Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 10.11.1909, Blaðsíða 2

Lögrétta - 10.11.1909, Blaðsíða 2
206 L0GRJET1 A. Lögrjetta kemur út á hverjum miö- , íkudegi og auk þess aukablöö viö og við, minst 60 blöö als á ári. Verð: 4 kr. árg. á íslandi, erlendis 5 kr. Gjalddagi 1. júlí. Þann I. nóv. síðastl. var hjer mynd- að hlutafjelag til þess að reka fiski- veiðar með þilskipum og kallast „Stapinn". Hlutafjelag þetta er stofn- að með það fyrir augum, að fiski- mennirnir geti tekið hlutdeild í því, og að fitvegurinn geti orðið sem mest í höndum íslenskra manna og um leið tryggur. Hluturinn er. á IOO kr. og er ekki hafður hærri, svo að sem flestir fiski- menn geti tekið þátt í fyrirtækinu. Tvö skip eru nú þegar keypt, sem ganga eiga til fiskiveiða. Lög fjelagsins eru í 20 greinum. Aftan við lögin er reglugerð um rekstur fjelagsins í 5 greinum. í fyrstu grein reglugerðarinnar er tal- að um ráðningu 2 skipstjóra og há- seta, og er í niðurlagi greinarinnar komist svo að orði: „Hásetar skulu ráðnir fyrir hluta af afla og skal afli þeirra ávalt borgaður með sama verði og aflinn af skipinu er seldur fyrir í heild sinni". í 2. gr. reglugerðarinnar er skip- stjóra gert að skyldu að láta af hendi viðtökuskýrteini fyrir því, sem hon- um er fengið í hendur tilheyrandi skipi, svo og veiðarfæri og annað út- gerð skipsins viðkomandi, og verð- ur hann að svara fyrir það, sem fer hjá honum til spillis fyrir hirðuleysi og vangá. í 3. gr. er talað um útgerð skipa, og er þar svo hljóðandi ákvæði: „Stjórnin felur einum af meðstjórn- endum sínum að gera innkaup á vör- um til útgerðarinnar, bæði veiðar- færum og vistum, og skal enginn aukakostnaður á þau innkaup lögð, nema sem nauðsynlegur er, svo sem farmgjald, ábyrgðargjald, venjuleg umboðslaun og pakkhúsleiga, auk annara nauðsynlegra útgjalda. Þess- ar vörur afhendast skipstjóra gegn kvittun. Með þessum fjelagsskap virðist vera stigið stórt spor í áttina til þess, að gera þilskipaútveginn íslenskan og fiskimönnum auðvelt að verða hluthafar. Fyrir fiskimenn er atriði það, sem áður var tekíð fram og stendur 1 1. gr., mjög svo þýðingar- mikið, því það mun hafa átt sjer stað, og það ekki ósjaldan, að fiski- menn hafa fengið minna fyrir hlut sinn af skipi en útgerðarmaður, sem þó má telja ranglátt. 1 öðru lagi er það og þýðingar- mikið atriði fyrir bændur, sem eiga skip, eða hluta í skipi, að geta geng- ið inn í ijelagið með skip sitt, þar sem þeir verða aðnjótandi hinna ó- dýru vörukaupa, sem fjelagið býður, í stað þess sem þeir oft verða að hlýta þyngri kjörum hjá kaup- mönnum. Samkvæmt lögum fjelagsins má hlutafjelagið fara upp í 100,000 kr. í stjórn fjelagsins eru Pjetur J. Thorsteinsson kaupm., Matth. Þórðar- son og Þorsteinn Þorsteinsson; til vara í stjórninni er Einar Arnórsson lagaskólastjóri og er hann Iögfræðisleg- ur ráðanautur, sem og hefur'hluta- brjef til sölu. Ijringferí öjganna. Það sjest í alþingingistíðindunum, að meðal annara spekikenninga, sem Björn Kristjánsson bar fram, er hann sveittist við að inæla með Thore- tilboðinu sæla, var sú ein, að með því að fá skipaferðir milli íslands og Hamborgar gætum við sparað hálfa miljón króna árlega. Svo miklu næmi það, sem þýskar vörur, er hingað flyttust, yrðu dýrari við það að ganga gegnum Danmörk. Hann lagði mikla áherslu á þetta, og kom með það hvað eftir annað, jafnvel þótt hann að iíkindum hafi hlotið að vita, að þetta var hin' mesta fjar- stæða. Því auðvitað