Lögrétta


Lögrétta - 23.08.1921, Síða 1

Lögrétta - 23.08.1921, Síða 1
Vikublað með auka- blöðum. Verð: 10 kr. á,rg., erlendis 12 kr. 50 aura. Gjalddagi 1. júlí Afgreiðslu- og inn- heimtumaður: Þór. B. Þorláksson, Bankastr. 11. Talsími 359. Talsimi 178. Útgefandi og ritstjóri Þorsteinn Gislason, Þingholtsstræti 17. ísafoldarprentsmiðja h.f. Nr. 39 Reykjavik 23. ágúst 1921. XVI* árg. Auglýsingar þær, sem sendar eru Lögréttu eða ísafold, birtast í báðum blöðunum og ná þannig mestu útbreiðslu um landið, sem fáanieg er — Verðið þó hið sama og áður var i öðru blaðinu. Þjóðvinafélagið hálfrar aldar. í dag — 19. ágúst — er Þjóð- vinafélagið 50 ára, eins og áður hef- ir verið vikið að. Hefir féhgið í minningu þess gefið út yfirlit um sögu þessara starfsára sinna, eftir forsetann, prófessor dr. Pál Eggert Ólason. Páll Eqqert Olason. Þjóðvinafélagið ei vinsælt félag og hefir starfað mikið og er bókaútgáf- an þektust af þeirri starfsema, enda hefir félagið því nær eingöngu gefið sig að henni síðustu áratugina. Af bókum þess er t. d. Almanakið ein- hver víðlesnasta bók og vinsælasta, sem hér kemur út, einmitt i því formi, sem nú er á því, með alls- konar fréttayfirlitum, fróðleiksmolum, skrítlum og öðrum samtíningi. Af öðrum ritum félagsins sem út komu að staðaldri, hefir Dýravinurinn sjálf- sagt verið vinsælastur á sinu sviði auk þess sem timarit félagsins And- vari er all útbreitt. Hann er nú prentaður í 1800 eintökum. Það er, sem sagt, þessi hlið á starfsemi félagsins, sem mönnum er nú kunnust og minnistæðust. Hitt er flestum nú ekki eins minnisstætt hver voru tildrög félagsins og til- gangur í öndverðu. En það er nú alt rakið i minningarriti P. E. Ó. Er þar réttilega sagt, að það var sjálfstæðismál íslands, sem hratt þess- um félagsskap í framkvæmd og að saga Þjóðvinafélagsins framan af er i rauninni þáttur úr sögu Jóns Sig- urðssonar. Fyrsta umræðan um stofnus félagsins er í sambandi við alþingisumræðurnar um stöðulögin og stjórnarskrána 1869. Virðist það í öndverðu hafa verið ætlunin að félagsskapurinn yrði nokkurskonar föst flokksmyndun i stjórnmálum landsins, bæði innan þings og utan, til þess að vinna fyrir hveiskonar framfaramálum íslenskum, og þá ekki síst að »eindregnu nuddi« um stjórnarbótina, eins og Jón Sigurðs- son komst að orði. í lögum félags- ins var það líka tekið fram, að það ætti að vinna að þvi »að vér fáum þá stjórnarskrá, er veiti oss fult stjórnfrelsi í öllum íslenskum mál- um, alþing með löggjafarvaldi og fult fjárforræði og landsstjórn með fullri lagalegri ábyrgð fyrir alþingi*. Stofnun Þjóðvinafélagsins er því í rauninni hin fyrsta eiginlega póli- tíska flokkstofnun i landinu. Ymsar bolIaleggingEr komu fram um skipu- lag félagsins og framkvæmdir og eru til mörg bréf um þessi efni frá J. S. og ýmsum öðrum mætum mönn- um, sem honum voru samhentir og er alt það mál rakið ýtarlega í minn- ingarritinu. Einhver ötulasti starfs- rr aður félagsins og forseti þess lengi eftir Jón Sigurðsson yar Tryggvi Gunnarsson og er mynd hans í rit- inu og sömuleiðis hinna forsetanna, dr. Jóns ÞorkelssODar og Benedikts Sveinssonar. Annars hafa