Lögrétta - 07.10.1924, Síða 4
4
LÖGRJÍTTA
óþrifnað þann, sem átt hefir sjer
stað við framleiðslu meðalalýsis,
en t. d. mjólkur.
það ætti ekki að dragast lengur
en til næsta þings að samin væri
ítarleg lög um framleiðslu þessara
vara, og landlækni og hjeraðs-
læknum falið að hafa eftirlit með
tilbúningnum, sömuleiðis ætti al-
gerlega að banna að búa til með-
alalýsi úr annari lifur en þeirri,
sem flutt er í land samdægurs og
hún er fiskuð.
Fiskifjelaginu hefir nýlega bor-
ist dálítill bæklingur frá danska
konsúlatinu í Montreal um lýsis-
iðnaðinn við Newfoundland (The
cod liver oil industry in New-
foundland), og til samanburðar
fyrir þá, sem þekkja til meðala-
lýsisiðnaðarins hjá okkur, vil jeg
leyfa mjer að benda á nokkur at- j
riði úr nefndri bók.
Sjerhver sá, sem fæst við fram-
leiðslu á meðalalýsi, verður að fá
til þess sjerstakt leyfi og færa
sönnur á, að hann hafi þá þekk-
ingu, sem til þess þarf að uppfylla
þau skilyrði, sem heimtuð eru.
Umsjónarmaður stjórnarinnar
lítur stöðugt eftir bræðslustöðv-
unum og sjer um, að ríkjandi
reglugerðum sje fylgt og leiðbein-
ir og gefur upplýsingar þeim, sem
við þennan iðnað fást.
Matsvottorð frá umsjónarmanni
ríkisins verður að fylgja hverri
sendingu sem afgreidd er,og í því
tekið fram, að það sje framleitt
undir hans eftirliti.
Nærri því alt meðalalýsi, sem
framleitt er við Newfoundland, er
gufubrætt, þannig, að gufa er
leidd beint í bræðslukerið og látin |
standa á lifrinni ca. 30 mínútur,
þangað til fer að koma hvít froða
ofan á lýsið, þá er lokað fyrir guf-
una og lýsið látið setjast til í ca.
5 mínútur, síðan er lýsið síað
vandlega ofan í kæligeymana, og
þar er það látið bíða í sólarhring.
Umsjónarmaður verður að sjá
um, að lifrin sje fersk, allar
skemdar, brúnar eða horaðar lifr-
ar eru teknar burtu, gallhúsið tek
in vandlega af hverri lifur, og lifr-
in þvegin vel úr-köldu vatni áður
en hún er látin í bræðslukerin, sem
eiga að vera vandlega þvegin,
Það tilkynnist hjermeð ættingjum og vinum, að minn elskulegi
tengdafaðir, A. C. Lambertsen, fyrverandi kaupmaður, andaðist á heimili
sínu, Römö, 17. fyrra mánaðar. Hann var 74 ára, og elskaði ísland, sem
sitt annað föðurland. Jenny Lambertsen.
ásamt leiðslum og rörum, í hvert
skifti áður en lifrin er látin í þau,
og í hvert skifti sem bræðslu er
lokið, á að þvo vandlega bræðslu-
kerin, síur, leiðslur og öll áhöld,
sem notuð eru til bræðslunnar, úr
heitu sápuvatni, sóda er ekki leyft
að notá.
Aðeins það lýsi, sem þannig
fæst úr fyrstu bræðslu, er selt
sem meðalalýsi, en þá er mikið lýsi
eftir í lifrinni fyrir það, sem bráðn
ar þegar gufan er leidd í kerin aft-
ur og látin standa lengur, en það
er snauðara af bætiefnum og selt
til skepnufóðurs.
þegar þess er nú ennfremur
gætt, að lifrin er fengin af báta-
fiski, sem veiddur er sama daginn
og lifrin brædd samstundis, aðeins
notuð þorskalifur, en lifur úr
ufsa, ýsu, löngu eða öðrum fisk-
um aldrei blandað saman við þá
lifur, sem nota á í meðalalýsi, þá
fer það að verða auðskilið, með
svona vandaðri meðferð, að hjer
er um góða vörutegund að ræða.
Ameríkumenn segjast líka sjálf-
ir hafa fundið þarna þá gullnámu,
sem sje miklu meira virði fyrir
framtíð þjóðarinnar en gullnám-
urnar í Alaska.
