Lögrétta

Útgáva

Lögrétta - 23.10.1915, Síða 2

Lögrétta - 23.10.1915, Síða 2
176 LÖGRJETTA LÖGRJETTA kemur út á hverjum mi8- vikudegi og auk þess aukablöð við og við, tr.inst 60 blöð alls á ári. Verð: 4 kr. árg. á Islandi, erlendis 5 kr. Gjalddagi 1. júlí. Enn um kmnniskdln Uesiðinga. Síöan Lögrjetta flutti grein frá mjer, um þennan fyrirhugaöa kvenna- skóla, hefur mjer í sama blaSi borist önnur grein, eftir prest, sjer Lárus, er fer þvi fram, aS skólinn sje best settur í F 1 a t e y. Þó sá staöur sje hóti betri en Ólafs- dalur til þess, þá eru samt svo margir annmarkar á því, að sá staöur er ekki heldur vel valinn fyrir skólann. Þetta er umflotin eyja, sem ekki hef- ur ööruvísi samgöngur við umheim- inn en yfir sjóinn, en hann (sjóinn) leggur þar oft í frostum svo ekki veröur komist aö fyrir ís, enda er ekki tíundi hluti þeirra gufuskipa- ferða, er liggja um Stykkishólm, sem koma þar við. Heldur ekki er þar s í m i, og það hefur einnig mikla þýðingu. Og ekki hefur gefand- anum sýnst, að nefna eyjuna til þess, sem hún þó sjálf er upprunnin úr og allur hennar auður stafaði frá. Enda mun sú forna frægð þeirrar eyjar, er þeir voru uppi, Br. Benidikt- sen, sjera Ó. Sívertsen, Eiríkur Kuld, Johnsen o. fl. — vera horfin. Mjer getur nú ekki persónulega verið neitt mikið í mun um það, hvar skóli þessi stendur. En það verð jeg að segja, að ætti jeg enn þá ungar dætur, sem jeg vildi menta, þá ljeti jeg þær fúslega fara á kvennaskóla, ef hann stæði í Stykkishólmi, en ekki, ef hann stæði „í fásinninu“ í Flatey. Því hvað er eiginlega sönn mentun? Hún er ekki innifalin — síst fyrir stúlkur — í því, að sökkva sjer niður i bóknám og vera svo eins og „álfur út úr hólnum“ í öllu praktísku i lif- inu. M e n t u n — sem við skýrum með danska orðinu „Dannelse“ — er marghliðaðri en það, að hanga alt af uppi yfir baldering og bóknámi, osta- gjörð eða útsaumi, það verður líka að læra kurteisissiði, fagra fram- göngu í öllu látbragði, hæversku i viðmóti, etc. Því segir útlendur máls- háttur: Segðu mjer hverja þú um- gengst og jeg skal segja þjer hvernig þú ert. í Stykkishólmi er meiri ment- unarblær á öllu en annarstaðar kring um Breiðafjörð, sem von er, því þar eru fjórar stórverslanir; þar býr sýslumaður, læknir, apótekari og fundahöld og fyrirlestrar eru þar oft. Og — þar er líka allmyndarlegt sjónleikahús! Jeg býst við að prest- arnir segi, að það sje alt tildur og hje- gómi einber, sem jeg fer með, er jeg nefni leikhús. En þá skal jeg segja þeim það, að einn merkur sagnfræð- ingur Dana kveður svo að orði um gamla Holberg þeirra, að hann hafi unnið þjóðinni sinni meira gagn með sjónleikunum, en allar prjedikanir prestanna. Þetta er líka rjett, því eng- iun hlutur vekur eins fegurðartilfinn- ingu og mannúð en flettir um leið ofan af allri hræsni og varmensku, — eins og góðir sjónleikir. Og hvað er stúlkunum nauðsynlegra, en að sjá fyrir sjer alla prúðmensku er styður að því, að þeim hlotnist gott hlut- skifti, sem fyrir þeim er aðalákvörð- un lífsins. Sýslunefndirnar ráða nú úr því, h v a r flest mælir með því, að skólinn skuli standa, hvort heldur í Ólafsdal, Flatey, Búðardal kannske, eða — í Stykkishólmi. Staddur í Reykjavík, lo. okt. 1915. S t. D a n í e 1 s so n. Strídid. Viðureignin á Balkan. Khöfn 21. okt.: „Þjóðverjar og Búlgarar sækja fram í Serbíu og hafa nálgast járnbrautarlínuna milli Nisch og Saloniki.