Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 11.03.1914, Blaðsíða 3

Lögrétta - 11.03.1914, Blaðsíða 3
L0GRJETTA 49 Aðalfundur LÖGRJETTU (lilwtaf j ela gsins) verður haldinn í Bárubúð (uppi) fóstudaginn 20. þ. iu., kl. 5 síðdegis. Reikningar fram lagðir, stjórn kosin o. s. frv., og borin upp tillaga nm breyting á fjelagslögunum. St jórnin. Framhalds-aðalfundur h/f »Völundur« verður haldinn laugardagin 14. þ. m. kl. 7 e. m. í húsi K. F. U. M. Samkvæmt 4. gr. laga um aðflutning á áfengi 30. júlí 1909, til- kynnist hjer með öllum þeim, sem heimild hafa til áfengisflutnings frá útlöndum, samkv. 2. gr. nefndra laga, að þeir verða sjálfir að sækja áfengispantanir sínar til undirritaðs, eða láta aðra sækja þær, og borga um leið allan áfallinn kostnað. Sömu lög ákveða, að sje aðflutts áfengis ekki vitjað til umsjón- armanns áfengiskaupa innan 12 mánaða frá tilkynningu umsjónar- manns áfengiskaupa, er áfengið með umbúðum eign landsjóðs. Allan ógreiddan kostnað, sem leitt hefir af aðflutningnum, má þá taka lögtaki hjá þeim, sem áfengið hefur pantað, samkv. lögum 16. desbr. 1885. Reykjavík 6. mars 1914. JTón Á. Kgilsson (umsjónarmaður áfengiskaupa). verið gott. Það má Ilka ganga út frá því sem vísu, að allir söfnuðir landsins hafi þráð það, að fá að minnast H. P. með sjerstakri, hátíðlegri guðsþjónustu; um það ber glöggan vott hin almenna og innilega þátt-taka, sem sýnd hefur verið í guðsþjónustugjörðum þeim hin- um mörgU, sem til minningar H. P. hafa haldnar verið hjer 1 Reykjavík og nágrenninu nú á föstunni. Það hefur komið hjer berlega 1 ljós, hve H. P. og Passíusálmar hans eru hjartfólgnir mönnum, ekki að eins hinum eldri, heldur einnig hinum yngri. Aðsóknin að kirkjunum og samkomuhúsunum til minningar-guðsþjónustu-gjörðanna hefur verið afar-mikil, eins og á stórhátíðum; hver blettur á gólfi og loftsvölum verið þakinn sitjandi og standandi fólki, og þó oft orðið tjöldi frá að hverfa, sem ekki gat fengið rúm. Og það hefur verið áhrifa-mikil sjón, að sjá menn hundruðum saman unga og gamla með Passíusálmana í höndunum taka þátt í söngnum með klökkum hjörtum. Og minningar-ræður prestanna hafa mjög verið í því formi, að fljetta inn f þær ýms vers Passfusálmanna, láta perlur þeirra fá að skína í ýmiskonar umgjörð- um, eins og sjá má af þeim 3 ræðu- pörtum, sem birtir eru í 5. tölublaði »Nýs Kirkjublaðs«. Til sálmasöngs voru hafðir eingöngu kaflar til og frá úr Passíusálmunum og úr sálminum: »Alt eins og blómstrið eina«. Hr. Sigfús Einarsson, organisti dóm- kirkjunnar, bjó til nýtt hljóðfæralag og ljek það á organ dómkirkjunnar við upphaf guðsþjónustunnar. Við hádegis-guðsþjónustuna í dóm- kirkjunni messaði sra Bjarni Jónsson dómkirkjupr. Byrgt var fyrir glugga f kórnum og þar kveykt á mörgum Ijós- um; óvenjulega mikið af ljósum haft á altarinu. Messan fór fram á venjulegan hátt. Var fyrst sungið: »Kom þú sál kristin hjer«, þá: »Hafðu Jesú mig 1 minni« og »Vfst ertu Jesús kongur klár«. Eftir að prestur hafði beðið bæn á stól og lesið guðspjall dágsins, var sungið: »Son Guðs ertu með sanni« og stóð