Lögrétta


Lögrétta - 04.03.1925, Page 2

Lögrétta - 04.03.1925, Page 2
2 LÖGRJETTA Se 6eitm. Ljúfi Guð þig lofum vjer lútum, játum, viðurkennum. Faðir alda einum þjer ástarfórn til dýrðar brennum. Hátt þjer syngur helgiljóð heimur vor og englaþjóð. Helgur, helgur hljómar þjer Himnadrottinn vegu alda, hæstur Guð þjer heiður ber, kimnar allir lof þjer gjalda. Helgur, syngja Serafar, sælir tigna Kerúbar. Spámenn þakka haldin heit. Himnafaðir, lof þjer kjósa postular, hin prúða sveit. Píslarvottar sigri hrósa. Heimi lyftir hátign þín helg í ljóma kirkjan skín. Lof þjer flytur heimsins her Himnaguð og nafn þitt prísar. Kristnin gjörvöll þakkar þjer þráða fylgd, er heim oss vísar. -— Jesú Krist þinn sanna son: Sigur lífsins, þjóða von. Lofum Drottins dýrðarráð! Drottinn lofast, klukkur hringj Hjörtu fyllast himinnáð, Helgum Anda lofgjörð syngja. Dýrð sje Guði í himna höll heilög þrenning lofast öll. Jesús Kristur lífsins ljós lausnargjafi heimsins þjóða. Guð af Guði. Heilagt hrós himnasyní kristnir ljóða. Himnaríki opnar oss ástar-náð, þinn lausnar kross. Jesús Kristur öllum oss arm í nauð til hjálpar rjettir. Drottinn vor þinn kvala kross kvöl og dauða af oss Ijettir. Heiminn lýstur hrun og bál, himinn gistir mannsins sál. Veit oss Kristur æðri yl, ástarþel til Guðs og manna. Lyft oss hærra ljóssins til, leyf oss bót og iðrun sanna. Lít í mildi lýðinn þinn, leið oss upp í himininn. Kranka hófu krossins völd kristins lof svo al.drei brysti. Daga, nætur, ár og öld eilíf þökk sje Jesú Kristi. .. Væg oss Drottinn, vak oss hjá, veit oss þína dýrð að sjá. Stefán frá Hvítadal. Brjeí úr Piiieyjarsjjsli. 5. jan. 1925. þegar jeg skrifaði þjer síðast, mintist jeg lítið á Kaupfjelag þingeyinga og er þó margt hægt um það að segja umhugsunarvert og fleira enn hjer verður gert. Saga K. þ. er um leið meginsaga þessa hjeraðs um 40 ára skeið. Og þar sem það er elsta kaupfje- lag landsins, er eðlilegt, að hjer hafi verið hugsaðar fleiri hugsan- ir um kaupfjelagsmál og meiri reynsla fengist um þau, enn ann- arstaðar hjer á landi. Sú skoðun, sem Björn Kristjánsson virðist álíta fundna upp af Jónasi frá Hriflu — að kaupfjelagsskapur- inn mundi geta útrýmt og ætti að útrýma hinni venjulegu kaup- mensku — er meira enn 30 ára gömul hjer í þingeyjarsýslu; og samábyrgðin, sem svo mikið hefir verið deilt um, litlu yngri. Yfir- leitt eru flestar þær hugsanir um kaupfjelagsmál, sem fram hafa komið* opinberlega á seinni árum, gamlir kunningjar hjer norður frá, sem búnir eru að sýna rjett- hverfu sína og ranghverfu meirá, eða að minsta kosti lengur, hjer enn annarstaðar á láhdinu. Hver er svo árangurinn af þessu 40 ára starfi? þannig er líklegt að einhverjir kunni að spyrja. Enn raunar er ekki auð- velt að svara því, því enginn get- ur sagt hvernig hjer hefði verið umhorfs, ef K. þ. hefði aldrei ver- ið til. Ei\n víst er það, að hjer hafa or'ðið breytingar og margar til bóta. Húsakynni hafa batnað og búsmunir ýmsir verið innleidd- ir, sem áður þektust