Lögrétta - 15.09.1920, Qupperneq 2
2
LÖGRJETTA
Svo yrSi auðvitaS Ið kosta ný sæti
í salnum af þeirri gerð, sem við á í
íeikhúsi og góöu samkomuhúsi, og
helst ætti að leggja hæfilegan halla
á gólfflötinn.
Með þessum breytingum ætti
„Iðnó“ a5 rúma 500—700 manns, og
væri þaö fyllilega nóg i bráö. — Aö -
alatriðið er þó það, að leiksvið og
æfinga- og klæðaherbergi leikfjelags-
ins yrðu rúmgóð og sem best úr garði
gerð á allan hátt.
Þetta var þá það, er jeg aðallega
vildi leyfa mjer að benda á að sinni.
Og ætti að mega gera þess háttar
breytingu á tiltölulega skömmum
tíma þegar i haust. — Er þá að eins
eitt atriði eftir. Að vísu kringlótt, og
veltur allmikið á því. Það eru pening-
arnir til þessa! Hef jeg nokkuð hugs-
að það mál, og komist að þeirri nið-
urstöðu, að nógir sjeu peningar í
Reykjavík!
Annars er það hart, ef höfuðborg
landsiris með nokkrum opinberum
styrk og stuðning leikfjelagsins
sjálfs eigi sæi sjer fært að kosta þessa
breytingu á húsi, þar sem einstakir
menn byggja vegleg stórhýsi í líku
skyni (Nýja bíó).
Er annars furðulegt, að engum
hinna nýslegnu auðmanna höfuðstað-
arins skuli hafa hugkvæmst að
styrkja Leikfje;l. Reykjavíkur allöfl-
uglega á einhvern hátt. — Erlendis
hafa þó sumir „krigsmillionerarnir“
bygt eða gefið heil stórhýsi til söng-
iistar og leiksýninga o. s. frv. (sbr.
„Hannevigs Opera“ í Kristjaníu).
Virðist mjer þessi hlið málsins ætti
alls eigi.að verða neitt ofurefli, ef rjett
er að farið.
Helgi Valtýsson.
Sannfæringin.
Hjer allir sinni sannfæringu
segjast fylgja, sem vera á.
En enginn skifta um skoðun má,
því af því fær hann óvirðingu.
Og ef fyrir rjetta upplýsingu
menn eldri hugmyndum hverfa frá
og fyrri villur sínar sjá,
og fylgja sinni sannfæringu,
þá nöldra aðrir og níða þá.
í gær átti’ jeg sjálfur sannfæringu,
sýndist mjer, eða því sem nær.
í dag er jeg henni’ að færast fjær.
Hef hugsað margt með höku á bringu
og held, að rökfærslan sú í gær
sje ljettvæg og þurfi lagfæringu. —
Nú reyni jeg nýja rökstuðningu,
sem rjettari er og betri’ en hin,
því eftir vandlega umþenkingu
ber jeg á málið meira skyn.
— En eftir á fæ jeg áfellingu
hjá öllum þeim, sem heyrðu í gær
skoðun mína, en skilja’ ei þær
ástæður fyrir umbyltingu,
sem orðið hefur í vitund minni,
á skilning málsins og skoðuninni.
Þeir nefna sjálfsagt hringl og hik
í hugsjónunum, og jafnvel svik.
Og röksemdirnar — þeir reka þær
með röksemdum mínum frá í gær,
sem hækka’ í gildi um helming, er
þeir hampa þeim móti sjálfum mjer.
— En alt um það stöðugt fjærogfjær
færist jeg þeim, en mótsetningu
eldri skoðunar nær og nær.
Og svo fyrir þessa sannfæringu,
sem núna bjargföst hjá mjer er,
en í bág við þá fyrri fer,
í flokknum býst jeg við bannfæringu.
Þ. G.
Danmörk.
Frá sendiherra Dana hefur Logr.
fengiö eftirfarandi tilkynningu;
10. þ. m. var í húsi Austur-Asíu-
fjelagsins í Khöfn myndað nýtt fje-
lag, sem heitir Suðurjótska fjelagið
(Det Sönderjydske Kompagni), með
5 milj. kr. höfuðstóli. Fjelagið á að.
hafa aðalbækistöð sína í Haderslev,
og formaður í stjórn þess er Schach
greifi af Schackenburg, einn af helstu
leiðtogum Norðursljesvíkinga. í
stjórninni eru m. a. H. P. Hansen fyr-
ver. ráðherra, Madsen-Mygdal, for-
stjóri Austur-Asiu-fjelagsins, og
ýmsir af þektustu mönnum Norður-
Sljesvikur. Tilgangur fjelagsins er að
styrkja verslun Norður-Sljesvikur.
