Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 29.12.1915, Blaðsíða 1

Lögrétta - 29.12.1915, Blaðsíða 1
Ritstjóri: ÞORST. GÍSLASON, Þingholtsstrzti 17. Talsími 178. LOGRJETTA AfgreiSslu- og innheimtum.: ÞÓR. B. ÞORLAKSSON, Veltusundi I. Talsími 359. Nr. 60 Reykjavík, 29, desember 1915, X. árg. Þessi mynd er frá Riga. ÞjóSverjai nær þvi umkringdu borgina síðastl. sumar, en samt hefur þeim ekki tekist enn aS ná henni, enda urSu þeir aS minka her sinn á þeim stöSvum, er þeir rjeðust með her suSur á Balkan- skagann. Framhluti myndarinnar er frá „gamla bænum“, sem svo er kall- aSur, og gnæfir þar upp dómkirkjuturninn, en á bakviS sjest á húsin í „nýja bænum“. Dómkirkjan er bygS 1204 og í henni er stærsta orgeliS, sem til er. En taliS er aS borgin Ríga sje grundvölluS 1201 af biskupinum Álberti af Livlandi. Hlutafjel. „VOLUNDUR“ Trjesmídaverksmidja — Timburverslun Reykj a vik hefur ávalt fyrirliggjandi mikiar birgðir af sænsku timbri (unnu og óunnu), vanalegar, strikaðar innihurðir af flestum stærtum og allskon- ar lista til húsbygginga. Bækur, innlendar og erlendar, pappír og alls- konar ritföng, kaupa allir í Bókaversli Slglúsar Eymundssonar. Lárus Fjeldsted, Y f irr jettar málaf ærslumaður. LÆKJARGATA 2. Venjulega heima kl. 4—7 síSd. Bókafregfn. Islandica. An annual relating to Ice- land and the Fiske Icelandic Col- lection in Cornell University Lib- rary. Vol. 8. An Icelandic Satire („Lof lýginnar“) written in the beginning of the 18. century by Þorleifur Halldór s’s’o n. Ed. vith an introduction and ap- pendix by Halldór Hermannsson. Ithaca, N. Y. 1915 (XIX+54 bls.). Þetta nýja bindi af Icelandica er ólíkt undanfarandi bindum safnsins aS því leyti, að það er ekki bókfræði- rit, heldur útgáfa á merkilegu eldra riti. Vonandi kemur fleira af sarria tægi. ÞaS er svo mikið óútgefiS af íslenskum ritum frá siSari öldum, að hjer er verkefni fyrir fjölda manna og í marga mannsaldra, og sumt af því, sem útgefið hefur veriS, þarf nauSsynlega aS gefa út aftur, af því aS útgáfurnar hefa veriS svo illa af hendi leystar. Þaianig eru allar þær útgáfur lítt hæfar til rannsókna á orS- myndun, sem ekki fylgja nákvæm- lega rithætti frumritsins, og sje hann vafasamur og þurfi aS ákveSast meS því aS bera saman mörg handrit, er þaS erfitt starf og ekki hverjum manni fært aS vinna slíkt svo vel fari. Þetta nýja rit H. Herm. er leyst af hendi meS sömu vandvirkni og samviskusemi og fyrri bindin af Ice- landica. Fyrst er fróSlegur formáli um æfi höfundarins, því næst kafli um lík rit sem hafa haft áhrif á hann og stutt lýsing a þvi, sem ein- kennir „Lof lýginnar". Þá kemur sjálfur texti ritsins, og aS lokum eru prentuS ýms brjef um og eftir Þor- leif Halldórsson, og nokkur latnesk kvæSi hans. „Lof lyginnar“ er all-merkilegt rit, aS því leyti, aS þaS sýnir einkennilega hliS á andlegu lífi íslenskra menta- manna í þá tíS. ÞaS er eins konar skólaæfing, stæling á hinu heims- fræga riti Erasmusar frá Rotterdam „Lof heimskunnar", en stendur því auSvitaS langt aS baki. En þegar á þaS er litiS, aS þaS er skrifaS af kornungum stúdent, sem ekki hafSi aSra mentun fengiS, en þá litlu, sem til var aS tjalda í Hólaskóla, eins og hann var þá, er ritiS í rauninni alveg undrunarvert, sýnir bæSi smekk og dómgreind höfundarins, er víSa fynd- iS, og gerir augljóst, aS hann hefur veriS mesti efnismaSur, og mikill skaSi íslenskum bókmentum, livaS hans naut skamt viS, því hann dó úr brjóstveiki 1713, um þaS bil þrítugur, og var þá nýorSinn skólameistari viS Hólaskóla. SamtíSamenn hans lærSir lúka einróma lofsorSi á hann, bæSi innlendir og útlendir. Einkum virS- ist