allur söfnuðurinn á meðan. Á eftir minningarræðunni var sungið: »Gef þú að móðurmálið mitt«. Því næst bað presturinn bæn, þakkaði Guði fyrir æfi- starf og áhrif H. P., bað fyrir þjóð vorri og kirkju landsins. Þá voru sungin 4 sfðustu versin úr sálminum: »Alt eins og blómstrið eina«, og að lokinni tón- bæn og blessun frá altari var sungið: »Láttu Guðs hönd þig leiða hjer«. Við síðdegis-guðsþjónustuna messaði sra Jóhann Þorkelsson dómkirkjupr. og voru eingöngu sungnir Hallgríms-sálmar. Á sama tfma messaði sra Ólafur Ólafs- son frfkirkjuprestur í Fríkirkjunni hjer f bænum, en hádegismessu flutti hann f hinni nýbygðu Frfkirkju í Hafnarfirði. Sami prestur hefur einnig haldið minn- ingar-guðsþjónustu á geðveikra-spítalan- um á Kleppi. Sra Haraldur Nfelsson, prófessor, hjelt minningar-guðsþjónustu sama sunnudag kl. 12 á hádegi á holdsveikra-spítalanum 1 Laugarnesi. í húsi K. F. U. M. var um morgun- inn kl. 10 haldin minningar-guðsþjónusta í sunnudagaskólanum. Voru sungnir Passíusálmar og fræddi Þorvaldur Guð- mundsson verslunarmaður börnin um H. P.; sjerstaklega sagði hann þeim margar og fröðlegar og fagrar smá- sögur um hann. í drengja-deildunum f F. U. M. talaði Páll Guðmundsson, stúdent, margt fróðlegt og uppbyggilegt um H. P., sálma hans og lífsstörf. Og kl. 8*/« um kveldið var síðan afar-Qöl- menn minningar-guðsþjónusta í K. F. U. M. Þar talaði sra Jóhann dómk.pr. um æfi H. P. og sra Bjarni dómk.pr. um, hvernig H. P. hefði sungið um krossinn. Sra Bjarni dómkirkjupr. hefur haldið minningar-guðsþjónustur f Hafnarfirði, hæði f K. F. U. M. og K. F. U. K.; svo og í kvennaskólanum hjer í bænum og f barnaskólanum á Seltjarnarnesi og loks f hegningarhúsinu. í barnaskóla Reykjavíkur hefur bæði Sigurður Jónsson barnaskólakennari og fleiri kennarar þar frætt börnin um lffs- starf og sálma Hallgríms. Og í unglinga- stúkum bæjarins hafa sömu fræðslu veitt Þorvaldur Guðmundsson, fyrnefndur, og Ingibjörg Sigurðardóttir, kenslukona. Hjálpræðisherinn heíur einnig haft minningar-guðsþjónustu, og bauð til hennar mjög mörgu gömlu fólki. Á sama tíma sem síðdegis-guðsþjón- usturnar voru bæði f dómkirkjunni og fríkirkjunni, sunnudaginn í föstuinngang, flutti Árni Pálsson, sagnfræðingur, einkar- fróðlegan fyrirlestur í stóra sal Iðnaðar- manna-hússins. Þannig voru á 4 stöðum í einu, þegar K. F. U. M. er talið með, haldnar minningar-samkomur um H. P. í troðfullum stærstu samkomu-húsum bæjarins. Hafi menn ekki vitað það áður, þá hefur það orðið augljóst nú við þessar minningar-guðsþjónustur, að sra Hall- grímur Pjetursson og sálmarnir hans eiga stöðuglega besta rúmið f hjört- um íslendinga. Margt hefur amað að mörgum á liðnum tímum og amar enn í landi voru, og margir ágætir menn hafa komið fram tilaðbæta; Ijettmargar byrðar, kipt mörgu í betra lag og grætt mörg lfkamlegu og verslegu sárin. En ætíð er það svo, að »sárast brennur hjartað«, en enginn fslenskur læknir hefur kunnað betur að nota læknis- meðöl kristindómsins en sra Hallgrfmur Pjetursson handa brennandi hjörtum. — Þau læknis-meðul geta aldrei dofnað og lækna