Lögrétta - 01.05.1912, Side 4
94
L Ö G R J E T Tj A
ínus
fína Vanille-súkknlaði
er hið næringarmesta og bragð-
besta
hreina, nrvals Cacaoðuft.
Finast á bragð og drýgst i notknn.
Sveitamenn.
Þegar þjer komið til bæjarins í
vor, fáið þjer þessar vörutegundir
ódýrastar í verslun Jóns Zoéga:
Ljáblöð (fílsmerki),
Ljábrýni,
Orf,
Skóflur,
Gaffla,
Hóffjaðrir,
Vagnáburð,
Allskonar Tóbak,
Rjólið á 2,35 pd. o. m. m. fl.
Virðingarfylst
Jin Zoega,
Taisími 128. Bankastræti 14.
LaÉMHd.
Samkæmt fyrirmælum 11. gr. í
reglum um afuot Landsbókasafns-
ins 21. apríl 1909 er hjermeð
skorað á alla þá, sem bækur hafa
að láni af bókasafninu, að skila
þeim á safnið fyrir þ. 15. d. maí-
mán. næstk. Útlán byrja aftur
þ. 15. maí.
Landsbókas. 30. apríl 1912.
Jón Jakobsson.
Eggert Claessen
yflrrjettarmálaflutnlng8maður.
Pó8thú88træti 17. Venjulega heima kl. 10—11
eg 4—5. Talsimi 16.
Neðanmáls:
Fjalla-Eyvindur.
H|f Völurjdur
selur ódýrust húsgögn
og hefur venjulega fyrirliggjandi:
Kommóður, Borð, Buffet, Servanta,
Fataskápa, Rúmstæði, Bókahillur lit-
aðar, Bókaskápa úr eik og mahogni,
Ferðakoffort,
Eldhúströppur, sem breyta má í stól,
Skrifborð með skúffum og skápum,
Búrskápa o. fl.
Ofangreindir munir fást ósamsettir,
ef óskað er.
Allskonar önnur húsgögn eru smíð-
uð úr öllum algengum viðartegund-
um, eftir pöntum.
Ennfremur eru til fyrirliggjandi:
Hurðir, mjög vandaðar, kvistlakkað-
ar og grunnmálaðar ef óskað er, stærð:
3° X i° úr
3°3"Xi°3"—
3°4''Xi°4"—
3°5" X i°5"—
3°6"Xi°6"—
3°8" X i°8"—
i V*"i kontrakíldar
V/J'
i */*"
V/J'
i */*"
1*/*"
Útidyrahurðir:
3° 4"X2° úr 2" með kílstöðum
3o 6»X2o _ 2" — _
3° 8"X2° — 2" —
3°I2"X2° -- 2" - —
Okahurðir, venjulegar.
Talsvert af hurðum af ýmsum öðr-
um stærðum en að ófan eru greindar
eru einnig til fyrirliggjandi. Sömu-
leiðis eru ávalt tii:
Gerikti, Gólflistar, Loftlistar,
Kílstöð og ýmsar aðrar teg. af listum.
Allskonar karmaefni.
Rúmfætur, Rúmstólpar, Borðfætur,
Kommóðufætur, Stigastólpar,
Pilárar ýmiskonar.
Margskonar rennismíðar eru til
fyrir hendi og allskonar pantanir í
þeirri grein fást fljótt og vel af hendi
leystar.
Komið og skoðið
það, sem er fyrirliggjandi í verk-
smiðju fjelagsins við
Kaupið gufuþvottavjelina
„Ideal“
frá I)c forenede Jernstöberiers-
Fabrik-Udsalg A/s, Aarhus. Verk-
smiðjuverð 20 kr. Sendið mál af
þvottapolti yðar, vídd: út á ytri
brún barmanna, ogdýpt: í miðju
í þuml. eða cm. Vjelin verður
þá send yður um hæl gegn því
að þjer greiðið andvirðið -f- farm-
gald hjerumbil 2lh kr„ við mót-
töku formskýrteinis, í þeim banka
sem þjer tiltakið við pöntunina.
