Lögrétta - 06.05.1925, Qupperneq 4
4
LÖGRJETTA
slík svik kæmist upp nægur til að
varna þeim frá að hafa þau um
hönd. Annars þarf ekki að vera að
fjölyrða neitt um slíkt, því það er
vitanlegt að verksmiðjumar selja
einkasölunni sömu vöru og öðrum,
enda hafa einkasölunni engar
kvartanir borist frá viðskifta-
mönnum hjerlendis um svik í tó-
bakinu. pá gæti verið að þeir, sem
halda fram að tóbakið sje svikið
ættu við þær nýjar tóbakstegund-
ir, sem einkasalan hefir flutt inn,
en eigi voru fluttar inn áður. Um
þær tegundir er þó óhætt að full-
yrða, að þær hafa reynst ágætlega
og nægir þar að nefna „Elephant“
vindlingana sem dæmi. það er
hinsvegar kunnugt að talsvert af
því tóbaki, sem kaupmenn áttu í
birgðum í ársbyrjun 1922, var
ekki merkilegra en það, að það
hefði aldrei átt inn í landið að
flytjast, t. d. Ameríkuruslið frá
stríðsárunum og sumir þýsku
vindlingamir. Jeg vil hjer benda
á, að einkasala hlýtur að vanda
meira gæði hinnar innfluttu vöru
en kaupmenn. þeir hugsa einung-
is um hvað selst best. Einkasalan
hefir hlutfallslega minni hagnað
af að selja vondu vöruna þar sem
hún er ódýrari, en álagning einka-
sölunnar er miðuð við hundraðs-
hluta (25—75%). Annars ræður
eftirspurn nokkru hjer um.
í sambandi við hinn mikla veltu
fjársparnað, af einkasölu, sem að
framan greinir, má benda á hve
mikils virði er traust það, sem
landinu vex út á við af því, að all-
ar greiðslur fyrir tóbak eru nú
tryggar og fara fram á rjettum
tíma, í stað þess að tóbaks versl-
unarhúsin erlendu urðu áður
einna helst fyrir vanskilum og
prettum af hálfu íslenskra kaup-
sýslumanna. Er ekki óalgengt að
hin erlendu firmu láti í ljósi
ánægju sína við einkasöluna yfir
tryggari viðskiftum en áður.
það er mjer og öðrum, sem
trúa því, að einkasala á ýmsum
aðalvörutegundum sje farsælla
fyrirkomulag, en skipulagsleysið,
sem nú ríkir, óblandið gleðiefni
hve vel tóbaks- og steinolíueinka-
sölurnar hafa gefist. Sú reynsla,
sem fengin er af þeim og lands-
verslun undanfarinna ára yfirleitt
mun líka vafalaust greiða götu
víðtækari skipulagningar á versl-
uninni. En þá verða aðeins nægi-
lega margir landsmenn að líta á
verslunarmálin frá þjóðfjelagsins
sjónarmiði.
Að lokum vildi jeg mega minn-
ast á eitt merkilegt atriði í af-
námsfrumvarpinu. 2. gr. þess
hljóðar þannig: „Merkja skal um-
búðir allra tóbakstegunda, hverju
nafni sem nefnast, um leið og
gerð er grein fyrir tollinum, með
álímdum miðum er Stjórnarráð-
ið lætur tollheimtumönnum í tje
og á er letrað „tollur greiddur“.“
þannig á þá nýja tollheimtan að
fara fram. Jeg fæ nú ekki betur
sjeð en að þetta fyrirkomulag á
tollheimtunni verði nær ófram-
kvæmanlegt. Hvei'n smápakka og
smábita tóbaks á að merkja. —
Dæmi um merkingu einnar tóbaks
tegundarinnar, vindlinga, nægir
til að sýna hversu ilt slíkt fyrir-
komulag yrði í framkvæmdinni.
