Lögrétta - 23.09.1924, Síða 2
2
LÖGRJETTA
nægja til þess að sýna ofurlítið
sögu friðarhreyfingarinnar og að-
draganda þeirra alþjóðafunda,
sem nú eru mest á dagskrá, og fyr
er frá sagt. En fjöldi manna um
allan heim lítur til þessara funda
og leiðtoga þeirra með hinni mestu
eftirvæntingu og von um nýja
tíma. því veröldin er þreytt og
þjáð af bölvun og blóðferii lið-
inna ára.
Síðustu símfregnir.
Frá Genf er símað, að ákveðið
sje að boða til alþjóða afvopnunar-
íundar 15. júní n. k. Á að boða á
fundinn allar þjóðir, hvort sem
þær eru í þjóðabandalaginu eða
ekki. — Nú er sagt, að þjóðverj-
ar muni vilja ganga í alþjóða-
bandalagið, ef þeir fái að njóta
f ullkomins st j órnmálaj af nrj ettis
á við aðrar þjóðir í sambandsráð-
mu. — Bretar og þjóðverjar eru
að undirbúa verslunarsamninga
sín á milli. Bretar og Norður-
landamenn búast við almennri
vöruverðlækkun, ef Dawes-tillög-
urnar komast í framkvæmd. — I
Kína heldur borgarastyrjöldin
áfram. — Frá Madrid er símað, að
de Rivera muni vera um það bil að
leggja niður völd sín. — F'rá
Odessa er símað, að allmikil upp-
reisnarókyrð sje í Kákasus og
Suður-Rússlandi. í Georgíu eru
bolsjevikar að bæla niður upp-
reisnina, en sendimenn þaðan
komnir til Parísar til að biðja
stórveldin ásjár. Hefir verið reynt
að miðla málum, en lítið orðið
ágengt.
I gærkvöldi er símað: Stórkost-
leg breyting hefir orðið á verslun-
arveltu þjóðverja síðustu mánuð-
ina. Fyrri helming þessa árs var
hallinn á verslunarjöfnuði þeirra
um li/2 milljarð gullmarka, en í
júlímánuði fluttu þeir út fyrir 17
milljón gullmörk umfram innflutt
og í ágúst var flutt út fyrir 140
milljónir gullmarka umfram inn-
flutt. Er talið sennilegt, að nýr
blömgunartími sje byrjaður í
þýskri verslun og iðnaði.
ítalir og Svisslendingar hafa
ákveðið að gera út um öll deilu-
mál sín með gerðardómi.
----0----
Úr Vopnafirði. Maður nýkom-
inn þaðan skrifar Lö.gr: Tíðin
hefir verið hin versta alt frá því
á einmánuði í vor. Vorið var afar-
slæmt, snjó tók ekki upp af norð-
austurlandinu fyr en seint í júní.
Sauðfje var ekki hægt að reka til
afrjetta fyr en í júlílok og byrjaði
ekki sláttur víða fyr en með ágúst-
byrjun. Tók þá við látlaus óþurka-
tíð allan mánuðinn. Engjar voru
óvenjublautar og oftast kalt í
veðri, svo að erfitt var að fást við
heyskapinn. Kæmi þurviðri, var
varla hægt að hagnýta sjer það
vegna þess, að þurkvöll vantaði,
heyið þurfti að flytja blautt, ef til
vill heim á tún og tekið var ef til
vill að rigna áður en því yrði lok-
ið. þegar svona árar, er brýn
nauðsyn að ræsa meira fram en
gert hefir verið, svo að heil engja-
flæmi verði ekki óhagnýt vegna
vatnsaga. Bankarnir verða að
hjálpa bændum til að auka heyafl-
ann og öryggi búskaparins. I
svona sumrum, þegar víða kemst
ekki baggi í hlöðu fyr en í sept-
ember, er heyfengur bænda bæði
rýr og skemdur. þetta er fjórða
óþurkasumarið, sem kemur yfir
þennan Iandshluta, og fara bænd-
ur að verða aðþrengdir mjög og
þurfa að fækka bústofni. Stjórn-
arvöld landsins verða að vera
vakandi og hafa gát á hag og af-
komu landsmanna, og bankarnir
mega til að veita bændum lán til
aukinnar túnræktar og fram-
ræslu, því að á óþurkasumrunum
sýnir það sig, að þeir bændur
verða harðast úti, sem hafa lítil
tún og mýrlendar engjar.