hann hafa veriS vel aS sjer i stjörnufræSi og sögu hennar, og eru til nokkur latnesk smárit eftir hann, er aS þeim vísindum lúta. Efni ritsins er þetta: Lygin kemur fram sem persóna og heldur ræSu sjer til varnar og telur sjer alt til ágætis. Hún skýrir svo frá ætt sinni, aS hún sje dóttir Lúcifers og öfundarinnar, fædd í Paradís og þar hafi hún unniS sitt fyrsta afreksverk, aS ginna forfeSur mannkynsins til aS óhlýSnast boSi guSs — en eiginlega sje hún þó ekki sök í aS þau voru rekin þaSan — því að þaS hafi fyrst veriS gert, þegar þau ösnuSust til aS segja sannleikann. Hún bendir því næst á, aS þaS sem aSallega einkenni manninn frá dýr- unum sje þaS, aS hann kunni aS ljúga. Á lyginni sjeu öll vísindi meira eSa minn bygS, og einkum þó skáldskap- ur, enda sjeu skáldin sínir virktavinir, jafnvel guSfræSin sje mest öll bygS á gömlum uppspuna, engu síSur en heiSnin á sínum tíma, og þeir góSu menn, sem Biblían segir frá, hafi á- gætlega kunnaS aS ljúga, þegar þeim þótti þaS hentugt, og hún tilnefnir Abraham, Isak, Móses, DaviS kon- ung og Pál postula. ÞaS er fjarri þvi aS hún lasti þessa ágætismenn, en hún hrósar þeim fyrir visku og ráS- snild, og heldur því fram, aS dæmi þeirra sýni, hvaS lygin sje nauSsyn- leg. Alt skraut x byggingum, listum, klæSum o. s. frv. sje í rauninni sjer aS þakka, því ef hún hefSi ekki gint fyrstu foreldra okkar, myndi mann- kyniS lifa í sakleysisástandi í Para- dýs, alstrípaS og húsnæSislaust, án skrauts og lista. Ætli þaS mundi ekki hafa orSiS þreytt á því aS reika fram og aftur um garSana og fá ekki annaS en aldini til aS jeta? Og þá sje hún svo nauSsynleg í daglegu lífi manna, geri þaS þægilegra og ánægjulegra, því ef menn í hverju smáræSi vilji reyna aS finna sannleikann, þá endi alt meS rifrildi — hvernig hafi ekki trúarbragSastríS risiS upp úr deilum um fáein atkvæSi í einstökum orSum ? HvaSa gagn sje aS því aS þekkja sannleikann? Oft sje þaS jafnvel skaSlegt aS fylgja honum. Ef maSur t. d. líti á titla konunga og keisara, þá sjeu þeir mest grobb og lygar, en þó sje óhyggilegt aS vera aS fetta fingur út i þá. Vitrustu löggjafar heimsins og Plato sjálfur hafi viSur- kent aS án lygi og tálsmíSa sje ekki hægt aS stjórna alþýSu manna. Yfir höfuS aS tala, vilji flestir manna alls ekki heyra sannleikann. Svo fer hún aS rannsaka þær svo kölluSu andlegu dygSir, t. d. bænrækni. En hvaS margir geti beSiS til guSs án þess aS ljúga? í öllum bænabókum sje fult af meiningarlausum setningum, ger- sneiddum öllum sannleika, sem samt sje nauSsynlegt aS hafa um hönd til aS vekja og glæSa andann. Svo sje nú auSmýktin: Hún kenni mönnum aS neita þeim góSu eiginleikum, sem þeir eiga til, og játa á sig ýmsu vondu, sem þeir sjeu lausir viS. Nú standi í Bib- líunni, aS sælir sjeu þeir, sem róg- bornir eru, og af því sje víst óhætt aS álykta, aS lygin sje ekki eins ill og vant sje aS halda, ef menn aS eins kynnu aS nota hana rjettilega og sjer í hag.Og hún ræSur guSfræSingunum til aS vera ekki mikiS aS tala um aS sælan í öSru lífi sje meiri en sú, sem mannkyniS hafi mist í Paradís, nema þeir þá vilji skýra betur frá þvi, hverjum sú sæla sje í rauninni aS þakka. En nú segist hún sjá, aS guS- fræSingarnir meSal áheyrendanna sjeu farnir aS verSa þungir á svipinn, og því fara aS hætta. Lyktar hún svo meS því, aS hvetja áheyrendur sína á aS hætta aS tala illa um sig, en nota sig vel, og gæta þess þó aS vera aldrei staSnir aS lygi. RitiS er upphaflega samiS á latínu, en höf. hefur sjálfur snúiS því á ís- lensku og er sú þýSing prentuS hjer eftir eigin handriti hans í Lands- bókasafninu (ÍBf. 371, 40). Útgef. hefur fylgt því stafrjett, aS eins sett ð fyrir d, lengdarmerki yfir hljóS- stafi, ritaS í fyrir ij o. s. frv., leiS- rjettingar, sem flestir munu kunna vel viS og engan baga geta gert mál- fræSingum. Af prentvillum hef jeg aS eins rekiS mig á þessar: bls. 7, 1 11. forfaSa ull, 1. farfaða ull, bls. 14. 