Lögrétta - 03.08.1921, Page 1
ViEublað með auka-
biöðum. Verð: 10 kr.
&rg., erlendis 12 kr.
50 aura. Gjalddagi 1.
júlí
Afgreiðslu- og inu-
heimtumaður: Þór. B.
Þorláksson, Bankastr.
11. Talsími 359.
Talsimi 178.
Útgefandi og ritstjóri Þorsteinn Gislason, Þingholtsstræti 17.
Hr. 35
Reyhjavfk 3. ágúst ISCI.
ísafoldarprentsmiðja h.f.
| XVI. ér«.
H.f. „Völunöur“
Timburverslun — Trésmiðja — Tunnugerð
Re y k j a ví k.
Smlðar flest alt, er aö húsbyggingum (aöallega huröir og
glugga) og tunnugerö (aöallega kjöttunnur og sílöartunnur) lýtur
Selur flestar algengar tegunöir af timbri (furu og greni)
hús, húsgögn, báta og amboð-
Ábvrgist viðskiftavinum sínum nær og fjær þau bestu við-
skifti, sem völ er á.
Fijót afgreiösla. Símnefni: Völunöur. Sanngjamt verö-
Auglýsingar
þær, sem sendar eru Lögréttu eða
ísafold, birtast í báðum blöðunum
og ná þannig mestu útbreiðslu um
landið, sem fáanleg er — Verðið
þó hið sama og áður var i öðru
blaðinu.
Sv. Jónsson & Co.
Kirkjustræti 8 B. Reykjavfk.
hafa venjulega fyrirliggjanöi mikl-
ar birgöir af fallegu og enöingar-
góöu veggfóöri, margs konar
pappír og pappa — á þil, loft
og gólf — og gipsuöum loftlist-
um og loftrósum.
Talsími 420. Símnefni: Sveinco.
1 MMiniir!
A landbúnaðarsýningunni stóð til
að sýnd yrði plógvél ein nýrrar teg-
undar, sem náð hefir mikilli útbreiðslu
á síðustu árum. En milliferðaskipin
gátu ekki flutt vélina hingað i tæka
tíð, svo sýningin varð af henni og
var það illa farið, þvi þar er um
nýung að ræða, sem bændur hafa
vonandi gott af að kynnast.
En nú með Lagarfoss kom vélin
hingað og er byrjuð að starfa. Hún
rótar upp jörðinni suður í Fossvogi
og sýnir þau vinnubrögð, að plæg-
ingaraðferðimar sem menn eiga að
venjast virðast fornaldarlegar.
Þúfnabaninn, en þvi nafni hefir
vél þessi verið nefnd og er réttnefni,
er dráttarvél mikil, er hefir 85 hesta
afl og gengur fyrir benzini. Er hún
á fjórum hjólum og eru framhjólin
smá, en afturhjólin afarstór; þvermál
þeirra er á fjórðu alin. Þar sem
jarðvegur er votlendnr má setja stál-
hlífar metersbreiðar á hjólin, svo
vélin sökkvi ekki i, og ennfremur
varna breiðu hjólin vélinni þvi að
velta um koll, þó mikill sé hliðar-
halli. Hn á harðlendi og sléttu eru
tnjó hjól notuð. Breiðu hjólin gera
það einnig að verkum, að vélin
gengur slyðrulanst yfir hvað mikið
kargaþýfi sem er. Má nota þennan
hluta vélarinnar til alls þess, sem
dráttarvélar eru venjulegs notaðar til.
Vegur »togari« þessi nálægt 4 smál.
en nokkuð meira ef breiÖD hjólin,
eða hjólskórnir eru á.
Plægingarvélin er fest aftan i
dráttarvélina. Er það sivalningur
freklega þriggja metra langur, hjól
sitt á hvorum enda, en ás á milli.
