Lögrétta

Eksemplar

Lögrétta - 22.04.1914, Side 2

Lögrétta - 22.04.1914, Side 2
80 L0GRJETTA = BETRI GJAFIR = verða börnum ekki gefnar en bækur þær, sem hjer eru taldar: Dýramyndir, kr. 1,50; Hans og Grjeta, 1,50; Öskubuska, 1,50; För Gullivers til putalands, 0,75; Ferðir Miinchhausens baróns, 0,75; Sagan af Tuma þumli, 0,75; Þrautir Heraklesar, 0,75. (Hver þeirra fjögra síðasttöldu með um 40 myndum). Hrói höttur, 0,85; Engilbörnin, 0,25. — Bækur þessar fást hjá öllum bóksölum á íslandi. Spyrjið eftir þessum bókum og fáið að sjá þær. Bókaverslun Slgf. Eymundssonar, Rvík. Lögrjetta kemur út á hverjucn mið vikudegi og auk pnss aukablöð við og við, minst 80 blöð als á ári. Verð: 4 kr. árg. á fslandi, erlendis 5 kr. Gjalddagi 1. júli. En þurfamönnum hjer á landi hefur stórum fækkað. Þeir voru 1871: 7,3°/o af þjóðinni. — — 1881: 4,4% - — — — 1891: 4,7% - — — — 1902: 3,i°/o - — — — 1910: 2,6% - — í Englandi og Wales voru þurfa- menn 1900—1908 að meðaltali 2,5°/o og fátækraframfærið 7 kr. 27 au. á hvern landsmanna á ári — miklu meira en hjer á landi. Árið 1901 voru fátækraútgjöldin hjer á landi 2 kr. 30 au. á mann, í Svíþjóð 2 kr. 90 au. á mann, í Dan- mörku 3 kr. 20 au. á mann. Hann segir að hjer sje aldrei sníkt á að- komumenn, hvorki í Rvík eða ann- arstaðar. Því trúi jeg vel. En svo bætir hann því við, að við munum líklega vera of mjúkir og vægir við fátasklingana, ekki þrýsta þeim til vinnu eins og skyldi. Og það er dá- lítið til í því. Fatækrastjórnin hjer er víða í ólagi, vanrækt að útvega vinnufærum þurfalingum vinnu — ekki síst í höfuðstaðnum. En þá er að líta á hitt ólagið, sem víða ber á í öðrum löndum, að láta aumingj- ana svelta. Ekki langar mig til að sjá hjer á götunum aðra eins vesa- linga og þá, sem jeg hef sjeð á göt- unum í Lundúnum — og jafnvel í Berlín. 8. Þá talar hann um landbúnað- inn, bls. 69—76. Segir, að búnað- arlöggjöfin sje mestöll úrelt (frá 1280, d: Jónsbók) og búskaparlagið forn- aldarlegt. Segir, að búskaparlagið hafi jafnvel verið betra f fornöld en nú, meira gert að vatnsveitingum, hyggilegri heyásetningo. s. frv. Finnur að þvf, að karlmenn sitji iðjulausir f sveitum á vetrum og kvenfólk vinni of Iftið úr ullinni, ávítar bændur fyrir það, að brenna sauðataðinu o. s. frv. Þó nefnir hann (á bls. 72), að árin 1893 —1910 hafi verið varið 6 milj. kr. til jarðabóta1) og minnist á bún- aðarfjelagið En hann veit ekkert um alla okkar nýju búnaðarlöggjöf. Hann veit ekki, að Þorvaldur Thor- oddsen hefur fyrir löngu kveðið nið- ur þá gömlu hjegilju, að gullaldar- bændurnir hafi staðið sig betur, en við í hörðum vetrum. Það er eins og hann sjái ekki, að á sfðasta manns- aldri hefur verið unnið meira að jarðabótnm en nokkru sinni áður síðan land bygðist, að bændur hafa nú miklu færra vinnufólk en fyrrum, en koma þó miklu meiru í verk. Landbúnaðurinn er á greiðum fram- faravegi, þó margt fari enn í miklu ólagi. Hann lastar fólksstrauminn úr sveitunum í kaupstaðina, rjett eins og við íslendingar sjeum einir í