Lögrétta - 06.04.1926, Blaðsíða 1
inaheiinta og afgmðsla
í Veltusundi 3
Öími 185.
LOGRJETTA
Útgeíandi og ritstjór'
þorsteiun Gíslasen
Þingholtsstrœti 17.
Sími 178.
XXI. ár.
Rejkjavít. þriðjudaginn 6. apríl 1926.
Um víða verðld.
Úr Ameríkublöðum.
Maður en nefndur H. L. Menc-
ken og er ritstjóri tímarits, sem
út kemur í Bandaríkjunum og
heitir „The american Mercury“.
I þessu riti hefur hann birt upp-
tíning úr ýmsum blöðum Ameríku
frá síðastliðnu ári og gefið síð-
an út bók, sem hann kallar „Ame-
ricana 1925“. Prófessor Otto
Jespersen í Kaupmannahöfn hef-
ur nýlega gert þessa bók að um-
talsefni í Politiken og þýtt ýms-
ar klausur úr henni. Bókin er háð-
rit, gefið út í því skyni, að skop-
ast að því, sem upp er tínt úr
blöðunum. O. J. segir, að mörgu í
bókinni sje þannig varið, að Ame-
ríkumenn einir geti notið þess til
fulls, en þó sje þar einnig margt,
sem muni vekja eftirtekt utan
Ameríku. Menn megi ekki líta of
hátíðlega á það, sem þarna sje
dregið fram, ekki líta svo á, að
þarna komi fram raddir almenn-
ings í Bandaríkjunum. En bók-
in sýni þó ýmislegt sjerkennilegt
í hugsanalífi Ameríkumanna, sem
náð hafa að festa rætur hjá stærri
eða smærri hópum meðal almenn-
ings þar.
Hjer skulu nú þýddar nokkrar
af þeim klausum, sem 0. J. sýnir,
1. Næsta sunndag verður gerð
tilraun til þess, að lesa Nýja-
testamentið alt upp á einum degi
frá kl. 6 um morguninn til kl.
11,30 að kvöldi. Til þess þarf að
fá 68 menn. Engin prjadikun
verður, enginn söngur og enginn
hljóðfærasláttur. Upplestrinum
verður haldið látlaust áfram.
Menn geta komið og farið eftir
vild sinni, án þess að trufla lest-
urinn. Offur geta menn gefið eins
og venja er til. Kapplesturinn
fer fram í Meþódistakirkjunni.
M. Habgood prestur les fyrstur.
2. M. L. G. Porter prestur við
Meþódistakirkjuna í Longhill hefir
uxmið biblíukapplesturinn og les-
ið Nýjatestamentið á 18 klukku-
tímum. Hann byrjaði skömmu
fyrir miðnætti og hjelt lestrinum
áfram viðstöðulaust, að undan-
teknum fáum mínútum, sem hann
þurfti til þess að fá sjer næringu.
— í Andrews í Indiana tók lestur-
urinn 17 kl.tíma og þar á Mrs.
S. S. Beauchamps heiðurinn fyrir,
að hafa setið lengstan tíma við
guðsþjónustugerðina, þ. e. 14 kl.-
tíma og 40 mínútur. Næst komst
frú Wischmeier (sat 14 kl.tíma og
30 mínútur).
3. Jesúítapresturinn W. Par-
sons skrifar: Hvemig getum við
vitað, að þetta sjerstaka krafta-
verk, jómfrúrfæðingin, hafi átt
sjer stað? Við vitum þetta af því
að katólska kirjan kennir, að hún
hafi átt sjer stað. þetta er full-
komin sönnun þess, að hún hafi
átt sjer stað.
4. Sá, sem á 20 öldinni heldur
fram þróunarkenningunni, getur
ekki talist meðal mannkynsins,
þótt allur skapnaður hans bendi
til þess, að svo ætti að vera, það
eitt, að sólin kemur upp í austri
hvern morgun og gengur undir í
vestri hvert kvöld, er flestum okk-
ar gild sönnun fyrir því, að guð
sje til. Hvers vegna setst hún
ekki til tilbreytingar stundum í
norðri? Af því að svo hefur ekki
verið fyrir skipað í heimsráðstöf-
un drottins.