Allir vindlingar, sem flytjast hing
að til lands eru í þannig umbúð-
um: Yst er ramger járnbentur
trjekassi, þar næst blýlóðað blikk-
hylki og innan undir þessum um-
búðum er smápökkunum (10 stk.
pk.) pakkað saman (venjulega 50
pk.) í pappahylki, sem pappírsum-
búðir eru svo vandlega límdar ut-
an um. þar sem nú tolleftirlitið
skal skv. framangreindri grein
frv. merkja hvern smápakka,
sjest best hvílík óskapavinna
merkingin verður þegar þess er
gætt, að síðastliðið ár var flutt
inn um 9 milj. stk. vindlingar, eða
900 þús. pakkar. þetta er þó að-
cins ein tegund tóbaksins. Hvorki
tollheimtumennimir nje innflytj-
endurnir verða öfundsverðir af
því starfi. Kostnaðurinn við slíka
tollheimtu hlýtur að verða svo
mikill að vart mun ofætlað, að
drjúgur hluti tollhækkunarinnar
muni ganga í innheimtukostnað.
Talið er nú fullvíst orðið um
afnám einkasölunnar að þessu
sinni. Efri deild muni þar engu
um breyta gerðum neðri deildar.
það er ágætt að kostirnir við hið
nýja fyrirkomulag sjáist, en jeg
er þess fullviss, að einkasala á
tóbaki verður sett á stofn aftur
innan fárra ára og er þá' viðbúið
að þjóðin óski jafnframt að reyna
það fyrirkomulag um fleiri vöru-
tegundir.
Betra skipulag er kjörorð nýja
tímans. Sigurður Jónasson.
Kappreidar.
A annan í hvítasunnu, mánudaginn 1. júní n. k. efnir hestamanna-
félagið Eákur til kappreiða á Skeiðvellinum við Elliðaárnar.
Verðlaun verða kr. 200 — 100 —-50 — fyrir hvorutveggja skeið
og stökk og auk þess 15 kr. handa fljótasta hestinum í hverjum flokki
á stökki. Lámarkshraði til I. verðl. á skeiði er 25 sek. á 250 metrurn
og lámarkshraði til I. verðl. á stökki er 24 sek. á 300 metrum. Enginn
skeiðhestur fær verðlaun, sem lengur er að renna sprettfærið en 27 sek.
Géra skal aðvart um hesta þá, sem reyna skal, Daníel Daníels-
syni. dyraverði í stjórnarráðinu eigi síðar en flmtudaginn 28. maí á
hádegi.
Þeir hestar, sem keppa eiga, skulu vera á Hkeiðvellinum föst.u-
daginn 29. maí kl. 6 síðdegis.
Fjelagið annast um sölu á reiðhestum kappreiðardaginn ef óskað
verður en tilkynna verður Daníel Daníelssyná viku áður.
Stjórnin
o----
Þingtíðindi.
Bændur!
Við leyfum okkur að beina athygli yðar, að hinum afar hagkvæmu
kjörum sem við getum boðið yður á allskonar vatnsleiðslu-
tækjum, svo sem: Galv. pípum, dæluin, vatnshrútum, krönum o.
s. frv. — Vörurnar sendast gegn póstkröfu hvert á land sem er. Not-
færið yður 18 ára reynslu okkar og þekkingu um fyrirkomulag og
uppsetningu á þessum tækjum.
Leitið upplýsinga til okkar um alt er þér þurfíð vitneskju um í
þessu efni. og við munum svara fyrirspurnum yðar um hæl.
Virðingarfyllst
Helgi IVEagnússon & Co
Fjárlögin hafa nú verið af-
greidd frá ed. og send aftur til
nd. með allmiklum breytingum
og er nú tekjuhallinn orðinn alls
um 370 þús. kr.
önnur mál, sem helst hefir ver-
ið rætt um eru í ed. um innheimtu
gjalda af erlendum skipum. Var
þar allmikið um það deilt hvort
renna skyldi í ríkissjóð eða til
sýslumannanna gjald það sem erl.
skip greiða er skjöl þeirra eru
skoðuð hjer í landi í fyrsta sinn.
Hefir það verið 1 kr. af smálest
hverri fyrir dönsk skip og 50
au. fyrir önnur skip. þótti fjár-
málaráðh. ósanngjarnt að sýslu-
menn hefðu einir þetta gjald,
einkum þar sem það kæmi mjög
misjafnlega niður, sumir hefðu af
þessu stórtekjur, aðrir engar.
