Lögrétta - 29.06.1910, Blaðsíða 4
124
L0GRJETTA.
cUí sfómanna.
Biðjið útgerðarmenn yðar um smjörlíki frá „Kö-
benhavns Margarinefabrik“, sem er búið til
úr hreinu og ósviknu efni, lítið litað og hvítt eins og
sauðasmjör. Fæsí frá forðal>iivi verksmiðjunnar á
Akureyri og beint frá verksmiðjunni. Áreiðanlegum
kaupendum er gefinn gjaldfrestur, sje mikið keypt í einu.
Jón Stefánsson, Akureyri.
Bráðapestarbóluefni
haustið 1910.
Þeir, sem óska eftir að fá keypt bóluefni í haust, sendi pantanir til
undirritaðs sem fyrst og ekki síðar en 15. ág. n. k.
Verðið er 3 kr. fyrir efni í ÍOO kindur.
Engin pöntun verður afgreidd nema borgun fylgi. Þó geta hrepps-
nefndir og sýslunefndir, sem panta vilja bóluefni fyrir hrepp sinn eða sýslu,
fengið gjaldfrest til nýárs.
Þeir, sem áður hafa skrifað mjer um bóluefni, geri svo vel að senda
nýja pöntun.
Reykjavík 28. Júní 1910.
cJfiagnús Cinarsson
dgralœknir.
dansha smjörlikt er be5t.
Biðjið um fegundírnar
„Sóley” „Ingólfur” „Hekla”eða Jsafold”
Smjörlihið fcesk einungi$ fra:
\ Offo Mönsted tyf.
Kaupmannahöfn og/fró$um
i Danmörhu._____________
Baðlyf
best og ódýrust í verlsuninni
„Kaupangur".
und, að viðhalda »heilsusamlegu
almenningsáliti á máli þessu með
ötulli útbreiðslu sannleikans á alla
vegu, sem mentun og mannást eru
kunnir« og »kosning (skipun)góðra
og ráðvandra manna til að fram-
fylgja lögunum«, — það er og verð-
ur hin »heilbrigða bindindisstarf-
semi«, sem á að viðhaldast.
Þjóðinni hefur undanfarin ár ver-
ið kent að afneita áfenginu. Af því
að hún hefur lært að þekkja áfeng-
ið með áhrifum þess og afleiðing-
um, þá hefur hún af frjálsum vilja
sínum, með leynilegri atkvæða-
greiðslu, beðið um bannlögin. And-
banningar segja vísvitandi ósatt
þegar þeir segja, að þjóðinni sje
»nauðgað til þess að afneita áfeng-
inu«. (Frh.).
Ijaníavinmisýning
barnaskólans í Landakoti er þess
verð að henni sje gaumur gefinn.
Ár hvert hefur skólinn þessa sýningu
og hún er miður sótt en hún ætti
vera, því að hún nálgast meira lista-
sýningu en almenna skólaiðnaðarsýn-
ingu.
Þessi sýning var opin nokkra daga
framan af þessari viku og var aug-
lýst í blöðunum.
Það, sem fyrst og mest vakti eft-
irtekt þeirra, sem inn komu, var
sýning útsaumaðra mynda í gyltum
umgerðum. Tilsýndar litu þessar
myndir út eins og olíumálverk; þeg-
ar nær kom, sást að „himininn" á
þeim var úr ljósbláu silki en hinir
litirnir gerðir úr hárfínum silkiþráð-
um með ýmsum litum. Flest voru
þetta útlendar landlagsmyndir. En
tvær voru íslenskar, önnur frá Vest-
mannaeyjum — kaupstaðurinn og
höfnin með „klettana" að baki sjer
— en hin frá Slútnesi í Mývatni,
saumað af 14 ára gamalli stúlku.
Þessar myndir voru báðar snildar-
verk, en þó einkum Vestmannaeyja-
myndin. Ein mynd var þar einnig
litsaumuð: af Benjamín Franklín í
skrifstofu sinni.
Það yrði of langt mál að nefna
alla þá hluti, hvern um sig, sem
ættu það skilið, en einn verð jeg
þó að nefna enn þá. Það var ofn-
hlíf (Skærm) útsaumuð, eftir ung-
lingsstúlku ófermda, sem margir
munu kannast við af því, að hún
hefur afarstóra valbrá á kinninni.
