Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 06.11.1917, Blaðsíða 4

Lögrétta - 06.11.1917, Blaðsíða 4
190 LÖGRJETTA E.s. STERLING (strandferðaskip landssjóðs) fer hjeðan í strandferð vestur og norður um land til Akureyrar ma'nudag 12. ndvember. Kemur við á Vestfjörðum, Norðfirði, Reykjarfirði og Siglufirði til Akureyrar. Frá Akureyri til Reykjavikur nálægt 22. nóvember. Kemur við á Húnaflóahöfnunum og Sauðárkróki. Nánara augýst síðar og fást þá líka áætlanir fyrir þessa ferð á skrifstofu vorri. H.f. Eimskipafjelag íslands. ógeðfeldum, en því verra var aS sitja kyr í Chigirin, því a'S þegar Bohun var farinn þaSan meS Kósakka sína, þurfti ekki nema hina minstu bend- ingu frá Kmielnitski til þess aö gera lýönn þar óöan og uppvægan, en þá var enginn liðsafli til þess að halda honum í skefjum. Væri þá varla að sökum a'S spyrja, að hver pólskur aðalsmaöur sem hægt væri aS ná til, yröi þá tafarlaust drepinn. Zagloba hefSi að vísu getað haldið á fund Pototski hetmans, en það voru gildar ástæður fyrir því, aö þangaS leitaSi hann í síSustu lög. Zagloba og Bohun höfSu nú um hríð verið drykkjubræður, og voru mjög samrýndir. Bohun borgaöi fyrir báða, en Zagloba laug á viS tvo, og meira en þaS. Þeir voru báSir æfintýramenn og áttu aS mörgu leyti vel saman. Eftir nokkra umhugsun ákvaS Zag- loba aS slást í förina meS Bohun. „Jeg kem meS þjer,“ sagSi hann. „Verið getur aS jeg verði þjer til gagns í förinni, og ráði þjer frá ein- hverri heimskunni. ViS eigum hvort sem er viðlíka vel saman og snaran og gálginn." Bohun svaraSi engu, en litlu síöar var lagt á stað; reið þá Zagloba viö hlið hans. „Gættu nú að þjer, Bohun," mælti hann. „Sannarlega hefur þú ástæðu til þess að vera þeim reiöur, Kurtse- vitschunum, en þaö eru til fleiri fagr- ar meyjar en Helena þessi.“ „Engin, sem jeg hef nokkurn tíma skeytt um.“ „Sje þaS nú satt, aö hún elski ann- an, auk þess sem hún er af háum aðalsættum, þá er þar mikill hængur á þínu ráði.“ „Fjandinn hafi alla ykkar aðals- tign og aSalbrjef. Hjerna er ætt mín og aðalsbrjef," sagði Bohun og sló á sverðshjöltun. „Svivirðilega svika- hyski. ÞiS tölduð Kósakkann vin ykk- ar og bróður, er þið fylgduS honum í hernað og öfluSuð ykkur þannig fjár. ÞiS kölluöuö hann son og lof- uöuð honum aS gifta honum meyj- una. Undir eins og þessi pólski aöals- strákur stingur upp kollinum, er hon- um heitin mærin, en jeg og áSur gef- in loforð gleymd.“ „Hvað ætlar þú nú að gera?“ „Jeg ætla að gera það, sem hverKó- sakki mundi hafa gert í mínum spor- um.“ „Þú vefSur að athuga það, að Kurt- sevitscharnir eru undir vernd Jere- míasar fursta, og hann er ógurlegut sem ljón.“ „Khaninn er líka sem ljón, og vog- aöi jeg samt aS koma í nánd við hann.“ „HvaS þá? Þú ætlar þjer þó ekki að fara meö ófriS á hendur furstan- um ?“ „Mjer stendur á sama, hvort furst- anum líkar betur eða miöur.“ Zagloba stundi þungan og mælti: „Fjandinn hafi þetta alt saman. Það hlýtur að enda hjá böSlinum i snöru og gálga; er þáð ástand! ÞaS er tví- sýnt, hversu langt þú kemst, en hitt er auðsætt, hversu þú kemst hátt. Kurtsevitscharnir munu verjast.