Lögrétta


Lögrétta - 06.07.1926, Side 4

Lögrétta - 06.07.1926, Side 4
4 LÖGRJETTA bera nafn fyrstu húsfreyjunnar, sem bjó mönnum hjer í landi heimili og ól því syni og — dætur. Sú tilgáta, að Þorsteinn Ing- ólfsson hafi átt drýgstan þátt í því að alþingi var stofnað, virð- ist mjög sennileg, en þá hefur Hallveig fóstrað þann soninn, sem íslenska þjóðin hefur það að þakka, að lög urðu ein hjer í iandi og hún þar af leiðandi getur haldið hátíðlegt þúsund ára afmæli Alþingis 1930. Ber þá ekki að tengja nafn Hallveigar Fróðadóttur framar öllum öðrum nöfnum landsins kvenna við þjóð- hátíðina. Gjörum okkar ítrasta til að fagna megi gestum af öllum ís- lenskum konum á Hallveigarstöð- um 1930. Hittumst þar heilar á næsta landsfundi kvenna. Steinunn Hj. Bjamason. ------o---- Iiam'ba'blóm. Það mun þykja ókarlmannlegt að líta við lambablómum þegar um stóriðnað er að fást. En þó skal nú beina eftirtekt íslenskra nýyrkjumanna að þessu, samt sem áður — að þegar þeir plægja vilta móa — bæði í nágrenni Reykjavíkur og annarstaðar á landinu, þá eyða þeir ýmsum gróðurtegundum, sem eiga að vera gagniegar býlum þeirra og böm- um, þegar fram í sækir. Úti í móum og melum mjög víða eru iðgrænar þúfur alsettar ljósrauðum smáblómum sem flest- ir munu kannast við, — „Lamba- grasið“. Ef nýyrkjumenn okkar vildu safna saman þessum grænu þúf- um —• áður en; þeir fara yfir með plóg og herfi — þá geta þeir komið sjer upp mjög fall- egum skrautblettum í túnum þeim, sem þeir rækta þarna upp. Mundi það verða staðarprýði hverjum bæl að eiga ljósrautt skraut blómanna í grænum tún- um — og færi þá vel að raðað væri þúfunum í langa garða, en melamöl sitt hvoru megin í lít- illi rák, — blóm þessi eru harð- ger og gleyma ekki lit, þó harð- ur vetur sje yfirgenginn, en an,g- an þeirra er einn aukinn í heil- næma sumarloftinu. I Ítalíu er mjög algengt, að sjá allskonar melablóm í klaust- urgörðum í fögrum formföstum reitum, en hversvegna getum við ekki einnig gert þetta í íslensk- um túnum, þó með öðrum hætti sje. — Það er sennileg ályktun, að meira verðmæti liggi í þess- um fátæklega melagróðri en ný- yrkjumenn gera sjer grein fyrir, þegar þeir róta öllu um og kæfa í áhuganum fyrir stóru arðmiklu túni — því á blómunum lifa lirf- ur og fiðrildi, sem frjóvga og byggja grassvörðinn, þó lítið berl á, en þau missa tækifærið þegar bú þerra mylst undir herfinu og plóginum. Mælist jeg til þess, að öll dag- blöð okkar beri þessa litlu leið- beiningu — svo íslensk alþýða megi hugsa um hvort sjeu þetta smámunir einkis virði. Reykjavík, í júní 1926. Jóh. Kjarval Sveinsson. ----o----- Stúdentar. Mentaskólanum var sagt upp 30. f. m. og útskrifuðust þaðan þá 43 stúdentar. Var við- höfnin þar í þetta sinn óvenjulega hátíðleg, með því að þar komu saman, auk hinna nýju stúdenta, sem voru að útskrifast, 25 ára stúdentar, 40 ára stúdentar og 50 ára stúdentar. 