Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 23.10.1912, Blaðsíða 2

Lögrétta - 23.10.1912, Blaðsíða 2
204 LÖGRJETTA Lóg rjett a kemur út á hverjum mið> vikudegi og auk þess aukablöð við og við, minst 60 blöð als á ári. Verö: 4 kr. árg. á íslandi, erlendis 5 kr. Gjalddagi 1. júli. Jóni að þakka að margt af prentuð- um og skrifuðum bókum er nú til, sem vafalaust hefðu glatast með öllu, ef hans hefði eigi notið við. Mun hans því verða lengi getið sem nýt- asta manns í þessu efni. Eigi gat hjá því farið að slíkur maður hefði hug á því, að vita hvað til væri af prentuðum bókum, enda byrjaði hann snemma að rita Rit- höfundatal og er lítið ágrip af því prentað (í Rvík 1884); en því verki hjelt hann áfram til dauðadags. Er það ómetanlegt fyrir þá er stund leggja á íslenska bókfræði, enda hef- ur lítill vottur sjest af því í „And- vara“, því þar hafa nokkrum sinn- um verið prentaðar skrár yfir rit þeirra manna, sem æfisaga hefur verið rituð af, eftir Jón Borgfirðing. Hann rit- aði og „Söguágrip um prentsmiðjur og prentara á íslandi" (Rvík 1867) og mun. hann hafa safnað öllu, er snertir það efni, fram á síðustu ár. Ennfremur ritaði hann æfiminning Sigurðar Breiðfjörðs (Rvík 1878) og ýmislegt fleira. Hann var og styrkt- armaður ýmsra blaða og ritaði all- mikið í Norðanfara, Baldur, Tímann og Mána. Hann ritaði og lengi Ár- bók íslands í Almanak Þjóðvinafje- lagsins. Jón Borgfirðingur átti jafnan við þröngvan kost að búa, vekur það því meiri athygli hvað mikla ástund- un hann lagði á það, að koma börn- um sínum til manns. Synir hans allir, er upp komust, gengu mentaveg- inn, og mun hann hafa fundið til þess, hvað hann hafði mikið mist, að eiga ekki kost á því, að njóta þeirrar mentunar í æsku, er hugur hans stóð til, og vildi því ekki lata sonu sína verða fyrir sama hlutskifti. Sá hann og síðar góðan ávöxt iðju sinnar. — Hann var fjölhæfur fræðimaður og mesta yndi hans var að lesa og skrifa. Er undravert hvað mikið liggur eftir hann þegar tillit er tekið til kringumstæðanna, því lengi fram- an af varð hann að hafa alla sfna bókiðju í frítímum sfnum, sem ekki voru margir, en sfðustu árin gafst honum betur næði, enda not- aði hann tfmann vel. Mun margt, auk þess, sem áður er talið, liggja í handritum eftir hann, og vafalaust geýma mikinn fróðleik. Jón Borgfirðingur var meðalmaður á vöxt og grannvaxinn. Hann kyntist mönnum vel, og var vinur vina sinna. Hann hafði hepnar gáfur og var margt vel um hann. Þeir, sem unna íslenskum fróðleik, munu sakna hans, því hann var jafnan boðinn og búinn að leiðbeina og gefa upplýsingar um það, er honum var kunnugt, og það var margt. Bókmentafjelagið sýndi honum fyrir nokkru þann heiður, að gera hann að heiðursfjelaga sínum, og var það eina viðurkenningin er hann hlaut. (J. KrO, Pjetur prins af Montenegró. Hann er yngsti sonur Nikita Svart- fjallakonungs og varð 11. þ. m. 23 ára gamall. Sögurnar segja, að hann hafi skotið fyrsta skotinu í stríðinu, sem nú er byrjað. Hann er kapteinn í stórskotaliði föður