Lögrétta

Útgáva

Lögrétta - 10.11.1909, Síða 1

Lögrétta - 10.11.1909, Síða 1
Aígreiðslu- og innheimium.: ARINBJ. SYEINBJARNARSON Laua:avets 41« Talsími 74, Ritstjóri* Þ ORSTEINN GISLASON Pingholtsstræti 17. Talsími 178. 52. Reykjavík ÍO. nóvember 1900. IV. ítrg. I. O. O. F. 9011128V»III. Forngripasafnið opið n—12 frá 15 jún.— 15. sept. Lækning ók. í læknask. þrd. og fsd. 12—1. Tannlækning ók. (( Pólthússtr. 14) 1. og 3. md. í mán. II—1. Landakotsspítali opinn f. sjúkravitj. io'/» —12 og 4-5. Islands banki opinn 10—272 og 57a—7. Landsbankinn io'/a—21/*- Bnkstj. við 12—1. Lagaskólinn ók leiðbeining 1. og 3. ld. í mán. 7—8 e. m. Landsbókasafnið opið hv. virkan dag kl. 12—3 og 5—8. HAFNARSTR-17 18 1920 212'2'KOLAS 12- LÆKJAR: • REYKJAVÍK • Aðeins vandaðar vörnr, en þó ódýrar; þess vegna beinn hag'naður að versla við * I Lárus Fjeldsted, Yflrrjettarmálafœrslumaður. lælíjargata 2. Heima kl. 1 1 —12 og 4-5. Bóka- og pappírsverslun Arinbj. Sveinbjarnarsonar Laugareg 41. Talsími 74. Hvernig eigum vjer ai byggji? Eftir Jón Þorláksson. II. Hússtæði og herbergjaskipun. Fyrst er að velja hússtceðid. Og það sem mestu á að ráða um hús- stæðið er vatnsbólið. Landnáms- menn hafa auðsjáanlega haft þetta hugfast, þegar þeir völdu sjer bæjar- stæðin; það er engin tilviljun, að bæjarlækur rennur um túnið á helm- ingi bæja hjer eða svo. Nú á tím- um er ekki nóg, að vatnsbólið sje nálægt bænum, því að nú vilja allir veita neytsluvatninu í pípum inn í bæinn, ef kostur er; skal því gæta þess, ef unt er, að velja hússtæði svo, að húsið standi lægra en vatns- bólið, en þó nálægt vatnsbólinu. Þá er hægt að veita vatninu inn með litlum tilkostnaði. Þetta á jafnt við um íbúðarhús og peningshús, eink* um fjós. Þó verður að gæta þess, að setja hús ekki niður í kvos eða lág, þar sem ekki getur runnið frá því; regnvatn og einkum skolp þarf að geta runnið óhindrað burtu. Þar næst er að gæta þess, að grundvöilurinn sje traustur, og ekki of djúpt á honum. Enginn skyldi fastákveða hússtæði, fyr en hann hefur kannað grundvöllinn með grefti eða borun. Fastur grundvöllur á helst ekki að liggja dýpra en sem svarar á hæð við fyrirhugað kjallara- gólf; ef dýpra er á honum, hlýst þar af aukinn kostnaður, er grafa þarf fyrir veggjum og gera undirstöður að þeim niður fyrir kjallaragólf. Ef grjót er nærtækt, er þó engin frá- gangssök að fara svo sem 1 al. nið- ur fyrir kjallaragólf, ef þörf gerist. Hvað er góður grundvöllurf Um það er erfitt að gefa skýrar reglur, þótt auðvelt sje að kanna fyrir þá, sem vanir eru. Þess ber vel að gæta, að grundvöllurinn þart að vera þeim mun traustari, sem húsið er þyngra, þ. e. steinhús þurfa traustari grund- völl en timburhús. Klöpp er ávalt góður grundvöllur; þjett og þur mó- hella sömuleiðis, svo og þjettur sand- ur, ef sjeð er um að vatnsrensli nái ekki til hans. Gamlar rústir og haug- ar eru ónýtur grundvöllur, svo og allur jarðvegur, sem gerður er af mold eða jurtaleifum að mestu. Eitt- hvert besta ráðið til að kanna grund- völl er, að pjakka í hann með beitt- um járnkalli; gangi járnkallinn ekki í til muna, er grundvöllurinn vitan- lega traustur. Aldrei skyldi taka undirstöður veggja skemra í jörð en hálfa aðra alin, nema klöpp sje ofar, þvf að klaki gengur um 1V2 al. í jörð á hörðum vetrum, og engum grundvelli er treystandi, nema klöpp- inni einni, ef frost nær til hans. Ef klaki kemst í jörð undir steinhús- veggi, koma áreiðanlega sprungur í þá. Víðast hvar standa