Lögrétta - 30.05.1917, Side 2
94
LÖGRTETTA
. LÖGRJETTA kemur út á hverjum mið-
vikudegi, og auk þess aukablöð við og við,
minst óo blöð alls á ári. Verð kr. 7.50 árg. á
Islandi, erlendis kr. 10.00. Gjalddagi 1. júlí.
sern er á pappír, þó að ekki heföi
staðiö á handriti. Þeim 600 krónum,
sem verja mátti til aS styrkja útgáf-
una, var variS til nýrrar útgáfu af
skýrslunum um fóSur og mjólk, sem
Ingimundur Guömundsson samdi, en
voru nú uppgengnar og lá á aS gefa
út aftur. — Geta má þess, aS i vetur
gaf fjelagiö út ritling um matjurta-
rækt eftir Einar Helgason í því skyni,
aS hvetja menn til aö auka hjá sjer
garöræktina í vor. Var ritlingnum
útbýtt ókeypis, 8000 eintökum, og var
ætlast til aS hann kæmi á hvert býli
og auk þess allmikiS í kaupstaSina
og sjóþorpin.
Fjelagatal. Nýir fjelagar áriö sem
leiö voru 120. ÞaS sem af er þessu
ári hafa bætst viö 102. Er nú fje-
lagatalan hátt á 15. hundraSi.
Þá fóru fram kosningar. Úti var
kjörtími fulltrúanna Eggerts Briems,
bónda í ViSey, og GuSmundar Helga-
sonar, búnaöarfjelagsforseta, vara-
fulltrúans Halldórs Vilhjálmssonar,
skólastj., yfirskoSunarmanna Bjarnar
Bjarnarsonar hreppstjóra og Magnús-
ar Einarssonar dýral. og úrskurSar-
mannanna Eiríks Briems prófes-
sors og Kristjáns Jónssonar háyfir-
dómara. Voru þeir allir endurkosnir
til 4 ára. Fulltrúi til 2 ára, í staS
Þórhalls biskups Bjarnarsonar, var
kosinn Jón H. Þorbergsson fjárrækt-
armaSur.
Þá var rætt um búnaöarmál.
Jón H. Þorbergsson flutti inngangs-
ræöu, um innflutning sauöfjár til kyn-
blöndunar, og bar upp þessa tillögu:
„Fundurinn óskar að búnaðarþing-
ið' mæli með því við landsstjórnina,
aS leyft verði að flytja inn Border-
Leicester-fje, til þess aö tilraunir verSi
gerðar meS það, bæði til blöndunar
til sláturfjár og til viShalds því hjer
á landi.“
Um tillöguna urðu langar umræð-
ur, milli Magnúsar dýralæknis Einar-
sonar annars vegar og frummælanda
og Páls kennara Zóphóníassonar hins
vegar. Tillagan var samþykt meö
13:3 atkv.
Vigfús bóndi Guðmundsson flutti
þessa tillögu, sem hann óskaö'i að
fundurinn beindi til búnaðarþings:
„Fundurinn lýsir yfir því, að hann
er því mótfallinn, að ákveöið sje há-
marksverð á landbúnaðarafurðum,
eins og nú hefur veriö gert fyrir
framleiöendum sjálfum."
Tillagan samþykt með 9:3 atkv.
Sami fundarmaður bar fram þessa
tillögu:
„Fundurinn felur búnaðarþinginu
að ræöa málið um styrkveitingu úr
landssjóSi til búnaðarfjelaga og skora
á alþingi að styrkja fjelögin fram-
vegis.“
Tillagan samþykt meS 9 samhljóöi
atkv.
Loks bar Páll kenuari Jónsson upp
þessa tillögu:
„Fundurinn óskar aS búnaðarþing
taki til athugunar, hvort ekki megi
á einhvern hátt bæta úr hinum til-
finnanlega skorti landsmanna á hent-
ugum og fljótvirkum jarSyrkjuverk-
færum.“
Tillagan var samþykt meö 9 sam-
hljóSa atkv.
