Lögrétta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Lögrétta - 27.11.1923, Qupperneq 3

Lögrétta - 27.11.1923, Qupperneq 3
LÖGRJETTA einkanlega aknryrkju eru tals- verðar skorður settar, >ví víða. er grýtt og dýrt til ræktunar. — Húsdýrarækt, kjot- og mjólkur- framleiðsla er því hin álitlegasta bændaiðja allvíðast í Noregi. Öll vesturströnd Noregs er sjerstak- lega vel fallin til saufjárræktar. En Norðmenn eru ekki duglegir sauðfjárræktarmenn, þó jarðrækt þeirra og stórgriparækt hafi tekið miklum framförum síðustu manns- aldra, hefir sauðfjenu fækkað. Þetta ber þó aðeins að skoða sem millibils ástand. Sauðfjenu mun aftur fjölga, enda eru mestu bún- aðarmálamenn Norðmanna sam- mála um að það sje álitlegasta leiðin til þess að auka kjötfram- leiðsluna og bæta búskap bænda í miklum hluta landsins. Tala sauðfjár í Noregi: Árið 1855 1596000 — 1865 1705000 — 1875 1686000 — 1890 1417000 — 1900 998000 — 1907 991000 — 1918*) 1203000 Samrliða því, sem sauðfjenaður hefir fækkað, hefir innflutningur kjöts til Noregs aukist. Innflutt kjöt, meðaltal: Árin 1851—1855 191 smálestir. — 1871—1875 1110 ---- — 1901—1905 8900 ---- — 1906—1910 9586 ---- — 1918—192215466 ---- Árið 1921 .... 18593 -—- — 1922 .... 20027 ---- í jan.—júlí 1922 var flutt inn 9837 smál.; í janúar —júlí 1923 8116 smál. Innflutningur liefir minkað síð- an. kjöttollurinn hækkaði, Sem vonlegt var. Verð á kindakjöti á torgi í Kristjaníu: Árin 1876—1880 kr. 0.74 á kg. — 1896—1900 — 0.71 á — — 1901—1905 — 0.83 á — — 1911—1915 — 1.13 á — Árið 1922 .. ca. — 3.00 á — Háski sá, sem þessar tölur sýna, hefir verið Norðmönnum mikið áiiyggjuefni. Það er ekki undar- legt þegar svona stefnir, þó bænd- um hafi verið það mikið kapps- mál að fá hækkaðan tollinn á innfluttu bjöti. Hin raunverulega orsök afturfararinnar er sú: að stærsti kjötmarkaður Noregs, Kristjanía, og bæirnir við Krist- janíufjörðinn, liggur ver við fyrir kjötframleiðendur vestan- og norðanfjalls í Noregi, heldur en fyrir Suður-Svía og Dani. petta lagast ekki neitt, fyr en Norð- rnenn fá lokið við að byggja þess- ar jámbrautir: Norðurbrautina til Hodö, Suðurbrautina til Stavang- urs, og Rómsdalsbrautina til Aan- tíalsness. Þó lagast þetta aldrei að fullu, því leiðin til Norður- Noregs er svo ólíkt lengri en t. d til Khafnar. talið frá Krist- .ianíu. — Kristjaníumarkaðurinn hefir verið svo torsóttur bændum á vesturströnd Noregs, að þeir hafa gert marg ítrekaðar tilraunir með prátt fyrir þennan mikla inn- *) petta ár er talið að vorinu, eftir burð, liin árin er talið um nýjár. að selja kjöt sitt til Englands, — telja sjer flutnitiginn hægri þang- aði flutning á kjöti til Noregs er tal- íð, að kjötið, sem inn er flutt, sje ekki meira en 10% af því kjöti, sem Norðmenn neyta. Nú er meining norskra bænda að sækja róðurinn fast og auka kjötframleiðsluna, aðallega með því að auka sauðfjárræktina, svo mikið, að þeir þurfi ekki að flytja neitt erlent kjöt til Noregs. Eins og áður er sagt eru sauðfjárrækt- unarslrilyrðin góð, vegna kjöt- toll.sins er kjötframleiðslan arð- vænlegri en verið hefir. Sauðfjenu mun nú fjölga; undirstaðan er þegar lögð, því meðferð fjárins hefir mikið batnað síðustu árin, þó fjenu hafi verið að fækka. Einn liður í aukinni sauðfjárrækt verður að líkindum að flytja inn líffje frá íslandi; hafa færustu sauðfjárræktarmenn Norðmanna mikla trú á íslensku sauðfje. (T. d. ríkisráðunautur ,T. Seland). Enn sem komið er strandar þetta á fjárkláðanum. II. Eftirfarandi tölur sýna verð á 1 indakjöti í Kristjaníu núna í haust. Verð það, sem framleiðendur fengu fyrir 1. fl. kindakjöt í heil- um skrokkum, haustið 1923.