Jeg á bágt með að gera mjer fulla
grein fyrir því, hvers vegna mjer
þótti vænna um, að sjá fallegt verk
eftir þetta barn en önnur, en líklega
er það vegna þess, að mjer finst
jafn vel unnið verk hljóta að bæta
upp þær raunir að nokkru leyti,
sem líkamslýtið veldur barninu. Bróð-
ir hennar hafði smíðað umgerðina
utan um hlífina.
Mikið var á sýningunni af fríhand-
arteikningum barnanna og margt af
því prýðilega gert. En enn þá meira
fanst mjer þó til um annað, sem
þar var sýnt. Það voru bœtur og
viðgerðir á slitnum fötum. Börnun-
um er kent að setja nýja parta í
ljereftsföt eða prjóna upp í göt á
sokkum svo að vel fari, og sýnis-
horn af þessari vinnu lögð fram.
Þetta er það fallegasta, sem jeg hef
sjeð af því tægi, sumt svo vel gert,
að prýði var að bótinni. Það er
gaman að kunna að sauma út myndir,
vefa rósir og teikna myndir með
svartkrít, en það er þó enn þá meira
gaman að kunna að bæta bót, svo
að vel sje gert, og það kemur fleir-
um betur í lífinu, en alt hitt.
Jeg er ekki frá því, að sumar
þær, sem kenna handavinnu í skól-
unum hjer á landi, hefðu gott af
því að lœra einn vetur í Landakoti.
G. M.
Landmandsbankinn. Fram-
kvæmdarstjóri er orðinn þar Emil
Gliickstadt, sonur I. Gluckstadts,
sem nýdáinn er. En í bankastjórn-
ina hefur verið tekinn Ove Ring-
berg, áður ritari í bankanum, ung-
ur maður, 28 ára.
Fríi fjalatindum til Mimiða.
Múlasýsluumboð er nú veitt Sveini
Ólafssyni í Firði í Mjóafirði, er settur
hafði verið til að gegna því, þegar
Guttormi Vigfússyni var vikið frá.
Ekkert er út á Svein að setja til
starfsins. En hann þakkaði fyrir
setninguna í það með óviðkunn-
anlega óhreinni grein í „Austra" í
vor, og er það leiðinlegt, er góðum
mönnum og greindum verður það á,
að leggja illri landsstjórn liðsyrði,
þótt hún leiti vinfengis þeirra.
Silfurbergsnáman í Helgustaða-
fjalli er leigð Guðmundi Jakobssyni
trjesmið í Reykjavík fyrir 55°/o af
ágóðanum í eftirgjald. Tulinius hafði
boðið 50°/o, eins og hann hefur áður
goldið, en fleiri ekki gert boð í nám-
una. Hún er Ieigð til 10 ára. Illa
þykir það ráðið, að leigja Guðmundi
námuna, með því að ekkert útlit sje
til þess, að hann geti látið vinna
hana.
Gullbrúðkanp hjeldu þau Jón
dbrm. í Þorlákshöfn og kona hans,
Jórunn Sigurðardóttir, 5. þ. m.
Heyforðabúr á að stofna í sum-
ar í Lundareylcjadal í Borgarfjarð-
arhjeraði, eða vísi til þeirra; láta
heyja til þeirra á tveim stöðum í
sveitinni, en ekki ráðið enn, hvar
þeir staðir verði valdir. Kaupa-
fólk á að taka til heyskaparins.—
Geta má þess, að þar í dalnum
þurfti enginn bóndi á heyhjálp að
halda í vor, og munu þeir hreppar
fáir á landinu, sem hægt er að
segja þær fregnir úr. Búskapur í
dalnum er á góðu framfaraskeiði
nú á síðustu árum.
Úr kjördæmi ráðlierra. Skrifað
er af Patreksfirði, að flestar trausts-
yfirlýsingarnar, sem ráðherra hafi
fengið þaðan að vestan, sjeu undir-
skrifaðar í búð Pjeturs Ólafssonar
kaupmanns, er kvað hafa mikla skulda-
verslun, enda er um það talað þar
vestra nú, að P. Ól. eigi að verða
konungkjörinn þingmaður.
Dáinn er Eggert Helgason í Helgu-
hvammi í Húnavatnssýslu, áttræður
að aldri, einn hinn merkasti maður
í bændaröð fyrir margra hluta sakir.
Hann var elstur barnakennari hjer á
landij og hlaut fyrstur manna verð-
laun úr styrktarsjóði Kristjáns kon-
ungs IX. Að áliðnu sumri mun
„Óðinn" flytja mynd af honum og
æfisögu hans.