5. Ef nokkur er sá, er vilji mæla
bót hinni guðlausu þróunarkenn-
ingu, sem er til orðin í helvíti, þá
látum hann ganga út og leita sjer
stuðnings hjá þeim mönnum, sem
trúa á þesisa bölvuðu kenningu,
en ekki ætlast til þess, að kristnir
menn hjer í landi borgi fyrir
kenslu hjá spiltum, pestlyktandi
prófessor, sem kennir börnunum
okkar að yfirgefa guð og gerir
skóla okkar að heimkynni guð-
lausra og skítugra stjórnmála.
6. Senator G. W. Wightmon
ætlar að bera fram lagafrumvarp
(í Norður-Carólínu) um að sviftir
verði ríkisstyrk allir skólar, sem
leyfa að haldið sje fram þeim
kenningum, að mennirnir sjeu
komnir af öpum.
7. C. S. Fothergill, sögukennari
við háskólann í Baylor, hefur í
dag beðið um lausn frá embætti,
að því að hann tryði ekki að örk
Nóa, með þeirri stærð, sem biblían
nefnir, hafi getað rúmað tvær
skepnur af öllum þeim dýrateg-
undum, sem til hafi verið á dög-
um Nóa, og af því að fundið hafi
verið að því, að hann hefði látið
þessar skoðanir sínar 1 ljósi.
8. Við Yale-háskóla fór fram at-
kvæðagreiðsla meðal nemendanna
um það, hver væri hjá þeim í
mestum metum af öllum þeim
mönnum, sem nafn eiga í verald-
arsögunni. Fjekk Napóleon 181
atkv., Kleopatra 7, Jeanne d’Arc
7, Woodrow Wilson 7, Sókrates 5,
Jesús 4, Mussolíni 3. Uppáhalds-
rithöf. nemendanna (í óbundnu
máli) voru þessir: Stevenson 24,
Dumas 22, Sabatíni 11, Anatole
France 5, Cabell 5, Bemhard Shaw
4. — Mestir núlifandi manna voru
taldir: Coolidge forseti 52 atkv.,
Daves 32, Mussolíni 3, Prinsinn
af Wales 24, J. P. Morgan 15,
Einstein 3, Berhhard Shaw 3.
9. Stríð er í raun og veru heil-
agt og þeir, sem reyna hin bæt-
andi og göfgandi áhrif þess, bera
vitni hinum guðdómlegu eigin-
leikum, sem skaparinn gæddi oss,
er hann skóp manninn í sinni
mynd. Hermaður einn ljet þenn-
an sannleik í ljósi við prest sinn
með þessum orðum: I bardögun-
um erum við allir herprestar.
10. Á einu af helstu gistihúsun-
um í Columbus í Ohíó stóð svo-
hljóðandi tilkynning: þegar menn
hafa annars kyns gesti í svefn-
herbergjum sínum, er það viðeig-
andi, að hurðir standi opnar, svo
að gátt sje að minsta kosti 6
þumlungar.
11. Ástadorg í orðum eða lát-
bragði við námsstúlkur og kenslu-
konur á skólum mun verða bann-
að í Norður-Carólínu, samkv.
uppástungu, sem nú hefir verið
lögð fyrir kenslumálaráð ríkisins.
Fyrirskipunin telur ástadorg með-
al yfirsjóna, sem varða skulu frá
5 til 50 dollara sektum, eða frá
10 til 30 daga fangelsi. þetta gild-
ir í skólahúsum og á vegum til
frá skóla.
