Lögrétta


Lögrétta - 18.08.1925, Qupperneq 2

Lögrétta - 18.08.1925, Qupperneq 2
2 LÖGRJETTA Smásíöluverd má ekki vera hærra á eftirtöldum tóbakstegundum, en hér segir: IE6ey-IkztóTosils:: Moss Rose frá Br. American Co. Kr. 8.05 pr, 1 lbs. Ocean Mixt. '■— sama — 9.50 — 1 — Richmond x/4 — sama — 12.10 — 1 — do. V, — sama — 12.65 — 1 — Glasgow V4 — sama — 14.95 — 1 — do. V 8 — sama — 15.55 — 1 — Waverley' x/4 — sama — 14.95 — 1 — Garrick >/4 — sama — 22.45 — 1 — Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur flutn- ingakostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2%. Iiandsverslun íslauds. Kristniboðsmálið. Margt — og misjafnt — hefir verið ritað í íslensk blöð um kristniboð, frá því snemma á dög- um Jóns heitins ólafssonar og til síðustu greina S. K. Pjeturs- sonar. Margar hafa mótbárurnar verið taldar, mörg hafa ámælin heyrst, venjulega órökstudd, en þó talin óhrekjandi. Svo víðtækt er kristniboðsstarf- ið nú orðið og svo fjölmennur hópur trúboðanna, að naumast mun nokkurum órjettmætt þykja þó einn þeirra taki til máls og reyni að bera hönd fyrir höfuð sjer í íslensku bláði. En taka vil jeg fram í upphafi þessa máls, að það er einlægur ásetningur minn að þrátta við engan; held- ur eru línur þessar til orðnar af löngun til að láta í ljós álit mitt á mikilvægu málefni, sem jeg held mjer sje eins vel kunnugt um og nokkrum öðrum, sem um það hafa ritað á vora tungu. Að svo mjög hefir borið á mót- spymu gegn kristniboðshreyfing- unni á voru landi, hlýtur fleirum en mjer að þykja skrýtið. 1 því máli höfum vjer altaf aðgerðar- lausir verið, og skörum, að því leyti, þann dag í dag, fram úr öllum þjóðum evangeliskrar kristni. Og mjer þætti fróðlegt, ef menn vildu færa ræk fyrir að aðgerðarleysið eigum við mót- spyrnunni að þakka. Mótspyman, ámælin, árásimar eru ávextir aðgerðaleysisins; en beisku ávextirnir hafa orðið mörgum til umhugsunar, svo óánægjan er nú orðin almenn yf- ir deyfð kirkjulífsins. Mun það reynast góður undirbúningur and- legrar vakningar. þjóðina er farið að þyrsta eftir vitjunartímum frá augliti drottins. Og þá þeg- ar vakningin kemur, munu and- ófsmenn fá nóg að gera, vilji þeir bera sólskinið út í trogum. Með vakning hefst kristifcoðs- hreyfingin, fyr ekki, af því að kristniboðsáhugi er fyrst og fremst undir afstöðu manna til Krists kominn. Án endurlífgunar trúarlífsins leggja menn ekki al- ment út í trúarlegt stórræði. Víðar hafa menn talað og rit- að gegn kristniboði en á íslandi. Einkum fyrir nokkrum áram, er helreið efnishyggjunnar fór yfir löndin; voru þá erlend rit og blöð full af árásum og ummælum merkra manna gegn kirkju og kristindómi yfirleitt. Nú eru margir komnir heim úr ferðalag- inu því; og slíkar raddir láta fremur lítið á sjer bera, þó sigurför kristindómsins hafi verið augljósari um heim allan síðustu árn en nokkra sinni áður. Að tiltólu við fólksfjölda hafa Svíar og Norðmenn mjög látið til sín taka í kristniboðsmálinu, máske allra þjóða mest; með þeim hafa andmælin og árásirnar þverrað svo furðulega að fáfróð- ustu mönnum hlýtur að vera um það kunnugt. — Hver getur tafið sigurför Krists ? Hvernig á að byggja fyrir lífsþroska guðsrík- isins þeim, sem af einberri umhyggju fyrir velferð kirkju