Lögrétta - 15.06.1910, Side 2
114
L0GRJETTA.
Lðgrjetta kemur út á hverjum mið-
vikudegi og auk þess aukablöð við og við,
minst 60 blðð als á ári. Verð: 4 kr. árg.
á lslandi, erlendis S kr. Gjalddagi 1. júli.
Aukaþingsmálið.
A öðrum stað hjer í blaðinu eru
tilfærð þau ummæli Skúla Thorodd-
sens um aukaþingsmálið, að hann
telji það rjett og sjálfsagt, að ráð-
herrann bregðist vel við aukaþings-
áskoruninni og verði við óskum meiri
hluta þingsins, sem kunnugt sje orðið,
að hafi eigi all-lítinn þjóðarvilja við
að styðjast.
Sk. Th. gerir jafnframt grein fyrir,
hvers vegna hann hafi ekki sent á-
skorun um aukaþingshald. Hann
segir, að sitt álit á málinu hafi verið
það, að árangurslaust væri að bera
kröfurnar fram fyrir ráðherra, en hitt
„eigi viðfeldin aðferð", að snúa sjer
með þetta beint til konungs. Auð-
heyrt er þó, að hann telur slíkt vel
geta komið til mála, enda getur eng-
inn skynsamur maður litið öðruvísi
á en svo. Spurningin er þá aðeins
um það, hvort gera eigi kröfuna að
því kappsmáli, að knýja hana fram
á þann hatt. Og svarið hlýtur hjá
hverjum einstökum manni að fara
eftir því, hve mikið hann álítur að
við liggi.
En hitt kemur ekki til mála að
rjett sje hjá hr. Sk. Th., er hann
segir, að sú aðferð „leiddi fráleitt
til neins — þar sem allar stjórnar-
athafnir konungs verða, sem kunnugt
er, að framkvæmast á ráðherrans á-
byrgð“. Konungur hefur vald til að
víkja ráðherranum frá, hvenær sem
honum þykir þess þörf, og taka sjer
annan f hans stað. Hann getur ekki
skipað ráðherranum að gera þetta
eða hitt. En hann getur sagt við
ráðherrann, að ef honum sje óljúft
að framkvæma vilja þingsins, þá veit-
ist honum lausn frá ráðherrastarfinu,
þá verði að fá einhvern annan til
þess að gegna því. Aukaþingið yrði
þá kvatt saman á ábyrgð þess ráð-
herra, er þá tæki við, en hinn væri
leystur af öllum veg og vanda af
málinu.
Konungsvaldið kæmi þá fram sem
verjandi þingræðisins gagnvart ráð-
herranum, sem neitað hefur að láta
að óskum meiri hluta þingsins.
Það er nú berlega komið í ljós, að
í stjórnarskipun okkar vantar nauð-
synlegar skorður við ráðherraeinræð-
inu milli þinga, og að þetta er háska-
legt, ef völdin lenda í vondum hönd-
um. Á þessu verður að ráða bót.
Vera má, að ýmsar leiðir sjeu til
þess. En tvær verða fyrst fyrir.
Önnur er sú, að láta alþing koma
saman árlega. Þá hefði ráðherrann
meiri hita í haldi af þinginu og ein-
ræðisbrask hans ætti sjer skemri
aldur. Hin leiðin er sú, að ráðherr-
anum væri í stjórnarskránni gert að
skyldu, að kveðja til aukaþings, ef
meiri hluti þingmanna krefðist þess.
Þeir, sem setja fyrir sig kostnaðinn
við árlegt þinghald, mundu heldur
kjósa þetta síðara. En allir hljóta
að sjá, að hjer er um mikilvægt at-
riði að ræða, sem nauðsyn heimtar
að lagfært sje.
pistlar frá Jforegi.
17'. mal.
Það var 17. maí.
Frelsis- og þjóðhátíðardagur Norð-
manna.