12. Allen Móses og kona hans,
sem eru rík negrahjón, fóru hjeð-
an (frá Cohlsboro) í gærkvöld til
Washington og New York í Pull-
mans-svefnvagni. það er í fyrsta
sinni í stögu þessa bæjar, sem
negri hefur gerst svo frekur, eins
og saimborgari okkar einn komst
að orði, að taka svefnvagnsfar-
seðil. Hefir þetta Vakið hreyfingu
meðal hinna hvítu borgara og það
er sagt, að Ku Klux Klan muni
fá hvatningu til þess að taka svo-
leiðis á móti Mósesi, þegar hann
kemur aftur, að honum verði það
minnistætt.
13. þar sem einn gerðardóms-
manna gat ekki orðin sammála
hinum um að dæma Alvin Cal-
boun, negra, sem ákærður var
fyrir morð, sekan, þá söfnuðust
menn saman og drógu gerðar-
dómsmanninn út úr rjettarsaln-
um, börðu hann og veltu honum
í forarpolli Eftir þessa refsingu
fór hann aftur inn í rjettarsalinn
og var með í að kveða upp dóm-
inn: „Sekur“.
14. Negralæknir, Smith að
nafni, var brendur; höfðu áður
hendur og fætur verið höggn-
ai' af honum. Sökin var, að hann
hafði í bíl sínum rekist á bíl,
sem hvítt fólk var í.
15. Samkv. opinberri skýrslu
frá lögregluliðinu hefur tala
fangelsanna fyrir drykkjuskap
aukist um 121 p.c. frá 1910. Á
sama tíma hefur fólksfjöldinn
aukist um 32 p.c. Fangelsanir fyr-
ir að stýra bílum í ölæði hafa
aukist um 850 p.c. (Distr. of
Columbia).
16. Síðan bannlögin komu í
gildi sjást ekki aðeins di'engir á
skólaaldri, heldur og stúlkuböm
og önnur börn oftlega undir áhrif-
um forboðinna drykkjarvara.
Drengir sjást reika á götunum og
sofna fram á skólaborðin. (Dela-
ware).
Síðustu fregnir.
Kaupdeila er fyrir dyrum i
Noregi, sem spáð er, að geti orðíð
eríið viðfangs. Um s. 1. mánaða-
mót voru samningai’ útrunuir þar
um vinnukaup í mörgum atvinnu-
greinum og mun það veraj eitt
af helstu verkefnum hinnar nýju
stjórnar að miðla þar málum, svo
að ekki dragi til stórvandræða.
Síðustu símíregnir segja, að
stjórnin hafi skipað sáttanefnd, en
vinnuveitendur krefjist 25%
launalækkunar og þar að auki
styttingar á sumarleyfi verka-
manna.
Chr. Collin prófessor í Osló er
nýlega dáinn.
Innflutningstollar í Frakklandi
hafa verið hækkaðir um 30%,
nema á nauðsynjavöru.
það er sagt, að flugferðir eigi
mjög að aukast hjer í vestur-
hluta álfunnar á næsta sumri
vegna samvinnu milli hinna
stærstu flugfjelaga ýmsra landa.
Frá Khöfn á t. d. að verða flogið
til Parísar á 6 klst.
Fregn frá Málmey segir, að
verkfræðingur þar, Fledin að
nafni, hafi fundið upp nýja að-
ferð til þess að búa til járn, og
veki þetta mikla athygli. Stál-
hringur Bandaríkjanna hefur sent
mann austur til þess að rannsaka
gagnsemi uppfyndningarinnar.
Amundsen norðurfari en nú í
Róm og hefur tekið þar við loft-
farinu, sem hann ætlar að hafa
í heimskautsför sína.
Talað er um dansk-amerískan
Grænlandsleiðangur, sem til standi
í sumar og á að athuga ísbreyt-
ingar, landfræðileg og veðurfrœði-
leg efni og fiskalíf þar nyðra.
Peter Freuchen, sem nú hefir um
hríð verið í Khöfn, en er manna
kunnugastur í Grænlandi, verður
með í förinni.
Símað er frá New York borg, að
íbúat. Bandaríkjanna hafi aukist
um 11 miljónir síðan 1920, og er
nú 117 miljónir. (Var tekið mann-
tal í júlílok 1926, og mun nú bú-
ið að vinna úr manntalsskýrslun-
um).