er munurinn í rauninni sá einn, er nemur fiutnings- gjaldi á vörunum frá Hamborg til Kaupmannahafnar, því að ekki hamlar ferðatilhögunin því, að íslendingar geti haft bein viðskifti við Þjóðverja án milligöngu danskra kaupmanna, eins og bæði B. Kr. sjálfur og margir aðrir hafa gert. Á þetta var og bent á þinginu. Hefði því þessi lok- leysa átt að vera úr sögunni. En það er öðru nær. í sumar kemur þessi kenning afturgengin í „Norðurlandi", frá Sigurði alþingis- manni Hjörleifssyni, og svo tekur nýi ísafoldarritstjórinn, ekki öndvegis- ritstjórinn, þetta orðrjett upp feftir „Norðurlandi". Vel getur verið, að aumingja „Fjallkonan" hafi flutt þessa speki líka. Jeg sje ekki það blað. Næst kemur kenningin líklega svo fram, að B. Kr. eða einhver slíkur þjóðmálagarpur komi með hana í ræðu eða riti, og ber þá fyrir sig „Norðurland", „ísafold", og ef til vill „Fjallkonuna". Svona er hringferð 'óýganna. Ó. Bækur Þjóðvinafjelagsins 1909. 1. Andvari. Framan við hann er mynd Benedikts Gröndals skálds, en æfiágrip fylgir eftir ritstj. Lögr. Þá er ritgerð eptir prófessor B. M. Ólsen: „Enn um upphaf konungs- valds á íslandi", svar til dr. K. Ber- líns, gegn kenningum hans um rjett- arstöðu íslands frá því, er iandið komst undir konungs vald. Ritgerð þessi kom út sjerprentuð í sumar sem leið og hefur áður verið bent á hana hjer í blaðinu. Næst er grein um „skynjan og skiln- ingarvit", eftir prófessor Þorvald Thoroddsen, fróðleg grein og skemti- leg. En höf. hefur nýlega bent á það í blaði hjer, að fallið hafi burt í tímaritinu athugasemd um það, að greinin, sem er fyrirlestur, haldinn í íslendingafjelagi í Khöfn, sje skrifuð tyrir 25 árum. Þá er rltgerð um „aðflutningsbann á áfengi", eftir Magnús Einarsson dýralæknir. Kom hún fyrst sjer- prentuð út og var þá mjög rædd í blöðunum. Bjarni Sæmundsson ritar um „fiski- rannsóknir 1908“, en þá fór hann um ísafjarðardjup og rannsakaði firðina inn úr þvf. Síðasta greinin er „um fiskiveiða- sýninguna í Niðarósi 1908", skýrsla frá mönnnm, er styrk fengu af al- mannafje til þess að kynna sjer sýn- inguna, en þeir voru: sr. Stefán Kristinsson á Völlum, Baldvin Gunn- arsson í Höfða, Þorgrfmur Sveinsson í Hafnarfirði og Einar Jónsson á ísafirði. Af þessu yfirliti má sjá, að þessi árgangur ritsins kemur víða við og að andvari er bók, sem almenningur þarf að Iesa. 2. Dýravinurinn er Ifkur að efni og áður, flytur smágreinar, sögur, kvæði og myndir, alls 60, eftir ýmsa höfunda. P'remsta greinin er eftir Þorgils gjallanda og heitir: „Frá norðurbygðum". 3. Alntanakið hefur að færa með- al annars myndir og æfisögur þeirra Roosevelts, áður Bandaríkjaforseta, og Togos, áður fiotaforingja Japans- manna. Margt er þar fleira til fróð- leiks og skemtunar, eins og venja er til. Smjörsalan. Eftir símskeyti frá herra L. Zöllner í Newcastle, hefur smjörið, sem sent var hjeðan með »Lauru« stðast selst vel. Torfastaða-rjómabú hefur fengið 108 shillings, en Þykkvabæjarbúið hefur feng- ið n$ shillings brúttó. Kosningar í Noregi. Símað er frá KhÖfn í gærkvöld: vHœgrimenn hafa fengið meiri hluta við kosningarnar í Noregk. Embættisskjöl stjórnarráðsins koma með skítugum fingraförum úr prentsmlðju ísaf. Það hefur gleymst að leiðrjetta margendurtekið raus í ráðherrablað- inu um ómerkiieg fylgiskjöl við mann- talsskýrslur, sem fundist höfðu, að því er blaðið segir, við uppboð á dóti Sigurðar heitist frá Fjöllum, og eignar það fyrv. ráðherra, að hann hafi