“ Nisch er norðar en i miðju landi, og þar hefur stjórn Serba setið nú í ófriðnum vegna þess, hve Belgrad er illa sett, norður á landamærum. Nú, þegar herflutningar eru byrjaðir ncrður eftir frá Saloniki, er það auð- vitað mikils vert, að hafa vald yfir járnbrautinni til Nisch, og þvi leggja nú Búlgarir og miðveldaherinn kapp Myndin hjer sýnir vígvöll á vesturherstöðvunum. — Þó undarlegt megi virðast, þeim er vígvellina skoð- ar, þá sjást þar færri og færri hermeitn eftir því sem nær kemur framlínu heranna. Þar eru hermennirnir duldir í göngum neðanjarðar, og liggja þau göng í samhliða röðum, hver aftur af öðrum, og þannig er línan óslit- in alla leið norðan frá hafi og suður að takmörkum Svisslands. Milli ganganna eru þvergangar, sem mynda leiðir frá einum langgöngum til annara. Langgöngin eru kölluð hlaupgrafir. Framan við þær eru endalaus- ar gaddavírsgirðingar. Úr öllu þessu 'er órðið slíkt' völundarhús, að ógerningur virðist fyrir óvinalið, að kom- ast í gegn um það. Umbúnaður er eins báðumegin, og er litið er yfir framlínur heranna beggja, er þar hvergi mann að sjá, heldur endalausar gaddavírsgirðitígar og jarðgöng. Milli herlínanna, Þjóðverja öðru megin og bandamanna hins vegar, er dálitið autt svæði, land, sem enginn getur helgað sjer. Hætti nokkur maður sjer út á það svæði i björtu, þá er dauöinn vis. En frá fremstu hlaupgröfunum báðu megin er í sifellu grafið niðri í jörðinríi til þess að reyna að komast undir göng óvinanna og leggja þar sprengivjelar, sem síðar ei' kveykt í eftir þráðalagningum úr fjarska. Alt landið þarna er því sundur grafið, eins og eftir stórar rott- ur. En langt að heyrast fallbyssudunurnar frá ósýnilegum skotstöðvum, og stórskotin springa í lofti yfir hlaupgröfunum. En þar fyrir ofan svíta flugvjelarnar á sífeldum njósnum eftir skotstöðvunum og með vak- andi auga yfir öllu því, sem fram fer niðri i jarðgöngunum. Þannig er viðureignin mánuð eftir mánuð á vesturherstöðvunum. á að ná henni. Sagt hefur verið, í skeyti í „Frjettum“ frá 21. þ. m., að hjálparher bandamanna, er frá Sa- loniki kom, hafi sameinast her Serba. ítalir hafa nú einnig sagt Búlgurum stríð á hendur. Grikkir sitja hjá. En eftir því, sem fregnirnar segja, hafa þeir ekki leyft bandamönnum umferð um land sitt. Bandamenn tilkyntu stjórn Grikkja, að þeir settu her á land i Saloniki cg ætluðu að halda honum til liðs við Serba. Mintu Grikki um leið á banda- lag þeirra við Serba, og kváðust vegna þess vænta, að ráðstafanir sín- ar urn þetta mættu ekki mótspyrnu hjá Grikkjum. Þetta var áður en Venizelos fór frá völdum, og mót- mælti hann þessum aðförum, en þó aðeins að yfirskyni, að því er öðr- um fanst,,og engar frekari tilraunir gerði hann til þess að hindra áform bandamanna. Af þessum sökum gátu þeir konungur eigi lengur unnið sam- an, og fór þá Venizelos frá. En ekki hafa Grikkir að heldur eftir það reynt að hindra umferð bandamannahers- ins um landið með hervaldi. Þeir