Lögrétta - 15.01.1922, Side 4
4
LÖOBJBTTÁ
Framleiðslan, og sjerstaklega sú
grein hennar, botnvörpungaútvegnr-
inn, er öll óhöpp ríkisins á að bera,
myndi verða œtlað að borga brús-
ann. Þótt þessi atvinnuvegur sje nú
svo sköttum hlaðinn, að hann eigi
fái undir risið, mundi þó enn verða
freistað að þyngja skattafargið, ef
vörubannfæring Tímans nœði fram
•að ganga.
Afleiðing þessa er auðsæ. Fram-
leiðslan stæðist ekki hinar auknu
álögur, dýrtíS og atvinnuleysi yk-
ist, og böl það, er þessu yrði sam-
fará,' leggjast sem mara á landið,
en þó sjerstaklega á Reykjavík.
Þá er hjer er rætt um innflutn-
ihgsbann, e5a innflutningshöft, má
ekki bera það saman við slíkar ráð-
stafanir annara þ.jóóa. Þær leggja
höft þessi á í alt öðrum tilgangi.
Hjá þeim er slíkt gert til þess, aö
vernda iðnað landsins, sem oft er í
hættu staddur, vegna samkepni
samskonar erlends varnings. Þar eru
þessi höft sett í sama tilgangi sem
verndartollar. Hjer er engu slíku
til að dreifa. Innflutningsbann þetta
mundi engan atvinnuveg vernda;
síður en svo. Það mundi stofna
stærsta atvinnuvegi vorum, útgerð-
inni, í þá hætfu, að undir hœlinn
er lagt, hvort hann fengi undir risiö.
Tíminn telur innflutningsbannið
sparnaðarráðstöfun. Hjer er þó ekki
sagður nema hálfur sannleikur.
Eyðslumöguleiki einstaklingsins er
eins mikill sem áður, svo aS engu er
nær komist hinum raunverulega og
einasta sparnaði, er að gagni kemur,
en þaö er sparnaður einstakling-
anna og ríkisins.
Því er ekki að neita, aS ýmsar
þjóðir hafa reynt bannleiðina til
viðskiftajafnaðar út á við, en það
er skemst frá að segja, að allar hafa
þær horfiS frá þeirri stefnu, sem
vitagagnslausri, enda ekkert borið
úr býtum annað en þá reynslu, að
þetta sje ekki rjetta leiðin. Má virða
Tímanum það til vorkunar, þótt
hann eigi trúi reynslu annara þjóöa,
úr því að hann tekur ekkert mark
á vorri eigin reynslu í þessu efni.
Innflutningshöftin yrðu því að-
eins einn voltakrossinn til, er nú á
að ríöta til lækningar ástandi því,
•ei ófriðurinn mikli hefir fært oss.
Morten Ottesen.
-------0------
Frá Danmörku.
11. jan.
Inflúensan í Khöfn.
Dagblöðin í Kaupmannahöfn
skýra frá því í gær, að 1000 manns
hafi veikst af inflúensunni þar og
eru um 550 af þeim í tetuliðinu
þar í borginni. Lögreglan hefir
lokað opinberum danssölum og
bannað allan dans í þeim. Kvik-
myndahúsin hafa fengið skipun
um að framkvæma fullkomna loft-
ræstingu í kvikmyndahúsunum
eftir hverja sýningu.
Atvinnuleysið.
Atvinnuleysið virðist faia vax-
andi í Danmörku. Talið er að um
83 þús. manns h tfi verið atvinnu-
lausir síðustu viku, og er það 4
þúsundum meira en vikuna áður,
og um 30 þús. fleira en á sama
tíma í fyrra.
Stækkun norsku landhelginnar.