Á ás þennan eru festir plóghnifar,
þverbeygðir i endann, þannig að þeir
skera bæði lárétt og lóðrétt þegar
sívalningurinn snýst. Tala þeirra er
mismunandi eftir þvi hvað smátt á
að mylja svörðinn en oftast eru not-
aðir frá xoo til 150 hnifar á sívaln-
inginn. Drifás gengur frá aflvélinni
til sivalningsins, og snýr vélin hon-
um með miklum hraða. Getur sá
sem stýrir vélinni haft fulla stjórn
á plógsivalningnum, lyft honum upp
svo að hann snerti ekki jörðina og
beitt honum misjafnlega djúpt með
einu handtaki.
Þegar plægt er snýst sivalningur-
inn með miklum hraða, tætir gras-
svörðinn i tætlur og þeytir hon-
um langar leiðir aftur undan sér.
Við tilraunirnar i Fossvogi var not-
uð stutt en sterk tegund af hnifum
og var plógfarið 8 þumlunga djúpt,
miðað við að yfirborðið hafi verið
slétt að kalla, því vélin er svo þung
að hún pressar niður þúfurnar áður
en sívalningurinn fer yfir þær og
plægist því svörðurinn milli þúfna
miklu betur en með gamla plæg-
ingarlaginu. Jörðin tælist í sundur,
moldin fer i dust, en grasrótin i
smáflyksur, sem liggja efst í flaginu.
Er það langt til að sjá eins og
plægð og margherfuð slétta, sem
staðið hefir yfir sumartima og er
byrjnð að gróa. En þegar nær er
komið, sést að flagið er nýplægt,
en meira liggur af grasrótartætlun-
um ofan á en í venjulegum sléttum,
vegna þess að þær eru léttari en
moldin og hafa orðið efstar þegar
plógurinn henti þeim af sér. Eftir
eina plægingu með 100 hnífum lit-
ur flagið mjög vel út en sé það
plægt aftur og fleiri hnifar notaðir
er svo vel frá þvi gengið, að full-
yrða má, að ókleyft sé að vinna
verkið eins vel með verkfærum þeim
er hingað til hafa verið notuð hér
á landi, hversu vel sem til er vand-
að, og hvað mikið sem til er kostað.
Við tilraunirnar t Fossvogi sem
gerðar hafa verið á þurrum móa og
mýrlendi, fór vélin álika hart eins
og maður gengur hægt, og breiddin
sem hún hefir fyrir í einu er 2x/a
meter. Geri maður ráð fyrir að
hún fari fjóra kílómetra á klukku-
tima, ætti hún að plægja einn hekt-
ara á klukkustund. En þá verður
spildan sem hún vinnur á að vera
stór, svo engar séu tafir við að snúa
við. A mjög smáum spildum má
ekki láta vélina vinna, þvi þá fer
of mikill timi til ónýtis. Jarðveg-
urinn má ekki vera grýttur; að visu
gerir ekki mjög miéið til þó lausir
steinar ekki stórir séu hér og hvar
á stangli, en jarðfastir steinar mega
ekki vera fyrir. Að öðru leyti ger-
ir ekkert til hvernig landið er, það
má vera hversu stórþýft sem vera
skal, votlendt og jarðvegurinn seig-
ur.
Og af þesskonar jarðvegi er nóg
til á íslandi. Svo mikið, að allar
jarðabætur sem gerðar hafa verið á
síðari árum eru þar eins og dropi i
hafinn. En með komu þessarar vél-
ar hingað, virðist mega ætla, að það
vopn sé fengið gegn þúfunum, sem
ráðið geti niðurlögum þeirra I stór-
um stíl. Þúfnabaninn einn getur
sléttað meira, en gert er nú með
plóg og herfi á öllu landinu.
Má þvl fullyrða, að hér sé verk-
færi það fengið sem meiri þýðingu
hafi fyrir íslenskan landbúnað en
nokkurt það tæki er hingað hefir
komið áður. Vélin hefir verið feng-
in hingað til reynslu frá Stokkhólmi
en þýsk er hún að uppruna. Verð-
ur hún til reynslu hér i tíu daga á
ábyrgð verksmiðjunnar og stjórnar
henni maður frá henni. En sjálfsagt
er að Búnaðarfélagið fái þann styrk
hins opinbera sem með þarf til þess
að kaupa vélina, því hún hefir sýnt
það að hún hæfir betur staðháttum
hér en nokkurt landbúnaðarverkfæri
útlendt er hingað hefir komið. Verð-
ið er að visu mikið — 60 þúsund
krónur, — en afköstin eru lika
stórkostleg.
