Lögrétta

Issue

Lögrétta - 02.03.1923, Page 1

Lögrétta - 02.03.1923, Page 1
Stærxta Islenska lamt*- blaðið. ETTA Árg. kostar (0 k.. iimanlantls, erl. kr. 12,50. Skrifst. og afgr. Austurstr. 5. BæjarbSað iyioB«guiiblað35. Ritstjóri: Þorst. Gíslason.. XVIII. árg. 5. tbl. Reykjavik, föstusíaginn 2. mars 1923. ísafoldarprentsmiSja h.f. Anörjes Fjetösteö augnlæknir. Það var sviplegur atburður núna 9. fyrra mánaðar, að missa annan eins mann og Andrjes lækná Fjeldsted, og mjer er nær að halda að engir íslendingar sakni þessa manns eins sárt eins ag einmitt þeir, sem best kunnu manninn að meta, en það vorum -við læknar landsins. Jeg kann ekki að rekja ætt þessa merka manns. En það þyk- ist jeg muna fyrir víst, að það var vorið 1883 að jeg kom í fyrsta sinni á heimili forekira hans, Hvítárvelli í Borgarfirði, og því gleymi jeg aldrei, því merkari heimili hef jeg ekki hitt fyrir á öllum ferðum mínum um landið; hjónin voru Andrjes gamli Fjeldsted og Sesselja Kristjáns- dóttir, foreldrar Andrjesar unga. Hann var þá barn að aldri, fædd- ur 10. nóv. 1875, stúdent 30. júní 1896, gekk svo í læknaskólann, var einn af fyrstu lærisveinum mínum og Guðmundar Magnús- sonar, Og okkur báðum ljóst, að við, höfðum þar gott mannsefni um að fjalla. Læknaprófi láuk hann 11. febr. 1901 með fyrstu einkunn, fór svo til útlanda, en var haustið eftir, 1902, settur læknir í Þingeyrarhjerað. Því hjeraði gegndi hann í 8 ár, með hciðri og sóma. Það var honum að þakka, að sjúkraskýlið á Þing- evri komst upp, og það er fagur vottur um manngildi þessa látna læknis, að hjeraðsbúar í Þing- eyrarhjeraði tóku sig til strax 0c þeir frjettu lát hans og stofn- uðu spítalasjóð til minmingar um hann. Það er víðkunnugt, að And- rjes gamli Fjeidsted var mesti listamaður, einkanlega á trjeskurð. Og það má vel vera föðurarfur að hugur Andrjesar unga snerist snemma að þeirri grein læknis- fræðinnar, sem var einna listfeng- ust, en það eru auglækningar. — Meðan hann var læknir í Þing- eyrarhjeraði, tók hann sjer tvis- var sinnum langa ferð á hend- ur suður um lönd, til að nema a ngnlæknisfræði. Og vorið 1910 settist hann að hjer í Beykjavík sem augnlæknir — þá var Björti Ólafsson látinn. Andrjes ungi var mikill maður vexti og prýðilega vaxinn. Hann var göfugmenni og sómadrengur. T'að er hart að missa slíka menn á hesta aldri. En það er g0tt að hafa átt þá, því að það eru þesskonar menn, sem hafa verið líf og sál, sómi og styrkur okk- ar litlu þjóðar frá því hún var í heiminn borinn. ö. Björnson. UBrslunarólagiö Leiðrjetting. Svo nefnist grein í Tímanum 17. febr. frá hr. alþingismanni Þorleifi Jónssyni og hr. Sigurði Jónssyni bónda á Stafafelli. — Kvarta höfundarnir um það, að jcg skuli í riti mínu „Yerslunar- óiagið“ hafa skýrt skakt frá því liversu mikið lán ,Kaupf jel. Austur Skaftfellinga4 hafi fengið hjá Sambandinu árið 1920. Eins og sjá má af þessum ritlingi mínum, er ekkert kaupfjelag nefnt þar með nafni í þessu sambandi. Og einmitt af því, að ekkert nafn er þar nefnt, hefir að minsta kosti eitt annað kaupfjelag tekið um- mæli mín til sín, og