Lögrétta


Lögrétta - 16.03.1926, Side 4

Lögrétta - 16.03.1926, Side 4
4 LÖGRJETTA firrukasti hefði varpað henni fram. — Jóni er það nýtt og óheyrt um kristin skáld (allra alda), að þau hafi kent Guð og fræði kirkju hans — til: elds- ljóss og ljóma. Frá þessu stafar þó heitið: „Geisli“ á kvæði Ein- ars Skúlasonar: „Göfugt ljós, boð- ar geisli — gunnöflgr miskunnar — ágætan býðk ítrum — Ólafi brag sólar“. — það er óþarft að kalla mörg vitni um þetta, því kennimenn kirkjunnar (ásamt skáldunum) hafa notað eldinn í ýmislega orðuðum líkingum, alt frá hjervistar dögum Krists, fram á daginn í dag. Og þessar upphaf- legu líkingar eru nú notaðar í daglegu máli, allra mælandi manna. Og þó mun örðugt að sannfæra Jón, því aldrei hafa eldar áhugans brunnið í Jóni, svo kunnugt sje. Og aldrei hefir Jón (svo kunnugt sje) fylst eldlegri andgift. þess, vegna hafa aldrei báleldar keruninga kirkjunnar náð að leika um Jón. Hann botnar ekki í þessum eldlegu hugtökum. Jóni virðist þau ekki ýkja smekk- leg“, það er alt og sumt. Hann kannast ekkert við þau. Aldrei virðist Jón hafa í kirkju komið. Jón virðist aldrei hafa hlustað á húslestur. Ekki virðist Jón heldur hafa heyrt sálm sunginn. Alveg eru Jóni ókunnar guðsorða-bók- mentir þjóðarinnar — og allra þjóða. Jón virðist eigá margt ólesið og vita furðu fátt! þetta er næsta athugasemd Jóns: „Hvað er: báleldur?" spjrr Jón — og sannast þar: að spyr sá er ekki veit —, því þannig svarar Jón sjálfum sjer: „Ekkert annað en tvö orð, sem þýða eitt og það sama, gerð að einu, í sama augnamiði — til að ríma. Ljóminn fer að fara af þessari línu“ segir blessaður Jón! En fullyrði Jóns eru röng. Hainn hefir verið að ikroppa í orðið, en það stendur uppi óskaddað. Jón er sem sje ekki einn til frásagna um hvað orðið: „báleld- ur“ þýði. Orðabók Sigfúsar Blön- dals segir orðið þýða: eld, sem bálar. þess vegna er það rangt hjá þeim mæta manni Jóni Bjömssyni að segja, að „báleld- ur“ þýði: bálbál eða eldeld. — En hitt er aldrei nema satt, að það er gaman að heyra Jón skýra orð. Hann er svo „flott“ og fljót- ur að því! Framh. Stefán frá Hvítadal. -----o---- Síys a sjo. 21 maður diuknar. það er nú talið víst, að vjel- báturinn Eir frá isafirði haíi far- ist sunnudagnn 7. þ. m. undan neyKj anesi og á honum 12 menn, ailir dugandi drengir á besta aidri: 1. Magnús Friðriksson, skip- stjóri, írá Isaíirói; kvæntur og lætur eitir sig konu og 5 böm. 2. Guðmundur Jóhannsson, stýri- maður, Búgandafirði, ókvæntur. 8. Valdemar Asgeirsson, vjelstjóri, Isaiirði, kvæntur. Lætur eítir sig konu og 4 börn. 5. Sigurður Bjarnason, Isafirði, kvæntur. Læt- ur eítir sig konu og 3 böra. 6. Bjarni Thorarensen, Isafirði, ókvæntur-. 7. Kristján Ásgeirs- &on, Boiungai’vík, kvæntur. Læt- ur eftir sig konu og 2 börn. 8. Steindór, bróðir Kristjáns, frá Svarthamri í Álftaf., ókvæntur. 9. þorsteinn þorkelsson, Bolung- arvík, ókvæntur. 10. Magnús Jóns- son, Súðavík, ókvæntur. 11. Ól- afur Valgeirsson úr Ámeshreppi í Strandas., ókvæntur. 