4
IKs lUm
Nokkur bréf til Þ. G.
III.
28. jan. 1897.
Góði vinurl
Þökk fyrir vinsamlegar linur, og
til stakra hcilla og hamingju með
Isand! Mig undrar — og marga
hér — yðar þor og áræði, en þetta
yðar plan var sjálfsagt fyrir löngu.
Má og vera að tíminn sé kominn
til að realísera þesskonar blað
— annars situr skuldaskifta- og
skilleysis-þrældómurinn enn eins og
tappi i hálsinum á alþýðu þessa
lands. Eg hef sagt upp öðru blaði
og keypt 1 kvartal af íslandi, og
eflaust fáið þér fleiri og fleiri áskrif-
endur (d : kaupendur), ef yðar fyrstu
blöð verða i meðallagi (hvað þá
heldur ef góð þykja) og ef þér eigið
flutningsmenn og grjótpála hér og
hvar um ’.andið. Verst er féleysið —
féleysið — féleysið. Að hafa sem
flest, tína til sem fjölbreyttast —
það er hjá oss eitt aðalspursmál.
Að vera radical, orginal, andrikur,
skömmóttur, partiskur — getur alt
dugað vel um stund og i viðlögum,
en — af því »veröldin jakkar við
að tarna* eins og Árni I Görðum
sagði, þá verður drjúgum að spila
á almennustu strengma, og það eru
alþýðunnar 5 skynfæri: sjón, heyrn
o. s. frv., með öðrum orðum, það
sem fjöldinn skilur og fjöldann dreg-
ur, það eina dugir og — dregur.
Feginn hefði eg séð þýðingu mina
af Brandi í blaði yðar, en nú hefir
Bókmentafélagsdeildin i Reykjavlk
fengið handritið og atlar að prenta
það og — borga. En hvenær? A'
þeirri ástæðu þori eg ekki að senda
yður mitt handrit né leyfa að það
sé prentað, sist þá nema kafla úr
þýðingunni. En máske þér vilduð
tala um þetta mál við forseta deild-
arinnar doktor Ólsen, því vera m:i
hann leyfi að úr því sé prentað —
eða selji vður handritið fyrir sama
verð og það mundi borga mér.
Biðum við: Eg skal skrifa doktor
Birni og undirbúa málið áðnr en
þér svo talið við hann. Þýðingin
er viða góð — viðast vona eg —
þó sjálfur segi. Það er mér vork-
unnarlaust að bjóða öðrum út að
þýða eftir alt mitt heimskulega bar-
smiði við að þýða útlend lista-
verk.
Nú hef eg nýtt frumsmiði á stokk-
unum — drama, en gengur seint,
þvi annir, kuldi, sollur og aliskonar
efri áranna fyrirmunanir trufla og
tefja fyrir, eu langt er eg kominn
með þess ýyrstu qerð. — Gerið svo
vel — i kyrþey — að komast eftir
hvort ísafoldar-fyrirheitið (1000 kr.
fyrir gott íslenskt drama) standi enn
við makt, og sé svo, hverjir sé rit-
dómendur — og senda mér linu þar
um til baka. »Stefnir* heldur áfram,
hér, en ekki er eg lengur i hans
ritnefnd — hinir voru mér miður
liprir samverkamenn, og eg hef
máske lag á þvi að ráða litlu þar
sem eg er, d: mig vantar pesskonar
ambition, og kom hér of gamall,
en til eru þeir sem segja, að hætti
eg að rita i það organ muni það
fremur megrast en fitna. — Hafið
þér mynd yðar að traktera gamalt
fóík á?
Með virðing og vinsemd
Matth. Jochumsson.
