Lögrétta

Issue

Lögrétta - 02.09.1922, Page 4

Lögrétta - 02.09.1922, Page 4
I Ilý uppfundning. Skandiaverksmiðjan i Ly-sekil, sem býr til bina heimsfrægu SKANDIA - mótora, hefir nýlega sent frá sjer' nýjan mótorlampa, sem með rjettnefni má kalla hraðkveikjulampann. Lampi þessi hitar upp hvaða mótor sem erj á 30—90' sekúndum, eftir stærð glóðarhaussins. Lampinn hefir verið reyndur hjer, og er til sýnis í notkun þeim sem vilja. Verðið er 150 og 350 ísl. krónur, sem sparast á einu ári í tíma, brennurum og bensíni eða olíu, því lampann þarf ekki að hita upp. Allar frekari upplýsingar hjá adalumboðsmönnunt verksmiðjunnar á Islandi: Bræöurnir Proppé Simar 479 & 608. Listvinafjelagið. Þriðja almenn listasýning verður, að forfailalausu, haldin um> miðjan október næstkomandi í hinu nýja sýningarhúsi fjelagsins. Tilkynningar um þau verk, sem eiga að sendast á sýninguna,. sjeu komnar til nefndarinnar fyrir 1. okt. í sýningarnefndinni Þór. B. Þorláksson, Br. Björnsson, Th. Krabbe, Sigr. Björnsdóttir, Sigr. Zoega. Farskólakennara vantar í Rangárvallahrepp. Kenslutími 12 vikur. Börn alls 10'. Umsóknir sendist fræðslunefndinni fyrir 25 sept. n.k. Frœðslunefndin. Grímsstaðir í Breiðuvík fást til lífstiðarábúðar eða á erfðafestu. Húsa þarf bæinn þar. Landskuldin greiðist í jarðabótum. Ágætis mótak og vatn, reki, fjörubeit (án flæðihættu) og lending. Á sumrin fárra mínútna róður til fiskjar. — Lysthafendur semji við Einar Gunnarson, Gröf. Vefnaðarmámsskeið verður haldið á Akureyri í vetur frá 20. okt. til 20. febr. Kenslu- gjaldið, kr. 100,00, greiðist fyrirfram, kr. 50,00 með umsókn. — Efni fæst keypt á staðnum. — Námskeið fyrir vefara ráðgert í mars og apríl. Kennarinn, Brynhildur Ingvarsdóttir, Akureyri, gefur frek- ari upplýsingar. Heimilisiðnaðarfjelag Noi’ðunlands. 4 af atkvæðum þeim um bannið, sem upp hafi verið lesin, hafi 937,423 verið greidd gegn banpi en 897,521 meö. Enn vantar at- kvæði úr fáeinum kjördæmum, en eigi er álitið að þau geti breytt úrslitunum. Foringjar bannmanna álíta atkvæðagreiðsluna tapaða. Ska'ðabæturnar. Símað er frá Berlín, að skaða- bótanefnd bandamanna hafi boðið þýsku stjóminni að senda fulltrúa tii París til þess að semja um gjaldfrestbeiðnina. Hefir þetta orðið þess valdandi, að alt geng- ið hefir fallið hraðara en áður( ?) í Kauphöllinni í Berlín. Khöfn 1. sept. Tyrkir herja. Símað er frá París, að her Mustafa Kemal í Litlu-Asíu hafi hrakið Grikki 60 Idlómetra aftur á bak og tekið borgina Eskischier herskildj og náð fjölda fanga. — Norðurherinn gríski hefir verið einangraður. Ófriðarhorfur í Dónárlöndum. Frá London er símað, að öfl- ugu júgóslavnesku herliöi hafi verið stefnt saman við landamæri Austurríkis. ítalska stjórnin hefir lýst yfir því að ef innrás verði gerð í landið muni hún telja það tilefni til ófriðar og er því að hugsa um, samkvæmt tilmælum kanslarans austurríska, að senda setulið í tvö austurrísk hjeruð. Skaðabótamálið. Bkaðabótanefndin í París hefir samþykt í einu hljóði að veita ekki Þýskalandi gjaldfrest. Hins- vegar var samþykt með samhljóða atkvæðum miðlunartillaga frá Belgum, er gengur í þá átt, að Þjóðverjum verði leyft að greiða þessa árs afborganif síiiar meö 6 mánaða víxlum, eftir að samn- ingar höfðu farið fram um þetta milli Þjóðverja og Belga. uw-r~ ~—ó—------* Dagbók. 