Lögrétta - 23.05.1922, Síða 4
4
LÖGRJETTA
eins og kosningagreinar Alþ.bl.,
eiga illa við í þessari samvinnu,sem
þarna hefir verið til stofnað, og
mest líkindi til þess, að þeim Tíma-
mönnunum sje það ekki sem geð-
feldast, aö Alþ.bl. nuddi sjer opin-
berlega upp við þá með miklum
fleðulátum.
En þeir eru ekki enn búnir að
kenna Ólafi laumuna. —, Ólafur
kann ekki önnur spil ennþá en
lönguvitleysu og elting.
Stúrimannaskólinn.
Burtfararprófum við stýrimanna-
skólann lauk 2. maí, og útskrifuðust
34 nemendur skólans. 32 tóku al-
menna stýrimannaprófið og voruþað
þessir. — Stigatalan er fyrir aftan
nafnið:
Ari Helgason, Barðastrandarsýslu 81
Árni J. Vigfússon, Skagafjarðars. 74
Árni S. Jónsson, Austur-Skaftf. 82
Bjarni Eiríksson, Hafnarf..........91
Brynjólfur Kjartansson, Rvík .. 94
Cæsar Hallbjörnsson, Mar, Barð. 78
"Einar V. Einarsson, Rvík ....... 101
Guðjón Finnbogason, Rvík ......... 87
Guðjón Guðbjörnsson, Snæfellsns. 79
Guðm. Fr. Gíslason, Rvík ......... 49
Guðm. Guðmundsson, Strandas... 105
Guðni Pálsson, Rvik ............. 83
Gunnl. Axel Jóhannesson, Eyjaf. 104
Hannes S. Einarsson, Húnavatnss. 84
Haraldur Pálsson, Rvík ...... 103
87
95
96
87
93
107
106
Hinrik J. Sveinsson, Rvík ...
Jóhann Ó. Bjarnason, Árness.
Jón Jónsson, Rvík .............
Jón Júníusson, Ámessýslu ...
Kristján H. Jónsson, Hnífsdal
Lárus Lúðvíksson, Akureyri . .
Lúðvík Vilhjálmsson, Akranesi
Magnús Brynjólfsson, Árnessýslu 103
Óskar Ág. Sigurgeirsson, Rvík .. 94
Óskar E. M. Guðjónsson, S.-Múl. 78
Páll V. O. Böðvarsson, Seyðisf. 97
Sigurður Þ. Sveinsson, Rvík .... 89
Stefán í. Dagfinnsson, Rvík .... 69
Stengrímur Steingrímsson, Rvík.. 98
Sæmundur E. Ólafsson, Árness... 98
Sæmundur J. Guðjónsson, ísaf... 49
porsteinn N. IÞorsteinsson, Rvík.. 90
Undir fiskiskipstjóraprófið gengur
Guðjón Jónsson, Eyrarbakka .... 51
Guðm. Halldórsson, Rvík...........48
Við skólauppsögn færðu lærisvein-
ar þessir forstöðumanninum að gjöf
útskorið blekstativ, mikið listaverk, í
xninningu um 25 ára kennarastarf
hans við skólann.
Erl símfregnir
Khöfn 18. maí.
þjóðverjar endurreisa Petrograd.
SímaS er frá Berlín, að nringur
þýskra banka bafi tekið að sjer
að reisa Petrograd úr rústumaft-
ur. „
Stjórn írlands
hafa írar sjálfir nú tekið í sínar
hendur að öllr leyti.
Einþykni Ameríknmanna.
Mikil vonbrigði hafa orðið yfir
því, að Ameríkumenn hafa neit-
ag að taka þátt í samningunum
sem fram eiga að fara um Rúss-
landsmálin í Haag. Ameríkumenn
eru að hugsa um að senda nefnd
manna til Rússlands til þess að
kynna sjer ástandið þar-
Dagbók.
8. maí.
Hjónaband. Síðastliðinn laugardag
oru gefin saman í hjónaband ung-
rú Helga S. Björnsdóttir, hrepp-
tjóra í Grafarholti og Hreiðar Gott-
yálksson. Brúðkaupið fór fram í
hafarholti og sátu það yfir 80
aanns. Síra Magnús á Mosfelli gaf
irúðhjÓriin saman.
Björgunarskipið Þór fór austur á
Meðallandsf jörur í fyrrinótt, ef ske |
kynni að honum tækist að koma
sementsskipinu „Agnes“ á flot. En
mjög lítil von þykir um að það tak-
ist.