stöðugt þann dag í dag, því að þarfirnar hafa verið, eru og verða jafnan hinar sömu. Fyrir því er það, að hluttakan f þakklætis-minningunum um sra Hallgrím Pjetursson getur verið svo almenn og innileg. II. J. Hafnarf)ardar-funduriiiit. Nafnlaus Hafnfirðingur andar fúlt til mín í ísafold í dag út af fundi þeim, sem jeg hjelt þar nýlega um veðdeildarlögin og fjárhags- ástandið yfirleitt. Þessi húsbónda- sleikja fer visvitandi með ósann- indi, enda blöskrar þeim körlum ekki að vinna slík verk. Hann segir, að tillaga mín hafi verið borðlögð. — Ó nei, því fór fjarri. Jeg óskaði eftir, að hún væri borin upp að loknum umræðum, en þá fóru sumir að ókyrrast í sætum sinum t. d. B. Kr. og annar maður honum mjög vikaliðugur, og til þess að afstýra þvi, að mín tillaga yrði sam- þykt, lásu þeir upp aðra, sem B. Kr. hefur hugsað en annar skritað. Hún innihjelt eitthvað um »óþokka árásir« og var yfir höfuð sett saman af kjarnyrðum þeirra kumpána. En nú vand- aðist málið, þvi þegar tillögurnar skyldu berast upp, var þvi mót- mælt af einum fundarmanni að allir þeir, sem jeg hafði boðið á fundinn, fengju að greiða atkvæði, en því haldið fram, að aðeins kjósendur hefðu rjett til þess. Jeg og fundarstjóri urðum sam- mála um, að sundurgreining þessi gæti ekki átt sjer stað á fundi, sem alment væri boðaður, og eftir allmikið þjark um þetta kom sú tillaga fram, að hvorug tillagan væri borin upp og engin ályktun tekin, og marðist hún fram með fáum atkvæðum, því fundurinn mun hafa álitið sig með henni sviftan rjetti í þessu tilfelli. Jeg tel þetta sigur fyrir minn málstað, þar sem mótstöðumenn mínir eftir rækilegan undirbún- ing unnu til að eyðileggja sína tillögu einungis af ótta fyrir því, að mín yrði samþykt. Eða ætli þeir hefðu ekki haldið sinni íram, ef þeim hefði þótt það árenni- legt? En þetta kallar Hafnfirð- ingurinn að borðleggja tillögu. Loks ber hann fram þá ósk, að aðrir þeir staðir landsins, sem jeg kynni að halda fundi á um frestið brnðkaupinu þangað til þjer haflð fenglð tilboð frá Köbenhavns Möbelmagasin, Tlf. 7997. POUL RASMUSSEN. Tlf. 7997 Vestervold 8 (Ny Rosenborg). Stærsta húsgagnaverslun Danmerkur. Chr. VIII. húsgBgn frá 400 kr. Dagstofuhúsg. mjög fallcg. Borðstofu — úr eik . . Svefnherb. — úr birki, lakk. lS21tr. Dagstofuhúsg., pól. mah.. Borðstofu — úr eik . . Svefnherb.. pól. mah. . [1000 tr. Ætið 300 teg. húsgagna fyrirliggjandi. veðdeildarlögin, tækju mjer eins og Hafnfirðingar gerðu. Jeg vil þakka þessi vinmæli, þvi Hafn- firðingar tóku mjer í alla staði vel og sýndu mjer sem ræðu- manni, að þrátt fyrir einveldi þingmanns síns og hans pilta, kunnu þeir að haga sjer á mannfundum. Jeg vil því í einu sem öllu þakka þeim gestrisni þá og lipurð, sem þeir sýndu mjer, og einmitt þess vegna langar mig til að hafa tal af þeim aftur áður langir tímar liða. Rvík 7. mars 1914. Jóh. Jóhannesson. Þlngmenskuframboð. Á þingmálafundi í Hafnarfirði í fyrra kvöldbauð hr. MagnúsTh. Blön- dalh sig fram til þings fyrir Gull- br,- og Kjósarsýslu, svo að fram- bjóðendur þar verða 4. Er sagt, að hann hafi gert það