eru nú alveg eins settir og Belgar í upp- hafi ófriðarins, en þeir fara öfugt að við þá. Þeir verja ekki hlutleysí sitt með vopnum. Bandamenn hafa nú gert Grikkjum sömu kosti og Þjóð- verjar Belgum áður. Brotið er það sama, að eins öðru vísi við því snú- ist af þeim, sem fyrir verða. En Þjóð- verjar geta ekki láð Grikkjum fram- komu þeirra, af því að hún er hin sama, sem þeir sjálfir ætluðust áður til af Belgum, enda heyrist ekki held- ur getið um, að þeir telji jietta fjand- skaparvott frá Grikkjum. Bediers-málið. Eitt af þvi, sem pennastríð mikið hefur staðið um nú í ófriðnum, er hið svonefnda Bediers-mál. Franskur prófessor frægur fjekk til rannsóknar og umsagnar mikið af brjefum, er sagt var að fundist hefðu í vösum Jjýskra hermanna, sem handteknir voru af Frökkum í fyrra sumar og haust, sem leið. Prófessorinn gaf svo brjefin út og ritaði um þau, og sum jieirra voru sýnd í bók hans ljósmynd- uð. Markmiðið með útgáfunni var að sýna, að J)ýski herinn hefði komið fram með grimd í innrásinni í Frakk- land i fyrra. Risu miklar deilur út af brjefunum milli frakkneskra og þýskra rithöfunda og bárust þær deil- ur einnig út til annara þjóða. Var t. d. harðlega deilt um þetta efni síðastl. sumar í dönskum blöðum. Þjóðverj- ar og þeir, sem þeirra málstað tóku, sýndu fram á, að brjefin væru all- víða misskilin, og töldu þeir yfir höf- uð hlutdrægni koma fram í meðferð- inni á þeim, og sumir töldu brjefin jafnvel falsbrjef. Um þetta mál kom hjer út pjesi fyrir nokkru eftir Guð- brand Jónsson skjalaritara í Khöfn, skrifaður frá sjónarmiði Þjóðverja, til þess að sýna fram á ýmsar villur í riti Bediers og hnekkja gildi þess. En eins og Lögr. hefur margbent á, skyldu menn ekki leggja mikinn trún- að á sögur um grimdarverk frá stríð- inu, hvorugu megin frá, nje hampa þeim, j)ví margt af þeim reynist, j)eg- ar betur er gætt, meira og minna ósatt eða ýkt, og svo eru oft atvikin, sem til þeirra sagna liggja, hulin. Þjóð- irnar, sem hjer eigast við, standa svo hátt í menningu, að menn hljóta að lita svo á, að mannúð og menning sje hjer sameinuð hernaðinum að svo miklu leyti, sem unt er að samrýma það tvent. Kafbátarnir í Eystrasalti. Það lítur út fyrir að Englending- ar hafi nú fjölda kafbáta í Eystra- salti, og hafa Jreir sökt þar mörgum flutningaskipum fyrir Þjóðverjum. Þeir hafa nú tekið upp kafbátahern- aðinn, er Þjóðverjar eru að hætta honum. Áður hafa Þjóðverjar feng- ið mikið af vörum yfir Eystrasalt frá Svíþjóð, og jjað er jjetta, sem Englendingar vilja nú hindra. Við j)etta eykst auðvitað hættan á j)vi, að Norðurlönd lendi inn í ófriðnum. Nýjar bækur. Rit Sögufjelagsins. Þau eru nú nýkomin út fyrir yfir- standandi ár og eru j>essi: 1. Biskupasögur Jóns prófasts Hall- dórssonar, II. B., 5. h. Með jæssu hefti, sem er miklu stærra en hin fyrri og kostar í lausasölu kr. 3.50, er verlr- inu lokið. Heftinu fylgir titilblað á II B. með efnisyfirliti og formála eftir Hannes Þorsteinsson, og hefur hann sjeð um útgáfu Jæssa bindis, segir þar, en dr. Jón Þorkelsson um útgáfu I. bindis. Heftið byrjar á kafla úr líkræðu, er Árni prófastur Helga- son flutti við útför Geirs biskups Vídalíns í