Flutningur þingstaðar. Samkv.
leyfi stjómarráðsins verður þing-
staður Fellnahrepps í Norður-
Múlasýslu fluttur frá Meðainesi
að Birnufelli.
Bókmentir.
Nýkomin er út íslensk lesbók,
sem nær yfir tímann 1400—1900
og hefir Sig. Nordal prófessor
valið efni í hana. Framan við
hana er prentaður fyrirlestur sá,
sem hann flutti hjer síðastl. vor
um samhengið í íslenskum bók-
mentum. Alt aðalefnið í þeim fyr-
irlestri er rjett og hann allvel til
þess fallinn, að fylgja Lesbókinni,
að öðru leyti en því, að höf. virð-
ist vera að reyna að setja þetta
fram sem nýja uppgötvun frá
sjer, enda þótt þetta samhengi í
ísl. bókmentum sje svo aíkunnugt,
að hver sæmilega mentaður og bók
lesinn maður í landinu veit þetta
og hefir vitað öld fram af öld. það
er ekkert í þessum fyrirlestri, sem
heitið geti nýtt, eða áður ókunn-
ugt, og hjá því getur ekki fanð, að
Sig. Nordal viti þetta sjálfur. En
með framsetningu sinni á þessum
alkunna sannleika verður hann
þess valdandi, að svo óskaplegar
greinar koma fram um bókina eins
og greinin í Mrg.bl. síðastl. sunnu-
dag. það hlýtur að vekja hæðni og
hlátur um endilangt ísland, ef
kennarinn í bókmentasögu lands-
ins við háskólann ætlar að fara að
reifa sig í lofgerðarslæðum fyrir
það, að hann hafi uppgötvað sam-
hengi í íslenskum bókmentum frá
fornöld til nútímans!!
Um bókina sjálfa er það að
segja, að henni mun ætlað að fylla
autt skarð í skólabókum okkar,
sem komið hefir við það, að Sýnis-
bók íslenskra bókmenta á 19. öld,
eftir Boga Th. Melsted, er nú, að
sögn, uppseld. En til þeirrar notk-
unar er bókin óhæfilega dýr. Sem
sýnisbók íslenskra bókmenta hef-
ir hún þann galla, að hún gefur
hvergi nærri rjetta hugmynd um
bókmentirnar á þeim tíma, sem
henni er ætlað að ná yfir. Hún er
alt of fáskrúðug til þess. Samning
slíkrar bókar er ekkert þrekvirki
og ekkert vandaverk. það er bæði
lítil fyrirhöfn og lítill vandi að
tína upp nokkur kvæði eða rit-
gerðakafla eftir þá Jón Arason,
Guðbrand þorláksson, Einar Sig-
urðsson, Hallgrím Pjetursson,
Stefán Ólafsson, Jón Vídalín o. s.
frv. Höf. þessarar greinar hefir
ekki lesið yfir, það sem eftir þá er
þarna prentað, en telur víst, að
það sje sæmilega valið, enda ætti
annarhver stúdent frá Mentaskól-
anum að vera fær um að gera það
úrval nærri rjettu lagi. En til þess
að geta heitið sýnisbók ísl. bók-
menta, er bókin, sem sagt, alt of
fáskrúðug, og ber þó meira á
þessu er fram dregur á síðari tím-
ana. þar er t. d. ekkert sýnt eftir
Pál Melsted sagnaritara, sem þó
ritaði afburða fallegt mál; ekkert
eftir jafnsnjallan og áhrifamikinn
rithöfund og Jón Ólafsson var,
ekkert eftir Björn M. Ólsen, ekk-
ert eftir þorvald Thoroddsen. þeg-
ar þessa er gætt, má öllum vera
það ljóst, að sem sýnisbók ísl.
bókmenta getur bókin alls ekki
Staðist, og stendur hún þar mjög
að baki bókar Boga Th. Melsteds
á sinni tíð. En þó er eitt ótalið, sem
er versti ókostur bókarinnar, og
það er, að hún er hlutdræg, þ. e.
sýnilega sett saman með það fyrir
augum, að kasta rýrð á einstaka
rithöfunda, en hefja aðra, og
kemur þetta ljósast fram í slettum
þeim, sem höf. lætur bókina flytja
til Einars H. Kvarans. það mun
flestra mál, að baktjaldamakkið
við hina sænsku ritfrú í fyrra, til
þess að spilla fyrir Einari H.