fyrir til- mæli ýmsra kjósenda og muni hann hafa þar mikið fylgi. Stórbrnnt í KJiöfn. Þaðan er símað 8. þ. m. að »Cirkus«- leikhúsið hafi brunnið. „ísafold44 í villu. Af síð- ustu ísaf. er svo að sjá sem hún telji báða þingmenn Skagfirðinga flokksmenn sína, þá Ólaf Briem og Jósef Björnsson. En á þing- málafundi, sem nýlega var hald- inn á Sauðárkróki, lýstu þeir báðir yfir, að þeir yrðu á þingi stuðningsmennnúverandistjórnar. Einnig telur hún sjer Sigurð prófast Gunnarsson í Stykkis- hólmi, en sjálfur telur hann sig utanflokkamann og hefur jafn- framt framboði sínu lýst yfir, að hann vilji alls ekki fylla þann flokk, sem koma vilji núv. stjórn frá. Frí Ijallatiéi tl Iskiiik DalalæknÍ8hjerað er 17. febr. veitt Áma Amasyni, settum lækni þar. Lansn írá embætti hefur Bjami Jensson læknir í Síðuhjeraði fengið frá 1. júlí 1914 vegna heilsubrests og með eftirlaunum. »Ingólfnr« Thoreijel. varð fyrir slysi slðastl, föstudag nalægt Húsa- vfk nyðra. Vjelin bilaði svo, að bið varð á ferðinni um stund. Var símað til „Helga kongs“, sem þá lá á Dýrafirði, og hann beðinn að koma til hjálpar. En þegar til kom, gátu skipsmenn á „Ingólfi“ gert við vjelina til bráðabirgða og komist til Akureyrar. Þaðan var símað til út- landa eftir stykki þvf, sem bilað hafði í vjelinni, og bíður skipið þess þar. En .Helgi kongur" fór erind- isleysu til Húsavíkur og kom þang- að á sunnud. Harðindi og snjóþyngsli eru nú um alt Norðurland og Vesturland. í Húnavatnsýslu og Dalasýslu sagð- ur óvenjulega mikill snjór. Hjer syðra er snjór yfir alt, en ekki djúp- ur. Þó haglftið bæði hjer og aust- an fjalls. Faxaflóabáturinn „Ingólfur“ fór fyrir nokkrum dögum með fóð- urmjel til Búða á Snæfellsnesi, og í gær fór hann hlaðinn fóðurmjeli til Stokkseyrar. En í morgun var sagt að austan, að hann hefði engu getað skipað þar upp enn vegna ókyrðar í sjó. Um síðastliðna helgi var lagís á Stykkishólmshöfn, svo að „Sterling“, sem þar var þá, komst ekki inn að brySRjunm. og varð að setja bæði nunn og vörur annarstaðar í land. Nielsen »Sterlings«-8kipstjóri fjekk að gjöf fra Stykkishólmsbúum nú, er hann var þar f síðasta sinn með „Sterling", vandaðan silfurbikar. Afli er nú sagður góður hjer suð- ur með nesjunum. Eins f Ólafsvfk, þegar á sjó gefur. Bíldudalsverslun hefur fyrv. versl- unarstjóri þar Hannes B. Stephensen tekið á leigu af Miljónafjel. fyrst um sinn, ásamt 4 þilskipum. Landshankaútbúið á ísaflrði. Þorv. Jonsson læknir, sem veitt hef- ur því forstöðu frá því að það komst á fót, hefur nú fengið lausn frá starfinu frá 1. maí þ. á. Laus prcstaköll. 1. Bieiðabóls- staður f Vesturhopi t Húnav.prófasts- dæmi, B'eiðabólsstaðar- og Vfðidals- tungu sóknir. Heimatekjur: I. eftir- gjald eftir prestssetrið með hjáleig- um kr. 225 OO, 2. ítak kr. 4,00, 3. prestsmata kr. 51,00; samt. kr. 280,00. Lan er á. til húsbyggingar, með láns- kjnrum eftir lögum nr. 30 1907, og var upphaflega, 1898. 