Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 13.04.1910, Blaðsíða 1

Lögrétta - 13.04.1910, Blaðsíða 1
Aígreiöslu- og innheimlum.: ARINBJ. SVEINBJARNARSON L<fiuí£»vefcí 41. Talsími 74. Ritstjóri F’ORSTEINN GISLASON Pingholtsstræti 17. Talsimi 178. M 19. Reykjavík 13. apríl 1910. I. O. O. F. 9148872 áríðandi. Forngripasafnið opið á sunnud., þriðjud. og fimtud. kl. 12—2. Lækning ók. í læknask. þrd. og fsd. 12—1. Tannlækning ók. (í Pólthússtr. 14) 1. og 3. md. í mán. 11—1. Landakotsspítali opinn f. sjúkravitj. ío'ji —12 og 4—5. . Islands banki optnn 10—21/. og 51/*—7- Landsbankinn io1/^—2x/»- Bnkstj. við 12—1. Lagaskólinn ók. leiðbeining 1. og 3. ld. í mán. 7—8 e. m. Landsbókasafnið opið hv. virkan dag kl. 12—3 og 5— 8. HAfNARSTR-l7-!8'1920 2l-22-K0lAS I 2-LÆKJART1-2 • REYKJAVIK • eru jjölbreyttastar, bestar «« óðýrastar Lárus Fjeldsted, YflrrjettarmálafærslumaOur. Lækjargata 2. Heima kl. 1 1—12 og 4—5. Rúðugler 08h f" * zoéga, Dest ao Bankastr. 14. --- —= kaupa hjá Taisímii^s. Egg. Ný hænu-egg fást daglega á Óðinsgötu 13. Til leigu I stofa, með forstofu- inngangi nú þegar, eða 14. maf, á Oð- insgötu 13. jjorgfiríingar mótmæla stjörninni. Krefjast aukaþings. Fundur var haldinn í gær á Hvítárvöllum í Borgarfirði til þess að ræða um bankamálið. Sýslu- fundur stendur þar yfir og voru það sýslunefndarmennirnir, sem fundinn sóltu, og einhverjir ileiri fulltrúar. Samþykt var með 19 atkv. gegn 3 svohljóðandi tillaga: »Með því að fundurinn lítur svo á, að ráðherra íslands hafi gengið á rjettindi alþingis, með því að meina gæslustjórum Landsbankans að gegna starfa sínum við bank- ann frá byrjun þessa árs, er al- þingi hafði kosið þá til, og með því að skipa sjálfur gæslustjóra við tjeðan banka, sem alþingi eitt hef- ur rjett til, skorar fundurinn á ráð- herra, að hlutast til um, að alþingi verði kallað saman liið allra fyrsta, svo að stjórn Landsbankans geti orðið löglega skipuð og til þess að hin leiða þræta, er risið hefur út af aðgerðum ráðherra í bankamál- inu, geti orðið á enda kljáð«. Strandferðabátarnir „Austri“ og „Vestri ít Þeir eru nú báðir hingað komnir og leggja á stað í fyrstu ferð- irnar kringum landið 15. þ. m. »Austri« kom í fyrri nótt og »Vestri« í gærmorgun. Báðir eru þeir nýir, bygðir á Helsingjaeyri í Danmörku nú í vetur. Þeir eru sagðir fallegir, en fáir liafa skoðað þá hjer enn vegna þess, hve ilt hefur verið í sjó síðan þeir komu. Bátarnir kvað vera nákvæmlega eins gerðir báðir, og er það mynd af öðrum þeirra, sem lijer er sýnd. Sagt er að fyrsta farrými taki 40 farþega og annað farrými 32, en borðsalur 24. Þar að auki er dagstofa handa konum og reykingastofa. Nú er eftir að vita, hvernig bátarnir reynast til strandferðanna, og er óskandi, að það verði sem best. Skipstjóri »Austra« heitir Teitur Júlíus Júlínusson, frá Akureyri, en skipstjóii »Vestra« N. P. Nielsen, danskur maður. Stærð bátanna, hvors um sig, er hjer á fógetaskrifstofunni skráð rúmar 250 smálestir (250,88), en í ísaf., sem út kom í gær, er hún talin 500 smál. jjankamálii. Brjef frá Landmandsbankanum. Gamla Landsbankastjórnin hefur fengið eftirfarandi brjef frá stjórn Landmandsbankans og liefur, eftir tilmælum, leyft Lögr. að birta það: »Den danske Landmandsbank Hypo- thek og Vekselbank, Aktieselskab. Direktionen. Köbenhavn, den 31. marts 1910. Herrer Tryggvi Gunnarsson, Eiríkur Briem, Kristján Jónsson, Reykjavík. I Gensvar paa D’ Herres meget ærede Brev af 11. Marts d. A. skulle vi med- dcle, at Grunden til aö vi liavde givet vore Udsendinge Tilladelse til at afgive Erklæringen af i8/i7 Februar d. A. var, at Islands Minister ved at oversende til dem den i »Thjodolfur« af 21. Jan- uar d. A. Indeholdie Meddelelse fra Köbenliavn havde beklaget sig over, at disse urigtige Udtalelser ikke kunde imödegaas, saalænge Landmandsban- ken ikke udtalte sig om Landsbankens Forliold, og udtalte Önskeligheden af en Beretning elier »nok saa kort Er- klæring fra kompetent dansk Side«. Det vil af det foranförte fremgaa, al det ikke er vore Udsendinge, der have önsket at udtale sig om Resultafet af deres Sendelse, men var Erklæringen foranlediget ved Forvanskningen af den af os i sin Tid lier til Ritzaus Bureau givne Meddelelse og Ministerens Onske om at imödegaa denne urigtige Gen- givelse. Erklæringer er da heller ikke af os cller af vore Udsendinge forlangt offentliggjört, men af disse stiilet til Minislerens Disposition. Vi tiliöje, at vore Udsendinger Er- klæring selvfölgelig kun kan angaa det Tab, som skönnedes að kunne flyde af Bankens forskellige Engagements, i det deres Hverv jo kun var at undersöge Bankens Solvens og der af fölgende Mulighcd for en fortsat Forbindelse mellem Landsbanken og os. Meö Höjagteise. Den danske Landmandsbank Hypothek og Vekselbank. E. GIiickstadt«. (A islenskuj. Mikilsvirtu brjefi yðar, dags. 11. mars þ. á., skulum vjer veita það svar, að ástæðan til þess að vjer liöfum leyft sendimönnum vorum að láta frá sjer yfirlýsingu þeirra, dags. i8/i7 Febrúar þ. á. var sú, að jafnframt og ráðherra íslands hafði sent til þeirra frjettaskýrslu þá frá Kaupmannahöfn, er stóð í Þjóðólfi 21. jan. þ. á., liafði hann kvartað yfir þvi, að þessum röngu ummæl- um gæti eigi orðið mótmælt, með- an Landmandsbankinn eigi ljeti neitt uppi um hag Landsbankans, og ijet í ljósi, að æskileg væri skýrsla eða yfirlýsing »úr ábyggi- legri danskri átt, hversu stutt sem væri«. Af liinu framanritaða kemur það í ljós, að það eru eigi sendimenn vorir, sem liafa óskað að skýra frá árangrinum aí sendiför þeirra, en tilefni yfirlýsingarinnar var rang- færsian á skýrslu þeirri, er vjer á sinum tíma gáfum »Ritzaus Bure- au«, og ósk ráðherra um að hrinda þessari röngu frásögn. Þá höfum og hvorki vjer nje sendimenn vor- ir heimtað, að yfirlýsingin væri gerð lieyrinkunnug, en þeir »ljetu hana í tje til ráðstöfunar ráðherr- ans. Vjer bætum því við, að yfirlýs- ing sendimanna vorra að sjálfsögðu aðeins getur