Lögrétta

Issue

Lögrétta - 29.07.1924, Page 4

Lögrétta - 29.07.1924, Page 4
4 LÖGRJETTA ef því væri að skifta. Og Sigfús greiddi þau stundum hjer áður á tíð, ef þörf gerðist og á hann var leitað. Munt þú komast að raun um, að á aliskonar sögulegum fróð- leik kann hann skil, hefir lagt á alt sinn sjáifstæða dóm, á mörg rök og skörp og getur jaínvel lát- ið ærið smellnar vísur fjúka. En vinnir þú vináttu hans, mun þjer óhætt um það, að ekki átt þú ann- an vin betri til halds og trausts, það er hann megnar. Og viijirðu launa honum, þá er það mitt ráð, að þú greiðir götu saínsins mikia, því að meira hugsar hann um það en sjálían sig. . . En annars væri ekki úr vegi, að þú beittir áhrifum þínum tii þess, að heldur ykist styrkur sá, er hann nýtur, því að 4 eða 500 krónur eru ekki stórvægileg upphæð manni við ald- ur, sem heíir unnið dag og nótt að nytj astaríi fyrir þjóð sína. Mak- lega væri þeim og launað, sem ráð- ast í útgáfu þessa safns, ef þú keyptir það og hvettir aðra til þess. Ef þú ert Reykvíkingur, get- ur þú fengið bindin, sem út eru komin, hjá Benedikt kaupmanni þórarinssyni, sem reynst hefir Sig- fúsi og safni hans fyr og síðar svo sem góðum dreng og þjóðlegum samir. Guðmundur Gíslason Hagalin. -------------o---- liilidðr H. MdrjessQii sMjur. (írá Brekku í Gufudalssveit. Dáinn 28. april 1924.) Enn er sorg í œskuvorsins heimi, angurblitt í dánarklukku hreimi, fögrum brekkublóma breytt i hismið tóma. Fegurst blómin fá hjer stytst að ljóma. Skyndilega vors- og vonagróður visnað hefir föður þíns og móður; blóm um dapran dalinn drúpa föl og kalin, af því þú ert undir leiði falinn. Hjer fá varla þeir, sem bölið bíða, bœtt það með því annað meira að liða. þeir, sem eitthvað eiga elskuverðugt, mega lifsins súra sorgarbikar teyga. Upp til himins, harmabylgjan þunga! Hliðin opin findu, vonin unga! Lifsins lagaskóla lokar dauðans njóla, þegar lifið lyktar eins og bóla. \ Góðri sál er holt á himinbrautum. Heill sje þjer, sem laus frá jarðar þrautum, föður, móður mœra minning, unaðsskæra eftir ljetst, um eina soninn kæra! Fár sjer meiri fremd svo ungur getur, fáir prýddu sveinahópinn betur. Fljótt í föðurgarði fjekstu meiri’ en varði gróður lífs og gnótt af bernskuarði. — Alt er hljótt í æskudalnum þínurn; ennþá sjer hann fækka blómum sínum; tekur opnum armi, eins með brostnum hvarmi, nú við þjer og þrýstir sjer að barmi. Vorsins þrá og vonin sigurblíða vistaskiftum engan lætur kvíða. Hlýtur búnar bætur blóm, sem döggum grætur, þegar morgunröðull rís á fætur. Lárus JJórðarson. -----0----- Læknaþingið. 1. ísl. læknaþingið er haldið á Akureyri nú um mán- aðamótin. Fjöldi lækna hjeðan að sunnan fór þangað, þ. á m. !and- læknir, Guðm. Hannésson prófess- °r, formaður Læknafjelagsins, er forseti þingsins. Norska stjórnin, ráðuneyti Berg- e’s, hefir nú sagt af sjer, vegna þess, að frv. hennar um afnám bannlaganna hefir verið felt. Búist er við því, að Mov/inckel myndi nýja stjóm. SALT U KOL. Þeir sem þurfa á salti eða kolum að halda, eru vinsamlegast beðnir að leyta tilboða hjá okkur. Útvegum allar tegundir af salti og kolum f. o. b. eða c. i. f. með lægsta verði. O. Johnson & Kaaber. Nýi skólinn. Á heimili mínu, Hesti í Borgarfirði, hefi eg skóla næstkomandi vetur með líku sniði og síðastliðinn vetur. Gott er að nemendur hafi nokkurn námsundirbúning. Þó er barnafræðslan tekin gild sem undir- búningur, því að þá má sleppa aukanámsgreinunum. Allur kostnaður fyrir pilta verður 450 krónur, en fyrir stúlkur 400 krónur. Umsóknir sendist til mín fyrir 15. september