25. ápúst. Laxveiðun/um í Elliðaánum verður lokið 31. þessa mánaðar. í september- mánuði verða silungsveiðar leyfðar í ánum, 3 stengur á dag og kostar 5 kr um daginn fyrir hverja stöng frá 1. til 15., en frá 16. til mánaðarloka kostar 3 krónur fyrir stöngina. Kári Sölmundarson fór í gærkveldi til Grimsby með ísfisksfarm, um 2000 körfur. Með skipinu fór Páll Ólafs- scn framkvæmdarstjóri, Hilmar Stef- ánsson, Yaltýr Blöndal stud. jur. og Stefán Stephensen verslunarmaSur. 26. ágúst. Aasberg skipstjóri á Islandi er nú í 225. ferð sinni hingað til lands. I marsmánuði næsta ár verða 50 ár lið- ir. frá því að hann byrjaði sjómensku j og sama dag eru 25 ár liðin frá því atS hann fjekk skip til umráða hjá Sameinaða gufuskipaf jelaginu. Er hann sá, allra núlifandi manna, sem lengst hefir verið í siglingum milli Jflands og annara landa, og enginn farið fleiri slæmar ferðir hjer við lan'd en hann. En aldrei hefir honum hlekst á í íslandsferðum sínum og mé telja það vott um mikla hepni og afbur’ða dugnað. * Heyflulningur hingað er nú með allra mesta móti í sumar. pað hey, æm flutt hefir verið hingað óselt, hafa eigendumir viljaö selja á 12 aura pundið. Er það ofurlitlu lægra er hey var alment selt í fyrra. ísfiskssala. Nýlega hefir Leifur hrpni selt afla shin í Englandi fyrir j 1260 sterlingspund. Heimsstyrjöldin. Fyrsta hefti þeirr- ar bókar er nú komið til allra bók- sala í bænum. Er einnig hægt aS skrifa sig fyrir næstu heftum hjá þeim. Tlinn bersyndugi, skáldsaga sú eftir Jón Björnsson sem kom síðasta ár í Lögrjettu er nú komin í allar bóka- vt-rslanir bæjarins. Bókin er 19 arkir og kostar 8 krónur. Síldveiðin norðanlands. Fyrir helg- ir.a og fyrri hluta þessarar viku var alt útlit fyrir að tekið væri fyrir síld- veiðina fyrir Norðurlandi. Bjuggust því togarar og önnur síldveiSiskip til heimferSar. En nú hefir undanfama daga orðiS vart við síldina aftur, og hefir aflast nokkuð í flestum veiði- stöðvunum fyrir norSan undanfama daga, svo skipin munu ekki hyggja á heimferð fyrst um sinn, nema þá fá þeirra. 27. ágúst. Suðurland er nú komiS á flot úr Slippnum og liggur við Hauksbryggju Búist er við aS þaS byrji ferðir 4. september. Á þaS aS ganga milli Borgamess og Reykjavíkur í stað Skjaldar, sem hættir þeim ferSum. SuSurland á að fara 2 ferðir á viku til Borgamess mánuðina september og október, en nokkru sjaldnar úr því. Mikill munur er á því að fá SuSurland í þessar ferðir í stað Skjaldar, sem orðinn var olt of litill og óhentugur tíl fólksflutninga á þess- ari fjölfömu leið. Má telja SuSur- land sæmilegt skip til þessara ferSa og líklegt til þess aS geta fullnægt þörfinni. 29. ágúst. Síldveiðarnar. Hæstan síldarafla norSanlands kvaS hafa togarinn Ým- ir.Hefir hann um 6000 tunnur.Margir togaranna em meS um 4000. Dánarfregn. SíSastliSinn laugardag andaðist hjer í bænum á heimili sínu J. J. Lambertsen kaupmaður. Sjera Ólafur Ólafsson flutti á Sulinudaginn kveðjuræbu sína í Frí- kirkjunni. Var hún troðfull og varS fjöldi manns frá að hverfa. Sjera Ólafur hefir veriS prestur Fríkirkju- safoaðarins ( 19% ár, og hefir hann á þeim árum í þarfir hans flutt 1000 guðsþjónustur, skýrt um 3000 böm, fermt um 1600 ungmenni, gift 1200 hjórt og jarSsungiS 1500 manns. Ó. Ó. hefir veriS alla tíS einkar ásfr- éæll af söfnuðum sínum. Ársskýrsla ungmennaskóláns aS Núpi í DýrafirSi, hefir MorgunblaSinu bcrist. — Á skólanum hafa veriS þftta ár 32 nemendur. Era þeir allir af VestfjörSum. •’Kennarar vom sjefa Sigtr. GuSlaugssón, er hann forstööu- maður skólans, Björn GuSmundsson, Iljaltal. GuSjónsdóttír og HólmfríSur Kristinsdóttir. Sameiginlegt mötuneyti hafa kennarar og nemendur, og kost- aSi dagfæSi pilía kr. 1,90, en kvenna kr. 1,42. Dánarfregn. I fyrrinótt andaSist á SeySisfirSi Thorvald Imsland kaupmaS- ur. VarS hann 42 ára gamall; vand- aíur maður og vinsæll mjög af þeim. er honum kyntust. 