12. Magnús Magnússon, úr Árneshreppi í Strandas., ókvæntur. Á mánudagsmorguninn 14. þ. m. varð annað slys í Grindavík álíka hörmulegt. þann morgun fóru fimm skip á sjó það- an. — Veður var gott en veltibrim. Svo slysalega tókst til, að einu skipinu barst á, um há- degi, í lendingu í Járngerðarstaða- vör. — Átta menn fórust, en annað skip var þar skamt á eftir og náði þremur mönnum, en einn þeirra dó á leið til lands. Hinir tveir hjeldu lífi. — þessir menn fórust: 1. Guðjón Magnússon, formað- ur, Baldurshaga, Grindavík, kvæntur, bamlaus, 32 ára. 2. Guð- brandur Jónsson, Nesi, Grindavík, tengdafaðir formannsins 69 (?) ára 3. Hallgrímur Benediktsson frá Kirkjubæjarklaustri, 22 ára, ókvæntur. 4. Guðmundur Sigurðs- son, frá Helli í Rangárvallasýslu, 33 ára, ókvæntur. 5. Lárus Jóns- son, Hraungerði í Grindavík, 21 árs, ókvæntur. 6. Stefán Halldór Eiríksson, frá Hólmavík, 25 ára, ókvæntur. 7. Sveinn Ingvarsson, Holti í Grindavík, 28 ára, kvænt- ur og átti 1 bam. 8. Guðmundur Guðmundssson úr Dalasýslu, 76 ára; kvæntur og átti 9 böm. 9. Erlendur Gíslason frá Vík í Grindavík, 18 ára. — þessir björg- uðust: Guðmundur Kristjánsson í Grindavík og Valdemar Stefáns- son frá Langstöðum í Flóa. -----o---- Húsbruni. 10 þ. m. kom upp eldur í húsinu nr. 12 við Aðal- stræði á ísafirði og brann nokkur hluti hússins, en menn björguð- ust og innan hússmunir að mestu. Eldurinn kom frá olíuvjel. Annan helming hússins á Edinborgar- verslun, en hinn frú Jóhanna 01- geirsson. þerney seld. Guðm. Jónsson skipstjóri á Skallagrími hefur nýlega keypt þerney af Gunnari Gunnarssyni kaupmanni. Mannalát. Nýlega er dáinn þor- valdur Arason póstafgreiðslumað- ur á Víðimýri í Skagafirði og bóndi þar um langt skeið, merk- ur maður og mörgum að góðu kunnur fyrir gestrisni og höfð- inglegar viðtökur, er ferðamenn bar þar að garði, en það var oft, með því að hann bjó við fjölfarna þjóðbraut. Hann var 75 ára gam- all, sonur Ara læknis Arasonar á Flugumýri, og er nú frk. Guðlaug Arason kenslukona ein eftir á lífi þeirra systkina. 12. þ. m. andaðist í Keflavík ; Einar Th. Hallgrímsson, fyrrum I konsúll og verslunarstjóri á Akur- J eyri og Seyðisfirði og síðar kaup- maður á Vopnafirði, faðir frú þorbjargar konu Olgeirs Frið- geirssonar kaupmanns í Keflavík, og Hallgríms ljósmyndara á Ak- ureyri. Einar var orðinn háaldr- aður. Hann hafði verið dugnaðar- maður, vel greindui', vænn maður og vinsæll. Hann andaðist hjá dóttur sinni og tengdasyni í Keflavík, en lík hans verður flutt til Akureyrar á Goðafossi 17. þ. m. og jarðsett þar. 6. þ. m. andaðist á heimili sínu hjer í bænum frú Ingveldur S. Thordersen, kona Helga Thorder- sen trjesmiðameistara, nær sext- uig að aldri, fædd 24. okt. 1866, góð kona og vel látin af öllum, sem henni kyntust. 11. þ. m. andaðist á sjúkrahús- j inu á Akureyri Einar Sigfússon i bóndi á Stokkahlöðum í Eyja- firði, greindur maður, sem margir kannast við af ritgerðum hans í Akureyrarblöðunum, bróðir Jó- hannesar Sigfússonar yfirkennara. þingfrjettir koma í næsta blaði. Innfluttar vörur í febrúar námu samkv. tilkynningu frá fjármála- ráðuneytinu, 2,126,697 kr. þar af til Reykjavíkur 1,077,087 kr. Steingrímur Matthíasson læknir á Akureyri er nýfarinn utan tii þess að sækja alþjóðafund skurð- lækna í Róm. lslandsbanki. Reikningur hans fyrir síðastl. ár er nú fullgerður. Ágóði bankans á árinu, þegar ekki er tekið tillit til gengistaps, hefur orðið kr. 1,406,465,41. En gengis- tap varð kr. 508,093,74, svo að hreinn ágóði er kr. 826,371,67. Kaupdeila stendur yfir hjer i bænum, hófst út af ósamkomu- lagi