rætt um það tap, sem virtist kunna að geta leitt af ýmisleg- um viðskiftaskuldbindingum bank- ans, því að ætlunarverk þeirra var eingöngu að rannsaka, hvort bank- inn væri gjaldfær, og mögulegleik- ann þar af ieiðandi til áframhald- andi viðskifta milli hans og vor. Virðingarfylst. Den danske Landmandsbank Hypothek og vekselbank. E. Gluckstadt«. Þetta brjef þarf engrar skýringar. I>. D. P. A. Khafnarblaðið »Börsen« frá 3. þ. m. segiraðfje- lagið hafi fyrir síðastl. ár borgað hluthöfum í vexti 45%, en þar að auki »bonus« 64%. Það verður alls 109%, eða hver hlutur (sem er 5oOO kr.) fjeklc útborgaðar 5450 kr. Þetta geta menn með rjettu kallað gróðafjelag. Wathnes-fjelagid hœtt. Sú fregn gekk hjer í gær, að Wathnes-fjelagið væri hætt. ísaf. skýrir frá fregninni í gær og kveðst hafa hana eftir einkasímskeyti til »fjesýslunarmanns, sem hjer sje staddur um þessar mundir«. Nán- ari fregnir hafa ekki borist af þessu enn. Yfirlýsingar. Lögrjetta hefur verið beðin fyr- ir eftirfarandi yfirlýsingar: I 16. tölublaði XI. árg. blaðsins „Reykjavik", sem út kom þann 9. þ. m., í grein með fyrirsögninni „ís- landsbanki og fiskkaupaeinokun" segir herra alþingismaður Jón Ólafsson les- er.dum blaðsins frá kviksögum, er gangi hjer um að nokkrar stærri verslanir hafi myndað einokunar- hring um kaup og sölu á fiski hjer á landi, og í því augnamiði gert samning við íslandsbanka um að hann ekki einungis veiti þeim nægt fje til fiskkaupanna, heldur einnig skuidbindi sig til að láta engan kaupmann fá peninga til fiskkaupa, sem ekki væri í þessum samtökum. Verslanir þær, er hjer ættu að eiga hlut að máli, eru ekki tilgreind- ar í blaðinu, en á fjölmennum fundi hjer í bænum þ. 9. þ. m. var því iýst yfir, að kviksögur þessar ættu meðal annars við hiutafjelagið P. I. Thorsteinsson & Co. hjer. Eu með því að öll pessi ummœli og kviksög- ur eru bláber ósannivdi hvað h/f P. I. Thorsteinsson & Co. snertir, þá mótmælum vjer þeim alveg afdratt arlaust sem gersamlega tilhæfulaus- um. Oss er heldur ekki kunnugt um að neinn slikur fjelagsskapur sje til, og höfum vjer hvorki beðið aðra kaupmenn eða þeir beðið oss að taka þátt í slílcum fjelagsskap. Af framanrituðu ætti það að vera fyllilega ljóst, hve iilhæfulaust það er, að íslandsbanki hafi átt að veita oss liðsinni sitt sem meðlimum í slíkum fjelagsskap, og skulum vjer jafnframt taka það fram, að oss er heldur ekki kunnugt um, að nokkrir aðrir kaupmenn hjer hafi tryggt sjer eða reynt að tryggja sjer nein slík hlunnindi frá tjeðum banka. Jafnframt því sem vjer mótmæl- um þessum rakalausu kviksógum viljum vjer skora á hófund þeirra að gefa sig jram með nafni, svo þær ekki komi til að brenna á baki manna, sem jyrir þehn eru bornir, en kunna að vera saklausir. Reykjavík, II. apríl 1910. H/f P. I. Tliorsteinsson & Co. Thor Jensen. Eggert Claessen. Sje átt við okkur í grein þeirri, sem birtist í blaðinu Reykjavík í dag, undir 3. lið greinarinnar Bankamái, þá lýsum við hjer með