*) 27. ágúst til 1. sept. kindakjöt kr. 2.20 kílóið. 3. september til 8. september kr. 2.50—2.80. 10. sept. til 22. sept kr. 2.50. 24. sept. til 29. sept. kr. 2.40. 1. okt. til 6. okt. kr. 2.70. 8. okt. til 20. okt. kr. 2.20. 22. okt. til 17. okt. kr. 2.00 kg. 'Sh e- W.w.'; Kjötverð á kauphöllinni í Krist- janíu haustið 1923. 1. fl. lambakj.*) kr. Kj. af full. kr. 4. sept. 2.80'—3.00 1.50—2.60 11. — 2.60—2.80 1.50i—2.50 14. — 2.60—2.80 1.50—2.50 20. — 2.50—2.70 1.20—2.40 25. — 2.20—2.50 1.20—2.20 28. — 2.201—2.40 1.20 2. okt. 2.30—2.50 1.50—2.20 4. — 2.50—2.80 1.50—2.50 9. — 2.20—2.40 1.50—2.00 12. — 2.10—2.30 1.50^-2.00 13. — 2.00 1.50—1.80 1. fl. lambakj.*) kr. Kj. af full. kr. 16. — 2.20—2.40 1.50—2.00 1S. — 2.00—2.20 1.50—2.00 19. — 1.90—2.00 1.20—1.80 23. — 1.90—2.00 1.30—1.80 25. — 1.90—2.00 1.30—1.80 30. — 2.00—2.20 1.50—1.90 Kjötverð á torgi í Kristjaní baustið 1923: 5. sept kindakjöt kr. 1.20—3.00 12. — — 1.20—2.80 19. — — 1.20—2.60 26. — — 1.00—2.20 ' 3. okt. — 1.20—2.50 10. — — 1.20—2.40 17. — — 1.20—2.40 31. — — 1.50—2.40 í september og október og fram í miðjan nóv. er kjötverðið vana- lega lægst í Kristjaníu- Þessar skýrslur sýna líka að verðið er ekki hátt, þegar tekið er tillit til hinna löngu flutninga. Á vestur- ströndinni í Álasundi, Kristjáns- sundi og prándheimi, er kjötið töluvert ódýrara en í Kristjaníu. Vikuna 10.—46. sept. er t. d. kjöt af fullorðnu í Álasundi kr. 1.80, *) Eftir skýrslum frá „Landbrukets priscentral1 ‘. *) „Smaa prima lam“. 3 9 af lömbum kr. 1.65. Vikurnar 17. til 29. sept. er verðið í Álasundi kr. 1.80 og 1.70. Vikuna 22.—27. okt. er kinda- kjöt talið selt í Kristjánssundi á kr. 1.60 kg. o. s.' frv. Þegar kjötverðið er ekki hærra en þetta, þrátt fyrir allháan toll á innfluttu kjöti, þá liggur það í augum uppi, að kjötverðið yrði bændum lítt í vil, ef kjöttollurinn væri lítill eða enginn. íslenskir bændur verða með fullu drenglyndi að horfast í augu við veruleikann: 1. Að Noregur er kjötframleiðslu land og kjötframleiðslan er ein aðaltekjulind norskra bænda. 2. Að vegna útlendrar sam- keppni er norskum bændum lífsspursmál að hafa háan toll á innfluttu kjöti. 3. Að markaður fyrir útlent kjöt er þá og þegar þrotinn í Noregi, svo framarlega sem norskur búnaður á lífsrjett og framför fyrir höndum, en um það viljum vjer ekki ef- ast. 4. Að hið einasta, sem hefir framtíðarþýðingu fyrir okk- ur að fara fram á við Norð- menn í kjöttollsmálinu, er, að ísl. saltkjöt verði toll-lagt í fullu samræmi við annað kjöt sem til Noregs er flutt. 5. Að vjer verðum af alefli að. efla þá viðleitni, sem þegar er hafin (af S. í. S. og öðr- um), til þess að afla nýrra markaða fyrir ísl. kjöt. Reykjavík, 21. nóv. 1923. Agr. Eftir skrift: í janúar til októ- ber 1922, var flutt inn 13,23 milj. bg. kjöt til Noregs; á sama tíma árið 1923, 9,72 milj. kg. Kjötinn- flutningurinn hefir því minkað um 3,51 milj. kg„ eða ca. 25 pct. á þessum 9 mánuðum. — Tekjur norska ríkisins af kjöttollinum þessa 9 mánuði 1923, eru ca. 2,91 milj. kr., en sparnaður í kjöt- baupum frá öðrum löndum er talinn nema ca- 7 milj. króna. 