Lögrétta

Útgáva

Lögrétta - 28.11.1917, Síða 1

Lögrétta - 28.11.1917, Síða 1
Ritstjóri: ÞORST. GÍSLASON. Þingholtsstræti 17. Talsími 178. AfgreiSslu- og innheimtum. i ÞÓR. B. ÞORLÁKSSON. Bankastrzti II. Talsími 359. Nr. 54. Reykjavík, 28. nóvember 1917. XII. árg. Sv. Jónsson & Co. Kirkjustræti 8 B. Reykjavík hafa venjulega fyrirliggjandi miklar birgðir af fallegu og endingargóðu veggfóðri, margskonar pappír og pappa — á þil, loft og gólf — og gips- uðum loftlistum og loftrósum. Símnefni: Sveinco. Talsími 420. innlendar og erlendar, pappí'r og alls- konar ritföng, kaupa allir i Bðkaverslun Sigtúsar Eymundssonar. • ~s Klæðaverslun H. Andersen & Sön Aðalstr. 16. Stofnsett 1888. Síml 32. Par eru fötin saumuð flest. Par eru jataefnin best. Lárus Fjeldsted, yfirrjettarmálafœrslumaður. LÆKJARGATA a. Venjulega heima kl. 4—7 slðd. Til kaupenda Lögrjettu. Svo hefur um samist, að Jón Þorláhsson verkfrœðingur skrifi fyrst um sinn að staðaldri íLög- rjettu greinar um landsmál og verkleg mdl. Ritstjðrn blaðsins verður eftir sem dður í höndum Porsteins Gíslasonar eins'. Útgefen durnir. Landsverslunin. 1. Söguágrip. Mönnum gerist býsna tíðrætt um það fyrirtæki nú upp á síðkastið, og er það eðlilegt, því að fátt eða ekk- ert af því, sem ráðist hefur verið í á þessu landi, hefur snert svo mjög hagsmuni hvers einstaks manns, sem þetta fyrirtæki gerir. Eftir því sem til landsverslunarinnar er stofnaS, og svo umfangsmikil sem hún er orðin, þá verður ekki annaö sjeði, en að á rekstri þess fyrirtækis, og á þeim stjórnarráðstöfunum, sem eru því ná- tengdar, velti að miklu leyti bæði það, hvort einstaklingar þjóðfjelags- ins komast fram úr dýrtíð styrjaldar- innar án þess að bíða óbætanlegt tjón á efnahag sínum, og eins hitt, hvort landsjóðurinn kemst yfir ófriðar- tímann án þess að sökkva svo í skuld- ir, að framfaraviðleitni þjóðarinnar kyrkist tim langt skeið. Tildrög landsverslunarinnar eru þau, að þegar styrjöldin skall á um þingtímann X914, virtist þingmönn- um nauðsynlegt að verja nokkru af fje landsjóðs, eða lánstrausti hans, til þess að útvega og flytja til landsins forða af nauðsynjavöru, sem grípa mætti til, ef aðflutningar stöövuðust. Til framkvæmda í þessa átt leigði landstjórnin siðan norskt gufuskip, Hermod, og kom það hingað með kolafarm frá Eglandi, og sótti síð&n matvörufarm til Ameríku. Til að annast innkaupin vestra sendi lands- stjórnin hæfasta manninn, sem völvar á.meðeiganda elstu og helstu innlendu heildverslunarinnar, hr. Ól. Johnson ræðismann, og með honum þáverandi alþingismann Svein Björnsson yfir- dómslögmann. Var ekki unt að neita því, að hjer var vel af stað farið. Raunasaga landsverslunarinnar byrjar daginn sem Hermod hafnaði sig í Reykjavík hlaðinn Ameríkuvör- um. Þá um kvöldið snýr stjórnarráð- ið sjer til herra Olgeirs Friðr geirssonar, sem þá var samgöngu- málaráðanautur stjórnarinnar, og bið>- ur hann að annast afgreiðslu á vör-. unum. Og jafnframt er honum tilkynt sú furðulega ákvörðun, að' þennan forða, sem fenginn var til þess að bæta úr skorti er orsakast kynni af flutn- ingateppu seinna meir, — ætti að selja þegar í stað, og mætti selja öllum fjelögum, hverju nafni sem nefndust, en engum kaupmönn- um eða einstökum mönnum. Þess naut nú við, að hr. O. F. var bæði þaulæfður