Lögrétta - 24.05.1923, Síða 1
Stæísta
ísíenska lands-
blaðið.
Árg. kosta:
10 kr. innanlands
erl. kr. 12.60.
Skrifst. og afgr. Austurstr. 5. Bæjarblað Morgunblaðið.
Ritstjóri: Þorst. Gíslason..
XVIII. árg. 24. tbl.
Reykjavik, Midvikudaginn 24. mai 1923.
ísafoldarprentsmiðja
h.f.
Minningarsjóður
]óns Olafssonar.
Tón Ólafsson.
Jón Ólafsson rithöfundur og skáld
andaöist, eins og menn muna, frá
verki því, sem hann liafði helgað
starf sitt síðustu æfiárin, er þaö var
að eins stutt á veg komið, en þaS
var samning íslenskrar orðabókar.
Ilann vann aö orðabókinni fyrir
styrk af landsfje, en útgáfuna
kostaði fjelag, s<ím stofnaö
var með |)eim tilgangi 3. ápríl
1912 og nefndist „Oröabókarfjelag-
i8“. Voru fjelagar 25 og gáfu út tvö
liefti af oröabókinni. Eiríkur Briem
prófessor var fonnaður fjelagsins
frá byrjun og Ben. S. Þórarinsson
gjaldkeri þess, en þriðji maður í
stjórn þess var fyrst Jón Ólafsson
sjálfur, en síðar Þorsteinn Gíslason
ritstjóri.
Þegar Jón Ólafsson fjell frá, var
töluvert til af handriti fullbúiö til
prentunar, en útgáfukostnaður hafði
þá stórum aukist frá því, seni áöur
var, og trevsti fjelagið sjer ekki til
þess, aö Iialda útgáfunni áfram
nema styrkur fengist til hennar og
sótti um hann til Alþingis. Iín
stvrkurinn fjekst ekki. Var þá fje-
laginu slitið 20. nóv. 1920 og jafn-
framt ákveðið, að eignum þess skyldi
varið til myndunar minningarsjóðs
um Jón Ólafsson. Síðan var skipu-
lagsskrá samin og er hún svohljóö-
andi:
„Minningarsjóður Jóns Ólafsson-
ar alþingismanns er stofnsettur með
ályktún aðalfundar Orðabókarfje-
higsins h/f. 20. nóv. 1920 og legst til
Iians eign fjelagsins í peningum, ó-
greiddum skuldum og bókaleifum.
1. gr. Peningar sjóösins skulu
setjast á vöxtu í aðaldeild Söfnun-
arsjóös íslands og legst þar við þá
það, sem borgast af ógreiddum
skuldum og verð fyrir seldar bóka
leifar.
2. gr. Vextir skulú allir leggjast
viö höfuðstólinn til ársins 1949, en
af vöxtunum fyrir það ár og hvert
eftirfarandi ár skal helmingurinn
árlega falla til útborgunar, en hinn
helmingur vaxtanna leggist jafnan
við höfuðstólinn.
3. gr. Vöxtum þeim, er koma til
útborgunar, skal verja til að efla
og úthreiöa þekkingu á íslenskri
tungu.
4. gr. Prófessorinn í íslenskum
fræðum viö háskóla Islands tekur
vexti þá, er árlega falla til útborg-
unar, og ver þeim í samráði við
íslenskukennara hins alm. menta-
skóla svo sem þeim á hverjum tíma
þykir best fullnægja tilganginum,
samkvæmt 3. gr.
Á aldarafmæli Jóns Ólafssonar,
20. mars 1950, skal í fyrsta sinn á-
lcveðið, hvernig vöxtunum skuli
variö.
5. gr. Auglýsa skal á ári hverju,
eftir að útborgun vaxta er byrjuð,
livernig vöxtunum er varið.
G. gr. Ómakslaun fyrir ráðstöfun
útborgaðra vaxta má taka af þeim,
ef stjórn liaskólans samþykkir þaö.“
Þessi skipulagsskrá liefir hlotið
lconungl. staðfestingu.
Það, sem til var af handbæru
fje, hefir veriö lagt í Söfnunarsjóö-
inn.
Til þess að auka sjóðinn, kom
stjórn fjelagsins saman um, að gefa
þeim, sem styðja vildu minningar-
sjóðinn, kost á aö fá þau tvö hefti,
sem til eru prentuð af Orðahókinni,
ásamt mynd höfundarins og minn-
ingargrein um hann, fyrir 5 kr., er.
h ggjast viö sjóðinn.
Þess skal getið, að prentsmiöjan
Gutenberg hefir ókeypis prentað
nyndina og minningargreinina.