Bráðapestar bóluefni. Athygli
skal leidd að auglýsingu um það frá
dýralækninum á öðrum stað hjer f
blaðinu, að bráðapestar bóluefni verð-
ur selt almenningi í fyrsta sinn næstk.
haust, og að verðið er 3 kr. fyrir
efni í 100 kindur.
Flóaáveitan. Thalbitzer verkfræð-
ingur hefur nú aðsetur í Hraungerði;
er þar ásamt frú sinni og 2 aðstoð-
armönnum. Aðalverk hans er nú,
segir Sl., að mæla lönd jarða þeirra,
sem ætlast er til að njóti áveitunnar,
í því skyni að ákveða kostnað þann,
er legflja þarf á hverja jörð á áveitu-
svæðinu. Ráðgert er, að þeim mæl-
ingum verði lokið í ágústm.lok. Sl.
segir, að heyrst hafi, að Thalbitzer
teldi skoðunarmál, hvort rjett væri
að veita á Flóann, eins og til orða
hefur komið, eða að þurka hann upp.
Oskufall. í Landmannahreppi og
víðar í sveitunum austanfjalls segir
Suðurl. að orðið hafi vart við
öskufall, einkum 18. þ. m. Askan
gerði hvítt fje dökkgrátt sumstaðar,
og á vatni bar mikið á henni. Ekki
segja þó ferðamenn að austan, að
vart hafi orðið eldsumbrota, eða til
þeirra frjetst. En líklegt þykir, að
askan sje komin frá Vatnajökli.
Friðrik Kristjánsson bankastj.
Það eru sagðar fram komnar á Akur-
eyri sterkar líkur fyrir því, að hann
hafi komist til Ameríku. Er sagt,
að hann muni hafa leynst um tíma
í einhverju koti þar rjett við bæinn
eða í útjaðri hans. Skjöl frá próf-
unum, sem haldin hafa verið í þessu
máli á Akureyri, höfðu verið send
áleiðis hingað með „Eljunni", og eru
því eigi komin enn. En sögur þær,
sem breiddar hafa verið hjer út, bæði
um þetta og annað hvarfi Friðriks
viðvíkjandi, eru sagðar mjög fullar
af rangfærslum.
Hanskur organleikari. Lögr.
er skrifað frá Khöfn:
„Að því er jeg frjetti eigið þið í
Rvík von á dönskum listamanni í
júlí til að halda samsöngva. Mann-
inn þekki jeg vel, og vil mæla með
honum sem ágætum í sinni grein og
framúrskarandi duglegum manni. Það
er Júlíus Foss, sem er organisti við
kirkjuna í Sundby. Hann er kunn-
ur organleikari, hefur haldið sam-
sönga og fengið mikið orð fyrir,
bæði í Khöfn og víðsvegar um Dan-
mörku. Auk þess kennir hann mik-
ið og hefur ritað mikið um söng og
og söngfræði. Helsta rit hans er
„Kortfattet Vejledning i Musiktheóri.
Kbh. 1909“. — Það mun óhætt að
fullyrða, að Rvík fær ekki oft tæki-
færi á að heyra jafngóðan organleik-
ara".
Isalnd erlendis.
Sig. Júl. Jóliannesson læknir
hefur í vor skrifað í Heimskr. ágæt-
ar greinar um flokkabaráttunu hjer
heima, en þeim er enn eigi lokið í
blaðinu. Þetta, sem S. J. J. skrifar,
er nær því hið eina, sero sagt hefur
verið um það mál af viti eða sann-
girni í Winnipegblöðunum íslensku.
Lögb. hagar sjer í því elni alveg
eins og leigu- og leppa-blöð stjórn-
arinnar hjer heima.
Próf við Khafnarliáskóla. Emb,-
prófi í lögum hefur lokið þar Vig-
fús Einarsson frá Kirkjubæ í Tungu
með II. betri eink. En heimspekis-
próf hafa nýlega tekið þar Halldór
Kristjánsson dómstjóra með ág. eink.
og Kristján Björnsson af ísafirði með
1. eink.
Halldór Hermannsson bókavörð-
ur frá New-York var nýlega á ferð
í Khöfn og ætlaði þaðan til Stokk-
hólms.
Georg Grikkjakonungur kom
16. þ. m. heim til Aþenu úr Eng-
landsförinni og var vel tekið. En
annars höfðu áður gengið fregnir
um, að þar væri risin upp óvild-
aralda gegn honum út af Kríteyjar-
málinu.
Kvenrjettindin í Englandi. Þar
er að komast í gegn um neðri
málstofuna frumvarp, sem veitir
konum kosningarrjett, sem þó er
ýmsum takmörkunum bundinn.