og trúarlífs heima fyrir hafa unnið gegn kristniboðshreyfingunni, hefi jeg áður skrifað nokkrar línur í Bjarma. Andófsmönnum flestum ber þó nokkuð annað til. þeir eru land- námsmenn nýrra andastefna og heill þjóðar (og máske kirkju?) telja þeir unðir því komið að rutt verði úr vegi öllu, sem landnámi þeirra er til fyrirstöðu, hverju nafni sem nefnist: kver eða sálmabók, biblía eða húspostilla eða til dæmis kristniboðs- fjelagsskapur. Tillit vilja þeir þó taka til þess sem öðram er heil- agt, og því getur guð biblíunnai vel haldið áfram að vera guð Eng- la og Saxa; en ofstækistrúarmenn bannfæra þeir alla, sem ekki vilja láta sjer lynda að Búdda sje guð Indverja og Konfúcíus lærifaðir Kínverj a. Oss telja þeir sæla, sem tilbiðjum Krist, og forfeður vora engu síður, er tilbáðu Óðinn. Gerum nú ráð fyrir að hver sje sæll í sinni trú; en þá verða menn að vera hlýðnir, hinni himnesku vitrun og lifa trúnni samkvæmt. Óhlýðni er afneitun! Hvað er þá verið að ásaka oss fyrir? Mjer er ómögulegt að óhlýðnast hinsta boði ^Crists án þess að afneita honum og rjettmæti alheimsveld- iskröfu hans, án þess að syndga gegn því, sem jeg helgast veit: orði Krists og anda Krists. Höfum vjer annað til saka unn- ið en það, að vjer lifum trú vorri og sannfæring samkvæmt og helg- um líf vort því málefni, sem vjer helgast teljum og háleitast? öðr- um en kristniboðum má þó lík- lega ekki ætla þá „ósvífni“ að lofa eigi mönnum að trúa í friði hverju sem þeir vilja; og þá er órjett- látt annars að vænta 'en að menn breyti trú sinni samkvæmt, vjer jafnt og aðrir! Hváð höfum vjer til saka únn- ið? Að vjer boðum heiðingjunum fagnaðarerindið! Fyrir það ásaki menn Krist, sem gaf oss ótvíræða skipun um það, að fara út um allan heim og prjedika fagnaðar- boðskap hans öllum þjóðum. Fyr- ir það ásaki menn guð almáttug- an, sem sendi son sinn til jarðar til þess að byrja á þessu fyrirtæki, sem lærisveinar hans aldrei vilja hætta við! Oss hefir verinð brugðið um ósvífni. Trúarbrögð heiðingjanna eiga að vera fult eins góð og vor, eða jafnvel taka kristindóminum fram. það sýnir sig þó líklega miklu betur í lífi þjóðanna, en í skrifstofu rannsóknum speking- anna. Alment er ' viðurkent nú orðið, að fátt hafi róttækari áhrif á þjóðlífið en trúarbrögðin. Trúarbrögð heiðingjanna eiga að vera svo fullkomin að ósvífni sje við þeim að hreyfa. Mjer dettur í hug ofurlítill við- burður; hann átti sjer stað í stór- bæ einum norðarlega í Mið-Kína. þar sá jeg mann á torginu í ákafri deilu við fiskisalann; þeir þráttuðu um verðið á hálfdauðri skjaldböku. Auðvitað fjekk mað- urinn skjaldbökuna fyrir sæmi- lega hátt verð. En svo horfa nú Kínverjar flestir í skildinginn að mjer varð ekki um sel, því maður- inn fór rakleitt niður að ánni og fleygði skjaldbökunni út í vatn- ið. En ekki efast jeg um það, að sami maður hefði ekki gefið hungruðum beiningamanni græn- an eyri, þó hann lægi hálfdauður fyrir dyram hans. — þá eiga margir hundar áhrifum frá Búdda líf sitt að launa. 