Lögrétta - 04.05.1910, Blaðsíða 1
Afgreiöslu- og innheimlum.:
AHINBJ. SYEINBJARNARSON
I iautíavetf 41.
Talsími 74.
Ritstj ór i
ÞORSTEINN GISLASON
Pingholtsstræti 17.
Talsimi 178.
M 28.
Reykjavík 4. maí 1910.
Y. árg.
I. O. O. F. 914228Va__________________
Forngripasafnið opið ásunnud., þriðjud. og
fimtud. kl. 12—2.
Lækning ók. ( læknask. þrd. og fsd. 12—1.
Tannlækning ók. (í Pólthússtr. 14) 1. og 3.
md. í mán. 11—1.
Landakotsspítali opinn f. sjúkravitj. io'/.
—12 og 4—5.
íslands banki opinn 10—21/* og 5T/a—7-
Landsbankinn io1/.—21/.- Bnkstj. við 12—1.
. Lagaskólinn ók. leiðbeining 1. og 3. ld. í
mán. 7—8 e. m.
Landsbókasafnið opið hv. virkan dag kl.
12—3 og 5—8.
HAfNARSTR' 1718 1920 2122■ KOLAS 12-LÆKJART I 2
• R'ÉYKJAViK •
Lárus Fjeldsted*
YflrrjettarmilafsBi’BlumaOur.
Lækjargata 2.
Heima kl. 1 1 — 12 og 4—5.
hjá
Jes Zimsen.
Hjer fylgir fyrsta mynd-
in, sem tekin var af Roose-
velt fyrv. Bandaríkjafor-
seta er hann kom á land
í Evrópu úr Afrikuför
sinni. Hann kom á land
í Neapel, og þar er mynd-
in tekin af honum á tröpp-
um gistihallarinnar, sem
hann bjó þar í. Með
honum var frú hans, dóttir
hans, Ethel, og sonur hans,
sem Kermit Roosevelt
heitir.
Roosevelt var tekið með
mikilli viðhöfn í Neapel.
Þaðan hjelt hann til Róm,
og svo norður eftir Ev-
rópu, eins og frá var skýrt
í síðasta blaði. í gær
var ráðgert að hann kæmi
til Kaupmannahafnar og
var þar útbúin móttöku-
veisla í Ráðhúsinu.
Meðan Roosevelt dvaldi
í Afríku hefur hann mjög
stundað dýraveiðarog lagt
að velli fjölda villidýra.
Hann er hraustmenni mik-
ið og vanur líkamsæfingum, hefur meðal annars fengist við að leggja að
velli villinaut á vestursljettum Bandaríkjanna.
lloosevelt
Rúðugler °“ k;tt:.er JOW ZOÉCA,
---------- Desi ao Banka8tr 14.
1 -= kaupa hjá Tals(mil28.
yiugnlxkningar.
Frá 25. þ. 111. verður mig að
liitta á hverjum virkum degi kl.
11—1 á fyrsta lofti í Ingólfshvoli.
Reykjavík 15. apríl 1910.
A. Fjeldsted.
Laiiiteatfl.
Samkvæmt fyrirmælum 11. gr.
í Reglum um afnot Landsbóka-
safnsins 21. apríl 1909 er hjer
með skorað á alla þá, er bækur
hafa að láni af bókasafninu, að
skila þeim á safnið fyrir 15. d.
maím. næstk. Útlán byrja aftur
þ. 17. maí.
Landsbókas. 30. apr. 1910.
Jón .Jakobssoii,
Kennarar,
er sækja námsskeiðið í vor, geta
fengið hentugt og ódýrt húsnæði
með öllu tilheyrandi í
Bei’gstaðastræti 3.
Barnaskólinn.
Sýiiing- á hannyrðum
s k ó 1 a b a r n a (stúlkna og
drengja), teikningum, skrift,
stílum og skólaeldhússtörf-
um mánudag 9. og þriðjud.
10. þ. mán. kl. 12—3 og
4—7. Allir velkomnir.
cTKorfen dCansan.
JluRqfunéur
í „Pilskipaábyrgðarfjelaginu við
Faxaflóa“ verður haldinn i Báru-
búð þriðja í hvítasunnu, kl. 5 e. h.,
til að ræða uin strand skipsins
»Egils«.
Tv. Gunnarsson.
Pingrof í Dan-
i
mörku.
i
Nýjar kosningar 20. maf.
Þingi var slitið í Danmörku um
niiðjan síðastl. mánuð. Síðan var
það rofið og nýjar kosningar fyrir-
skipaðar 20. þ. m. Ákvæðin um
þingrofið og kosningarnar voru
undirskrifuð af konungi í rikisráð-
inu 18. apríl.
Kosningabaráttan verður hörð
í Danmörku í þctta sinn, en stutt
verður hún. Ekki er lil hennar
ætlaður nema einn mánuður. Hún
hófst líka þegar í stað eftir þing-
rofið.