23. nóvember. Agr. -------x-------- Stúdentalíf. Á stúdentafjelagsfundi núna á fimtudagskvöldið flutti sjera Bjarni Jónsson eftirtektarvert er- iudi um kirkjusameiningu. Þar scm það er nú ekki siður, sem áð- ur var þó víst, að slík erindi stú- dentafjelagsins sjeu neitt. láunung- armál innanfjelags, er ástæða til þcss að benda dálítið á þennan fyrirlestur og stiídentafundinn al- m.ent- Stúdentafjelagið ætti líka að mörgu leyti að vera það fjelag hjer, þar sem einna helst gætu komið fram góð erindi og merki- leg nýmæli í mörgum málum inn- anlands, og þar sem hægt væri að flvtja fregnir af eftirtektar- verðum mönnum og málefnum í mnheiminum. Og þó stúdentarnir sjálfir geti kanske ekki ráðið nriklu í þessum efnum eða fram- kvæmt, þá eiga þeir að geta hald- ið uppi góðum fjelagsskap inn- bvrðis og jafnframt veitt ýmsum sjálfsagt nota stúdentafræðsluna meira en gert er. Innávið í fjelaginu sjálfu er hinsvegar talsvert milrið f jör og oft fíutt eftirtektarverð og mcrkileg trindi- Og útávið hefir fjclagið komið fram á ýmsan hátt, sem athygli hefir vakið og áhrif, t. d. með trúmálavikunni. Er leiðin- legt að stjórnmálamenn landsins skuli ekki að sama skapi hafa tekið vel í boð fjelagsins um svip- aða stjórnmálaviku, svo að hún fórst fyrir. Yæri það bæði gagn- legt og skemtilegt, að fá fleiri slíkar umræðuvikur um helstu þjóðmál eða menningarmál, sem nú eru hjer á dagskrá, eins og tckið var fram af form. fjeL Vilhj. Þ. Gíslason, í loltaræðu trúmála- v'kunnar. Annars er það einna helst að stúdentafundunum, að of lítið samlíf er þar stundum á eftir erindunum, hjá fjelögum sjálfum. Eru fundirnir þó oft mjög vel sóttir, bæði af eldri og yngri stíidcntum, .og húsnæði á Mensa sæmilegt. og með veiting- um og hljóðfæri, og söngmenn eru ýmsir góðir meðal stúdenta. Hefir það líka oft verið, að stjórnin hef- ir haft söng, hljóðfæraslátt eða annan gleðskap á dagskrá á eftir erindunum, og ætti að reyna að hafa það sem oftast. Veltur þar royndar mest á einstökum fje- lögum. En sem sagt, erindi á fundun- um eru mörg góð, og ýmsir merk- ir menn og málsnjallir fengnir til þess að tala. Er það t. d. góður siður að fá stúdenta eldri og jmgri, sem >tan fara, til að kjmna sjer ný lönd og nýja siðu, til þess að segja þeim frá þessu, sem heimá sitja, eins og í haust hefir verið um Sig. P. Sívertsen pró- fessor, sjera Friðrib og svo nú Hannes stúdent Guðmundsson. 1 stúdenthski ftunum ætti þetta að vcrða föst regla, og jafnvel eins um þá kandídata, sem fá utanfar- aistyrk frá háskólanum. Eins fylgjast mentamenn, hver í sinni grein. altaf eitthvað meira eða rainna með ýmsum nýungum og öðru markverðu, og ætti þá að vera innanhandar fyrir þá að segja eitthvað frá því, eins og f je- lagið hefir fengið t. d. góð er- iudi um kenningar þeirra Ein- steins, Steinacks og Wegeners, hvers í sinni grein. Hafa tímaritin á síðkastið flutt ýms af þessum stúdentafunda-erindum. Eitt svipað erindi, þó á öðru sviði væri, var erindi sjera Bjarna, scm getið var um í upphafi og mundi sjálfsagt mörgum fleiri en stúdentum þjrivja fróðlegt að fá það prentað. Sagði hann þar frá þeirri miklu hreyfingu, sem nú er meira og meira að ryðja sjer tii rúms, um nána sainvinnu