Samgöngutæki nútímans
Og
innlend framleiðsla.
Á þessum tímum horfir lífið ekki
neitt glæsilega við, fyrir þeim þjóð-
um, sem þurfa að sækja nauðsynj-
ar sínar til annara landa. Vertu sjálf-
um þjer nægur er málsháttur, sem
yfirstandandi tímar sanna. Hvenær
á sú hamingja að falla í skaut þjóð
vorri, að hún læri að nýta öfl lands-
ins og gæði? — Ef þessir reynslu-
timar ekki geta orðið sá skóli, sem
nægir til að eyða síðasta hikinu, þá
veit jeg ekki hvað getur hrist af
oss mókið.
Sem afskektri eylandsþjóð er oss
nauðsynlegt að eiga skip til flutninga
milli lands vors og annara landa, og
til strandferða kringum landið. þetta
er það, sem þegar er viðurkent, og
að nokkru leyti komið í framkvæmd.
En nútíðarkröfum samsvarandi tæki
til að nota innnytjar landsins rífast
menn um, hvort borgi sig að eign-
ast. það eru alls ekki glæsileg tákn
tímanna, berandi vott um þröngsýni
og kjarkleysi þjóðarinnar, og einnig
vantrú á eigin mátt, að aðalformæl-
andi nútíðar samgöngubóta innan-
lands skuli hafa fallið við kosning-
ar til alþingis, og nú vera kominn
úr þjónustu landsins.
Ósamlyndi í hvers konar mynd
hefur lengi háð framförum á þessu
landi. En hvernig geta menn nú ef-
ast um nauðsynina á fullnægjandi
innanlandssamgöngum eftir reynslu
þá, sem nú er fengin fyrir fallvelti
þess að reiða sig á annara landa
framleiðsiu, jafnvel þótt skip væru
nóg til. Ef Flóa- og Skeiða áveitan
væri nú komin í fratnkvæmd, búið
að leggja járnbraut austur yfir Suð-
urlandsundirlendið frá Reykjavík, eft-
ir henni gengu rafmagnsbrautir knúð-
ar afli úr Sogsfossunum frá aflstöð,
sem einnig gæti miðlað rafmagni til
annara þarfa Reykjavíkur og nær-
liggjandi bæja og bygða, þá þyrfti
ekki að óttast matvælaskort í þeim
bæjum, sem nytu þar af. þá gæti
Reykjavík fengið daglega og oft á
dag að sumarlagi eins mikið og hún
gæti drukkið af nýmjólk, skyr, osta,
smjör, kálfskjöt, nautakjöt og kart
öflur, ræktaðar á sandsvæðum með
sjónum, t. d. í kringum Eyrarbakka.
Ef sú framfarastjórn, sem tók við
völdum, þegar innlenda stjórnin var
sett hjer fyrst á fót, 1903, sæti enn
þá að völdum, væri þetta líklega alt
komið i framkvæmd. Skuldugir vær-
um við þá að vísu, líklega að með-
altali eins og önnur lönd voru skuld-
ug fyrir stríðið. En mikil blessun
fylgdi þeim skuldum. það má fram-
leiða margbreytt matvæli á landi
voru í stórum stíl, bæði með gras-
rækt, kvikfjárrækt og garðrækt.
Víða við hveri mætti reka garð-
rækt í stórum stíl, til mikils á
góða, og með áveitum má gera
grasræktina óbrigðula. En með þeim
innanlandssamgöngum, sem við höf-
um nú við að búa, verður hvorki
gras, kvikfjárræktarafurðir nje garða-
matur fært úr stað svo neinu nemi.
Eins og eðlilegt er, liggja oft bestu
áveitu- og grasræktar-svæðin fjarri
bestu beitarsvæðunum og garðrækt-
arsvæðunin fjarri bestu markaðs-
svæðunum fyrir þær afurðir. Mörg
er einnig sú framleiðsla af kvikfjár-
rækt, sem ekki er auðið að færa
á markað nema með góðum nútíðar-
samgöngum. þær raddir ættu því
sem fyrst að þagna, sem mæla á
móti því, að oss sje þörf á og auð-
I ið að koma á fót hjá oss nútíðar-
i samgöngubótum innan lands.