Jeg ætla ekki að lýsa ástandinu
eins og það er á þeim bræðslu-
stöðvum hjer, sem meðalalýsi
framleiða, enda yrði samanburð-
urinn ójafn, en jeg efast ekkert
um, að við eigum hjer ekki síðui'
en Ameríkumenn þá gullnámu,
sem í framtíðinni gæti haft mikla
þýðingu fyrir hreysti þjóðarinn-
heiminum, sem framleiða meðala-
lýsi fyrir heimsmarkaðinn, nefni-
lega Noregur og Newfoundland.
Islenska lýsið fer nefnilega mest
sem óhreinsuð vara til Noregs eða
þýskalands, er hreinsað þar og
síðan flutt út sem afurðir þeirra
landa.
Fjárhagslega sjeð höfum við
ekki efni á að gera aðra þjóð að
millilið á þessari vörutegund, og
þjóðfræðilega sjeð höfum við ekki
heldur efni á að fela okkur fyrir
umheiminum, eða þær vörutegund
ir, sem geta vakið eftirtekt á
okkur.
Reykjavík 29. sept. 1924.
Kristján Bergsson.
----o-----
Tilvitnun og syar viö brjefl.
í Mrg.bl. 21- sept. stendur í grein
eftir J. B. um Lestrarbók Sigurðar
Nordals:
„Rf einhver skyldi hafa efast um
það, að próf. Sigurður Nordal stæði á
traustu bjargi með þá skoðun, sem
hann hjelt fram í erindinu um „sam-
hengiff í íslenskum bókmentum“, sem
nú er prentað framan við þessa bók,
um þessara manna og sýna þau þjóð-
inni..... En mikið verk er þetta
vegna þess, að elju, vandvirkni, sam-
viskusemi og kunnugleik mikinn þarf
til þess að velja í svona bók
■v Höf. hefir í Mrg.bl. 1. þ. m. skrifað
mjer langt opið brjef um Lestrarbók
Nordals og þann ómilda dóm, sem hún
hefir, að hans áliti, fengið hjer í blað-
inu. Og af því að góður kunningi á þar
hlut að máli, þá vil jeg ekki láta því
ósvarað. En það verð jeg að segja yð-
ur eins og er, minn góði Jón Björns-
son, að þjer hafið með þeim ummæl-
um, sem prentuð eru eftir yður hjer á
undan, og öðrum fleiri sömu tegund-
ar í greininni um Lestrarbókina, opin-
berað svo óskaplega fáfræði í íslenskri
bókmentasögu, að tæplega er hægt að
eiga við yður orðaskifti í alvöru um
þau mál. Jeg hefi ekkert áfelt yður
fyrir þetta, heldur afsakað yður með
því, að í formála og inngangi bókar-
innar er ýmislegt, þótt ekki nenni jeg
að telja það hjer upp, sem leitt getur
menn, sem litla þekkingu hafa á mál-
unum, inn á þá hugsanabraut, sem
þjer hafið komist á í ritdómnum. Jeg
veit, að þjer eruð góður drengur og
viljið ekki vamm yðar vita. Og nú
skilst mjer svo sem yður muni hafa
orðið eitthvað ilt fyrir hjartanu í svip-
ar.
Víða hjer á landi hagar svo til,
að hægt ætti að vera að fá ferska
lifur veidda sama daginn, svo að
ástæðulaust er að vera að nota
gamla botnvörpungalifur til að
framleiða úr meðalalýsi.
Ennfremur þyrfti að komast
hjer upp það allra fyrsta hreins-
unarstöð (raffinery), svo að hægt
væri að koma lýsinu fullbúnu á
heimsmarkaðinn, og gætum við
þá farið að vekja eftirtekt á okk-
ur með framboði á því, því eitt af
því, sem gerir löndin mest þekt
út um heiminn, er framboð á vör-
um þeim, sem þau framleiða. En
eins og er, eru bara tvö lönd í
þá ætti þeim efa að vera blásið á burt
eftir lestur íslenskrar lestrarbókar,
því þar eru færð svo lifandi og ótví-
ræð rök fyrir samhenginu, að ekki
verður á móti mælt .... Samhengið er
órofið frá gullaldarritunum og fram til
vorra daga, þó ýmsir hafi verið á ann-
ari skoðun .... fæsta, sem ekki hafa
rannsakað verk þeirra (þ. e. höfund-
anna, sem Lestrarbókin flytur eitt-
hvað eftir) í söfnum eða á annan hátt,
mun gruna, fyr en þeir hafa sjeð þessa
bók, hvílíkar perlur bókmenta vorra
hafa leynst fram á þennan dag, flest-
um huldar. pað er því bæði göfugt
verk og mikils vert, sem próf. Sigurð-
ur Nordal hefir unnið með því að
svifta hjúpi ókunnugleikans af ritverk
inn af þvi, að hugsa til þess, að þjcr
hafið ef til vill orðið þess valdandi, að
vinur yðar fjekk ekki lirós fyrir hók-
ina í Lögrjettu. pví verður ekki neit-
að, að grein yðar gaf tilefni til þess,
að ritdómur um bókina kom nokkru
fyr en ella hefði orðið. Aðra sök eigið
þjer ekki á þessu.
