Lögrétta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Lögrétta - 22.04.1914, Qupperneq 4

Lögrétta - 22.04.1914, Qupperneq 4
82 L0GRJETTA Grölfdúkar, Gölfdnkar! yíir 5 sinálestir, allar tegundir, allar breiddir. Einnig stigaleggingar margar og gólfteppi, nýkomið til cJónafans Porsíeinssonar. 50 aura gefur Klæðaverlísmiðjnn „Iðunn“ ly r*ii* pundið af Kvítri, g-óöri og vel þurri haustull. Verð á annari ull þar eítir*. y. MDNSTED^ danska smjörliki er bcsf um tegunfeirnar „OrrV’wTip-'To/p^^^ls” «f-6uc Sm]örliki6 fce^f frd: Offo Mönsteci ‘Xf Kaitpmarmahöfn 05 Áró$um i öanmörku. 55 Sðrlanðets Ulðvareþbrik, Kristiansanð S. Jforge, modtager Uld og- Fillep til Spinding og Vævning af Dame og Herrestoffer i enestaaende stort og godt Udvalg. Norges nyeste og mest moderne Anlæg. Kommissionerer með gode Anbefalinger antages. God Fortjeneste. Um vjelgæslu. Fyrir nokkrum árum var varla j nokkur hjerlendur maður, sem kunni \ nokkuð, er að vjelgæslu laut. En brátt , skildist mönnum hve slíkt var afar- | óþægilegt fyrir þá menn, er gerðu út j gufubáta hjer, því þeir þurftu að fá útlenda menn til þessa starfa, er oft var ýmsum erfiðleikum bundið. Þá var það að nokkrir hjerlendir menn fóru að kynna sjer þann starfa, bæði utanlands og líka innanlands, á út- lendum gufubátum, er stunduðu fisk- veiðar hjer við land, og má segja, að þeim hafi tekist það allvel, því flestir þeirra stunda nú vjelgæslu, og leysa það starf vel af hendi, að þeirra manna dómi, er vit hafa á, og eiga þeir menn þakkir skyldar fyrir að verða brautryðjendur í þeirri atvinnugrein hjer. Árið 1909 mynd- uðu svo þessir menn fjelag með sjer, þá 9 alls, í því augnamiði, að vinna að því eftir mætti að íslenskir vjela- menn stæðu ekki að baki öðrum. En slíkt var afarörðugt, því hjer voru fá skiiyrði fyrir hendi, er til þess þurfti að veita mönnum fræðslu í þeim efnum, enda lítill áhugi al- ment fyrir því starfi. Svo voru ekki nein lög til í landinu, er að vjelgæslu lutu. Varð því að fara eftir dönsk- um lögum, er var þó lítt mögulegt að öllu Ieyti, enda hafði stjórnar- ráð íslands heimild til að veita und- þágu frá þeim lögum. Kom svo þeim mönnum, sem þá stunduðu vjelgæslu hjer, til hugar, að nauðsynlegt væri að hafa lög í landinum um vjelgæslu, og bjuggu því til í samráði við sjer færari menn uppkast að lögum, er svo var lagt fyrir stjórn og þing. Það komst þó ekki í framkvæmd fyr en 1911. Alitu menn, að með þessu væri stigið spor í menningar- og sjálfstæðis-áttina, og um leið girt fyrir að að þessu starfi kæmust nema sæmilega hæfir menn. Verður slíkt að álítast ekki síður nauðsyn- legt fyrir útgerðarfjelögin en hvern einstakan mann, því allir, sem nokk- uð þekkja til og vilja með sannsýni tala um það mál, viðurkenna, að góður vjelstjóri sje eitt aðalskilyrði fyrir góðu gengi hvers gufuskips. Og það var og er skoðun þeirra manna, sem þessum lögum komu í framkvæmd, að vinna bæri að þvf, að gera íslenska vjelamenn hæfa í stöðu sína, en ekki hitt, að gera útgerðar- mönnum erfitt fyrir, eins og heyrst hefur. Haustið 1912 var svo stofnuð vjelfræðisdeild við Stýrimanna- skólann, og var fenginn útlendur kennari þangað. Tóku þátt í náminu 8 piltar, er svo tóku próf við skólann. 