Ville d’Ys franska eftirlitsskipið,
sem verið hefir hjer við land undan-
farnar vikur, fer alfarið hjeðan í
dag. Var boð fyrir ýmsa bæjarbúa
um borð í gær.
Siglingar. Vínlandið og Leifur
hepni komu inn í gærmorgun, bæði
með lítinn afla og fóru aftur út í
nótt. .Borg fór til Hafnarfjarðar í
gær og á að fara þqðan til Englands.
Muninn lagði á stað í nótt með salt-
fisksfarm til Spánar.
Fiskileysi er óvenju mikið fyrir
austan land, á Hvalbak, en þangað
hafa togararnir íslensku að vanda
farið til að leita fyrir sjer.
Símablaðið. „Elektron' ‘, málgagn
símamanna hefir légið niðri um stund
en heíir nú skift um nafn og kom
annað hefti „Símablaðsins" út ný-
lega. Er Gunnar Schram símritari
ábyrgðarmaður þess og ritstjóri. —
Blaðið flytur greinar um rafmagns-
fiæði og almenn símamálefni og ættu
þeir, sem áhuga hafa fyrir þeim efn-
um að halda blaðið, því það er vel
ritað.
Söngpróf mentaskólans fór fram í
gær og stýrði því söngkennari skól-
ans, Sigfús Einarsson tónskáld. Hef-
ir söngur verið iðkaður og æfður
mikið og reglulega í skólanum í vgt-
ur og var það flokkur um 90 nem-
enda úr báðum deildum, sem söng við
prófið, piltar og stúlkur. Sungin
voru 10 lög, ýmist blandað kór, karla
og kvennakór o'g tvöfaldur kvartett
eða einsöngur og . kór, og söng þá
Bjarni Bjarnason frá Geitabergi ein-
sönginn. En í tvöfalda kvartettinum
— sem einnig hefir sungið nokkrum
sinnum á samkomum skólans — eru
Bjarni Bjarnason, Guðni Jónsson,
Jóhannes Kjartansson, Bragi Ólafs-
son, Jens Á. Jóhannesson, Lárus Ein-
arsson, G. Guðjónsson og Ólafur
Helgason. En Gísli Pálsson og Kjart-
an Jóhannsson ljeku á hljóðfæri með
nokkrum lögunum. Fjöldi áheyrenda
var þarna viðstaddur og þótti yfir-
leitt takast sæmilega og sumstaðar
ágætlega. Vonandi verður haldið á-
fram að halda uppi og efla söng í
skólanum, því þar er bæði um að
ræða fagra íþrótt og fjörmikinn og
góðan þátt í öllu skólalífi. Hefir
verið of lítið gert að því undanfarið,
að halda uppi slíkum söng og of slæ-
leg áhersla lögð á hann í skólum yf-
irleitt, þó þetta próf sýni það nú að
Jifna er yfir því í mentaskólanum.
Á skólinn því þakkir skilið fyrir
þetta próf og þá auðvitað fyrst og
fremst söngkennarinn, hr. S. E.
19. maá.
Bankarnir sfclja nú viðstöðulaust
útlenda mynt og var gengi á sterl.-
pundi í gær 27 kr.
Kvennaskólinn. Skólanum var sagt
upp 15. þ. m., en prófinu var lokið
12. maí. pessar stúlkur luku fullnað-
arprófi úr 4. bekk skólans: Anna Ei-
ríksdóttir Vestmannaeyjum. Anna
Geirsdóttir Rvík. Anna Rósinkrans-
dóttir, Tröð, Önundarfirði. Anna Sig-
urðardóttir, Pálsbæ, Seltjamarnesi.
Ágústa Bjarnadóttir, Stokkseyri.
Bjamveig Bjarnadóttir, Rvík. Geir-
1 laug Jónsdóttir, Bæ, Skagaf jarðar-
sýslu, Guðlaug Jónsdóttir, Brennistöð
um, Mýrasýslu, Guðrún Einarsson,
Rvík. Guðrún Guðmundsdóttir, Hafn-
arfirði. Helga Kristjánsdóttir, Flat-
eyri. Jenny Guðbrandsdóttir, Rvík.
Karilla Björnsdóttir, Rvík. Kristín
Magnúsdóttir, Ásgarði, Dalasýslu.
Kristín Thoroddsen, Reykjavík. Lín-
eik Árnadóttir, Ögri, N.-fsafjarðar-
sýslu. María Helgadóttir, Rvík. Odd
gerður Geirsdóttir, Rvík. Ólína Jóns-
dóttir, Rvík. Sigríður Guðjónsdóttir,
Rvík. Valgerður Helgadóttir, Rvík.
