Lögrétta


Lögrétta - 10.09.1919, Side 4

Lögrétta - 10.09.1919, Side 4
4 Lögrjetta nema húsaskatturinn, og virtSist nefndinni nú rjett að hækka hann um helming, og sýnist þaS alls eigi langt farið, er litiiS er til breytingar þeirrar á veríSgildi peninga, sem heimsstyrj- öldin hefur valdið. Nefndin gengur út' frá, aö húsaskattslögin veriSi endur- skoöuiS um leiíS og endurskoðun sú fer fram á skattalöggjöfinni, sem nú stendur fyrir dyrum. Tekjuaukinn af frv. þessu mun nema sem næst 25 þús. kr. á ári. 73. Um heimild til löggildingar á tulltrúum bæjarfógeta til þess a’ð gegna eiginlegum dómarastörfum, o. 11. Frá samvinnunefnd allsherjar •• nefnda. — 1. gr.: Dómsmálaráö- herra er, auk þess, sem áður hefur tiðkast, heimilt að löggilda menn, sem fullnægja lagaskilyrðum fyrir að hafa á hendi dómaraembætti hjer á landi, til þess að skipa dómarasæti í lögreglumálum og halda sakamáls- rannsóknir í kaupstöðum landsins í forföllum hins reglulega dcmara og á hans ábyrgiS. — 2. gr.: Heimilt er lögreglustjóranum í Reykjavík og löggiltum fulltrúa hans að taka boði sökunauts um aö greiða hæfilega sekt samkvæmt gildandi lögum, til þess að sleppa hjá dómi, og skal afplána þær sektir eftir reglu um afplánun fjesekta í öðrum málum en sakamál- um. í greinargerð segir: í Reykjavik eru hin eiginlegu dómarastörf þegar orðin svo umfangsmikil, að einum manni er það á stundum ofvaxiS, að hafa þau á hendi, svo vel sje, og að sama má búast við að geti rekið í hinum öðrum kaupstöðum landsins. þar sem dómararnir hafa svo mörg- um og margvíslegum öðrum embætt- isstörfum að gegna en dómarastörf um. 74. Um þingfararkaup alþingis- manna. Frá launamálanefnd. — 1 gr.: Alþingismenn skulu hafa 12 kr þóknun daglega bæði fyrir þann t;ma, sem þeir sitja á Alþingi, og þann tíma, sem fer til feröa aö heim- an til þings og heim af þingi. — 2. gr.: Ferðakostnað fá alþingismenn sem búsettir eru utan Reykjavíkur, endurgöldinn eftir reikningi .... 3. gr.:. Auk hinnar daglegu þóknunar fá alþingismenn sams konar uppbót á henni ejns og embættismenn lands- ins fá á launum sínum samkvæmt launalögum. 75. Um breyting á 55. gr. laga nr. 16, 11. júlí 1911, um aukatekjur lands- sióðs. Flm.: M. Torf. — 55. gr. auka- tekjulaganna orðist svo : Fyrir að rita á skjöl verslunarskipa og vöru- og mannflutningskipa og fyrir aö láta af hendi þati skilríki, er skipin eiga a'ð fá á íslandi, skal greiða 1 kr. af hverri smálest af rúmi skipsins, þanr ig að Yi smálest eða þar yfir ber að telja heila lest, en sleppa þvi, sem minna er en smálest; skal greiða gjald þetta á hinni fyrstu höfn á fs- landi, er skipið kemur á, til þess að taka á móti vörum eða fólki, eða til þess að skipa upp vörum eða skjóta fólki á land. Nú kemur skipið á aðr- sr hafnir í sömu ferðinni, og skal þá eigi gjald greiða á þeim höfnum fyrir að rannsaka og rita á skjöl þess, eða fyrir nýjar farmskrár, þar með talin löggilding vöruskoðunarvotta. bkip, | sem er U30 smálestir eða meira, og að cins höfð til innanlandssiglinga, eða haldið er úti til fiskjar af landsmönn- um, greiða gjald þetta einu sinni á ári. Skal það goldið í byrjun útgerð- artímans, þar sem skipið er skrásett. Skip, sem skrásett eru í Danmörku og koma hingað eingöngu til fisk- ■veiða, skulu greiða 1 kr. af hverri smálest á fyrstu höfn, er þau taka, þó eigi nema einu sinni á ári. Þingsályktunartillö gur. 21. Um Þingvöll. Frá fjárveiting- nefnd. — Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina: 1. Að láta rannsaka girðingastæði og girðingakostnað um- hverfis svæðið frá Þingvallavatni rnillí Almannagjár og Hrafnagjár norður á móts við Ármannsfell og Iírafnabjörg. 