4000 kr, en þegar breytt var 1909. kr 2714 29 2. Kolfreyjustaður f Suðurmúlapró- fastsdæmi, Kolfreyjustaðar- og Búða- sóknir, er kirkja verður reist á Búð- um í Faskrúðsfirði. Heimatekjur: 1. eftirgjald eftir prestssetrið með hlunn indum og hjáleigum kr. 496,66, 2. lóðargjöld kr. 61,00; samt. kr. 557,66. Lán er á, til húskaupa, tekið ur lands- sjóði 1904, kr. 2700, er endurgreið- ist með 135 kr. árlega f 20 ár. Prestaköllin veitast frá fardögum 1914. Umsóknarfrestur er til 8. apríl 1914. Úr Axarfirði er skrifað 14. febr.: „ . . . Nú er versta tfð, fannfergi og jarðbönn, svo að jeg held, ef þessi harðindi haldast, að það væri ekki vanþörf á að stjómin hefði vak- andi auga á því, að byrgja þessar útkjalkasveitir upp með fóðurforða áður en hafísinn lokar böfnunum, til að afstýra fjárfelli. . . . “ Lárus i Banka-Bjarnar- llölnu. Þeir hafa sagt það alt til þessa, stuðningsmenn L. H. B. nú við kosningarnar, sem Heima- sljórnarmenn hafa veríð, að með honum mundi bjóða sig fram annar maður úr þvi liði. Þetta hefur hann án efa látið i veðri vaka við þá, til þess að dylja þá sem lengst makksins við B. Kr. dunóur í „cFram„ verður lialdinn í Goodtemplara- húsinn næstk. laugard. 14. þ. m. kl. 81/2 e. h. Jón Magnússon og Jón Þorláks- son tala. WGT Kjósendur utanfjelags eru velkomnir á fundinn meðan hús- rúm leyfir. og Sjálfstæðismenn. En nú er það kunnugt orðið, að enginn býður sig þaðan fram með hon- um. Og ástæðan er sú, að hann vill reyna að sýna lit á, að borga fylgið, sem hann á að fá frá Banka-Bjarnar-líðinu, með þvi að láta »sína menn« kjósa með Sjálfstæðismönnum. »Jeg læt mína karla kjósa Sigurð«, er haft eftir honum, þegar hann er að semja við Sjálfst.manna-smalana. Skilja þeir ekki enn, Heimastj.- mennirnir, sem með L. fóru úr »Fram« í haust, hvert ferðinni var heitið með þá? Reykjavík. í yfirkjörstjórn hjer í bænum við alþingiskosningarnar 11. apríl næstk. hefur bæjarsljórnin kosið þá Eggert Briem skrifstofustj. og Sighv. Bjarnason bankastj. Til Ameríku fóru með »Ster- ling« i gærkvöld Jón og Ragn- heiður Gunnarsson frá Winnipeg og dóttir þeirra, en þau hafa dvalið hjer heima frá því í ágúst siðastl. sumar. Einnig fór til Ameriku i gær Daniel Hjálmsson vegaverkstjóri, i kynnisför til síra Pjeturs bróð- ur sins, sem býr í Alberta-fylki, vestur undir Klettafjöllum, og mun það ætlun Daniels, að koma heim aftur eftir eins árs dvöl vestra, eða svo. JMatth. Þórðarson útgerðarraað- ur fór til Englands i gærkvöld til þess að fá þar smíðaðan botn- vörpung, sem verður eigri hans og fleiri manna hjer. — Útgerð- arstöðina i Sandgerði hefur Matt- hías nú selt Lofti Loftssyni frá Akranesi fyrir 70 þús. kr. »Fálkinn« kom frá Khöfn til strandvarnanna siðastl. sunnudag. Jarðarför frk. Kristínar Arason fór fram á föstud. Fimm bekkir barnaskólans fylgdu í skrúðgöngu. Hafði skólastjóri og kennarar skólans sjeð um útbúnaðinn. Síra Jóh. Þorkelsson flutti ræðuna, en kvæði var sungið við húskveðj- una eftir Guðm. Guðmundsson skáld. Tunglrayrkvi verður næstu nótt, frá kl. 1,42’ til kl. 4,44’ og nær yfir 9/io hluta af þvermáli tunglsins. Þetta er eini tunglmyrkvinn, sem hjeðan er sýnilegur á þessu ári. Næsta blað á langardag.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.