30. ágúst. Bogi Th. Melsteð dvelur í sumar suSur á pýskalandi sjer til heilsu- bótar. Af því aS hann fær sífelt ýmiskonar bónarbrjef frá löndum sín- um hjer heima, ræður hann þeim, sem vilja fá eyðublöS undir umsóknir til þess aS ganga á kennaraskólann í Kaupmannahöfn eða á aðra skóla í Danmörku, og fá, styrk til þess, aS snúa sjer til sendiherra íslands í Kaupmannahöfn. Til hans er og best aS leita í öllum fjármálum. peim sem vilja fá vist eða samastaS í Danmörku, ræður Bogi MelsteS aS leita til Dansk-fslandsk Samfund (Hol- bergsgade 4, Khöfn), og þeim konum, sem vilja læra listiðnaS, aS, snúa sjer til Finns Jónssonar prófessors, sem er í stjóm fjelags þess, er kensl- ima veitir. Heilsa Boga MelsteSs er svo alvar- lega biluS, aS hann varar menn viS aS leita nú til sin um aSstoS, þareS kann geti eigi svaraS slíkum brjef- _______LÖGRJETTA t um. HingaS til hefir fólki, sem eng- an hefir átt aS í Danmörku, veriS mikil vorkunn aS þaS hefir leitaS til hans, því hjálpfýsi hans og óþreyt- andi greiSvikni er öllum kunn; en aS gera þaS nú, þegar hann heilsu sinnar vegna verður að forSast alt umstang og áreynslu, væri altof mikil ónærgætni, enda óafsakanleg þegar hann hefir gefi ráS um það, hvert leita skuli. Garður. Næsta ár, 1923, eru 300 ár liSin síSan GarSur eSa Regensen í Kaupmannahöfn var reistur. Er hann öllum íslenskum stúdentum aS góSu kunnur, og hafa margir þeirra búiS þar í lengri eSa skemri tíma. Á 300 ára afmæli GarSs á aS gefa út stórt og vandaS minningarrit um stofnun- ina meS æfiágripi og myndum allra þeirra, sem þar hafa búiS, eftir því, sem unt verSur aS hafa uppi á slíku nú. íslenska hlutann aS þessu riti frá síSari árum hefir mag. Hallgrímur Hallgrímsson bókavörður veriS beðinn aS semja og einnig að safna til hans. Geta GarSbúar frá því kringum 1895 og til þessa dags snúiS sjer til hans meS upplýsingar. Væri gott, aS þeir vildu sem flestir gera það, svo sá hlutinn yrSi sem best úr garSi gerSur, því margvíslegir erfiðleikar era ann- ars á því að safna slíku saman. — Bókin á aS koma út næsta sumar. Alþingismannshestur hálsbrotnar. — Um miSjan þennan mánuS var Ingólf- ur Bjamason alþingismaSur' á ferS á rauðum hesti er hann á, afbragSs- gæSing. Fjell hann undir honum, og tókst svo hrapalega til, aS hann háls- brotnaði. Matthías pórðarson flutti á sunnu- daginn fyrirlestur á pingvöllum fyrir AlþýSufræSslu Stúdentafjelagsins, um alþingisstaðinn foma. Voru áheyr- endur um 200, flestir Reykvíkíngar. ErindiS var hiS fróSlegasta. Dánarfregn. Nýlega er látinn hjer í bænum SigurSur Hildibrandsson fyrram bóndi í Vetleifsholti í Holt- Utn. Brá hann búi fyrir fáum árum og fluttist hingaS til bæjarins. Sig- urður heitinn var mesti dugnaSar og atorkumaSur. _ 31. ágúst J Oþurkar miklir hafa verið und- arfarið I Þingeyjarsýslu, að því er si'rtiað var frá Húsavík í gær. Hefir enginn þurkdagur komið í hálfan mánuð og eru hey farin að skemm- ast hjá bændum. 