bæir hjer á landi inni í miðjum túnum; það hef- ur þótt þægilegt að hafa þá þar, vegna þess, að þá var hægast að verja túnin um gróandann, og fyrir- hafnarminst að reiða áburðinn á þau. Þessi þægindi hafa gert meira en að vega upp átroðning þann, sem túnið hlýtur að verða fyrir af mönn- um og skepnum, þegar bæjarhús og peningshús eru inni í túninu. Nú fer að líða að því, að flest tún verða girt, og þarf bærinn þá ekki lengur að veru í miðju túni vegna vörsl- unnar, og aburðinn fara nú allir að flytja á vögnum um túnin. Hjer eftir verður því í rauninni miklu hent- ara að hafa bæi og peningshús úti í túnjaðri, eða utan við hann, svo að túnið þurfi ekki að verða fyrir nein um atroðningi. Einstöku bændur hafa þegar flutt íbúðarhús sín út í túnjaðar, og hygg jeg, að enginn iðrist þess, sem það gerir. Moldin úr húsa- og bæja-rústum er ágæt til ræktunar, og rústirnar sjalfar eru besta túnstæði, og í kringum nýju húsin græðist smámsaman upp tún, svo að öllu samanlögðu verður nið- urstaðan sú, að flutningur húsanna er mesta jarðabót. Afstaða íbúðarhúss á, ef unt er, að vera svo, að íbúðarherbergi þau, sem mest eru notuð, snúi móti suðri eða suðaustri. Gæta skal þess, að setja hús f hlje fyrir verstu illviðraáttum, ef unt er. Þegar búið er að ákveða hússtæð- ið, verður næsta atriðið það, að á- kveða byggingarlag og herbergja- skipun í húsinu. Þetta er meira vandaverk en flestir ætla. Þaulvan- ir húsameistarar geta spreitt sig á því dögum og vikum saman, að finna sem haganlegasta tilhögun á einföldu íbúðarbúsi, ef þeir gera sig ekki á- nægða meðan eitthvað má finna að, og má þar af vita, að þetta getur verið ærið umhugsunarefni fyrir óvana menn, sem fátt hafa sjeð. Stað hættir eru svo margbreytilegir, kröf- ur þær, sem menn gera, og efni þau, sem menn hafa, svo mismunandi, að almennar reglur fyrir herbergjaskip- un verða ekki gefnar. Þó eru nokkr- ar meginreglur, sem hafa má hug- | fastar. Fyrst og fremst verður sá, sem ætlar að byggja varanlegt hús úr steini, að hafa það hugfast, að hann byggir ekki eingöngu fyrir sig sjálf- an, heldur Ifka fyrir eftirkomendur sína; kröfur manna til lífsþæginda fara jafnan vaxandi, og þess vegna ma ganga að þvf vísu, að það sem þyki viðunandi nú, þyki ófullnægj- andi þegar liðinn er einn mannsald- ur. Þess vegna er um að gera, að vera heldur á undan kröfum tímans en hitt, hafa stærð herbergja, hæð undir loft o. s. frv. svo, að ríflegt þyki nú, í þeirri von, að þá þyki það viðunandi til frambúðar. Ef efnin leyfa ekki, að hafa tilhögunina eins og maður vildi óska, þá er að reyna að haga svo til, að auka megi og umbæta seinna, án þess að raska um of því, sem í upphafi var gert. Kjallara skyldu menn jafnan hafa undir húsinu öllu, nema þar sem stendur svo á, að ekki yrði hægt að verja hann vatni, eða 01 grunt er á klöpp í hússtæðinu. Breidd hússins á ætfð að vera svo, að hæfilegt þyki að hafa tvö herbergi í breiddinni; verður breidd hússins þá venjulega 10—14 álnir að innanmáli. Nokkurn- veginn eftir miðju húsinu ei.dilöngu verður þá veggur, aðalmilligerðin, og á sá veggur að bera bitana jafnframt hliðveggjum hússins. Utidyr þurfa ekki að vera nema einar á litlum húsum, en oftast nær eru þær hafðar tvennar, og má þá stundum haga svo til, að aðrar sjeu á kjallara, en aðrar á neðstu bygð. Inn af útidyr- unum þurfa jafnan að vera anddyri, og ættu menn að forðast að gera þau mjög þröng, einkum ef stigar eiga að vera í þeim. Kjallarinn á aðallega