Lögrétta

Issue

Lögrétta - 20.07.1910, Page 1

Lögrétta - 20.07.1910, Page 1
Aígreiðslu- og innheimtum.: ARINBJ. SYEINBJARNARSON. Liauyaveu 41. Talsimi 74. LOGRJETTA Ritstjór i Þorsteínn gislason t’iQghollsstrtæi 17. Talsimi 178. M 35. Reykjavík 30. jtilí 1910. V. árg. Eins og áður er auglýst, hef jeg stækkað skrif- stofu mína í Kaupmannahöfn og í sambandi við hana sett á stofn nýja skrifstofu í Hamborg. Jeg hef nú fengið söluumboð í útlöndum fyrir ílest íslensk sláturfjelög og tek að mjer að útvega sem best verð fyrir allskonar íslenskar afurðir erlendis. Ennfremur starfa jeg að því, að útvega kaupmönn- um og kaupfjelögum hjer sem best verð á útlendum varningi og er nú að setja á stofn hjer stórkaupa og um- boðsverslun í sambandi við skrifstofur mínar í Kaup- mannahöfn og Hamborg. Jeg get því varla komið því við, að stjórna einnig mörgum smásöludeildum hjer, og ætla nú að breyta ein- hverju af deildum Magasínsins í sjálfstæðar verslanir. Duglegir, ungir verslunarmenn, sem vilja leigja í Magasíninu, eða taka að sjer einhverja af smásöludeild- um þess fyrir eigin reikning, snúi sjer sem fyrst til eig- anda Magasínsins, sem verður hjer mánaðartima til við- tals og samninga. Reykjavík 19. júlí 1910. Virðingarfylst. I I. Th. A. Hriioiix^eii. í „Ingólfur“ fer til Borgarness 20. og 26. júií. - - Keflavíkur og Garðs 15. og 22. júlí. Lárus Fjeldsted, Yflrrjettarmálafœpslumaður. Lækjargata 2. Heima kl. I 1 —12 og 4—5. Sðiugler °? er JOn zoicl 3---- llBst M Bimtotr. 14. =— -== kaupa hjá Taisími 128. Nýtt gullland. Þær frjettir fljúga nú um heiminn frá því um síðastliðin mánaðamót, að nýtt gulliand sje fundið, ríkara en öll gulllönd, sem áður fara sög- ur af. Það er á vesturströnd Am- eríku, í British Columbía, í óbygðu hjeraði, við Bitter Creek. Næsta þorp er Stewart City. Þangað flykk- ist nú ógurlegur fjöldi manna, segja frjettirnar, og mun þó alt vera mjög í óvissu enn um gullið. Aldrei, síð- an gullið fanst í Kaliforníu 1844, hafa verið önnur eins læti út af slíkum fundi og nú, segja útlend blöð, Mað- urinn, sem nýju námurnar hefur fund- ið, heitir Henry Burbridge og er þeg- ar orðinn stórríkur maður. Frá Stew- art City eru þegar farnar að ganga fregnir um, að þar sje skortur á öllu, vegna manntjöldans, og verð á öll- um nauðsynjum orðið ótrúlega hátt. H. E. Reutersvsird, hinn sænski verslunarfulltrúi, sem hjer hefur dval- ið um hríð til þess að efla verslun- arviðskifti milli Svíþjóðar og íslands, fer heimleiðis með »Botniu« í dag. um vjer yður fararheilla og alls góðs í framtíð. Virðingarfylst Sigfús Einarsson. Zil yirthurs Shattucks. Snillingur! ísland er ferðamannaland. Óg þó höfum vjer ekkert gert til að hæna rnenn hingað. Vjer höfum þagað um heiðfjöll vor, fossana og álfta- vötnin, lyngmóana og lindirnar tæru og sólina, sem aldrei sígur í mar. Og vjer höfum ekki valið landi voru skáldleg, heillandi heiti, eins og sum- ar aðrar þjóðir velja sínum löndum. „ísland" Iætur kuldalega í eyrum út- lendinga, þó að það komi við oss eins og viðkvæmt lag. En listamenn eru ekki vanir því, að leggja leið sína hingað, — síst sönglistamenn, — enda er hjer hvorki fyrir