1913 taka 9 piltar þátt í náminu og taka væntanlega próf í vor. Er því ekki hægt að segja, að menn hafi ekki áhuga á þessu starfi nú eða að þeim fjölgi ekki, eftir ástæðum, sem að því halla sjer. í vjelstjórafjelaginu hjer í Reykjavík eru nú yfir 50 fjelags- menn, er flestir stunda vjelgæslu á sjó, og eru það allmargir menn í samanburði við skipafjölda hjer, og þó ótaldir nokkrir, sem ekki eru meðlimir fjelagsins, en eru samt á skipum hjeðan. Ennfremur veit jeg af nokkrum hjer, sem hafa í hyggju að fara af landi burt, ef þeir fá ekki atvinnu við vjelgæslu hjer á landi. Það virðist því ekki á miklum rökum bygt hjá útgerðarmönnum, er farið hafa þess á leit við stjórnar- ráðið, að veita undanþágu frá vjel- stjóralögunum, til þess að geta haft á skipum sínum menn, sem ekki hafa rjettindi til þessa starfa. Vjel- stjóralögin heimila útlendum vjel- stjórum vinnu hjer, meðan vöntun er á íslenskum, og verður því ekki talið að lögin setji nein neyðarkjör, þar sem allir vita að hægt er að fá hæfari menn til þessa starfa frá út- löndum en hjer er alment kostur á, En með undanþágunni er drepinn niður allur áhugi manna á því að verða nýtir menn í þessari stöðu. Því hver maður getur sjeð, að ekki fara piltar að fara á skóla og verk- stofur til að læra þetta, ef þeir hafa svo ekkert gagn af því, en aðrir, sem ekkert hafa lært, eru teknir fram yfir þá. Ef ekki þarf annað en að komast í kynni við einhvern útgerðarmann, og hann fær svo und- anþágu í stjórnarráðinu, er að lík- indum veitist skilyrðalítið, og svo er maðurinn orðinn vjelstjóri, og máske bægir öðrum frá, sem rjett- indi hefur. Þeim vjelstjórum, sem rjettindi hafa fengið, er með þessu órjett gert, því eftir að þessi undan- þága er í gildi gengin, eru lærdóms- skírteini þeirra lítils virði. Þó mun niðurjöfnunarnefnd Reykjavfkur ekki hafa tekið það til greina enn þá, að atvinnu vjelstjóra væri hætta búin. Fróðlegt væri að vita, hvað útgerð- armenn, í samráði við stjórnarráðið, hefðu í hyggju að gera við vjel- fræðisdeild og kennara, þegar slfk lög eru út komin sem þessi, og væri æskilegt að heyra eittkvað frá þeim um það atriði. Þvf virðist reyndar svarað með undanþágunni á þann hátt, að þeir vilji ekki hafa nein vjel- stjóralögílandinu, áliti starfið ekkiþess vert, að menn þurfi að fá neina sjer- staka þekkingu á því. Jeg á bágt með að trúa því, að hið háa stjórn- arráð líti svo á, allra síst eftir fram- komu þingsjns 1911 í þvf máli, er virtist líta á það með sannsýni og sama skilningi og hinn mentaði heimur alment gerir, sbr. þingt. 1911. Því síður er trúlegt, að útgerðar- menn líti svo á þetta mál, að ekki sje þörf á vel hæfum mönnum á skip þeirra, en þá fá þeir aldrei með því, sem þeir hafa nú komið í fram- kvæmd, sem sje undanþágunni frá vjelstjóralögununm. Það er sorglegt til þess að vita, að þegar lands- menn eru að vakna til meövitundar um það, að nauðsynlegt sje að taka sem fyrst allar siglingar í sínar hend- ur, þá skuli annað eins og þetta koma fyrir. Reyndar mun hjer átt við, að veita undanþágu aðeins fyrir fiskiskip. En má jeg spyrja: Er nokkur sanngirni í því, að hafa minni öryggi á fiskiskipum en öðr- um skipum yfirleitt, eða má íslenska þjóðin við því,? Jeg held ekki. En það er eins og það sje gömul trú eða vani, sem ríki hjá sumum, og það jafnvel hjá sjómönnunum sjálf- um, að ekki þurfi að hugsa eins um útbúnað á fiskikipum og til dæmis fólksflutningaskipum. En þar sem nú öll okkar stærri fiskiskip sigla með milli 20—30 manns hvert, þá er það óneitanlega dýr farmur, ekki síst fyrir jafn-fámenna þjóð og við erum. Það væri því æskilegt, að menn sæju sóma sinn og landsins og Ijetu ekki þessa undanþágu vera lengur f gildi en til næsta þings, og þing og stjórn sæju sjer fært að auka svo kenslu við vjelfræðisdeild