Lögrétta - 19.03.1924, Side 1
í
Árg. kostar
10 kr. innanlftn<ig
erl. kr. 12.50
Ritstjóri: Þorst. Gíslason.
%
Bœjariilsið Mopgunblaðið.
Stœrsta
íslenska lands-
’ólaÖiö.
Skrifst, og afgr. Austurstr. 5.
XIX. ái-g. 22. tbl.
Re^kjavik, Miðvikudaginn 19. mars 1924.
ísafoldarprentsmifij a k.f.
OFVIÐRIÐ OG HÚSAGERÐ.
„Látum oss yítin til varnaðar
verða“. Að austan, vestan og sunn
an liafa borist fregnir um stór-
tjón, sem bafa orsakast af ofvíðr-
unum nú fyrir skömmu. Fjögur
íbúðarhús úr timbri hefir tekið
af grunni, steinhús hrunið og orð-
ið manni að bana, og margar hiöð-
ur hafa fokið og þök af hlöðum
og peningshiisum. pað hefir ekki
ætíð þótt í annál færandi. þótt
tæki þak. af hlöðu, og sennilega
oru meiri brögð að því í þessum
veðrum en. fregnir hafa komið
i;m. það væri fróðlegt og þarflegt
að safna skýrslu um skaðann og
jafnframt að rannsaka ástæður
fyrir foki húsanna, svo sem út-
búnaði á þökum og undirstöðum.
Hreppstjórar hver í sinni sveit
a.ttu að vera sjálfkjörnir til að
safna slíkum skýrslum og gefa
jafnframt lýsingu á fokna húsinu.
Eðlilegast er að stjórnarráð ísl.
eða Búnaðarfjelagið gengist fyrir
slíkri rannsókn.
Hjer er um stórkostlega alvar-
legt mál að ræða, og hefir það mál
margar hliðar:
a) Fyrst og fremst er fjárhags-
skaðinn í beinum peningum, sem
má búast við að geti numið alt
að 100 þúsund krónum. Og þetta
tapað fje, líklega einungis fyrir
vankunnáttu og óvandvirkni. En
sje þetta ekki rjett skoðun, éiga
skýrslurnar að skera úr. Óbeinan
skaða og mannslíf er ekki auðvelt
að meta til fjár.
b) Onnur hlið málsins er vans-
inn. pað er ekki vansalaust að
láta berast út um heiminn, að limb
urhús fjúki af grunni og stein-
hiis hrynji. Hvaða skoðanir eiga
útlendingar að mynda sjer um
slíkt menningarástand ? Eru það
ekki mannvirkin sem gestsaugað
fyrst og fremst skoðar sem mæli-
kvarða fyrir menningu þjóðarna
og einstaklingsins ? Jú vitanlega,
en ekki það, hvort vjer fylgjum
Parísar-tísku í klæðnaði frá toppi
til táar. Vetrkin eru ávöxtur og
af ávöxtunum skulum vjer þekkja
þá. -
c) priðja hlið málsins er trygg-
ingin eða tryggingarleysið rjettara
sagt. Hvaða tryggingu hafa bank-
ar og sparisjóðir í slíkum húsum?
Og hvaða tryggingu hefir ríkis-
sjóður í slíkum og þvílíkum bygg-
ingum, þegar kemur til fram-
kvæmda jarðræktarlaganna ef
byggingar eiga að fara fram eftir-
litslaust og leiðbeiningarlaust ? pað
er tilgangslítið að lána fje fyrir
hiöður, sem svo að segja fyrirfram
má búast við að fjúki. En skömm-
in er oft skaðanum verri.
Hversvegna fuku hús og hlöður
og hrundi steinhús?
Vegna þess að vjer erum, hvað
fyrrihluta spurningarinnar snertir
komnir út á óþjóðl. braut með
byggingar vorar, einkum timbur-
hús og járnþök, en með hinum nýja
sið brestur alm. þekkingin til þess
að gera byggjngarnar nægilega
traustar og tryggar fyrir veðrum.
A torfhúsum eru fátíð fok að und-
anteknu því, ef flettir af torfu.
Aldamótaárið 20. sept. gerði af-
taka veður og hjelst um la.nd alt.