pjor spyrjið, hvað þjer hafið fyrir
yður gert. Fyrst er því þar til að
svara, að jeg hefi alls ekki bcint til
yðar neinu af þvi, sem jeg hefi sagt
um Lestrarbók S. N. En vel má samt
segja yður, hvað þjer hafið fyrir yður
gert: þjer hafið skrifað um mál, sem
þjer hafið enga þekkingu á og eruð
ekki fær til að skrifa um. Yður finst
þetta, ef til vill, lítil yfirsjón. En hún
Bann.
Hjer með er öllum stranglega
bönnuð rjúpnaveiði í landi ábýlis-
jarðar minnar, Þverfelli í Borgar-
fjarðarsýslu.
Davíð Björnsson.
er miklu stærri en yður kann að virð-
ast, að lítt yfirveguðu máli. petta er
mein-galli, sem yður er nauðsynlegt
að venja yður af. — Brjef yðar ber vott
um, að þér vitið nú, að S. N. hefir
ekki gert neina nýja uppgötvun um
snmhengi í íslenskum bókmentum.
Og liklega vitið þjer það einnig nú, að
S. N. hefir ekki heldur grafið upp
neinar perlur, „sem leynst hafa frana
á þennan dag“, en að efni Lestrarbók-
arinnar er alt tekið úr prentuðum hók-
um, sem teljast mega alkunnar meðal
bókfróðra mailna og flestar eru enn til
víða um sveitir landsins. pegar þessa
er gætt, verður hrós það, sem þjer
hlaðið á prófessorinn fyrir elju hans
o. s. frv., háð en eigi lof, eins og Snorri
segir. Eina setningu í grein minni
misskiljið þjer. — þar sem jeg segi að
annarhver stúdent ætti að geta gort
úrval eins og þetta nærri rjettu lagi,
þá er það hugsunin, að annarhver
maður á landinu, sem fengið hefir þá
mentun, sem stúdentspróf veitir, ætti
að geta gert þetta nærri rjettu lagi.
Og jeg hygg, að þetta sje engin fjar-
stæða. pjer eruð í brjefinu fallinn frá
þvi, að Lestrarbókin eigi að skoðast
sem sýnisbók ísl. bókmenta og segið,
að „það nái ekki nokkurri átt“. En lít-
ið þjer yfir greinina yðar frá 21. sept.
og gætið að, hvað af henni verður
dregið um það mál. Sje bókin aðeins
talin lesbók handa unglingum, hefi
jeg ekki fundið að henni annað en
það, að hún sje óhæfilega dýr.
p. G.
, ----o-----
Guðmundur Guðfinnsson læknír
er nýkominn til bæjarins. Hefir
hann dvalið erlendis hátt á annað
ár og lagt stund á augnlækningar,
lengstum í Vínarborg. Setst hann
nú að hjer í bænum sem augn-
læknir með sama starfssviði og
Andr. Fjeldsted hafði áður.
Vilhj. Finsen blaðamaður frá
Kristjaníu kom hingað í gær og
verður hjer um tíma.
öðru í sjerstökum atriðum. En um hitt
verður ekki deilt, að háskólinn átti að
koma og hlaut að koma. Sterk og ákveðin
alda í menningarþróun þjóðarinnar hafði
undirbúið hann, sköpun hans var liður í
baráttunni fyrir íslenskri endurreisn, að
sínu leyti eins og alþingi var það á öðru
sviði. Og háskólinn var og er fyrst og
fremst hið sýailega tákn, inn á við og út
á við, um sjálfstæði og sjerstöðu íslenskr-
ar menningar, að svo miklu leyti sem hún
er og hlýtur, hjer eins og annarstaðar, að
vera bundin einhverri eða einhverjum
stofnunum í þjóðfjelaginu. Og háskólinn
er þetta á sínu sviði, alveg eins og t. d.
alþingi er á öðru leitinu hið augljósa
tákn um stjórnarfarslegt sjálfstæði þjóð-
arinnar, að því leyti sem það á svipaðan
hátt er bundið einni ákveðinni stofnun í
þjóðfjelaginu. það getur vel verið, að mis-
brestir sjeu nú á báðum þessum stofnun-
um, og verður vikið hjer að því um háskól-
ann. En það út af fyrir sig afsannar ekki
nauðsyn eða rjett skólans í sjálfu sjer.