milli vinnuveitenda og Verka- kvennafjelagsins um kaupgjald, en síðan hefur Alþýðusambands- stjómin lýst yfir samúðarverk- falli, eftir samþykt á fundi verka- mannafjelagsins Dagsbrúnar. Slys. Nýlega fjell maður út og druknaði af togaranum Gulltoppi á höfninni í Hull, Tómas Sigurðs- son að nafni, frá Selá á Árskógs- strönd, ungur maður og efnilegur. Gengi er nú: Pnd. sterl. kr. 22, 15, dnsk. kr. 119,60, nrsk. kr. 99, 63, snsk. kr. 122,41, dollar kr. 4, 57V4, þýsk mörk kr. 108,66, franskir frankar au. 16,86. Landskjör á 3 þingmönnum fer fram 1. júlí í sumar, samkv. augl. í Lögb.bl. 1. þ. m. Disney Leith. 19. febrúar í vet- ur andaðist skotska skáldkonan Disney Leith, sem mörgum Is- lendingum er kunn frá ferðum hennar hjer um land og sumar- dvölum hjer í bænum um langt skeið. Hún las íslensku og hefur þýtt á ensku nokkur íslensk kvæði. Hún orti um Reykjavík og dáðist mikið að fegurðinni hjer. Síðast mun hún hafa verið hjer sumarið 1914, en brjefaskifti hafði hún við ýmsa hjer fram til hins síðasta. Nú var hún orðin há- öldruð og andaðist á eynni Wight. Quo vadis?, hin fræga skáld- saga eftir H. Sienkiewicz, hefur verið sýnd hjer á Nýja Bíó nú að undanfömu og aðsókn verið mik- il. — Islenka þýðingin á sögunní er nú uppseld. Ágúst H. Bjamason prófessor. Fyrirlestrar þeir um þjóðfjelags- skipulag, sem hann hefur nú flutt hjer öðm hvora að undanfömu í Kaupþingssalnum í Eimskipafje- lagshúsinu, hafa verið mjög vel sóttir og þótt bæði fróðlegir og skemtilegir. Á. H. B. á skilinn heiður og þökk fyrir það, hve vel hann heldur uppi, vetur eftir vet- ur, almennri fræðslustarfsemi fyr- ir Háskólann með fyxirlestrum sínum. — Nú flytur hann í Hafn- arfirði þrjá fyrirlestra um við- reisn íslendinga. Um bankamál flutti Bjöm Kristjánsson alþm. fyrirlestur í Verslunarmannafjelagi Reykja- víkur 12. þ. m. Var það fróðlegt erindi og snerist gegn áliti meiri hluta bankamálanefndar- innar. Vill ræðumaður stofna sjerstakan banka, sem fái seðla- útgáfurjettinn, en ekki láta veita Landsbankanum hann, og hefur minni hluti bankamálanefndar- innar á þingi, Ben. Sveinsson, tekið þá stefnu. Vínsmyglunarskipið þýska, sem getið var um í síðasta blaði, hef- ur nú verið gert upptækt ásamt farmi þess og hvoratveggja dæmt eign ríkissjóðs. Skipið heitir Sieg- fried og er gamall togari, lítill. Is- lendingurinn, sem var á skipinu og átti nokkuð af farminum, heitir Jón Jónsson og er hjeðan úr bæn- um, hefur áður verið bryti á Esju. Hann var dæmdur í tveggja mán- aða fangelsi og 3000 kr. sekt, þrír af þjóðverjunum, Schekat, Becher og Michelsen, voru dæmdir hver um sig í tveggja mánaða fangelsi og 2000 kr. sekt, — Máls- kostnað greiði þeir allir fjórir í sameiningu. Lausn frá prestskap hefur sjera Halldór Bjamarson í Presthólum nýlega fengið. Hann er nú kom- inn á áttræðisaldur og hefur ver- ið veikur um hríð. En þjónað hef- ur hann fram til þessa einu af erfiðustu prestaköllum landsins. Hann hefur verið fjörmaður, heilsuhraustur og lítt látið á sjá með aldrinum. Merkismaður hef- ur hann verið á margan hátt, dugnaðarmaður mesti og búmað- ur góður, ör á fje við vini sína og vandamenn og höfðingi heim að sækja. Hann er og vitur maður og vel að sjer, hefur t. d. kynst enskum bókmentum miklu meira en títt er um embættismenn hjer á