1. 10. n á 11 f. hátt. Halldór Hermannsson á miklar þakkir skiliS fyrir útgáfuna, ekki síst fyrir þaS, aS hann hefur leytt í ljós sjerstaka og áSur lítt kunna hliS á bókmentum okkar. Khöfn í desember 1915. SIGFGÚS BLÖNDAL. Mottó: Vjer, íslands börn, vjer erum vart of kát, og eigum meira en nóg af hörmum sárum, þó lífdögg blóma sje ei sögð af grát og sævarbrimið gert að beisk- um tárum. H. H. Barlómstónninn í blöðunum. ÞaS hefur mátt heita svo, aS næstum í hverju blaSi á landi hjer hafi kveSiS viS barlómstónn um dýrtíS og hall- æri síSan styrjöldin hófst. Menn hafa slegiS fram ýmsum tillögum um þaS, hvernig forSa skyldi vesalings Fróni frá þessari yfirvofandi eymd. Sumir hafa viljaS banna útflutning á inn- lendum vörum, ef til vill af því aS þær hafa aldrei veriS í eins háu verSi(!), aSrir hafa viljaS banna all- ar skemtanir o. s. frv. ÞaS var nú skiljanlegt, aS stöku menn hugsuSu þannig aS órannsökuSu máli í byrjun styrjaldarinnar, hins var síSur aS vænta, aS mentamenn og svokallaSir leiStogar þjóSarinnar þyldu slíkar harmatölur, en þó tekur út yfir aS heyra enn kveSa viS sama barlóms- tón. ÞaS virSist nú í sjálfu sjer ekki vera neitt sjerlega flókiS mál, aS vaxandi verSi á afurSum hvers lands, hljóti aS vera samfara vaxandi þjóS- arvelmegun, þegar verShækkun af- urSanna er hlutfallslega miklu meiri en verShækkunin á þeim vörum, sem landiS þarf aö flytja inn. Þessu hefur nú veriS svo fariS um ísland um síS- asta árabil, og heimsstyrjöldin liefur aS eins veriS ný lífæS, ný driffjöSur í þeirri blómaöld, sem er aS renna upp í þessu landi, eins og síSar verSur vikiS aö. Tvær stjettir manna beðið tjón af styrjöldinni. BlaSaleiStogarnir bar- lómsgjörnu virSast þó ekki hafa sjeS þetta, þeir hafa aS eins fest augun á aukaatriSunum, halla þeim sem ein- stakir menn hafa haft af styrjöldinni, en aSalatriSinu, verShækkuninni, og þar af leiðandi aukinni framleiSslu á itmlendum vörum, hafa þeir gleymt. ÞaS er vitanlega augljóst, aS sumar stjettir manna hafa í b i 1 i beðiS tjón af styrjöldinni. Má þar fyrst nefna embættis- og sýslanamenn, er föst laun hafa, og í öSru lagi daglauna- menn. En hitt er aftur á móti jafn- auSsætt, aS laun þessara hljóta aS hækka af sjálfu sjer viS afurSahækk- unina og framleiSsluaukning. Jeg fæ heldur ekki betur sjeS en aS augna- blikstjón þessara tveggja stjetta hafi einnig kosti í för meö sjer fyrir þjóS- ina í heild sinni. Embættismenn. Um embættismenn er þaS aS segja aS mál er komiS til þess aS önnur úrræSi opnist til frama fyrir vora ungu efnilegustu menn, en aS eySa blómaárum sínum, fjármun- um sínum og vandamanna sinna í ca. 12 ára nám, og fá síSan, þegar best lætur, embætti meS sultarlaunum eft- nokkurra ára bil, sem þeir svo síSan eru þrælbundnir viS, oftast æfilangt. AS ógleymdri viSurkenningunni, sem þeir fá hjá almenningi, sem sje aS þeir sjeu ómagar, sem aSrir verSi aS vinna fyrir. Vart mundi ástæSa til aS syrgja þaS, þótt þeim mönnum fækkaSi, sem þyrftu aS hirSa slíka náSarmola, og þaS þótt þeir hafi! gengiS mentaveginn. ÞjóSinni mundi þá væntanlega skiljast að margir af embættismönnum hennar eru þarfir. Hún mundi læra aS draga út þá sjálf- sögSu meginreglu, aS hafa aS eins þarfa embættismenn, en launa þeim sæmilega. Daglaunamenn. Um daglaunamenn er þaS aS segja, að þótt peningar lækkuSu í veröi, en kaup