Þessi »Hörður« i Daqskránni er
töluvert merkur stilisti og andans
nýgræðingur, annars fellur oss blaðið
sic & sic. —Um Bjarka stórt spurs,
Þ. E. er þar i klípu, félitill og heilsu-
linur og ef til vill of einhæfur og
orginal til að skapa blað á Aust-
fjörðum — móti Austra. En þar er
gjæring í mörgu og má vera að
margt sé þar mögulegt — þar sem
deyfð og vani daglega deyja eða
ummyndast.
-0-
Dýrtiðin.
Nýkomin Hagtíðindi flytja að
Vanda yfirlit yfir smásöluverð á ýms-
um nauðsynjum á siðasta ársfjórð-
ungi ásamt samanburði við fyrri
tima. Yfirlit þetta sýnir yfirleitt
lækkun, hvoit sem miðað er við r.
apríl eða júli í fyrra. Einstaka vöru-
tegund hefir hækkað i verði, nefni-
lega bankabygg, rúsinur, kaffibætir,
súkkulaði, mjólk og nautaket, sem
alt er heldur dýrara nú, en það var
1. júli i fyrra, þó eigi muni það
miklu. En hinsvegar hafa ýmsar
nauðsynjar lækkað mjög mikið i verði
á sama timabili, hrisgrjón úr 2 kr.
niður i 83 aura, sagogrjón úr 2.03
niður í 1.01, kartöflumjöl álíka mik-
ið, kandis úr 3.57 i 1.99, melís úr
407 i 175, kaffi úr 4.00 i 2.72,
saltfiskur úr 1.50 í 103 og kol úr
48 kr. i 25.60 skippundið. Þessar
tegundir hafa fallið mest i verði, en
aðrar að nokkrum mun.
í samandregnu yfiiliti erbirthlut-
fallið i hundraðstölum milli vöru-
verðsins fyrir stríðið og þess sem
var 1. júli. þ. á. Verðhækkunin
netnur á brauði 300%, á kornvör-
um 231 ®/0, á kálmeti 265%, á sykri
302°/0, á kaffi, te og súkkulaði ”S%»
á feitmeti, mjólk, osti og eggjum
279%. á kjöti 364%, á fiski 194%,
á sápu og sóda 3 s6°/0, og á stein-
oliu og kolum 367°/o- A siðasta ári
hefir lækkunin orðið mest á stein-
olíu og kolum 38%, á sykri 32%,
á fiski 28% og kornvörum 27°/0.
Hafa vörar þannig lækkað alt að
þriðjungi á siðasta ári.
í skýrslunni er talið, að vöruverð
hafi að meðaltali hækkað um 270%
síðan striðið byrjaði, en meðallækk-
un á siðasta ári er talin vera 17%,
en 20% á siðustu fimm ársfjórð-
ungum og 4% á siðasta ársfjórð-
ungi. En séu matvörur einar taldar,
er verðhækkunin siðan fyrir strið
259°/0. Er þetta svipuð niðurstaða
og er hjá nágrannaþjóðunum. Þeir
vöruflokkar, sem mest hafa failið i
verði hafa aldrei verið taldir með í
skýrslunni, svo sem vefnaðarvara og
skófatnaður. En eitt mesta dýrtiðar-
bölið, húsnæðisleysið helst óhindrað
en húsaleigan er tilfinnanlegur út-
gjaldaliður. En nú eru byggingarefni,
einkum timbur farið að falla stórum
i verði, svo að væntanlega verður á
næstunni farið að byggja aftur, þó
miklum vandkvæðum sé bundið,
einkum vegna hins mikla vinnu-
launakostnaðar við húsasmiðar.
PurWan i HarBurlönduni.
Fyrir mánuði bárust þær fréttir
viðast hvar að úr Evrópu, að von
mundi óvenjulega góðrar uppskeru.
En siðan hafa þeir atburðir orðið,
að uppskerubrestur þykir einsær í
sumar.
Það ern þurkamir sem eiga sök á
þessu. Akrarnir döfnuðu ágætlega i
vor, en þegar kom fram i júlimán-
uð hætti alveg að koma regn úr