1. sept. Síldveiðarnar. Vikuna frá 19.—26. ágúst voru saltaðar á Akureyri 15,437 tunnur en kryddaðar 537. Á Siglu- firði vora saltaðar 29,848 en krydd- aðar 3714 tunnur. Guðmundur Magnússon prófessor hefir alveg nýlega gert keisaraskurð á Landakotsspítalanum hjer og tókst hann svo vel, að þó konan sem skorin var væri alveg aðfram komin, þegar kom á spítalann, lifir bæði hún og barnið. Þetta mun vera f jórði slíkur skurður, sem gerður er hjer á landi. Korthals-Altes, hollenski aðalsmað- urinn sem dvalið hefir hjer í sumar fer til Englands með „Island“ í dag ásamt frú sinni. Hjónin eru bæði mjög hrifin af förinni hingað, náttúrufegurðinni og þjóðinni og hafa tekið ástfóstri við alt það sem ís- lcnskt er. Er óhætt að telja þau einlæga íslandsvini, er ávalt hafi hug á að verða landinu að liði, hvenær - sem þeim gefs tækifæri til þess. Mr. Korthals-Altes mun skrifa um för sína í ensk og hollensk blöð og jafnvel gefa út bók um ísland. Ætla hjónin að koma aftur hingað næsta sumar, að öllu forfallalausu. Rigningar hafa gengið undanfarna daga við Eyjafjörð, og kalsaveður. Síldveíðin hefir verið sama sem engin. Hambro bankastjóri frá London kom hingað með Skildi úr Borgar- nesi í gær, ásamt frú sinni og sam- ferðafólki, ungfrú Tollemaehe og kapteinunum Abereromby og Hood. Hafa þau verið að veiðum í Þverá ur.danfarnar þrjár vikur og legið þar í tjöldum. Veiddu þau ágætlega. Stærsti laxinn, sem veiddist var 24 pund og dró frú Hambro hann. I gær fór ferðafólkið til Þingvalla og í dag heldur það á stað með „Island“. J.ætur það hið besta yfir förinni. Leifur Sigfússon tannlæknir frá Vestmannaeyjum, sem verið hefir búsettur í Þrándheimi undanfarin ár, hefir í sumar dvalið í Vest- mannaeyjum hjá ættfólki sínu. Fer hann aftur með „Island1 ‘ í dag áleiðis til Þrándheims. 2. sept. Magnús Andrjesson, kaupmaður frá Kaupmannahöfn, sonur Andrjesar heitins, sem lengi var við Brydes- verslun, er hjer nú á ferð. Hann hefir verið nær ll ár í Danmörku, lærði þar fyrst landbúnaðarfræði, en fór síðan að gefa sig við yerslun, og rekur nú verslun í Kaupmanna- höfn, í Smallegade 5. — Fer hann bráðlega heimleiðis a.f'tur til Kaup- mannahafnar. Stórmerkileg bók er nýkomin, þar sem er æfisaga sjera Matthíaear Joehumssonar eftir sjálfau hann. — Bókin „Amerisk rád“ kemur út í aeptember. Moderspröjten „Vulkana“ Pris 8, 10 og 11 Kr., med alle 3 P. ) Ror 12, 14 og 15 Kr. Billige til ý.[ 6 og 7 Kr. Ud8kylningpulver 21/, V Kr. pr. Æske. Pr. Efterkr. eller 1S Frim. Forlaag vor nye ill. Prisliste / ’ over alle Gummi-, Toilet- og Sani- / tetsvarer gratis. Firmaet Sa- ' mariten, Kobenhavn K Afd. 60. Bókin. heitir „Sögukaflar af sjálfum mjer“, og byrjaði hann að skrifa þá bók, er hann var sjötugur og jók við smátt og smátt, með nokkrum millibilum. Eru þar margar lýsingar á mönnum, og viðþurðum og margar og margs konar frásagnir, sem varpa ljósi yfir starf og strit þessa ný- látna höfuðskálds ókkar, Eftirmáli er skrifaður af Steingrími lækni syni hans. Bókin er 33 arkir. Hún er nú nýkomin í bókaverslanir hjer og kostar 15 krónur. Hjónaefni. Nýlega hafa birt trú- lofun sína ungfrú Þóra Steingríms- dóttir sýsluman»s Jónssonar á Aknr- eyri og Páll Einarsson kaupmaður á Húsavík. /

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.