Jeg vaknaði klukkan sex um morg-
uninn og þaut út að glugganum til
að sjá, hvað um væri að vera.
Karl-Jóhansgata lá fyrir neðan
næstum því mannauð. En norski
fáninn leið upp á einstaka stöng.
Og hjá einstaka húsi stóðu árvökul*
ir Norðmenn og skreyttu gluggana
og dyrnar með blómvefjum.
Dagurinn var grár og rigningar-
legur, og frá greinum kastaníutrjánna
fyrir neðan gluggann minn láku drop-
arnir frá síðustu skúrinni. Þeir skullu
ólundarlega niður á steinlagða göt-
una, og mjer fanst hver þeirra drepa
fyrir mjer von um glaðan, sólbjart-
an dag ....
Nei. Það var best að sofa lengur.
Jeg sofnaði og mig dreymdi einhvern
ólundardraum —- jeg er nefnilega
ennþá norður á íslandi í draumum
mfnum. Svo vaknaði jeg við klukna-
hljóminn.
Bim — bim — bim — kvað við
úr öllum áttum. Þungur og hátíð-
legur barst klukknahljómurinn inn til
mfn, en mjer fanst einhver gráveð-
urshljómur í þessum klukkum.
Svo opnaði jeg augun. Sólskin,
sólskin um alt herbergið. Niðandi,
hvítfyssandi stórborgarglaumur barst
inn um gluggann. Kluknahljómur-
inn breyttist. Það var eins og syngj-
andi trylling vorgleðinnar væri hringt
inn til mín með þessum klukkum.
Og jeg á fætur!
Þegar jeg kom út á götuna, mor-
aði alt af Iífi. Fánar blöktu á hverri
stöng. Vagnarnir skröltu. Fólkið
þaut hátíðabúið fram og aftur. Innan
um sæginn sáust einstaka „gratíur" í
þjóðbúningi. Gratíur segi jeg, því
kvenfólkið hjer í Kristjaníu er eitt-
hvað það fallegasta, sem jeg hef sjeð.
Giftir menn verða skotnir aðra hverja
sekúndu . . . . Já, þessar háu, grönnu,
bjarthærðu, bláeygu konur! — Pro-
gramstrákarnir hlupu fram og aftur;
maður verður að kaupa maí-blóm og
maí-bönd. Og maísvipurnar smella
í lottinu. Jeg fæ eina beint framan
í andlitið. Morgungugginn pipar-
sveinn með pípuhatt og gleraugu,
sem gengur rjett hjá mjer, fær aðra
á nefið. Hann blótar og skælir and-
litið. Hópur af glöðum sveinum og
meyjum slá hring um hann. Höggin
dynja. Aumingja maðurinn verður
að gjalti. Loksins sleppur hann þó
út úr hringnum, en 25 aurum fátæk-
ari, því hann þarf að láta strjúka
pípuhattinn sinn. „Mundu svo næst,
að það er sautjándi maí í dag“ kall-
ar ein stúlkan eftir honum.
Já, sautjándi maí í dag, — það
var eins og töfrasproti, sem hafði
gerbreytt bænum.
Karl Johan er annars alvarleg
heiðursgata, iðin og starfsöm, nema
hvað hún er stöku sinnum brosleit
niður við stúdentalundinn.
En í dag var hún einn hlátur —
og öll borgin hló, og hæðirnar hlógu
— og sólin hló!
17. maí í dagl
Jeg braust gegnum mannþyrping-
una, sem varð þjettari og þjettari.
Rfðandi lögregluþjónar komu og skip-
uðu fólkinu til beggja hliða. Jeg vissi,
hvers von var, og flýtti mjer upp á
svalirnar á gestahúsinu, sem jeg bjó
í. Þaðan gat að líta yfir allan Karl
Jóhan, frá Járnbrautartorginu upp til
konungshallarinnar. Öll gatan var
full af fólki, syngjandi, veifandi, hlæj-
andi, sólskinslýð. Það var eins og
að horfa yfir haf af lifandi, norsk-
um litum, því hvert mannsbarn bar
maíbönd í þjóðlitunum.