„Berlingske Tidende” þykjast
hafa fyrir satt, að af Dana hálfu
hafi norsku stjórninni verið sent
ávarp viðvíkjandi v hinni nýju
stækkun landhelginnar við Noreg,
þannig að hún verði 10 mílur, svo
hægra sje að hafa eftirlk með á-
fengissmyglun. Talið er að ávarp
dönsku stjórnarinnar sje ekki mót-
mæli gegn landhelgisstækkuninni
en að þar sje bent á þær hindr-
anir fvrir löglegum siglingum
danskra skipa, sem stækkunin
gæti haft.
Utanríkisverslun Dana.
Samkvæmt hagskýrslum fyrir
fvrstu 11 mánuði síðasta áBs hafa
Danir flutt inn vörur fyrir 125—
150 miljón kr meira en út var
flutt. En árið 1920 var mismunur
þessi 1327 miljónir og 1913 140
miljónir.
Skuldir Dana erlendis.
Hagstofan áætlar í skýrslu sinni
fyrir 1921 að skuldir Dana erlend
Er það alíka ha upphæð eins og
fyrir ári síðan..
Seðlaumferðin í Danmörku.
Á síðastliðnu ári hefir þjóð-
bankinn danski dregið úr umferð
86 mi'lj. kr. af seðlum. Voru seðlar
I umferð 556 milj. kr. í ársbyrjun,
en 471 milj. í árslok.
-------O-
Dagbók
10. janúar.
Púkinn. Þessi visa hefir blaðinu
verið send:
Gleði er iillu góðu fólki gremja Tímans.
Rjeði vondskan, veit hver maður,
væri púkinn eflaust glaður.
Bæjarstjórnarkosningar hafa farið
fram á Isafirði og Seyðisfirði. Á
ísafirði voru kosnir: Sigurjón Jóns-
son útgerðarstjóri, Vilmundur Jóns-
son læknir og Eiríkur Einarsson. Á
Seyðisfirði voru kosnir: Jón Jónsson
í_ Firði, Gestur Jóhannsson og Sveinn
■Árnasop. Alþbl. segir, að tveir þeir
síðarnefndu á báðum stöðunum sjeu
sínir menn, en líklegast er að það sje
lýgi, eins og flest annað, sem í blað-
inu stendur.
1 dag fer fram kosning í Hafnar-
firði og hjer í bænum 28. þ. m.
11. janúar.
Apríl kom í gær frá Englandi. Skip
verjar allir heilbrigðir.
Lík hefir fundist í höfninni við
leit að mönnunum tveimu,r er drukn-
uðu af Haukstogurunum. Er áilitið að
það sje af Eyþór Kristjánssyni vjel-
stjóra.
Jarðarför. I gær var jarðaður hjer
Jón Tómasson frá Hrófá við Stein-
grímsfjörð. Andaðist hann á Landa-
kotsspítala, og hafði átt við lang-
vinna vanheilsu að búa. Bjarni Jóns-
son dómkirkjuprestur jarðaði.
Bæjarstjórnarkosning í Hafnarfirði
fór fram 10. þ. m. og voru kosnir
ölafur Böðvarsson kaupm. og Gunn-
laugur Kristmundsson kennari, hinn
síðari af lista Alþ.fl. — Listar voru 5
Saga Borgarættarinnar hefir verið
sýnd fyrir húsfylli tvö undanfarm
kveld og verður sýnd enn í kveld í
síðasta sinn.
12. janúar.
Fisksalan. Þessir botnvörpungar
hafa selt afla sinn í Englandi ný-
lega: Austri fyrir 1600 pund sterl.,
Kári 1800, Geir 1700 og Ari rúm
1600.
’Egill Skallagrímsson kom af veið-
um nýlega með 900 kitti. Hann kom
með lík Bárðar Sigurðssonar, þess
er druknaði á Flateyri í fyrra mánuði
Hann var háseti á Agli.
13. janúar.
Dánarfregn. 9. þ. mán. andaðist úr
lungnabólgu Elís Jón Jónsson bóndi
að Ballará í Dalasýslu, dugn-
aðar bóndi fimtugur að aldri. Hann
lætur eftir sig ekkju og 7 börn flest
uppkomin, meðal þeirra er Sigríður
kena Stefáns skálds frá Hvítadal.
