Lögrétta - 30.10.1912, Blaðsíða 3
L0GRJETTA
209
3
’So
H
xu
3
Cuo
JU
s
‘>s
o u
O rt
3 C
_2 *->
i *E
I ^
b O
M M
3
43
ct3
co
OJ
>
T3
C
3
b/i
u
4-*
vo
co
8
P4
. '<í*
o vrt
»n ™
^ C
v M
I >
in
ötl
'rt M
4>
l» 3
n?
O
O
un
m
o'
'01
Nóbelsverðlaun læknisfræðinnar eru sögð
eiga að lenda nú hjá dr. Alexis Carrel í
New-York.
Enska þingið kom saman 8. þ. m. Sumir
spá nýjum kosningum bráðlega. Stjórnin
lagði fyrir þingið uppástungu um meðferð
írska heimastjórnarmálsins. Samkvæmt henni
á að verja 25 dögum til nefndarstarfa, en
til að ræða tillögur nefndarinnar á svo að
verja 5 dögum. Svo á loks 3. umræða að
fara fram á 2 dögum. Formaður nefndar
þeirrar, er mál-
ið hefur til at-
hugunar, skal
ákveða, hverj-
ar tillögurskuli
koma til um-
K/i rt
*r o á
,2 ,:0 -3
U-. - '4-i
cð ^cö VO
*53o ‘533 ** ’53
c c c
<U <L> <D
V. h u
Q Q Q
vr»
CO
cð
10
'O
bjo
o
vn
vr>
ro
10
51)
G '<ð
cð
'O 3
7; cð
O 4-*
n 4-»
§0 £
c
H
in
*s
a
D
o JH
ræðu á hverj-
um einstökum
þingfundi.
Annars er
sagt, að enska
stjórnin vilji
takmarka ræðulengd og umræður í þinginu
með því að of miklar umræður þykja seinka
störfum þess óþarflega mikið.
Útrekstur úr Tyrklandi. í byrjun ófrið-
arins tóku Tyrkir þegar að vísa burtu úr
landinu Grikkjum, Serbum og Búlgurum.
Fóru þeir í stórhópum úr landi fyrstu dagana.
Hafnarháskóli. Kenslumálaraðaneytið
danska hefur nýlega skipað nefnd til þess að
athuga bæði alla stjórn og fjárhag háskólans
í Khöfn. Formaður þeirrar riefndar er H.
Höffding prófessor. Tilefnið til nefndarskip-
unarinnar gáfu umræður í þinginu um laun
háskólakennaranna.
c
cn
*0
3
cð
C
J2
rt
£
‘C
>,
&.
&
v
>
Innkaupin í
Edinborg
auka gleði —
minka sorg.
Ferð til Kaupmannahafnar.
Eftir Bjarna Sœrnundsson.
(Frh.). -----
II.
Jæja, jeg var þá aftur í Höfn, og
hafði ekki komið þangað síðan jeg
fór heim sem nýbakaður kandídat
1894, og má nærri geta að margt
væri breytt sfðan, bæði borgin sjálf
og lífið í henni. Þá voru íbúarnir
eitlhvað um 400 þús., nú eru þeir
nær 550 þús., þá voru hesta-droskur
og hesta-sporvagnar aðal-mannflutn-
ingatækin um borgina; mótorvagnar
(eða bifreiðar) og rafmagnssporvagn-
ar voru ekki komnir. Nú þjóta mótor-
vagnar og rafmagns-sporvagnar fram
og aftur um alla borgina, en hitt eru
orðnir fásjeðir gripir. Þá var aðeins
Ströget (o: Vimmelskaftið, Austur-
gata og Breiðgata) og „Kaupmakar-
inn“ asfalteruð; nú eru allar helstu
göturnar þannig, og er því vagn-
skröltið æði mikið minna en áður.
