Lögrétta - 15.05.1912, Qupperneq 1
Afgreiðslu- og innheimtum,:
ARINBJ. SVEINBJARNARSON.
liaugaveu 41.
Talsimi 74.
Ritstjóri:
PORSTEINN 6ÍSLAS0N
Pingholtsstræti 17.
Talsími 178.
M 26.
Heykjavík 15. maí 1913.
VII. rtr-fcf
Friðrik konungur VIII. dáinn.
Með símskeyti frá ísl. stjórnar-
skrifstofunni í Ivaupmannahöfn,
sendu kl. 9,r> í morgun, var stjórn*
arráðinu tilkynt lát Friðriks kon-
ungs VIII. Hann andaðist í gær-
kvöld í Hamborg, á heimleið frá
Frakklandi.
KI. F/a fjekk stjórnarráðið aft-
ur skeyti frá skrifstofu sinni í
Kaupmannahöfn svohljóðandi:
„Konungurinn vnr frishur i gær
og gekk einn út i gœrkvöld i
Hamborg kl. 10. Alt i einu varð
honum ilt, og komu lögreglumenn
til hjdlpnr honum. Konungurinn
dd rjeit d eftir úr hjnrtnslngi
og vnr flutlur ópeklur u sjúkrn-
hús.
Konungnskiflin verdn tilkynt
kl. 3 i dng“
Skeyli til „Lögr.“ frá Kliöfn
segir, nð konungurinn lin/i búið
n Hotel Hamburgshof; liafi hans
verið saknnð þnðnn og hnnn
fundist í mofgun með hjdlp lög-
regluliðsins.
Friðrik konungur VlII. var fæddur 3.
júní 1843 í hinni svo nefndu ')gulu
höll« (det gule Palæ) í Amalíugötu í
Kaupmannahöfn; þar bjuggu þá for-
eldrar lians, en nú býr þar Valdimar
prins bróðir hans. Var Friðrik konung-
ur elstur barna þeirra Kristjáns kon-
ungs IX. og Lovísu drotningar.
Var því við brugðið, hve vel Lovísa
drotning hefði alið upp börn sín. Þau
fengu mikla mentun, bæði til bókar og
í öllum greinum. Fyrstu tilsögn fjekk
hann auðvitað heima lijá sjer, en var
síðar, eftir að ákveðið var, 1853, að
faðir lians skyldi erfa ríki í Danmörku,
settur í gagnfræðaskóla í Mariebo; er
sagt, að foreldrar hans liafi gert það til
þess, að hann fengi þegar í bernsku að
kynnast óbrotnum alþýðumönnum. í
hermensku og íþrótlum lærði hann
einnig alt, sem tilheyrir slöðu lians.
1863 fór hann á liáskólann í Oxford í
Englandi og var þar um hríð, en við-
hurðir í Danmörltu þá urðu þess vald-
andi, að hann var kallaður heirn það-
an eftir stulta dvöl. Fað ár, 15. nóv.,
kom faðir hans til ríkis í Danmörku.
' ^
Fjekk þá Friðrik sem krónprins sæti í
ríkisráðinu. Hann tók þátt í stríðinu
við Fjóðverja, þá rjett á eftir. En er
því var lokið, fór hann í langferð til
útlanda, heimsótti þá meðal annara
Napoleon III. í París. Tveimur árum
síðar fór liann til Aþenu og Mikla-
garðs, og þaðan til Englands. Þá gerði
háskólinn í Oxford liann í heiðurs
skyni doclor juris. 1874 var hann um
tíma í Berlín, og var síðan vinátta milli
þeirra Friðriks Vilhjálms, er þá var
krónprins, en síðar keisari Friðrik III.
28. júlí 1869 gekk Friðrik prins að
eiga Lovísu prinsessu, dóttur Karls XV.
Sviakonungs og Norðmanna. Því hjóna-
bandi var mjög vel tekið i Danmörku
og það skoðað sem einingarband milli
Norðurlandaþjóðanna. Var Karl kon-
ungur XV. stórum vinsæll í Danmörku,
þótt ekki hefði hann fengið því ráðið,
að veita Dönum lið gegn Pjóðverjum.
Lovísa prinsessa var stórrík, enda var
og Friðrik konungur talinn einhver auð-
ugasti maður í Danmörku.
Friðrik VIII. kom lil ríkis eftir föður
sinn 29. jan. 1906. Hefur því aðeins
ríkt rúm 6 ár. En oft áður hafði hann
haft ríkisstjórnina á hendi í fjarveru
föður síns. Það var trú manna, að
hann hneigðisl miklu meir að frjálsleg-
um stjórnmálaskoðunum en faðir hans
og að hann hafi engin tormerki fundið
á því, að vinstri rnenn tækju við stjórn-
artaumunum, en sú breyting varð nokkr-
um árum áður en faðir hans dó. Hef-
ur jafnan farið vel á með Friðriki kon-
ungi og ráðherrum hans i Danmörku,
þótt stjórnarskifti hafi verið mjög tíð
þar á síðari árum.