n. k. í allra síðasta lagi. Að öðru leyti vísa eg urn námsgreinir og skólann yfir höfuð til skýrslu minn- ar í Lögréttu: Nýr skóli, þ. 27. maí og 10. júní síðastl. Hesti 10. júlí 1924. Eiríkur Albertsson. Kappreiðar. Sunnudaginn 17. ágúst n. k. efnir Hestamannafélagið Fákur til kappreiða í þriðja sinn á Skeiðvellinum við Elliðaár. Kept verður á skeiði og stökki og verðlaun hin sömu og á síð- ustu kappreiðunum; flokksverðlaun — 15 krónur — veitast fljótasta hestinum í hverjum flokki stökkhestanna. Gera skal aðvart um hesta þá, sem reyna skal, formanni félags- ins, Daníel Daníelssyni dyraverði stjórnarráðsins (sími 306), eigi síðar en fimtudaginn 14. ágúst kl. 12 á hádegi. Lokaæfing verður föstudaginn 15. ágúst og hefst á Skeiðvellinum á miðaftni. Hestar og knapar sem keppa eiga, skulu þá vera þar svo æfa megi hestana undir hlaupin og skipa þeim í flokka. Þeir liestar einir geta fengið að keppa, sem koma á lokaæfingu og eru þá innrit- aðir í flokkaskrá. Innritunargjald er 5 krónur. Stjórnin. iCsffiTorexxsleiix er nú tekin til starfa, og afgreiðum við pantanir á ný-brendu og möl- uðu kaffi, ágætis teg., með mjög litlum fyrirvara. jr O. J"oh.nson iKZa.a.'ber- Athugasemd. Mjer finst nóg að gera stutta at- hugasemd við efnið í andsvarinu við áskorun minni í síðasta tölu- blaði Lögrjettu. Jeg ætla lesend- um biaðsins næga dómgreind tii þess áð meta umbúðimar að verð- leikum. það kemur nú í ljós, að álits- hnekking heimspekisdeiidar er öll frá mjer runnin. Við nánari at- hugun hefir höf. ekki fundið neina sök hjá deildinni í heild sinni, eins og skilja mátti af ritfregninni. þetta hefir unnist á með því að heimta skýr svör. En mín sök er tvöföld. I fyrsta lagi hefi jeg „lagt mig í líma“ tii þess að útvega sjálíum mjer launahækkun. í öðru lagi hefi jeg horft þegjandi á, að samkennari minn, dr. Alexander Jóhannesson, var sviftur kennarastyrk sínum. Um fyrra atriðið er skemst að segja, að þar er algerlega hallað rjettu máli. það var fyrir tiimæii fyrverandi kenslumálaráðherra, sem jeg gaf kost á því að afsala mjer embætti mínu í Osló, ef mjer yrði gert kleift að lifa hjer. Jeg bað þingið einskis og afsalaði mjer — fjárhagslega — meira en jeg fjekk uppbót fyrir. Og af gangi málsins á þinginu skifti jeg mjer svo lítið, sem mjer var unt. Um mál dr. A. J. er höf. ber- sýnilega jafnókunnugur. Heim- spekisdeild andmælti því, að niður yrði lögð sjerstök kensla í mál- fræði, og var það álit orðað af mjer. Önnur opinber andmæli komu ekki fram. Á þinginu 1922, þegar styrkur dr. A. J. var feldur í neðri deild, fjekk jeg áheyrn hjá fjárveitinganefnd efri deildar og skýrði málið fyrir henni, og var styrkurmn síðan samþyktur nær samhljóða af deildinni. I vetur, meðan alls óvíst var um dvöl mína hjer framvegis, taldi jeg ekki rjett að blanda mjer í það mál meir en jeg gerði, enda virtist þingið í vet- ur lítið sinna andmælum gegn gerðum sínum. Mjer er það vitanlega mikið áhugamál, að áfram verði við há- skólann sjerstakur kennari í ís- lenskri málfræði. 