auði stórþjóðanna nje dálæti stórborganna að gangast. Þjer eruð að minsta kosti fyrsti maðurinn með heimsfrægð, sem hjer hefur látið til sín heyra. Jeg ætla mjer ekki að bera lof á yður með þessum línum. Það væri raunar vandalítið verk, því að lof um list yðar er altaf satt. En það væri alveg óþarft verk. Jeg ætla að leyfa mjer að þakka yður, ekki að- eins fyrir sjálfan mig, heldur og fyrir hönd allra, sem hlýddu á yður hjer. Vjer gleymum seint, Islcndingar, bæði ef gert er á hluta vorn, og eins því, sem vel er til vor gert. Yður ætlum vjer að muna eins og góðan vin. Vjer þökkum yður ógleyman- legar ánægjustundir og vonum, að þjer hafið orðið þess áskynja, að þjer voruð oss ltærkominn gestur. Það eru yðar laun. Og vjer ölum þá von í brjósti, að vjer eigum eftir að njóta ennþá einu sinni yðar göf- ugu, goðbornu listar. Vjer vonum, að ferðalag yðar um hið stórfenglega, sjerkennilega land vort komi list yðar að góðu gagni og að fjallaloftið verði yður holl hress- ing til frambúðar. Og þegar þjer farið úr landi, árn- Frá Vestfjörðum. Grasspretta afarill alstaðar á Vest- fjörðum og svo mikill snjór óleystur að elstu menn muna ekki annað eins. I. júlí voru skaflar í fjörunni í Beruvík á Snæfellsnesi sunnanverðu, einnig í grend við Aðalvik; 8. júlí klaki í fjörunni á Flateyri. II. júlí stór skafl í túninu á Hest- eyri og sagt, að tún væru víða ó- leyst í Jökulfjörðum. Snæfjallaströnd eins og jökull, skaflar heim undir tún í Ármúla, yst á Langadalsströnd. Ætlað, að tún muni allvíða ekki verða ljáberandi. Tíðin nú ágæt, en úr- fellalaust. Skepnufellir í vor ekki að miklum mun, Sjávarafli góður. Hval- arar hafa fengið fátt fiska. Ofland, hvalariáHesteyri, kom þang- að 10. þ. m. norðan frájean Meyen, sagði þar auða jörð að mestu og miklu snjóminna en í Hesteyrarfirði, gras- sprettu fuiðu mikla og útsprungin blóm. Þeir urðu varir við refi á eynni og skutu tvo, mórauða refi. Þeir segja eyna fagra; er hátt fjall nyrst á henni, gamalt eldfjall á hæð við Öræfajökul, en suðureyjan lág- lend. Vestfirðingar ætla að reisa Jóni Sigurðssyni minnisvarða að ári, á Rafnseyri við Arnarfjörð, fæðingar- stað hans. Það verður stór bauta- steinn, og á hann festur stór bronsi- skjöldur með upphleyptri andlitsmynd Jóns, en sverð bak við skjöldinn. Sjera Böðvar Bjarnason á Rafnseyri er frumkvöðull þessa fyrirtækis. Ein- ar Jónsson á að móta skjöldinn. Lofthrakningar. Yngsta skip Zeppelins. Síðasta skipið, sem Zeppelín greifi hefur smíðað, er fólksflutningaskip stórt og heitir „Deutschland" (Þýska land). Það er sjöunda loftskipið, sem hann hefur smíðað, var fyrst reynt nú í sumaroghafði farið nokkrar ferð ir með farþega milli þýskra bæja og reynst vel. En seint í júní hjelt það upp frá Diisseldorf með milli 20 og 30 farþega. Fyrst gekk alt vel En svo hvesti snögglega og kom á þoka, svo að ekki sá til jarðar. Ein hreyfivjelin bilaði og skipið barst upp á við fyrir vindinum og komst í 1200 metra hæð. Þar uppi var kalt og hráslagalegt og fór farþeg- unum að líða illa. Þokunni Ijetti, en stormurinn óx. Svo sökk skipið niður á við alt í einu og var þá yfir Teutoborgarskógi. Þar sprakk önn- ur