ýmsir hinna þjóðkunnustu manna starfað meira eða minna í þágu félagsins, með fjársöfnunum, með því að skrifa i rit þess o. s. frv. Má t. d. geta þess að Andvari hefir flutt um 40 ýtarlegar æfisögur hinna merkustu manna, sem hér hafa andast á starfs- árum félagsins. Almanakið, sem er jafn gamalt Andvara, hefir áður verið nefnt og var fyrst gefið út i 2 þúsund ein- tökum, en nú eru þau orðin 8 þús. árlega. Auk þessa hefir félagið svo gefið út um 25 bækur og ritlinga, frumsamda og þýdda, um ýms mál og hefir þvi verið útbýtt, að mestu ókeypis til félaga, ásamt ákveðnu ársbókunum, Andvara og Almanak- inu. Félagar munu vera um 1600. Eitt af því sem Þjóðvinafélagið hef- ir einnig gengist fyrir vai þjóðhá- tíðarhaldið á Þingvöllum 1874 (þús- und ára hítíðin). Yfirleitt hefir Þjóðvinafélagið starf- að mikið og starfað vel og hefir stofnun þess og starf sjálfsagt haft mikil áhrif á sínum tíma, á gang þeirra mála sem þvi var einkum ætlað að vinna fyrir, sérstaklega stjórnarbótinni, og þar með óbein- línis á þau úrslit sjálfstæðismálanna, sem nú eru fengin og menn una alment vel við. A seinni árum hef- ir þessarar starfsemi félagsins ekki gætt ýkja mikið, þar sem það hefir snúið sér meira að almennri fræðslu með útgáfu góðra bóka og .lþýð- legra. Forsetinn segir að visu I for- mála minningaritsins, að heldur sé tómahljóð i handraða félagsins. Þó tekst félaginu vonandi að halda svo í horfinu og eflast að heilaldar minn- ing þess verði ekki lakari en þessi hálfraraldar. VPK- «-* 11» % ma Nokkur bréf til Þ. G. 20. mars 1902 0g 3. apríl. Góði vin I Ef þú ,;átt mögulegt með“ að láta mig fá 1 eintak af „Brandi“, þá sendu mjer það sem fyrst. Það eintak, sem þú gafst mjer, týndist hjá bókabjefusi hjer og fyrirfinst ekki. Þökk fyrir síðasta Bjarka — sem jeg ekki f jekk; en jeg las hann 'hjá Gnðm. lækni. Og þökk fyrir það að þú gatst um samning okkar Ostlunds. Getur þú ekki komist í eitthvað praktist samband eða sam- vinnu við þann væna og praktiska prentara, forleggjara og fræðivin? Aprapos: jeg sá og hljóp yfir smá- greinir G. Hann. í Bjarka. G. H. er vinur minn og mesti nytsemdar skörungur. Smágreinir hans eru prýðisvel ritaðar — frá hans sjón- armiði. En hjer þarf disbússión og pro og eon. Jeg þýddi um daginn grein í Tilskueren (í fyrra) eftir Chr. Collin, próf. í Kristíaníu, vin Bjömsons. Hún iheitir: Troen som Livsbetingelse. Hún væri góð — ef hún væri stytt, góð 5 Bjarka sem pendant og correctíf við doctors- greinirnar. Aftur er grein Wester- gaards í Dansk Tidskrift „Kan et Menneske leve Livet uden Tro“ (—eða eitthvað á þá leið —) miklu ómerkilegri. Prófessorinn setur alt á eitt kort, þ. e. Credo Innrimissi- ónarinnár. Annars eru landar vorir í trúarefnum eins og flestu öðru í beinum barndómi, og er það því stór samviskupóstur að hreifa nokkuð við nokkru. Alt er misskil- ið eða hártogað,eða þó skortur vits- ins sje ekki í vegi, þá er vilja- og dáðleysi. Það eru p r i n c í p, meginsannindi mentaðra manna, einkum í moral, sem helst og fyrst og seinast er reynandi að stappa inn í fólkið. Pólítíkin er hörmuleg, hlægileg — grátleg. í-slendingar áttu í fortíð ágæt