þeirri fordæmingu, — en hún er víða er* lendis verri en hjer. Hann segir, að það sje skrftið að sjá okkar mið- aldabúskap — núna á þessari gufu- vjelaöld. Da liegt der Hund be- graben: fulikomið skilningsleysi á því, að stórfeldar ræktunarumbætur og fólksfjölgun í okkar ágætu land- sveitum er óhugsandi, ógerleg, með- an landið er járnbrautalaust. Hvern- ig mundi fara fyrir þýskum bænd- um, ef öllum járnbrautum þar væri lokað, og hvernig var búskapurinn þar víða áður en járnbrautirnar komuf Fyr verður t. d. naumast komist hjá þvf hjer sumstaðar að brenna sauðatað- inu. Vöruflutningar bænda eru svo afskaplega kostnaðarsamir, að á þeim erfiðleikum stranda allar stórstfgar búnaðarframfarir í höfuðbygðum lands- ius. Yfir höfuð er allur þessi kafli f bókinni ein sjónhverfing, og ekki nema hálfsögð sagan, t. d. ekki eitt orð um smjörbúin og sláturfje- lögin, tvö merkustu framfarasporin á sfðari árum. Á bls. 73 metur hann allan búpeninginn á 14,934,000 kr., en á bls. 84 er hann hrapaður niður í 9V2 miljón kr. 9. Því næst koma stuttir kaflar um fiskveiðar, verslun og iðnað (bls. 76—81). Þar er talsvert hrafl af 1) Það er nú reyndar dálítið vafasam- ur slumpareikningur — eftir Indriða Ein- arsson. tölurn úr landshagsskýrslunum; jeg hef ekki borið þær tölur saman við skýrslurnar. Hann segir að þilskip hafi farið að tíðkast eftir miðja 19. öld og nú líka gufuskip og bifbátar, gerir samt enga grein fyrir þvf, að skipastóll þjóðarinnar var mjög fátæklegur alla tíð fram yfir 1890, en hefur síðan vaxið hröðum skrefum, og er nú orð- inn miklu veigameiri en segir f bókinni. Sjávarútvegurinn hefur gerbreytst, ný stjett komist á fót að heita má, sannefnd sjó- mannastjett, og hún svo efnileg, að enskir útgerðarmenn sækjast nú fast eftir íslenskum skipstjórum og há- setum á skip sín (togara). Okkur íslendingum hefur lengi verið brugð. ið um leti og dugleysi og það með rjettu. En höfundurinn er Þjóðverji; hann veit úr sögu sinnar þjóðar, að heill landslýður getur stundum mann- að sig upp á ótrúlega stuttum tíma, eins og vaknað af dvala, eða risið úr löngu roti; íslendingar hafa und- anfarna áratugi verið að smá-rísa úr rotinu, rakna við eftir margra alda dvala; en það hefur honum dulist; hann hefur reitt sig um of á bækur um þjóðina eins og hún var, en gáð of lítið að þjóðinni sjálfri, eins og hún er. Hann segir að „útlendir verkmeistarar og vinnumenn", sem vinna að höfninni hjer í Rvfk, muni fjölga bæjarbúum að mun (bls. 62) Þar er einn útlendur verkmeistari og annar maður til útlendur, en vinnufólkið er alt fslenskt. Hann lastar hnignun heimilisiðnaðar, — veit ekki að hún stafar af aukinni atvinuu f öðrum greinum og kauphækkun verkafólks. En atvinnuauki er þó ekki afturför. Hann lýsir verslunarframförunum og lofar þær. En hvorki þar nje ann- arstaðar nefnir hann þau mein, sem þjóðin sjálf hefur samvisku af, óskilvísi, eyðslusemi og fyrir- hyggjuleysi. Það eru meinin, sem hafa verið henni mest til baga f öilu hennar framfarastriti að und- anförnu, mein, sem allir hugsandi menn hjer á landi hafa kannast við — og standa því til bóta, og eru nú á góðum batavegi, — eigi síður hjer en f Japan (þar hafa líka orðið miklar og snöggar verslunarfram- arir, en misjafnt orð farið af versl- unarstjettinni). 