ísland hefur svo margvíslega mögu-
leika að bjóða, og þjóðin er ekki
enn þá orðin svo fjölmenn, að hún
geti ekki framleitt í landinu mikið
til fullnægjandi matvælafnrða handa
sjer, ef hún aflaði sjer nauðsynlegra
áhalda til að hagnýta sjer möguleika
þess. það er þá fyrst járnbrautin
um stærstu ræktunarsvæðin, auðvit-
að fyrir ratmagnslestir. það er tví-
mælalausf höfuðframtíðar-mál þess-
arar þjóðar, að nota, sem mest hún
getur, rafurmagn framleitt með foss-
afli. Ef nokkur dugur væri í þjóð-
inni, ætti hún ekki að linna látum
í blöðunum og á þingmálafundum
í því, að knýja þingið og stjórnina
til að gangast fyrir því hið fyrsta
að auðið er, að koma upp afistövð-
um við hentuga fossa til rafurmagns-
framleiðslu, bæði til þess að knýja
rahnagnslestir, þar sem slíkra sam-
göngubóta er þörf, og til að full-
nægja eldiviðar og ljósmetisþörf land-
sins; til áburðarvinslu og framleiðslu
iðnaðar. þessu jafnframt þarf að
koma í framkvæmd áveitum. Stór-
áveitufyrirtækjum með jökulvatni
eins og Flóaáveitan og Skeiðaáveit-
an, einnnig garðræktunarfyrirtækjum
í stórum stíl, einkum fram með sjó,
þar sem hentugt er jarðlag, t. d.
sandur, og auðvelt að afla þara til
áburðar; einnig kringum hveri og
laugar, þar sem er volgur harðlend-
is-jarðvegur eða sandur. Ef til vill
mætt koma á slíkum fyrirtækjum
þegar í sumar, einkum á söndum
við sjóinn, þar sem jarðvegurinn
þarf lítinn undirbúning. Mætti ef til
vill afla töluverðs forða af karöflum
með því móti, ef hægt væri að út-
vega útsæði. Flyíja síðan uppsker-
una landveg með bílum, eða þá sjó-
veg, eftir því sem hentaði betur.
Ætti stjórn landsins að athuga þetta.
Ef til vill væri tilvinnandi að verja
einni eimskips mánaðarleigu í þetta.
Er ekki hugsanlegt að nokkru af
fje því, sem landstjórnin ver til að
ná í korn frá útlöndum, væri
eins vel eða betur varið til að efla
framleiðslu innan lands. Ekki sje
jeg mögnleika til þess fyrir alþýðu
manna að lifa á þ’essu dýra korni.
Með kjötmeti, fiskmeti og mjóikur-
mat’ þurfum við garðamat; hefðum
við gnægð af þessu, gætum við lif-
að góðu lífi.
Eins og rm stendur eru samgöng-
urnar innan lands því til fyrirstöðu
að við getum eins vel og ella hjálp
að okkur sjálfir. En meðan þannig
standa sakir mætti reyna að hjálpa
sjer með bílum, en einnig þá þarf
að útvega sem hentugasta fvrir kring-
um stæður vorar. það ríður ekki
mest á því fyrir oss að þeir sjeu
hraðskreiðir, en að þeir sjeu sterk-
ir, endingargóðir, láti vel að stjórn og
geti flutt töluvert mikinn þunga,
vegna ójafnanna á vegunum, ónýtu
brúnna, krókanna og mishæðanna
verða þeir að vera litlir, en þeir
geta komið að miklum notum, ef
þeir að öðru leyti væru sniðrir eft-
ir þörfum vorum. Ætti að styrkja
sveitafjeiög og einstaka menn til að
útvega sjer þau flutningatæki, þar
sem flutningaþörfin er mest. Til eru
senniiega í heiminum nú bílar af
þeirra gerð, sem oss væri hentug,
og er það hlutverk umboðsmann-
anna að leita eftir þeim gerðum.