hreyfivjelin og loks strandaði skip- ið þarna í trjátoppunum. Ein trjá- greinin hjó gat á gasbelginn og önn- ur stakst inn í gegnum farþegabát- inn. Skipið skémdist mjög, en mann- skaði varð enginn. Þetta vildi til rjett áður en Zeppelín lagði á stað norður til Spitsbergen. Farþegar, sem með þessu skipi hafa verið, láta annars mikið yfir, hve þægilegt sje að forðast í lofti, | ef vel gangi, — miklu þægilegra og skemtilgra en með járnbrautum, segja þeir. Á þessu skipi var útbúnaður til máltíðahalds fyrir farþega o. s. frv. Sænskur dómur. í 33. tbl. Lögr. var sagt frá því, að dr. Rolf Nordenstreng hefði ritað eftirtektaverða greinum íslensk stjórn- mál í „Aftonbladet" í Stokkhólmi. Hann segir þar meðal annars svo: „íslendingar hafa oft slegið upp á því, að þjóðfrændurnir sænsku ættu að láta sjer hugað um deiluna milli Danmerkur og íslands. Það gerum vjer og harðla mjög, en dómur vor getur að eins orðið þessi: Danir hafa nú farið hyggilega og göfugmannlega að ráði sínu, en ís- lendingar skammsýnislega og hroka- lega, er þeir drápu hendi við hinu hugheila tilboði Dána 1909. Kröf- ur íslands eru fjarri öllum sanni og græningjalegar, en græningjalegust af öllu er hin mishepnaða fyrirlestra- starfsemi Bjarna Jónssonar í Svíaríki. Svíaríki getur aldrei fallist á hina sjálfræðisfullu pólitík, sem nú hefur beggja skauta byr á íslandi. Hin særða þjóð-hjegómagirni Islendinga á ekki betra skilið en að verða árang- urslaus, þar sem Danmörk nýtur samúðar þeirra hinna óvilhöllu, sem standa fyrir utan málið". Týndi drengurinn ekki fundinn. Sögurnar um, að hann væri fund- inn austur í Grafningi, reyndust ó- sannar, og hefur ekkert spurst til hans enn. Ættingjar drengsins í Mosfellssveit sendu austur, en ráku sig þar á, að alt var uppspuni, og er það bæði illa og heimskulega gert, að spinna upp slíkar sögur, þegar eins stendur á og hjer í þetta sinn. Menn, sem komið hafa austan yfir fjall, segja, að þar sjeu enn á gangi líkar sögur. Flogið yfir Eyrarsund. Fjórir flugmenn hafa nú um tíma undanfarandi verið að æfa sig með þeim tilgangi, að fljúga yfir Eyrar- sund, frá Kaupmannahöfn til Málm- eyjar f Svíþjóð. Þeir hafa verið með vjelar sínar á Amager, rjett fyrir utan Khöfn. Verðlaunum hef- ur verið heitið allháum, bæði dönsk- um og sænskum, þeim, sem fyrstur leysti þetta af hendi. Þrír mennirn- ir, sem ætluðu að reyna sig, voru danskir, Alfr. Nervö, Svendsen og Thorup, en einn sænskur, Carl Ced- erström barón. Nervö var talinn helsti flugmaður Dana, en Cederström barón hafði áður reynt sig í París og fengið orð á sig. Mjög mikinn áhuga höfðu tilraunir þeirra vakið í Khöfn. Nú var símað til Lögr. í gærmorgun þaðan: „Svendsen hefur flogið frá Kaup- mannahöfn til Málmeyjar". fslniidsbaiiki. Bjarni Jónsson lög- fræðingur frá Unnarholti tekur við forstöðu útbús íslandsbanka á Akur- eyri nú innan skamms, fer norður þangað 16. n. m. fagnað þar, sáust ekki flögg á ýms- um af skrauthýsunum, en það voru hús miljónahöfðingjanna, Morgans, Standard Oil fjelagsins o. m.fl. Einn þeirra, Zimmermann, sendi R. svo- hljóðandi kveðju, að ef R. yrði for- seti í þriðja sinn, þá ætlaði Z. að