í Aabenraa var áður allmikil skipa-
umferð og verslun og bæði i Aaben-
raa og Sönderborg eru góðar hafnir,
en til aukningar skipaumferðinni er
hægt að dýpka Aabenraa-fjörðinn.
Ejelagið starfar í náinni samvinnu við
Austur-Asiu-fjelagið.
í símskeyti frá Danmörku frá xo.
þ. m. segir, að konungur hafi stað-
íest grundvallarlögin. Nýjar kosning-
ar tii Fólksþingsins eigi að fara fram
21. þ. m., Kosning kjörmanna 24. þ.
m. og Landsþingskosningar 1. okt.
— Verð á smjöri er nú i Khöfn kr.
7,14 kg. — Loftpóstferðir hefjast í
dag. Burðargjald verður eins og nú,
að viðbættum 20 au. til Þýskalands,
40 au. til Hollands og 60 au. til Eng-
lands. — Hjúkrunarkvennaþing fyr-
ir Norðurlönd hefur verið haldið i
Khöfn og því nýl. lokið.
Uti um heim.
Rússland og Pólland.
Það er sagft, að Rússar og Úkraine-
menn hafi í Minsk boðið Pólverjum
þessa friðarkosti: Þeir viðurkenna
sjálfstæði Póllands og gera ekki til-
Kall til skaðabóta. Pólverjar mega
c-kki framvegis hafa yfir 50 þúsundir
manna undir vopnum, en skulu af-
henda Rússlandi innan mánaðar þau
hernaðartæki, sem þeir hafa fram yf-
ir það, sem nauðsynlegt er handa
þeim her. Einnig skulu þeir skila aft-
ur landbúnaðar og iðnaðartækjum,
sem þeir hafa flutt burt úr Rússlandi
á siðastl. vori. Þeir mega ekki ljá
land sitt til fjandsamlegs viðbúnað-
sr gegn Rússlandi eða Ukraine og
Rússar skulu fá leyfi til að koma á
flutningasambandi á vörum og fólki
með járnbraut frá Bjelastok yfir Pól-
land. —• Þegar útlit var fyrir, að
Rússar tækju Varsjá, var það haft
eftir Titsjerin utanríkisráðherra, að
þeir yrðu að tryggja sig gegn Pól-
landi með því að setja takmörk fyrir
herstyrk landsins. En auk þessa væri
það ætlun þeirra að vopna verka-
menn Póllands í hinum lögskipuðu
fjelögum og láta þá halda uppi ró
og reglu í landinu og vinna á móti
landvinningastefnu hinna stóru jarð- !
cigenda. Þetta sagði hann vera mikil-
vægustu friðartrygginguna. Enn-
fremur sagði hann, að sú krafa yrði
gerð, að skyldulið pólskra borgara,
sem fallið hefðu i stríðinu, fengi ó- j
keypis ákveðna stærð lands til ábúð- j
ar og eignar. Menn voru vestur um
löndin mjög hræddir við það, að ef
Rússar fengju yfirböndina i Póllandi,
rvddu þeir bolsjevíkakenningunum
að meira eða minna leyti til vegs Og
valda í landinu og áhrifin bærust svo
vestur á bóginn. í útlendum blöðum
birtist um þetta leyti viðtal við Max
prins af Baden, sem um tíma var
kanslari þýska ríkisins, og kemur
þessi ótti þar skýrt fram. Hann seg-
ir að flokkur manna i Þýskalandi
vilji samband við Rússa gegn banda-
mönnum. En yrði sá flokkur ofan á
og sambandið kæmist á, þá mundi
stríðið gegn Rússlandi verða vinsælt
i Englandi og Frakklandi, en víg-
völlurinn í þeirri viðureign yrði
Þýskaland. Hann kennir bandamönn-
um um þessa hættu, með því að
þrengingar þær, sem Þýskaland verði
fyrir af þeirra hálfu að vestanverðu,
veiki mótstöðuna gegn bolsjevíka-
stefnunni að austan. — En Lloyd Ge-
orge hefur nú á síðustu timum hald- j
ið því fram, að bandamenn verði að
breyta aðferð sinni í afskiftunum af
Rússlandi. Hingað til hafi þeir stutt
eina stjórnmálastefnu þar gegn ann-
ari, en það hafi sýnt sig, að sú að-
ferð sje eyðileggjandi. Henni megi
ckki halda áfram. En það sje áfram-
hald hennar, er Frakkar styðji nú
Wrangel hershöfðingja i Suður-
Rússlandi. í ræðu, sem hann hjelt
um miðjan ágúst, sagði hann mjög
ákveðið, að hann vildi af fremsta
megni forðast, að enska þjóðin þyrfti
að leggja út í nýtt stríð, ekkert ann-
að gæti rjettlætt slikt en það, að ann-
aðhvort heiður þjóðarinnar eða ör-
yggi væri i veði.