að vera til geymslu, en þó má líka hafa þar eldhús og borð- stofu fyrir heimafólk, en þá verður að vera góður stigi milli kjallara og neðstu bygðar (stofubygðar). Aðal- íbúð heimafólksins ætti jafnan að vera á neðra gólfi, en gestastofa og svefnherbergi fremur á efra gólfi, ef húsið er svo hátt, því að hægra er að ganga svo frá neðri bygðinni, að upphitun sje þar auðveld, heldur en efra loftinu. Þessi tilhögun, að hafa gestastofu á lofti, tíðkast í sumum sveitum, og kunna menn henni þar vel; í flestum timburhúsuni, sem bygð hafa verið til sveita, er samt hinni tilhöguninni fylgt, að hafa gestastofu og eldhús a neðri bygð hússins, en „baðstofu", eða aðalíbúð heimafólks- ins, uppi á lofti, undir þekjunni. Þetta er auðsær ósiður, sem endilega þarf að leggjast niður; sjálfsagt að taka besta plass hússins til íbúðar fyrir heimafólkið, þar sem best nýtur sól- ar og hægast er að halda hita að vetrinum, en velja lakara plássið handa gestaherbergjunum, sem sjaidn- ar eru notuð, og ekki þarf að sitja í á vetrum. Það er eins og þeir, sem þessu eru óvanir, fyrirverði sig fyrir að bjóða gestunum „upp á loft“, en þetta stafar eingöngu af vana og hverfur af sjálfu sjer, ef tískan breytist. Til þess að komast að ákveðinni niðurstöðu um herbergjaskipun, þarf að teikna hana á blað eftir ákveðn- um mælikvarða; ef um stór hús er að ræða, er slíkt ekki annara með- færi en æfðra húsameistara, og ættu menn að leita til þeirra, ef kostur er, en annars er ekki nema gott að hver sá, sem ætlar að byggja fyrir sig, reyni það sjálfur. Ma þá ekki gleyma að setja reykháf eða reykháfa svo, að öll eldfæri nái til þeirra, teikna aila veggina með þeirri þykt, sem þeim er ætlað að hafa, ætla nóg pláss fyrir stiga o. s. frv. Ef aðalmiili- gerðin á að vera úr steini, sem ætíð ætti að vera í steinhúsum, verður að gæta þess, að sá veggur í neðri bygðinni standist á við eða komi beint upp af sama vegg í kjallaran- um, því að með engu móti má ætla IfEíir og Rammalistar fást hvergi betri nje ódyrari en í BankttStrœti 14. Hvergí eru myndir jafnódýrt innramm- aðar eins og hjá Jóni Zoéga, Bankastræti 14. 1 Bankastræti 14 fást áreiðanlega fallegustu Rammarnir í bænum. Yflr 150 tegundir. Munið eftir, að alt þetta fæst best í 14 Bankastræti 14. Talsiml 128. -LÓll Talsími 128. bitunum að bera steinvegg. Og þó aðalmilligerðin í stofubygðum sje úr timbri, þá á hún að standa rjett upp af aðalmilligerðinni í kjallaranum. Sá, sem vill bugsa út haganlega herbergjaskipun fyrir sig, má ekki spara til þess tíma og ekki gefast upp, fyr en hann finnur það fyrir- komulag, sem hann er viss um að verða ánægður með; tii hægri verka við uppdráttinn er gott að hafa krossstrykaðan pappír, þar sem reit- irnir eru jafnstórir á alla vegu, og má þá lata hliðina í hverjum reit takna t. d. I al. eða Va al. eða ann- að, sem henta þykir. Tryggilegast er þó jafnan að bera hugmynd sína undir fróða menn í þeim efnum, ef kostur er. Thorefjelagið, ísbjörn og Lögrjetta. „Isbjörn, Reykjavík. Forlang indrykket Lögrjettu Er- statningssag anlægges Anledning Op- fordring Blad 48 Boycotting samt Straf Æresfornærmelse. Thore". Þetta er símskeyti frá Thurefjelag- inu til Sveins Björnssonar málaflutn- ingsmanns og er á íslensku svona: „ísbjörn í Reykjavík. Krefstu að sett verði í Lögrjettu, að skaðabótamál höfðist út af áskorun í 48. blaði um einangrun og svo til hegningar fyrir ærumeiðingu. Thore". Sveinn tilkynti samdægurs, að Thore-fjelagið