mun hafa gert fyrirspurn um það til höfuð- staðarins, hvort ekki væri hægt að lögsækja mig fyrir þau. Það verður þó ekki annað sagt, en að samkepni sje til innan Sam- vinnufjelaganna. Mín vegna mega eins mörg fjelög og vilja helga sjer þau orð er höfundarnir vitna í. En þó jeg mintist á eitt ó- nefnt fjelag, er jeg var að henda á. hversu Sambandinu hefði verið ljúft að lána og stækka veltu sína, fljótar en góðu hófi gegndi, þá var það ekki gert af því, að jeg vildi áfellast neitt sjerstakt fjelag fyrir það að taka lán. Það sem olli því, að jeg yfir höfuð mintist á nokkurt ónefnt fjelag í þessu sambandi, var á- stæða sú, sem jeg benti á á bls. 36 í ritlingi mínum í fyrstu máls- grein, að Sambandið skyldi leyfa sjer, að lána fjelögum „sem ekki voru gengin í Sambandið, nje höfðu þá beiðst upptöku þar“. Það skoðaði jeg gert í fullu ó- samræmi við lög Sambandsins, þó jeg ekki í það sinn gerði mjer frekara far um að leiða athypli að þessari .ráðabreytni þess. Skoðun mín í þessu efni stjðst við ákvæði 2. greinar í lögum Sambandsins, sem prentuð voru 1919, og við hlutarins eðli, þar sem fjelagsskapurinn að öllu ’eyti er bygður á samábyrgð. Fyrri hluti 2. greinar hljóðar svo: „Tilgangur Sambandsins ef að koma til leiðar samstarfi meðal allra samvinnufjelága landsins, sjerstaklega með því: a. að vinna að samræmi í skipu- lagi, starfi og framkvæmdum fjelaganna. er í Sambandið ganga. b. að annast um vörusölu og vöru kaup fjélaganna“. Það virðist liggja í augum uppi, að önnur fjelög gátu ekki haft samskjfti við Sambandið, og allra síst fengið þar lán en þau fjelög, sem gengið höfðu í hina sameig- inlegu áhyrgð fyrir Samhandið, um leið og viðskiftin hófust. Þetta er og í samræmi Við 3. og 4. grein nefndra laga, sem prentaðar eru i ritlingi mínum „Verslunarólag- ið“, bls. 32—33. Til glöggvunar tek jeg hjer með 1. málsgrein 3. greinar, sem hljóðar svo: „Fjelag sem óskar upptöku í Sambandið, verður að senda for- manni þess skriflega beiðni um það, undirritaða af þeim, sem lög- um samkvæmt hafa rjett til að rita „firma“ fjelagsins. Beiðninni skal fylgja éitt eintak af lögum fjelagsins og skýrsla um hag þess i sama formi og heimtað er af f.ielögum þeim, sem gengin eru í Sambandið. Ennfremur skal beiðn inni fylgja skýrteini, er sanni, að lögmætur fjelagsfundur hafi sam- þvkt upptökubeiðnina. Er for- manni Sambandsins þá heimilt að veita slíku fjelagi sambands-rjett- indi til næsta aðalfundar“. í þessari málsgrein eins og í 2. og 4. grein, er ekki gert ráð fyrir öðrum viðskiftamönnum Sambands ins en þeim, sem gengið hafa í Sambandið, eða að minsta kosti hafa beiðst upptöku þar og upp- fylt önnur þau skilyrði fyrir upp- tíikunni, er 1. málsgrein 3. grein- ar setur fyrir því að geta „öðlast sambandsrjettindi til næsta aðal- fundar“. Og eins og sjá má af þessu í 1. málsgrein 3. greinar, er formanni Sambandsins aldrei gefið vald til að taka inn í Sambandið nokkurt fjelag til fullnustu, þó það upp- fylli öll inntökuskilyrði þau, sem 3. gr. setur fyrir inntökunni til bráðabirgða. Þetta sýnir að stofn- endur Sambandsins