Hjer á landi liefur Kristján konungUr
IX. að verðleikum verið mjög lofaður.
En ekki á Friðrik konungur VIII. síður
lof skilið frá íslands hálfu. Enginn
konunga vorra liefur verið íslandi vel-
viljaðri en hann, og sýndi hann það í
öllum afskiftum sínum af málum ís-
lands, smáum og stórum. Hann vildi
tryggja golt samkomulag milli Dana og
íslendinga, og hann vildi unna íslandi
fulls rjettar í sambandinu. Boð is-
lenskra þingmanna til Danmerkur, rjett
eftir að hann tók við konungdómi,
heimsókn hans hjer næsta sumar á
eftir og skipun sambandslaganefndar-
innar, var alt i þessu skyni gert. —
Sanniðarskeyti Friðriks konungs, er
hann sendi hingað í fyrra á afmælis-
hátið Jóns Sigurðssonar, sýndi og ljóst
hug hans lil íslands. Síðast nú nýlega
sýndi hann velvilja sinn til íslendinga
með höfðinglegri gjöf til samskotanna
út af [druknanaslysunum hjer við land.
Áður hafði hann, í heimsókn sinni hjer,
gefið íslandi 10 þús. kr. sjóð til skóg-
ræktar, sem ungmennafjelögin íslensku
hafa notið góðs af i skóggræðslustarfi
sinu.
Margar minningar eru hjer um Frið-
rik konung VIII. frá heimsókn hans
1907. Hafði faðir hans fyrstur konunga
íslands heimsótt það 1874, á þúsund ára
hátíðinni, og flutti því þá nýja stjórnar-
skrá, sem orðið hefur íslandi til mik-
illa lieilla. En koma Friðriks VIII.
mundi eigi síður liafa orðið áhrifarik
og minnisstæð hjer á landi, ef alt hefði
gengið eins og hann óskaði eftir á, því
kunnugt er það, að honum var það á-
hugamál, að sættir og samkomulag gæli
tekist um allan stjórnmálaágreining milli
íslendinga og Dana.
Á Þingvöllum lijelt Friðrik konungur
1907 eftirfarandi ræðu:
»Stórhrifinn stend jeg á þessum stað,
sem er svo ríkur af endurminningum,
eigi aðeins gömlum endurminningum,
heldur einnig endurminningum um þús-
undára-hátíðina, sem minn elskaði faðir
var svo hamingjusamur að vera hjer við
staddur á þessum sama degi fyrir 33 ár-
um. Mjer er það gleði að sjá, að minni
hans er ógleymanlegt og í liávegum haft
hjá minni kæru íslensku þjóð. En bæði
jeg og systkini mín höfum tekið ást
hans á íslandi að erfðum. Pað gleður
mig að sjá, hve margir af minum kæru,
íslensku þegnum eru staddir hjer í dag,
og jeg læt í ljósi þá von, að með þess-
ari heimsókn lijá hinni kæru, íslensku
þjóð sje tengt það samband, er aldrei
megi slitna. Jeg gef yður loforð mitt
uin að vernda stjórnarskrá yðar og alt,
sem vður er kært. Lifi ísland — ekki
einungis fortiðarinnar ísland, heldur
einnig nútimans ísland, sem jeg vænti,
að með samvinnu íslenskra og danskra
manna eigi blessunarríka framtið fyrir
höndum. — Lifi ísland!«
Friðrik konungur var fríður maður
sínum. Á yngri árum var liann iþrótta-
maður, og lijelt sjer jafnan vel. Til
þess var lekið, hve úthaldsgóður hann
var lijer á ferðalaginu sumarið 1907,
þá nær liálfsjötugur að aldri. Hann fór
alla landferðina á hesti, og vildi ekki
í vagn koma.
Elsti sonur Friðriks konungs, Krist-
ján X., sem nú í dag tekur konungdóm
i Danmörku, er fæddur 26. sept. 1870.
Hann er kvæntur Alexandrinu Ágústu
hertogadóttur af Mecklenburg-Schewerin.
Næst-elsti sonur þeirra Friðriks kon-
ungs VIII. og Lovísu drotningar er Há-
kon VII. Noregskonungur.
Út af fráfallí Friðriks konungs gengst
háskólinn hjer fyrir sorgarathöfn, sem
mun eiga að fara fram á greftrunar-
degi hans.