verslunarmaður og mesti dugnaðarmaður; bjó hann út bókfærslufyrirkomulag, útvegaði bæk- ur, eyðublöð og afgreiðslufólk alt i einni svipan, og húsnæði fyrir skrif- stofu. Mesta ekla var þá á vöru- geymsluplássi í bænum, og tókst hon- um ekki að fá húsrúm fyrirallanfarm- inn, en það kom ekki að sök, því að afgreiðslan gekk svo fljótt, að 200— 300 smálestir voru seldar og afgreidd- ar, áður en uppskipun farmsins var lokið, og stóðst það á endum, að þá var húsrúm það fult, sem fáanlegt var. Stjórnarráðið ákvað vöruverðið, og að þær vörur, sem afhentar væru í Reykjavík, skyldu borgaðar til versl- unarskrifstofunnar, en jiær, sem sendar væru út um land, skyldu borg- aðar til sýslumanna gegn farmskír- teini og sýslumennirnir síðan gera skil — ekki til verslunarskrifstofunn- ar, heldur til stjórnarráðsins. Stjórn- arráðið ákvað í hverju einstöku til- felli hverjum mætti selja vörur, og hve mikiö, og tilkynti það verslunar- skrifstofunni, en hún afgreiddi sam- kvæmt því. Þegar forðabúrið var orðið tómt, þurfti auðvitað að fylla það aftur. Kaupmenn takmörkuðú þegar í stað aðflutninga sína, eins og eðlilegt var, þar sem vörubirgðir þeirra hlutu að endast þeim mun lengur, sem svaraði forða þeim, er landsverslunin hafði úthlutað. Var því öllum ljóst, að ef aðflutningar teptust vegna stríðs- ins, jiá væri ekki frekar en áður unt að treysta því að nægar birgðir yrðu fyrir í landinu. Þess vegna hjelt landsverslunin á- fram, og hjelst fyrirkomulag hennar óbreytt í öllum aðalatriðum til loka aprílmán. þ. á. Voru helstu drættir fyrirkomulagsins þessir: Stjórnarráð- ið annaðist að öllu leyti i n n k a u p vöi unnar, einnig f 1 u t n i n g henn- ar til landsins, hvort sem var með útvegun skiprúms eða með leigutöku skipa; það hafði jafnvel líka stund- um fyrstu missirin á hendi u p p- s k i p u n varningsins og greiðslu á þeim kostnaði; það á k v a ð ú t- s ö 1 u v e rð vörunnar; þangað áttu allir þeir að snúa sjer — munnlega eða brjeflega — sem vildu fá keypt- ar vörur, og var þá stundum býsna mikil erill á 2. skrifstofu stjórnar- ráðsins, sem áður var langsamlega ofhlaðin störfum; stjórnarráðið t i 1- k y n t i síðan verslunarskrifstofunni hverjum ætti að selja og h v e m i k i ð. Allir i n n k a u p s- r e i k n i n g a r og s k i p a 1 e i g u- reikningar m. m., gengu til stjórnarráðsins og voru borgaðir þar, og loks var sumt af andvirði hinnar seldu vöru greitt þang- að (frá sýslumönnunum) en sumt til verslunarskrifstofunnar. Verslunar- skrifstofan annaðist geymslu og af- greiðslu vörunnar hjer, sá um vá- tryggingu vörusendinga út um land, sendi kaupandanum reikninga, tók við borgun frá sumum kaupendunum, (einkum innanbæjar og nærsveitis) og borgaði út áfallinn kostnað hjer á staðnum. Sá gallinn á þessu fyrirkomulagi, sem fyrst kom í ljós, og vorkunnar- laust hefði verið að sjá fyrirfram, var að ómögulegt var að halda uppi skipulegri bókfærslu yfir fyrirtækið í heild sinni. Alt það, sem verslunarskrifstofan gerði og af- greiddi, var bókfært þar með mestu nákvæmni; en úr því gat vitanlega ekki orðið nein bókfærsla yfir versl- unarviðskiftin í h e i 1 d s i n 11 i, j)ar sem vantaði bæði innkaupsreikninga, farmgjaldsreikninga og reikninga yf- ir ýmsan annan kostnað sem var borgaður í stjórnarráðinu. Þó tók það út yfir alt