hafa í upphafi haft hina afarhættulegu sjálfskuld arábyrgð í minni og því viljað tjyg'gja það sem best, að taka ekki f jelög inn í Sambandið, nema þi'.u, sem eigi gætu orðið liand- bendi stofnendanna, vegna skulda. Nú ér það vitanlegt, að Sam- bandið hefir veitt fjelögum lán, sem aldrei höfðu beðið um upp- töku í Sambandið og sem höfðu því enga sameiginlega ábyrgð með því. Sum þessara fjelaga munu hafa gengið í Sambandið síðar, svo sem Kaupfjelag Austur-Skaft- fellinga, sem sótti fyrst um upp- töku í Sambandið ári síðar en við- skiftin hófust. Og þegar í árslok 1920 munu slík utansambands fjelög hafa skuldað Sambandinu við Vk milj. króna. Og þó að fulltrúar sambands- deildanna kunni að hafa samþykt slíkar ráðstafanir stjórnar Sam- handsins eftir á, þá getur það samþykki ekki skuldbundið nema þá sjálfa persónulega, því umboð þeirra getur ekki náð til að sam- þvkkja þann verslunarrekstur, sem er lögum Sambandsins gagnstæð- ur. Það segir sig sjáift. Um tölur höfundanna get jeg eðlilega. ekkert sagt, enda koma þær aðalefni málsins lítið við eins og menn sjá, úr því fjelag þeirra fjekk lánað að mun hjá Samhand- inu, án þess að biðja um upp- töku í það, samkvæmt lögum þess. En tölurnar sýna þó þetta: 1. að • kaupfjelagið hefir keypt húseignir 1920 fyrir kr. 110.000, 2. að fjelagið kaupir vöruleifar af fráfarandi kaupmanni fyrir kr. 46.000. 3. að fjelagið fær að öðru leyti alt vörulán hjá Sambandinu, án ; þess að biðja um upptöku í það fyr en ári eftir að viðskiftin hóf- u st. 4. að fjelagsmenn leggja fjelag- inu ekki til neitt fast hlutaf je eða , stofnfje, en veita því 75 þús. kr. lán, sem sett er í svonefnda inn- j lánsdeild. Þetta sýnir að sýsluhúar hafa verið vel stæðir árið 1920, þrátt fvrir það, að þar hafði verið rekin kaupmannsverslun um mörg ár. Og þar sem kaupfjelagið mun nú ! að auki hafa notið alls hins eftir- , vænta kaupmannsgróða síðan 1920 , — - þá ætti það nú að vera svo vel stætt, að það þyrfti ekki að vinna fyrir að standa í sjálfskuldar- ábyrgð fvrir aðra svo miljónum 't króna skiftir, til þess að geta not- ; ið nauðsynlegs lántrausts. Stjórn fjelagsins sjer þá vænt- anlega um að kaupfjelagið losni sem fyrst úr þessari ábyrgð, því i hana má telja alveg óforsvaran- I lega, hvernig sem á er litið. Reykjavík 27. febrúar 1923. Björn Kristjánsson. Þingtiðindi. ! 28. febrúar. í gær (mánud.) var aðeinst eitt I mál á dagskrá í ed. frv til laga | um breyting á lögum um vöru- (toll og var vísað til fjárhags- nefndar. I Biskupsembættið. En í nd. voru 4 mál á dag- skrá, en aðeins 2 af þeim af- greidd og stóð fundur í rúma 3 tíma, og var því nær eingöngu rætt um afnám biskupsembættis- ins. Með frv. töluðu forsætisráðh. (S. E.) og' atvinnumálaráðherra (Kl. J.). Lýsti S. E. því að þetta embætti væri nú orðið að mestu leyti óþarft í hinu gamla formi sínu, þar sem ekki væri eftir nema skugginn einn af ver- aldlegum völdum og virðingum biskupsins. En það, sem fram á væri farið með frv. væri í raun- inni ekki annað en það, að svifta þessum völdum alveg burtu, enda væri biskupinn að. þessu leyti