Kvaran erlendis, sje Sig. Nordaí
til engrar sæmdar, svo að ekki sje
fastara að orði kveðið. Og lesbók-
arslettan hans er ósmekkleg og illa
viðeigandi, á þeim stað. Hann finn-
ur E. H. K. þar til foráttu vöntun
á karlmensku og þrótti — dálag-
lega viðeigandi orð, eða hitt þó
heldur, frá annari eins vipruvör og
tilgerðarrófu og S. N. er, einhverj-
um þeim karlmensku-snauðasta rit
höfundi, sem til er á okkar landi,að
kvenrithöfundunum meðtöldum. í
Smásöluverd
má ekki vera hærra á eftirtöldum tóbakstegundum, en hér segir:
IE^ey\k:tc>T3aIk::
Virginia Birdseye (Bears) .
Golden Birdseye do. . .
Virkenor do. . .
Abdulla Mixture (Abdulla). .
Saylor Boy (G. Philips). . .
King of the Blue (G. Philips)
Feinr. Shag (J. Gruno) . . .
Golden Bell do. . .
Kr. 12.10 pr. 1 Ibs.
15.55 — 1 —
— 16.70 — 1 —
— 23.60 — 1 —
— 13.25 — 1 —
— 17.85 — 1 —
— 17.25 — 1 kg.
— 19.55 — 1 —
Rauður og Grár!
Tveir reiðhestar hafa tapast
hér úr bænum, annar grár, mark:
Vaglskorið f. v., hinn rauður,
mark: Blaðstýft f. h. og biti aft-
an, sýlt v. og biti aftan.
Sá sem verður hestanna^ var, er
vinsaml. beðinn að gera aðvart
Gunnlaugi Einarssyni lækni, sími
693, eða Magnúsi Kjaran, sími
43 og 601.
Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur flutn-
ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó elcki yfir 2°/0.
Iiaudsverslun íslands.
STRANDWOLD & DIÍASON
SÍMNEFNI: DÚASQN. ADMIRALGADE 21.
KÖBENHAVN K.
Selja í mnhodssöhi allar íslenskar afurðir
fyrir liæsta verð. Utve;
(16.—22. júlí 1924).
Eftir Gunnar Arnason frá Skútu-
stöðum.
-----Aó morgni þess 15. júlí
rennur aukalest frá Osló áieiðis
norður til Niðaróss. Vagnarnir eru
heil halaróía, allir troðfullir af
stúdentum, norskum, sænskum,
dónskum, sem skifta hundruöum,
og meðal þeirra þrír íslendingar
(stúd. theol. Páll þorleifsson, stud.
jur. Tómas Guðmundsson og
greinarhöí.).
það er glaða sólskin og blæja-
logn, hópurinn er glaðvær, margt
er spjallað, en mest horft. F’agurt
er landið, gegnum þjettbygðar bú-
sældarbygðir, milli lágra skógar-
hæða liggur leiðin fyrst að Eiðs-
velli. þaðan meðfram Vonnu og
síðan Mjösen (stærsta vatn Nor-
egs, 100 km., en lítið breiðara en
Lagarfljót víða), yfir Heiðamerk-
ursveitirnar og Hamar að Litla-
hamri. Síðan um breiðan, frjósam-
an og hlýjan Guðbrandsdalinn og
loks frá Domtás yfir lyngivaxinn,
snæflekkóttan fjallgarðinn, fram-
hjá Snæhettu niður í þrönga dali,
loks um víðlendar bygðir í nánd
við Niðarós.
Norðmennirnir elska þetta alt,
Svíarnir og Danimir dást mest að
fjallaauðninni og eilífum snænum,
— Islendingarnir óska þess í hug-
anum, að skógarnir væru horfnir
heim.
Tilgangur fararinnar er fundur,
sem norsku, finsku, sænsku og
dönsku kristilegu stúdentafjeiögin
hafa boðað til. Sá 10. í röðinni.
