Lögrétta - 11.09.1918, Qupperneq 3
LÖGRJETÍÁ
i57
V antraustsyf irlýsing.
Sig. Stefánsson og Halldór Steins-
son fluttu svohljóöandi till. til þings-
ályktunar i sameinuðu alþingi:
„Alþingi ályktar að lýsa vantrausti
á núverandi atvinnumálaráðherra og
skora á hann að beiðast lausnar, svo
og aö skora á forsætisráðherra aö
gera þegar fullnægjandi ráðstafanir
til þess, að atvinnumálaráðherrann
verði leystur frá embætti.“
Svo flutti Sig. Stefánsson einn við-
aukatillögu samhljóða aðaltillögunni
um vantraust á fjármálaráðherra.
JÞessar tillögur voru til urrrræðu á
: íánudaginn. Sig. Stefánsson • hafði
tramsögu málsins og fann margt áð
samsteyp ust jórnarf y rirkomulaginu,
eins og þvi væri hjer háttað, en beindi
árásinni þó einkum gegn atvinnu-
málaráðherranum. Taldi samt fjár-
málaráðherrann'honum að ýmsu leyti
samsekan. lín í garð forsætisráðherra
m.ælti hann vingjarnlega. Hann kvað
svo að orði, að stjórnin væri þinglaus
cg þingið stjórnlaust. — Þar næst
töluðu allir ráðherrarnir, forsætisráð-
herra um stjórnarfyrirkomulagið yf-
irleitt, en hinir svöruðu þvi, sem til
þeirra hafði verið talað, — þá talaði
CiUðm. Björnson landlæknir og bar
tram svohljóðandi rökstudda dags
skrá:
„Þar sem vantrausts-yfirlýsing sú,
sem fram er komin til atvinnumála-
ráðhcrra og' fjármálaráðherra, get,ur
spilt eindrægni þeirri sem nauðsynleg
Var og er fyrir framgang aðal-máls
þings og þjóðar — sambandsmálsins
•— sém enn er ekki útkljáð að fullu,
þá þykir þinginu ekki hlýða, að bera
liana undir atkvæði og tekur fyrir
næsta mál á clagskra."
Þar næst talaði Halldór Steinsson
og var harðskeyttur í garð atvinnu-
málaráðherra. 1 sömu átt, með van-
traustsyfirlýsingunni, töluðu þeir Jón
frá Hvanná, Eggert Pálsson og Gísli
Sveinsson. En með dagskrártillögu
G. B. töluðu Bjarni frá Vogi og Sv.
Ólafsson og lýstu yfir, hvor frá sín-
um flökki, aö þeir bæru hvor um sig
tiaust til síns ráðherra, en G. B. hafði
áður lýst yfir því fyrir hönd Heima-
stj.flokksins, að hann bæri fult traust
til fulltrúa síns í stjórninni, forsætis-
ráðherrans. — Umræður stóðu til kl.
1 á þriðjudagsnótt og var þá dag-
skrá G. B. samþykt með 20 atkv.
gegn 12.
Með dagskránni greiddu atkvæði:
Jóh. Jóhannesson, Bjarni Jónsson,
Einar Árnason, Guöjón Guðlaugsson,
Guðm. Björnsson, Guðm. Ólafsson,
Hjörtur Snorrason, Jör. Brynjólfsson,
Karl Einarsson, Magnús Kristjáns-
son, Matth. Ólafsson, Ólafur Briem,
Pjetur Jónsson, Pjetur Þórðarson,
Sig. Sigurðsson, Sigurjón Friðjóns-
son, Stefán Stefánsson, Sveinn Ólafs-
son, Þorleifur Jónsson, Þorsteinn
Jónson.
En á móti: Björn Kristjánsson,
Eggert Pálsson, Einar Arnórsson,
-Gísli Sveinsson, Halldór Steinsson,
Ilákon Kristófersson, Jón Jónsson,
Kristinn Daníelsson, Magnús' Guð-
mundsson, Magnús Pjetursson, Pjet-
ur Ottesen, Sigurður Stefánsson.
