honum nýjan bún- ing og útvega honum bað. Ef til vill buðu enn fleiri fram þjónustu sína, en annars hefði orðið, vegna forvitn- innar, þvi að alla langaði til að vita, hver þessi riddari væri, sem svo vel hafði gengið fram um daginn, en þó neitað jafnvel prinsinum sjálfum um að lyfta hjálmgrímunni frá andlitinu, eða nefna nafn sitt. En riddarinn tók ekki á móti aðstoð neins þeirra. Hann vildi ekki þiggja hjálp neins manns annars en sveins síns, en það var bóndalegur maður útlits, klæddur dökkri flókakápu og með svarta skinn- húfu á höfði, er kastaði skugga yfir andlitið og huldi það meira en hálft.

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.