Reykjavikurdómkirkju 6. okt. 1823. Þar næst er æfisaga Bryn- jólfs biskups Sveinssonar, eftir sam- tíðarmann hans, Torfa prófast Jóns- son í Gaulverjabæ. Þessi æfisaga er 52 bls. og hefur H. Þ. ritað formála fyrir henni. Sagnfræðingum okkar hefur verið ókunnugt um tilveru hennar, ]>angað til nú nýlega, að Hannes Þorsteinsson rakst á handrit- ið í Landsbókasafninu, og hyggur hann það komið þangað skömmu eftir 1900 og af Vestfjörðum, en ;.f- komendur sjera Torfa áttu Núp í Dýrafirði og bjuggu j>ar. Æfisögttnni fylgir brot úr brjefi frá sjera Torfa um fráfall Brynjólfs biskups, og er brjefið skrifað i Skálholti 167S. Þá eru myndir ýmsra Hólabiskupa, 5 myndir af Guðbrandi Þorlákssyni, x af Gísla Magnússyni, 2 af Gísla Þor- lákssyni, 1 af Halldóri Brynjólfssyni, I af Sigurði Stefánssyni, 1 af Steini Jónssyni, 1 af Árna Þórarinssyni og 1 af Þorláki Skúlasyni, eftir útsaums- mynd. Þar næst er biskupatal, eftir Hannes Þorsteinsson, og loks langt nafnaregistur, sem á við bæði bindi Biskupasagnanna. Biskupasögur sjera Jóns Halldórs- sonar, með hinum langa viðbæti, sem þeim fylgja, eru mjög merkilegt sagnarit, og hafa þær verið að koma út frá þvi Sögufjelagið tók til starfa og þangað til nú. Verð 1. bindis er í lausasölu kr. 8.90, en verð 2. bindis kr. 8.50. 2. Æfisaga Jóns prófasts Stein- grímssonar, 3. hefti. Æfisögunni er þar með lokið, og er hún í heild sinni fróðleg bók og víða skemtileg. Hún er alls 320 bls. En nær helmingur jiessa síðasta heftis er viðbætir, og ])ar í ýmisleg skjöl, sem snerta Jón prest Steingrímsson, kvæði um hann dáinn, viðaukar við æfisöguna, eftir Steingrím biskup, brjef frá Jóni Steingrímssyni, langt kvæði eftir hann um Skaftáreldana o. m. fl.. Bókin er í heild 416 bls. og kostar kr. 6.50. 3. Alþingisbækur íslands, II. B., 1. h. (1582—1592). Heftir er 320 bls. í stóru broti og lausasöluverð kr. 6.40. 4. Búalög, um verðlag og allskon- ar venjur i viðskiftum og búskap á íslandi, 1. hefti. Þetta hefti er 80 bls. og lausasöluverð kr. 1.60. 5. Söguþættir eftir Gísla Konráðs- son, 1. og 2. hefti, búnir undir prent- un af dr. Jóni Þorkelssyni. Þessir sögujiættir eru gefnir út af Fjallkonu- útgáfunni og fengnir hjá henni handa Sögufjelaginu, og hefur Jieirra áður verið getið hjer í blaðinu. Verð hvers heftis er í lausasölu kr. 0.75. Eins og sjá má á þessari upptaln- ingu, er ]>að mikið, sem .Sögufjelag- ið lætur fjelagsmönnum sinum í tje af bókum á þessu ári. Lausasöluverö jæssara bóka er kr. 16.25, en tillag fjelagsmanna 5 krónur. Dagrúnir. heitir nýútkomin skáldsaga, á kostn- að Arinbj. Sveinbjarnarsonar, og eft- ir áður ójiektan höfund, sem nefnir sig Val. Hún er 75 bls. Ólesin er hún enn, eins og j>ær bækur aðrar, sem um er getiö hjer á undan, en ef til vill verður hennar nánar getið síðar. Höf. kvað vera ungur maður norð- lenskur, en meira veit Lögr. ekki um liann. Grundvöllurinn er Kristur, tiúmálahugleiðingar frá nýguðfræði- legu sjónarmiði, heitir nýútkomin bók eftir Jón prófessor Helgason. Fram- an við er mynd höfundarins. Útgef- andi er Guðm. Gamalíelsson bóksali. Bókin er 156 bls og er hún endur- prentun á greinum höfundarins, er út komu neðanmáls i ísafold fyrir eitthvað tveimur árum, og var j)á all- mikið um ])ær talað og ritað, en höf. segir í eftirmála, að mörgum hafi þótt erfitt að átta sig nægilega á mál- inu af lestri blaðagreina, er komu út á margra vikna fresti, og hafi því skorað á si£, að birta greinarnar að nýju í bókarformi.