fara burt úr Bandaríkjunum með alt sitt og setjast að í Englandi, því hann vildi ekki vera borgari í því ríki, sem skreytti sig með lýðveldis- nafni, en styndi þó undir alræðis- manns oki. Zimmermann er marg- faldur miljónaeigandi. Dóttir hans er gift hertoganum af Manchester. H. Matzen prófessor dáinn. Lát Hennings Matzens prófessors er símað frá Khöfn í gærkvöld. Hann var um sjötugt, einn af mestu lagamönnum Dana og prófessor í ríkisrjetti við háskólann í Khöfn um langan aldur. Lengi var hann for- maður landsþingsins og einhver mesti dugnaðarmaður hægriflokksins, bæði á þingi og í kosningabaráttum. Hann var ættaður frá Suðurjótlandi og af bændakyni kominn. Fyrir nokkrum árum kvæntist hann frú Helgu Vída- lín, er áður var gift Jóni Yídalín konsúl. D. l’homsen konsúll er nýkom- inn heim hingað, norðan um land með Botníu. Eins og auglýst er á öðrum stað hjer í blaðinu, er hann nú að gera breytingu á verslun sinni. Á leið sinni umhverfis landið hefur hann haldið fundi með slátrunarfje- Iögunum þar og samið um sölu fyrir þau. Einnig er hann að gera til- raunir með útflutning á ýmsum vör- um, sem áður hafa lítið verið fluttar út, svo sem silungi, lunda o. fl. Hann hefur íshús í Khöfn og skrifstofu í Hamborg. Julius Foss, danski organleikar- inn, sem áður hefur verið á minst hjer í blaðinu, hefur nú haldið tvo af hljómleikum þeim, sem boðaðir voru, í dómkirkjunni, annan á föstudags- kvöldið var, hinn í gærkvöld. Mjög vel er yfir þeim látið og hafa þeir verið vel sóttir, en nánar verður þeirra getið síðar. Hr. J. F. mun halda þá fleiri, hinn þriðja að minsta kosti. Ákalhr hiti var í Bandaríkjunum eftir 20. júní, 38. st. C. á götunum inn í borgunum. Margir menn dóu af hitanum, aðrir urðu vitskertir. í Philadelphiu er talið að 60 hafi dá- ið af þessari orsök, f Chicago 27, í New-York 16 og í Boston 7. Ölíft var sagt í görðum og útjöðrum bæj- anna þessa daga fyrir flugum (mos- kftum). Roosevclt. Honum var tekið með hátíðahöldum og almennum fögnuði, þegar hann kom heim til Banda- ríkjanna eftir Afríkudvölina og ferða- lagið um Evrópu. Þó er það í frá- sögur fært, að innan um alla við- höfnina í New York, þegar R. var Frá játti til Guðlaugur Guðiuundsson bæjar- fógeti á Akureyri hefur legið mjög veikur í lungnabólgu nú um tíma, en er sagður á batavegi. Á Pingvöllura eru þeir nú að skoða fornar menjar prófessor B. M. Ólsen og nafni hans Ólsen pró- fessor frá Kristjaníu, er dvalið hefur hjer á landi síðan í vor. Slysfarir. 3. þ. m. druknaði bóndinn í Hvannakoti í Möðruvalla- sókn í brunni þar rjett við bæinn. Maðurinn hjet Guðvarður Guðmunds- son og var um sextugt. í Vetleifsholti í Holtum vildi það slys til 30. f. m. að barn brendi sig til bana. _____________ I’átiun, Píus X., þykir lítill stjórn- vitringur og mikill eftirbátur fyrir- rennara síns, Leos XIII., í þeim efn- um. Nýlega hefur hann átt í erjum fyrir kirkjunnar hönd á Þýskalandi og orðið að lúta þar í Iægra haldi. Svo er nú alt að umhverfast gegn honum á Spáni og helst líkindi til, að hann missi yfirráð yfir kirkjunni þar, eins og á Frakklandi nýlega.

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.