Þórdís Daníelsdóttir, - Rvík. pórhild-
ur Porsteinsdóttir, Vestmannaeyjum.
Þuiíður Kr. Vigfúsdóttir, Rvík. (Jó
hanna Björnsd., Grjótnesi á Sljettu,
stundaði nám í 4. bekk, en sýktist
síðari hluta vetrar og lank því ekki
prófi).
Slysfarir. — Á laugardaginn var
hreptu bátar, sem voru að veiðum
við Horn, versta óveður. Einnþeirra,
m.b. Tryggvi af fsafirði, misti út
mann, að nafni Ásgeir Buseh, og
annar bátur, úr Hnífsdal, var ekki
kominn fram þegar síðast frjettist
og halda menn að hann hafi farist.
Á þeim báti voru 9 menn.
Landsbankinn. Lokið er nú við að
grafa fyrir grunni viðaukans við
Landsbankahúsið. Nær hann alveg að
húsi Egils Jacobsens kaupmanns og
verður því helmingi lengri en áður
var og þriðjungi hærri. Veggirnir
verða hlaðnir úr höggnu grjóti eins
og gamli bankinn. Að húsi þessu
verður hin mesta bæjarprýði þegar
það er komið upp.
Jarðskjálftinn, sem getið var um
hjer í blaðinu nýlega, fanst víða
fyrir austan fjall, að frásögn að-
komumanna að austan. Á Selfossi
hefir kippurinn verið álíka snarpur
og hjer eða fult eins, en vægari
þegar austar dró. f Grímsnesi og
Biskupstungum varð jarðskjálftans
einnig vart, og á Kolviðarhóli var
hann harður.
Arkir. Fjórða hefti rits þessa er
nýkomið út og flytur að vanda mynd-
i- og sögur og greinar. í þessu hefti
er niðurlag á sögu Ch. Dickens, er
verið hefir í fyrri heftum og upphaf
á annari nýrri, sem talin er mjög
skemtileg. Ennfremur tvær stuttar
ástarsögur.
Barnaskólinn. — Kennarastöðurnar
þar hafa verið óveittar tvö síðast-
liðin ár og kennararnir allir settir.
Hefir þetta valdið allmikilli óánægju
innan kennarastjettarinnar. Nú hafa
stöðurnar verið auglýstar til um-
sókna á ný og umsóknarfrestur á-
kveðinn til 15. júní, svo að væntan-
lega verður ekki langt, þangað til
Vennararnir verða skipaðir í stöðurn-
ar.
20. maí.
Garðyrkjufjelagið. Með Gullfossi
kom hingað danskur jarðyrkjumaður,
Valdemar Larsen að nafni. Er hann
liingað kominn að tillhutun garð-
ju'kjuf jelagsins til aðstoðar Einari
Helgasyni við garðyrkju lijej' í bæn-
um.
Gúllfoss kom í gærmorguji eftir
langa ferð og stranga frá Kaup-
mannahöfn; hafði fengið versta veð-
ur fyrir austan land. Fjöldi farþega
var með skipiiiu frá útlöndum, þar
á meðal: Einar H. Kvaran rithöf-
undur, Páll ísólfsson orgelleikari og
frú hans, Sæmundur Halldórsson
kaupmaður í Stykkishólmi og frú,
Geir H. Zoega kaupmaður, Jóhann
porsteinsson kaupmaður á ísafirði,
Þorsteinn Jónsson bankaritari, frú
M. Olsen, fjórar dætur Aug. Flygen-
ring í Hafnarfirði, Ásta Norðmann,
Ásta og Carla Magnúsdætur, Lára
Sigurðardóttir, Ólöf Jónsdóttir, Guð-
björg Grímsdóttir, Guðríður Guð-
ir.undsdóttir, Soffía Bjarnason, Karó-
lína Guðmundsdóttir, Helga Jóhanns-
dóttir frá Brautarholti, Guðrún Stéf-
ánsson, Bookless útgerðarmaður, por-
bergur Kjartansson kennari, Jón
Loftsson kaupmaður, Brynjólfur
Bjarnason frá Þverárdal, frú Valgerð
ur Wall, Brynjólfur Stefánsson stud.
polyt., Eggert Briem vjelfræðingur,
Templeton enskur knattspyrnumaður.
— Frá Austfjörðum komu: Síra pór-
arinn Þórarinsson á Valþjófsstað,
Ari Arnalds bæjarfógeti, Rolf Jo-
hansen kaupm. á Reyðarfirði, Guðm.