Það er ósjeð enn, hve haldgóð
framsókn Pólverja í Rússlandi verð-
ur. En það eru ekki að eins Pólverj-
ar, sem eiga þar mikið í húfi, heldur
hka Frakkar, sem verið hafa styrkt-
armenn þeirra og staðið á bak við þá.
Það er sagt, að franskir herforingjar
stjórni her Pólverja 0 g frönsku
stjórninni er það mikið áhugamál, að
efla sem mest veldi Póllands á kostn-
að bæði Þýskalands og Rússlands.
Þegar út leit fyrir það i sumar, að
0. Friðgeirsson
I Skðlai
hafa fyrirliggjandi í heildsölu:
Rúgmjöl, hálfsigtimjöl, kaffi, högg-
mn sykur, kandíssykur, rúsínur,
sveskjur, cacao, danskt smjörliki (3
teg.), palmin, danskt mejeri-smjör,
danskt öl (2 teg.), kryddvörur ýmisk.,
vindla (danska og hollenska, stóra
og smáa), pappír margskonar,
þar á meðal umbúðapappir, ritföng
ymisk., þvottasápur, handsápur, soda-
pastillur, skósvertu, ofnsvertu, fægi-
lög, járnvörur margskonar, smíða-
járn, stál, bátasaum, sleginn saum,
stifti, bursta og kústavörur fjölbreytt-
ar, lugtir (Flagermus),eldspýtur, ekta
anelinliti, ensk tvisttau, ofna, elda-
vjelar og rör, danskar kjöttunnur (ó-
uppsettar).
Rússar næðu yfirhöndinni i Póllandi,
var það skoðað sjerstaklega sem ó-
sigur fyrir stjórnmálastefnu Frakka
1 álfunni. Það var talið, að Frakkland
■''æri að einangrast, bandamenn þess
frá ófriðarárunum að yfirgefa það.
í Englandi komu fram sterkar radd-
ir, sem bentu í þá átt, að ýmsir þar
vildu slita öllu sámbandi við Frakk-
land. Merkt enskt blað sagði, þegar
Frakkastjórn lagði samþykki á gerð-
ir Wrangels hershöfðingja í Suður-
Rússlandi án þess að leita til þess
samkomulags við England, að það
væri gott, ef með þessu gæti fengist
endir á hinu opinbera markleysu-
hjali um „fullkomið samlyndi meðal
bandamannaþjóðanna." Heppilegast
væri, að menn hættu að nota orðið
„bandamenn". Englendingar hefðu
ekki framar neina skyldu til þess að
taka i utanríkismálum tillit til óska
fyrverandi bandamanna sinna. Stjórn-
arblað var það ekki, sem þessi um-
mæli flutti, en þó blað,- sem talið er
hafa áhrifamenn að baki sjer. Einn
af frægustu rithöfundum Frakka,
Anatole France, ritaði um sama leyti
um afstöðu Frakklands út á við og
sagði m. a. ; „Hvar eru bandamenn
okkaT? Það er ekki að eins svo, að
vínáttan við England sje að kólna,
beldur hefur afstaða Fi-akklands í
Norðurálfunni yfir höfuð tekið stór-
breytingum nú síðasta árið.‘, — Og
ekki er samlyndið betra við Itali en
Englendinga. Það má svo heita, að
ítalir sjeu í öllum málum mótsnúnir
Frökkum. Á friðarþinginu í París
var.svo um búið, að tryggingin fyrir
fiamtíðargengi Frakklands átti að
vera fólgin í bandalaginu sem ráð-
gert var milli þess, Englands og
Bandaríkjanna. En úr því ráðgerða
bandalagi hefur ekkert orðið. Hið
nýja pólska ríki átti einkum að vera
undir áhrifum og handleiðslu Frakka,
því þess þótti þörf til þess að standa
þar á verði gegn þýskum áhrifum.
Einnig voru Frökkum áætluð miki!