ætlaði að „hefja mál“ móti Lögrjettu „út af grein með yfir- skriftinni Thoretjelagssamningurinn í 48. tbl. greinds blaðs" (sem út kom 13 f. m.) „En í greininni er skorað á kaupmenn hjer, að taka sig sam- an um, að flytja ekkert með skipum fjelagsins", segir Sveinn. Svo skorar hann á Lögr., að birta þetta, „samkv. II. gr. í tilsk. um prentfrelsi 9/5 1855". En Lögr. get- ur ekki fundið neitt í þeirri grein, sem skyldi hana til að birta þetta. Hins vegar er það ekki nema lítil og sjálfsögð eftirlátssemi við Thore- fjelagið og ísbjörn þess, ef Sveini er það huggun, í varnargagnahrakinu fyrir »samninginn«, og svo sam- viskuljettir. Því ætla má, að hann finni til þungrar ábyrgðar nú, eftir að sýnt er, hvernig samningurinn er gerður, ef hann hefur átt mikla hiut- deild í því, að faðir hans skrifaði undir hann. En aftur á móti er það karlinum ekki lítil afsökun, þótt hann treysti Sveini sínum öðrum betur til þess að sjá um, að hann skrifaði þar ekki undir neitt, sem verða mætti sjer til ámælis. Af tilkynningu Sveins má sjá, að hann ætlar ekki að krefjast refsing- ar fyrir meiðyrði í garð Thorefje- Úrval af póstkortum, á 5 aura stk., og ljómandi falleg póst- kortaalbúiu, fást í bókaverslun Arinbj. Sveinbjarnarsonar. lagsins, þótt honum sje sagt að gera það í símskeytinu. Hann hefur, þeg- ar hann gáði að, sjeð, að þau voru ekki til í Lögr., enda hefur hún ald- rei fundið hjá sjer minstu löngun í þá átt, að meiðyrða Thorefjelagið nje framkvæmdastjóra þess, hr. Th. E. Tulinius, út af samningunum, sem við það hafa verið gerðir. Því ekki tjáir um það að fást, þótt fram- kvæmdastjórinn færi fyrir fjelagsins hönd eins Iangt og komist varð. Hitt, sem umboðsmaðurinn kveðst ætla að „hefja mál“ út af, er ekki til í Lögr. Þar er hvergi „skorað á kaupmenn hjer, að taka sig saman um, að flytja ekkert með skip- um fjelagsins". Annars hyggur Lögr., að bæði sjer og öðrum væri alfrjálst, að bindast fyrir sam- tökum í þessa átt, þótt hún hvorki hafi gert það hingað til nje ætli að gera það, því ráðherra hefur enn ekki komið fram Iagaboði um það, að menn sjeu skyldir til að meta hagsmuni fjelagsins fram yfir alt annað, þótt hann sjálfur virðist hafa gert það, Við málshöfðunarhótun þessa er I.ögr. óhrædd — og b; st reyndar ekki við, að úr henni verci annað, en þegar er komið fram. Öll líkindi eru til, að hr. Th. E. Tuli- nius hafi ekki sjeð greinina, sem hann kveðst ætla í mál út af, þeg- ar hann sendi símskeytið um máls- höfðunartilkynninguna, heldur hafi hann þá bygt á ósönnum símskeyta- fregnum hjeðin að heiman um það, sem í Lögr. stóð. Á það benda orð símskeytisins um „ærumeiðinguna". Lögr. hefur líka aðra sterlta ástæðu til að ætla þetta, sem þó skal þag- að um að þessu sinni. En vinsamleg aðvörun er það frá Lögr. til hr. Th. E. Tuliniusar, að hann láti ekki ráðherra okkar, þótt mikið hafi fyrir hann gert, tefla sjer fram, nema sem allra minst, í stjórn- málaþræturnar hjer heima. Heims- lánið er valt, og ráðherratignin er fallvölt tign. Það er óvíst, hve lang- an tíma hann fær að njóta Björns Jónssonar í vaMasæti af þeim 10 ár- um, sem viðskiftasamningur hans við landsjóðinn nær yfir, Hvað sem þeir ráðherra og Sveinn sonur hans kunna að hafa sagt framkvæmdastjóranum um þetta, þá má hann trúa því, að fylgi þessa ráðherra er nú bráðum á þrotum. Og eitt af því marga, sem snúið hefur mönnum frá honum, er samningurinn við Thorefjelagið.

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.