1 kínverskum bæjum eru allar götur fullar af hundum; því þá synd forðast flestir að lóga hundi. En láta þá farast úr kulda, hor og kláða, það taka fáir heiðnir Kínverjar sjer nærri. Ekki geta kunnugir deilt um hvernig aðbúð fátæklinga, sjúkl- inga og beiningamanna er'yHHeitt í Kína; þó hjer sje blandað saman þremur trúarbrögðum, geta menn ekki fundið annað eins volæði, nema þá í öðrum heiðnum lönd- um. — Aðrir þjóðlestir Kínverja skulu hjer ónefndir. Syndaregist- ur skrifa jeg nauðugur. Ósvífni telja sumir það að boða heiðingjunum kristna trú, ósvífni aðf hlýða hinsta boði Krists.ósvífni að rjetta hjálparhön'd miljónum manna, er þjást undir þrældóms- oki heiðinna trúarbragða, heið- innar hjátrúar, heiðinna siða og hugsunarháttar; þeim er ósvífni að boða þau trúarbrögð, er öll heilbrigð og sönn mannfjelags- þroskun grundvallast á! Hvað sem öðrum ásökunum líð- ur, ó s v í f n i r hafa aðrir vest- urálfumenn í Kína verið en kristni boðarnir. Er heiðruðum andstæðingum vorum ókunnugt um ósvífni Portú galla og Spánverja, er fyrstir Vesturálfumanna hófu verslun í Kína? Jeg geri ráð fyrir að yður sje vel kunnugt um ópíumstríð Englendinga og um landrán og sjerrjettindatöku ýmsra Evrópu- þjóða í Kína. En yður er máske miður kunnugt um vopnaverk- smiðjurnar, sem ötulir vesturlend ingar hafa komið hjer á fót; sam bandsland vort, Danmörk, hefir jafnvel lagt drjúgan skerf til slíkra fyrirtækja og þótt arðvæn verslun að selja Kínverjum morð- vjelar. Slíkt telja menn ef til vill ekki ósvífni. Og þá er það heldur engin ósvífni að áfengisgerðarmenn frá Ameríku og Evrópu hófu stór- framkvæmdir í Kína, er vínbann komst á heimafyrir. — þeir, sem bera svo mikla og einlæga virð- ingu fyrir trúarbrögðum Kín- verja, hefðu átt að styðja fram- takssemi þýskra iðnaðarmanna hjerna á árunum, er þeir fluttu út framúrskarandi falleg skurðgoð, auðvitað „Made in Germany“. það er á flestra vitorði, að gegn allri þessari óhæfu hafa kristni- boðar manna mest og best barist. Er til of mikils mælst að þjer lát- ið oss í friði, þótt þjer trúar yðar eða vantrúar vegna ekki viljið styrkja kristniboðsstarfið? En óátalin skyldi ekki ósvífni fjárglæframannanna vestlendsku og spilafíflanna í Tientsin, eða svívirðilegt framferði hórkarlanna í Honkong ogShanghai og bresku, amerísku og japönsku cocaine- og morphine-smyglaranna. Og mun nokkrum heiðvirðum manni þykja sómi að vindlinga flaumnum bretska og ameriska í Kína ? Hefir vindlinganautn orðið þjq,ðlöstur hjer á fáum árum. Gegn allri þessari óhæfu hefir kristniboðinn borist ötullegar en nokkur annar maður, og jafn- framt í orði og verki beint mönn- um inn á nýjar og' heillaríkar brautir. Hann hefir barist gegn hjátrú og hleypidómum, viður- stygð og löstum og allskonar eitr- uðum ávöxtum nýrrar og gamall- ar heiðni. þegar fjölmennasta þjóð heims- ins er betur komin til sögunnar en ennþá er raun á, þá fara vestur lendingar að upps'kera það,' sem þeir sáðu í Kína. Ef til vill mun þá fleirum fara að skiljast að í raun og veru var öflugt kristniboð eina meðalið við „gulu hættunni". Og til uppskerutímans* skyldi eng- inn hlakka, sem ókunnugt er um góða sæðið, sem þúsundir trúrra þjóna krists hafa sáð. Hefði ekki kristniboðinn bætt fyrir brot vor og evangelium Krists megnað að græða ólæknandi undir, hvar vær- um vjer þá staddir þegar að guli flaumurinn beinist vestur á bóg- inn. Annars held jeg að fleirum en mjer hljóti að þykja það harla ein- kennilegt að menn, sem alment