10. Um samgöngubætur er ýmis- legt sagt (bls. 81—84), vegi, póst* ferðir, skipagöngur og sfma, og mjög vel og rjett að orði homist, að þar „hafi meira á unnist sfðan 1874 en á þeim 1000 árum, sem þá voru liðin frá upphafi íslandsbygðar". En ummæli höf. (bls. 81—2) um vegina verða held jeg naumast skilin öðru- vísi en svo, að hjer sjeu engir ak- færir vegir nema milli Rvíkur og Þingvalla (tæpar 50 rastir) og engir vagnflutningar annarstaðar. Landsverkfræðingurinn segir mjer, að hjer sjeu nú komnir akvegir sam- tals um 500 rastir á lengd, og hafi síðan 1875 verið varið um 3 milj. kr. í vegi og brýr, langmest á síð- ari áratugunum. Á aðalakbrautunum er nú orðið lítið um klyfjaflutning, mestalt flutt á vögnum (Þingvallavegur, Árnessýslu- vegur, Keflavfkurvegur, Fagradals- braut). Og árið, sem leið, hófust bíl- ferðir úr Rvfk að Þingvöllum, aust- ur að Rangá og suður í Keflavík — og gengu ágætlega. Á bls. 83 er talað um „flösku- brjef* Vestmanneyinga, sagt, að þeir hafi það úrræði á vetrum, — en hins ekki getið, að þangað er nú kom- inn sfmi, og flöskurnar úr sögunni. Annars kemur umtalið um sfmana strax á eftir flöskunum, og þar er jeg hræddur um, að símastjóranum okkar Iftist ekki á blikuna. Höfund- urinn nefnir endastöðvarnar, Reykja- vík og Seyðisfjörð, síðan „aðrar merlrar sfmastöðvar" og byrjar þar á — Engeg\ 11. Þá fer höfundurinn að tala um efni og ástæður þjóðarinnar (bls. 84—5). Og hverju eiga nú landar hans að trúal Á bls. 59—60 hefur hann upþ orðrjett gamla vitnisburð- inn um íslendinga — að þeir sjeu gátaðir og mentaðir og þjóðræknir, en framtakslausir, áhyggjufullir, þrek- litlir, þollausir, latir, agalausir, klauf- ar til vinnu o. s. frv. — gáfaðir ónytj ■ ungar og bókmentaðir ráðleysingjar. En þegar hingað er komið, á bls. 84, segir hann: „Umbæturnar á at- vinnuvegum og samgöngutækjum og fólksfjölgunin er að þakka heilbrigðri framfara- og frelsisbaráttu, og má segja, að árangurinn sje undramikill, þegar þess er gætt, að ísland er fá- tækt land". Þetta kemur ekki rjett vel heim hvað við annað. Fyrri um- mælin eru upptugga úr gömlum bókum, en þau sfðari eru ekki fjarri sanni. Þjóðareignina metur hann á 40 miljónir kr., og má á sama standa, því að eignareikningar þjóðanna eru aldrei annað en tilgátur. En 40 milj. er þó langtof fátækleg tilgáta. Þá segir hann, að þjóðin eigi álit- legan varasjóð, en hjer sjeu engar „ríkisskuldir". Það er nú verri sag- an. Hann veit ekki, að landsjóður hefur fengið 5 lán sfðan 1908, sam- tals 3,250,000 kr., og á nú ógoldið at þeim skuldum um 2,850,000 kr. (Því fje hefur mestöllu verið varið í arðbær fyrirtæki, síma, til að kaupa fsl. verðbrjef, og gera höfn í Rvík) Það er enginn velgjörning- ur að þegja yfir skuldunum okkar. Arðbcerar