Ráðherrarnir allir, Ben. Sveinsson,
og Magnús Torfason greiddu ekki
atkv., en Björn Stefánsson og Einar
Jónsson voru fjarverandi, auk Þórar-
ins Jónssonar, sem ekki kom til þings.
önnur mál.
Auk sambandsmálsins og till. um
vantraustsyfirlýsingu hafði þingið
þessi mál til meðferðar:
1. Frv. um sjerstakar dómþinghár i
Skarðs- og' Klofningshreppum í Dala-
sýslu. Flm.: Bjarni Jónsson frá Vogi.
/-fgreiddi þingið það sem lög frá al-
þingi.
2. Þingsályktun iwn greiðslu á
aukakostnaði af flutningi innlendrar
vcru, sem stafar af fyrirmælum út-
ílutningsnefndar. FJm. Ben Sveins-
son. — Þessari tillögu var vísað til
stjórnarinnar.
3. Þingsályktun um sölu á kjöti og
fl. Flm.: Pjetur Ottesen og IJákon
Kristófersson. — Neðri deiid Alþingis
ályktar að skora á landsstjórnina að
láta einskis ófreistað, sem stutt geti
að þvi, að greiða fyrir sölu á kjöti
og öðrum afurðum. — Tillagan var
samþykt.
Þingslit
fóru frsni kl. 5 í gær. Forseti sam.
alþ., Jóh. Jóhannesson bæjarfógeti,
mælti um leið og hann lýsti yfiv aö
störfuin þingsins væri lokið :
................. ...... 1 .. —- .——.
Þetta þing, hið stytsta, sem haldið
hefur verið — það hefur staðið í eina
9 daga — hefur ráðið til lykta fyrir
sitt leyti hinu mikilvægasta máli, sem
legiö hefur fyrir Alþingi, sáttmálan-
um við sambandsríki vort, Dan-
mörku, um það, að Island skuli vera
viðurkent og auglýst frjálst og full-
valda ríki, ævarandi hlutlaust i ófriði
og í konungssambandi einu við Dan-
rnörku.
Þessi sáttmáli hefur af vorri hálfu,
íslendinga, verið samþyktur af yfir-
gnæfandi meiri hluta Al])ingis, og
verður nú bráðlega borinn undir al-
þingiskjósendur í landinu til sam-
þyktar eða synjunar.
Það er ósk og von þessa nieiri
hluta þingsins, a ð þjóðin taki sátt-
málanum ekki lakar en þingið og að
einnig rneiri hluti hennar gjaldi já-
kvæði sitt við honum, að Ríkisþing
Dana samþykki hann fyrir sitt leyti
og a ð sameiginlegur konungur vor
staðfesti hann.
Það er innileg ósk og von vor
allra, að hin íslenska þjóð kunni með
fullveldi sitt að fara og að gæta þess,
og að það megi reynast henni í fram-
tíðinni öflug lyftistóng til sannra
framfara í andlegum og veraldlegum
eínum.
Það gefi guð.
1
Fyrsta lieftið komið út, tvöfalt. — Hefir inni að halda eigi færri en 16 greinar ýmislegs efnis;
skemtigreinar, fræðigreinar, sögur, ljóð, þar á meðal snildarlega skopvísu eftir Jónas Hallgrímsson,
áður óprentaða. „Nýja sambamlslagafrumvarpið11, eftir decanus iagadeiidar Háskólans, pró-
fessor Lárus H. Bjarnason, verða allir lslendingar að lesa!
Eimreiflin er langódýrasta ritið sem geflð er út á íslensku án meðgjafar.
Kemnr út i fjórum heftum á ári, verð árgangsins 5 kr. Kaupendum hennar fjölgar svo ört, að
alveg eiu einsdæmi um nokkurt rit á íslandi. Yegna álits hennar og útbreiðslu keppa ritfærustu
menn þjóðar vorrar um að rita í hana, og með hinum fjölhæfa nýja ritstjóra verður því fyrir hana
að eius hið besta nógu gott!
Þór getið ekki gefið, sérstaklega fjarlægum vini yðar, aðra kærkomnari gjöf eD Eimreiðina.