Hagalín ritstjóri, Jónas Andrjesson
kaupmaður á Norðfirði, Magnús Stef-
ánsson frá Eskifirði og frú hans.
Ennfremur kom skipshöfnin öll af
Sterling. Var mesti sægur fólks með
skipinu hingað frá Austfjörðum.
Almanak pjóðvinafjelagsins fyrir
árið 1923 er nýlega komið út. Er
þctta fyrsta almanakið sem út er
gefið samkvæmt lögum um einka-
rjett handa háskólanum hjer til al-
manaksútgáfu, og hafa þeir reiknað
út almanakið dr. Ólafur Dan. Daní-
elsson og cand. mag. Þorkell por-
kelsson. Er snið á því hið sama og
verið hefir að undanförnu. Af öðru
efni bókarinnar má nefna grein eft-
ir Hallgr. Hallgrímsson bókavörð um
Briand, Stinnes, d’Annunzio og de
Valera, árbók íslands 1921 eftir Ben.
G. Benediktsson, útlendar og inn-
lendar fróðleiksgreinar af ýmsu tagi,
nytjabálk (húsráð), sem „Imba Ork-
an“ hefir safnað og skrítlur eftir
Engström. Auglýsingar hafa haldið
innreið sína í almanakið og slíta þar
sundnr samfelt mál, og er það til
lýta.
Páll fsólfsson, sem kom hingað með
Gullfossi í gær, ætlar að dvelja hjer
í bænum í sumar og ef til vill eitt-
S)eiLttoti$í<e
i ^Tncrtkníinj^
heldur uppi reglubundnum ferðum milli NOREGS og AMERIKU
á skipunum „BERGENSFJORD" og ,,STAVANGERFJORD‘ ‘ og
ættu þeir, sem ætla að fara hjeðan til Ameríku, að nota þessar
ferðir. Allar upplýsingar og farseðlar fást hjá
Nic. Bjannason
Hafnarstræti 15. (Sími 157). Reykjavík.
sem er aðalumboðsmaður
hvað fram á vetur. Hefir hann dvalið
í Leipzig í vetur, en ferðast nokkuð
um pýskaland síðustu vikurnar og
haldið orgelhljómleika í Miinchen og
Berlín, eins og áður hefir verið getið
um hjer í blaðinu. Vonandi fá bæjar-
búar bráðlega færi á að hlusta á
þennan ágæta listamann hjer í dóm-
kirkjunni.
Sterling er nú brotið í spón. Stend-
ur vjel skipsins ein eftir á skerinu,
sem skipið strandaði á, en skrokkur-
inn er alveg liðaður í sundur. Botn-
vörpungar, sem fóru inn á Seyðis-
fjörð nýlega urðu varir við mikið
rek úr skipinu í nágrenni við strand-
staðinn.
Sementskipið. — Þór kom hing-
að í gær úr för sinni austur með
Söndum til þess að bjarga sement-
skipinu „Agnes“, sem strandaði eft-
ir síðustu helgi skamt fyrir austan
Hjörleifshöfða. Hafði hann hlaup en
engin kaup, því strandað skip fanst
ekkert á þeim stað sem til hafði ver-
ið vísað, en á siglutrje á skipi sáu
menn á „pór“ eigi langt frá, sem
þeir álitu þó ekki hafa getað verið á
strandaða skipinu. Er líklegt að
„Agnes“ hafi sokkið í sand, skömmu
eftir að skipverjar yfirgáfu hana,
en þó varla svo rækilega, að hún
finnist eigi ef vel er að leitað.
Knattspyrnukennara hafa knatt-
spyrnufjelögin hjer ráðið hingað og
kcm hann hingað í gær með Gullfossi.
Heitir hann Templeton og er leikinn
knattspyrnumaður. Gert er ráð fyr-
ir að hann dvelji hjer fram í' júní-
mánuð og leiðbeini knattspyrnumönn-
um hjer, og byrjaði hann strax í
gærkveldi. Væntanlega verður þetta
til þess að efla rajög framfarir knatt
spyrnumanna og ef til vill gera þá
hæfa til að keppa á næstu Olympíu-
leikum, þannig að landinu geti orðið
sómi að. Sýnir þetta góðan áhuga
knattspymufjelaganna, því vitanlega
hfcfir það mikinn kostnað í för með
sjer að ráða hingað útlendan kenn-
ara.
21. maí.
Hjónaband. í gær voru gefin sam-
an í hjónaband ungfrú Ólöf Jóns-
dóttir, Jenssonar yfirdómara og Sig-
urður Nordal prófessor. Ennfremur
ungfrú Hanna Olsen og Bjarni por-
steinsson vjelfræðingur.