Vildi hann láta greiða þeim í inn-
heimtulaun framvegis ákveðinn
hundraðshluta, þó ekki meira en
25%. Málið er óútkláð. Einnig
hefir verið deilt allmikið um geng-
isskráningu. Frv. P. Ott. um laxa-
og silungaklak hefir verið vísað
til stjórnarinnar. Till. Tr. þ. og
P. Ott. um bann gegn áfengisaug-
lýsingum hefir verið felt frá 3.
umr. Frv. stjórnarinnar um stofn-
un docentsemb. í ísl. tungu hefir
verið afgr. sem lög, samþ. í nd.
með 15 atkv. Frv. Jóh. Jós. um
að skylda unglinga til sundnáms
hefir verið afgreitt sem lög. Sam-
þykt hefir einnig verið þingsálykt-
unartill. frá Ág. Flyg. og þór.
Jónssyni um það að veita ekki
embætti þau og sýslanir, sem
losna og hún telur unt að komast
af án fyr en Alþ. hefir gefist kost-
ur á að segja álit sitt um afnám
þeiri’a eða sameining við önnur
embætti.
Jak M., Tr. þórh., Ben. Sv. og
Jón Bald. flytja till. um það að
sameinað þing kjósi 5 manna
nefnd til að íhuga og gera till. um
seðlaútgáfu ríkisins og undirbúa
endurskoðun á bankalöggjöf lands
ins. Kostnaður við nefndarstörfin
og aðstoð við þau greiðist úr
ríkissjóði. — þorl. Jónsson, Ben.
Sv., Árni J. og Halld. Stef. flytja
till. um að atvinnumálaráðh. skipi
5 manna nefnd til að gera till.
um skipulag strandferðanna og
skal nefndin skipuð eftir tillögum
Eimskipafjel., Búnaðar- og Fiski-
fjel., Samb. samvinnufjel og Versl
unarráðsins. Till. hennar skulu
lagðar fyrir næsta þing. — Bj.
J. frá Vogi og Tr. þórh. flytja
till. um það, að til sauðfjárböðun-
ar megi nota Coopers-baðlyf. I nd.
hefir verið samþ. frv. um sjer-
leyfi til þess að reka útvarp um
næstu 5—7 ár. Hafi einkaleyfis-
fjelagið ekki minna en 100 þús.
kr. stofnfje og sje helmingur boð-
inn út innanlands. Útvarpsstöðin
verði í Rvík (alt að 1,5 kw.) og
dragi um land alt. Hver sem mót-
tökutæki hefir sje skyldur að
greiða til stöðvarinnar stofngjald
og árgjald, eftir gjaldskrá er
stjórnarráðið samþykki. Heitið á
þessari starfsemi (broadcasting)
hefir verið nokkuð á reiki. Lögrj.
hefir skrifað nokkuð um málið
áður og notað orðið víðboð, sem I
fyrst kom á kreik, þingið hefir
tekið upp orðið útvarp, en einn
þm., Á. Á., hefir notað orðið
hljóðvarp og er það að ýmsu leyti
heppilegast, þó til sje að vísu áð-
ur í annari merkingu (í málfr.).
Allsherjamefnd nd. hefir mælt
með frv. um sáttasemjara í vinnu-
deilum, með nokkrum breyting-
um, en ætlar ekki að afgreiða frv.
um gerðardóm. Leitað hafði ver-
ið álits Alþýðusambandsins og
Fj elags botnvörpuskipaeigenda.
Voru hvorutveggi með sáttasemj-
ara, en Botnv.fjel. vildi þar að
auki gerðardóm. — Frv. Bj. frá
Vogi um mannanöfn er komið til
ed. Samkv. því má hver maður
aðeins heita einu íslensku nafni
eða tveimur og kenna sig við föð-
ur, móður eða kjörföður og rita
nafn sitt og kenningarnafn með
sama hætti alla æfi. Enginn má
taka sjer ættarnafn hjer eftir, en
þeir sem nú hafa þau, og þeirra
börn mega bera þau eftir sem áð-
ur. — Á. Á. og Sv. Ól. flytja till.
um það að stjómin leggi ekki
niður einkasölu á steinolíu án
þess að hafa leitað um málið
álits alþingis.
---o---
Martha Berg.
I Kaupmannahöfn andaðist í
vetur merk kona norsk, sem
lengi dvaldi á íslandi, átti hjer
marga vini og bar hlýjan hug til
íslands.