“ „Zagloba! Jeg hef verið ástvinur þeirra. Þeir voru sem bræður mínir, 0g frúin sem móSir. Þaö var jeg, sem fór til Krím, þá er Tartararnir höfðu handtekiö Vasil, og sótti hann í hendur fjandmannamxa. Jeg hef elskaS þá, og hlýtt þeim sem rakki, í þeirri von, aö fá Helenu. Nú hafa þeir svikið mig og hrundið mjer burt af heimili sínu. Jeg ætla að draga mig í hlje, en áður vil jeg kveðja þá á Kósakkavísu, og þakka þeim þegn- ar velgerðir. Jeg hef ákveöið leið mína.“ „Ætlar þú aS ganga í liS meö Kmi- elnitski? Er þaS sú leið, sem j>ú hef- ur valið þjer?“ „Hefðu þau gefiS mjer meyjuna, mundi jeg hafa gengiS í liS með Pól- verjum, sem vinur þeirra og bróðir. Jeg hefði þá safnað aS mjer öllum þeim Kósökkum er jeg átti yfir aS ráða, og hefði skoraö á hina, að fylgja mjer að málum, og barist viS Kmiel- nitski. —• En nú ....“. „En nú ertu genginn af göflunum," sagði Zagloba. Bohun svaráSi engu, sló í hest sinn og hleypti á sprett. Zagloba hætti nú að lítast á blikuna. Hann var í vafa um, hvort þaö væri ekki hiö mesta óráö að vera í för þessari. Bohun ætl- aöi sjer vafalaust aS leita hefnda, ráðast á Kurtsevitschana og nema Helenu á braut. SvipuS atvik voru að sönnu ekki svo fátíS í Ukrainu, og oft var ekki gerö nein rekistefna út af því. Var þaö og stundum til- ganglaust, einkum væru það Kósakk- ar, því að þeir leituðu hælis úti á eySisljettunum miklu. En Zagloba þótti ekki málstaöurinn góður, Skrje- tuski var kunningi hans, og höfðu þeir drukkið saman, — það höföu þeir Bohun gert engu síðar, — en það sem mestu varSaöi var þaS, aS Skrjetuski var aðalsmaSur en Bohun Kósakki, og átti því illa við, aö hann, aöalsmaSurinn, styddi hann til þess- ara mála eöa væri í miklum fjelags- skap við hann. ÞaS gat ekki veriö því til fyrirstöðu, að hann drykki meS honum og lagsbræörum hans, þegar þeir borgaSu alt, þaö gat meira aö segja veriö hyggilegt, nú á þessum tímum, að koma sjer vel við Kó- sakkaforingjana, en það var mesta fásinna að ráðast á Roslogi með Bo- hun. Helena var festarmær Skrjetusk- is, en furstinn hafði hann i miklum hávegum, og voru því miklar líkur til þess, að hann síöar kæmist að því keyptu, ef hann hjálpaði til þess nú að nema hana á braut. ÞaS lá þá ekkert annað fyrir, en að ganga í flokk Kmielnitskis. Zagloba hjet því, aö þaS skyldi hann aldrei gera. „Jeg, vesæll maður,“ nöldraði hann. „Jeg hef hangið í stjelinu á djöfsa, en nú hefur hann náö í koll- inn á mjer. ÞaS vildi jeg aS Bohun þessi væri nú samstundis lostinn eld- ingu! Þaö verSa ljót lætin við þessa svo kölluðu giftingu. Ljósti elding alla Kurtsevitscha og alla kvenmenn! Hvaða gagn hef jeg af þeim? Ekk- ert. ÞaS er sama hver korniö hefur, allir vilja mala þaö á mjer. Hvers vegna? Ekki ætla jeg aö kvongast. Fjárinn geri það í minn stað. Hvaö kemur mjer annars þetta mál við? Fari jeg nú meS Bohun, flær furst- inn mig lifandi. Skiljist jeg viö hann, drepa bændurnir mig, ef hann þá ekki gerir þaS sjálfur. En sárast af öllu er þó, aö hafa nú engan mjöS til þess aö svala sjer á. Jeg er fallega kominn! Jeg kysi fremur aö vera reið- skjóti minn en Zagloba. Hættan vofir yfir, hvaö sem jeg geri.“ ÞaS var steikjandi hiti, og gekk feröin því seinna en Bohun vildi. Snöggvast var áö, og á meðan sagði Bohun liSsforingjanum fyrirskipanir sínar. Zagloba heyrSi síðustu orðin: „Bíöið þangað til þiö heyriö skammbyssuskotiS." „Já, þaö skal gert, eins og þjer bjóöiS." Bohun sneri sjer síöan að Zagloba og mælti: „Nú ríðum viö á undan." „ViS?