Þetta er stórt stig áleiðis fyrir þær,
því takmarkanirnar er hægra að
fá rýmkaðar, þegar frá líður.
Enska þingið. Það er nú komið
saman aftur og leiðtogarnir farnir
að semja um samkomulag og mála-
miðlun milli flokkanna í fjármála-
þrætunni miklu. Af síðustu út-
lendum blöðum er það helst að
ráða, að útlit sje fyrir, að það sam-
komulag takist.
Eftirmæli.
Hinn 19. nóvember f. á. ljest að Feigs-
dal í Arnarfirði merkiskonan Þorbjörg
Jónsdóttir hreppstjóra í Skipholti í
Hrunamannahreppi 1 Árnessýslu, Gríms-
sonar stúdents s. st. Jónssonar bróður
Fjalla-Eyvindar. Þorbjörg sál. fæddist í
Skipholti 5. okt. 1838 og giftist þar eftir-
lifandi manni sínum, Jóni Ingimunds-
syni Tómassonar frá Efstadal. Bjuggu
þau hjón í Skipholti rausnar- og fyrir-
myndarbúi þar til nú fyrir fáum árum,
að þau seldu bú sitt og bjuggust til að
flytja búferlum til Vesturheims. En ætt-
ingjar og vinir þeirra margir voru þá
áður fluttir vestur um haf. Þegar á átti
áð herða snerist þeim samt hugur og
fluttu þau þá að Feigsdal í Arnarfirði,
ásamt nokkrum börnum sínum. Þar
hafa þau dvalið síðan hjá Jóni syni sín-
um og tengdadóttur sinni, Vigdísi Jóns-
dóttur, frá Högnastöðum 1 Hrunamanna-
hreppi. Þeim hjónum, Jóni og Þor-
björgu sál., varð 13 barna auðið; atþeim
eru 7 á ltfi; þar á meðal er Þorgrímur
söðlasmiður í Rvtk.
Þorbjörg sál. var góð kona og greind,
stilt og prúðmannleg í framkomu og um-
hyggjusöm móðir börnum stnum. A síð-
ustu árum þvarr heilsa hennar mjög og
efnin að sama skapi; en til slðustu
stundar naut hún ástúðar og umhyggju
manns síns og barna sinna, er til henn-
ar náðu. B.
II rmil »111' *»•
W. v. Essen & W. Jacoby.
(Eigandi Waldemar v. Essen. Stofnað 1869).
Vöruafgreiðsla. Skipaafgreiðsla. Vátrygging.
Meðmæli: Die Deutsche Bank.
Brúkuð islensk frímerki
kaupir með hærra verði en áður
Inger Ontluiul.
Vannr vjelastjóri
með ágætum meðmælum óskar eftir
stöðu sem fyrsti vjelameistari, helst
á botnvörpuskipi, þegar kemur fram
í september.
Menn snúi sjer til Árna kaupm.
Sveinssonar á ísafirði.
Islandske og uden-
landske Frimærker kjö-
bes til de höjeste Priser af
J. Aall-Hansen,
Þingholtstræti 28.
limir testi
fást hjá
c7as Simscn.
I Ifarveru minni,
30. júní til 22. júlf, gegnir Sæ-
mundur Bjarnhjeðinsson húslækn-
isstörfum mínum.
Guðm. Björusson.
Tvær silfurbrjóstnálar
töpuðust á götum bæjarins. Finn-
andi skili á afgreiðslu Lögr.
Svipa fundin. Eigandi vitji á
Bergst.str. 19.
Silung’sveiði
Og
sumarbústaður.
Við Laugavatn í Borgarhreppi er
nú verið að endurreisa „Barónshús-
ið“ (þar sem baróninn frá Hvítár-
völlum dvaldi langdvölur fyrrum). —•
Geta þeir, er vilja lyfta sjer upp,
íengið húsið, bátinn og vatnið leigt
um lengri og skemmri tíma og not-
ið þar hinnar miklu náttúrufegurðar
og heilnæma lofts, og haft silungs-
veiði sjer til ánægju og gagns (fiska
má bæði á stöng og í net).
Menn snúi sjer til verslunarstjóra
Ólafs Arinbjarnarsonar í Borgar-
nesi.
Hreppsnefndin í Borgarhreppi.
lóðið 0,65, 0,75, 0,85.
Heklugarn 0,12, 0,16 rjúpan.
Stumpasirsið eftirspurða.
Nýkomið í
AUSTURSTRÆTI 1.
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.