Stýrimanna- skólans að menn gætu tekið þar fullnaðarpróf í vjelfræði, svo þeir þyrftu ekki að leita til útlanda í þeim efnum, þó skipum hjer fjölgi og þau stækki. Því slíkt er algerð- ur óþarfi. Og að þessu mun vjel- stjóraíjelagt Reykjavíkur vinna, enda þó að rjetti fjelagsmanna sje hallað að þessu sinni. Jeg vil því beina þeirri spurningu til allra þeirra manna, sem þetta mál varðar, hvort ekki væri rjett að vinna í samein- einingu í þessu máli, í stað þess að vekja sundrung og ósamkomulag. Leyfi jeg mjer að fullyrða, að vjel- stjórafjelag Reykjavíkur er reiðubú- ið til að vinnn að góðu samkomu- lagi og heill gufuskipaútvegsins í heild sinni. Margt fleira væri þörf að minnast á viðvíkjandi vjelgæslu, en jeg læt hjer staðar numið að þessu sinni, en vil að eins benda á, hvað fráleit sú skoðun er, sem einn borgari þessa bæjar og útgerðar- maður ljet í ljósi við eigi alls fyrir löngu. Hans álit var, að vjelstjóra- lögin hefðu komið of fljótt í fram- kvæmd. En einmitt af því að þau komu of seint í framkvæmd, hefur hann, og ef til vill fleiri, menn í sinni þjónustu, sem æskilegt hefði verið að væru færari um starf sitt en raun er á. Vjelstjóralögin komu því of seint, en ekki of snemma. Sigurjón Kristjánsson. Málaferli. Bankastjórar Lands- bankans hafa óskað þess getið í Lögr., að þeir ætli að höfða mál gegn blaðinu út af greinum í 51. og cTunóur i „%&ramv rerður haldinn í Goodtemplara- húsinu næstk. laugardag kl. 8xji síðdegis. Fundarefní: 1. Kosningarnar og horfurnar. 2. Lagabreytingar. 52. tbl. f. á., er út komu 5. og 12. nóv., með fyrirsögnum .Gjaldkera- málið dæmt í yfirdómi" og „Gjald- keramállð". — Einnig, að þeir ætli að höfða mál gegn P. Torfasyni út af grein hans í 21. tbl. „Lögr.“, er út kom 15. þ. m., með fyrirsögninni „Björn að baki Kára". Lögr. tekur því með mestu ró, þótt þeir fari í mál við hana, og hún hyggur, að eins sje því varið um hr. P. J. Torfason. En ekki væri það ólíklegt, að hann gerði blaði þeirra sömu skil. Lögrjetta biður velvirðingar á því, að inn í nokkurn hluta af upp- lagi þessa tbl. hafði verið tekin að- send grein, sem ósamboðin er blað- inu. Nafn höf. stóð undir greininni, svo að hann bar ábyrgð á henni að lögum, en þess vegna hafði ritstj. ekki athugað greinina nógu vandlega. Blaðið, með þessari grein í, hafði verið borið út um bæinn, en ekki sent víðar, og verður þetta, úr því, sem komið er, ekki lagfært með öðru en því, að senda öllum kaupendum blaðið, eins og það hjer kemur fyrir sjónir, svo að enginn þurfi að geyma þessa umræddu grein, þó hann vilji halda blaðinu saman. AusturríklsKeisari dáinu. Lát Frans Josephs Austurríkiskeis ara er símað frá Khöfn í gær. Sýslufundur Kjósarsýslu var 15.—16. þ. m. Af gerðum hans skal drepið á þetta (eftir minni); Eigandi verksm. Alafoss hafði farið fram á, að sýslan gengi í ábyrgð fyrir 16,000 kr. veðláni til umbóta á eigninni, er hann þegar hefur gert, svo hún nú er talin 3/5 meira virði, en þá er hann tók við henni, eða 19,400 kr. þá, 48,040 kr. nú. Meiri hl. sn. samþ. að ábyrgjast 13,600 kr. 1. veðrjettarlán, er hann fengi út á eignina, og skyldi það skoðast sem breyting á kaupsamn. hans og afsals- brjefi, er ákvað að sýslan hefði 2. veð- rjett fyrir kaupverðinu (eftirstöðvar nú 11,400 kr.), næst eftir það, er hann kynni að geta fengið lánað gegn 1. veð- rjetti. Nú skyldi á 1. veðr. eigi hvíla hærra lán en þetta, uns það væri að fullu greitt. (I minni hl. voru snm. Kjósar, er eigi vildi fara hærra en 12,000 kr., og snm. Seltj., 11,000 kr.).