síns. Flóaáveitan. „Suðurl." flytur grein um hana 5. þ. m. Það segir, að nú sje lokið áveitunni á Miklavatnsmýri og mest- an hluta Gaulverjabæjarhrepps, og auk þess á land nokkurra jarða í Villingaholtshreppi. Þessi byrjun var gerð til þess að fá reynslu áður en ráðist yrði í aðaláveituna, og telur blaðið þá reynslu nú fengna og virð- ist hún vera mjög hvetjandi til áfram- halds. Talbitzer hafði áætlað, að þetta verk mundi kosta 36 þús. kr., en „Suðurl." segir kostnaðinn líklega muni fara lftið yfir 20 þús. kr., og er það stórkostlegur munur. Segir blaðið, að með nokkrum breytingum á verkinu, sem hefði það í för með sjer að vatn næðist á nokkru minna land en áætlað hefur verið, mundi mega færa kostnaðinn, sem hefur verið áætlaður 600 þús. kr., niður um meira en helming og ber fyrir þeirri skoðun Sigurð Sigurðsson ráðanaut Og alþm., sem er manna kunnugastur því malí. 9 manna nefnd hafði verið kosin { fyrra haust þar eystra til þess að vinna að undirbúningi til framkvæmda verksins, en blaðið segir, að hún hafi enn ekki tekið ákvörðun um, hvernig hún snúist við hinum nýju uppá- stungum um kostnaðarminna fyrir- komulag. Formaður nefndarinnar er Sig. Ólafsson sýslumaður, varafor- maður Eggert í Laugardælum og skrifari Jón alþm. á Ásgautsstöðum, ritstj. „Suðurl.". Danslia þingið var sett 8. þ. m. Það er fyrsta þingið, sem kem- ur saman í stjórnartíð Kristjáns X. og því setti konungur það sjálfur. Ostenfeld bi.skub predikaði við guðs- þjóniistuueiðina. I. C. Christensen var endurkosinn formaður Fólkþingsins með 58 atkv. Sósíalistar, radikali flokkurinn og gamal-hægrimenn greiddu ekki at- kvæði. 1. varaform. varð Effersö, en 2. Petersen-Nyskov. í Lands- þinginu var Goos kosinn formaður með 30 atkv., en A. Thomsen fjekk 29. 1. varaform. Hage og 2. Jörg. Pedersen. Bæjarstjórnin. Fundur 17. okt. Beiðni frá ísfelaginu um leyfi til að byggja ísgeymsluhús á Brunnhúsa- lóðinni frestað, þar til uppdráttur væri fenginn. Samþ. við 2. umr. að taka alt að 12 þús. kr. lán til holræsagerðar á þessum vetri og leggja fyrir það holræsi í Vatnsstíg, Klapparstíg, Hverfisgötu, Skólav.stíg, Vesturgötu, Bræðraborgarstíg, Laugaveg, Tún- götu, Bjargarstíg og Grundarstíg, samkv. áætlun bæjarverkfræðings. Úrskurðaðir reikningar gasstöðvar- annnar fyrir rekstursárið 1910—II. Bæjarstjórnin tók fram, að reksturs- firmað bæri ábyrgð á misfellum þeim, sem orðið hefðu hjá Radtke fyrv. stöðv- arstjóra, er hafði haft af stöðinni um 18,000 kr., en af þeim náðst aftur 7000 kr, og vildi firmað C. Francke fá þær 11,000 kr., sem þá vöntuðu, hjá Rvíkurbæ. Samþ. að fela K. Zimsen að end- urskoða rekstursreikning gasstöðvar- innar 1911 —12. Fundur 18. okt. Fátækranefnd hafði lagt til að styrk úr ellistyrktar- sjóði skyldi veita 289 mönnum, en fjeð, sem til úthlutunar kom, var 6300 kr. Samkv. tillögu skólanefndar var eftirnefndum fjelögum veitt leyfi til að nota leikfimishús Barnaskólans: Daufdumbraskolanum, Kvennaskólan- um, Kennaraskólanum, Ungmenna- fjelaginu, fjelaginu „Skarphjeðni" og ennfr frk. Ingibj. Brands. — Ennfr. Daufdumbraskólanum veitt leyfi til að nota hús og áhöld skólans til skólaiðnaðarkenslu og matreiðslu- kenslu eina stund á viku. Tilkynt brjef frá verkfr. N. C. Monberg í Khöfn, þar sem hann skýrir frá, að umboðsmaður sinn muni sennilega koma hingað fyrri hluta nóvembermánaðar. Kosinn til að semja verðlagsskrá E. Briem prófessor. Þessar brunabótav. samþ.: Húsið nr. 15 við Laugav. 