“ spuröi Zagloba og var í slæmu skapi. „Jæja þá. Jeg held að fjandinn sæki okkur báða í einu, en þaö veröur varla heitara þar niðri en hjerna." Þeir riðu samhliöa og voru mjög hugsandi. Báöir þögðu. Zagloba sneri upp á skeggiS og hristi höfuSiS. Hann vissi ekki hvað hann átti til bragðs að taka. Hann gaut öðru hvoru horn- auga til Bohuns, er virtist ýmist hryggur eða reiður; Zagloba tautaSi fyrir munni sjer: „Hann er bæði lag- legur og myndarlegur. ÞaS er ein- kennilegt, aö Helenu skyldi ekki lit- ast á hann. Skrjetuski er laglegur maöur, en samt er hann síSri; en hann er aöalsmaöur, Bohun er Kósakki. ÞaS verSa annars ljótu lætin, þegar þeir hittast." „Bohun, þekkir þú Skrjetuski vel?“ „Nei." „ÞaS er kall í krapinu. Þú hefðir átt að sjá, liversu ljettilega hann varp- aöi Tschaplinski út um dyrnar. Jeg þekki ekki hans jafningja aS berjast eSa drekka." Bohun gegndi ekki, og báöir fóru aftur að hugsa. „ÞaS er ekki hægt að sporna viS því,“ stundi Zagloba upp nokkru síö- ar, eins og viS sjálfan sig. „HvaS ertu aS segja?" „Jeg sagði bara, aö bráöum yröi myrkur. Er langt enn?“ „Nei." Þeir riSu enn um stund. Það var oröiö myrkt er þeir komu í skarSiö og sáu ljós framundan sjer. „Þetta er Roslogi," sagSi Bohun. „Já, einmitt það. ÞaS er gjóstugt hjerna í skarðinu. Bohun stöSvaöi hest sinn. „Viö bíðum hjer.“ Kósakkarnir náSu þeim. Bohun hvíslaði einhverju aö liðsforingjanum og alt liSiö stöSvaöist. Þeir Zagloba hjeldu tveir einir áfram. AS nokkrum mínútum liðnum voru þeir komnir að hliöinu á Roslogi. Alt var þögult.Hundurinn gelti ekki. En loftið þar var þrungiö af blómailm. DyravörSurinn kom, er hann heyröi hófasláttinn. Hestnr bleikstjörnóttur, aljárnaöur og meS kliptu M-i á hægri lend tapaSist úr Reykjavík í septembermán. s. 1. Hver sem yrði var viö þennan hest, er vin- samlega beðinn að gera mjer aövart sem fyrst. Mayvant Sigurðsson Grettisgötu 46, eöa í síma 214. „Hver er þar?“ „Þekkir þú mig ekki, Maxim?“ spurði Bohun. „ÞaS eruS þjer, guöi sje lof.“ „OpnaSu hliSiS. Líöur hjer ekki öllum vel?“ „Jú, allir hressir. ÞaS er langt síð- an aS þjer hafiö komið á Roslogi." HurSin marraði á hjörunum, vindu- brúnni var hleypt niöur og þeir fje- lagar riöu inn í garöinn. „Lokaöi hvorki hliöinu nje dragöu upp vindubrúna, því aö jeg fer hjeöan undir eins aftur. Þú bindur hestana á meSan þarna viö staurinn." PrentsmiCjan Rún. kemur þaö best í ljós, hvert mikilmenni hann er. Þar kemur hann sjálfur fram sem lifandi mynd guöstraustsins óbilandi, sem svo fagurlega lýsir sjer í sálminum hans nokkurum árum síöar: „Vor guð er borg á bjargi traust, hið besta sverð og verja, hans armi studdir óttalaust vjer árás þolum hverja.“ Hann sýnir þar, aö þaö voru ekki orðin tóm, er hann syngur seinna í sálminum: Þótt taki fjendur fjeð já, frelsi’ og líf vort með það happ þeim ekkert er, en arfi höldum vjer; þeir ríki guðs ei granda. Daginn í Worms hefur Lúter innritaS í veraldarsöguna meS hinni ódauðlegu játningu sinni: „Svo sannarlega sem jeg verS ekki sannfærður meö vitnisburöi heilagrar ritningar og með skýrum og ljósum rökum — — þá hvorki get jeg neitt aftur- kallað nje vil jeg gera þaS, því aö hvorki er ráölegt nje ráö- vandlegt aö breyta á móti samvisku sinni.