ekki, og er vafalaust að betri verslunarskil- yrði eiga mikinn þátt í því. Jarðabætur hafa og aukist tölu- vert og einkum vírgirðingar, sem að talsverðu leyti má rekja til sömu róta, þ. e. bættra verslunar- skilyrða. Og á sauðfjárrækt hafa orðið miklar umbætur, einkum á ásetningi og fóðrun, og á K. þ. mikinn þátt í því, þó fremur sje það óbeinlínis að vísu. því meiri, sem verslun varð með sauðfje og sauðfjárafurðir og því meira, sem fram kom af skýrslum um það efni, því ljósara varð öllum al- menningi af eigin raun og saman- burði, hver nauðsyn á því er, að tryggja bústofninn og fara vel með hann. Mun nú almennast að ætla hverri kind að minsta kosti Vg meira fóður enn áður var. Á hinn bóginn hefir aðbúð nautpen- ings staðið nokkuð í stað, enda var áður kominn á hærra stig. Fullyrða má að efnahagur al- mennings hafi farið síbatnandi á verslunarsvæði K. þ. frá upphafi þess, og einkum ftá því um 1890, og til ársloka 1919. þá í árslokin átti K. þ. inni hjá innlendum og Smásöluverd má ekki vera hærra á eftirtöldum tóbakstegundum, en hér segir: IE^ey3^tó~b>aJk:: Golden Bell frá J. Gruno .... Feinr. Shag — sama .... Louisiana frá C. W. Obel . . . Moss Rose — sama . . . Islandsk Flag frá Chr. Augustinus Engelsk Flag — sama Dills Best (Vjj & V) frá United States Co. Central Unien x/2' — sama Utan Reykjavíkur má verðið vera þvi hærra, sem nemur flutn- ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2°/0. Ziandsverslnn íslands. . 18.70 pr. 1 kg. 16.40 — 1 — 16.70 — 1 — 15.80 — 1 — 16.40 — 1 — 16.70 — 1 — 13.80 — " 1 lbs. 10.05 — 1 — sem nemur flutn- útlendum viðskiftamönnum rúm- ar 600 þús. króna og í fyrirliggj- andi vörum nál. 200 þús. kr. virði, enn í fasteignum, verðbrjef- um og peningum um 100 þús. Skuldir fjelagsins við viðskiftaað- ila utan þess, voru þó aðeins rúm- ar 40 þús. kr. ; eignir þannig um- fram skuldir um (960--40) 920 þús. króna. Enn í árslok 1922 eru skuldirnar út á við orðnar um 500 þús. kr. Innstæður utanfjel. eru þá tæpar 100 pús., útlendar vörur fyrirliggjandi og óverðreikn aðar innlendar vörur um 233 þús. kr. virði, verðbrjef, peningar í sjóði og fasteignir (virtar) um 168 þús., þ. e. eiginr (160+233 +168=501 þús.) sem næst því á móti skuldum. Eignalækkun fjel. á þessu 3ja ára skeiði, er því um 920 þús. króna, og raunar meiri, því virðing fasteigna er tiltölulega hærri síðasta árið enn hið fyrsta. Á hinn bóginn munu bú bænda hafa staðið nokkuð í stað þenna tíma, yfirleitt. Árið 1923 breytt- ist heildarhagurinn lítið. En síð- astliðið ár ætla jeg að skuldir hafi minkað töluvert, enn búin gengið saman, og er vandsjeð hvert til bóta er. Á yfirlitinu hjer að framan má glögglega sjá hversu heildarhag- ur K. þ. hefir versnað í seinni tíð. Enn raunar er það ekki hið versta af því, sem í Ijós hefir komið, heldur hitt, að jafnframt því að versna yfirleitt, hefir efna- hagurinn ójafnast stórkostlega, sem gagnstætt er hugsjón kaup- fjelagsskaparms og fyrirætlun. Innstæður hafa haldist við, vax- ið og myndast af nýju