er álitið að sjeu andlegrar stefnu og hugsjónastefnumenn, skuli ekki vera kristniboði hlyntir. Er það því máske að kenna að þeir ekkert þekkja til heiðinnar efnishyggju? Harðeltari efnishyggjumenn en Kínverjar finnast naumast undir sólunni. Höfum við þeim engin V. Hugo: VESALINGARNIR. á handlegg hans og mælti: „þjer ættuð að gefa mjer eitt- hvað, herra greifi“. Greifinn sneri sjer að honum og sagði stuttur í spuna: „Jeg hefi sjálfur fátæklinga, herra bisk- up“. — „Jæja, gefið þjer mjer þá“, sagði biskupinn. Einu sinni hjelt hann eftirfarandi predikun í dómkirkj- unni: Ástkæra bræður mínir og góðir vinir, í Frakklandi eru þrjár miljónir bændahúsa, þar sem ekki eru nema tveir gluggar og einar dyr, 1,817,000 þar sem er einn gluggi og einar dyr og 346,000 kofar, þar sem era einar dyr og enginn gluggi. þessu veldur það, að til er svonefnd- ur dyra- og gluggaskattur. Hugsið þjer yður nú þessar fátæku fjölskyldur, gamlar konur og lítil börn í þessum húsum, og hugsið þjer yður svo hvað verður af þeim, þeg- ar hitasótt og aðrir sjúkdómar ganga yfir. Já, guð hefir gefið mönnunum loftið, lögin selja þeim það. Jeg áfellist ekki lögin, en jeig lofa og þakka guði. Bændumir í Isere, í Var, og í báðum Alpaömtunum eiga ekki einu sinni hjól- börur; þeir verða að bera áburðinn út á bakinu; þeir hafa engin kerti, en nota biikaðar spýtur og snærisspotta vætta í tjöra til ljósa. þannig er ástandið í öllum hinum hlutan um af Dauphine. þeir baka brauðið til sex mánaða í senn og nota þurkaða kúamykju til þess að baka það við. Á vet- urna verða þeir að höggva það sundur með öxum og láta það liggja í bleyti í sólarhring', áður en það er ætt. Bræður mínir, verið miskunsamir! Sjáið hversu menn þjást um alt land!“ Hann var fæddur í Provence og honum hafði auðveld- lega tekist að læra allar mállýskur á Suðurfrakklandi. Bændurnir kunna vel við þetta og hafði það ekki lítið stuðlað að því að gera hann öllum ástfólginn. Hann var eins og heima hjá sjer í kofunum uppi á fjöllunum. Hann hafði lag á að segja það, sem andríkast var, á alþýðleg- asta máli. Að öðru leyti kom hann alveg eins fram við heldra fólkið og almúgann. Hann var aldrei fljótur á sjer að dæma, en reyndi altaf að átta sig vel á öllum tildraganda hvers máls. „Við skulum reyna að sjá, hvernig á yfirsjóninni stendur“, sagði hann.Játandi það,eins og hann sagði sjálfur brosandi, að hann væri fyrverandi syndari, hafði hann aldrei stranga siðfræðisprjedikun sjer að hlífiskildi. þegar hann sá alla menn hneykslast og áfellast eitthvað mikillega, sagði hann brosandi: „þetta virðist vera eitthvað, sem allir gera sig seka í. Sjáið hvað hræsnurunum er ant um að hylja sig!“ Sjerstaklega var hann vorkunnlátur kvénfólki og þeim fá- tæklingum, sem þjóðfjelagið leikur hart. „Karlmennirn- ir, feðurnir, eiginmennirnir, þeir sem sterkir eru, ríkir og þeir sem eitthvað mega sín, eru orsök synda eiginkvenn- anna, hjúanna, þeirra vanmáttugu, fátæku og fáfróðu“. Hann sagði líka: „Kennið þeim fáfróðu alt, sem þeir geta lært. það er mikil yfirsjón af þjóðfjelaginu að veita ekki ókeypis fræðslu, það ber ábyrgðina á því myrkri, sem það sjálft veldur. þegar sál er full af myrkri, syndgar hún. það er ekki syndarjnn, en sá, sem veldur