í minni sveit fauk timburhús (1 af
tveimur sem til voru í sveitinni
sem íbúðarhús) og varð það
tveim bömum að bana, en íor-
eldrar liðu sálarkvöl, sem lengi
mun sært hafa. Eigandinn sem er
og var góður smiður hafði gert
húsið of hátt í hlutfalli við breidd
og lengd. pað var fest með trje-
staurum niður í undirstöðana
(kjallaraveggina), en þeir sviku
þótt gerðir væru úr grjóti hlöðnu
í sement. 1 næstu sveit voru 3
tímburkirkjur og fuku 2. Man jeg
ekki hvort þar voru fleiri timbur-
hús þá.
pessi dæmi nægja að sýna hvert
stefnir. Timburhús hjer á Islandi
eiga ekki að vera til. Máske und-
antekning á landsskjálftasvæðinu.
pað má svo að orði kveða, að
þau hafi fáa kosti, en flesta óko:-ti.
Tilgangurinn er ekki sá að rök-
ræða þetta hjer.
Hvers vegna hrundi steirihús?
pað er órannsakað mál. pað er
ekki undravert þótt steinhús
hrynji á íslandi, en það er af-
skaplegt — það er voðalegt. —
Skyldi þetta ekki hafa verið eitt
af þeim mörgu, sem hrófað hefir
verið upp af óvandvirkni og fá-
fræði, máske ónýtt steypuefni —
máske svikið sement. Er nokkuð
á móti að þetta sje rannsakað
þótt um seinan sje? pað er ekki
dæmafátt að hingað til lands ht'fir
flutst svikið sement. Fyrsta stein-
hiisið sem jeg sagði fyrir verki á
1913 átti að byggja úr sviknu
eða ónýtu sementi. Nokkuð af því
hafði verið flutt á byggingarstað-
inn langt uppi í sveit, en 90 —
níutíu — tunnur höfðu verið
keyptar og voru komnar á versl-
unarstaðinn. Jég. tel það sannan-
legt, að úr þessu sementi hefði
verið bygt, ef jeg hefði ekki feng-
ið því afstýrt, eftir að hafa rann-
sakað það á ýmsan hátt, en hitt
er ekki hægt að, segja um hversu
langt hefði verið haldið með bygg-
inguna. Svikin hlutu að koma í
ljós fyr eða síðar. Sement þetta
reyndist við rannsókn á tilrauna-
stöð danska ríkisins að hafa hálfan
styrkleika af magni því, sem
dönsku sementi er lögboðið að
hafa, en var þó afar- seinkannandi.
pess skal getið að sement þetta
var selt á uppboði fyrir 1—2 kr.
tunnan.
Bóndi nokkur keypti 10 tuunur
og flutti í aðra sveit. Hvaðst
þekkja þetta sement og ekki vera
hræddur við það. Steypti úr því
fót undir vinddælu. En fóturinn
sveik í fyrsta veðri á árinu, og
var það ekki ofsaveður.
pað er glæpur að flytja vilj-
andi til landsins ljelegt sement,
á sama hátt og það er glæpur að
byggja illa. 1 þetta skifti var það
útlendingur sem stóð fyrir kaup-
unum. (öat jeg um þetta í grein
„XJm byggingarefni“ í Tímanum
í september 1917). Fyrir töfina
við að ná í gott sement, tapaði
jeg heilli vetrarvinnu, og , hefi
aldrei sjeð eftir því.
í sömu sveitinni sem steinhúsið
hrundi nýskeð, skoðaði jeg stein-
hús fyrir nokkrum árum. Var
það ellefu ára gamalt ög hafði
kostað 10,000 — tíu þúsund —
krónur. pað var lekt sem svampur
og veggir svo gljúpir að útlit var
fyrir, að reita mætti gat á þá
með berum höndunum. Viðir voru
mjög fúnir, og þiljur á neðri hæð
svartar af bleytu og fúa. pað er
sú ógeðslegasta og sjálfsagt óholl-
asta íbúð, sem jeg hefi litið mn
í. Sveitarómagar urðu að gera sjer
hana að góðu. Útveggir eru all-
þykkir, en styrkurinn er svo lít-
ill að ákast tollir ekki á þeim,
enda eru slíkir veggir ekki álit-
legir til þess að bera uppi stór
hús í ofviðrum. Jeg gat ekki ráð-
lagt annað en niðurrif, til þess
að bjarga viðunum frá frekari
fúa. Mestar líkur eru fyrir að
lielegt sement hafi verið notað í
þetta hús. Blöndunarhlutföllin
hcfðu verið sæmilega fullkomin.