Gefið mór að eins upp nafn hans og áritun; eg sendi honum ritið og yður reikning fyrir það (út
um land með póstkröfu, ef vill) og þurfið þór þvi alls ekkert fyrir þvi að hafa.
Eg veiti alveg einstæð verðlaun þeim, sem safna nýjum kaupendum. Farið því strax til þess,
svo að aðrir verði ekki á undan yður!
Gerist kaupendur að Eimreiðinni strax i dagl
Snúffl yflnr tll næsta bóksala efla útsölnmanns, efla belnt tll
*
Sambandsmálið
Almenningsatkvæðagreiðsla
19. október.
Stjórnarauglýsing' koni út í gær um
aimenna atkvæöagreiöslu um sam-
bandslög þaU, sem alþingi hefur nú
samþykt. Atkvæöisrjett hafa allir,
karlar og konur, sem kosningarrjett
hafa viö óhlutbundnar kosningar til
alþingis. Atkvæöagreiöslunni stýra
kjörstjórnir og yfirkjörstjórnir, sem
um getur í 7. og 8. gr. laga um kosn-
ingar til alþingis frá 3. nóv. 1915.
Svo gitda og ákvæði nefndra laga um
kiörstaö, kjörherbergi og atvæða-
kassa.
Atkvæðagreiöslan skal heíjast á há-
degi laugard. 19. október næstk.
Um atkvæðagreiðslu þeirra rnanna,
sem staddir eru utan þess hrepps eða
kaupstaðar, þ^r sem þeir standa á
kjörskrá, þegar atkvæðagreiðsla fer
fram, fer svo sem fyrir er mælt i lög-
um frá 30. nóv. 1914 um atkvæða-
greiðslu þeirra við alþingiskosn-
ingar.
Það er ástæða til að hvetja kjós-
endur um alt land til þess, aö sækja
vel atkvæöagreiösluna 19. október í
haust og greiða hinum nýju sam-
bandslögum atkvæði. Enda þótt sjálf-
sagt megi telja, aö lögin sigri við
atkvæðagreiðsluna, að engin hætta
sje á því, að mótstöðumenn þeirra geti
orðið þar ofan á, þá skyldu menn
ekki láta þá vissti leiða sig til þess
að sitja heitna og greiða ekki at-
kvæði. Hjer er verið að binda enda
á deilumál, sem staðið hefur yfir
tnannsöldrum saman og oft hefur ver-
ið sótt tneð miklu kappi af íslendinga
hálfu. Og Lögr. veit ekki betur en aö
almenn ánægja sje meö úrslitin. En
þá á þaö líka að koma fram við at-
kvæðagreiðsluna, að svo sje. Hitt
væri óviðkunnanlegt, enda þótt lögin
verði samþykt, aö sjá það á atkvæða-
greiðslunni, að ntenn hefðu gengið til
hennar með hangandi hendi og ekki
lagt við máliö þá rækt, sem það verö-
skuldaði.
Komið því til atkvæðagreiðslunnar
19. októbar næstk., háttvirtir kjós-
endur, og samþykkið þar sambands-
lögin!
Frjettir.
óáran og grasbrestur er sögð hvað-
anæfa, og mun bændur neyddir til að
lóga miklu af búfjárstofni sínurn.
Landsverslunin ætlar að koma upp
vörugeymslu í haust á isafirði, Ak-
ureyri og Seyöisíirði og flytur Lag-
arfoss þangað varning þann, er hann
kom með. frá Vesturheimi nú síðast.
Radíumsjóðurinn hefur nýlega
fengiö 200 kr. gjöf frá Hallberg veit-
Bókaversl.
Arsæls Arnasonar
Laugaveg 4.
Reykjavik.
ingam. og 1000 kr. frá hf. Framtiðin t
á Seyðisfiröi.
Landlæknir fór á staö í eftirlits-
ferð til Norðurlands, sjóveg til Borg-
arness, en npröanþingmönnum þaöan
samferöa landveg.
Verðlagsnefndin. G. Björnson land-
læknir hefur nú sagt af sjer for-
mannsstörfum í þeirri nefnd, vegna
annara anna, og hefur bent á Pjetur
Jónsson alþm. frá Gautlöndum til
þess að taka við formannssætinu í
verðlagsnefndinni.