2. Að rannsaka, á hvern hátt heppilegast yrði fyrir komið að afnema búfjárrækt og ábúð á býlun- um Hrauntúni, Skógarkoti og Þing- völlum ásamt Vatnskoti. 3. Að koma ' í veg fyrir, að einstakir menn eða íjelög reisi sumarbústaði eða nokkur onnur skýli á svæðinu, sem í 1. lið getur. 4. Að skipa umsjónarmann á Þingvöllum yfir sumarið, er gæti þar góðrar reglu. 5. Að leggja fyrir næsta Alþingi frumvarp til laga um friðun Alþingisstaðarins forna við Öxará, að meðtöldu umhverfi hans, er æskilegt þykir að -friða. Kostnaðinn, sem af þessu leiðir, er stjóminni heimilt að greiða úr ríkissjóði. 22. Um fræðslumál. Frá menta- málanefnd. — Alþingi ályktar að skora á stjórnina: I. 1. Að endur- skoða löggjöf landsins um barna- fræðslu og unglinga. 2. Að endur- skoða alt skipulag Kennaraskólans, gagnfræðaskóla, búnaðarskóla, og al- þýðuskóla, svo og að rannsaka, hvort heppilegt og gerlegt muni vera að stofna alþýðuskóla í einum eða fleir- um landsfjórðungum, " á . kostnað landssjóðs að öllu leyti eða einhverju. 3. Að undirbúa lagasetning um þessl eíni svo fljótt sem því verður við komið. — II. 1. Að tvískifta þegar í haust 3 efstu bekkjum Hins almenna rnentaskóla, og verði önnur deildirj málfræðisdeild og sögu, en hin nátt- úrufræðisdeild og stærðfræðisdeild. 2. Að rannsaka, hvort eigi mum heppilegast, að kenslugreinir í 3 neðstu bekkjum Mentaskólans verði hinar sömu sem þær voru áður en rúverandi skipulag komst á skóla þennan, svo og hvort eigi skuli setja sömu inntökuskilyrði í hann og sömu einkunnir í honum, sem voru áður en sú skipun var á ger, sem nú er. 3. Að gera þær breytingar á reglugerð skól- ans, sem nauðsynlegar verða sam- kvæmt niðurstöðu rannsóknarinnai. — III. Loks ályktar Alþingi að heirr:- iia Stjórninni að greiða úr ríkissjóði það fje, sem nauðsynlegt reynist til framkvæmda atriða þeirra, sem í I. og II. tölul. greinir. 23. Um skipun milliþinganefndar til þess að athuga og koma fram með tillögur um varnir gegn berklaveiki. Flm.: M. Pjet. — Alþingi ályktar að skora á stjórnina að skipa 3 lækna í milliþinganefnd til þess að rannsaka á hvern hátt megi best verjast berkla- veikinni hjer á landi. Nefnd þessi leggi síðan rökstuddar tillögur sínar fvrir næsta þing, og þá sjerstaklega tillögur urn þær breytkigar á löggjöf • inni, er hún telur nauðsynlegar í þessu elni. Hrossasalan. Um hana var nokkuð deilt i þing- inu. Landbúnaðarnefnd segir í álits- skjali sínu um málið: Hr. Thor Jensen, formaður útflutn- ingsnefndar, sem staðið hefur fyrir hrossasölunni erlendis, hefur látið nefndinni í tje upplýsingar um mark- aðshorfur fyrir íslenska hesta og til- ooð, sem fram hafa komið. Sjest glögt á brjefum og skeytum um mál- ið, að salan hefur verið örðug. Dansk- ir hestar hafa fallið í verði fast að helmingi síðan í fyrra; vonlítið þess vegna eða vonlaust, að fá sama verð og i fyrra fyrir íslenska hesta. Samn- ingaumleitanir byrjuðu um miðjan maí. Um 21. maí gerðu húsmannafje- lögin dönsku boð í 2000 hesta, 4—8 vetra, 48” að stærð, og þar yfir, við skipsfjöl, fyrir 475 kr. hvern, er borg- ast áttu við afhendingu í Danmörku. Tilboðið var bundið við einkasölu. Krafist var svars fyrir 4. júní. 5. júní kom fram tilboð írá Brödr. Zöllner og P. Westergaard & Sön, um kaup á 3000 hestum. En það eru hinir einu kaupmenn í Danmörku, auk Jensens, sem nú er fyrir húsamannafjelögin, er hafa keypt hesta á Islandi. Verðið var Fyrir hross 4—8 vetra, 50” og þar yfir 