lánað þau út úr stjórnarráðinu. Lögr. hefur spurt hann um þetta og kveðst hann ekkert um það vita, enda mundi hafa legið nær, að gefa Sigurði eftirrit af kjörskránni, ef hann á annað borð hefði beðist eftir ein- hverjum upplýsingum viðvíkjandi kjós- endum í Skaftafellssýslu, sem hann annars viti ekki til, að Sigurður hafi gert. Allir kunnugir menn í stjórnar- ráðinu viti, að fyrv. ráðh. hefði alls ekki getað fundið þessi ómerkilegu fylgiskjöl, sem ekki á neinn háttkomu til hans kasta og geymd voru á 3ju skrifstofu, að sögn ekki einu sinni journal-merkt. Einnig spurði Lögr. um þetta skrifstofustjórann, sem þá var á 3Í11 skrifstofu, en nú er á istu skrifstofu, hr. E. Briem, og sagði hann, að þetta væri svo lítilfjörlegt mál, að varla tæki umtali. Þetta væru ómerkilegir listar yfir býli og búendur, sem engum væri neinn slægur í. Hver maður gæti fengið afskrift af þeim hjá sýslumanninum í Skaftafellsýslu, þau hefðu engin launungarmál inni að halda og mætti yfir höfuð litlu skifta, hvar þau væru niður komin. Hitt var alt öðru máli að gegna um skjölin viðvíkjandi veitingu presta- skólans, sem Lögr. skýrði nýlega frá, að núverandi ráðherra hefði ljeð nið- ur á skrifstofu ísafoldar til prentun- ar. Þar var að ræða um tillöguskjöl frá embættismönnum, sem blöðin eiga alls engan rjett á að fá að sjá, og ráðherra ekki án sjerstakra ástæðna má tjalda með, síst lána þau til að setja eftir í prentsmiðju sinni. En þessum skjölum var skilað þaðan aftur öllum hvoluðum og með skít- ugum fingraförum setjaranna. Þar á ofan voru þau notuð í prentsmiðj- unni á óvandaðra manna hátt, þar sem dregnar voru undan í birting- unni ástæður þær, sem fyrv. ráð- herra hafði bygt á embættisveiting- una, sem um var að ræða, þótt á- stæður hans væru ritaðar á skjölin. Fjrírmálaþrœlan rí Englanríi. Símað er frá Khöfn í gærkvöld: y>Efri málstofan œtlar að fella fjárlagafrumvarpiðt. Jóhann G. Sigurðsson. Athugasemdir og leiðrjettingar. Af því að jeg var hvergi nærstaddur, þegar kvæði og sögur eftir Jóh. G. Sig- urðsson voru prentuð í sumar, sá jeg ekki bókina fyr en hún var komin út. Rak jeg mig þá á ónákvæmni og prent- villur í kvæðunum á nokkrum stöðum, sem jeg tel mjer skylt að leiðrjetta, þótt seint sje og leiðrjettingar þær geti ekki fylgt bókinni hjeðan af. En jeg vil leyfa mjer að óska þess, að lesendur bókarinnar, sem þessar línur sjá, athugi vandlega leiðrjettingarnar, því að mjer er ant um að alt væri rjett í bókinni. Og þess skal enn fremur getið til skýr- ingar, að ekki ber að saka útgefanda, Sig. Krístjánsson, fyrir þessar villur. Or- sökin er vitanlega einkum sú, að engin samvinna gat verið milli útgefanda og mín sakir fjarlægðar, meðan bókin var prentuð. Á bls. 139 er fyrirsögnin: í „minja- bók Huldu". Þar átti að standa í svig- um neðan undir: Unnar Benediktsdótt- ur, en mun hafa fallið burt í handritinu af minni vangá. En sú skýring er nauð- synleg, ef einhverjum skyldi detta í hug, að önnur kvæði í bókinni, sem Huldu- nafnið er tengt við (s. s. Hróp í himin- inn, Til Huldu og Ljóðkveðja til Huldu), stæðu í nokkru sambandi við skáldkon- una Huldu. En slíkt væri auðvitað hin mesta fjarstæða, og er það vitanlegt öll- um kunnugum, enda eru kvæði þessi staðbundin við átthaga skáldsins, eins og glögt sjest, ef kvæðin eru lesin með athygli. Huldu-nafnið er þar auðvitað dulnefni — sama táknheitið, sem flest íslensk skáld hafa notað og nota meira eða minna, þegar þau yrkja um ást- meyjar sínar. Þá koma prentvillurnar: Bls. 32» 13- lína a. 0. strandklettabrún Ies standklettabrún. — 33- 8. — - - hann les heim. — 34. 