Stjórnarmenn og jafnaðarmenn
hafa gert með sjer algert kosninga-
bandalag, bjóða hvergi fram þing-
mannaefni hvorir gegn öðrum, en
sldfta innbyrðis mitli sín kjördæm-
unum. Jafnaðarmenn bjóða fram
sína tlokksmenn í 55 kjördæmum,
stjórnarmenn í hinum. Milli hinna
þriggja þingflokkanna, endurbóta-
flokksins, miðlunarmanna og hægri-
manna, er einnig kosningabanda-
lag, þótt vart muni það jafnein-
dregið og milli tveggja þeirra fyr-
nefndu.
Ekki er auðvelt að spá, hvernig
fara muni kosningarnar. Hvorugir
munu fyrirfram telja sjer sigurinn
vísan. Ef stjórnarflokkarnir ná
ekki meiri hluta, þá fer Zahleráða-
neytið þegar frá völdum, en and-
ófsflokkarnir þrír verða að koma
sjer saman um myndun nýrrar
stjórnar. Geti þeir það ekki, verða
kosningar að fara fram þegar að
nýju. Nái stjórnarfiokkarnir aftur
á móti meiri hluta, þá mynda þeir
í sameiningu nýtt ráðaneyti. Jafn-
aðarmenn taka þá í fyrsta sinn í
Danmörku beinan þátt í landstjórn-
inni.
Það, senr barist er um, er
fyrirkomulag á þingkosningunum,
°g þó fyrst og fremst hermálalög-
gjöfin. Stjórnarfiokkarnir hafa sett
á stefnuskrá sína afnám sjerrjettar
efnaðra manna við kosningar til
Landsþingsins og vilja láta sveita-
stjórnirnar kjósa til þess með hlut-
fallskosningum, miðuðum við ibúa-
fjölda. Konnngskosningar til Lands-
þingsins eru þá úr sögunni. Hinir
flokkarnir eru ekki á eitt sáttir um
kosningamálið. Og um hermála-
löggjöfina er livorki lult samkomu-
lag innbyrðis milli stjórnarfiokk-
anna nje heldur liinna, sem á rnóti
berjast. Andófsflokkar stjórnarinn-
ar segja, að baráttan sje um það,
hvort jafnaðarmenn eigi að stjórna
landinu eða ekki. Ef stjórnarflokk-
arnir sigri við kosningarnar, þá
sjeu það jafnaðarmenn, sem völd-
in fái.
Forsætisráðherrann segir, að ef
stjórnin sigri, verði baráttan á eft-
ir milli liennar og Landsþingsins.
Ef það heygi sig ekki fyrir meiri
hluta Fólksþingsins, verði Lands-
þingið rofið, en þar með sje kjör-
tímabil hinna konungkjörnu á enda,
þótt þeir annars sjeu kosnir æfi-
langt.
Kosningarnar til þingsins, sem
nú er rofið, fóru fram 25. maí
síðastl. ár. Á því tæpa ári, sem
síðan er liðið, hafa þrisvar orðið
stjórnarskifti í Danmörku. Neer-
gaard tók við stjórninni eftir kosn-
ingarnar, síðan Holstein Hleiðru-
borgargreiíi og loks Zahle. Flokk-
arnir voru 5 í þinginu. Endur
bótaflokkurinn var fjölmennastur
og hafði þó ekki nema 27 atkv.;
þar næstir voru jafnaðarmenn með
24, miðlunarmenn (Neergaardslið-
ar) með 22, liægrimenn með 21 og
núverandi stjórnarmenn, radikali
flokkurinn, með 20. Þrjá flokka
þurfti til þess að mynda ineiri
hluta í þinginu.
Ijalleys halastjarnan.
Síðustu útlend blöð skýra frá
þvi, að farið sje að sjást til hala-
stjörnunnar i kíkiruni. Kring um
20. f. m. hafa stjörnufræðingar
sjeð hana bæði í Vínarborg og í
París. Fyrst sást hún þó frá Kap-
landi í Suður-Afriku.
Sumstaðar kvað almenningur
vera mjög hræddur við halastjörn-
una. Einkum fara sögur af þeirri
hræðslu frá Austurriki. Stjórnin
þar kvað liafa lagt fyrir prestana,
að skýra fyrir söfnuðunum, að
hjer sje ekkert að óttast. Enn
verri kvað þó hræðslan vera í
Kína, þvi fjöldi manns kvað þar
trúa því, að nú eigi jörðin að far-
Uilúm skattleysinii
Ljós 0[| Dimmur.
Fínasta bindindis-öl.
Dndir áfengismarkinu.
ast. Blöðum er dreift út meðal
fólksins til þess að skýra fyrir
þvi, að engin líkindi sjeu til að
jörðinni standi nein hin minsta
hætta af halastjörnunni.