áhrif í hinum nýju rikjum, sem mynd-
nðust í Mið-Évrópu og Suður-Ev-
rópu. En nú sýnist ætla að verða
minna úr þeim áhrifum en til var
ætlast. Sem vottur um það er m. a.
nefnd grein, sem nýlega hefur komið
tram frá einum af leiðandi stjórn-
málamönnum Serba i Belgrad. Hann
heldur því fast fram, að Serbar eigi
að vinna að sameining þýsk-austur-
risku hjeraðanna við Þýskaland, til
} ess að geta náð beinu sambandi við
það, því nú sje það auðráðið, að til
vináttu og samvinnu dragi milli Ger-
mana og Slava. En einmitt þetta vilja
Frakkar hindra. Þeir reyndu að skapa
samband milli hinna svo nefndu
Dónárríkja en það mistókst. Einnig
íeyndu þeir að koma á sambandi
inilli Balkanrikjanna gegn bolsjevík-
um, en það mistókst líka. — Á þessa
ieið er talað um horfur Evrópumál-
anna í síðastl. mánuði. En að hve
rniklu leyti ^sigrar Pólverja, sem síð-
an hafa orðið, geta breytt þeim horf-
um, er ekki enn komið fram.
Síðustu frjettir.
Fregn frá 12. þ. m. segir, að Pól-
verjar sæki fram gegn Litháum af
miklum ákafa, en Litháar berjist von-
lausri baráttu á óo kílóm. langri her-
línu. Höfðu Pólverjar krafist að
Litháar Ijetu af hendi þau lönd, er
yfirráð friðarráðstefnunnar i Paris
hafði ákveðið að Pólverjar skyldu fá,
F. H. KREBS.
medlem af Danslc Ingeniörforening.
KONSULTERENDE INGENIÖRFIRMA.
for Projektering og Udbygning af:
KRAFTSTATIONER, Vandkraft, Damp, Diesel, Sugegas osv.
fELETRISKE KRAFTOVERFÖRINGS OG FORDELINGSANLÆG.
ELEKTRISK Varme, Lys, Drivkrft m. v.
ORGANISATION AF ELEKTRICITETSFORSYNING.
KÖBENHAVN V., Alhambravej 17. Tlgr. Adr.: „Elektrokrebs“.
Þeir, sem enn eiga ógreidd tillög i verðlaunasjóðinn, geri svo vel að
senda þau bráðlega og láta þess getið um leið fyrir hvaða jarðir til-
lögin sjeu.
Reykjavík 14. sept. 1920.
Einar Helgason
Vj elstj ór askóliim
verður settur (í Iðnskólanum) föstu- daginn 1. október kl. 12 á hádegi.
Þeir, sem ætla að stunda nám undir vjelstjórapróf, sendi umsóknir sín-
er fyrir 1. sama mánaðar.
Þeir, sem hafa hug á að ganga í fjelagið, geri svo vel að snúa sjer
til Einars garðyrkjustjóra Helgasonar. Fyrir æfifjelaga er tillagið 20 kr„
en ársfjelaga 2 kr. — Ársrit fjelagsins sendist öllum fjelagsmönnum.
Reykjavik 2. sept. 1920.
Stjórnin.
er hún dró takmarkalínu milli þeirra
og Rússa. En þessu neituðu Litháar
og stöðvuðu framsókn Pólverja í
svip, en hafa siðan orðið að hörfa
undan. — Það var sagt fyrir skömmu,
að Pólverjar ráðgerðu, að senda her
til liðs við Wrangel í Suður-Rúss-
landi, en síðari fregnir segja, að bol-
sjevíkaherinn sje nú aftur á framsókn
sunnantil á pólsku vígstöðvunum, hjá
Lemberg. í fregn frá 8. þ. m. var
sagt, að uppreisn hefði verið gerð í
Rússlandi gegn bolsjevíkastjórninni,
en verið bæld niður nxeð grimd. Fregn
frá sarna degi segir, að bolsjevikar
sjeu að efna til herferðar til Indlands
og sje Enver pasha, Tyrkjaforinginn,
fyrir henni; hafi kröfur komið fram
írá Indverjum um, að landið fengi
sjálfstæði, eins og Egiftaland.
Fulltrúum bolsjevíkastjórnarinnar í
Englandi, þeim Kameneff og Krassin,
hefur verið bönnuð þar landsvist, seg-
ir fiægn frá 8. þ. m„ án efa vegna
þess, að þeir þyki hafa haft æsandi
áhrif á verkmannaflokkinn. En út af
verkfallssamþykt kolanámamann-
anna hefur enska stjórnin lýst yfir,
að hún skjóti því rnáli til þjóðarinn-
ar, ef verkfallið komi í framkvæmd,
og láti nýjar kosningar fara fram.