Þá voru talsímastrengirnir eins og
þjettriðið net yfir öllum bænum, nú
eru þeir horfnir, grafnir fyrir löngu,
og máttu þeir missa sig og síst munu
veslings svölurnar hafa syrgt þá. í
stað gömlu Knippelsbrúar og Löngu-
brúar eru komnar brýr, sem eru stór-
kostleg og snildarleg mannvirki. Þá
er og eigi lítil breyting orðin á um
stórhýsi. Þá var Ráðhúsið eigi til, og
aðeins byrjað á Glýptótekinu; Mar-
marakirkjan og Listasafn ríkisins eigi
fullgerð, að jeg ekki nefni konung-
lega bókasafnið, og hin mikilfeng-
legu hús: aðal-járnbrautarstöðina nýju
og nýja pósthpsið, og síðast, en ekki
síst, Ríkisspítalann mikla, sem er heilt
borgarhverfi út af fyrir sig. Stór
svæði af borginni eru enn hjer um
bil eins og þau voru fyrir 20 árum,
en svo eru önnur, sem eru mjög
breytt, eins og t. d. hverfið milli
Kaupmakara og Gautagötu, þar sem
fjöldi óþokkalegra húsa við þröngar
götur hefur verið rifinn niður, en
breiðar götur, með skrautlegum ný-
tískuhúsum, eru komnar í staðinn;
mjög breytt er hverfið kringum Tívólí
og Ráðhússplássið, stórborgalegasta
svæðið í allri borginni; er þar oft
nærri lífsháski að fara gangandi
yfir, vegna vagnferða; önnur hverfi
eru alveg ný, eins og t. d. á Austur-
brú í nánd við Fríhöfnina, á Amager
við íslandsbryggju og í Grönningen.
Sumt af öllu þessu varð jeg þegar
var við á leiðinni frá skipinu inn í
borgina.
Einnig tók jeg fljótt eftir skemti-
legri breytingu á útliti bæjarins, sem
sje þeirri, að nú er vlða farið að
skreyta húsaveggina með lifandi blóm-
um, sem ræktuð eru í kössum eða
pottum á þrepum undir gluggunum,
eða vaxa alla leið frá jörðu.
Ferð mín til Hafnar var ekki ein-
tóm skemtiferð; aðal-erindið var að
fást við fiskirannsóknir á rannsókna-
stofu hafrannsóknanna og á Dýra-
safninu og svo ætlaði jeg að skoða
fiskisýningu þá, er haldin var á ís-
landsbryggju í júlí og ágúst. Jeg
bjó lengstum í Rörhólmsgötu, við
vötnin, og var til húsa hjá gamalli
kunningjakonu, frk. Kristínu Jóhanns-
dóttur, er margir landar, er verið hafa
í Höfn, þekkja að öllu góðu. Jeg
hafði mikið erindi við dr. Jóhs.
Schmidt, forstöðumann fiskirannsókn-
anna á „Thor“ við ísland. Hann er
nú orðinn jafnframt forstöðumaður
hinnar frægu rannsóknastofnunar,
Carlsbergs Laboratorium, í Valby, og
eftirmaður Emils Chr. Hansens pró-
fessors, eins hins frægasta af síðari
tíma vísindamönnum Dana; hann
varð fyrstur til þess að „hreinrækta"
ölgerðarsveppinn og lagði með því
vísindalegan grundvöll undir alla öl-
gerð. Jeg var þar daglega við fiski-
rannsóknir hjá dr. Schmidt. Rann-
sóknahúsið er ekki stórt, en afar-
vandað og skrautlegt. A vegginn
andspænis aðaldyrunum er letrað, að
engri þeirri uppgötvun, er gerð verði
Jarðarför föður mín fer fram á morgun,
fimtudagmn 31. okt., kl. 12 á hádegi, frá heim-
ili minu, Tjarnargötu 22. — Hinn framliðni
áleit kransa oparfa.
Rvík 30. okt. 1912.
Klemens Jónsson.
Besta og óðýrasta
tóbaksverslun
bæjarins
viðnrkenna allir að sje verslun
c3éns SfroGCja.
Cöngustafir
nýkomnir.
Sturla Jónsson.
€nðurminningar
Páls Melsteðs og
físlarsaga
síra Jóns Magnússonar, fást í bóka-
verslun
Arinbj. STeinbjarnarsonar.
Tombölu
heldur Kvenfjeiag Fríkirkjusafn-
aðarins, laugardaginn 2. þ. m. og
sunnudaginn 3. s. m., í Bárubúð.
Nánar á götuauglýsingum.
brúkuð íssloiislc, alls-
konar borgar enginn
betur en
Helffi Helgason
(hjá Zimsen)
Reykjavik.