yfir, að við höfum engan þátt átt í að mynda hring til einokunar á fiskverði, hvorki beinlínis nje óbeinlínis. Ennfremur, að hvorki hefur íslandsbanki leitað til okkar eða við til hans í þeim til- gangi. Reykjavík, 9. apríl 1910. Yerslnnin Edinborg-. Ásgeir Stgurðsson. Copland & Berrie (1908) Ldt. Geo. Copland. Ut af þeim orðasveim, sem gengið hefur um, að 4 íslenskir fiikútflutn- ingsmenn með aðstoð íslandsbanka hafi gert samtök um að einoka með fiskverslun, leyfi jeg mjer hjer með fyrir hönd verslunarhússins J. P. T. Bryde að lýsa því yfir, að nefnt versl- unarhús á engan þatt í þessu og að áðurnefndur orðasveimur er, hvað snertir verslunarhúsið J. P. T. Bryde með öllu ástæðulaus. Þess skal getið, að verslunarhúsið J. P. T. Bryde, hefur heldur ekki snúið sjer til Islands- banka með beiðni urn væntanlegt lán til fiskkaupa 1 ár. Reykjavík, 11. apríl 1910. Carl Olsen. Einnig hefur verslunarstjóri Duus-verslunar beðið Lögrjettu að geta þess, að sú verslun sje ekki heldur að neinu leyti riðin við samtök í þá átt, sem um er talað í yfirlýsingum hjeráundan. Áður en Lögr. bárust þessar 'V. árg\ yfirlýsingar liafði hún spurst fyrir hjá bankastjóra íslandsbanka, hr. E. Schou, um málið og lýsti hann' kviksögurnar, sem áerminsthjer á undan, gersamlega tilhæfulaus- ar og sagði, að ekkert slikt hefði komið til tals við bankann, eða af bankans hálfu. Hann kvað sjer gersamlega óskiljanlegt, hvern- ig svo fjarstæðar kviksögur heíðu getað kviknað upp og breiðst út. €tazrá8 Jryðe ðáinn. Símað er frá Khöfn í dag, að etazráð Bryde sje dáinn, hafi dáið í dag. Hann var 79 ára gamall. Verslun hefur hann rekið hjer í Reykjavik síðan 1883, en miklu lengur í Vestmannaeyjum. Sonur liaus, Herluf Bryde, hefur verið meðeigandi föður síns að verslun- unum hjer á landi, og tekur nú án efa við þeim að öllu leyti. Aðra syni átti Etazráð Bryde ekki á lífl. En dætur hans lifa tvær, frú Helga .Matzen, áður gilt Jóni Vidalín konsúl, og frú Elhen, ekkja í Khöfn. Utan úr heimi. Negus Menelik. í síðasta tbl. var skýrt frá dauða Meneliks Abessiníukeisara. Hjer er mynd af honum og drotningu hans, er þar var líka minst á. Negus þýðir konungur og titilí Meneliks var negus Negústí, enþaðer: kon- ungur konunganna. Menelik tók sjer fyrst konungsnafn yflr fylkinu Shoa, er þó laut Abessiníukeisara, en varð síðar keisari í Abessiníu, eins og segir í síðasta blaði. Abessinía liggur milli Rauðahafs- ins, Egyftalands og Súdans og er eitt af heitustu löndum lieimsins. Landið er 6,500 fermílur að stærð og hefur um 5 miljónir íbúa. Landsmenn eru fleslir Gyðingaætt- ar, komnir af þjóðflokki, er rekur uppruna sinn að sömu rótum og Gyðingar á dögum gamla testa- mentisins. Taítu drotning er, eftir síðustu fregnum að dæma, fangi nýja keisarans. Hann heitir Ligg Manú og er bróðursonur Meneliks og tekur við ríkisstjórn- inni samkvæmt ráðstöfun, er Mene- lik sjálfur gerði um ríkiserfðirnar 1905.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.