Eins mætti fá bílaverksrniðjur til að
smíða bíla, sem sjerstaklega væru
lagaðir eftir þörfum okkar og ástæð-
um, ef töluvert mikið væri keypt.
það er eins og hjer þyki það
best við eiga að binda fyrir augun
og áipast áfram blindandí, ekki fylgja
ákvörðun, sem bygð væri á vand-
legri íhugun og miðaðiað vissu tak-
marki. því fálmi þurfum viö að
hætta. Hversu góða atvinnu sem
íslenskur verkaiýður fær hjá erlend-
um mönnum, sem stunda síldveið-
ar eða aðrar fiskiveiðar hjer við land,
og þótt meiri hluti þjóðarinnar gæti
lifað um tíma af þeirri atvinnu, þá
verður þó farsælla að stunda eigin
atvinnugrein, jafnvel þótt um stund
virðist sem sú atvinna gefi minni
arð. það er æfinlega vissast að
vera sinnar eigin gæfu smiður. Með
því eina móti getur þjóðin hagnýtt
möguleika landsins, að hún hafi í
höndum fullkomin nútíðar áhöld,
bæði til reksturs framleiðsunnar og
til flutninga. það, sem aðallega þarf
tii að koma slíku í framkvæmd, eru
peningar, og þar af leiðandi láns-
traust.
Eftir öllum líkum mætti fá nóg
fje til jafnauðsærra ávinningsfyrir-
tækja bæði utan lands og innan,
ef einhuga fylgi væri hjá þjóðinni
við framkvæmd þeirra, og yfirmenn
hennar væru sammála um nytsemi
þeirra og möguleika til að bera
arð, Vantrú á arðsemi og notagildi
slíkra fyrirtækja er ekkert annað
en vantrú framtíö landsins og þjóð-
arinnar.
það er eindregið skoðun mín, að
slík fyrirtæki beri landinu sjálfu
að kosta, en að ekki sje verið að
sníkja eftir því að útlend auðfjelög
komi hjer á fót þess konar þjóð-
nytja-fyrirtækjum og fái þar með í
höndur möguleika til að hampa fjör-
eggi þjóðarinnar, og hneppa hana í
auðvaldsbönd.
Hjer vantar helst viljann, og full-
þroskaðan skilning, ekki máttinn.
Aflstöðvar við hentuga fossa, reknar
fyrir landsfje, til að framleiða raf-
magn, og fullnægja með því öllum
þeim þörfum, sem kol og gufa eru
notuð til að fullnægja í öðrum lönd-
um. Stór jarðræktarfyrirtæki bæði
rekin fyrir almannafje og af ein-
stökum mönnum, sem þá fyrst geta
boriö sig, þegar samgöngurnar eru
komnar í fullnægjandi horf. Járn-
brautar- og iðnaðar-fyrirtæki, með
öðrum orðum aðal-viðreisnar og
framtíðar-velferðarmál þjóðarinnar,
Þrjár nýjar bækur:
Schiller: Mærin frá Orleans. Rómantiskur sorgarleikur. Dr. phil.
Alexander Jóhannesson þýddi. Yerð óbundin kr. 4,00, í bandi
kr. 5,00.
Guðm. Finnbogason, dr. ptiil.: Vinnan. Kostar óbundin kr. 3,00.
Murphy: Börn, foreldrar og kennarar. Þýtt hefur Jón Þórarins-
son fræðslumálastjóri. Kostar óbundin kr. 3,00.