Nýkomin fregn segir, að bolsjevíkar
í Rússlandi bjóði fram 75 þús. ster-
lingspund til styrktar einu helsta
verkmannamálgagninu í Englandi,
„Daily Herald" og blaðið lýsi yfir,
að það þiggi þann styrk. En ritstjóri
þess fór kynnisför til Rússlands í vet-
ur sem leið og hefur síðan dregið
mjög taum bolsjevikastjórnarinriar
og haldið fram stefnu hennar.
Á ítalíu eru sagðar miklar verk-
mannaóeirðir og að stjórnin láti þær
afskiftalausar. D’Annuncio skáld er
i>ú aftur komirin þar á stúfana. Ný-
lega tók hann skip hjá Sikiley, sem
var á leið til Suður-Ameríku hlaðið
bilum og flugvjelum, og hjelt með
það til Fiumeborgar. Litlu siðar kom
fregn um, að hann hefði lýst yfir
íullu sjálfstæði Fiumeborgar og al-
menningsfundur hefði verið kallaður
þar saman til þess að taka ákvörðun
um stjórnarfyrirkomulagið. Næsta
fregn segir, að borgarlýðurinn hafi
kosið D’Annuncio fyrir rikisstjóra.
— Fregn,frá 10. þ. m. segir frá mikl-
unr jarðskjálftum í ítalíu, er nrest hafi
komið við borgirnar Florence og
Pisa. Þar höfðu farist um 5000
manns.
Konungssamband er að komast á
milli Rúnreníu og Ungverjalands, og
segir fregn frá 12. þ. m„ að Ungverj-
ar hafi kosið sjcr fyrir konung Fer-
dinand Rúmeníukonung.
Lögmannaráð þ j óðabaridalagsins
hefur ákveðið, að Álandseyjamálið
sje ekki finskt sjermál, og miðar það
að því, að Sviþjóð fái eyjarnar.
Ameríkumaðurinn Morgan hefur
lánað Frakklandi 100 miljónir doll.
til 25 ára gegn 8% rentu. — Formað-
ur fjármálariefndar þýska þingsins
hefur lýst yfir, að Þýskaland sje í
raun og veru gjaldþrota, þótt ekki sje
látið heita svo. — Fjármálakreppa
og viðskiftakreppa er meiri og minni
um alla álfuna. — Ríkisbankinn
sænski er í fjárkreppu, segir nýlega
komin símfregn, og í Noregi er á-
Standið að þessu leyti mjög erfitt, Og
mikið tálað um sparriað á kaupum á
útlendum varningi. — 1 Bandaríkjun-
um er eapft útlit fyrir meiri korntlpp-
skeru í ár en dæmi sjeu til áður.
Frjettir.
Síldveiðarnar hafa i sumar gengið
íremur vel norðan lands, en miður á
Vestfjörðum. Sagt er að veiðst hafi
um 140 þús. tn. á sumrinu. Nokkuð
cr þegar selt, en verðið lágt, að sögn
57 au. kg. hjer á höfn, eða 77 au. á
liöfn í Svíþjóð.
Einar . Helgason . garðyrkjustjóri
hefur í sumar ferðast um Austfirði,
cn er nú nýl. kominn heim þaðan.
Hann segir, að garðrækt og blóma-
rækt hafi mikið farið fram á Aust-
fjörðum á síðari árum.
Sjera Friðrik Friðriksson er ný-
kominn heim úr dvöl norðanlands frá
því í miðjum júlí í sumar. Heimsótti
hann nú æskustöðvar sínar í Skaga-
firði eftir langa fjarveru. Mikið þótti
honurn þar breytt. Þó var bær, sem
iiann átti heitna á þegar hann var II
ára, því sem nær óbreyttur. Lengst
dvaldi hann á Akureyri og flutti
guðsþjónustur í ýmsum kirkjum í
Eyjafirði. Að skilnaði hjeldu Akur-
eyringar honum fjölment samsæti.
Lagarfoss kom i síðastl. viku frá
Khöfn og fór 13. þ. nx. áleiðis vestur
um haf. Skipið hefur verið í viðgerð
í Flydedokken í Khöfn frá því um
miðjan siðastl. vetur og kemur úr
þeirri aðgerð gerbreytt frá þvi, sem
áður var„ eða eins og nýtt skip. Nú
befur skipið rúm handa um 50 far-
jægum, á 1. og 2. farrými, og allur
útbúnaður er þar vandaður. Samt hef-
ur lestarrúm skipsins ekki verið skert.
Viðgerðin nær til alls, sem laga þurfti
eða bæta á skipinu, og hefur kostað
um 700 þús. kr. — E. Nielsen for-
stjóri bauð blaðamönnum hjer út i
skipiö síðastl. laugardag, til þess að
skoða það, og var þar þá einnig stjórn
Eimskipafjelagsins.