Brjef
úr þingeyjarsýslu 16. mars 1926.
Jeg er nú að lesa gengisfrv.
Tr. þ. ásamt greinargerð, og þyk-
ir það s. a. s. talsvert skemti-
legur lestur. Mikilsverðar upp-
lýsingar finn eg þar samt ekki
(fyrir mig) um málið, aðra en
þá, að Landsbankixm hafi verið
einn um kaup á útlendum gjald-
eyri nálega alt næstliðið ár og
því í rauninni eins konar einokr-
ari í þessu gengismáli. það virð-
ist bví hafa verið hann aðallega,
6em „skattlagt“ hefir framleið-
endur um þessar 5 milj. sem Tr.
þ. talar um. Hinsvegar vantai'
upplýsingar um hvert þessar 5
milj. hafa runnið. Ætla má að
eitthvað af þeim hafi stöðvast hjá
bankanum. En meginið af þeim
hefur vafalaust runnið út til
landsmanna aftur, með vaxandi
kaupmagni krónunnar. þetta er
einmitt einn meginstraumui'inn í
gengishækkunannálinu: það, sem
framleiðendur (Pi'oducenter) tapa,
vinna verkamenn og neytendur
(Konsumenter). Með öðrum orð-
um: hækkunin kemur þar fram
um dreifslu og jafnaðarhi'eifing.
það er nú vel skiljanlegt að ól.
Thors og fleiri útgerðai'menn,
hafi horn í síðu gengishækkunar-
innar, og eðlilegt, að jafnaðar-
menn sjeu henni, á hinn bóginn,
fylgjandi. Jafn eðlilegt er það, að
Tr. þ. leggist þar á sveif með út-
gerðar mönnum, því hann er fyrst
og fremst fulltrúi stórbænda (sem
nú eru reyndar flestir dauðir).
Minn fulltrúi er hann ekki í því
máli; það er vist. Mjer sýnist
það, sem hann segir um skaða
bænda af hækkuninni mestmegnis
ýkjur og gullkrónuhjal hans o.
fl. manna, að miklu leyti út í blá-
inn. Við bændur t. d. borgum ekki
okkar nauðsynjar með „gullkrón-.
um“ heldur með vörum. Og með
ákveðið magn af vörum (t. d.
afurðh' af 1 á, (ull og dilk) höf-
um við getað gert meira — en
ekki minna — tvö síðast. ár, en
t. d. 1928, þ. e. áður en gengið
fór að hækka. Jeg veit að þama
kemur fleira en gengisbreytingin
til greina og einkum lækkun kjöt-
tollsins í Noregi. En þó tekið sje
tillit til hans, haggast aðalniður-
staðan ekki. Jafnvel ullin, sem þó
er í hraki, mun hafa svii>að
greiðslumagn nú og 1923 — jafn-
vel til skuldagreiðslu. Sannleikur-
inn er, að við bændur erum alt
í senn: framleiðendur, verkamenn
og neytendur, og gengisbreyting-
arnar eru því að mestu leyti —
að því er okkur snertir — færsla
á milli vasa. Að gengishækkun-
m sje aðalorsök þess, að skuldir
hafi vaxið í kaupfjelögum bænda
svo að skifti hundruðum þúsunda,
næstl. ár, nær ekki neinni átt.
Að minsta kosti fullyrði jeg, að
svo sje ekki hjer í þingeyjar-
sýslu. Aðalorsökin er gjaldeyris-
bi'estur, sem stafar af skepnu-
fækkun f. á. Víðtækar nákvæmar
skýrslur hefi jeg ekki um þetta,
en fulla vissu um aðalatriðið
samt. það er haft eftir kaup-
sýslumönnum á Húsavík síðastl.
haust, að magn landbúnaðarvöru,
sem til verslana kæmi þangað þ.
á. (1925), mundi verða c. V4
minna en árið á undan (1924) og
má næxri geta að það skiftir
nokkru, þegar kaup eru jafnmikil
og jafnvel meiri — meðal annars
vegna bætts reikningshags fyrra
15. tbl.