Svo dundu við lúðrar: „Ja, vi
elsker dette Landet” barst niður eftir
öllu strætinu. Það var eins og sjálft
vorið kæmi, borið af bylgjum söngs-
ins. Þessir sterku, ungu, björtu hljóm-
ar! Og niður eftir götunni kom
Noregur hinn ungi, í gervi hvítklæddra
sveina og meyja, sem hvert bar
merki Noregs í hendi sjer. Enda-
laus sýndist þessi fylking. Merki
kom eftir merki, skóli eftir skóla, og
fyrir framan hvert merki gekk lúðra-
sveit ungra sveina, frá 10—12 ára
aldurs, og ljek ýmist „Ja, vi elsker"
eða „Sönner af Norge". Og öll
borgin söng með. Hvert andlit söng.
En hæðst af öllum heyrði jeg Björn-
stjerne Björnsson syngja: „Ja vi
elsker". Jeg sá hann í anda ganga
á undan þessum unga hóp, silfur-
hærðan, höfði hærri en allan lýðinn,
rneð norska fánann í hendinni.
Fylkingin nam yfir alla götuna.
Hún stöðvaðist fyrir framan mynda-
styttu Björnsons. Og um leið kvað
við frá öllum lúðrasveitunum — þær
voru minst fjörutíu — : „Ja, vi elsker
dette Landet". Sveigar voru lagðir
fyrir fætur hans, — en hann stóð
þar og þagði. En augun loguðu
undan arnarbrúnunum og bronce-
munnurinn brosti breiðu sólskinsbrosi.
Jeg gleymdi í hljeinu, meðan ung-
ur maður var að halda ræðuna fyr-
ir Bjornsson, hvar jeg var. Mjer
fanst jeg vera kominn norður á ís-
land. En í staðinn fyrir þennan
glaða hóp, sá jeg eintóma smurlinga,
gamalhygna smurlinga. Þessirsmurl-
ingar voru svó gamlir og hygnir og
veraldarvanir, að augun í þeim rang-
hvolfdust af fyrirlitningu, ef manni
varð á að hlæja eða hnerra. Perga-
mentsandlitin hreyfðust annars ekki,
hvorki til sorgar nje gleði, aðdáunar
eða gremju, en á maganum báru
þessir smurlingar stór, grá skilti, sem
á stóð : „Við erum upp úr því vaxn-
irl“
Svei, Satan ! Þetta var ljótur saut-
jánda-maí-draumurl En jeg gleymdi
honum strax aftur, því umhverfis mig
stóð þessi unga þjóð, sem hefur ráð
á að vera glöð og hrygg, ráð á að
elska og hata, ráð á að virða og
fyrirlíta. Og sjálfur varð jeg eins og
örlítill hnoðri, sem vaggaðist og barst
með bylgjum og straumum þessa
mikla mannhafs.
Það er slegið á öxlina á mjer.
„Þjer eruð svo alvarlegur Islending-
ur!“ segir skær kvenmannsrödd, og
mjer verður litið framan í ungt, fal-
legt kvenmannsandlit, semjeg þekti.
„Það er sautjándi maí í dag. í dag
eigið þjer að syngju og hlæja. í dag
megið þjer kyssa og faðma hverja
stúlku, sem þjer mætið!" „Bravó",
hrópa karlar og konur kringum mig.
Jeg herði upp hugann. „Já, í dag er
sautjándi maí, — jeg byrja á yður,
ungfrú!" Og svo rak jeg að henni
rembingskoss. En svo gleymi jeg
aftur hvar jeg er — og horfi hálf-
skömmustulega á hana, til að vita,
hvort hún hafi ekki orðið háif-reið.
En hún bara hlær: „Det var rigtig,
min Gut!“ — Og allur hópurinn hlær.