3101 kr., nr. 9 við Lindarg. 7244 kr., nr. 5 A við Grundarst. 2251 kr. Borgarstj. gefið umboð til að mæta á sáttafundi út af stefnu frá Th. Krabbe verkfr., er krefst 3000 kr. fyrir verk sitt að undirbúningi hafnar- gerðarinnar, en bæjarstjórn vill að- eins borga 1000 kr. Ferð til KapanMiiar. Eftir Bjarna Sœmundsson. (Frh.). ---- Að morgni næsta dags (3. júlí) vorum við farin að nálgast Skotland og vorum þá (kl. 8) á 200 faðma dýpi í álnum milli Færeyja og Skot- lands, í 90 mílna fjarlægð frá Skot- landi. Nú fóru að sjást máfategundir, sem ekki sjást við ísland, og þegar við að nokkrum tíma liðnum komum inn á landgrunn Skotlands, fóru að sjást svartfuglar og lundar, hvort- tveggja vottur um nálægð lands, og svo skoskir fiskikúttarar, sem voru að fiska með lóð (á bátum). Fugla- tegundunum fór fjölgandi, súlur og ritur bættust við og loks sáum við land kl. 3. Það voru tvö sker, sitt á hvora hönd, Sul skerry (Súlusker) á vinstri hönd, eu Stack skerry (Stakkur) á hægri. Sker þessi eru langt undan landi, 30 mflur V. af Orkneyjum og N. af Skotlandi og bera gömul norræn nöfn, eins og fleiri staðir við og á norðurströnd Skotlands. Súlusker er lágur hólmi með háum vita, og hlýtur að vera æði einmanalegt að búa þar til lengd- ar, en Stakkur er hár klettur, hvítur af fugladriti og klofinn í miðju. Kringum skerin var margt af fugl- um og selir sáust. Við hjeldum á- fram, skerin hurfu bak við hafsbrún og kl. 5 sáum við loksins Skotland á hægri hönd og nokkru síðar eyj- una Hoy (Háey?) í Orkneyjum á vinstri, Kl. 8 vorum við hjá Dunnet Head, norðurodda Skotlands (þar er símastöð og loftskeytastöð fyrir skip), og við mynnið á Pentland Firth, hinu illræmda sundi milli Skot- lands og Orkneyja. Þar eru mjög harðir straumar og illviðrasamt, og því vandfarin leið í dimmviðri, því að þrengsli og blindsker bætast við. Nú var besta veður, en straumur var afarmikill. Austan til í sundinu er lítil eyja, er nefnist Stroma (Straum- ey). Má fara báðum megin við hana. Syðri leiðin er þrengri og vandfarn- ari og hana fórum við. Það er meira gaman að fara hana, sagði Broberg. Hann vill fara sem næst landi, far- þegunum til skemtunar. Straumur var mjög harður, tvær rastir stóðu eins og veggur suður frá Straumey og sjórinn var eins og sjóðandi, rjett eins og í Breiðafjarðarstrauinunum. En „Ceres” óð áfram, eins og ekk- ert væri um að vera. Kl. 9 fórum við í þrengsta sundinu, aðeins skot- mál frá suðurodda Straumeyjar, og þar var blindsker í miðjum straumn- um, en járngrind upp úr, með vita- lukt á, náttúrlega. Kl. 9V2 vorum við hjá Duncansby Head. Höíðinn er hár