Siglingar. Botnia fer frá Kaup-
mannahöfn í dag áleiðis hingað. Lagar-
foss hefir sennilega lagt á stað frá
New-York j gær. Goðafoss kom til
Kaupmannahafnar í fyrradag. Borg fór
f’rá Bareelona áleiðis til Lissabon í gær.
Gullfoss á að fara frá Khöfn 17. þ. m.
V * I 4
-------0-------
Dragnótaveiðai*,
Gísli Johnsen konsúll hefir nú1
gert ráðstafanir til þess að reyna
duagnóaveiðar við Vestm.eyjar
og ætlar að gera út einn bát til
þess, að stunda þær. Með Botníu
næst á hann von á dönskum manni
sem kann þessa veiðiaðferð, og á
hann að hafa þar stjóm á hendi.
Segir konsúllinn, að ef þessi veiði-
aðferð hepnist hjer, sem hann
væntir að verði, sje um stórmikinn
sparnað að ræða. Fyrst og fremst
sparast vinnan við að beita lóð-
irnar, og í öðru lagi sparist kaup
á beitunni, sem nemur um 2000
kr. á hvem vjelbát. Yið hvem
vjelbát, sem veiði stundar, með
þeim tækjum, sem nú tíðkast hjer
þarf 8 manna vinnu, en aðeins 4
manna vinna við bát, sem stundar
veiði með dragnót. Getur því
dragnótaveiðin svarað kostnaði
þótt mun minna aflist á bátinn
en með hinni veiðiaðferðinhi.
Bjarni Þorkelsson skipasmiður
segist hafa kynt sjer nokkuð drag-
nótaveiðar á ferðum sínum um j
Jótland 1906 og 1910, en þá voru
dragnætur aðeins notabar við kola-
veiðar. Hann keypti nokkru síðar
dragnót frá Helsingör nótavinnu-
stöð og reyndi hana með Páli
heitnum Einarssyni frá Hvassa-
hrauni í Viðeyjarsundi, og fengi
þeir í hana mikið af sandkola..
Síðan reyndi Páll nótina við þorsk-
veiðar hjer úti í flóanum. Fjekk
hann mikið í fyrsta drætti. En í
öðrum drætti rifnaði nótin, því
þaö var venjulegkolaveiðanótogekki
gerð til annara veiða. Páll drukn-
aði nokkru síðar, og segir B. Þ.
að þess vegna hafi ekki orðið úr
því, að frekari tilraunir væru þá
gerðar hjer með dragnótaveiðina.
-----0-----
Loftárásir.
Engri borg reyndu Þjóðverjar jafn
þráfaldlega að granda með lðftárás-
um á stríðsárunum eins og London.
Árangurinn varð ekki að sama skapi
og skemdir þær, sem Þjóðverjar unnu
á borginni námu ekki eins miklu og
kostnaðurinn við flugferðimar til Eng
lands.
Samkvæmt skýrslum, sem nú hafa
verið gefnar út um loftárásirnar, hafa
174 hús verið gereyðilögð og 619 mik-
ið skemd, en nokkur þúsund hús
skemd smávægilega. Meðal skemdra
húsa var aðalsímastöðin, jámbrautar-
stöðvaraar í Liverpool Street og St.
Paueras og St. Páls kirkjan. Skaðinn
er alls metinn á 2.042.000 sterlings-
pund. Mannskaðinn við loftárásirnar
var mikill. 524 manns mistu lífið og
1264 særðust. En í öllu Englandi ljetu
1570 manns lífið við Ioftárásir en
Flöaáveituf élagið
Aðalfundur t Flóaáveitufjelaginu verður haldinn í húsinu Fjölni
á Eyrarbakka föstudaginn 10. febr. næstkomandi kl. 12 á hádegi með
þessari dagskrá:
1. Skýrt frá hag og framkvæmdum fjelagsins á liðnu ári.
2. Lagöiv fram til úrskurðar endurskoðaöir reikningar fyrir sama ár.
3. Kosin stjórn og varastjórn áveitufjelagsins og 2 endurskoðunarmenn
reikninga.