á sumum stöðum, en skuldir hlaðast á hinn bóginn á skuldir ofan, svo að þær hanga nú eins og þrumuský, bæði yfir höfðum þeirra, sem í skuld- unum eru og þeirra samábyrgð- armanna. í rauninni er þetta mjög eðlilegt. ísl. búskapur gefur ekki mikið í aðra hönd. Að því leyti, sem einstaka mönnum hefir tek- ist að auðgast á honum í liðinni tíð, hefir það venjulega orðið vegna þess, að þeim hefir tekist að ná undir sig bestu jörðunum og nauðsynlegum vinnukrafti, hvorutveggja fyrir tiltölulega lít- ið endurgjald. Nútíðarbóndinn þarf að vera alt í einu: iðjumað- ur, forsjáll og sparsamur, ef hann á að bjargast þolanlega. Hann þarf að forðast öll kaup, sem honum eru ekki beinlínis nauð- synieg og í samræmi við það þarf bændaverslun að vera. Enn á hinn bóginn kemur fljótt í ljós, að slík verslun þarf, eins og hver önnur, að hafa allmikla umsetningu til að bera sig, þarf sjálfs sín vegna að verða sem mest og verður þannig í mótsetningu við aðgæslu nauðsyn einstaklingsins. Sam- kepni kaupfjelaganna við kaup- menn, vinnur og beint að því að auka þessa mótsetningu, og eink- um bar á því hjer þegar stríðs- gróðinn var sem mestur og alt virtist leika í lyndi. þá þótti sjálf- sagt hjer, og líklega víðar, þar, sem eins stóð á, að hafa til sem flest af því, sem þeir höfðu á boð- stólum, svo að sem minst þyrfti til þeirra að sækja, og hefir það vafalaust átt talsverðan þátt í þeim ofvexti verslunarinnar, sem miklu olli um fjárhagshrunið. þegar nú alt leggst á eitt annars- vegar: verslunaróhöpp svo sem verðfall á innlendum vörum, ófor- sjálni í kaupum og búskap yfir- leitt og síðan sá vaxtaþungi, sem á skuldasúpu hleðst, enn hinsveg- ar er ’forsjálni, sparnaður og inn- stæður frá fyrri tíma, sem draga vexti, þá er skiljanlegt að bllið stækkar æ meira og meira og um leið hættan á því, að skuldamenn- irnir gefist upp og lendi á hinum. þegar svona standa sakir, leiðir af samábyrgðinni: í fyrsta lagi, að hún bindur fje fyrir þeim, sem betur mega. I öðru lagi, að hún vekur hjá þeim ótta um tap, sem dregur úr safnhvötinni. Og í þriðja lagi sljóvgast sjálfsábyrgð- artilfinningin, þar sem annarsveg- ar er þung skuldabyrði, en hins- vegar auðveldur vegur til að velta henni á aðra. Að það geti orðið til falls, dylja flestir fyrir sjer í lengstu lög, eða gera sjer vonir um að ekki verði. þetta síðast- talda. er aðalhættan við samá- byrgðina. Flún er í sjálfu sjer góð og nauðsynleg í einni eða ann- ari mynd. Enn henni þarf að vera samfara rjett sjálfsábyrgðartil- finning og almenn, ef vel á að fara. En sjálfsábyrgðartilfinn- ingin er á lágu stigi hjá mörgum og þarf einatt aðhald og árekstra til að þrííast. þetta aðhald á í hverjii kaupfjelagi að koma frá stjórn þess, reglum og venjum. Enn alt aðhald er óvinsælt og í fjelagi með lýðstjórnar fyrirkomu lagi, þarf stjórnin á vinsældum að halda’og er því í þeirri hættu, að kjósa heldur að láta eitt og annað slarkast á hina sameigin- legu ábyrgð, enn að gangast fyr- ir nauðsynlegri tamningu