og brattur, allur jetinn út í hella og dranga. Bæði á honum og Dunnet Head eru vitar og tóku þeir nú að leiftra hver í kapp við annan, því að það var farið að skyggja. Sfðast um kveldið sá jeg vitann við Wick. Nyrsti hluti Skotlands er allhá- lendur og eigi ósvipaður Langanes- ströndum. Trjágróður er þar lítill, en engi og akrar allmikil og mikil bygð, en býlin þó alldreifð og bæj- irnir mest smáfiskistöðvar við sjó- inn. Stærstur er Thurso. Þegar kom á móts við bæinn Wick fór jeg að sofa, og við vorum komin suður á móts við bæinn Montrose, þegar jeg kom upp næsta morgun (4. júlí). Nú var blómlegra að líta til landsins, því að alstaðar voru trjá- lundar og trjáraðir innan um sáð löndin, og hver smábærinn rak ann- an á ströndinni. Kl. 10V2 fórum við fram hjá hinum fræga Bell Rock-vita. Hann er 115 feta hár og stendur á lágu skeri, langt úti í hafi, úti fyrir Tay-firði. Skerið var áður mjög hættulegt fyrir sjófarendur, sagt að 67 skip hafi strandað á því árið áður en vitinn var reistur. Nú var fremur fátt að sjá af skipum, aðal- lega fáein fiskiskip, fyr en kom inn f Forth-fjörð. Þar leit all-ófriðlega út, því að þar lá bresk herflotadeild, 40—50 torpedóbátar, svartir og svip- illir. Sagt að þeir hafi fengið þar stöð upp á síðkastið, til þess að verja skipaleiðir inn fjörðinn, enda er besti °g þjettbýlasti hluti Skotlands þar innaf og mikið í húfi í ófriði. Auk þess eru eyjarnar Isle of May (æl of mei) í fjarðarmynninu og Inch Keith (intsj kfþ) rammlega víggirtar, einkum hin síðartalda. Hún er rjett fyrir utan Leith. Innsiglingin til Leith er allfögur; með sjónum er fjöldi smábæja á báðar hliðar, má af þeim nefna kola- höfnina Burnt Island (burnt æland) og veiðarfærabæinn Kirkcaldy á norðurströndinni. Akrar, engi og skógarlundir skiftast á.og lengra burtu eru fell, lágar hæðir eða hálsar, eins t. d. Arthur’s Seat og Pentland Hills, suður af Edinborg, og turnar og hæðir borgarinnar sjást óglögt í blágrárri móðu. Við kotnum til Leith kl. 3, en urðum að bíða til kl. 5 til þess að komast inn í dokkina (Albert Dock), þar sem skip Sam. fjel. hafa sitt fasta lægi. Við áttum að fara af stað aftur snemma næsta morgun, svo að það varð lítil viðstaða. Þó komst jeg upp í Edinaborg ásamt nokkru af samferðafólkinu. Jeg stað- næmdist eins og lög gera ráð fyrir, f aðalstræti borgarinnar, Princess Street. Þangað leggja allir aðkómumenn fyrst leið sína, enda er það frægt og fagurt stræti. Sjálfsagt mun mörg- um landanum, sem kemur í fyrsta sinn til útlanda, þykja æði tilkomu- mikið að sjá alla umferðina á stræti þessu, rafmagns-sporvagnar, mótor- vagnar, hestavagnar og mótor-hjól- hestar þjóta fram og aftur og mega menn fara með allri gætni þvert yfir götuna, til þess að verða ekki fyrir skakkafalli, og gleyma sjer ekki þeg- ar þeir eru að virða fyrir sjer alt hið margvíslega og nýstárlega, sem ber fyrir augun. Það mætti skrifa langan pistil um Edinaborg, ef rúmið leyfði. Hún er talin ein hin fegursta af borgum álfunnar fyrir norðan Alpafjöll. En lítið er