þeirra hækk- aði ekki fyrst eftir aS styrjöldin hófst, þá er hagur þeirra mun betri nú, bæöi af því aS laun þeirra hafa hækkaS, en þó sjerstaklega af því aS vinna hefur aukist aS miklum mun, sem er vitanlega bein afleiSing af verShækk- un afuröanna. Hjer á landi hlýtur kaup daglaunamanna og verSlag af- urSa aS fylgjast aS, sökum þess aS verulegt auövald er hjer ekki til, og síst í fárra manna höndum.Daglauna- menn hafa þar aS auki, sem betur fer, svo öflugan fjelagsskap meS sjer, aS erfitt mundi aS kúga þá, þótt ein- hverjir kynnu aS vilja beita þeirri aS- ferS. ÞaS viröist líka svo, aS minsta kosti hjer í Reykjavík, sem hagur daglaunamanna sje betri en ekki verri en hann var fyrir styrjöldina, enda koma fæst af hallæri-neySarópunum úr flokki þeirra. Einnig mætti minna á þaS í þessu sambandi, aS þaS mundi til gagns en ekki ógagns fyrir landiS, aS eitthvað af daglaunafólki hyrfi aft- ur til sveita og styddi aS framleiSsl- unni þar, þar sem hún borgar sig nú betur en hún hefur nokkru sinni áöur gert. Lækka íslenskar afurðir eftir styrj- öldina? Eins og áSur er tekiö fram, hafa flestar íslenskar afurSir stöðugt verið að hækka í verði á síðari ár- um, en styrjöldin hefur veitt nýju magni i verShækkunina og greitt fyrir íslenskum afurðum á heimsmarkaðin- um. Sumir óttast nú aS íslenskar af- urSir muni stórlækka í verSi aS af- lokinni styrjöldinni, en sá ótti getur naumast veriS á miklum rökum bygð- Á myndinni hjer eru sýndir dönsku prinsarnir, synir Kristjáns konungs X., FriSrik krónprins og Knútur, en þeir voru fermdir saman 7. nóvem- ber í haust í hallarkirkjunni í Fre- densborg af Fenger prófasti. FriSrik krónprins er fæddur 11. mars 1899, en Knútur 27. júlí 1900. ViS ferm- ingarathöfnina var fjölmenni og fór hún mjög hátíölega fram. ur, aS minsta kosti er ekki ástæSa til aS ætla aS þær lækki hlutfallslega eins mikiS og þær erlendu vörur, sem vjer þurfum helst á aS halda. Hjer er aS visu ekki rúm til þess aS rekja þaS mál í einstökum atriSum, en benda má á þaS, aS fyrst og fremst hafa íslenskar afurðir orðiS kunnari út um heiminn en þær áður voru, í öðru lagi er verðmæti þeirra meira á heimsmarkaSinum en vörutegunda þeirra, sem vjer þurfum aS kaupa, og í þriöja lagi hlýtur framleiösla sömu vörutegunda og vjer höfum á boS- stólum aS minka aS miklum mun í Norðrálfunni eftir ófriSinn, og nægir þar aS benda á fiskinn, þar sem fiski- skipum hefur stórfækkaS af völdum styrjaldarinnar. Hlutverk blaðanna er að glæða á- huga manna. ÞaS er auösætt, aS svo fer því fjarri aS nú sje um harSæri aS tala, aS telja má aS þetta sje mesta góðæri, er sögur fara af. GróSi fram- leiSendanna er svo margfalt meiri en hnekkir sá, er hinir biSa, í bili, aS þjóSarauðurinn í heild sinni hlýtur aS aukast stórum. ÞaS er runnin upp ný blómaöld, ný gullöld, þessi langþráSa öld, þar sem menn fá eitthvaS í aSra hönd fyrir erfiði sitt og áhyggjur. Hver er svo ástæðan til alls þessa barlóms og blaSavíls? Hver er til- gangur blaSanna? Sjá þau ekki, hve skaSlegt þaS er að drepa UáS og dug úr mönnum með ástæSulausu bar- lómskveini? Væri ekki nær fyrir þau aS hlúa heldur aS framtakssemi ýmsra áhugamanna þjóSarinnar? BlöSunum verSur aS skiljast þaS, aS þaS er hlutverk þeirra aS hvetja menn til dáSa og framkvæmda og þaS jafnvel þótt einhver ástæða væri til barlóms, því ekki bætti þaS um, þótt menn legðu árar í bát og gengju iðjulausir í barlóms- og hallærishug- leiðingum. Flestir íslendingar eru lika þannig skapi farnir, aS fremur er ástæöa til aS eggja þá en draga úr þeim. GUNNAR SIGURÐSSON (frá Selalæk).

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.