að ekki einu sinni borgun fyrir allar seldar vörur var látin ganga til skrifstofunnar. Sýslu- mennirnir sendu nær undantekningar- laust beint til stjórnarráðsins það sem skiftavinir út um land —- sveitarfje- lög og aðrir — greiddu til þeirra. Raunar á 11 i verslunarskrifstofan jafnan að fá tilkynningu um þessar greiðslur — til þess að hlutaðeigandi skiftavinir stæðu ekki sem skuldu- nautar til eilífðar í bókum verslunar- skrifstofunnar fyrir vörur, sem þeir væru búnir að borga — en vegna hins sökkvandi annríkis á atvinnu- málaskrifstofu stjórnarráðsins drógst það oft lengi að tilkynningar um inn- borganir til stjórnarráðsins bærust verslunarskrifstofunni. Og enginn skiftavinur utanbæjar þurfti að ótt- ast „rukkun“ þó afgreiðslan dræg- ist. Verslunarskrifstofan gat ekki vit- að nema greiðslan væri komin til stjórnarráðsins, stjórnarráðið gat ekki vitað nema hún væri komin til verslunarskrifstofunnar. Og þótt bók- færsla verslunarskrifstofunnar væri skipuleg og nákvæm, þ a ð s e m h ú n n á ð i, þá þarf ekki að skýra þeim, sem kunnugir eru starfstilhög- uninni í stjórnarráðinu, frá því, hvernig sá hluti bókfærslunnar muni hafa verið, sem þar hlaut að gerast. Á siðastliðnum vetri sá landstjórn- in það loks, að svona mundi ekki mega halda áfram. Fól hún þá hr. Þórði Sveinssyni að gera upp alla reikninga verslunarinnar — einnig þá, sem til þessa höfðu verið geymdir í stjórnarráðinu — frá byrjun og til aprilloka 1917. Jafnframt var O. F. falið að gera tillögur um fullkomið bókfærslufyrirkomulag, sem væri miðað við það, að allir reikningar gengi gegnum verslunarskrifstofuna. Og bjó hann það út með aðstoð hr. Halldórs Eiríkssonar, sem áður var bókhaldari Eimskipafjelagsins, og samþykti stjórnarráðið það form, Tók verslunarskrifstofan bókfærsluna upp frá 1. maí þ. á. Um sama leyti voru horfurnar um vörubirgðir í landinu og aðflutninga orðtiar verri en nokkru sinni fyr, vegna hins aukna kafbáta-hernaðar, og þótti því nauðsynlegt að hafa meira eftirlit með skiftingu vöru- birgða milli hjeraðanna en áður. Út úr því fór fram talning vörubirgða í landinu, og reglugerðum rigndi nið- ur frá stjórnarráðinu, eins og kunnugt er. Varð nú ókleift verk fyrir stjórn- arráðið að ákveða í hverju einstöku tilfelli, þegar beðið var um vörur til kaups, hvort og hve mikiðt mætti selja. Var upp úr því sett á stofn sjerstök skrifstofa utan stjórnarráðs- ins, sem var nefnd m a t v æ 1 a- hagstofa, og átti að reikna út og ráða hverjir gætu fengið land- sjóðsvörur keyptar og annast af- greiðslu skipa þeirra, sem kæmu hing- að með vörufarma. Var hr. Þórður Sveinsson ráðinn til að veita þessari skrifstofu forstöðu, jafnframt því er hann vann að því að gera upp reikn- inga verslunarinnar. En eftir stuttan tíma sagði hann af sjer þessum störf- um (í júlí 1917). Um sama leyti var hr. Hjeðinn Valdimarsson kominn hingað frá Khöfn, eftir að hafa ný- lokið háskólaprófi í hagfræð'i. Hafði verið ráðgert að hann að afloknu prófi tæki við ritstjórn blaðsins „Tím- inn“, sem er flokksblað atvinnumála- ráðherrans, en ekki orðið af því. Tók hann nú við forstöðu matvælahag- stofunnar af hr. Þ. Sv. Nú var þá fyrirkomulagið orðið i aðalatriðunum þannig, að s t j ó r n- a r r á ð i ð keypti inn vörurnar, ann- aðist flutning á þeim til Reykjavík- ur