Lögrétta

Útgáva

Lögrétta - 28.10.1924, Síða 3

Lögrétta - 28.10.1924, Síða 3
LOGRJKTTA 3 víkur rjómabúi í Flóa og Hróars- lækjar- og Rauðalækjarbúunum. Ostarnir voru taldir bestir frá Fljótshlíðar rjómabúi, frá Hofsár- búi undir Eyjafjöllum og Deildar- ár-búi í Mýrdal. Ennfremur var sjerstaklega getið edamerosts frá Hvanneyri. þá má einnig geta þess, að sýndur var þarna svo- nefndur „karamelluostur", þing- eyskur. Um ostana sagði dóm- nefndin annars svo í áliti sínu: „Ostamir voru flestir fallegir út- lits og sýndust vera vel gerðir, þó voru þeir í reyndinni all-misjafnir að lykt og bragði. Mun það að r.okkru stafa af því, að rjóminn er ekki nógu hreinn og bragðgóður, þegar hann kemur í rjómabúin, og af því verða áfimar beiskar og bragðslæmar. þá ber þess að gæta, að áfirnar sjeu ekki orðnar of gamlar, osturinn sje tekinn strax. Og síðast en ekki síst verður að leggja áherslu á, að geymsla ost- anna sje góð, og virðist þar vanta töluvert á“. Ákveðið var á sýning- unni að veita viðurkenningu þeim, sem hjer segir: Ragnh. Hallgríms- dóttur, Steinunni Ingimarsdóttur og Herborgu þórarinsd., öllum fyr- ir smjer, Margrjetu Júníusd. og Guðrúnu Jónsdóttur og Margrjetu Lafransdóttur, fyrir ostagerð, Kristjönu Jónatansdóttur fyrir ost og skyr og Guðm. Bjarnasyni, 'Túni, fyrir skyr. þó sýning þessi hafi verið frem- ur lítil, ætti hún þó að geta orðið nokkuð til þess að auka áhuga manna á innlendri ostagerð eink- anlega. því þar má sjálfsagt vinna miklu meira en gert er, eins og Sigurður búnaðarmálastjóri tók fram í ræðu sinni þegar sýningin hófst. það sjest líka, að árlega er varið hjer allmiklu fje til kaupa á erlendum ostum. Árið 1922 voru þannig flutt mn rúmlega 93 þús. kg. af ostum, sem kostuðu rúml. 170 þús. kr., en alls hafa frá því 1915 verið fluttir inn erlendir ost- ar fyrir nærfalt 450 þús. kr. Mest eða alt þetta ætti að mega fram- leiða í landinu sjálfu. En að sjálf- sögðu þarf þá að því að stefna, að innlenda varan geti orðið samkepn- ishæf við þá útlendu, bæði að verði og gæðum. En það hvoru- tveggja hefir skort, það lítið sem að þessu hefir verið unnið hingað til. þó bera ýmsar tegundirnar á þessari sýningu þess vott, að víða er nú þegar vel að þessu unnið, þó misjöfn hafi sýnishornin verið, eins og fyr segir, og jafnvel sum fengið þann vitnisburð, að þau væru bæði „útlitsljót og bragð- vond“. En kaupendur sumir hjer í bænum t. d., sem viljað hafa frem- ur kaupa innlenda osta en erlenda, liafa stundum kvartað um það, að þær tegundir, sem hjer væru hafð- ar á boðstólum, væru útlitsljótar, og einkum illa geymdar og dýrar. Munu það þó vera útsölustaðimir bitr, sem valda þá óþarflegri verð- hækkun, eftir því að dæma hvern- ; ig verðið var tilgreint á sýning- ! unni. En þar er verðið frá framleið endunum að jafnaði kr. 2,00—3,50 ! pr. kg., flestar tegundir kringum 1 2 kr., en gráðaostur, sem allmikið er selt af, um 6 kr. kg. En fyrir þeirri grein hefir Jón Guðmunds- son mikið beitt sjer. En með aukinni reynslu fram- leiðendanna og vaxandi vilja al- | mennings á því, að nota þessa inn- ! lendu vöru, ætti að mega bæta úr þeim annmörkum, sem enn eru á