landi. Málaþjark það, sem hann hefur stundum staðið í og mikið hefur verið um talað, er í raun og vera ékki vert þeirrar athygli, sem það hefur vakið. Upprani þess mun vera það, að hann hafi viljað halda fast á jarðeignum kirkjunnar og ekki láta hlut sinn fyrir neinum. Til Rússlands eru þeir nýlega farnir Björn Ólafsson kaupm. og Hendrik Ottósson lögfræðingur til þess að kynna sjer þar markaðs- horfur fyrir síld._______________ Prentsmiðjan Acta. Læknirinn var henni sammála. Hann gekk að rúmi Fan- tinu. „Lítið þjer á, þá get jeg boðið anganum litla góðan daginn, þegar hún vafcnar, og á nóttunni, þegar jeg get ekki sofið, get jeg hlustað á hana sofa. það hefir góð áhrif á mig, að hlusta á hana draga andann jafnt og kyr- látlega“. — „Rjettið þjer mjer hendina", sagði læknirinn. Hún rjetti honum hana og sagði hlæjandi:„Já, það er rjett þjer vitið ekki að mjer er batnað. Cosetta kemur á morg- un“. Lækmrinn varð forviða. Henni leið miklu betur. þyngslin vora minni, æðaslögin voru örari. það var eins og lífsaflið hefði alt í einu vaknað í þessari vesalings út- tauguðu konu. „Herra læknir“, mælti hún, „systir Sim- plicia hefir víst sagt yður, að borgarstjórinn hafi iarið að sækja tetrið mitt?“ Læknirinn áminti hana um að þegja og aðra að gæta þess að hún kæmist ekki í neina óþægilega geðshræring. Hann lagði svo fyrir að hún skyldi fá innsprautu af hreinu kínin og sefandi drykk, ef hitasóttin skyldi ágerast um nóttina. þegar hann var að fara, sagði hann við systur Simpliciu: „það gengur betur. Ef haoningj an vill haga svo til, að borgarstjórinn ikomi með bamið á morgun, þá — hver veit? Sóttbrigðin era oft furðuleg; það eru dæmi til þess áður að míkill fögn- uður hefir getað umnið bug á sjúkdómi. Líffærin era reyndar orðin mikið skemd, en til era þeir hlutir, sem við fáum ekki skilið. það er hugsanlegt, að við getum bjarg- að henni“. Kluíkkan var nærri því átta um kvöldið, þegar vagn- inn, sem við skildum við á veginum, rann inn um litla hliðið á garði Pósthótellsins í Arras. Maðurinn, sem vjer höfum fylgst með til þessarar stundar, fór úr vagninum, svaraði nokkuð úti á þekju áfjáðum spuraingum vinnu- fólksins, sendi hestinn, sem hann hafði leigt í Tinques, aftur og fór sjálfur með þann igráa í hesthús. Síðan fór hanm inn í knattborðsstofuna, sem var á neðsta gólfi, settist við borð og lagðist fram á olnbogana. Hann hafði verið fjórtán stundir á þeirri leið, er hann hjelt sig verða sex. Hann sýndi sjálfum sjer það rjettlæti að segja, að það hefði ekiki verið honum að kenma, en í raun og veru tók hann það ekki sárt. Veitingakonan kom inn. Viljið þjer fara að hátta eða viljið þjer fá kvöldverð?" Hann hristi höfuðið. „Vinnumaðurinn segir að hesturimn yðar sje mjög þreyttur". — „Getur hann ékki lagt af stað í fyrramálið?“ sagði hann. — „Nei, herra, hann verður að minsta kosti að hvíla sig í tvo daga“. — „Er póststofan hjerna í húsinu?