myrkrinu, sem ábyrgðina ber“. Eins og sjá má, voru skoðanir hans nokk- uð einstæðar. Jeg held nærri því, að hann hafi numið þær af fagnaðarerindinu. Einu sinni heyrði hann í samkvæmi talað um mál, sem var fyrir rjettinum og átti bráðlega að koma fyrir dóm. Vesalings maður einn hafði falsað peninga, þegar öll önnur sund voru lokuð fyrir hann, af ást til konu og barnsins, sem hann átti með henni. þá var enn refsað fyrir peningafölsun með lífláti. Konan hafði verið tekin föst, þegar hún var að koma fyrsta peningnum út, sem maðurinn hafði búið til. Henni var haldið í fangelsi en menn höfðu engar sannanir nema gegn henni einni; hún ein gat ljóstað upp um elskhuga sinn og komið honum undir manna hendur, með því að segja frá glæpnum. Hún neitaði. Allra bragða var leitað, en hún neitaði stöðugt. En- þá datt opinbera ákærandanum nokkuð í hug. Hann sagði henni, að elskhugi hennar væri henni ótrúr, og hon- um tókst að sannfæra vésalings konuna um það, með nokkrum brjefsneplum sem hann hafði lag á að skýra fyrir henni á kænlegan hátt, að hún ætti elju, og að mað- urinn hefði svikið hana. Hún sagði þá til elskhuga síns, utan við sig af afbrýðissemi, játaði öllu og Ijet dómstóln- um allar sannanir í tje. Nú var úti um manninn. það átti að dæma hann skömmu síðai' í Aix og með honum þá er meðsekir voru. Allir voru hrifnir af kænsku ákærandans, sem hafði leitt sannleikann í ljós með því að vekja af- brýði konunnar. Biskupinn hlustaði þögull á söguna og spurði síðan: „Hvar á að dæma þennan mann og þessa konu?“ — „Við kviðdóminn". — „Gg hvar á að dæma opinfcæra ákærandann?“ mælti hann. Sorglegur viðburður gerðist í Digne. Maður var dæmdur ti] lífláts fyrir morð. það var gæfulaus vesaling- ur, sem ekki var alveg mentunarsnauður, þó að hann hefði aldrei fengið verulega uppfræðslu. Hann hafði feng- ist við sjónhverfingar á sölutorgum og hafði auk þess nokkurskonar opinbera skrifstofu. Bæjarmenn töluðu mikið um þetta mál. Daginn áður en átti að lífláta hann, veiktist fangelsispresturinn. En prest varð að fá til þess að vera hjá manninum dauðadæmda síðustu stundirnar. þá var farið til sóknarprestsjns, en hann neitaði, honum kom þetta ekkert við, hann var ekki skyldugur til þess að íast við slíka þrælavinnu og vildi ekkert skifta sjer af þessum loddara. „þar að auki er jeg veikur og þetta er annars ekki mitt verk“. Biskupnum var sagt frá þessu svari og mælti hann þá: „þetta er rjett hjá prestinum. þetta er ek'ki hans verk, heldur mitt“. Hann fór undireins til fangahússins og gekk inn í klefa „loddarans“, tók í hönd honum og talaði við hann. Hann dvaldi hjá honum allan daginn, gleymdi að eta og sofa fyrir því að biðja til guðs fyrir sál óbótamannsins. Hann var eins og faðir hans, bróðir og vinur hans, leiðbeindi, huggaði hann og hug- hreysti. Myriel einum var það að þakka, að þessi maður geklí ekki í dauðann með örvæntingu í hjarta sínu. Hon- um fanst dauðinn vera eins og hyldýpisgjá og var gagn- tekinn af skelfingu. Hann var ekki nógu mikill fáráðling- ur til þess að láta sjer standa á sama. Dauðadómurinn hafði fengið mjög mikið á hann og, ef svo mætti að orði komast, brotið niður hjer og hvar nokkuð af veggnum,

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.