4- — - n. ein les nú. — 59, 11. — - - það 1. þá. — 77, 3- * 0. núna 1. mína. — 80, 9- . . sálarglóðar 1. sólar- glóðar. — 88, 4- — - - bál 1. ból. — 89, 10. - n. heiðlóaróma 1. heið- lóarróma. — 90, 5- — - - hlutirnir 1. hlustirn- ar. — ICO, 8. — - 0. ægilega 1. ægilegur — IOI, 7- — - n. sálar 1. sólar. — 118, T3- — - 0. logardísir 1. lagar- dísir. Húsavík, 6. okt. 1909. Bened. Bjarnason. Ráðherra skrifar í ísaf. Ráðherra hefur um tíma verið miklu hressari líkamlega en áður, og nú á síðkastið hefur hann ritað margt sjálfur í blað sitt, ísaf. Meðal annars, sem birst hefur þar með auðþekkjanlegu rithöfundarmarki hans hágöfgi, er grein í síðasta mið- vikudagsblaði, og gerir hún fyrst að umræðuefni orðasveim, sem gengið hafi um þjófnað, framinn í kaupstað hjer á landi fyrir nokkrum árum. Höf. eignar blaði einu þar í kaup- staðnum, eða stjórnendum þess og nánustu fylgifiskum, þá óhlutvendi, að það og þeir hafi búið til gegn betri vitund þann orðróm, til þess að hefna sín á einum stjórnmálaandstæð- ingi sínum, að hann væri valdur að þjófnaðinum. Með þessu segir hann, að þeir hafi jafnframt hugsað sjer að kasta skugga á þann flokk, sem maðurinn fylti, og fer hann mörgum svívirðingarorðum um slíkt athæfi. Engum kunnugum getur blandast hugur um, við hvað hjer er átt. Greinarhöf. segir, að þetta hafi gerst „fyrir nokkuð mörgum árum". Blöð voru þá ekki gefin út í öðrum kaup- stöðum hjer á landi en ísafirði, Akur- eyri og Seyðisfirði. Á ísafirði og Akureyri hefur ekkert landræmt þjófn- aðarmál fyrir komið. En það kom fyrir á Seyðisfirði nú rjett eftir alda- mótin, og niörg einstök atriði í grein- inni sýna, að það er þetta mál, sem þar er um að ræða. Tvö blöð komu þá út á Seyðis- firði og var jeg ritstjóri annars þeirra. Jeg hef heyrt það, að ýmsa, sem lesið hafa greinina í ísaf., rankar við öllu þessu, sem hjer er sagt á und- an, og þeir hafa spurt mig, hvort það væri jeg, sem „karlinn" væri að „bölsótast" yfir í blaðinu út af þessu. Vegna þeirra spurninga skal jeg minnast á málið. Maðurinn, sem varð fyrir þjófnaðar- aðdróttuninni á Seyðisfirði, gekk sfð- ar í þjónustu núverandi ráðherra og varð honum handgenginn. En það var blaðið „Austri" á Seyðisfirði, sem hjelt aðdróttuninni á lofti, og hún var studd í blaðinu af núverandi sýslumanni Vestmannaeyja, Karli Einarssyni. Ummælin í ísafold, svo fögur sem þau eru, hljóta því að miða til þeirra Skafta heitins Jósefssonar ritstjóra og Karls Einarssonar sýslu- manns, en hann var þá nýorðinn kandidat í lögfræði og átti heima á Seyðisfirði. Dómur 1 máli, sem reis út úr á- burðinum, er birtur í Austra 19. sept. 1903. Þar segir meðal annars svo: „. . . . Þá hafa stefnendurnir (sem fyrir áburðinum urðu) krafist, að um- boðsmaður stefndu (K. E.) verði sekt- aður fyrir að hafa gert hinar gífur- legu ærumeiðingar stefndu að sínum eigin orðum og stutt þær á allan hátt og bætt við þær í vörn sinni". Og dómarinn segir síðar: „ . . . Það er að vísu rjett, að umboðsmaður stefndu (K. E) hefur í vörn sinni reynt til að leiða líkur að því, að aðdróttanir stefndu til stefnendanna í frásögn hennar af 18. maí þ. á. sjeu sannar, og þannig reynt að rjettlæta þær. ..." Aftan við dóminn ritar Karl Ein- arsson með fullu nafni skýringargrein, og segir þar, að stefnda hafi „alger- lega unnið málið", og síðar í grein- inni