Hinn fyrsti var haldinn í Hilleröd
1890 og skyldu þeir síðan haldnir
annaðhvort ár, en skilnaður Svía
og Norðmanna 1905 og síðan
heimsstríðið olli því, að þeir iögð-
ust niður um langt skeið. 1919
hófust þeir að nýju með mótinu á
Nyborg Strand og í Naadendal var
annað 1921.
í fundarboðinu í ár er að nokkru
gerð grein fyrir ætlun þeirra. þar
stendur meðal annars:
„Naar der nu indbys til det lOde
store nordiske studentermöte, er
det fordi vi mener at et nordisk
kristeligt studentermöte netop nu
har en stor opgave aa löse. Der
trenges til forstaaelse folkene
imellem,og der trenges til sarnling,
og ikke minst til kristelig samling.
Der lyder et felles kall fra tidens
store nöd, — et kall til lösning av
store opgaver. Og over dette, og
nöje forbundet med dette staar det
personlige livs dypeste spörsmaal.
Verdens frelse, og sjelens frelse,
det er spörsmaal som hörer nöie
sammen, spörsmaal som vil og bör
bevege enhver alvorlig tenkende
student.
Til et möte til samling om disse
spörsmaal paa kristelig grunnlag
er det vi indbyr, fordi vi ikke
kjenner nogen annen vi her kan
a allar erlemlar vörur.
samles om end Jesus Kristus, saa-
sant „der ikke er frelse i noen
annen“, hverken for den enkelte
eller for folkene“.
Á þetta kall runnu stúdentarnir
með lestinni til Niðaróss.Komu þar
klukkan rúmlega 12 um kveldið og
! hittu þá fyrir fjöldan allann, sem
! komu áður — flest Finnar. Var
! mönnum jafnskjótt vísað til bú-
! staða sinna, tveggja skólahúsa;
| bjuggu karlmennirnir í öðru, kven-
! fólkið í hinu. Frh.
----o---
Manvása.
í húmfriði nætur jeg hljóðlega
geng,
en hjartað í barminum titrar,
þá leik jeg á hörpunnar ljúfasta
streng,
er lífdögg á blómunum titrar;
svo andblærinn .flugrnjúkur flytji
til þín
hið fegursta úr tónunum mínum,
og veki þig ásthlýtt, er vorsólin
skín,
með voldugu geislunum sínum.
Jón S. Bergniann.
-----0----
Áfengismál. Nýlega gerði lög-
reglan hjer í bænum húsrannsókn
hjá tveimur mönnum, sem grun-
aðir voru um leynilegt áfengis-
brugg og áfengissölu. Fann hún
bruggunartæki og 10 potta af
„pólítúr" hjá öðrum þeirra, Sig-
urði Berendtsen, en allmikið af
spíritus og portvíni hjá hinum, í
sama húsinu, Ásgeiri frá Seli. Um
þann fyrnefnda má geta þess, að
örfáum dögum áður en þessi leit
var gerð hjá honum, hafði hann
verið dæmdur í hæstarjetti fyrir
ítrekuð brot í sömu átt og einnig
fyrir það, að hafa gert tilraun til
þess að fá menn til að gefa fals-
vottorð í slíku máli, sem hann átti
í. Annar maður, sem átti að hafa
verið honum hjálplegur við það,
Guðm. kaupm. þorkelsson, var
einnig dæmdur þar. Hinn fyrri var
dæmdur í 80 daga fangelsi og 1500
kr. sekt, hinn síðari í 20 daga
fangelsi. þessi leynisala á áfengi,
sem oft kvað vera óþverrasull, selt
við okurverði, er mörgum mönnum
hjer áhyggjuefni, hverrar skoðun-
ar sem þeir annars eru um bind-
indi og bann, enda er að henni
ófögnuður og ósómi.
Dómkirkjan. Allmikið hefir ver-
ið rætt hjer undanfarið um 2.
dómkirkjuprestsembættið, sem nú
er laust. Hefir ýmsa undrað, að
svo virtist stundum, sem enginn
ætlaði að verða til að sækja um
það, og var því um kent, að það
þætti umfangs- og annamikið, en
launalítið (föstu launin eru um
3000 kr.). Til dæmis um störf
dómkirkjuprestanna má geta þess,
að s. 1. sunnudag flutti sjera
Bjarni 2 guðsþjónustur, 1 fyrir-
lestur og framkvæmdi 4 skírnir.