Vottorð:
Jeg hef nú reynt þvottavjelina
»Ideal« í 8 mánuði og líkar hún
prýðisvel. Vinnusparnaður alt að
helmingi; en þó munar mestu
hve lítið hún slítur þvottinum.
Borgar sig á 1—2 árum.
Blðnduósi 16. april 1912.
Jón Jónsson
hjeraðslæknir.
Jeg hef reynt gufuþvottavjelina
»IdeaI« og líkar hún ágætlega.
Hún er einkar hentug og óvand-
meðfarin, Ijettir vinnuna og leysir
verk silt prýðisvel af hendi, ef
fyrirsögninni er nákvæmlega fylgt.
Reykjavík 28. okt. 1911.
Gnðlaug J. Jónsdóttir.
L, F. K. R.
Konur þær, er bækur hafa að
láni úr lestrarfjel. kvenna Reykja-
vikur, eru beðnar að skila þeim
innan 10. maí.
§tjórnin.
Iðnskólinn.
Teikningar nemenda skólans
verða til sýnis í Iðnskólahúsinu
n. k. laugardag, kl. 4—7 og sunnu-
dag 1—4 síðd.
\. Torfason.
Gtraíiu lignd, sem ýmsir
eiga, eru enn óútgengin meðal
eftirlátinna muna Árna heitins
Gíslasonar leturgrafara, og eru
þeir, sem þau liafa pantað, heðn-
ir að vitja þeirra til Ólafs Sveins-
sonar gullsmiðs í Reykjavík, sbr.
auglýsingu í síðasta tbl. Lögr.,
sem hjer með er leiðrjett.
29. p. m. andaðist á heimili sínu hjer i
bænum, i Bjarnaborg, minn hjartkæri eigin-
madur Bjarnhjeðinn Porsteinsson. Petta til-
kynnist hjer með vinum og vandamönnum.
Jarðarförin fer fram fimtudaginn 9. p. m.
og hefst frá heimili hins látna kl. II f. m.
Margrjet Gísladóttir.
y Auglýsingum í „Lög-
rjettu“ tekur ritstjórinn við
indlar,
■p eyktóbak,
unntóbak,
Rjó1- o.
^ligarettur,
fjölmai’gar teg.
Áreiðanlega ódýrast í verslun
Jóns Zoega.
Talsími 128. Bankastr. 14.
í vorslun
Jóns Zoéga
verður ódýrasl að kaupa bygg*
iiiftarofni, svo sem :
Saum,
Rúðugler,
Kítti,
Striga,
Betrækk,
Trjelím,
Málningarvörur
o. m. m. fl.
xknislerða
1912.
Með „Vestra“í 4. strandferð 16. júlí
til Akureyrar, dvel þó í Stykkishólmi
á meðan „Vestri" fer til Hvamms-
fjarðar, Frá Akureyri með „Vestu"
7. ágúst til ísafjarðar. Þaðan með
„Botníu" 17. ágúst. í Reykjavík 31.
ágúst.
Áríðandi að sjúklingarnir komi
fyrstu dagana á dvalarstaðina: Ak-
ureyri og ísafjörð.
Á „Vestra" er tekið á móti sjúk-
lingum úti á skipi.
A. Fjeidsteð.
Athygli karlmaiDania
leiðist að því, að við sendum til
allra 3V4 mtr. 135 cmtr. breitt, svart,
dökkblátt og grádröfnótt nýtýsku
fínullarefni í falleg og sterk föt fyrir
aðeins 14 kr. 50 au. Fataefnið send-
ist burðargjaldsfrítt með eftirkröfu,
og má skila því aftur, ef það er
ekki að óskum.
Thybo Mölles Klædefabrik,
Köbenhavn.