400 kr., fyrir hross 4—8 vetra 48—50” og þar yfir 340 kr., fyrir hross 3 vetra, 46” og þar yfir 280 kr. Ekki mátti vera nema J4 3 vetra. Borga átti við afhendingu i Kaup- mannahöfn. í tilboðsbrjefinu stendur, að markaður sje ekki fyrir fleiri hesta í Danmörku, nema með miklu lægra verði. Aðrir hestar máttu ekki koma á markaðinn frá íslandi í ár. Tilboðs- frestur var til 17. júní. Sama dag- gerði Louis Zöllner í Newcastle tilboð í 1000—2000 hesta, flutta til Eng- lands. Verðið átti að vera: Fyrir hesta 4—8 vetra (ekki hryssur) 390 kr. fyrir'hesta 3 vetra (ekki hryssur) 280 kr. í Svíþijóð var rannsakaður markað- i:r fyrir hesta, en þar var engin e'tir- spurn eftir þeim, nema þá fyrir mjög lágt verð. Um mánaðamótin maí— júní var farið að þinga um hestakaup við nýjan hestakaupmann danskan, - Levin Hansen. Komst það svo langt, að hann var talinn bundinn við þannig lagað tilboð, að kaupa alla is- lenska hesta, senr út yrðu fluttir i ár, iyrir þetta verð: 600 kr. 4—8 vetra, 4.8” og þar yfir, 500 kr. 3 vetra, 48” og þar yfir, 400 kr. 3 vetra, 46—48” og þar yfir. Skyldi kaupandi greiða flutningsgjald og fóður, en ekki á- 0. fÉRon b Skolason Bankastræti 11 Linnésgade 26 Reykjavík. Köbenhavn. Hafa bein viðskifti við verksmiðjur í ýmsum löndum, sem meðal annars framleiða eftirtaldar vörur: Alls konar prjónaðar vörur úr ull og bómull. Anelinliti egta. Alls konar niðursuðuvörur, svo sem: Græn- meti, Kjötmeti, Álarmelade, Geleer, Avaxtasafa alls konar með sykri, margs konar ávaxtavín óáfeng —— Þurkað grænmeti og ber. Smjörlíki, Osta, Sápur og annað þvottaefni. — Alls konar svertu og áburð, hár- meðul. \ mdla smaa og stora. Neftobak, Mlunntobak. Árar alls konar ur eik og furu. Sildartunnur Kjöttunn- ur, Tunnuvjelar. Alls konar stálvírstrossur úr sænsku stáli. Pappírsvörur mjög fjöibreyttar, þar á meðal versl- unar og bánkabækur og hvers konar eyðublöð, prentun og bókband er annast um eftir hvers manns ósk. Alls konar ritföng. Farfavörur hverju nafni sem nefnast, á trje og málma, þar á meðal olíur og lökk. Kara- mellur, Sukkulaði, Ca'cao, óáfengt ö!. Svuntur, hvítar og mislitar af ýmsum stærðum, afar fjölbreytil. Alls konar skófatnað. Húsgögn frá dönskum verksmiðjum. Þakpappi ýmis konar, Veggpappi og Veggjapappír. Alls konar Gólfdúkar (linoleum). AIls konar Lampar og önnur ljósáhöld. Cement o. fl. Frá stærstu heildsöluhúsum: Nýlenduvörur hvers konar. Jarðepli, Ávextir, Salt, Veiðarfæri. Vefnaðarvör- ur alls konar, tilbúinn Fatnaður. — Smíðajárn og Þakjárn. Skotfæri. Gler- og Leirvörur. Silki einlit og mislit, Silkibönd, Si'kisokkar og Silkihanskar. Alls konar smávörur. Fjölbreyttan skraut- varning o. fl. Einkaumboð á íslandi og Færeyjum fyrir John Willumsen í Isaupmannahöfn. Stærsta og ódýrasta heildsala Norðurlanda á alls konar járnvörum, smáum og stórum, verk færum, blikk-aluminium og steindum (emaileruðum) vörum. Ennfremur á alls konar burstum og kústum, leikföngum, alls konar saum og m fl ------------------ Export-Kaffid frá F. H jort & Co. Kaupmannah öfn, er alment eftirspurt sökum þess, hve drjúgt og bragðgott það hefur reynst. Er það í orðsins sönnu merkingu virkilegur kaffibætir. Verðið þó eigi hærra en á öðru export-kaffi. Fljót afgreidsla. Lágf ómakslaun. Crreid skil. Selja íslenskar afurðir hæsta markaðsverði. Útvegar erlendar vörur með verksmiðjuverðl. byrgð. Hjer var um langtum Deira verð að gera en annars var kostur á. En þegar á átti að herða, hvarf mað- urinn frá þessu boði. Samt hófust samningatilraunir við fjelaga hans, Poulsen Karise, og