4 Rædd og tekin ályktun um önnur mál, sem áveituna varða.
Stóra-Hrauni, 6. janúar 1922.
Félagsstjónnin.
Ofnar og eldavélar
frá Bornholm. Þvottapottar, skipsofnar,
hnérör, eldf. leir og steinn. Kolakörfur.
H.f. Carl Höepfner.
Aveitumælingar.
Allir þeir aem óska eftir að Búnaðarfélagið gangist fyrir
mælingum til áveitugjörðar eða^annara jarðarbóta á næsta sumri,
verða að gera félaginu aðvart fyrir 1. mars næstk. Vegna þess
hve umsóknir eru örar um mælingar þessar og starfskraftar fé-
lagsins takmarkaðir, geta engir sem senda umsóknir sínar seinna,
vænst þess að hægt verði að sinna þeim á næata ári.
Búnaðarfélag Islanðs.
Þeir sem ætla að fá sér
tilbúinn áburð og fræ
fyrir vorið, sendi félaginu pöntun fyrir lok janúar-
mánaðar.
Fiskilínur
enskar, úr ítölskum hamp, 1 */a. 2> 2V2> 3, 3Va, 4 og 5 lbs., bestar
og ódýrastar hjá
Hf. Carl Höepfner, Reykjavík.
4041 særðust, og kemur því þriðjung-
ur á Lundúnaborg. -Miklu fleiri láta
lífið við slys á götum borgarinnar
á einu ári, en alls við loftárásirnar
þau þrjú ár, sem þær stóðu yfir.
Árásirnar höfðu enga hernaðarlega
þýðingu, Iiið eina sem með þeim vanst
var það, að drepa og særa saklaust
fólk, sem engan þátt tók í ófriðniiyi-
-O
Gröf Sverris konungs.
Yið svokallað Ahlefeldts-virki hjá
Bergen var verið að grafa fyrír járn-
braut nóvembermánuði síðastliðnum.
Rákust menn þá á grunn Kristkirkj-
unnar fornu, sem rifin var árið 1530
af ljensherranum í Bergenhus. í þessari
kirkju var legstaður Sverris konungs
að því er segir í gömlum sögum, og
ýmsra annara höfðingja frá fyrri
tímum. Hefir mönnum eigi verið
kunnugt um, hvar kirkja þessi hafi
staðið, þangað til nú að rústir þess-
ar fundust og koma þær heim við
lýsinguna á kirl^unni. Mannabein
hafa fundist í rústunum, þar á meðal
stórir mannskjálkar og ýmsat fornar
minjar voru á sama stað, svo sem
járnmjel úr beisli. Fornleifar þessar
voru aðeins ,einn meter undir yfir-
b< rði jarðar.
--------0-------
Timamolar.
Tímanum er tíðrætt um lau)
vmsra opinberra starfsmanna og þyk
ir þau of há. Ekki skal um það deil
hjer, en vill hlaðið ekki gera svo ve
og upplýsa um laun starfsmanna Sam
bandsins til samanburðar. Það er sei
sje sagt, að launin þar sjeu ekkei
smáræði. Það er sagt að þar sje
menn með 12000 kr. launum og jafr
vel hærri, sem litlum tíma hafa vari
til undirbúnings starfs síns. Er þett
satt ? Er þetta satt, að slíkir men
hafi 2000 kr. meiri laun en ráðhen
arnir ? Hjer er ekki átt við aðalfran
kvæmdarstjórann.
Tíminn segír, að bráðum kor
Landsreikningufinn fyrir árið 192
Hann kom í október í haust og <
endurskoðaður fyrir alllöngu. Þf
verður ekki sagt að Tíminn sje
ui dan tímanum.
N.
-0-