þessu, og ætti þá ostagerðin að geta verið hjer sæmileg fram- leiðslugrein, enda bendir það besta á þessari sýningu í þá átt, og er það því þakkarvert, að hún skyldi haldin. Og væntanlega líða ekki mörg ár uns önnur verður haldin, ennþá f jölbreyttari og betri. ---o--- Frá Grænlandí. Bestu fiskimið heimsins. Nokkur norsk fiskiskip hafa 1 j sumar verið á fiski fyrir vestan Grænland, á hinum miklu neðan- : j sjávargrunnum, er þar liggja fyr- ir utan á straumamótum Golf- straumsins og kalda straumsins. | Skipin hafa öll komið heim drekk- j hlaðin af þorski og saltaðri lúðu og ( sagt þarna vera fiskiauðugri mió j en nokkursstaðar annarsstaðar í ! heimi. öll fyltu þau sig á svip- ! j stundu. þó að langt væri að sækja I | á miðin austan úr Noregi og vest- ! ■ ur fyrir Grænland, segja þeir, er j ; gert hafa út, að góður hagnaður | | hafi verið á útgerðinni. STRANDWOLD & DÚASON SfMNEFNI: DÚAS0N. ADMIRALGADE 21. KÖBENHAVN K. Selja í umboðssölu allar íslenskar afurðir fyrir hæsta yerð. Útvega allar erlendar yörur. Nú eru þessar fregnir um fiski- auðlegð við Grænland orðnar stað- festar af fiskirannsóknarskipi norsku stjórnarinnar „Michaei Sars“. Skipið hefir verið við fiski- rannsóknir fyrir vestan Grænland í sumar, og er fyrsta fiskirann- sóknarskip, er þar hefir verið, af því Grænlandsstjórnin hefir beiðst undan slíku. Er skipið kom til Færeyja, sím- aði það heim til norsku stjórnar- innar um árangurinn. Frjettaritari danska blaðsins „Nationaltidende“ hefir haft tal af foringja skipsins, Dr. Hjort, í þórshöfn, og hefir eft- ir honum, að þeir hafi fundið „æventyrlige mængder Torsk“ á grunnunum fyrir vestan Græn- land, er staðfesti sögu fiskiskip- anna. Skipið segir hann að hafi gert vísindarannsóknir, er miklu skifti fyrir vísindi og atvinnulíf. Meðal annars hafði skipið fundið mikið af síldarátu í sjónum. Allan tímann, sem skipið var við Grænland, kom það aldrei inn á höfn, en varð að sækja kol og aðr- ar nauðsynjar yfir á Baffinsland. Málmleit. Á Grænlandi hefir svo að segja aldrei verið leitað að málmum líkt og í öðrum löndum. Einokunin hef- ir lagst á móti því og alloft tekisc að drepa alt slíkt niður, er upp á því hefir verið fitjað, og það sem menn hafa fundið, hafa þeir rek- ist á af tilviljun. Á Grænlandi hefir að vísu fund- ist allmikið af málmum, kopar, kryolit, asbest, grafit, silfur, rnarmari, kol, járn, gull o. m. fl.. og sumar af þessum tegundum í svo stórum stíl,að þær eru margra miljóna auðsuppspretta. Stórfeng- legustu námurnar, járnið og kol- in, er bannað að nota. Upp úr einni námunni, er með mestn harðneskju var sótt og loksins lán- aðist að fá að vinna, kemur málm- ur fyrir margar miljónir króna ár- lega, enda þótt þar vinni ekki nema 50—70 manns í 4—6 mánuðí úr árinu. Síðan jafnaðarmannastjórnin kom til valda í Danmörku, hafa þeir, er opin augu hafa haft fyrii málmauði Grænlands, fengið meiri áheyrn. Eftir að L. Koch kom heim úr leiðangri sínum norðan um Græn- land, hafði danska blaðið National- tidende samtal við hann, þar sem hann ljet mikið yfir málmauði þeim, er Grænland hljóti að hafa að geyma. Að ekki hefðu fundist íleiri málmar á