-— Samkvæmt till. úr Kjós o. v. skorað á sveitarstjórnarvöld Árness. að koma í veg fyrir óreglu við fjárrjettahöld í Þing- vallasveit og notkun ólöglegrar rjettar þar (í Bolaklifi). — Úr sömu átt kom till. um, að nema úr gildi fyrir Kjósars. eða breyta hestakynbótareglug., er nú gildir. Nefnd: snm. Kjósar, Mosf. og oddv. — Sömu nefnd íalið að semja reglug. f. forðagæslum. Þeir samkv. till. hreppsnefnda ákv. 3 í Kjósarhr., einn í hverjum hinna. — Meðlag feðra með óskiig. börnum skyldi á fyrsta aldurs- skeiði þeirra vera kr. 60,00, lægst 35 kr. — I yfirkjörstj. f. Kjósars. kosinn Sigurður Kristjánsson skrifari (bróðir A. J. Johnsons í bankanum). Fyrir Gullbrs. er það Sigfús Bergmann. Mun hafa þótt, eins og nú standa sakir, best fara á' því, að þessir tveir römmust kjör- fylgismenn bankavaldsins f Hafnarfirði skipuðu yfirkjörstjórn hjer. (Það gæti einnig sparað Kjósars. alt að 12 kr.).— Ákveðið að fella úr tölu sýsluvega frá næsta nýári veginn milli Skotmannsmóa og Fossvogslækjar (þann kafla Hafnar- ijarðarvegarins, er í Kópavogslandi ligg- ur), en fje lagt til viðhalds fjallveginum yfir Svínaskarð, sem lítið þykir um hirt af þeim, sem hlut á að máli . . . Hitt flest venjul. mál, alls 26. B. B. Pappír «■ ritf æri er best að kaupa í Pappírsversl- nn Pór. B. forlúkssonar, Veltn- snndi 1. Ærince of *ffales Og c3fr. 3, hinar góðkunnu, egyptsku Cigarettur, eru nú komnar aftur í tóbaksverslun R. P. LEVI. „I9unnardúkar“ eru ódýrustu, haldbestu fatatauin. Það viðurkenna allir, sem reynt hafa. — Úr miklu að velja. QiAmnnnl Muniö eftir rúmtepp- ojoiiienn! unum og Dess. 322. CiríRur Cinarsson, Yfirdómslögmaður, Laugaweg 18 A, (uppi). Talsími 433. Flytur mál fyrir undirrjetti og yfir- dómi. Annast kaup og sölu fasteigna. Venjulega heima kl. 12—1 og 4—5 e. h. Oddur Glslason yflrrjettarmálaflutnlngsmaður, Lanfásveg 22. Venjul. heima kl. n—12 og 4—5 brúkuð íslensk alls- konar borgar enginn betur en Helfli Helgason (hjá Zimsen) Reykjavík. Vátryggið fyrir eldsvoða í General- Stofnsett 1885. — Varnarþing i Reykjavik. Sig. Thoroddsen. Sími 227. Umboð8menn óskast á Akranesi, Keflavik, Vík, Stykkishólmi, Ólafsvik. ynctýgjavinnustofa Baldvins Einarssonar, Laugaveg 67. Vönduð vinna og efni. Reynið og sannfærist. ézuám. cTfioroááson tæknir. Vonarstræti 12. Talsiml461. Helma kl. 1—3. Þekkið þjer „Gloria“? „Gloria" er stærsta og ódýrasta stórsöluhús á Norðurlöndum, sem selur »privat« mönnum milliliðalaust. Skrifið okkur, við sendum yður þá gefins og kostnaðarlaust stóra nýja myndaverðlistann okkar fyrir 1914, í honum er mörg þúsund munir af búshlutum, járnvörum, vefnaðar- vörum, hljóðfærum, úrum, pípum tó- baki og vindlum, reiðhjólum, skot- vopnum, glingurvörum, leðurvörum o. s. frv. Skrifið eftir verðlistanum og þjer munið áreiðanlega verða viðskifta- maður vor. Varehuset »Gloria« A/S Nörregade 51, Köbenhavn K. Þakkarávarp. Hjer með votta jeg öllum þeim, sem í veikindum mínum og mótlæti hafa rjett mjer sína örlátu hjálparhönd, bæði með peningagjöfum, hlýju vinarþeli og huggunarorðum, rnitt dýpsta hjartans þakklæti. Sjerstaklega vil jeg minnast á heimilis- fólkið hjer, Leikfjel. Vestm.eyja og kvenn- fjel. „Líkn", sem öll hafa rjett mjer sína örlátu hönd og á annan hátt veitt mjer hjálp og aðstoð. Alla mína velgerðamenn bið jeg for- sjónina að blessa og vera þeim næst, þeg- ar neyð þeirra er stærst. Kirkjubóli í Vestm.eyjum 14. mars 1914. Vilborg Jónsdóttir.

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.