eða sameiningu milli hinna ýmsu kristnu kirkjudeilda. Hafa stórir fundir verið haldnir urn þetta í Englandi og Ameríku, og er í undirbúningi alþjóðaþing um þetta í Washington eftir 2 ár. Ætt,i að fljrija fleiri slík er- indi um ýms þessháttar mál úti í heiminum, bæði í trú, vísindum og list 1111, og mundu stúdentar, gaml- ir eg ungir, geta mikið að þessu unnið, ef viljinn er með. Stúdenta- fjelagið hefir nú sýnt, að það vill og getur margt í þessu efni og j-firleitt hefir nú komist nj' og betri hrejriing' á alt stúdentalíf hjer, þótt ýmislegu sje ennþá á- fátt. Einkum er nauðsynlegt að stúdentarnir haldi sem mest sam- an og safnist í eitt og sama fje- lagið, ungir og gamlir. Stóð um þetta nokkur deila milli stúdenta elcki alls fjcrir löngu, milli Vilhj. Þ Gíslasonar aðallega annarsveg- ar, sem vildi hafa aðalf jelagið eitt fyrir alla, og ýmsra annara, helst víst yngri stúdenta hins vegar, sem kljúfa vildu fjelögin. Er þó bersýnilegt, að stúdentar hjer eru ekki svo margir eða lífið svo fjölbreytt, að þeir hafi efni eða ástæður til þess að vera að dreifa sjer eða pukra og pobast hver í sínu horni. Síðan stúdenta- fjelagið var stofnað við háskólann n>eð samþykki stúdenta og kenn- ara, og einmitt eftir tillögu, sem fram kom í stúdentafjelagi skól- ans, frá Vilhj. Þ. Gíslason, hefir þörfin minkað á sjerstöku há- skólafjelagi. Stúdentaráðið hefir líka starfað vel að ýmsum málum stúdenta og fengið fram ýms ný mæli og notið starfs ýmsra góðra stúdenta, nú síðast Björns Árna- sonar úr Görðum. Aðalerindið, sem jeg átti með línum þessum var, að vekja at- hygli á því nýja stúdentalífi, sem hjer hefir verið að skapast, og því gildi, sem það getur haft, bæði fyrir háskólann og út í frá. En um uppeldis- og menningargildi góðs stúdentalífs hafa menn oft heyrt, nú síðast t. d. á stúdenta- fundum í lýsingum frá Oxford og Cambridge. Og þó ekki skapist hjer að sjálfsögðu slíkur háskóli eða stúdentalíf, má margt gera enn og halda við því, sem þegar hefir verið gert. Þá viðleytni eiga allir stúdentar að styðja gamlir og ungir. Erí. símfregnir Kliöfn, 21. nóv. Fiiunedeilan. Hún er nú til lvkta leidd á þann veg, að Italía fær borgina Fiume, en Jugoslavía Poto Boros og yfir- ráð yfir landinu við fljótsmjmnið. Frá Rínarlöndunum. Frá París er símað, að banda- raenn hafi gefið trvggingu fyrir því a.ð hereftirlitið verði fram- kvæmt án þess að beitt sje hegn- ingarákvæðunum, og til þeirra verði því aðeins gripið, að Þjóð- verjar sýni alvarlegan mótþróa. England og Frakkland. Frá London er símað, að Daily Mail fari hörðum orðum um óvin- gjarnlega afstöðu ensku stjórnar- innar til Frakklands. Khöfn 22. nóv. Havenstein bankastjóri látinn. Símað er frá Berlín, að Haven- sein forstjóri þýska ríkisbankans sje látinn. Frakkar færa út kvíarnar. Símað er frá Berlín, að Frakk- ar hafi tekið í sínar hendur allar járnbrautarsamgöngur milli Ruhr- hjeraðsins og Þýsalands. Petain hershöfðingi er farinn t.il herteknu hjeraðanna til þess að koma skipulagi á framkvæmd aukinna refsiákvæða, sem vænt- anlega verður beitt, ef pjóðverj- ar neita að viðurkenna kröfn sendiherraráðsins um, að hermála- eftirlit verði tekið upp aftur hjá Þjóðverjum og kröfuna um, að ríkiserfinginn fyrverandi verði gerður landrækur.

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.