Grænlandi og að ekki væru gerðar útþangað málm- i leitir, stafaði af því, að ekki væri i til neitt jarðfrceðiskort yfir landið i En er hin jarðfræðislegu fyrir- | brigði á Grænlandi einhverntíma i yrðu kortlögð, mundu þar finnast i óhemjumikið af málmum. Hið sama hefir sjerfræðingurinn Bög- gel látið í ljósi, eða rjettara áagt talið víst. Nú flytja blöðin fregnir um að vísindarannsóknanefnd Grænlands hafi búist til að taka upp þennan þátt rannsókna á Grænlandi, og jafnaðrmannastjórnin heitið nógu fje til rannsóknanna, sem vitan- lega er ætlað að margborga sig. Að eins fundur lítillar námu getur hæglega endurgoldið alt undír- búningsstarfið er þarf til þess að hægt sje að hefja á Grænlandi vís- indalega málmleit í stórum stíl. Blaðið Nationaltidende hefir nú aftur fyrir skömmu haft tal af L. Koch, er lætur vel yfir þessum nýj- ungum og telur engum efa bund ið, að Grænland sje mjög málm- auðugt land. N. Bækur Fræðafjelagsins, sem frá er sagt hjer í blaðinu, fást í Bóka- verslun þorst. Gíslasonar. Stjórnarbót Guðmundar Finnbogasonar. Guðm. Finnbogason: Stjóm- arbót. Rvík 1924. Ársæll Áma- son. Engum manni er Dr. Guðmund- ur líkur! Hann hefir nú skrifað 11 arka bók um draum sinn, en að vísu er hún um endurbætur á stjórnarfari allra þjóða, svo ekki verður annað sag-t, en að viðfangs- efnið sje mikið og merkilegt, þó tildrög bókarinnar sjeu lítill og óljós draumur. En er þá ekki bók þessi draum- órakend og lítið á henni að græða ? I þessari spurningu er fljótsvarað á þann veg, að svo er ekki. Bókin er skýr og skemtileg og flytur svo ; mörg eftirtektarverð nýmæh, að ; allir geta eitthvað af henni lært, ! jafnvel þó þeir litu mikið öðruvísi á málin en höfundurimi. Einn af fyrstu köflum bókarinn- ar heitir „Ógöngur“. þar er rætt I um hversu þingræðis- og flokka- ; stjórnin hafi gefist illa í öllum lönd I um, og það svo að til vandræða ! horfi. Allur síðari hluti bókarinn- 1 ar lýtur svo að því mikla máli, ; hversu úr þessu megi bæta. Flyt- ur höf. þar ýms frumleg og eftir- tektarverð nýmæli. Um þingræðis- ógöngurnar hafa margir ritað, en undarlega fáir reynt að benda á leiðir út úr þeim. það er eins og öllum fallist hendur í því efni. það á því hver maður þakkir skilið, sem reynir með góðum rökum að leysa þennan Gordíonshnút. Jeg býst við að flestir geti ver- ið sammála Dr. G. F. um ógöng- urnar og skal jeg því ekki fara frekar út í lýsingu hans á þeim. Jeg skal aðeins taka það fram, að mörgum myndi bregða í brún, ef þeir vissu hve þungan dóm þing- ræðið fær hjá öllum fjölda viturra manna. Má nefna sem dæmi, að fyr ir nokkrum árum var þetta mál rætt á fundi frakkneskra heim- spekinga og voru þar margir af bestu mönnum Frakka saman komnir. Enginn tók svari þingræð- isins, allir báru því herfilega sög- una, sögðu það bæði „ópraktiskt" og siðspillandi. — 1 Englandi er svipað hljóð í strokknum. Lord hverju fjárhagslega bundið — og síðast, ef til kemur og með þarf, möguleikar fyr- ir einhverjum nýmyndunum. þetta er að- eins bláber beinagrind, sem þarf margvís- legra skýringa. En til þess að gera þær skýringar sem mest sundurliðaðar og glöggar í sem stytstu máli, kýs