Þá greip sautjánda-maí-gleðin mig,
°g jeg var^ eins og hinir.
Og jeg barst og barst með straumn-
um. Eintóm gleði, sólskin og hlát-
ur, sjalf ellin hló og ljek. Og öll
strætin sungu af litum, norskum lit-
um. Og jeg, sem hjelt jeg hefði
grafið síðasta hláturinn minn heima
á íslandi, hló líka.
Jeg leit inn á Grand. Mjer tókst
að ryðjast inn. Jeg kom auga á tvo
málara, sem jeg þekti, og fjekk sæti.
Og við settumst að drykkju, og
gengum frá borði til borðs. Saut-
jánda maí eru allir vinir og allir
bræður,
Það var eins og öll sautjánda-maí-
gleðin hefði safnast í hvirfingu þarna
inni á Grand.
Og inni á Grand heyrði jeg þá
bestu hátíðaræðu, sem jeg hefheyrt.
Það var ungur málari, sem stóð upp
á stól, veifaði glasinu og sagði:
„Herrar mínir og dömurl
Látum oss hrópa húrral"
Betri undirtektir hef jeg aldrei vit-
að neinn fá.
Svo lengi sem dagurinn entist, gekk
jeg frá stað úr stað. Og alstaðar
var dagurinn samur.
Svo kom kvöldið. Það seildist
niður eftir greinum trjánna, sem tóku
að varpa skuggum niður á strætin.
En bak við konungshöllina logaði
himininn í vínrauðum eldi, eins og
þúsund blysum gleðinnar hefði verið
kastað á bálköst að blysförinni lok-
inni.
En blysförinni var ekki lokið.
Ljóskerin gægðust fram og breyttu
borginni í suðandi, syngjandi æfin-
týra-heim. Dansmúsikin barst niður
yfir strætin frá pöllunum, sem reistir
voru í trjálundunum.
Ög æskan naut þar vorsins og
dansins.
Þangað þyrptist svo mannsægur-
inn. Menn og konur sveifluðust sam-
an í vorljettum dansi. Guð má vita,
hve margir hafa dansað inn í nótt-
ina og syndina. En þeir hafa verið
margir.
Jeg fjekk mjer bát og róðrarmann,
ásamt tveimur fjelögum mínum —
og reri út á höfn.
Sjórinn sljettur eins og spegill.
Þúsund ljós glömpuðu kringum okk-
ur, en yfir okkur stjörnurnar.
Eins og niður af hverfandi söng,
sem maður hefur heyrt í draumi,
barst gleði borgarinnar út til okkar.
En frá „Drotningunni", veitinga-
skála frammi við sjóinn, sem lá upp-
ljómaður eins og töfrahöll gegntokk-
ur, bárust bylgjur og brot af norsk-
um ættjarðarsöngum.
Jeg leið þarna í kvöldkyrðinni yfir
þögulan, kyrran sjóinn. Þá skeði
það, að mjer varð litið út fyrir borð-
stokkinn, ogjegsá dökkva djúpsins í
skugga Akershuskastalans. Jeg vissi,
að það moraði af lífi þar undir,
myrku, blindu matarlífi. Og mjer
fanst jeg vera kominn heim, svo
langt, langt frá vorinu og gleðinni.
En þegar jeg leit upp og sá ljós-
in ljóma frá „Drotningunni", óskaði
jeg þéss í hjarta mínu, að íslenska
þjóðin væri komin svo langt upp f
ljósið, að hún gæti og vildi eiga
einn einasta frjálsan dag.
Kristjaníu, 22. maí 1910.
Jónas Guðlaugsson.
Jíðjlutningsbannið.
Eftir Halldór Jónsson.