“ spurði hamn. — „Já, herra“. Veitinga- konan vísaði honum inn í póststofuna. Hann spurðist fyrr um, hvort hann gæti farið til Montreuil-sur-Mer með póstvagninum sömu nótt. Sætið hjá ökumanninum var autt. Hann bað um það og borgaði fyrir. „Gætið nú þess &ð koma stundvíslega klukkan eitt, því að þá fer pcistur- inn“, sagði póstafgreiðslumaðurinn. þegar þessu var lokið, gekk hann út í bæinn. Hamn var ókunnugur í Arras, götumar vora dimm- ar, og hann gekk út í bláinn. En hann virtist hafa þrá- kelknislega einsett sjer, að spyrjast ekki til vegar. Hann fór yfir Crinchouána litlu og ikomst inn í völundarhús af mjóum götum, sem hann viltist í. Borgari með ljósker gekk fram hjá honum. Eftir að hafa hugsað sig nokkuð um, ákvað hann að snúa sjer til hans, en fyrst leit hann í allar áttir, eins og hann væri hræddur um, að einhver heyrði hvað hann spyrði um. „Viljið þjer gjöra svo vel ■og segja mjer hvar ráðhúsið er, herra“, mælti hann. — „þjer eruð víst ekki hjeðan úr bænum“, sagði maðurinn, sem kominn var á efri ár. „Jæja, komið þjer með mjer. jeg ætla einmitt í sömu átt, það er að segja, að amt- mannshúsinu, því að þeir eru að gera við ráðhúsið sem stendur. Rjettarfundir era fyrst um sinn haldnir í amt- mannshúsinu“. — „Er sakamálarjetturinn einnig haldinn þar? — „Já, sjáið þjer til, amtmannshúsið, sem nú er, var biskupssetur fyrir stjómarbyltinguna. Herra de Cai- zie, sem var biskup árið 1784, ljet reisa stóran sal. þar er rjetturinn haldinn. Ef að þjer ætlið að vera viðstadd- ur rjettarfund, þá er það nú í seinasta lagi. Fundunum er oftast lokið um klukkan sex“. þegar þeir komu út á torgið stóra, benti borgarinn honum samt sem áður á fjóra bjarta glugga í framanverðu stóru, dökkleitu húsi. „Nei, þjer komist nógu snemma, þjer erað svei mjer heppnir. Sjáið þjer gluggana fjóra þarna? þar er rjettur- inn haldinn, og afgreiðslu málanna er bersýnilega ekki lokið. það hefir dregist fyrir þeim, svo að þeir hafa orðið að hafa kvöldfund. Er mál á ferðinni, sem yður er eitt- hvað ant um? Er það sakamál? Ætlið þjer að bera vitni?“ — „Jeg kom ekki vegna neins rjettarmáls", svaraði hann; „jeig ætla einungis að tala við málfærslumann". — „þá er öðra máli að gegna“, sagði borgarinn. „Lítið þjer á, þarna er hliðið, herra minn, þar sem vörðurinn stendur. þjer þurfið einungis að ganga upp stigann stóra“. Hanni fór að ráðum borgarans, og nokkurum mínút- ura síðar var hann staddur í sal, innan um marga menn cg stóðu hópar af málfærslumönnum í embættisbúningi sínum á víð og dreif og töluðu í hálfum hljóðum. þessi stóri salur, sem var lýstur upp af einum einasta lampa, var einn af gömlu sölum biskupshallarinnar og var nú notaður sem biðsaiur. Vængjahurð, sem nú var læst, var á milli þessa sals og herbergisins stóra, er rjetturinn vai' í. það var svo dimt, að hann hikaði ekki við að yrða á fyrsta málfærslumanninn, sem varð á vegi hans. „Hvað eru þeir komnir langt, herra?“ spurði hann. — „því er lokið“. — „Lokið!“ þetta orð var mælt í þeim róm, að málfærslumaðurinn sneri sjer við. „Fyrirgefið þjer, herra“, mælti hann, „þjer eruð ef til vill ættingi sakbom- ings?“ — „Nei, jeg þekki engan hjer. Og ákærði var dæmdur?“ — „Já, það var ekki umt annað að gera“. — „I þrælkunarvinnu ?“ — ,.Já, æfilanga“. — „það hefir þá sannast hver þetta var?“ sagði hann svo lágt, að varla heyrðist. — „Hvað hver var?“ sagði málfærslumaðurinn. „Málið var ósköp einfalt. Hún hafði drepið ’bamið sitt, morðið var saniniað, en kviðdómurinn taldi það ekki hafa verið gjört með yfirlögðu ráði, og var hún því dæmd í æfilanga þrælkunarvinnu“. — „Nú, svo að þetta var þá

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.