Nú hefir þó einn umsækjandi
komið, sjera Friðrik Hallgríms-
son, Sveinssonar biskups,sem und-
anfarin ár hefir þjónað meðal
landa í Vesturheimi. Höfðu nokkr-
ir menn í söfnuðinum hjer boðist
til þess að kosta för hans heim
hingað, ef hann vildi sækja og
yrði kosinn. Aðrir hafa ekki sótt
ennþá.
Austan af Hjeraði. þann 30. f.
m. fór fram jarðarför fyrrum
skólastjóra Jónasar sál. Eiríksson-
ar, að heimili hans og eignarjörð,
Breiðavaði (heimagrafreit),að við-
stöddu miklu fjölmenni. þrátt fyr-
ir þáverandi mesta annatíma árs-
ins, og voru menn víða að komn-
ir af Austurlandi. Sýndi það, að
margir kunna að meta starf og
mannkosti hins merka sæmdar-
manns. Bárust, aðstandendum einn
ig samúðarkveðjur og símskeyti úr
ýmsum áttum, og var eitt þessara
skeyta svohljóðandi:
„Til aðstandenda fyrrum skóla-
stjóra Jónasar sál. Eiríkssonar. ■—
Saknaðar- og samúðarhugur
margra mun svífa um staðinn við
þetta tækifæri, Liðni tíminn hef-
ir auðgast á lífi hans og störfum.
Samtíðinni er skylt að notfæra
sjer fordæmið. Ókomni tíminn
ætti að geyma minninguna“.
Einar Jónsson hreppstjóri í Nesi
í Norðfirði varð bráðkvaddur 17.
þ. m. segir skeyti frá Seyðisfirði.
Berklalögin. Samkvæmt augl.
stjórnarráðsins 17. þ. m. verður
framvegis greiddur kostnaðurinn
við ljóslækningar styrkhæfra sjúk-
linga á ljóslækningastofum. Mun
þar með slegið föstu, að ríkissjóð-
ur greiði slíkan kostnað að öllu
leyti, en áður mun hann hafa ver-
ið greiddur að 8/5 úr ríkissjóði en
að 2/5af hlutaðeigandi dvalarhjer-
aði sjúklinganna. Berklavarnalög-
in komu, eins og kunnugt er, til
framkvæmda seint á árinu 1921.
Árið 1922 voru 340 umsækjendur
um ríkissjóðstyrk úrskurðaðir
styrkhæfir til dvalar á heilsuhæli,
árið 1923 370 og það sem af er
þessu ári 286, eða alls 996 sjúkling
ar síðan lögin gengu í gildi.
Strandvarnir. Ríkisstjórnin hef-
ir fengið björgunarskipið þór til
að annast strandvarnir l]/2 mán-
uði lengur en upprunalega var um
samið, eða til loka október. Fór
skipið vestur fyrir skömmu.
Frá Akureyri er símað 19. þ. m.:
Hjer er mesta kuldatíð og mjög
orðið vetrarlegt. Afli er töluverð-
ur af síld, en eingöngu í reknet.
Eru það smærri bátarnir, er þá
veiði stunda, en aðrir eru hættir.
Fiskiafli er áframhaldandi góð-
ur á mótorbáta og árabáta segir
nýkomið skeyti frá Seyðisfirði.
Hefir aldrei í manna minnum ver-
ið jafngóður afli á árabáta og í
sumar.
Guðni læknir Hjörleifsson hefir
verið skipaður hjeraðslæknir í
Hróarstunguh j eraði.
Barnaskóli Reykjavíkur. Nýlega
hafa tveir kennarar verið settir
við skólann, þau Aðalsteinn Eiríks-
son og ungfrú Kristín þorvalds-
dóttir. Eru fastir kennarar nú 38
og skólaskyld börn 1300 að tölu.
Skólagjöld hafa verið ákveðin
130 kr. fyrir hvern nemanda við
Mentaskólann í Reykjavík, gagn-
fræðaskólann á Akureyri, Kenn-
araskólann, Stýrimannaskólann og
Vjelstjóraskólann.
Gamanleik, sem heitir Tíminn og
eilífðin, á að fara að leika hjer.
Prentsmiðjan Acta.