Væntum vjer, að þetta fái góðar
undirtektir og aðmargirverðitilþess
að styðja minningarsjóð þennan.
Eru þeir beðnir aö snúa sjer til
Ben. S. Þórarinssonar kaupmanns í
Bevkjavík, og mun hann senda bæk-
urnar, mynd og minningargrein,
gegn eftirkröfu, hverjum sem þess
óskar.
Reykjavík, 19. maí 1923.
Eirikur Bríem. Ben. S. Þórarinsson.
Þorst. Gíslason.
-------o-------
Þingiíðirtdi.
Þinglausnir.
Þingi var slitið mánud. 14. maí,
og hafði þá staðið í 89 daga, því
það var sett 15. febrúar. Fundir
voru haldnir 130, 62 í Nd., 60 í
Ed. og 8 í samein. þingi. Þingið
hafði til meðferðar 161 mál, 117
lagafrumv., 31 þingsál-till. og 13
fyrirspurnir. Stjórnin lagði fyrir
þingið 29 frv., og voru 17 afgreidd
sem lög frá þinginu. Þingmenn
báru fram 88 frv. og voru 28 að-
eins afgreidd frá þinginu sem lög.
Af stjórnarfrv. voru 3 Md, en 9
urðu ekki útrædd. Af þingmanna-
frv. voru 17 feld, 7 vísað frá með
i ökstuddri dagskrá, 5 vísað til
stjórnarinnar, 1 tekið aftur, en
30 urðu ekki útrædd. Af þingsál.
till. voru 17 afgreiddar, en 14
fe'ldar, vísað frá eða óútræddar.
Af fyrirspurnum var svarað 10,
en ósvarað 3.
Milliþingaforseti í Ed. var kos-
inn Björn Kristjánsson, því for-
setinn, H. Steinsson, er, eins og
kunnugt er, búsettur utan Reykja-
víkur.
Síðasta daginn í Ed. urðu nokkr
ar skærur milli þeirra Jónasar
frá Hriflu og Jóns Magnússonar,
og varð úr nokkurskonar „eldhús-
dagur“, því margt har þar á
góma; en tilefnið var ein af fyrir-
spurnum J. J. Tók J. M. þar Tím-
ann og Hriflumanninn höldur
snarplega til hæna í ýmsum mál-
um, og þótti áheyrendum verða
heldur lítið um vamirnar hjá J.
J„ og talaði hann þó alllangt mál,
eiiis og ihans er vandi.
Elstur þingmaður.
Með þessu þingi hættir þing-
mensku fyrir fult og alt einhver
elsti þingmaðurinn, og sá, sem
setið hefir flest þing, síðan Al-
þingi var endurreist 1845. Er það
sjera Sigurður Stefánsson í Vig-
ur. Hann hefir setið á samtals 26
þingum; kosinn fyrst 1886, og
síðan setið á öllum þingum, nema
árin 1901, 1903 og 1916, og altaf
sem fulltrúi Isafjarðar eða Norð-
ur-ísafjarðarsýslu. Hann er fædd-
ur 30. ágúst 1854, sonur Stefáns
bónda á Heiði í Gönguskörðúm,
og er það gamadíkunn ætt, því
sjera Sigurður er áttundi maður
frá Hrólfi sterka og tólfti maðnr
frá Lofti ríka í beinan karllegg.
S. St. kom í latínuskólann 1873,
útskrifaðist 1879, tók embættis-
próf í guðfræði 1881 og vígðist
sama ár. Hefir hann altaf síðan.
verið prestur á sama stað, og það
þó hann haifi einusinni verið kos-
inn dómkirkjuprestur í Rvffik, þvx
hann afsalaði sjer því embætti.
ITefir hann jafnframt prestsskap
sínum og þjóðmálastaitfsemi r-ekið
rausnarbú á eignarjörð sinni Vig-
ur, og þá um leið tekið mikinn
þátt í hjerðsmálum allskonar; ver
i') sýslunefndarmaður, hrepps-
nefndaroddviti og forgöngumaður
ýmsra fyrirtækja vestur þar. Auk
’þess hefir hann ritað allmikið,
einkum um trúar- og kirkjumál.
Iiann hefir verið tallinn meðal
hinna meiri háttar þingskörunga
á sinni tíð, og oft mikið að hon-
um kveðið, enda vefl. máli farinn,
og þá oft þungofður og harð-
skeyttur. Einkum eru það fjár-
mál og búnaðai*mál, sem hann
hefir látið sig skifta, auk kirkju-
rnála og skólamála, þegar þau
hafa helst verið á dagskrá. All-
rækileg greiix um sjera Sig. og
mynd af honum er í Óðni 1911.