þeir menn, sem láta sjer það til hugar
koma, að háskólinn hefði ekki átt að vera
til, eða að afnema eigi einhvern megin-
hluta hans, vegna þess, að hann fullnægi
ekki nú öllum þeim kröfum, sem gera
megi til slíkrar stofnunar, — þeir geta
með alveg sömu rökum farið fram á það,
að Alþingi þjóðarinnar yrði afnumið, eða
óskað þess, að það hefði aldrei verið end-
urreist, þar sem vitanlegt er, að mikill
fjöldi manna álítur það oft og einatt
bregðast tilfinnanlega skyldum sínum.
Menn gætu þá farið fram á það, allra
þegnsamlegast, eins og á þeim góðu, gömlu
dögum, að mega senda nokkra fulltrúa á
þing Dana, eins og áður fyr, um leið og
farið er fram á hitt, að mega halda áfram
að senda íslenska mentamenn til dansks
háskóla, t. d. til þess að læra íslensku í
Kaupmannahöfn.
Nei, hvorugt kemur framar fyrir. Báð-
ar þessar stofnanir hafa orðið til fyrir
bænir og baráttu margra kynslóða, þær
hafg. vaxið upp úr vilja og nauðsyn þjóð-
arinnar, þær hafa runnið smátt og smátt
af sögulegum rökum fortíðarinnar og þörf
framtíðarinnar. þar með er engan veginn
sagt, að sköpunarsögu þeirra sje lokið,
eða að ekkert megi að þeim finna, öðru
nær. En hjeðan í frá verða þær að standa
á eigin fótum, þeim sjálfum og öðrum
verður að skiljast það, að jafnframt rjett-
indum hafa þær öðlast skyldur um við-
hald og vöxt innlendrar menningar og ís-
lenskra þjóðfræða. þeim og öðrum verður
að skiljast það, að tilvera þeirra merkir
fyrst og fremst það, að miðstöðvar ís-
lenskrar menningar eru fluttar inn í Iand-
ið sjálft og verða að standa þar og falla
á ábyrgð þjóðarinnar sjálfrar. Stofnun
háskólans er fyrst og fremst tilraun til
fyllingar þeirrar óskar og þess boðskap-
ar, sem m. a. er vikið að áður í sambandi
við konungsbrjefið frá 1573, — að „land-
lið megi með framtíðinni af sjálfs síns
innbyggjurum og lærðum mönnum byrgt
og forsorgað verða“. En háskólinn er
jafnframt meira, eða á að vera. Hann á,
(eins og hinn fyrsti íslenski rector magni-
rficus sagði í setningarræðu sinni, að
vera „borgari í hinni miklu respublica
scientiarium“. það getur vel verið, að
sumum þyki þetta alt þrautmiklar klyfjar
og þungar kröfur — og það er víst, að það
fæst ekki með öðru en „mikilli iðn ok at-
höfn“, eins og sagt var um einn hinna
fyrstu skólanna. En ef svo er, þá er það
ekki af öðru en því, að mönnum virðist
það yfirleitt þungt og þrautamikið að
vera að halda uppi íslenskri menningu. I
þeirri merkingu, sem hjer er með söguleg-
um rjetti og nauðsyn í nútímalífinu lögð
í orðið háskóli, er spurningin ekki um til-
veru stofnunarinnar út af fyrir sig, held-
ur verða spurningamar um tilveru hennar
og um tilveru menningarlífsins yfirleitt
svo nátengdar, að ekki verður á milli sjeð.