skilyrði til þess að geta stjórnað sjer eftir allsherj- ar lýðveldisreglum. En þó fór sá búskapur aldrei vel úr hendi, og svo kom Sturl. öldin.Að hugsa sjer, að be-tur muni takast nú, eða að menn sjeu óðara 'búnir að læra list- ina nú — nú þegar færri eru skil- yrðin, að minsta kosti hjá alþýð- unni. Því lýðveldi -er ómögulegt nema reynsla og menning sje áður smátt og smátt búin að berja það inn í fólkið. — Utlitið æði-ískyggilegt og óvíst nær nokkur fleyta kemst hingað fyrir hornin á landinu. Því flytjið þið ekki hólmgreyið eitthvað suður eftir, þið s-em -eitthvað getið ? Jeg bið að heilsa! Með bestu kveðju þinn Matth. Jochumsson. 21./7. ’02. Góði vin! Bestu þakkir fyrir brjef og bók (Brand) og item fyrir frjálslyndi þitt og interessi í trúmálunum! Jeg leyfi mjer því að senda þjer til birtingar og eventual discus- si-ónar ath.semdir mínar viðvíkj. Tolstoi um kirkjuna. Karlsin-s gení- ala eða guðdómlega níhilismus get jeg ekki útstaðið. En þar sem jeg er ekki Evolútionisti og Pósitivisti þar er jeg Únítariskur„Lúterskur“ (sbr. „góður þýskur“). Jeg læt því fjdgja ath. um Tolstoi þýðing á smádyrii’lestri eftir Armstrong. Hann hefir flest það til ágætis sem mjer þykir vænt um: Mildi og ein- urð, fróðleik og vitsmuni, Ijósleik og lipran st-íl. Hann er og höfðingi mikill og einn ú-tvalinn enskur aristokrat, sem ekkert þokar nema sannfæringin. Svo eru reyndar fleiri af hinum leiðanda flokki Úní- tara. En svo magnaður er Conserva- tivismus eða vis intertiæ hinna drotnandi kirkna,að engin þrá bær- ir -á sjer, liv-ernig sem orgað er í bæði þeirra eyru — „heyr! heyra þær ekki“. Þessar stofnanir 3tyður lí-ka alt, — alt nema „skyn- samlegt vit“, sem Ari gamli fróði ljet -sjer nægja að láta í askana — fyrir fólkið. Kirkjur spyrja um alt annað: trú, trad., kreddur, völd og „vellystingar praktuglega“. Press- an e i n er eða ætti að vera correct- ívið, meðalið, sem frelsar heimin-n undan þessu aldanna -fargi. Og — þó er vont að sjá og segja hið rjetta: Vulgus vult decripi, eða: voluit eða v-olebat, rjettara að segja — segir Terki gamli — usque ad tempus nostrum. Og nú er blóðið orðið svona, svona bland- að -og samsett, að án kredda og annara andl. og líkaml. hafta og hen-gingaróla lifa menn ekki! Hvemig fer tóbak -og brennivín með mannoskjurnar ? Únítarar eru gentlemen og kenna með jafnri stillingu og vorkunnsemi við veik- an náunga — líka hinar ríku stór- kirkjur. Dramb og innbyrlska em líka meðaumkunarverðir 1-estir. Já, ef þú tekur þessa tví-skiftu grein, -skaltu fá aðra betri, t. d. tölur eft- ir snillinginn Stopford A. Brooke, líkl. mesta kennimann hins frí- hyggjandi flokks, sem nú er uppi. Jeg býst við að koma austur í -ágúst og dvelja -hjá Östlund y2 mán. tíma við prófarkalestur. Get- um við þá 1-eitt saman þinn grað- fola og minn húðarklár! — Þangað til Á dieu! Þinn einl. Matth. Jochumsson. ------0------ Bækur. Heljarslóðarorusta. „Það veit Drottinn, jeg þarf ekki bækur! J-eg þeysandi sveima — glaður á guðlegum væn-g gegnum hið ferlega djúp“. Þetta er eftir Ben. Gröndal, eins og margir rnunu fara nærri um, úr sama kvæðinu og þar sem hann segir, að