IV. Baráttan. (Frh.).
Eftir því sem þjóðirnar þroskast
og mannast meira og meira, eftir
því fjölgar atvinnuvegum, samgöng-
uraukast, við skifti manna hvers við
annan verða margvíslegri o. s. frv.,
— en af þessu leiðir aftur, að
mannlíftð þarfnast fleiri og fleiri
laga, skipandi laga og bannandi
laga, í margskonar atriðum, bæði
til þess að alt geti gengið með
reglu og í rjettum skorðum, og
einnig til þess að vernda einstak-
lingana og alla heildina gegn yfir-
gangi, harðvítugri eigingirni og
skeytingarleysi um annara hag.
Mentun og mannúð nútímans,
vaxandi áhrif lýðfrelsishugmynd-
anna (sosialista og sosialdemokrata
o. fl. stjórnmálaflokka) hefur þær
afleiðingar, að löggjafarvaldið (og
jafnvel lögregluvaldið)stækkar verk-
svið sitt æ meir og meir og setur
lög og reglur fyrir breytni manna,
störfum og framkvæmdum, af um-
hyggju fyrir fjelagsheildinni, — en
sem jafnframt að sjálfsögðu hafa i
för með sjer margvíslegar takmark-
anir á sjálfstæði manna.
Að þessi stefna nútímans sje
vottur um, að þjóðirnar sjeu að
verða meiri og meiri »óvitar«, er
náttúrlega hin hreinasta fjarstæða.
Það er þvert á móti vottur um
vaxandi löngun til og umhyggju
fyrir því, að sem flestum einstak-
lingum þjóðfjelagsins geti liðið sem
best.
4. »Að aðflutningsbannið verði
til hnekkis fyrir það, að landið
fyrir þá sök kann að verða svift
hagkvæmum verslunarsamninguin
við önnur lönd«.
Þetta er spádómur alveg út í
bláinn. Hjer mun vera átt við
það, að vínlöndin muni firtast við
ísland vegna bannlaganna, sjerstak-
lega Spánn, er nú kaupir mikið af
saltfiski vorum, og muni vegna
bannlaganna hækka hjá sjer að-
flutningstollinn á þeirri vöru.
Hræðslan um þetta mun hafa
verið aðalástœða margra andbann-
inga, en hún er nú, sem betur
fer, alveg ástæðufaus. Það er kunn-
ugt, að ísland hefur ekki gert og
getur ekki sem »óaðskiljanlegur
hluti Danaveldis« gert neinn sjer-
sjerstakan verslunarsamning við
neitt ríki. Þar þurfa Danir að vera
millimenn, danska alríkisstjórnin.
Verslunarsamningur sá frá 1894,
sem nú er í gildi milli Danaveldis
og Spánar, er gerður af dönsku
alríkisstjórninni og Spánarstjórn
fyrir alt Danaveldi, þar með ísland
að sjálfsögðu. Að Spánverjar fari
nú að segja upp samningi þessum
við alt Danaveldi einungis vegna
þeirra fáu spönsku vínflaska, sem
hingað til kunna að hafa hingað
flutst, en fá ekki að flytjast liingað
eftir að bannlögin eru komin í
gildi, nema sem messuvin og til
lækninga, — það var svo ósenni-
legt, að danska stjórnin óttaðist
það ekki. Sönnunin fyrir því er
það, að hún lagði elcki eitt einasta
hálmstrá í veginn fyrir staðfestingu
konungs á bannlögunum, en það
hlyti hún vafalaust að hafa gert,
ef hún hefði óttast, að staðfesting-
in gæti haft nokkur áhrif á Spán-
arsamninginn, sem hefur að inni-
halda svo margskonar hlunnindi,
ekki aðeins fyrir ísland, heldur og
Danmörku sjálfa og Færeyjar.
Grýlan með spánska samninginn
er því alveg út úr heiminum.
5. »Að það sje skerðing á per-
sónulegu frelsi manna, að setja
lagabann um það, sem aðeins varð-
ar hegðun einstaklingsins; enda
hafa löggjafarþing annara þjóða
gætt þessarar reglu í löggjöf sinni,
undentekningarlaust að kalla«.