meðfram fyrír það, að líkindum, að Levin Hansen fjelagi hans hafði gengið svo langt, náðust loks samningar við hann. Samningur sá, er náðist við hann og þá fjelaga, og pú er bindandi, er í aðalatriðunum á þessa leið: Útflutn- ingsnefndin skuldbindur sig til að selja kaupanda 4000 hross, er sje komin af stað til útflutnings fyrir miðjan október, þó svo, að ef skip- rúm skortir fram að þeim tíma, verð- ur eigi krafist meiri tölu en þá er iengin. Verði hestatalan fram yfir 4000, áskilur kaupandi sjer forkaups- riett einnig á þeim hestum. Noti hann eigi forkaupsrjett sinn, má selja þá öðrum í Danmörku, þegar 8 dagar eru liðnir frá þvi síðasti farmur hinna hestanna er afhentur. Þar á móti er írjálst, að nefndin selji til Englands hvenær sem er, þá hesta, sem hún hefur umfram. Verð hestanna er: 600 kr. fyrir hross 4—8 vetra, 48” og þar yfir, 500 kr. fyrir hross 4—8 vetra, 47—48”, 500 kr. fyrir hross 3 vetra 48” og þar yfir, 400 kr. fyrir hross 3 vetra, 46—-48”. Af þessu greiðjr seljandi allan kostnað innanlands, hey, flutningsgjald og almenna sjó- ábyrgð, en að öðru leyti tekur kaup- andi við hestunum á sína ábyrgð á böfn hjer og greiðir verð þeirra, þá er þeir eru komnir um borð og sjó- ábyrgðargjald greitt. Setur hann nægilega bankatryggingu fyrir því; r.ð' verðið sje jafnóðum til taks í Kaupmannahöfn, þá er hver farmur ier og símskeyti koma um tölu hross- anna og tegund. Gegn samningsrofi hefur kaupandi sett trygging í banka, hálfa miljón króna. Áður en tilboðin hækkuðu,var í ráði að láta lausa söluna, með það þó fyrir augum, að verðið kynni að verða 200 —400 kr. í hæsta lagi fyrir hvern hest. En þegar vænkaðist með tilboð, var haldið áfram á sama grundvellin- um og samningar gerðir. Óvíst, hvaða verð hefði fengist, ef sala hefði verið irjáls. Allmiklar líkur til, að verra verð hefði fengist en þetta á jafn- mörgum hestum, ef margir voru frambjóðendur og milliliðir. Og eng- ar upplýsingar hefur nefndin getað fengið um, að kostur sje eða hafi ver- ið á hærra verði. Líkur eru til, að hægt hefði verið að selja fáa hesta, svo sem einn skipsfarm, sæmilegu verði í frjálsr: höfn, en það væri að sjálfsögðu ekki neinn sannur mæli- kvarði á söluhorfum yfirleitt. Eftir- spurn eftir íslenskum hestum hefur sýnilega verið freniur dauf, og er það skiljanlcgt, þar sem danskir hestar hafa fallið svo mjög í verði. Umsam- ið flutningsgjald er 100 kr. fyrir hvert hross; hefði verið minst 25 kr. hærra, cf stjórnin hefði ekki annast útflutn- inginn. Fjelagsprentsmiðjan. r r Notið eingöngu FEYSTIV J ELAR frá THOMAS THS. SABROE & CO., AARHUS, sem eru notaðar um állan heim og þykja alstaðar bestar/ Hafa hlotið mikið lof og fjölda hæstu verðlauna. Iljer á iandi eru vjelar þessar notaðar hjá Sláturfjelagi Suðurlands, Reykjavík; Sameinuða íslensku Terslununum, Akureyri, og ísfjelagi Vestmannaeyja: 33imsliipaíjola§ íslands Og SamelnaSta griíTisltipaíjolagiö nota eingöngu þessar frystivjelar í skipum sínum. 2700 vjelar af öllum stærðum þegar seldar. Biðjið um upplýsingar og verðlista. Einkasaii á íslandi O. J. Jobnsen Vestmannaeyjum. /O ■rt a ui © > ,Frederikshavnc er besti fjórgfeiigismótorinii. Þorsteinn Jónsson járnsm., Reykjavík, fyrir vestur- og suðurland. Ilann brennir steinolíu og er mjög sparneytinn. Vjelin er afar vönduð og ábyggi- leg, gangviss og Iiæg meðferðar. Nánari upplýsingar um vjelina og hið afarlága verð gefa umboðs- mennirnir Karl Nikulásson konsúll, Akureyri, fyrir norður- og austurland.

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.