jeg að lýsa fyrst skipulagi þjóðíræðadeildarinnar út af fyrir sig, eins og jeg hugsa mjer það, síðan skýra það nokkuð og segja frá fyrir- myndum, sem til kynnu að vera, nýmynd- um, sem ætlast væri til o. s. frv., og loks athuga sjerstaklega möguleikana fyrir framkvæmd málsins. þjóðfræðadeildin á að vera stofnun, sem í senn hefir með höndum vísindaleg rann- sóknarstörf í íslenskum fræðum (bók- mentafræðum, sagnfræðum, málfræðum, náttúrufræðum og hagfræðum), fræðslu- starfsemi (í svipaða átt og fyrirlestrar heimspekisdeildar nú) og prófastarfsemi í þeim greinum, sem ákveðið er, að próf geti verið til í (nú meistarapróf í íslenskum fræðum í heimspekisdeild). þjóðfræðadeildinni er þannig skift, að þar verður fengist við íslensk fræði í fimm aðalflokkum. Er það þó að sjálfsögðu aðeins skifting til hægðarauka í yfirliti, og að sumu leyti þó yfirborðsskifting, því flokkarnir vefast víða hver inn í annan. „Praktiskt" sjeð gerir þetta þó deildina hvorki viðameiri nje dýrari, þó umsvifa- mikið geti sýnst á pappírnum. En höfuðgreinir þjóðfræðanna yrðu þessar: I. Bókvísi. II. Náttúrufræði. III. þjóðhagsfræði. IV. þjóðminjafræði. V. Listmentir. En verkefni þessara höfuðgreina yrðu aðallega: I. Til bókvísi telst: - - - “---: - í í. v. v - a. bókmentasaga og bókmentafræði, b. málsaga og málfræði, c. menningarsaga, alm. saga (og sögu- f ræði). II. Til náttúrufræða teljast þær rann- sóknir og þau ritstörf, sem nú eru fram- framkvæmd samvinnu- og eftirlitslaust á víð og dreif, að meira eða minna leyti fyr- ir ríkisstyrk, og samkynja störf, sem á eftir kynnu að koma, og ennfremur sú starfsemi, eða upphaf að starfsemi, sem háskólanum er nú þegar ætluð, að nafninu til, en danski háskólinn hafði áður, og framkvæmd er af einstaklingum utan skól- ans (s. s. almanaks-útreikningar og rit- un). Á þennan hátt kæmi hjer til greina: a. landfræði (og staðfræði), b. jarðfræði, c. grasafræði og gróðurfræði, d. fiskifræði og sjófræði, e. stærðfræði og stjörnufræði (að nokkru leyti). III. Til þjóðhagsfræða teljast þær grein- ir, sem snerta rannsókn og ritun um hag- fræðileg efni íslensk (og sögu þeirra, sbr. I. c.) og atvinnulíf og efnahag, í svipuðu formi og þjóðmegunarfræði er annars rek- in, sem háskólagrein, nema einskorðað er hjer við íslensk viðfangsefni (og erlend aðeins að því leyti, sem þau eru talin snerta þau innlendu). Á þennan hátt kæmu hjer til greina ýms atriði, er heyra undir: a. alm. hagfræði (og talfræði), b. verslunar- og viðskiftafræði, c. stjórnfræði, d. heilbrigðismál, e. búmál, f. útvegsmál. IV. Til þjóðminjafræða telst það, sem nú er varið til rannsókna og ritunar um ísl. fornminjar og aðrar þjóðminjar, og er þessi flokkur nátengdur I, einkum I c., og oft einnig I a. og b., sem hjálparvísindi þessara greina, en er annars talin sjálf- stæð vísindagrein, og hefir þegar komið upp hjer á þann hátt, og jafnframt verið tengt þessu ýmislegt annað skylt. V. Til listmenta teljast hjer hverskonar innlendar listiðkanir, og kemur þar til greina: a. skáldskaparlist, b. hljómlist, c. myndlist. þannig hefir þá í stuttu máli verið rak- in uppistaða þeirrar íslensku