Ýmsar breyting- ar segist höf. hafa gert á greinunum, sem hann telur til bóta, svo sem stytt- ingar á ýmsum köflum, en innskot á öðrum stöðum, og hugleiðinguna um hinn kirkjulega friðþægingar- lærdóm kveðst hann að mestu hafa endursamið, enda hafi sá kafli áður valdið misskilningi svo mögnuðum, að hann kveðst hafa furðað sig á livi. En aðalstefna luigleiðinganna er gersamlega hin sama og upphaflega, segir hann, og kveðst hvergi víkja frá þiem skoðunum, sem hann hafi áður sett fram. Frjettir. Sextugsafmæli Mortens Hansens. I samsætinu, sem kennarafjelag Barna- skólalis hjelt hr. M. H. á sextugsaf- ntæli hans, 20. ji. m., talaði Sigurður Jónsson kennari fyrir minni hans, en kvæði var sungið eftir Hallgrím Jóns- son kennara. Heiðursgestinum var af- hent að gjöf mjög vandað málverk eftir Ásgr. Jónsson, af Höfn í Horna- firði. Skólanefnd bæjarstjórnarinn- ar færði honum að gjöf aðra mynd, stóra og vandaða, er sýnir Krist 12 ára meðal lærifeðranna í musterinu. Skólanefndin ætlaði að halda hr, M. H. opinbert samsæti, en hann baðst undan ]>ví. — Mynd af hr. M. H. er í nóvbr.bl. „Óðins“, sem er að eins ókomið út. Fyrsti vetrardagur er í dag. Liöna sumarið hefur verið mjög gott. Alt fram til þessa stöðug hlýindi. „Fram“-fundur, áður auglýstur, í kvöld. Sorglegt slys. 20. þ. m. vildi það ti! á hafnarbryggjunni í Hafnarfirði að vagn fór þar út af spori. Á honum sat 12 ára drengur, sem við jietta hrökk út af bryggjunni og druknaði. Drengurinn hjet Ingólfur Eyjólfsson, frá Langeyri vestan við Hafnarfjörð. Meðalalýsisbræðsla. Frú Marta Strand hefur fengið leyfi bæjarstjórn- arinnar til aö byggja bræðsluhús fyr- ir meðalalýsi við Sundlaugaveginn. L. H. Bjarnason próf., hefur verið ráðinn til þess að tína saman lög og reglugerðir, sem snerta Reykjavíkur- ; kaupstað. Á síðan að prenta þetta í einni heild. Fyrir söfnunina og próf- arkalestur greiðast 500 kr. Heimilisiðnaðarfjelag Reykjavík- ur fær úr bæjarsjóði Reýkjavíkur 200 kr. styrk, gegn j>ví, að veita 15 drengjum úr Barnaskóla Reykjavík- ur ókeypis kenslu. Guðbrandur Jónsson (dr. Jóns Þor- kelssonar) liggur veikur á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn. Heybruni. Á jiriðjudaginn brunnu í Kvíslaseli í Bæjarhreppi í Stranda- sýslu 30 hestar af töðu og 100 hestar af útheyi. Þetta var kúaheyforði bændanna er þar búa, Halldórs Jóns- sonar og Jóns Tómássonar, og skað- inn J>eim mjög tilfinnanlegur. Heyið stóð nokkuð frá bænum og mun hafa kviknað þannig í því, að neistaflug hefur borist i J>að úr reykháfnum á bænum, en vindur stóð þaðan á hey- ið. Þetta gerðist um hádag en þó varð engu bjargað. „Frjettir". Vátryggið fyrir eldsvoða í GENERAL. Stofnsett 1885. Varnarþing í Reykjavík. SIG. THORODDSEN. Sími 227. Umboðsm. óskast á Akranesi, Kefla- vík, Vík, Stykkishólmi. Ölafsvík. Prentsmiðjan Rún. )

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.