sjálfs- ábyrgðarhvatarinnar. Tamningin þarf því einkum að koma frá reglum og venjum. það er þetta, sem Björn Kristjánsson hefir fyr- ir augum, þegar hann vill að öll kaup fari fram fyrir borgun um leið og kaupin eru gerð. þetta er gott ráð til að temja sjálfsá- byrgðarhvötina, þar sem við á. Enn það á illa við okkar land- búnaðarhætti, þar sem megin af- urðanna kemur ekki fram til sölu fyr enn seint á ári. Úr því væri hægt að bæta með öflugum pen- ingaverslunum. Enn til þess mundi þurfa töluvert meiri seðla- veltu, enn nú er í landinu — og sumum þykir þó nóg — og slíkt fyrirkomulag yrði líka vafstur- samt og dýrt, einkum þar, sem strjálbygt er. þó er líkast að í þessa átt verði að stefna, ef duga skal, þ. e. að aðgreina sem mest vöruverslun og peningaverslun og lána sem minst öðruvísi enn gegn sjerstökum tryggingum. Nothæfi samábyrgðarinnar er einkum út a við; inn á við ætti ekki að nota hana öðruvísi enn sem einskonar bakábyrgð og þrautalendingu. Enda er tilætlun kaupfjelaganna cg viðleitni, að leysa hana sem fyrst og mest af hólmi með safn- fje, er bæði sje tryggingarfje og veltufje. þetta er líka mjög gott ráð, enn ekki að sama skapi auð- velt að framkvæma. Margur góð- ur kaupfjelagsmaður hefir sett sjer það mark, að eiga í árslok innstæðu til vörukaupa næsta ár, að talsverðu, og helst öllu leyti. þetta hefir sumum tekist, þó eng- in sjerstök aðstöðuhagræði hafi haft, og sanna slíkir menn að mikið má ef vel vill og eru mátt- arstólpar í hverju kaupfjelagi. Svipað mark þarf hver kaupfje- lagsheild að hafa. Og vegna þeirra einstaklinga, sem ekki geta náð því og til að verjast áföllum yf- irleitt, eru stofnaðir tryggingar- og veltufjársjóðir, bæði í sam- eignar- og sjereignarformi. Sjer- eignarsjóðirnir eru betur til þess fallnir að efla sjálfsábyrgðarhvöt- ina. Enn sameignar fyrirkomu- lagið er fastari tryggingargrund- Lesbók Lögrjettu XI. Skeitaiír í utiisui ------ Niðurl. VI. Sjónleikar og söngur. Af nýtísku skemtunum langar mig til að minnast nánar á æfðan söng og sjónleika. Svo sem áðuf er áminst, var sungið í gamla daga, bæði heima og í veislum. En það var yfirleitt óæfður söngur, þar sem hver söng með sínu nefi. En þrátt fyrir það var söngurinn oft góður, það sem hann náði: Mest voru það sálma- lög er sungin voru í mínu ung- dæmi. Litlu síðar komu kvæðalög- in til sögunnar. Einstaka menn lærðu söng og orgelspil, og sumir þeirra æfðu söngflokk til að syngja í kirkjunni. — Af æfð- um söngflokkum til sveita, er sungu „fyrir fólkið“ og mjer er kunnugt um, er „karlakórw Skagfirðinga, nafnkunnastur, og sá er getið hefir sjer, jafnvel bestan, orðstír. f þeim flokki eru ágætir söngmenn, enda hafa þeir veitt mörgum ánægjustund með söngnum. Söngur þeirra er yfir- leytt ein sú besta skemtun, er fólk í sveitum getur átt kost á. Bræðurnir í Borgarfirði með Bjarna Bjarnason bónda á Skán- ey í fararbroddi, er einnig ágætur söngflokkur. þeir hafa oft sung- ið á samkomum og mótum, og getið sjer góðan orðstír. f Nauteyrarhreppi í Norður- ísafjarðarsýslu