eignir landsjóðs nema margfalt meiru en skuldir hans Fjár- hagur landsins er enn í góðu lagi l) Og það fer að þurfa athugunar þetta sffelda skraf um fátækt íslands. Höf- undurinn segist aldrei hafa rekist á betlara hjer á landi; hann hefur eftir einum landa sfnum, merkum manni, að honum hafi á ferðum um ísland sffeldlega virst svo, sem íslenskir bændur byggju við betri kjör en bændur vfða á Þýskalandi. Það er ekki alt gull, sem glóir í stóru löndunum. 12 Síðustu 2 kaflar bókarinnar fjalla um menningu þjóðarinnar (bls. 86—113), híbýli, klæðnað, þjóðsiði, þjóðtrú, skemtanir, íþróttir; tungu og trúbrögð, uppeldi og mentamál, bókagerð og vfsindi, skáldskap og listaverk. En það er ekki til að hugsa, að leiðrjetta það alt f einni blaðagrein, enda aðrir færari til þess en jeg. Nefni því bara örfá atriði. A bls. 94 er getið um glimu (die nationale Ringkunst) — aðeins nefnd á nafn. En svo kemur löng þula um „jpað islenska ,Dschiu-Dschitsu"'l sem á að hafa vakið mikla eftirtekt á Olymps-leikmótinu í Lundúnum 1908, og mörgum orðum farið um þá gömlu fþrótt — auðsjeð að þar er að ræða um nýju „sjálfsvornina* hans Jóhannesar Jósefssonar, sem hann hefur sjálfur fundið uppl Þetta er leiðinleg villa. Verst er mjer við þýska oflofið um skáldin okkar2); þau fá nærri 9 síður í ekki lengri bók, en þessi er. Mjer er einlægt raun að því, að heyra þá Bjarna og Jónas kallaða Goethe og Schiller íslendinga. Það er illa gert, rjett eins og þegar tekið var upp á því eigi alls fyrir löngu að kalla Maurice Maeterlinck „Shakespeare Belgja*, það ætlaði að ríða orðstír Maeterlincks að fullu. En eigi að ræða um íslensk ljóða- skáld á 19. öld, þá er þetta engin frammistaða, að nefna ekki Kristján Jónsson og Bólu-Hjálmar. Oflofið um íslensk leikrit (á bls. 102) er sár- grætilegt. Ummælin um íslenskar skáldsögur (bls. 107—110) eru langt of löng (f þessari bók). „Ofurepli“ er leiðinleg prentvilla á bls. 109. Og ekki hefur höf. fremur en aðrir reynt að ráða þá gátu, hvað því muni valda, að fslensk nútíðarskáld geta samið ágætar stuttsögur, en virðist öllum vera ofurefli að semja langsögur. Þá er söngurinn — sagt að tvf- söngurinn sje enn á lífi og hafi „fram á þennan dag" staðið í dyr- unum fyrir „þeim nýju samhljómum*. En því er nú ver: tvísöngurinn er löngu dauður víðast hvar og nú 1) Öll skattgjöld hjer á landi (bæði í landssjóð og sveitasjóði) hafa að undan- förnu verið litlu meiri á mann en her- kostnaður Þjóðverja einn um sig (útgjöld þar á mann til hers og flota). 2) Þessi ámæli eiga ekki við „Islándische Dichter der Neuzeit", eftir I. C. Poestion (Leipzig 1897), sem er meira en nafnið bendir til, 0: ítarleg saga íslenskra bók- menta á síðari öldum, mikið og merkilegt rit. G. B. hvergi á lffi mjer vitanlega, nema í miðri Húnavatnssýslu, og þar víst f andarslitrunum. Þeir eru teljandi nú- Iifandi menn, sem hafa alist upp í bernsku við „gamla sönginn" hrein- an og ómengaðan, og jeg er sjálfur einn af þeim fáu mönnum. 