Deykjarpípur,
IJIóbaksdósir,
rpóbakspungai’,
fjöldamargar tegundir.
Jón Zoega.
Cocolith,
sem er best innanhúss í stað panels
og þolir vatn og eld,
úlvegar með verksmiðjuverði að
viðbættu flutningsgjaldi
G. E. J. Guðmundsson
bryggiusm. í Reykjavík.
Aðalumboðsmaður fyrir sölu
á Cocolith til íslands.
Bókbiníarasveinn
vandvirkur og duglegur getur fengið
fasta atvinnu hjá mjer eftir 15. maí.
Guðra. Gamalíelsson.
Oddur Gíslason
yfirrjettarmálaflutningsmaður,
Lanfásveg 22.
Venjul. heima kl. n —12 og 4—5.
Okeypis kenslu
í venjulegum skólanámsgreinum, 3
stundir á dag, býður kennaraskólinn
nokkrum börnum 9—10 ára, frá miðj-
um maí til júníloka. Þeir, sem sæta
vilja boðinu, Iáti skólastjórann vita
fyrir 7. maí.
Kennaraskólanum 29. apr. 1912.
Magniís Helgason.
Ameríika kerru selur Jón
Ólafsson alþm., Laugav. 2 (uppi).
OTTOHBHSTEDs
dan$ka smýörlihi er bei^.
«
Ði6ji5 um Tezjundírrujr
JSóley* „ Ingólfur ** „ Hehla " eóa Jsofold*
Ömjórlihiö fœ$Y einungiý fra 3
Ofto Mönsfed h/f.
Kaupmannahöfn og/{ró$um
^ i Danmðrku.
Eftir Jóhann Sigurjónsson.
K lapparstíg. eða prentsmiðjan.
Prentsmiðjan Gutenberg.
178
Það var örvænt um það, hefðum við farið
bæði.
Halla:
Jeg sá einu sinni í draumi tvær mann-
verur. Eina lögmál þeirra var ást þeirra.
Þau voru hvort annars spegill. í þeim
spegli gat ekkert dulist; þess vegna vönd-
uðu þau dagfar sitt. Þegar þau höfðu
lifað langa og fagra æfi, lentu þau í sár-
ustu örbyrgð. Hungrið seildist eftir vefn-
um, sem tíminn hafði ofið á milli þeirra
og ætlaði að slíta hann í sundur. Þá
horfðust þau í augu og gengu saman út
í hríðina og dauðann.
K á r i:
Það er skylda hvers manns að halda
við lífinu eins lengi og unt er.
Halla:
Hvers vegna, þegar það er orðið sjálf-
um manni til kvalar og engum að gagni?
K á r i:
Það er guðs lögmál.
Halla:
Stormurinn skrifar mörg lagaboð í
sandinn (sest). Þegar jeg var orðinn Ije-
magna, gastu skilið mig eftir í snjónum.
179
K á r i:
Þú veist, að það hefði jeg aldrei gert.
Halla:
Það var betra en að skilja mig hjer
eftir eina. — Jeg held ekki heldur að
það sje svo erfitt að deyja. Stormuiinn
fleygir manni áfram þangað til þreytan
bugar mann,— og svo fennir yfirmann
(starir alopnum augum).
K á r i
(þegir stutta stund);
Þú ert sár við mig vegna þess, að
okkur líður illa. Mjer hefur líka oft
fundist sjálfum, að jeg vera ógæfan í lífi
þínu. Hefðir þú ekki kynst mjer, hefðir
þú átt kyrláta og áhyggjulausa æfi. Þú
gatst farið til kirkju á hverjum sunnu-
degi eftir vild. Þú varst auðug og falleg
ekkja — ungu mennirnir hefðu hópast
utan um þig. Þú hefur víst oft iðrast
þess, að þú flýðir með mjer inn á öræfin.
Halla
(þegir).
Kári:
Eitt skifti er mjer minnisstætt. Við
vorum saman á veiðum alla nóttina.