“ Aldrei kemur þaö betur í ljós en einmitt hjer hvílíkur afburSamaður, hvert risa- menni andans og sálarþreksins Lúter var, og þaS var þá líka hugrekkið, sem hann sýndi þar, og djörfungin, sem geröi þennan sögufræga dag í Worms að fæSingardegi vorrar evangelisku lútersku kirkju. Víst þurfti áræði til að festa greinarnar gegn syndalausnarsölunni á hallarkirkjudyrnar. Víst þurfti áræöi til að brenna á báli páfabrjefiö og hinar kirkjulegu lögbækur. En til þess að frambera játningu eins og Wormar-játninguna á slíkum staö, í viöurvist annarar eins samkomu, til þess þurfti hetjulund, sem ekkert hræddist, og þá elsku til sannleikans og þá festu sannfæringarinnar, sem fyllir oss lotningu og aS- dáun. En hvaöan kom Lúter þessi hetjulund, þetta hugrekki og djörfung, þessi sannleikselska og sannfæringarfesta, nema frá meövitundinni um náöarhjálpræSi guðs í Kristi Jesú, fyrir trúna, án allrar verðskuldunar af vorri hálfu? III. HiS endurfundna evangelium „a f n á S hólpnir f y r i r t r ú“ er þá líka sá arfur, sem Marteinn Lúter hefur eftirlátið oss, börnum hinnar evang. lút. kirkju. Hvernig fáum vjer gert þann arf arðberandi fyrir líf vort? í náöinni öölaSist Lúter lausn undan sektarþunganum, sem á sálu hans hvildi, og hún varö honum uppsprettulind þess óviðjafnanlega þreks, sem hann sýndi í sinni miklu og löngu haráttu vegna sannleikans. Grundvöllur trúar hans var Kristur Jesús, hellubjarg hjálpræöisins, og á því hellubjargi stóö hann í allri baráttu sinni fyrir sannleikans málefni sem hin hugprúða hetja, sem ekki kann aö hræðast. Enginn hefur betur en Lúter fengiö aS reyna sannleika hinna gömlu oröa Hebreabrjefsins (13, 9) : „ÞaS er gott að hjartaö styrkist fyrir náö." En hann fjekk ekki að eins styrkt hjarta sjálfs sín viS náö, heldur hefur hann einnig kent oss þetta hiö sama. Hann háði sína miklu baráttu meö b ó k b ó k- a n n a í hendinni; þar haföi hann endurfundið hiö týnda og gleymda náöar-evangelíum; í oröi hennar haföi hann fundið órólegu, kvíöandi hjarta sínu frið, og þetta orS varð honum hans Gídeons-sverS í baráttunni. Og til þess að vor hjörtu megi „styrkjast fyrir náS“, bendir hann oss öllum, erfingjum sínum, þangaö segjandi: Leitaðu þar og muntu finna. Nú verS- ur því að vísu ekki neitað, aS enginn vor allra lítur nú á dögum nákvæmlega sömu augum á heil. ritningu og Lúter geröi fyrir 400 árum. Því að þótt Lúter væri í skoSunum sínum á ritn- ingunni áö sumu leyti langt á undan sínum tíma og beygði sig ekki fremur þar en annarsstaðar fyrir erfikenningum kirkj- unnar, nema þar sem samviskan leyfði og sannfæringin bauS, þá var hann þó yfirleitt barn sinna tima í skoSun sinni á ritn- ingunni. En þótt skoðunarháttur þeirra tíma, aö því er snertir heil. ritningu, sje nú horfinn og komi aldrei aftur, þá hefur ritningin viö þaS engu glataö af gildi sinu. Því aö Lúter hefur kent oss aö meta hana ekki eftir yfirnáttúrlegum uppruna hennar, sem hann þó trúði á, heldur eftir i n n i h a 1 d i hennar og áhrifavaldi. öllum þeim, er siðferSilega baráttu heyja, og komið hafa auga á hina guðlegu kröfu til vor mannanna í allri hennar hátign og veldi, öllum þeim er ritningin enn vinurinn og leiötoginn. öllum þeim, sem hafa sann- færst um eigin veikleika sinn og neyð, en