og ákvað verðið, matvælahag- s t 0 f a n skipaði vörunum upp, og ákvað hverjir skyldu fá þær keypt- ar, en verslunarskrifstofan hafði afgreiðslu, innheimtu og bók- færslu á hendi. En þó þessari skift- ingu sje lýst hjer þannig í fám orð- um, þá var verkaskiftingin í rauninni ekki hrein eða afmörkuð. T. d. fór það að koma fyrir, að forstjóri m a t- vælahagstofunnar afhenti skiftavinum vörur við skipshlið, þegar hann var að afferma skipin, eða gaf pakkhúsmönnum verslunarskrif- stofunnar fyrirskipanir um aðafhenda skiftavinum vörur úr geymsluhúsun- um. Var þetta að vísu krókaminni leið fyrir skiftavinina, en að þurfa fyrst að fá leyfisbrjef matvælahag- stofunnar upp á vasann, fara síðan með það upp á verslunarskrifstofu og þaðan til vörugeymsluhússins; en auðsjeð að slíkt hlaut að baka mikla erfiðleika á bókhaldi verslunarskrif- stofunnar, enda ávalt mögulegt að eitthvað gleymist þegar hinar rjettu bækur til innfærslu eru ekki við hend- ina. Um sama leyti stóð það ómót- mælt í „Tímanum" og fleiri blöðum, að hr. Hjeðinn Valdimarsson væri ráðinn forstjóri landsverslunarinnar, og sagði þá O. F. forstöðunni lausri frá 18. sept. að telja, en tók að sjer fyrir tilmæli atvinnuráðherra að vera til 1. okt., og setti því næst eftirmann sinn inn í starfið, en það varð hr. H. V. Sameinaðist þá matvælahag- stofan og verslunarskrifstofan undir forstöðu hans. Vakti það almenna undrun, að svo ungur maður, algjör- lega óreyndur, ókunnugur landshög- um, sem aldrei hafði fengist við verslunarstörf, skyldi gerður áð for- stjóra slíks fyrirtækis. Verkaskiftingin milli stjórnarráðs- ins annars vegar og landsverslunar- innar hins vegar hefur ekki breytst, Stjórnarráðið annast að öllu leyti inn- kaupin, leigir skip til flutninganna og ákveður útsöluverðið, en fær þó tillögur forstjórans þar um. Þegar varan er komin á höfn hjer, tekur landsverslunin við henni. Forstjórinn ræður starfsfólk verslunarinnar, en ekkert erindisbrjef hefur honum verið sett. Um stærð landsverslunarinnar gef- ur núverandi forstjóri þær upplýs- ingar, að skuld fyrirtækisins við land- sjóð sje sem stendur um 6j4 milj., k r. ■— og er þá meðtalið verð kola- og saltfarma þeirra, sem seinast komu hingað. Samanlagt útsöluverð á vör- um þeim, s.em afgreiddar voru frá versluninni á 6 mánuðum, frá 1. maí til 31. okt., var um 5 m i 1 j. og 300 þ ú s. k r. Starfrækslukostnaðurinn í Reykjavík yfir sama tíma um 70.000 kr. Eggert Ólafsson. Afmælishugleiðingar. Eftir G u ð m. G. B á r ð a r s o n. 1. desember er einn af merkisdög- um íslensku þjóðarinnar; þann dag fæddist Eggert Ólafsson varalögmað- úr árið 1726. í vetur eru liðin 191 ár frá þeim atburði. Fáir eru þeir ágætismenn, sem vjer höfum átt, er öll alþýða manna hjer á landi ber jafn hlýjan hug til og geym- ir í jafn fersku minni og Eggert Ó- lafsson, og sjaldan mun íslenska þjóð- in hafa verið snortin af jafn djúpri hrygð og þegar hún spurði hið svip- lega fráfall hans. — Þetta virðist líka vel skiljanlegt þegar þess er gætt, að fáir eða engir hafa á þeim tíma skilið þjóðina eins vel og hann og kunnað eins vel að meta alt það besta, er þjóðin átti í fari sínu. Eggert var miklum hæfileikum bú- inn og hafði fengið afbragðs ment- un, bæði hjer heima og erlendis. En utanför hans og kynni þau, sem hann hafði