Trúlofun sína hafa birt ungfrú
Alfa Pjetursdóttir, fósturdóttir frú
Önnu Stephensen frá Akureyri, og
Eiríkur Einarsson alþingismaður, úti-
bússtjóri Landsbankans á Selfossi.
Skipin sem vanta. Enn hefir ekk-
ert spurst til bátanna, sem hurfu í
ofviðrinu um síðustu helgi fyrir norð-
an og vestan og eru menn orðnir
mjög hræddir um þá. Eru skipin fimm
alls: Hvessingur úr Hnífsdal, Helgi
frá ísafirði, Aldan og María Anna
af Akureyri og Samson frá Siglu-
firði. Milli fjörutíu og fimtíu manns
munu hafa verið á skipum þessum
samtals.
Pjetur Jónsson flytur til Berlín
frá Darmstadt á komandi hausti. Er
nú útrunninn samningur hans við
óperuna í Darmstadt og gerði hún
honum hin glæsilegustu boð, ef hann
vildi verða áfram þar. En hann kaus
heldur að ráða sig hjá „Deutsches
Opemhaus" f Berlín og verður því
næsta vetur í miðstöð tónlistalífsins
þýska. Pjetur kemur ekki hingað til
lands í sumar, og munu margirsakna
þess.
Norsku Ameríku-línunnar.
Kosningarnap.
Alþ.bl. prentar nú daglega upp
glefsur úr kosningagreinum Mbl.
og mun hugsa sem svo, að þá
verði ekki með sönnu sagt, að
það flytji tóma vitleysu. En mikil
er vanhyggja þess og fleirj blaða
hjer, sem nú eru að skrifa um kosn-
ingarnar, ef þau halda að þeim
tjái nokkuð að þreyta sig á and-
mælum gegn Jóni Magnússyni.
Hann verður kosinn, hvað sem
þessi „veslings“ blöð segja. Það
er þeim algerlega um megn, að
hindra kosningu hans. D-listinn
fær langflest atkvæði. við kosn-
ingarnar og kemur að tveimur
mönnum, en glíman stendurmilli
þriðja manns D-listans og hinna
listanna. Blaðaníðið um J. M.
hefir engin áhrif önnur en þau,
að verða þeim, sem það skrifa, til
skammar bæði lífs og liðnum. —
Stjómmálasaga íslands geymir
nafn Jóns Magnússonar með lofi,
sem ekki verður hnekt af dægur-
fiugnanna vængjablaki. Og kosn-
ing hans var vís og ákveðin um
leið og nafn hans kom á kjörlist-
ann.
Þetta blað átti í gær tal við
merkan mann á Akureyri, og
sagði hann, að blöðin þar væru
lítt farin að ræða kosningarnar.
Þó væri komin meðmælagrein með
D-listanum í íslendingi; hefði
sjer heyrst svo sem flestir væru
þar honum fylgjandi. Við mann
í Borgarnesi átti þetta blað einn-
ig tal nú nýlega, og sagði hann
hið sama um fylgi D-listans þar
um slóðir. Hann kvað B-listann
mjög fylgissnauðan þar í hjerað-
ir.u. Um E-listann (sjera M. Bl.
Jónsson) sagði hann það, að síð-
asta daginn, sem framboðsfrest-
urinn stóð, hefði verið gengið með
hann hús úr húsi þar í kauptún-
inu, til þess að safna meðmæl-
endum, og sýnir það, að meðmæl-
endatala sú, sem lögin krefjast
úr Vestfirðingafjórðungi, hefir
verið ófengin fram á allra síð-
ustu stundu, og er þetta ekkert
undarlegt. Blaðið „Austurland“ á
Seyðisfirði átti að fara að mæla
með þeim lista, eftir að efsti mað-
ur hans kom heim til Austfjarða
nú nýlega úr Reykjavíkurför, en
því varð þegar í stað svo ilt af
þessu, að það sálaðist áður en
það fengi sagt eitt orð um list-
ann. Það leit aðeins á efsta nafn-
ið og dó af því. Svo máttugt er
nafn Vallanessprestsins þar eystra.
Meðmæli „Vísis“ með E-Iistan-
um í gær vöktu bros á allra vör-
um, sem þau lásu, því hver mað-
ur hlaut að finna gletnina, sem
þar lá á bak við, enda kom mönn-
um saman um, að þetta væri „háð
en eigi lof“, eins og Snorri komst
1 að orði.