þjóðfræða- deildar, sem hjer er gert ráð fyrir. þarf því að skýra nánar einstaka þætti hennar. í bókvísi má segja, að nú þegar sjeu iðkaðar að einhverju leyti allar þær grein- ar hennar, sem hjer er gert ráð fyrir. Hjer er því í rauninni aðeins um það að ræða, að koma á þessar iðkanir betra og hagfeldara skipulagi en nú er. En það verður aftur til þess, að fá má sama eða betri árangur með minni kostnaði, og þá annaðhvort alveg spara nokkurt fje, eða nota það til aukn- ingar iðkununum frá því sem nú er. Starfs- kraftar þessa hluta deildarinnar og hjálp- argögn eiga að vera: 1. Isl.kennarar núver. heimspekisdeildar 2. Landsbókasafnið og starfslið þess 3. þjóðskjalasafnið og starfslið þess 4. Nokkrir einstaklingar aðrir, sem svipuð mál hafa með höndum fyrir þjóðfjelagið. Um þetta þarf ekki að fara nema fáum orðum. það liggur í augum uppi, að þeir starfskraftar, sem gert er ráð fyrir, að í núverandi heimspekisdeild fáist við íslensk fræði, flyttust yfir í hina nýju þjóðfræðar deild. Hugmyndin um samvinnu landsbóka- og þjóðskjalasafns um þessi fræði er held- ur ekki ókunn. Hún kemur frá Halldóri prófessor Hermannssyni 1922 (í grein í Lögrjettu um embættafækkanir). þar er þó aðeins gert ráð fyrir því, að bóka- og skjalaverðir skuli vera kennarar í sagn- fræðum við heimspekisdeildina (fyrir aukaþóknun), en afnema skufjí staðinn 1 eða jafnvel 2 embætti þar. Sjálfsagt hefði mátt framkvæma þetta. En þó hefðu starfskraftarnir eftir sem áður verið litlir, og hætt við, að þetta hefði ekki orðið til langrar frambúðar. þar að auki er hjá H. H. gert ráð fyrir þrem sjálfstæðum stofn- unum eftir sem áður. Hjer, í þjóðfræða- deildinni, er aftur á móti gert ráð fyrir fullkominni samvinnu og samruna allra þessara stofnana í einu og sömu deildina með sameiginlegum starfsmönnum. Og þetta er mjög sanngjarnt og samkvæmt eðli allra stofnananna. Söfnin eru í eðli sínu ekki annað en hjálparstofnanir fyrir þær rannsóknir, sem deildin á að fram- kvæma. þetta sjest líka bersýnilega á því, að það er oft talið hamla viðgangi heim- spekisdeildarinnar einna mest, að hún eigi engin söfn. Afleiðing þessa er sú, að stefnt er að því, að koma upp sjerstöku bókasafni fyrir deildina, við hlið Lands- bókasafnsins. það tekur langan tíma og kostar mikið fje. Er þá ekki sönnu nær, að deildin fái að nota það safn, sem þeg- ar er til, og í upphafi átti einmitt að miða í sömu áttina og deildin, s. s. að eflingu bókvísi í landinu ? Breytingin á Lands- bókasafninu þyrfti í rauninni engin að vera, sem nokkur sjerstök áhrif hefði, eða rýrði gildi þess eða virðingu. Breytingin yrði í því einu fólgin, að safnið teldist eft- irleiðist ekki í sama flokki bókasafna og áður — það yrði einskonar háskólabók- hlaða í stað ríkisbókasafns. þar að auki mundi þetta skipulag geta haft í för með sjer sparnað á mannafla og fjárafla, án þess að slaka á kröfum um vinnu, eins og seinna verður vikið að nánar. því í stað 10—11 manna nú mætti komast af með 6—8 t. d., og þó vera sæmilega í lagt, þó æskilegast sje auðvitað, að mennirnir geti verið sem flestir, ef það eru nýtir menn.

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.