13. Mjer láðist að geta þess, að á bls. 92 er langtof lauslega minst á ólaf Davíðsson, ekki svo mikið sem að rit hans sjeu nefnd greinilega á nafn. íslenska þjóðlagasafnið hans Bjarna Þorsteinssonar sje jeg hvergi nefnt — aðra eins merkisbók — og ekki íslandssögu Boga Melsteds eða sagnarit Jóns sagnfræðings Jónssonar. Við höfum bara bölvun af þessu dá- læti sumra Þjóðverja á skáldunum okkar og öllu oflofinu um þau, en athugaleysi á ýmsu öðru í nútíðar bókmentum okkar, sem er miklu merkara en skáldskapurinn. Það er t. d. hörmuleg meðferð á fslenskum nútíðarbókmentum, að gera þær að umtalsefni án þess að geta um annað eins meistaraverk og biblíuþýðingu Haraldar prófessors Níelssonar (gamla testamentið). 14. JeS þykist vita að próf. Her- mann eigi einhverja góða vini hjer á landi. Á þá sný jeg sökinni. Það er auðsætt að sumir Þjóðverjar, t. d. próf. Hermann og próf. Heusler, skilja miklu meir í fslensku þjóðinni en náfrændurnir flestir á Norðurlöndum. En það er óhugsandi að þeir geti samið svona „íslandslýsingar" leið- beiningarlaust. Og þeir eiga alt gott skilið af okkur. Ef próf. Hermann semur aðra útgáfu af þessari bók, þá tel jeg það skyldu vina hans hjer, að veita honum aðstoð til þess að gera hana betur úr garði. Við íslendingar og fósturjörð okk- ar erum harla ólílcir Þjóðverjum og þeirra „Vaterland*. Það má því undarlegt þykja, að ágætismaðurinn Konr. Maurer og nokkrir aðrir merkir Þjóðverjar hafa fengið svo miklar mætur á fslensku þjóðinni og menningarsögu hennar. En lfklega þarf ekki langt að leita að ráðningunni á þeirri gátu. Próf. Hermann segir glögt og skil- ur til fulls, að það var œttrœknin, sem bjargaði íslensku þjóðerni úr heljargreipum hungurs og ánauðar á liðnum öldum. Þá segir hann (bls. 58): „So ging ihnen auch das kost- barste Gut nicht verloren, das ein Volk haben kann, das National- gefúhla ') Og það er ekki um að villast; þessi látlausu orð „hrærir hann munni af munargrunni*; þau eru sprottin upp af hans þýsku hjartarótum; þetta hugarþel er há- þgskt — en það er lika al-islenskt. Ættjarðarást Þjóðverja og íslendinga er alveg sama eðlis, ástríðufull og afbrýðissöm. Þar er ráðningin á vinfengisgátunni. Engar aðrar ger- manskar kynkvfslir munu eiga þjóð- ernisalúð sinni eins mikið að þakka eins og þessar tvær: stórþjóðin þýska og smáþjóðin íslenska. Das Nation• algefiihl — þjóðernisalúðin blossaði upp f Þjóðverjum þegarþeir lágu sárirí valnum á vígvöllum Napoleons mikla. Hún reisti þá á fætur, safnaði þeim undir eitt merki, þýskt þjóð- ernismerki, og hefur sfðan á einu aldar-bili gert þá að mikilli og voldugri heimsþjóð; það vita þeir og finna. Og hún — okkar þjóð- ernisalúð — hefur haldið lffinu og menningunni f okkur íslendingum, alla tíð, frá blautu barnsbeini; það vitum við og finnum. Hamingja þjóðanna fer ekki eftir höfðatölunni. Þess vegna, af þessum ástæðum, er það engin furða, þó að sumir Þjóð- verjar hafi miklar mætur á íslensku þjóðerni, og miklu Ijósari skilning á 1) Leturbreytinguna hef jeg gert. G.B, rjettmætum sjálfstæðiskröfum