--------o--------
A. Stjórnarframvörp.
1. lTm ríkisskuldabrjef.
2. Um undanþágu frá lögum nr.
91, 14. nóv. 1917, um aðflutnings-
bann á áfengi.
3 Um breyting á lögum nr. 74,
27. júní 1921, um tekjuskatt og
eignarskatt.
4. Um skiftimynt úr eirnikkel.
5. Um samþyktir um sýsliuvega-
sjóði.
6. Fjáraukalög fyrir árið 1922.
7. Um einkaleyfi.
8. Um bneyting á fátækralög-
um frá 10. nóv. 1905.
9. Um tilbúning og verslun með
ópíum.
10. Vatnalög.
11. Um varnir gegn ky.xsjúk-
dómum.
12. Fjárlög fyrir árið 1924.
13. Fjáraukalög fyrir árin 1920
og 1921.
14. Um samþylkt á landsreikn-
iugnum fyrir árin 1920 og 1921.
15. Um rjettindi og skyldnr
hjóna.
16. Um framlenging á gildi laga
um útflutningsgjald.
17. Fjáraukalög fyrir árið 1923.
I
B. Þingmannafrúmvörp.
18. Um sjerstakar dómiþinghár
i nokkrum hreppnm.
19. Um verðlaun fyrir útflutt-
an gráðaost.
20. Um berklaveiki í nautpen
iagi.
21. Um íbreyting á lögum nr.
52, 28. nóv. 1919 (Ritsími og tal-
scmi).
22. Um heimild fyrir ríkisstjórn
ina að banna dragnótaveiðar í
laudhelgi.
23. Um breyting á lögum nr.
33, 27. júní 1921, um lífeyrissjóð
barnakennara og ekkna þeirra.
24. Um atvinnu við vjelgæslu
á íslenSkum mótorskipum.
25. Um hreyting á lögnm nr.
56, 10- nóv. 1913 (Herpinóta-
veiði).
26. Um læknisskoðun aðkomu-
skipa.
27. Um breyting á lögum nr, 6,
31. maí 1921 (Seðlaútg. Islands-
banka).
28. Um breyting á lögum nr.
47, 30. nóv. 1914 (Átkvæðagreiðsla
fjarstaddra manna við alþingis-
kosningar).
29. Um breyting á lögum nr.
36, 19. júmí 1922, um breyting á
lögnm nm fræðslu barna, frá 22.
nóv. 1907.
30. Um breyting á lögum nr.
35, 2. nóv. 1914, um mælingu og
skrásetningn lóða og landa í lög-
sagnarumdæmi Reykjav’kur
31. Um_ veitingu ríkisborgar-
í’jettar.
32. Um breyting á lögum nr.
55, 28. nóv. 1919, um breyting á
lögum 18. sept. 1885, nm stofnun
landsbanka (Laun bankastjóra).
33. Um verslun með smjörlíki og
likar iðnaðarvörur, tilbúning
þoirra m. m.
34. Um breyting á lögum nr.
41, 11. júlí 1911, um breyting á
lögum nr. 57, frá 22. nóv. 1907,
um vegi.
35. Um skemtanaskatt og þjóð-
leiMhús.
36. Um heimild fyrir rlíkisstjóm
ina til að sameina póstmeistara-
og stöðvarstjóraembættið á Aknr-
eyri og Isafirði.
37. Um viðauka við lög um vegi,
22. nóv. 1907, nr. 57.
38. Jarðræktarlög.
39. Um breyting á lögum nr.
43, 27. júní 1921, um varnir g«gn
bi rklaveiki.
40. Um breyting á lögum um
friðuu á laxi, frá 19. febr. 1886.
41. Um sandgræðslu.
42. Um stækkun lögsagnarum-
dæmis Reykjavíkur.
43. Um heimild fyrir lands-
stjórnina til að veita ýms hlunn-
indi fyrirhuguðum nýjum banka
í Reykjavík.
44. Um eftirlitsmann með bönk-
um og sparisjóðum.
45. Um lífeyri handa fyrver-
andi skrifstöfnstjóra Alþingis
E nari Þorkelssyni.
Þingsályktanir 1923.
1. Um húsnæði fyrir opinberar
skrifstofur í Reykjavtík.
2. Um innlendar póstikröfur.
3. Um hjeraðsskóla á Snðor-
landsundirlendinu.
4. Um tryggingar fyrir enska
láninn.
-------o--------