auðið að sjá af henni og öllu því, sem hún hefur að geyma, á svo stuttum tíma. Við komumst upp á kastalann fræga; Þaðan má sjá yfir mikið af borginni, en nú var svo mikil mugga, að varla sást yfir alla borgina óg alls ekki yfir um Forthfjörð. Kl. 7 næsta morgun (5. júlí) lögð- um við af stað áleiðis til Hafnar, í besta veðri. Stefnan er tekin á Jót- landsskaga, það er { ANA, og er vegalengdin milli Leith og Skagans 520 mílur, eða ámóta og á milli Dyr- hólaeyjar og Skotlands. f fjarðar- mynninu fórum við fram hjá háum kletti, sem nefnist Bass Rock; þar verpur allmikið af súlu og hefur súl- an fengið hið latneska tegundarnafn sitt af klettinum, en kynsnafnið er íslenska nafnið óbreytt; latneska nafn, vfsindanafn, hennar er Sula bassana. Það var margt af súlu með Skot- landsströndum. Það er fagur og tilkomumikill fugl að sjá á flugi, lag- aður til þess að kljúfa loft og sjó, eins og ör, enda er hún líka best- ur flugkafari af öllum fuglum. Að sjá hana stinga sjer í sílistorfu, er æði einkennilegt; þegar þær gera það margar í einu, þá er eins og örfadrífa úr háa lofti niður í sjóinn. En gráðug er hún, og oft etur hún svo mikið, að hún getur ekki tekið sig upp, og tæplega kyngt því, sem hún hefur veitt. Hún tekur bráðina á leiðinni upp, þegar hún hefur stung- ið sjer á kaf, 2—3 faðma niður í sjóinn. Sljett var úthafið, en sljettari var þó Norðursjórinn; hann var rjóma- sljettur alla leið til Jótlands og veðr- ið altaf hið inndælasta. Þegar við vorum komin 70—80 mílur frá Leith kl. 2. e. m., fóruin við að sjá all- margt af hollenskum síldarskipum; sigldum við gegnum þennan flota í 6 tíma eða á 75 mílna svæði; en ómögulegt var að vita, hve mörg skipin voru. Þau lagu hreyfingar- laus í logninu og voru menn að gera að næturveiðinni, því að netin (það eru reknet) eru lögð undir nóttina, en tekin að morgni; sfldin gengur sem sje illa í netin meðan bjart er. Ekki gat jeg sjeð, hvort aflinn var mikill, en kveikilegt var á sjónum, því að þar var margt af fugli, lielst máfar, súla og svartfugl, einnig margt af hnísum og hrefnum, og einu sinni fengum við heimsókn af skemtileg- um gestum; það voru j h'óýrungar. Þeir komu að „Ceres" framanverðri og tóku að keppa við hana. Syntu þeir undir kinnungunum, eða stefn- inu, í 3 mínútur, enda þótt skipið hefði rúmra 11 mílna ferð. Leit út fyrir, að þeir tækju þetta ekki nærri sjer, því að þeir hreyfðu sig aðeins lítið eitt, eða lágu eins og hreyfing- arlausir líkt og þegar fuglar renna sjer á flugi Þeir hlutu því að hafa „sett upp fulla ferð", áður en þeir komu í ljósmál við skipið og runnið áfram með hraða skipsins án frekari að- gerða þessar mínútur, sem þeir voru við það. Frá einni skútunni komu menn á bát í veg fyrir okkur og hömpuðu nýveiddum þorski framan f okkur, en það var ekki tími til að stansa og fá sjer í soðið. Það var líka kominn hugur í skipstjóra að kom- ast áfram; hann vildi komast snemma á sunnudag til Hafnar. Var því far- ið að vita, hvað „Ceres" gæti, og mokað á eldinn með mjög stuttum