Að vísu má ekki leggja í þetta of þröng-
skorðaðan skilning, því auðvitað getur
þrifist menningarlíf, þó ekki sje það háð
einstakri mentastofnun, og áhrif slíkra
stofnana geta meiía að segja verið upp og
ofan. En söguyfirlitið, sem hjer hefir far-
ið á undan, sýnir þó það, að allajafna hef-
ir mikill þáttur þessarar starfsemi verið
bundinn skólunum, eða öðrum samkynja
stofnunum. Og það merkir aftur ekki ann-
að en það, að þjóðfjelagið sjálft telur æski-
legt eða nauðsynlegt að halda logandi ljós-
inu á sameiginlegu altari menningar sinn-
ar. Og sagan segir líka, að þverrandi virð-
ing fyrir viðhaldi þess altaris, dregur á
eftir sjer þverrandi virðingu fyrir menn-
ingunni sjálfri; hrun þess er oft hrun
hennar.
En þeir hafa þó verið til, eins og yfir-
litið hjer á undan sýnir líka, sem talið
hafa það fávitsku eða einsdæmi, að svo fá-
menn þjóð og fátæk væri að streitast við
að halda uppi svo veglegu og dýru altari
menningar sinnar, sem háskóli væri, og
mundi hann ekki geta verið nema svipur
hjá sjón við það, sem vera ætti og væri
annarsstaðar. En ef þetta er svo, þá er það
einnig fávitska og einsdæmi, að svo fá-
menn þjóð og fátæk geri tilraun til þess
að halda uppi menningunni sjálfri. Og
með sama rjetti mætti segja svo um
hverja smáþjóð gagnvart stórþjóðunum.
Mætti þá líka benda Dönum á það, að
það væri eiginlega vitleysa af þeim, að
vera að bisa og bjástra með sinn eigin há-
skóla, þegar þeir hefðu annan miklu stærri
og auðugri og veglegri skóla svo að segja
rjett við bæjardyrnar, sem sje í Berlín,
eða þá í Englandi, ef þeir ekki vildu hitt.
En hvort þetta þættu sannfærandi rök
fyrir afnámi danska háskólans, eða ein-
hverra deilda hans, það er annað mál.
Önnur ástæðan, sem hjer var tilfærð, er
miklu nær sanni — því auðvitað verður
íslenskur háskóli víst aldrei annað en svip-
ur hjá sjón móti mörgum háskólum stór-
þjóðanna. Og ekki við öðru að búast. Hann
á að vera ímynd íslenskrar menningar,
stórrar eða smárrar, og sniðinn eftir
henni og vexti hennar. Tal sumra manna
um stærð háskólans, stúdenta- og kenn-
arafjölda gæti annars gefið tilefni til
ýmsra athugana og samanburðar, enda er
þetta gömul ástæða. En af því henni hef-
ir líka verið svarað fyrir löngu, getur nægt
að tilfæra þann kafla þeirrar greinar, sem
að þessu lýtur (Sunnanfari 1891, bls. 32).
þar er gert ráð fyrir c. 70 stúdentum
fyrst í ísl. háskólanum, og segir síðan:
Nú kann að vera að mönnum þyki þetta
alllítið og ætli það einsdæmi, og munum
vjer því taka til samanburðar nokkra aðra
háskóla. Kristjaníuháskóli byrjar 1813
með 18 stúdenta, og jókst næsta ár um 39.
I Messína-háskóla á Ítalíu, er stofnaður
var 1838, voru 1841 alls 60 stúdentar. Á
háskólanum á Besancon á Frakklandi, sem
stofnaður er 1564, voru 1846 alls 40
stúdentar, og í Lyon (háskóli frá c. 1300)
voru sama ár alls 82 stúdentar, og á há-
skólanum í Rouen (Rúðuborg), sem stofn-
aður er árið 1800, voru hið sama ár 85
stúdentar. I Rostock, sem er einn af hin-
um fornu háskólabæjum í pýskalandi (há-
skóli frá 1419), voru 87 stúdentar að jafn-
aði á árunum 1846—51, 88 á árunum
1841—46, 95 á árunum 1831—41 og 98 á
árunum 1851—56. I Ziirich voru og
1841—42 alls 98 stúdentar. I amerískum
háskólum höfum vjer sjeð talda enn
færri. Eru síðan talin nokkur dæmi um
hlutföll milli tölu stúdenta og kennara. Má
þar t. d. minna á það, að háskólinn í Osló
byrjaði með 25 kennurum en 18 stúdent-
um.
Af þessu virðist því augljóst, að vilji
menn fara í samanburð við aðra í þessum
efnum, verður að leita röksemdanna gegn
íslenska háskólanum í öðru en smæðinni og
stúdentafæðinni.
-o-
Prentsmiðjan Acta.
V