Blöðin eru vön að geta þess,
er andast góðir vinir lands vors
erlendis, en mjer hefir verið bent
á að andlát þessarar konu hefir
ekki verið minst, og því vildi jeg
biðja „Lögrjettu“ fyrir þessar
fáu línur.
Kona þessi var frú Martha
Berg, ekkja Lauritz Bergs, hval-
veiðamanns, er lengi var búsettur
hjer á landi og rak hjer hval-
veiðar.
Fluttu þau hjón fyrst til Dýra-
fjarðar árið 1891 og voru búsett
þar til 1903, en fluttu eftir það til
Mjóafjarðar og dvöldu þar enn
nokkur ár. ólust því börn þeirra
að allmiklu leyti upp hjer á landi.
Yngsta dóttir þeirra var fædd í
Dýrafirði, og tvær dætur þeirra
voru giftar þar, önnur þeirra,
Soffía að nafni, norskum manni,
er Jonathan Jonssen heitir, sonar-
sonarsonur sr. Gísla Jónssonar,
er var hálfbróðir Jóns Espolins og
sonur Jóns sýlumanns Jakobs-
sonar á Espihóli.
þótti mikil hjeraðsbót á margan
hátt að dvöl þeirra hvalveiða-
mannanna Bergs og Ellefsens á
Vesturlandi og voru heimili þeirra
orðlögð fyrir höfðinglega rausn,
gestrisni og greiðasemi við hvern
sem var. Áttu þau Berg og kona
hans marga vini og hjelt frú
Martha þeirri vináttu til dauða-
dags með brjefaskriftum við vini
sína. Frú Martha hjet að ættar-
nafni Bull og mun hafa verið í ætt
við fiðlusnillinginn fræga. Hún
var göfug kona, síglöð, fríð sýn-
um, gáfuð og listfeng. Lauritz
Berg andaðist fyrir 18 árum, 16.
febr. 1907, en kona hans ljest
hinn 17. jan. síðastl.; hafði nokkr-
um dögum áður fengið heilablóð-
fa.ll, degi fyr en hún ætlaði að
leggja á stað til Randers á Jót-
landi til yngstu dóttur sinnar, sem
þar er gipt og búsett. Minnast
hennar margir vinir hennar hjer
á landi og senda samúðarkveðju
börnum hennar og móður, sem
enn er á lífi, komin yfir nírætt.
Kr. D.
----o----
Kappreiðar hinar fyrstu í sum-
ar verða haldnar á annan í Hvíta-
sunnu. Sú nýbreytni hefir nú ver-
ið tekin upp, að Hestamannafje-
lagið annast um sölu á reiðhest-
um kappreiðardaginn og er rjett
að vekja athygli hestaeigenda á
þessu, ef þeir vildu sinna því.
Sbr. annars auglýsingu hjer í
blaðinu.
Innflutningshöftin verða af-
numin frá 1. júlí n. k. En til þess
tíma verða engin innflutnings-
leyfi veitt.
Afli á öllu landinu hefir verið
frá áramótum til 1. maí rúml. 121
1/2 þús. skp. 1 fyrra var aflinn á
sama tíma um 101 þús. skp.
Grettir Algarsson heitir ungur
maður, sem útlend blöð skrifa nú
allmikið um að sje að leggja upp
í flugferð til Norðurpólsins og
ætli að reyna að verða á undan
Amundsen. Hann fer á skipi sem
heitir ísland og er því stjórnað
af manni, sem var í suðurpólsför
Schackletons. Hann kvað vera
Kanadamaður og íslenskur í báð-
ar ættir, en annars er ókunnugt
um hann og ferð hans.
Gestir hjer í bænum hafa verið
óvenju margir um þessar mundir.
Meðal þeirra eru sr. Guttormur í
Stöð, sr. Helgi á Grenjaðarstöð-
um, sr. Ól. Stephensen, Ólafur
læknir á Brekku, kaupmennirnir
Rolf Johansen og Jónas Gíslason
frá Fáskrúðfirði, Sig. Vilhjálms-
son kaupfjelagsstjóri Seyðisf. o.fl.