1 Andvaragrein minni hefi jeg tekið þetta fram, með ekki óskjrari orðum en í „and- svarinu“ standa. Mjer þykir vænt um, að íslensk málvísi hefír eign- ast nýjan talsmann og vin, sem jeg vissi ekki um áður, þar sem rit- dómari Lögrjettu er. Vonandi get- ur hann framvegis látið þá ást sína í ljósi, án þess að narta í menn, sem vafalaust er fult eins ax.t og honum um viðgang og sóma Há- skólans. Sigurður NordaL Út af þessari stuttu og kurteis- legu aths. vill höf. ritfregnar.nnar aðeins taka þetta fram að endingu: Mótmælin, sem hr. S. N. getur um, voru honum ókunn; þau komu ekki opinberlega fram fyr en um þing- lausnir. það er einnig misminni hr. S. N., eða ókunnugleiki, að önnur andmæli hafi ekki komið fram. All- ir stúdentar deildarinnar, eldri og yngri, mótmæltu. Og 1922 var það einnig stúdentaráðið, sem beiddist þess að mótmæli væni fram borin. ----o----- Siglufirði 22. júlí FB. Afarmikil síld hefir verið hjer síðasta sólar- hringinn. Berst svo mikið að, að stöðvarnar hafa ekki við að salta. Sumir, t. d. Ásgeir Pjetursson, hafa látið nokkur af skipum sín- um salta síldina í lestina, og sent þau síðan út aftur til að fylla sig, en að því búnu hafa þau verið send til verksmiðjunnar í Krossanesi. Verksmiðja Sören Goos er enn í smíðum og getur ekki tekið til starfa fyr en í ágúst. Henriksen hefir hjer stórt geymsluskip, sem tekur bræðslusíld og flytru hana til stöðvarinnar á Hesteyri. Síðasta hafa verið með litlu minna. Hefir tiltölulega lítið verið saltað, því síldin er svo slæm og átumikil, að hafi skipin mikla síld, má búast við því, að 2/3 eða meira verði óhæft til söltunar. Síldin er tekin hjer rjett við fjarðarmynnið. Siglufirði 23. júlí. FB. Storma- samt hefir verið úti fyrir síðasta sólarhringinn og tiltölulega fá skip því farið út. Afli hjá þeim, sem inn hafa komið, hefir verið lítill. Seyðisfirði 22. júlí FB. Auk Ein- ars Mikkelsen voru á skipinu ,,Grönland“ Bjering Pedersen tiatt- úrufræðingur, Hagenip grasafræð- ingur, Petersen dýrafræðingur og Aage Nielsen stjörnufræðingur. Annar stýrimaður á skipinu var Ingwersen, sá er var formaður á bátnum „Shanghai“ á för hans frá Kína til Kaupmannahafnar. Norska tollmálið. Símað er frá Kristjaníu: Fyrirspurn hefir kom- ið fram í norska þinginu um það, hvort stjórnin vilji ekki gefa nán- ari upplýsingar en orðið er, um verslunarsamninginn milli Norð- manna og Islendinga. Eru norskir útgerðarmenn og bændur óánægð- ir yfir samningnum, með því að fyrnefndu fá engar ívilnanix-, og hvað hina síðamefndu snertir, er hörð samkepni á kj ötmarkaðinum. Holmboe ráðherra hrakti djarflega árásir þær, sem komu fram á samn inginn. Kvað hann íslendingum ómögulegt að veita Norðmör.num sjerívilnanir, sökum samninga þeirra um hagstæðustu tollkjör, sem þeir hefðu við önnur ríki. Flutningur þingstaðar. Stjómar- hreppsnefndarinnar í Hrafnagils- hreppi samþykt, að þingstaður hreppsins verði fluttur frá Grund að Hrafnagili. I kaþólsku kirkjunni í Landakoti fór fram síðastl. sunnudag mót- tökuathöfn fyrir nývígðan íslensk- an prest, sem hingað er nýkominn og þá las messu hjer í fyrsta skifti. Var kirkjan skreytt utan og inn- an, og allmargt fólk viðstatt, einn- ig utan safnaðarins. Gengu prest- ar, djáknar, kórdrengir og flokkur ungra, hvítklæddra meyja með blóm í skrúðgöngu á móti hinum nýja presti og præfectinum ís- lenska, Monseigneur Meulenberg. Við messuna flutti sjera Dreesens ræðu um prestdóm kirkjunnar og fagnaði hinum nýja samverka- manni. En hann heitir Jóhannes Gunnarsson, sonur G. Einarssonar kaupm. hjer, en hann er sonur Einars alþm. í Nesi Ásmundssonar, þjóðkunhugs manns á sínum tíma og einhvers hins fyrsta styrktar- manns kaþólskunnar hjer á landi. En þá, milli 1850—60, fóru ka- þólskir menn fyrst að sækja hing- að til aðseturs, á Austfjörðu. þótti sumum kirkjulegum yfirvöldum svo sem mikil hætta mundi af þeim stafa og var skrifað allmjög á móti þeim og prestar hvattir til að „sýna einlægt samheldi í því að vernda söfnuði sína fyrir vax- andi áleitni páfadæmisins, eins og líka hverri annari hjegylju, sem á þessum