á þessari rannsóknastofnun og geti
haft þýðingu fyrir allan almenning,
megi halda Ieyndri. Bera þessi fyrir-
mæli ljósan vott um göfugmensku og
andlegt víðsýni stofnandans, gamla
Jakobsens.
Tómstundum mínum varði jeg til
þess að fara um borgina og skoða
ýmislegt af hinum ágætu söfnum, sem
Höfn er svo auðug af og fræg fyrir,
skemtigarðana eða mannhfið, eins og
það birtist á strætunum eða á hinum
stóru skemtistöðum borgarinnar. Jeg
var því allmikið á ferðinni um alla
borgina fram og aftur, en það eru
eigi litlar vegalengdir úr einum enda
borgarinnar í annan, en til allra lukku
þarf maður ekki að ganga það alt,
því að samgöngufærin eru nú í besta
lagi. Auðmennirnir geta þotið um
alt í „bílum", o: átómóbílum (bifreið-
um), en hinir verða að láta sjer nægja
rafmagns-sporvagnana. Þeir urðu
uppáhaldið mitt; þeir eru mjög ódýr-
ir, svo ódýrir, að það má fara syðst
úr Valby og út í Hellerup fyrir eina
10 aura; það er álíka langur vegur
og úr Reykjavík og suður f Hafnar-
fjörð (10 km), en það kostar lfka 10
aura að fara I kflómetra; og svo
þarf sjaldan að bíða lengur en 5' eftir
sporvagni á tíðfarnari leiðunum. Já,
hvenær ætli við fáum slík samgöngu-
tæki i þöfuðstað íslands? Það verð-
ur eflaust langt þangað til sporvagn-
ar geta borgað sig, þar sem það
bætist við, að fáar götur eru svo
breiðar, að þar sje pláss fyrir spor-
braut samhliða hinni vanalegu ak-
braut. En, bifreiðarnar? Ætli vjer
fáum aldrei að sjá þessi ágætu flutn-
ingatæki, sem annarstaðar eru að út-
rýma öllum hestavögnum meir og
meir, og farin að keppa við járn-
brautirnar? Jú. Það er satt, við
höfðum hjer um árið þá ánægju, að
sjá eina knúða fram með — manns-
afli, svona annað veifið! Og þar með
var full reynsla fengin fyrir því, að
bifreiðar ættu ekki við hjá ossl
Ur því að jeg mintist á samgöngu-
c/ iŒynning.
Allir leigjendur i tnínum eigin húsum hjer i
bœnum, og þeim húsum, sem jeg hef umsjón með,
eru ámintir um að loka fgrir vatnið á hverju
kvöldi í vetur, livernig sem veður er; vanti tgkla
að stopphönum, skaf/a jeg þá tafarlaust, þegar mjer
er gert aðvart um það.
Sje út af þessu brugðið, verða leigjendurnir
að hera allan kostnað, sem af því kann að leiða
að vatnsrör springi af völdum frosts.
Pessi tilkynning verður Idtin nœgja í eitt
skifti fyrir öll.
Reykjavlk 30. okt. 1912.
<3éfí. *3éfíanmsson.
Laugaveg 19.
tæki, þá á best við að geta þess um
leið, að jeg fekk eitt sinn tækifæri
til þess að sjá nýjasta samgöngu-
tækið, Jlugvjelina. Það var út á
Amagerfælled. Þar flaug danskur
maður, Birch að nafni, með einn far-
þega með sjer. Það var um kveld,
í inndælu veðri, logni og blíðu.
Hann flaug upp kippkorn frá þar
sem jeg stóð, og fór f stóran hring
langt út yfir Sund, yfir suðurodda
Amager, inn yfir borgina, og kom svo
niður á sama stað og hann fór upp.