er 12 manna — karla og kvenna — söngflokkur. Veitir honum forstöðu Sigurður þórðarson frá Laugabóli, maður mjög „musikalskur". Enda er flokkur hans æfður og syngur ljómandi vel. Auk þessa eru í Dalasýslu 3 sóngflokkar, í Saurbænum, Mið- dölum og Laxárdal. í Steingríms- firði í Strandasýslu er æfður flokkur. Sömuleiðis einir 2—3 í Húnavatnssýslum o. s. frv. En það gerir sig ekki sjálft að halda uppi söngflokk í strjál- bygðum sveitum og æfa hann. það kostar þá sem taka þátt í söngnum, mikið ómak og erfiði. Ef nokkuð væri að athuga um þessa söngflokka, þá kynni það helst að vera þetta, að hitt fólkið hætti að syngja. En það má ekki eiga sjer stað. þar sem sönglist dvín, er dauð- ans ríki. Um sjónleixana get jeg verið fáorður. Ekki af því, að þeir sjeu ómerkilegur þáttur í skemtunum sveitamanna, heldur hitt, að þeir eru orðnir kunnir í öllum sýslum landsins, og eru vinsæl skemtun. Sjónleik sá jeg fyrst leikinn í sveit um 1890. Síðan hafa þeir breiðst út, einkum síðan um alda- mót. þeir eru tíðast leiknir í sambandi við aðrar skemtanir, svo sem söng og dans. Enda eru það oftast „smástykki“ sem leikin eru, bæði innlend og útlend. Sum- ir ráðast þó að hinum stóru leik- ritum. Skuggasveinn hefir verið leikinn til sveita, svo og Nýárs- nóttn, Galdra-Loftur, Tengda- mamma, Æfintýri á gönguför o. s. frv.. — En skiljanlega er leik- lístinni víða ábótavant, „langt upp í sveit“. Sumir leikendurnir hafa aldrei sjeð leikið og tilsögnin er oft ófullkomin. Er því hin mesta furða, hvað sumum «tekst þarna að sýna góðan leik. Veturinn 1921—22 sá jeg Skuggasvein leikinn austur í þykkvabæ. Leiktjöld voru engin, og allur útbúnaður fátæklegur og af skornum skamti. En sumum leikendunum fórst leikurinn vel. Jeg hefi ekki oft sjeð Skugga- svein betur leikinn. Sumstaðar er leikið í tvennu lagi, annarsvegar unglingur innan við fermingu, og hinsvegar fullorðið fólk. Ungling- unum tekst oft vel með sín hlut- verk. Og jeg skemti mjer ekki minna við að horfa á þá en hina eldri. Annars eru þessir sjónleikar saklaus og góð skemtun, en þeir sem taka þátt í þeim ættu að reyna að vanda leik sinn sem best. VII. Niðurlag. Iljer hefir nú verið minst nokk- uð á skemtanirnar í sveitunum fyrrum og nú. Verður ekki annað sagt, en að þar kenni margra grasa. Skemtanirnar eru að jafn- aði fábreyttar og ódýrar. I fjöl- bygðum sveitum eru oft 2—4 skemtanir yfir veturinn. En þar sem strjálbygt er og erfitt að sækja mannfundi, reyna menn að komast af með eina eða tvær. Fullorðna fólkið sumt og nokk- urir bændur kvarta stundum yfir skemtanafíkn unga fólksins og hafa jafnvel horn í síðu skemt- ananna. Segja sem satt er, að þær taki oft upp mikinn tíma, og vegna þeirra verði margt að sitja á hakanum, sem nauðsynlegra sje en þær. Stundum rekur jafnvel svo langt, að allir sem vetlingi valda, fara að heiman ef skemtun er í boði. Verða þá börn og gamal- menni að annast um skepnur, fara í fjós o. s. frv. eða þá, að

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.