Hvað á að gera? Hvernig er
hægt að afstýra slæmum bvgg-
ingum ?
1. Oll hús í sveitum ættu að
vera lág. Lág hús verða hægust,
ódýrust, traustust, fallegust og
þjóðlegust.
2. Útveggir allir, þar sem því
verður komið við, ættu að vera úr
steini eða steinsteypu, steyptir
eða hlaðnir. Á íbúðarhúsum og
fjósum tvöfaldir, þunnir, með
traustum samtengingum, en bilið
fylt mómylsnu.
par sem ekki næst í steypu-
efni ætti aðallega að byggja úr
torfi.
3. Öll þök ættu að vera tyrfð
með snyddu eða túnþökum, en
undir bárujárn eða pappi á súð,
eða bikuð súð með hrístróði milli
súðar og þekju. Hallinn á þökun-
um þarf að vera hæfilegur.
4. Bvggingarfræði þarf að gefa
út á íslensku, sem er sniðin við
ísienskt byggingarefni og alþýðu-
hæfi.
5. Lög um húsagerð ætti að
semja, þó efast jeg um að það sje
tímabært.
6. í hverri sýslu landsins þarf
að vera launaður maður — styrkt-
ur að hálfu af sýslu- og að hálfu
sl laudsfje — góður smiður og
fróður í húsagerð, sem tek-
ið hefir próf á þar til föllnu náms-
skeiði í verklegri og bóklegri
fræðslu.
Styrkurinn þarf ekki að vera
hár, en hann þarf að nú tilgangi
sínum, sem á að vera sá, að hæfur
maður fáist til þess að nema og
gegna húsasmíði í sveitum. pað
er sveitunum hið mesta mein að
nú vantar slíka menn, og þar sem
um góða smiði hefir verið að ræða
b.afa þeir annað tveggja stundað
búskap eða horfið til kaupstaða
eða síldarþorpa, hafi þar boðist
hærra kaup. í byrjun gætu nokkr-
ar sýslur myndað samtök um emn
mann. Gæfist það vel kæmu fleiri
á eftir.
Að endingu vil jeg minnast á,
að við þurfum að stofna til sjóða
sem hafa það eitt markmið að
lána fje til bygginga í sveicum,
og veita fje til verðlauna fyrir
best hugsaða bæi. pað eflir áhuga
og vekur umhugsun og gæti fætt
af sjer þjóðlega og gagniega
hugsun.
pegar byggingasmíð er komið
í fastari skorður með góðum
stjórnendum innan sveitanna, ætti
að mynda samvinnufjelög eða
nokkurskonar þegnskyldu-fjelög,
sem af frjálsum samtökum geng-
ust fyrir að vinna að húsagerð
og annari þarflegri sveitamenn-
ingu. pessi vinnufjelög gætu ver-
ið í nokkurskonar sparisjóðsformi
þar sem menn lána dagsverk og
eiga dagsverk á sjóði.
Eftir að þetta er ritað, hafa
borist fregnir um fok á sjö hlöð-
um í Súgandafirði og mörgum
skúrum. í Homafirði hafa fokið
hlöður og útihús.
Jóhann Fr. Kristjánssou.
--------o-------
Alþingi.
Búnaðarlán.
Tryggvi pórhallsson flytur í
Nd. frv. til laga um stofnun bún-
aðarlánadeildar við Landsbanka
íslands. Segir þar m. a.: Sjer-
stök lánadeild skal stofnuð við
Landsbanka íslands, sem annast
lánveitingar til jarðabótafram-
kvæmda o. fl. samkv. lögum þess-
um. Deildin nefnist Búnaðarlána-
deild. Til ársloka 1926 leggUr
Landsbanki íslands deildinni til
alt að 500 þús. kr. á ári til út-
lána. Sjerstakan reikning skal
bankinn halda um deildina.
Tilgangur deildarinnar er:l) að
veita lán til jarðabóta með veði
í fasteignum á íslandi. 2) að veita
lán til jarðabóta, til stofnunar
nýbýla og stofnunar mjólkurbúa,
til smjör- og ostagerðar, trygt
með ábyrgð bæjar-, sýslu- eða
sveitarfjelaga. 3) að veita lán til
löggiltra fjelaga fasteignaeig-
eiwla (sbr. 17. gr. laga nr. 64 1921
um stofnun Ríkisveðbanka Is-
lands), er hafa með höndum -:am-
vinnumannvirki til jarðabóta, sýo
sem áveitu á engi, samgirðingar
eða önnur álíka mannvirkir og
sjeu lánin trygð með veði í af-
gjöldum a£ eignunum, með sams-
konar forgangsrjetti fyrir öliam
veðskuldum, sem opinberir skatt-
at væru.