Eins og bent hefur verið á áður,
þá má segja það um öll lög og
lagafyrirmæli, að þau sjeu skerðing
á persónulegu frelsi manna, með
því að öll lög fyrirskipa eitthvað
eða banna eitthvað. Það eru því
engar nýjungar, þótt persónulegt
frelsi manna verði fyrir einhverri
»skerðing«. Og meira að segja:
nœr því öll lög og lagafyrirmæli
hljóða um »hegðun« og breytni
»einstaklingsins«, skerða á einhvern
hátt hegðunarfrelsi hans. Það er
ekki venjan, að setja lagaákvæði
um hugsanir manna, og heldur
ekki um tal eða mál manna. Laga-
svæðið er því yfirleitt »hegðun«
manna. Og þannig er þessu farið
lijá öllum þjóðum. Lög þeirra
hljóða ekki um hugsanir einstak-
lingsins, sjaldan um lal eða mál
einstaklingsins, heldur nærri þvi
ætíð um hegðun einstaklingsins.
Og skerðingin á persónulegu
(hegðunar-) frelsi manna er öld-
ungis jöfn, hvort lögin eru stýluð
sem bannlög eða sem fyrirskipunar-
lög, því að í fyrirskipunum liggur
bann um að hegða sjer í umrædd-
um tilfellum á annan hátt en fyrir-
skipað er.
Þegar mjer er skipað með laga-
ákvæði að greiða 100 kr. í auka-
útsvar, þá er mjer þar með bannað
að verja 100 kr. af eignum tnínum
til annars en þess, að greiða út-
svar með þeim. Hlýði jeg ekki
þessari fyrirskipun, þá er lagt lög-
hald á 100 kr. virði af eignum
mínum, og mjer um leið bannað
að nota þennan liluta eigna minna
til nokkurs annars en útsvars-
greiðslunnar.
Þegar sett eru lög um melra,
metramæli og vog og mjer fyrir-
skipað með þeim, að viðhafa mæli
og vog af metrakeríinu í verslun
minni, þá er jeg sem mönnum
vörur. Og í þeim fyrirmælum felst,
að mjer er bannað að viðhafa aðra
vog eða mæli, bannað að selja
lengur í pundatali, pottatali og
álnatali.
Vjer getuni því með fullum rjetti
sagt, að bannlögin eigi öldungis
sammerkt við hundruð og þúsund
af lögum og lagafyrirmælum bæði
hjá oss og öðrum þjóðum, í því,
að skerða (hegðunar-)frelsi manna.
I því atriði er enginn munur á
bannlögunum og því nær öllum
öðrum lögum.
Og af þessu sjest það berlega,
hvílík fjarstæða það er að segja,
eins og sagt er í ávarpi andbann-
inga, að löggjafarþing annara þjóða
hafi gætt þeirrar reglu í löggjöf
sinni undantekningarlaust að kalla,
að skerða ekki persónulegt (hegð-
unar-)frelsi einstaklingsins.
Svona orðuð ástæða er ógild.
Hún fer fyrir ofan garð og neðan,
og segir ósatt um löggjöf og lög-
gjafarsvæðið bæði hjá oss og öðr-
um þjóðum.
En það, sem andbanningar munu
hafa ætlað að segja, þótt þeir hafi
ekki kunnað að orða það, er að
líkindum þetta:
Vjer (andbanningar) höfum það
á móti bannlögunum, að þau tak-
marka sjálfsforræði einstaklingsins
í þeim efnum, sem islenska lög-
gjafarvaldið hefur ekki áður látið
til sín taka, og löggjafarvald ann-
ara þjóða heldur ekki, og sem vjer
álítum að eigi ekki að heyra undir
valdsvið laganna.
Vjer álílum að það, hvað menn
eta og hvað menn drckka og hverju
menn klæðast, heyri ekki undir
valdsvið löggjafarinnar, heldur eigi
hver einstaklingur mannfjelagsins
heimting á, að njóta svo mikils