af öðrum þjóðum, gerði hann ekki, eins og svo marga í þann tíð, fráhverfan íslenskum háttum og menningu, heldur sneri hann öllum hug sínum til íslands og íslensku þjóðarinnar, og notaði hæfileika sína og þekkingu til að halda á lofti öllu því fegursta og besta, er þjóðin og landið átti í fórum sínum, og vekja eftirtekt landa sinna á því. Á 18. öld litu margir mentamenn vorir smáum augum á islenska tungu og gerðu sjer lítið eða ekkert far um að varðveita hana í ritum sínum. Sumir töldu jafnvel þjóðinni það far- sælast og mest til virðingar og frama að leggja 'niður móðurmál sitt og taka upp danska tungu í hennar stað1. Á móti þessari skoðun lagðist Eggert Ólafsson af alefli. Hann bar lotningu fyrir íslenskri tungu og sýndi mikinn áhuga í því að varðveita hana hreina og ómengaða og sem líkasta fornmál-j inu. Kom hann þar alþýðunni til liðs, er sjálf hafði geymt tungu vora á vörum sínum að mestu óbreytta í 9 aldir, með tilstyrk hinna fornu sagna- rita. Mun Eggert hafa átt góðan þátt í því að vekja virðingu sumra samtíð- armanna sinna, er við ritstörf feng- ust, fyrir móðurmál sínu. Þó Eggert dveldi erlendis og kynt- ist háttum Dana og að líkindum fleiri þjóða óbeinlínis, fór honum ekki svo, eins og stundum hefur viljað: við brenna, að hann liti smáum augum á íslenskar siðvenjur og teldi þá þjóð-j inni til vansa. Við þau kynni óx virð- ing hans og ást á þjóðlegum siðum og háttum er hann taldi góða, og þró- ast höfðu með íslensku þjóðinni. Vildi hann umfram alt að þeir varð- veittust og sætu í fyrirrúmi fyrir út- lendum siðum hjá landsmönnum, og gekk þar sjálfur á undan öðrum. Þannig ljet hann haga brúðkaupi sínu með fornum íslenskum hætti og ljet gera sjer brúðkaupsklæði af alíslensk- um efnum. Þetta var ekki af fordild gert. Hann vildi með þessu, eins og svo mörgu öðru, vekja virðingu landa sinna fyrir því, sem íslenskt var og gott, og beina mönnum í þá átt, að sýna ræktarsemi þjóðerni sínu og þjóðlegum háttum í smáu og stóru. Hann áleit, að slíkt skapaði sjálfs- meðvitund, sjálfstæði og festu hjá þjóðinni, en hitt bæri vott um undir- lægjuskap og þrekleysi, að hafna tungu sinni og góðum þjóðsiðum vegna erlendra áhrifa. Sjálfsagt mun Eggert hafa haft gleggri þekkingu á landkostum ann- ara gróðursælli landa en flestir sam- tíðarmenn hans innlendir, og sjeð, áð landið okkar hafði færri gæði að bjóða íbúum sínum í jarðargróðri en flest nágrannalöndin. En það megn- aði ekki að vekja hjá honum barlóms- anda og vonleysi um framtíðarhag þjóðarinnar, sem mjög var ríkjandi manna á meðal í þá daga. Hann tekut ómjúkum höndum á víli og voli þeirra landa sinna, er alt sitt volæði vildu kenna guði og náttúrunni. Egg- ert rennir augum yfir landið og bendir löndum sínum á kosti þess og gæði, og hvetur þá til að sína dáð og dug í því að notfæra sjer á skynsamlegan hátt hinar margbreyttu nytjar er land- ið hafi að bjóða, þá muni þeir með sparsemi og nýtni geta hafið sig upp úr fátæktinni og lifað farsælu oggóðu lífi, sem sjálfstæðir menn. Hann legg- ur mikla áherslu á það, að lands- menn noti sem best alt það, sem afla má innanlands til lífsnauðsynja, hress- ir.gar, fegurðar og yndisauka, svo að þeir geti sparað sjer kaup á ýmsum erlendum varningi, er vel megi án

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.