trúardaufu tímum leitar sjer víða rúms í þessum heimi“. Varð Einar í Nesi þó til þess að greiða eitthvað fyrir hinum ka- þólska presti, og seldi honum son sólarhring hafa komið inn vjel- bátarnir Höskuldur og Bruni með 500 tunnur hvor, en margir bátar I ráðið hefir samkvæmt beiðni Kennarastaða laus. önnur kennarastaðan við barna- skóla Búðaþorps í Fáskrúðsfirði er laus. Umsóknarfrestur til ágúst- loka. Skólanefndin. Saltaður lax, 5—12 kílógr. að stærð, er keyptur. óskað lægsta tilboðs gegn banka- trygging eða borgun út í hönd. O. Ansgaar Lövold, Kristiensund N. Norge. sinn til læringar og annan pilt til, Jón Sveinsson, sem nú er orðinn kunnur víða fyrir sögur sínar (Nonni), enda fjell mönnum fljótt vel við prestinn persónulega, hvað sem trúarskoðununum leið. Fór svo að smáaukast hjer kaþólska hreyfingin, bæði á Austfjöiðum um skeið, og einkum í Reykjavík, en hefir þó aldrei haft sig mikið í frammi, enda mun söfnuðurinn ekki vera fjölmennur. En ýmsir leiðtogar hans hafa getið sjer hjer gott orð og gengist fyrir ýmsu nauðsynjastarfi, s. s. spítalastofn- un. Um einn þeirra, Boudoin (d. 1879) hefir Matthías Jochumsson kveðið, og segir m. a.: Og fulla rækt — fóstru þinni — fyrst og síðast — sýna vildir; — mál vort og sögu — siðu, tísku — helgaðir þú þjer — með hjarta og sál. — Lengi var söfnuðurinn hjer í sam- bandi við dönsku söfnuðina, en í fyrra, við kardínálaheimsóknina, var settur hjer sjálfstæður præfect stóll, og á hann Meulenberg sá, sem fyr getur og hjer hefir lengi dvalið, og er ísl. ríkisborgari. En Jóh. Gunn. er fyrsti alísl. kaþólski presturinn frá því um siðaskiftin, sem hjer hefir starfað. Fr. V. Petersen, deildarstjóri í danska ríkisráðuneytinu, er hjer staddur, kom með Islandi síðastl. föstudag og fer með því heimleið- is aftur. Nú er hann á ferð, ásamt tendiherra Dana, austur að Geysi og Gullfossi, Hr. Petersen var for- stöðumaður suðiirjótsku hátíða- haldanna sumarið 1920, er landið sameinaðist Danmörku á ný, og er mikils metinn embættismaður. Kristilegt norrænt stúdentamót var haldið í s. 1. mánuði í Niðarósi í Noregi. Sóttu það margir stúdent- ar, þar á meðal 3 íslenskir, þeir Gunnar Árnason frá Skútustöðum, stud. theol., Páll þorleifsson frá Hólum, stud. theol. og Tómas Guð- mundsson frá Efri-Brú, stud. jur. Á mótinu töluðu ýmsir kunnir nor- rænir kirkjumenn, s. s. dr. Gulin og Serenius frá Finnlandi, prófess- or Aulén, docent Bohlin, lector Björkqvist og Runestad frá Sví- þjóð, Geismár og Koch frá Dan- mörku og dr. Michelet, Gleditsch, Marstrander og Iversen dómpró- fastur frá Noregi. Af Islendinga hálfu talaði G. Árnason tvisvar, öðru sinni á íslensku, en í hitt skift ið á norsku. Flug. Hjer í blaðinu hefir áður verið sagt frá heimsfluginu, sem flugmenn frá Bandaríkjunum eru nú að reyna. Ætla þeir umhverfis jörðina og eru nú komnir til Eng- lands. Hingað er ráðgert að þeir komi 5. ágúst, en fyrst lenda þeir í Hornafirði 4. ágúst. Hjeðan fara þeir til Grænlands og þaðan heim. Annað flug er einnig ráðgert hing- að í sumar. Er það Italinn Loca- telli, sem ætlar að fljúga frá Ítalíu til Bandaríkjanna, með tækjum þeim, sem Amundsen ætlaði að nota við norðurheimskautsflug sitt, en varð að hætta við vegna fjárskorts. Dr. Svendsen fulltrúi heims- bandalangs Rauða-krossins, flutti hjer nýlega erindi um bandalagið og sýndi myndir frá starfsemi þess. Fór hann síðan á læknaþing- ið á Akureyri og ætlar einnig að tala þar. Er í ráði að mynda hjer Rauða-kross deild. Prentsmiðjan Acta.

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.