Bækurnar fást hjá bóksölum, eða beint frá
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.
eru þau mál, sem vérða eiga aðal-
umræðumálin og skifta þjóðinni í
flokka í næstu framtíð, ef hún ekki,
eins og búast má við af fyrri reynslu,
getur unnið að þeim sammála. Um-
ræður um lítisvarðandi mál, eða þá
útrædd og vel afgreidd mál, eins og
bannlögin, mega ekki, meðan þetta
er ógert, fylla blöðin og eyða tíma
þingsins. Alvara, og einhuga vilji
til viðreisnar, rjettur skilningur á
því, hvað til þess útheimtist, fórn-
andi kjarkur og framsýni til að full-
nægja þörfum þjóðarinnar með
framleiðslu landsins eru undirstöðu-
atriði þess manngildis, sem leiðandi
menn þjóðarinnar þurfa að vera
gæddir. þá er heldur von til þess
að við „kúrum ekki mikið lengur
á þessari möl og allir til ónýtis
dauðir.“
25. apr. 1917.
Indriði Guðmundsson.
Stríðið.
Síðustu frjettir.
Símskeytafregnirnar frá síöustu
viku segja frá bardögum á vestur-víg-
stöhvunum, á ítölsku vígstöSvunum
og í Makedoníu. Á Carsó-sljettunni
er sagt aö ítalir hafi sótt fram og
tekið' 9000 fanga, en önnur fregnin
segir.aSAusturríkismenn hafi ígagná-
| hlaupi tekiS 4600 fanga. Annars vir5-
! ist lítt skera úr í bardögunum nú sem
stepdur. Ef til vill nokkur framsókn
á vestur-vígstöövunum bandamanna
megin, en síöustu blaöafregnum ber
ekki vel saman um viöureignina þar.
í opinberu tilkynningunum ensku frá
25. þ. m. segir, að mikill her sje kom-
inn til aSalorustustöðvanna þýsku a8
vestanveröu frá Rússlandi og Rú-
meníu og muni Þjóðverjar hafa haft
þar 90 herdeildir frá 9. þ. m., Þar
segir einnig, að þótt sókn banda-
manna hafi nú um hríð ekki verið
eins áberandi og áður, sjáist eng-
in merki þess, að hún sje aö linast.
Hins vegar telja Þjóöverjar vestur-
vígstöðvarnar óvinnandi, og engin
likindi til þess að úrslit ófriðarins
gerist þar. Þeir ætla kafbátahernað-
inum að gera úrslitin, og i því skyni
er honum látlaust haldið áfram. Er
nú alt orðiö svo öfugt og umsnúið
frá því, sem áður var, að Englend-
ingar tala um að sigra Þjóðverja á
landi, en Þjóðverjar tala um að sigra
Englendinga á sjó.
Skeyti í Mrg.bl. frá 26. þ. m. segir,
að guðfræðingadeildir háskólanna í
Lundi 0g Uppsölum í Svíþjóð skori
á hlutlausa kristna menn, að fá ófrið-
arþjóðirnar til að ræða frið. Nokkrar
líkur sjeu til þess að friðarfundur
verði haldinn. í opinberum tilk. ensku
frá 25. þ. m. er sagt, að Robert Cecil
lávarður hafi í enska þinginu sagt,
að hernaðartilgangur Breta væri hinn
sami og hjá Rússum, að ná þeim friði,
er trygði þjóðfrelsi og alþjóðavináttu,
en að því væri alls ekki stefnt, að
koma á heimsríki grundvölluðu á
hervaldi. Þar segir og, að rætt hafi
verið um það í öllum höfuðborgum
bandamanna, hvað Rússastjórn ætti
við með kröfunni um frið án land-
vinninga og skaðabóta, og hafi mönn-
um yfirleitt komið saman utn, að ]>að
væri óhugsandi að þeir ættu við það,
að eigi yrði skilað aftur löndum, sem
ranglega hefðu verið unnin í fyrri
styrjöldum, eða Þjóðverjar leystir
undan þvi, að greiða skaðabætur fyrir
]>au lönd, er þeir hafa farið herskildi
um. — En eigi að gerast upp reikn-
ingar fyrri styrjalda, þá er spurn-
ing um það, hvað langt skuli farið
aftur í tímann; og eigi aílir að fara
að skila því nú, sem ranglega er feng-
ið í fyrri styrjöldum, ])á yrði úr því
algerð umbylting á takmörkum landa
og þjóða, því að ef öll stórveldin
færu að klippa af sjer skæklana, eftir
þeim reglum, þá yrðu þau kotríki
á eftir.