millibilum. Var reykjarmökkurinn ærið svartur og loks fór að loga upp úr „Ceres", og er reykháfurinn þó æði hár; lagði langa neistastroku á eftir oss, svo að ekki var vært á afturdekkinu, en eldtungurnar stóðu hátt í loft. Leit þetta dýrðlega út í rökkurkyrðinni, og endurtókst nokkr- um sinnum. Ekki var trútt um, að sumum farþegum þætti nóg um. Annars kemur þetta ekki ósjaldan fyrir á skipum (t. d. torpedóbátum). Einu sinni opnaðist öryggisop ket- ilsins. En alt var þetta til ónýtis, ferðin jókst ekki að heldur neitt verulega, og kendu menn það vond- um kolum og dragsúgsleysi í reyk- háfnum, því að altaf var logn, en ekki voru vesalings kyndararnir öf- undsverðir af æfinni niðri í því jarð- neska víti, sem nefnist eldrúm skips- ins, og vel mætti mannúðin fagna því, ef einhverntíma kæmi sá dagur, að menn hættu alveg að kynda kol- um í skipum og leystu þannig fjöl- menna stjett undan mjög svo óhollu og erfiðu lífsstarfi. Þetta er nú kom- ið í kring á skipum, sem brenna olíu í stað kola, og á dísilmótorskipun- um dönsku. Um miðnætti vorum við í miðjum Norðursjó og höfðum um miðdegis- bil farið yfir dýpsta svæðið á þeirri leið, The gut (görnina), þar er 50— 60 faðma dýpi. Sunnar og austar er yfirleitt ennþá grynra, og á hin- um fræga Dogger Bank ekki nema 10—20 faðmar. Það er fyrst nyrst í Norðursjó, að dýpið verður meira, þó nær það hvergi 100 föðmum, nema í Norska álnum, sem liggur inn með suðurströnd Noregs, eftir norðanverðu Skagerrak. Norðursjór er þannig yfirleitt ekki dýpri en Faxa- flói og hefur orð á sjer fyrir óþægi- legan og krappan sjó. Að morgni hins 6. júlí vorum við farin að nálgast Jótland og var þá fátt um skip og lítið líf á sjónum óg gerðist ekkert markvert fyr en kl. 7 um kvöldið, að við sáum land í suðaustri; það var Hanstholmen, norð- vesturhorn Jótlands; bar æði lágt á því, eins og vant er um vesturströnd landsins, enda var það alllangt í burtu, eitthvað um 20 mílur. Um sama leyti vorum við næst Noregi á þessari leið, en of langt burtu (c. 60 mílur) til þess að landið sæist. Á Hanstholm er mjög sterkur raf- magnsviti, en hann var löngu horfinn bak við hafsbrún áður en kveykt væri. Aftur á móti sáum nið Hirs- halsvita kl. 10. Skömmu áður mætt- um við í rökkrinu undarlegu skipi; það var eitt af skipum þeim, er flytja járnstein frá Noregi og Sví- þjóð. Þau hafa reykháfinn á aftur- enda, en fyrir framan hann tvísetta mastraröð eftir endilöngu skipi, og öll möstrin (8 í hvorri röð) jafn-lág. Líkjast þessi skip mest tilsýndar hálf- um hrífuhaus með tindana upp. Dansk- ir sjóinenn nefna þau „Tusindben" (o: margfætlur), jeg vildi kalla þau „tindabikkjur" á íslensku. Kl. 1 um nóttina vorum við hjá Skaganum, en þá svaf jeg og vakn- aði ekki fyr en við vorum hjá eynni Anholt, hjer um bil í miðju Katte- gat. Það var sólskin og hiti og sjórinn iognstafaður; fjöldi skipa, flest gufu- skip, voru á víð og dreif. Um há- degisbil sáum við Svíþjóð og litlu síðar Sjáland og bar mest á höfð-

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.