jafnframt borið gæfu til aö höndla guö í óumræðilegum kærleika hans, öll- um þeim er hún og vefður hún á öllum tímum, bók bókanna, hin gullna bók guösbarna, er flytur þeim Jesúm sem lifandi, himneska ímynd fagnaSarerindisins um náð guðs fyrir trú. Og til þess aö hjarta vort megi styrkjast fyrir náöina og sam- fjelag vort viö guö i Jesú Kristi fullkomnast, er heil. ritning oss gefin — ekki til þess aö d ý r k a hana, heldur til þess aö n o t a hana, til þess aS taka á móti þeim gulleplum, sem þar eru framreidd í silfurskálum, þeim vitnisburöi trúarinnar og samlífsins viS guð í Kristi, sem heilagir guðsmenn þar bera fram. Þar getum vjer fundiS alla þá svölun anda vorum, sem vjer með þurfum, allan þann styrkleika 0g þrek, sem oss er nauösynlegt í baráttu lífsins, alla þá huggun og djörfung, sem vjer getum ekki án verið, þegar húmar aö dauðans nótt, og vjer finnum þetta alt í boSskapnum um hina dásamlegu fyrir- gefandi föðurelsku, sem öllu öðru fremur í þessum heimi megn- ar að friða hjörtu og hugga mæddar sálir og flytja þeim fögn- uö guös barna. Þegar þvi ræöa er um, aS færa sjer í nyt blessunar-ávexti siSbótarinnar, og gera oss sjálfum þann arf, sem Lúter hefur oss eftirlátiö, aröberandi fyrir líf vort, þá fæ jeg ekki sjeö, aö vjer getum þaS með öSrum hætti betur, en aö vjer gerum oss alt far um aö láta hjörtu vor styrkjast viö náöina meS því aö tileinka oss æ betur og betur vitnisburð heilagrar ritningar um þetta óverðskuldaða náSarhjálpræöi fyrir trúna á guðs föðurelsku, opinberaöa oss i Jesú Kristi. Og jafn víst er þá líka hitt, aS meö engu fáum vjer betur heiðrað minningu Lút- ers, meS engu betur vottað honum þakkir vorar fyrir hans ógleymanlega æfistarf. Látum þá, kristnu vinir, náöina vera vorn óhagganlega hjálp- ræöisgrundvöll um tíma 0g eilifö. Látum hjörtu vor styrkjast viö! náöina með því aö skipast undir sigurfána guSs góöa sonar svo sem opinberara náöarinnar og gjafara náSar-hjápræöisins. Gleymum því ekki, aö slík sæmd sem þaö er oss aS teljast til barna hinnar evangelisku lútersku kirkju, þá verður áreiSan- lega sú sæmd einskis viröi, nema vjer kappkostum aS eiga sömu t r ú n a, sem gerði Lúter aS þvi, sem hann var, aö höndla sama sannleikann, sem geröi hann frjálsan Og eignast sömu perluna dýru, sem hann eignaðist og varð- veitti til æfiloka. GóSur guð gefi oss sem sönnum börnum siöbótarkirkjunnar og erfingjum Lúters, aö halda arfi vorum oss til blessunar og heilla. Hann gefi oss öllum aö vaxa í hjálpræSisnáðinni og fullkomnast í tileinkun hennar fyrir lifandi og starfandi trú. Hann gefi oss að byggja alt vort traust á Jesú Kristi einum svo sem bjargi hjálpræSis vors, svo aö hann veröi lífiS og kraft- urinn í öllu lífi voru. Hann veiti oss náö til þess, aö oss verði með hverjum liSandi degi sífelt augljósari sannleikur orða postulans, aö „ekki er hjálpræSiö í neinum öö'rum, þvi arS eigi er heldur annaö nafn undir himninum, er menn kunna áð nefna, er oss sje ætlað fyrir hópnum aö veröa." Höfum Lúters nafn í heiöri og þakklátri endurminningu hans mikla starfs, en látum þaö jafnframt sífelt minna oss á, aö í J e s ú nafni einu ber oss hólpnum aö veröa. Hans nafn, Jesú nafn, sje blessað aö eilifu. — Amen.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.