Fyrstu hersveitirnar frá Banda-
ríkjunum eru nú komnar til vígvall-
anna á Frakklandi. Rooseveit er þar
þó ekki með sjálfboðaliðsveit sína,
sem áður hefur verið frá sagt. Nú er
sagt, að Wilson forseti hafi ekki vilj-
að, aö hún væri fráskilin ríkishern-
um og talið það glundroða á herút-
búnaðinum. En honum virðist haldið
fram í Bandaríkjunum af miklu
kappi. í Senatinu voru friðslitin sam-
þykt með 82 atkv. gegn 6, og í full-
trúaþinginu, eða neðri málstofunni,
með 373 atkv. gegn 50. Friðarvinir
ljetu allmikið á sjer bera, þegar þing-
ið kom saman til að ræða um friðar-
slitin snemma i apríl, en síðan er ekki
getið um neina misklíð út af ófriðn-
um þar vestra. í einu fregnskeytinu
hingað er sagt, að her sá, sem kominn
sje frá Bandaríkjunum til Norðurálf-
unnar, sje að tölu 22 þúsundir land-
hers og 2600 sjóliðs. Foringi Banda-
ríkjahersins heitir Pershing. Wilson
gerir ráð fyrir, að Bandaríkin hafi
til búna miljón manna til að senda
á vígvellina fyrir næsta haust.
Forsætisráðherra Ungverja, Tisza
greifi, er farinn frá völdum, en við
tekinn í hans stað Joseph erkihertogi.
Petain hershöfðingi kvað vera gerður
yfirforingi alls bandamannahersins á
vestur-vígstöðvunum.
í opinb. tilk. ensku frá 25. þ. m.
segir, að neðri málstofa enska þings-
ins hafi ekki viljað fallast á uppá-
stungur Lloyd Georges í írska mál-
inu, en allir flokkar hafi verið sam-
mála um, aö írskur þjóöfundur, skip-
aður öllum stjettum landsins, yrði
haldinn til að hugleiða, hvernig írska
málið mætti verða til lykta leitt.
Frjettir.
Tíðin hefur verið góð undanfarna
viku, vætusamt nokkuð og besta
gróðrarveður.
Skipferðir. 23. þ. m. kom hingað
vöruflutn.skip Andr. Guðmundssonar,
Edína, með salt og síldartunnur, eftir
4 daga ferð frá Skotlandi. — Sama
dag komu tvö seglskip frá útl., ann-
að meö vörur til Jóns Björnssonar
& Co. í Borgarnesi, en hitt með salt-
farni til Haddens í Hafnarfirði. —
26. þ. m. kom danska skonnortan
Hermod frá Kaupmannahöfn með
matvörur til Páls kaupmanns Gísla-
sonar, þar á meðal talsvert af smjör-
líki. Hún er að stærð 300 smál. og
fór frá Khöfn 1. maí. — Lagarfoss
fór hjeðan vestur um haf 25. þ. m.
Bisp kom að vestan í gær með olíu-
farm. — ísland kvað fyrir nokkru
vera lagt á stað frá New-York og
Escondito fór frá Halifax síðastl.
laugard. I gær kom seglskip til h.f.
Ægis frá Miðjarðarhafi. — Ceres er
komin til Fleetwood.
Skip strandar. 24. þ. m. vildi þaö
slys til, að seglskipið Shelton Abbey,
sem var á leið hingað með salt og
tunnur til Kveldúlfsfjelagsins, strand-
aði suður í Grindavík, lenti þar upp
á sker, í þoku, um 30 faðma frá landi.
Sipstjóri björgunarskipsins Geir fór
suður að strandstaðnum 26. ]>. m.
ísl. skonnortu sökt við Færeyjar.
25. þ. m. fengu þeir O. Johnson &