18. þ. m. á jörðin að fara gegn
um halann. En þeir, sem vit
hafa á, segja, að við jarðarbúar
munum ekki verða þess varir,
efnið í halanum sje svo þunt og
ljett, þegar svo langt dregur frá
sjálfri stjörnunni. Um nokkurn
árekstur er alls ekki að tala. Það
er aðeins svo, að jörðin snertir
halann. Sumir stjörnuíræðingar
efa jafnvel að liann nái svo langt.
En víst er það, að svo langan veg
frá stjörnunni er halinn orðinn
svo afar þunnur, að engin efni í
honum geta gert hjer nokkurn
skaða.
En mjög mikill undirbúningur
er meðal stjörnufræðinga um all-
an heim, til þess að skoða stjörn-
una sem best, þegar hún fer fram
hjá, og ransaka alt, sem hana
snertir, svo vel sem föng eru á.
Til þessa eru 2 þýskir vísinda-
menn nýlega komnir hingað til
lands og dvelja á Dýrafirði. Þeir
eru gerðir út af visindafjelaginu í
Göttingen. Dr. Angelheister heitir
sá, sem er fyrir þeirri för. Aðal-
ætlunarverk þeirra er, að ran-
saka, hvort stjörnuhalinn hafi
nokkur áhrif á rafmagn jarðar-
innar.
Minningargjöfum er veitt viðtaka
í skrifstofu landlæknis á hverjum
degi kl. 5—7.
Hælinu hafa þegar borist nokkrar
minningargjafir.
Viðtökuskírteinin eru nú fullgerð.
Það eru stinn spjöld, gylt á röndum.
Á aðra spjaldhliðina er markaður
hvítur skjöldur, upphleyptur, á dökk-
bláum feldi. Skjöldurinn er með
sporöskjulagi. Á hann er ritað nafn
hins látna og dánardægur og nafn
þess, er gjöf gefur, en gjöfin því að-
eins skráð á skjöldinn, ef þess er
óskað. t
Alt er þetta gert f iíkingu við
málmskildi þá (silfurskildi) er tíðkast
hafa að fornu fari hjer á faiAi, áður
en kransarnir komu til sögunnar.
Þá er utanbæjarmenn senda minn-
ingargjafir, eru þeir beðnir að skrifa
greinilega fult nafn hins látna, aldur,
heimili, stöðu, dánardægur og dauða-
mein; ennfremur nafn sitt, heimili og
stöðu. Þeim verður þá tafarlaust
sent viðtökuskírteini. Gjafirnar skal
senda til Jóns læknis Rósenkranz,
Reykjavik.
G. Bjórnsson.
Það er nú nokkru meira en
hálf öld síðan Björnson kom fyrst
frain á sjónarsviðið og gerðist rit-
höfundur. Síðan hefur hann alla
tíð verið mjög umtalaður maður,
Hann varð stúdent skömmu eftir
1850, en hjelt ekki skólanámi á-
fram frekara. Hann fór þá að
gefa sig við ritstörfum og blaða-
mensku og stundaði hana lengi
fram eftir æfinni. Einnig var hann
leikhússtjóri nokkur ár, fyrst í
Björgvin, síðan í Kristjaníu. Rit-
höfundarfrægð fjekk hann fyrst
fyrir bændasögur sínar. Sú elsta
þeirra, wSigrún á Sunnuhvoli«, kom
fyrst út 1857, og síðan hver af
annari. Nokkrum árum síðar fjeklc
Björnson skáldlaun úr ríkissjóði og
hefur haft þau jafnan síðan. Hann
ferðaðist þá erlendis og hefur síð-
an altaf öðru hvoru dvalið tíma
og tíma utan Noregs, stundum svo
áruin skifti í senn. En heima t
Noregi átti hann húgarð, Aulestað
í Gausdal, skamt frá Kristjaníu, og
sat þar þegar liann dvaldi í Nor-
egi. Með Björnson og Ibsen hefst
frægð norskra bókmenta úti um
heiminn. Leikrit þeirra voru jafn-
óðuin og þau birtust sýnd til og
frá í hinum helstu leikhúsum, eigi
aðeins á Norðurlönduni, heldur og
í Þýskalandi, Frakklandi, Eng-
landi og víðar. Norðmönnum þótti,
sem von er, mikið til þessa koma,
enda höfðu þeir þessi stórskáld
sín í miklum hávegum. Um síð-
astl. aldamót voru reist af þeim
eirlíkneski trainan við þjóðleikhús-
ið í Kristjaníu. Litlu síðar fjekk
Björnsonbókmentaverðlaun Nóbels-
sjóðsins sænska, og er það hin
mesta sæmd, sem rithöfundi getur
lilotnast.
Fyrir rúmum sjö árum hjeldu
Norðmenn sjötugsafmæli Björn-
sons með mikilli viðhöfn í Krist-
janíu. Hjer fer á eftir kafli úr
grein, sem þá var rituð urn hann
i einu af norsku blöðunum:
»Síðan Björnstjerne Björnson
fæddist á Björgan í Kviknepresta-