íslend- inga en flestir aðrir frændur okkar, þó náskyldari sjeu sumir hverjir. Próf. Hermann er einn af þessum glöggskygnu Þjóðverjum og alúðlegu. Það lýsir sjer á margan hátt í bók hans. Þess vegna mun hann manna fúsastur til að leiðrjetta og laga þar sem þess þarf, svo að bókin verði það, sem jeg veit að hann hefur ætl- ast til — rjettorð Og sannfróðleg Og þess vegna er hjer leidd athygli að ýmsu því, sem ekki má óhaggað standa. G. Björnsson. SýDingiD hans Asgríms. í síðasta tbl. Lögr. skrifar Magnús A. Árnason greinarkorn um nýaf- staðna málverkasýningu Ásgríms Jóns- sonar. Mikill hluti greinarinnar er ekki annað en fimbulfamb um ýmislegt, sem lítið eða ekkert kemur málinu við, og hitt, sem sýninguna snertir, er svo fult af vitleysum og mótsögn- um, að furðu gegnir að nokkur mað- ur skuli hafa látið slfkt frá sjer fara. Eftir að hafa skýrt frá því, að Ás- grímur hafi í sumar, sem leið, hætt við vatnslitina og snúið sjer að olíu- litunum, segir Magnús: „Dómur minn á tilbreyting þessari er: aftur- för“; en litlu sfðar í greininni fer hann svo að nefna nokkrar myndir sama efnis og kemst þá að þeirri niðurstöðu, að olíumyndin sje best. En sú samkvæmni! Margt fleira mætti nefna. — „Dómur* Magnúsar er rangur. Það sanna er, að Ásgr. hefur aldrei tekið jafnstórt stökk áfram sem nú, stærra stökk en hann mundi hafa tekið, ef hann hefði hald* ið áfram með vatnslitina. Þegar Magnús svo fer að hrósa sumum myndunum, þá lftur helst út fyrir, að það sje gert af handahófi, að minsta kosti nefnir hann ekki sumar af allra bestu myndunum á nafn. Slfkt hið sama kemur í Ijós, þegar hann fer að lasta sumar mynd- irnar. Það býst víst enginn við, að allar myndir á slíkri sýningu sjeu jafngóðar, en bágt á jeg með að trúa þvf, að margir af þeim, sem á sýninguna komu, taki undir með hon- um, þegar hann segir: „og hefði jeg heldur viljað þær ósjeðar hafa*. Fimbulfambið um raddlausa söng- menn, litblinda málara og skáld, sem „bulla*, sem ekki kemur sýningu Ás- grfms mikið við, nenni jeg ekki að minnast á að þessu sinni, enda ganga öfgarnar og vitleysarnar þar svo fram úr hófi, að hver maður hlýtur eftir þeim að taka, þó ekki sje á þær bent. Eitt er þó rjett, sem Magnús segir í niðurlagi greinar sinnar: „Það er mjög vítaverður sá háttur blaðanna hjerna, að hæla mönnum fyrir það, sem þeir ekki eiga skilið* — eins og Lögr. gerði 1. okt. síðastl. í tilefni af sýningu þeirri, sem Magnús þá hafði í Iðnskólanum. En hitt er þó hálfu verra, þegar blöðin legfa unglingum, sem ekki virðast hafa öðru að tjalda en taum- lausu sjálfsáliti, grunnhygni ög van- þekkingu, að dœma verk þeirra manna, sem eru himinhátt yfir þá hafnir, eins og Lögr. gerði á mið- vikudaginn var. Pór. B. Porláksson. Nýju veðdeildarlögiu. Hr. Jóh Jóhannesson sendi nokkru fyrir kosningarnar öllum þingmannaefnun- um, sem buðu sig fram hjer í bæn- um, fundarályktun þá um nýju veð- dcildarlögin, sem samþykt var á borgarafundi hjer f bænuiu u. jan.

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.