Gekk það alt ágætlega og eins gengu
2 styttri ferðir, er hann fór upp aft-
ur. Hafði jeg hálfgerða löngun til
þess að fara með; þó stóð mjer
hinsvegar stuggur af hinum voðalega
þyt, sem skrúfublöðin gera. Heyrð-
ist hann langan veg burtu. Þó að
vel gengi í svonu góðu veðri, þá er
ekki víst, að eins vel hefði gAigið í
hvössu og svipóttu veðri og eflaust
eiga flugvjelarnar enn langt í land,
til þess að þær verði færar í flest-
an „sjó". Þessi vjel var „mónoplan"
og alls ekki ósvipuð stórum fugli,
eða öllu heldur sumum skordýrum,
þegar hún var komin í fjarska. Þó
að vjelin flygi vel, þá flugu svölurn-
ar litlu þar yfir engin óneitanlega
miklu betur, en samt fanst mjer að
nú hefði jeg sjeð nokkuð sem var
merkilegt. — Birch þessi kvæntist
meðan jeg var í Höfn og fór brúð-
kaupsferð á flugvjehnni og mundi ef
til vill hafa látið gefa sig í hjóna-
band í loftinu, ef einhver prestur
hefði vilja hætta sjer svo hátt frá
jörð, því að konuefnið var orðin vön
þessum loftförum með honum, og í
annað skifti flaug hann með tvo
menn með sjer (annar þeirra var son-
ur Valdemars prins). (Frh.).
fl ÉÍl
Læknahjeruð. 9. þ. m. var Horna-
fjarðarlæknishjerað veitt Hinrik Er-
lendssyni, settum lækni þær, og sama
dag Rangárvallahjerað veitt Guðm.
Guðfinssyni, áður lækni í Axarfjarðar*
hjeraði.
Dannebrogsmaðnr varð Tómas
Guðbrandsson hreppstjóri í Auðs-
holti i Biskupstungum 9. þ. m.
Vetrarfrost eru nú komin síðustu
dagana. í gær var alhvítt af snjó í
Eyjafirði. Hjer syðra hefur verið
gott veður undanfarið, en nokkuð
svalt í gær og í dag.
fram á morgun frá heimili hans, húsi
Kl. Jónssonar landritara.
Lýðskólinn í Bergst.str. 3 var
settur síðastl. laugardag. Forstöðu-
maður skólans er nú hr. Brynle^fur
Tobfasson.
Nýr prófessor. Sæmundur Bjarn-
hjeðinsson læknir er nýlega útnefndur
prófessor með metorðum í 5. flokki
nr. 8 í metorðaskránni.
»Glímufjel. Ármann« byrjar æf-
ingar sínar í kvöld í Baruhúsinu kl. 9.
Þá er tækifæri fyrir unga menn til
þess að ganga í fjelagið.
Ileiöurspeningur fyrir björg-
un írá druknun ’nefur nýlega
verið veittur Hafliða Snæbjarnarsyni
ráðsmanni á Stað á Reykjanesi, syni
Snæbjarnar hreppstjóra Kristjánsson-
ar í Hergilsey.
Reykj avík.
Jarðarför frú Sigþrúðar Pjeturs-
son fór fram f gær. Lfkfylgd var
mjög fjölmenn. Húskveðju flutti
Haraldur Níelsson prófessor, en í
dómkirkjunni flutti sjera Jóhann Þor-
kelsson ræðu.
Jarðarför Jóns Borgfirðings fer
Hafliði Snæbjöi’nsson.
Sumarið 1911, 31. júlf, voru piltar
frá Stað að leika sjer að því að
sundrfða út í hólma, sem er í sjónum
þar fram undan, um 60 faðma frá
landi. Út gekk ferðin vel. £n á
leiðinni til lands aftur varð hestur,
sem Karl Guðmundsson reið, óró-
legur og fór að synda í hring; mun
hafa flækt fót í marhálmi. Komst
hesturinn ekki til lands pg druknaði
þar. En Karl var ósyndur, og synti
þá Hafliði til hans og bjargaði hon-
um. Þetta var um 18 faðma frá
landi, og þótti mjög rösklega gert.
ytörianépel tekin.
í símskeyti, sem „Vísir" fjekk frá
Skotlandi í dag og hefur leyft Lögr.
að birta, segir:
Ákftfleg orusta hefur verið háð
við Adríanópel og er borgin tekin
af sambandsþjóðunum. Mannfall
ógurlegt.
Tyrkir mjög að þrotum komnir.
Fjalla-Eyvindur, i
5
leikrit f 5 þáttum, eftir Jóhann •
Sigurjónsson, fæst hjá öllum fl
ísl. bóksölum. Verð 2 kr.