180
Snemma um morguninn stóðum við á
hálendisbrúninni og sáum niður yfir
bygðina. Það var farið að rjúka á stöku
bæ — reykirnir stóðu þráðbeint upp í
loftið — og árnar streymdu hægt og
góðlátlega niður bjeraðið. Þá sýndist
mjer jeg sjá heimþrá í augunum á þjer.
Halla
(vaknar úr leiðslu — roddin er söm og áður,
köld og róleg);
Ef jeg aðeins hefði varðveitt trúna á
ástina hjá sjálfri mjer —. En jeg elska
þig ekki lengur — og jeg hef ef til vill
aldrei elskað þig- Á barnsárunum Jifði
jeg meira 1 draumórum en f veruleikan-
um. Jeg flýði með þjer upp til fjallanna
— jeg trúði því sjálf, að jeg gerði það
vegna þess, að jeg elskaði þig, en það
hefur ef til vill einungis verið löngun
eftir stóru, fáránlegu æfintýri. — Seinna,
þegar dagarnir urðu dimmari og ein-
manalegri, var ást mín til þess kofinn,
þar sem jeg leitaði skjóls, þegar harm-
urinn út af athöfnum mínum sótti að
mjer.
K á r i:
Hættu núl Þú svfvirðir beggja okkar
ást. Þú segist hafa flúið með mjer inn
t8i
á öræfin af tómri æfintýralöngun. Þú
mátt skammast þín (rómurinn verður þýður af
viðkvæmni). Jeg veit sjálfur, hvernig þú
hefur verið. Engin kona hefur sýnt
mikilfenglegri ást. — Þegar sólin skín
á jökulbrúnina, fær bún ótal liti, þó hún
sje ekkert annað en litarlausar sprungur
og leirugur ís — og þín ást hefur verið
æfisólin mín. Þú ert líka ranglát f
minn garð. Jeg elska þig og jeg hef
altaf elskað þig. Þegar jeg er að heim-
an, þó ekki sje nema einn dag, þá hlakka
jeg til að sjá þig. Jeg þrái rödd þína
eins sárt eins og jeg þrái lækjarnið, þeg-
ar jeg er að deyja úr þorsta. Aitaf, þeg-
ar jeg er á veiðum og verð fyrir ein-
hverju happi, hvarflar hugurinn til þín.
Þegar jeg hugsa um, hvað þú verðir
glöð, gleymi jeg þreytunni. Þú mátt
heldur ekki heimta fram yfir það, sem
mannlegir kraftar ná.
Halla
(stendur upp):
Mjer er kalt.
inn?
Viltu sækja sprek í eld-
K á r i:
Já-já (gengur að dyrunum — opnar hurðina í
háifa gáte) Það sjest ekki handa skil (f« út
— lokar á eftir *jer).
182
H a 11 a
(genRur að dyrunum — hlustar — opnar hurðina).
(Tlríðarstroka þyrlast inn — stormurinn þýtur
fram hjá dyrunum).
H a 11 a
<Litast um í kofanum — gengur ut í dyrnar — hall*
ar höfðinu örlítið aftur á bak — hverfur í þá átt,
sem stormurinn þýtur).
(F.itt andartak er leiksviðið autt).
K á r i
(kcmur snjóugur með sprekabyrði í fanginu):
Því læturðu dyrnar standa opnar? (sjer
nð Halla er fjarverandi —- sleppir sprekunum — snar-
nSt út — kallar) Halla!
(Hann beyrist kalla hringinn í kring um kofann).
K á r i
■(kemur í dyrnar — horfir inn — hrópar upp yf|r -s’g)
'Guð almáttugur! (pýtur út—uu heyrast tvö
'örvæntingarfidl óp — seinna opíð er fjnrlægara og
heyrist ógiögt vegna veðursins): Halla.! Haila!
(Það fennir inn í tóman kofann).
(Tjaldið).