Hefnrðu keypt
Arsrit Fra'ðiif'jelimsins
oy safn þess 11111 ísland
og íslending’al
Brukuð ísleusk
frímerki kaupi jeg háu verði
Hjarni Guðmundsson
Túni. _ Hrg.
Árnessýslu.
þingræður. Fyrir nokkru kom í
Lögrj. dálítil grein um ræðu-
menskuna á þingi og skrá um
ræðufjöldann. Var þar á það bent,
að yfirleitt væri of mikið og of
illa talað á þingi og kastað til
ræðugerðarinnar höndunum, svo
að varla væri að minsta kosti til-
vinnandi að vera að prenta alt það
sem á þingi væri sagt. Hinsveg-
ar var líka á það bent, sem með
sanngirni má segja alþingisum-
ræðunum til afsökunar eða með-
mæla, því auðvitað er ekki til þess
ætlast a£ þingmenn sitji þegjandi
á bekkjum sínum eða að allar ræð-
ur sjeu eins og Demosþenes eða
Cicero hefðu haldið þær. Nú hafa
aðalmálgögn höfuðflokkanna hjer
nýlega líka farið að skrifa um
þetta sama efni og hefir víst
fundist svo sem nauðsyn bæri til
. þess að afsaka sína menn fyrir
vinnubrögðin og málæðið. Kennir
nú hvor höfuðflokkurinn hinum
um alt sem aflaga fer í þessum
efnum og gera upp reikningana
hvor á sína vísu. Skal hjer ekki
um það þráttað að sinni, því enn
er ekki unt að fá nákvæmt yfirlit
um ræðufjöldann á þessu þingi,
Og ræðufjöldinn einn heldur ekki
óyggjandi mælikvarði. En til
samanburðar við þá útreikninga,
sem nú hafa verið gerðir má setja
hjer samskonar yfirlit um ræð-
Urnar á síðasta þingi, sem Lögrj.
byrjaði að ræða um og hægt er
að fá fult yfirlit um. pá hjeldu
íhaldsmenn 1049 ræður, fram-
sóknarmenii 686, sjálfstæðismenn
402 og jafnaðarmaðurinn 114. En
ef ræður ráðherranna, sem em-
bættis síns vegna þurfa oft að
tala meira en aðrir, eru taldar frá
eru þær 390, eða 265 hjá íhalds-
flokknum, 77 hjá sjálfstæðisfl.
og 48 hjá framsóknarfl. Efalaust
er það að landinu hefði verið eins
vel borgið, þó einhverjar af þess-
um ræðum hefðu ekki verið haldn-
ar, eða að minsta kosti ekki
prentaðar.
Borgþór Jósefsson varð 65 ára
síðasta vetrardag og efndu þá
ýmsir vinir hans til samfagnaðar
og færðu honum gullúr að gjöf.
Hefir B. J. , auk þess sem hann
er bæjargjaldkeri, lengi tekið
margvíslegan þátt í ýmsu fjelags-
lífi hjer og verið hinn vinsælasti
maður.
þot'leifui' Guðmundsson frá Há-
eyri og fjórir fjelagar hans, sem
björguðu skipshöfninni af botn-
vörpungnum Viscount Allenby 13.
jan. s. 1. hafa verið sæmdir ensk-
um verðlaunapeningum úr silfri.
Mennirnir eru, auk þ., þeir
Guðmundur frá Riftúni, Runólfur
Ásmundsson og Guðm. Gottskálks
son frá þorlákshöfn og Sigurður
sonur þorl., 13 ára gamall.
Kvikmyndavjel hefir Bjarni
Bíóstjóri frá Galtafelli gefið Víf-
ilsstaðahælinu.
Verklýðssamband Norðurlands
hafa 3 verklýðsfjelög á Akureyri
og Siglufirði stofnað með sjer.
Danskur stúdentasöngflokkur
mun koma hingað í júlíbyrjun og
líkl. fara norður um land.
Útflutningur ísl. afurða í apríl
s. 1. nam samtals rúml. 3Vfc millj.
En það sem af er árinu hefir hann
alls numið 18350000 kr. Hæsti út-
flutningsliðurinn í þessum mán-
uði var verkaður fiskur, þá óverk-
aður fiskur, þá lýsi, síðan ull,
kjöt, dúnn 0. s. frv.
Prentsmiðjan Acta.