Umsókn um lán úr deildinni
skal jafnan fylgja áætlun um
kostnað við þá landbúnaðarfram-
kvæmd, sem lánið er teki® til,
gerð af manni, sem Búnaðarfje-
lag íslands tekur gildan, enn-
fremur áætlun um væntanlegan
arð af endurbótinni eða verðhækk
un vegna hennar. Stjórn Lands-
bankans skal leita uritsagnar Bún-
aðarfjelags íslands um lánveit-
ingar úr deildinni. Lán veitist því
að eins úr deildinni, að lántak-
andi leggi frarn til hinna um-
ræddu framkvæmda, sem svarar
að minsta kosti Vs kostnaðlar við
þær. Alt að helming lánsins má
greiða strax, en afganginn ekki
fyr en verkinu er lokið og skoð-
un hefir farið fram á því, á kostn-
að lántakanda, framkvæmd af
mönnum, sem Búnaðarfjelag .fs-
lands tekur gilda. Ef um stærri
fyrirtæki er að ræða, má þó
greiðia lánið í fleiri hlutum, jafn-
óðum og verkinu miðar áfram,
eftir tillögum Búnaðarfjelags ís-
lands. Vextir af lánum úr deild-
inni mega ekki vera hærri en 4%
og lánstíminn eigi skemri en 20
ár, og lánin afborgunarlaus fyrstu
4 árin.
pá er lög um stofnun Ríkis-
veðbanka íslands komast tilfram-
kvæmdar, skal deild þessi leggj-
ast niður og hverfa inn í hann
með þeim hætti, sem stjórnarráð-
ið ákveður í samráði við stjórn
Landsbanka íslands.
Seðlaútgáfa.
Björn Kristjánsson flytur í Ed.
frv. um seðlaútgáfurjett ríkisins.
Er þar ákveðið svo að, „að ríkis-
stjórnin skal setja á fót stofnun,
er nefnist seðlaútgáfa ríkisins, til
þess að framkvæma fyrir ríkissjóð
seðlaútgáfu þá, sem til hans hverf-
ur samkvæmt 2 .gr. laga nr. 6, 31.
maí 1921, um seðlaútgáfu Islands-
.banka, hlutafjárauka o. fl., og
taka útgáfu á þeim % miljónar,
sem ríkissjóður gefur út af seðl-
um, svo og yfir höfuð, þegar
seðlaútgáfurj ettur íslandsbanka er
horfinn, að hafa á hendi alla
seðlaútgáfu í landinu. Skal sú
stofnun gefa út seðla fyrir rík-
issjóðs hönd, eftir því, sem raun-
veruleg gjaldmiðilsþörf krefur
fram yfir seðla íslandsbanka. —
Seðlarnir skulu innleysanlegir með
gullmynt er krafist er. Upphæð
seðlanna skal vera 100, 50 10 og
5 krónur. Til tryggingar seðlum
þeim, sem seðlaútgáfa ríkisins
gefur út, skal ríkissjóður þegar
í upphafi ieggja stofnuninni. til
30% af útgefnum seðlum í gull-
mynt, og má það trvggingarfje
vera í gullmynt Danmerkur, Nor-
egs, Svíþjóðar, og í íslenskri gull-
mvnt, sem ríkið kann að láta slá.
Auk þess skal stofnunin auka
gullforðann smámsaman með arð-
inum af viðskiftum sínum við
bankana, uns gullforðinn nemur
,50% af þeirri seðlafúlgu, sem
hæst var í umferð á umliðnu ári.“
Til þess að stjórna þessari seðla-
stofnun er gert ráð fyrir því, að
ríkisstjómin skipi bankafrððan
mann, sem starfað hefir í banka
í minst 6 ár, er fjárhagslega sjálf-
stæður og eigi skuldbundinn bönk-
unum. Hann á, að hafa 8 þús. kr.
laun og dýrtíðaruppbót, má ekki
hafa önnur embætti eða reka aðra
atvimm, eða vera í stjóm atvinnu-