Berklahæli. Einhver hreyfing virð-
ist komin á það Norðanlands, að
koma þar á fót nýju berklahæli, og
hafa fundir verið haldnir til styrktar
þvi.
Trjesmiðafjelag Reykjavíkur fór
skemtiför inn að Laugarnesi sunnud.
25. f. m. Kvæðið, sem hjer á öðrurn
stað í blaðinu var flutt við það tæki-
færi.
Raflýsiag í Laugarnesspítalanum.
Kvöldið 3. þ. m. var spitalinn allur
raflýstur í fyrsta skifti, allur í ljós-
bafi, og fólk horfði á hann með undr-
un, vissi ekki hvað um var að vera.
Jensen rafmagnsfræðingur var að
reyna ljóstækin og virtist alt ganga
vel. En í spítalanum, þar sem menn
höfðu hlakkað til þessara þörfu um-
bóta, voru allir á stjái og fögnuðú
nýja ljósinu.
G. Sveinbjömsson skrifstofustjóri
varð eftir mjög mikla innivinnu og
kyrsetur siðastliðinn vetur svo veik-
ur síðari hluta vetrar og i vor, eins
og mörgum er kunnugt, að hann varð
fyrir skömmu að fara utan til að leita
sjer lækninga á lækningastofu hins
alkunna taugalæknis prófessor Viggó
Christiansen í Hellerup við Kaup-
mannahöfn. Með Botníu komu nú
þær fregnir af skristofustjóranum, að
hann sje þegar á besta batavegi og
um það bil að komast á fætur, og
hyg'gur prófessorinn að hann muni
verða albata og fær til heimferðar
með næst-næstu ferð Botníu, í októ-
ber.
Mannalát. í Árnessýslu eru nýlega
látnir tveir gamlir merkisbændur:
Guðni Þórarinsson, áður bóndi í
Tungufelli og viðar, faðir Steinunnar
konu Þorfinns Jónssonar i Tryggva-
skála, Sigurðar í Borgarholti og
þeirra systkina, góður bóndi á sinni
t:ð og maður vandaður í hvivetna, og
vinsæll. — Gunnar Einarsson á Sel-
fossi, háaldraður maður, 80 ára gam-
all, fósturfaðir Simonar bónda Jóns-
sonar, sem þar býr nú, svo sem kunn-
ugt er. Gunnar var einn af þessuni
gömlu, góðu og heiðarlegu mönnum,
cr ekki vildu vamm sitt vita, tryggur
i lund, vinfastur og hinn áreiðanleg-
asti í öllu. Hann bjó lengi á Selfossi,
og jafnan góðu búi. Kona hans, Sess-
elja Plannesdóttir, 87 ára gömul, lifir
enn, og hefur nú veriö blind um
nokkur ár. Gunnar heitinn og þau
hjónin hafa, síöan þau ljetu af bú-
skap, dvalið hjá fóstursyni sínum, Sí-
moni á Selfossi. — Enn fremur ljetst
í sumar á Vifilsstaðahælinu Ingvar
Guðmundsson frá Gýgjarhóli í Bisk-
upstungmn, sonur Guðmundar heitins,
er áður bjó í Þjórsárholti, en stjúp-
sonur Guðna Diðrikssonar á Gygjar-
hóli. Hann var ungur maður, rúm-
lega þritugur, búfræöir.gur frá Hól-
um i Hjaltadal, og mesti efnismaður.
Átti hann um mörg ár við heilsuleysi
að búa, og annála allir er hann þektu
þrek hans og dugnað, er hann jafnan
sýndi þrátt fyrir lasleika og þráláta
heilaubilun.
Ingvar var góðum gáfum gæddur,
tylgdist vel nieð í öllu, og hafði lif-
andi áhuga fyrir framfaramálum
jjjóöarinnar. Hann var hreinskilinn,
tryggur i lund og drengur hinn besti.