hann sje „sem glóandi gull, gáfaði hausinn á sjer“. Og það er sjálfsagt þessi hlið á Gröndal og gáfum han-s, sem m-est hefir markast í meðvitund manna, það er háðið og gamansem- in, sem alt lætur fokka, sem oftast er tengd við nafn hans. Þ6 hann sje annað veifið í „undrageim í himinveldi háu‘ ‘, vendir hann sínu kvæði í kross á næsta augnabliki og fer að yrkja um allons, enfants de la patrie á þessu stóra general fylleríi. Og þessi skoðun á Gröndal er sjálfsagt einna algengust, að skoða starf hans og skáldskap sem nokk- urskonar skemtilegt poetiskt gen-* eralfyriirí. Og Gröndal á eflaust sjálfur þátt í þeirri skoðun. Hann talar um það, að skáldin eigi -ekki að „præsentjera“ sig fyrir fólkinu í sparifötum með merkilegum spek- ingsljóðum eða „eins og einhverj- um heilagleika“, heldur koma til dyranna ein-s og þau -eru klædd. Þetta getur nú alt saman verið gott og blessað á sína ví-su, þó að tæpast taki því að ala á neinu því, sem orðið getur til þess að auka á -gagnrýnisskort manna og poetiska stóriðju — nóg kemur sa-mt. En Gröudal kugsar sem svo um það, sem aðrir telja vitleysu eða hroð- viikni — að „fljúgandi þeysi jeg fram um fimbuldjúpið hið bláa, tíma jeg hef ekki til trippum að gegna um leið“, eða að hann hafi ekki tíma til að fást um það, þótt eitthvað misjafnt fljóti með í fossa- falli ímyndunaraflsins. En sann- leikurinn er sjálfsagt sá, að þessi 'hlið — gamansemin og ærslin — á skáldskap Gröndals hefir verið haf- in of mi-kið á kostnað þ-ess sem al- varlegra er og að sumu leyti list- ræima í skáldskap hans. Og Grön- dal er ekki rjett skilinn fyr en báð- ir þessir þættir í skáldskap hans hafa verið rjettilega metnir — og samband þeirra hvor við annan. Hjer eru ekki tök á því að reyna að lýsa þessu nákvæ-mlega, en á að eins að benda á það í sambandi við hina nýju útgáfu Heljarslóðaror- ustu og Þórðarsögu. Og auðvitað þarf gildi gamansemi Grönda'ls ekki að rýrna við þetta. Hitt er heldur ekki tiltökumál, þótt fyrni yfir margt af því, sem svo -frjósam- ur og fjölvirkur — og að sumu leyti hroðvirkur andi — lætru frá s.]er fara. Ýmislegt í gamanritum haus og gamankveðskap er of bund ið við stað og tíma, til þess að geta haft sama gildi nú og þegar það kom fyrst fram. En það, sem best er á þessu sviði hans, eins og í skáldskap hans yfirleitt, heldur lífs gildi sínu enn, þótt það hafi, að minsta kosti í svip, horfið í með- vitund „góðfúsra l-esara“ bak við ýmislegt það, sem nýrra er, en eng- anveginn veigameira. Annars er það ekki ætlunin að rekja hjer efni þessara gamansagna eða lýsa formi þeirra, h-eldur að eins að minna á þessa nýju útgáfu. Og það er ástæða til þess, ekki ein- ungis vegna þeirra sj-álfra ein- göngu, heldur vegna þess anda al- ment, sem yfir þeim hvílir — anda glensins og gamansins. Það er andi sem í rauninni er alt of lítið til af í íslenskum bókmentum og íslensku þjóðlífi. Þessi andi getur reyndar auðveldlega orðið að andleysi — og eftir því er engin ástæða að óska. Það kemur óbeðið. En heilbrigður andi gamanseminnar getur líka ver- ið hreinsandi og hressandi m-áttur

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.