segir hann: „ . . , „verður ómerk- ingar og dauðadómur á orðum henn- ar algerlega óviðkomandi henni, og orð hennar hafa sömu þýðingu eftir sem áður, innan þeirra takmarka, sem þeim voru ætluð, nefnil. sem upplýsingar til viðkomandi lögreglu- stjóra. ..." Af þessu er auðsætt, hverja ill- mælin í Isaf. hitta, hvert sem þeim annars hefur verið ætlað að fara. Það lítið, sem í mfnu blaði, „Bjarka", er skrifað um þetta mál, er mann- inum, sem fyrir ámælinu varð, til varnar. g En hvað segir nú herra Karl Ein- arsson sýslumaður um greinina? Jeg get ekki trúað því, eftir þeim áhuga að dæma, sem hann lagði á þetta mál, þegar hann var á Seyðisfirði, að hann þegði við öðru eins og því, sem fram er borið í greininni, nema þá ef hann gerði það höfundarins vegna. Hann hlýtur að þekkja rit- mark ráðherra á greininni. Það er svo augljóst, að á því verður ekki vilst. Skafti er dáinn og getur ekki borið hönd fyrir höfuð sjer. En laglega er ekkju hans og Þorsteini syni hans launað stjórnmálafylgið með þessari grein í Isaf, Það hefur smáa þýðingu, þótt greinarhöf. gangi ekki beint fram með brigslyrðin, kalli manninn, sem fyrir áburðinum varð, S. og segi, að þjófnaðurinn hafi farið fram í E. . . Engum, sem nokkuð þekkir til þjófnaðarmálastappsins á Seyðisfirði, getur blandast hugur um, að við það er átt þarna. Líklegt er, að greinarhöf. hafi orð- ið það óvart eða ósjálfrátt, að hitta þarna Karl Einarsson sýslumann. En hvað vill sá maður með vöpn í hönd, sem orðinn er svo þursafenginn og ratalegur, að þyngstu höggin, eða verstu sletturna frá honum, Ienda beint í andlit nánustu vina hans? Á eftir þjófnaðarmálasögunni fer langur skammabálkur og er þar höggvið í allar áttir. En það er altaf gaman að því, að lesa um sig skammir frá ráðherra. Heiptin er svo mikil og þjösnahátt- urinn, en klaufaskapurinn alveg dæmalaus, einkum ef hann ætlar að verða ljettfættari en honum er lagið. Hann er þá eins og klunni (Klown) á leiksviði og þess hlutverks ann jeg honum vel. Þ. G. Það spyrst illa fyrir, að ráðherra hefur tekið sig til og sagt upp all- miklu af lánum úr viðlagasjóði ein- mitt nú, þegar allir eru sem verst staddir í peningavandræðunum. Lán- unum er sagt upp frá 11. júní næstk. Fjárhæðin, sem upp er sagt, kvað nema 200—300 þús. kr. Það eru af- borgunarlausu lánin, sem veitt eru gegn 4°o, og segir stjórnin í upp- sagnarskjalinu, að hún sje ekki ótil- leiðanleg að breyta þeim í afborg- unarlán, en ekki er þess getið, að taka eigi neitt tillit til flokksfylgis í þeim efnum. Mönnum kemur þessi uppsögn illa nú, og er margt að þessari stjórnarráðstöfun fundið, sem Lögr. skal síðar minnast á. En svo er líka talað um, til hvers ráðherra muni sjerstaklega ætla þetta fje, sem innheimtist með Iánauppsögnunum, og þess er þá helst til getið, að hann muni vilja hafa það handbært, ef Thorefjelagið þarf á nýju láni að halda, þegar fram í sækir. Háls í Kjós, sem var kirkju- jörð, hefur ráðherra nú nýlega selt Þórði bónda þar, og ekki verið dýr- seldur, segja menn. Þórður hjelt ráðherra um tíma í haust, eins og kunnugt er, fór vel með hann og tók ekkert fyrir, að sögn. En „greiði skal koma greiða á mót". Þórður biður hann, að láta sig fá jörðina, og fær hana. Auð- vitað er ekkert verið að þrátta um verðið, því landsjóðurinn er seljand- inn og Þórður hefur gert landinu greiða með því að gæta ráðherrans fyrir það nokkrar vikur, og fórst það

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.