Guðm. Thorsteinsson málari hefur
nú opna sýningu á málverkum og
teikninguni eftir sig í Barnaskólahús-
iriu, daglega frá kl. 10—6 e. ni. Þaö
er fjölbreytileg sýning: landslags-
myndir úr Borgarfjarðarhjeraði,
Skagafiröi, Siglufirði, og frá Noregi,
fjöldi mynda úr ísl. þjóðsögum og
gamanmyndir og skopmyndir af ýmsu
tægi. Ein af þeim heitir: „Hefurðu
heyrt?“ og sýnir tvær kjaftakindur
í tröllahömum, en það, sem höf. vill
sýna, kemur ág'ætlega fram í mynd-
inni, þótt tröllagervið sje breitt þar
yfir. Þar rjett hjá er önnur skop-
mynd teiknuð: „Pjetur með sturlan
stærsta,“ gerð eftir smásögunni i
þjóðsögunum, sem hefur þessa fyrir-
sögn. Og margt er þar af líku tægi.
Búkollusagan er sýnd þar í 6 stórum
myndum; „Sálin hans Jóns míns“ í
nokkrum teikningum. Stærsta myndin
h.eitir „Stökkdans í Sætersdalnum“
og er frá Noregi; kostar 1200 kr.
Annars er verð myndanna frá 10 til
400 kr.
Nýtt ættarnafn. Páll V. Guðmunds-
son stud. med. et chir. frá Torfalæk á
Kolkumýrum hefur tekið sjer ættar-
nafnið Kolka.
„Góðgerðir við sjálfan sig og ná-
ungann“ (ofát, kaffi, koges o. fl.) var
fyrirsögn fyrirlesturs, sem Steingr.
Huftárbakkasiiólaneniendur
erit hjer meö ámintir um að konia
í haust með k o r n- og sykurseðla
sína.
Tapast
hefur rauður hestur með hvítri
stjörnu í enni, glófextur, kliptur í
síðu stafirnir P. B., aljámaður. Enn-
fremur grár hestur merktur á eyra
silt vinstra, kliptir á síðu stafirnir P.
B., lika aljárnaður. — Finnandi þess-
ara hesta er beðinn að gera kaupm.
P. M. Bjarnason, Hverfisgötu 46,
Rvik, er greiðir góð fundalaun, að-
vart um hestana.
Matthíasson læknir flutti hjer síðastl.
sunnudag. Var þar húsfyllir og þótti
fyrirlesturinn bæði fróðlegur og
skemtilegur. Ágóðanum var varið
handa örkumla manni. — Örlítið á-
grip skal hjer tekið af efni fyrir-
lestursins.
Læknirinn taldi margt af því, sem
kallað er góðgerðir, vera i rauninni
misgerðir yið maga manna og melt-
ingarfæri. Hjer á landi er alt of mik-
iö af þess konar góðgerðasemi. Eink-
um sulla menn alt of miklu í sig af
kaffi á öllum timum dags. Kaffinu
fylgir oftast brauð, og verða þessar
aukamáltíðir til að iþyngja maganum
og spilla matarlyst manna, þegar þeir
borða. — Kvenfólkið er óhófssamara
í þessu en karlmennirnir. í öllum
kaupstöðum landsins tíðkast alt of
mikið kaffi- og súkkulaðiveitslur, og
hver konan keppist við aðra, að haía
á borðintt sem allra-flestar og ljúf-
iengastar kökur. Svo er venjulega
ckki látið þar með nægja, heldur þarf
að bjóða ávexti eða önnur sætindi þar
á ofan, Stundum fylgir svo borðhald
a eftir með margs konar krásum.
Þegar þetta endurtekur sig dag eftir
dag, eins og stundum, þegar kunn-
tngjarnir eru margir, og hvert boðið
rekur annað, þá verður of mikið af
svo góðu. Þessu hafa margar konur
kvartað yfir við mig, en venjan er
crðin svo rík, að erfitt er að láta af
henni. — Þrátt fyrir dýrtíðina hafa
menn ekki lært að spara viö sig i
mat og: drykk. Varla nokkurstaðar
tilraun. til þess, alstaðar ofát. — Og
þrátt fyrir aðflutningsbann á áfengi
sjest það um hönd haft víðast hvar
um landiö. Hann kvaðst í fyrstu hafa
/