nú orðið ekki annað en skrifstofumað- ur hjá stjórnarráðinu. Hinsvegar væri það ekki ætlunin að hrófla við andlegu valdi eða virðingum embættisstarfsins, þar sem gert væri ráð fyrir því, að vígslubisk- uparnir, sem hann fyrir sitt leyti hefði ekkert á móti að kalla framvegis aðeins biskupa, tækju við því og færu með það. Bæði hann og Kl. J. bentu einnig á það, að það væri engan veginn nýtil- komið, að stinga upp á afnámi þessa embættis, tillagan hefði áð minsta kosti 8 áður koruið fyrir þmgið, og einu sinni fallið með aðeins 1 atkv. mun og það jafn- vel í biskupstíð eins hins sköru- legasta og besta biskups í Iút- erskum sið, Pjeturs Pjeturssonar., Báðir ráðherrarnir lögðu einnig- áherslu á það, að hinn forni ljómi embættisins og virðing væri nú mjög þorrin og að þrotum komin og það svo, að all greinilega mætti sjá nú á tímum, að sögn. Kl. J„ að embættið væri að missa andleg áhrif og tök á þjóðinnL Yfirleitt sögðu þeir, að andspyma manna gegn þessu og öðrum em- bættaafnámum væri sprottin af því, að „menn hefðu á sjer yfir- skvn sparseminnar, en afneituðn liennar krafti“ eins og S. E, komst að orði. A móti afnáminu töluðu báðir hinir prestvígðu menn deildarinn- ar, sem báðir standa framarlega í hinni andlegu stjett, Magnús. Jónsson guðfræðiskennari við há- skólann, og sjera Sigurður í Vigur. M J. sagði, að þessar sparnaðar- till. allar væru teknar upp af handahófi, nú alveg eins og í fyrra, eða síst hetur. Það væri yfirstandandi fjárhagsneyð, sem komið hefði á stað óskunum um sparnað og þessvegna þyrftu sparnaðart. að verka fljótt, en ekki svo seint, eins og hjer væri um að ræða, að fjárhagsvandræðin væru sennilega um garð gengin, þegar sparnaðurinn gæti komið til framkvæmda, svo emhættin yrðu þá kannske stofnuð aftur. Hann kvað stefnuna eiga að vera þá, að afnema fyrst ný embætti, ef slíks þyrfti á annað horð. — Biskupsembættið væri elsta og virðingamesta embætti landsins og í því sæti nú maður, sem allir mundu óska, að gæti gegnt því sem lengst. Og eftirtektarvert væri það, að á sama tíma, sem hjer væri farið fram á afnám hins eina biskupsembættis, sem til væri, væri í nágrannalöndun- um fjölgað embættunum eða rætt nm það, s. s. í Danmörku og í Noregi. Honnm fanst það einnig „verka næstum hneykslanlega* * og stappa nærri stjómarskrárbroti að kirkjumálastjórnin, sem ætti að vernda þjóðkirkjuna ætlaði að framkvæma þá vernd á þann hátt að sníða af henni höfuðið. Með- mæli stjórnarinnar með frv. taldi hann ýmist ljettvæg, villandi, eða alveg röng, ekki síst að því leyti, að þar virtist ekkert tillit til þess tekið, að hiskupsemhættið væri ekki fyrst og fremst „skrif- stofuembætti", heldur andlegt for- ustu emhætti og biskupinn ætti að vera „andlegur skriftafaðir klerkdómsins“ og leiðbeinandi þjóðarinnar allrar í þeim efnum og þyrfti að kynnast persónulega. þjóðinni í öllum hjeruðum, og til þess væru vísitatíuferðirnar ó- missandi og einn aðalliður em- bættisrekstursins. Út af þessari andlegu forustu spunnust nokkr- ar hnippingar milli M. J. og

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.