árið. 1 Leiðardeild Kaupfjel. þing.
(sem jeg veiti forstöðu), slátr-
uðu 36 viðskiftamenn 694 kind-
um til innleggs í K. þ. síðastl.
haust, en sömu menn 1010 kind-
um haustið 1924, og lík munu
hlutföllin hafa verið annarsstað-
ar. þetta er fullljós bending, bæði
um það, að fjárhækkunin hjer
i sýslu (og skuldalækkun) árið
1924, var meira af hagsýnilegum
ástæðum en fjárfelli (og krafta-
verkum) og að skuldahækkunin
starfar hinsvegar einkum af
gjaldeyi'isbresti, sem því betur
(vegna fjárfjölgunar) er ekki eins
slæmur í raun og á yfirborði.
Sigurjón Fxiðjónsson.
----o-----
Mannalát. þórður Guðjohnsen,
fyxrum verslunarstjóri á Húsavík,
andaðist í Kaupmannahöfn 16.
f. m., 81 árs að aldri fæddur hjer
í bænum 14. sept. 1844, atkvæða-
maður mikill um langt skeið í
verslunarrekstri þar nyrðra, en
bjó síðari hluta æfi sinnax- í
Khöfn.
Jón J. Setberg trjesmíðameist-
ari andaðist hjer í bænum 16. f.
m. af aíleiðingum meiðsla, sem
hann hiaut nýlega við byltu.
þmgirjettir koma í næsta blaðx.
Asa strandar. Hinn nýi togari
Duus-verslunai', Ása, strandaði
aðfai’anótt síðastl. laugardags út
frá Járngerðarstöðum í Grinda-
vík, var á heimleið úr veiðiíör, en
veðui' hvast á austan. þetta var1
fyrsta veiðiíör skipsins. Mexm
björguðust allir á laugaidaginn á
þann hátt, að kaðli var fleytt í
land frá skipinu og við haim fest
olíuíiát, sem skipsmenn stigu í
og voru svo dregnir til lands.
Skipið er sagt mikið brotið og eng-
in von um að það náist út.
Fjórir menn drukna. Rjett fyrir
páskana vildi hjer til það sorg-
iega slys, að bátur fórst með 4
mönnum á leið frá Viðey til lands.
þeir, sem fórust, voru Sólberg
Guðjónsson netjagerðamaður á
Grettisgötu 43, sonur hans Mar-
teinn, 14 ára, og bræðurnir Árni,
16 ára, og Theodór, 13 ára, synir
þorsteins þorkelssonar á Grettisg.
44. þeir voru í kirkju í Viðey á
föstudaginn langa, en síðan vita
menn ekkert um ferð þeirra.
þingvellir 1930. Á skírdag borð-
uðu þeir Ág. H. Bjamason pró-
fessor og Matth. þórðarson fom-
menjavörður til fundar til þess að
x-æða um, hvort ekki þætti ger-
legt, að koma upp einhverju
minnismerki á þingvöllum 1980.
Komu fram ýmsar tillögur um
þetta, sem síðar mun verða minst
á, en engin ákvörðun var tekin.
Nú er komin fram á Alþingi til-
laga um, að ‘flytja þingið þangað
1930. Búast má samt við, að sú
tillaga mæti mótstöðu, því ýmsir
erfiðleikar eru þar í vegi, þótt
skemtilegast væri að öðru jöfnu
að hafa þingið á þeim stað. En
yrði þingið flutt til þingvalla,
þarf að reisa þar þinghús, sem þá
yrði um leið hið sjálfsagða 1000
ára minnismerki Alþingis.
Aflabrögð. Á Austfjörðum var
nýlega sagður meiri afli en menn
muna áður um þetta leyti árs, og
víðast hvar kringum land hefur
að undanfömu verið góður afli.
Næsta stórstúkuþing verður
haldið hjer í bænum og kemur
saman 24. júní.
-----o-