1 nafni 25 ára stúdentanna flutti Gunnlaugur læknir Claessen ræðu og afhenti Bræðrasjóði Mentaskólans 1000 kr. gjöf frá þeim, og síðan flutti dr. Hannes Þorsteinsson ræðu í nafni 40 ára stúdentanna og af- henti Bræðrasjóði aðrar 1000 kr. frá þeim. Davíð Sch. Thorsteins- son læknir, sem er 50 ára stúdent, flutti þar næst ræðu og talaði á fjórum tungumálum: latínu, frönsku, þýsku og ensku. Rektor svaraði ræðunum og brá einnig fyrir sig erlendum tungum, og loks talaði Páll Sveinsson kennari á latínu. Síðan bauð rektor öllum stúdentahópnum inn til sín, og síðar um daginn buðu 25 ára stúdentarnir öllum hópnum til samfagnaðar í húsakynnum frí- múrara hjer í bænum og sátu menn þar einn kl.tíma við söng og ræður. 25 ára stúdentarnir eru fyrsti stúdentahópur 20. aldarinnar, og hafa þeir tekið upp það nýmæli í samráði við rektor Mentaskólans, að fá árlega hjeðan í frá tekin upp í skýrslur Mentaskólans stutt æ|fiágrip og myndir 25 ára stúd- enta. Verður þetta merkileg og mikilsverð viðbót við skólaskýrsl- urnar. Af 25 ára stúdentunum voru hjer samankomnir: Benedikt Sveinssön alþingismaður, Einar Amórsson prófessor, sjera Guðm. Einarsson á Þingvöllum, Gunn- laugur Claessen læknir, Jón Ó- feigsson yfirkennari, Magnús Sig- urðsson bankastjór'i, Sigurjón Jónsson alþingismaður, Skúli Bogason læknir í Eplatóftum í Danmörku og Þórður Sveinsson læknir á Kleppi. — 4 voru fjar- verandi: Bjöm Líndal alþingis- maður, Böðvar Bjarkan lögfræð- ingur, Guðmundur Jóhannsson kand. phil og Haukur Gíslason prestur í Kaupmannahöfn. 3 eru dánir: Sjera Böðvar Eyjólfsson, síðast prestur í Ámesi, Böðvar Kristjánsson Mentaskólakennari og sjera Lárus Thorarensen. Af 40 ára stúdentunum voru hjer þessir 12: sjera Ámi Jó- hannesson í Grenivík, sjera Bjarni Einarsson, Gísli Pjeturs- son læknir á Eyrarbakka, dr. Hannes Þorsteinsson þjóðskjala- vörður, Jóhannes Jóhannesson bæjarfógeti, sjera Jóhannes L. L. Jóhannesson, dr. Jón Helgason biskup, sjera Jón Pálsson á Hösk- uldsstöðum, sjera Kjartan Helga- son í Hruna, sjera Magnús Bl. Jónsson frá Vallanesi, Páll Ein- arsson hæstarjettardómari og sjera Þórarinn Þórarinsson á Val- þjófsstað. — Fjarverandi voru: sjera Eggert Pálsson á Breiða- bólsstað, sjera Hallgrímur Thor- lacius í Glaumbæ, sjera Jón Guð- mundsson í Nesi í Norðfirði, sjera Sigfús Jónsison kaupfjelagsstjóri á Sauðárkróki og sjera Theodór Jónsson á Bægisá. Af 50 ára stúdentum voru hjer 2: Davíð Sch. Thorsteinsson læknir og Sigurður Þórðarson fyrv. sýslumaður. Fjarverandi voru: sjera Einar Jónsson á Hofi í Vopnafirði og Sigurður Ólafs- sn fyrv. sýslumaður í Kaldaðar- nesi. Dánarfregn. Nýlega er dáinn hjer á Landakotsspítalanum Pjet- ur bóndi Gunnlaugsson frá Álfa- tröðum í Dalasýslu, fæddur 1877. Knattspyrnuflokkur frá Vest- mannaeyjum hefur í þetta sinn tekið þátt í knattspymumótinu hjer í bænum og getið sjer góð- an orðstír. Björn Gunnlaugsson frá Suður- ríki í Borgarfirði hefur nýlega lokið embættisprófi í læknisfræði og hlaut 202' /6 stig. Er það næst hæsta læjknapróf sem tekið hefur verið hjer við háskólann, en hæsta prófið, 205 stig, tók Árni Árnason sem nú er læknir í Búð- ardal og kunnur lesendum Lög- rjettu af ýmsum greinum, sem hann heí'ur skrifað hjer í blaðið. Þriöja hæsta próf hefur Halldór Hansen, 200 stig. Fimm lætkna- nemar aðrir en B. G. luku em- bættisprófi nú við háskólarm, þeir Sveinn Gunnarsson með I. eink., lM*/3 st., Pjetur Jónsson I. eink. 173Ve st. og Eiríkur Björnsson, Lárus Jónsson og Ól. Ólafsson, allir með II. eink. betri. Danskir gestir. Með Islandi næst kemur hingað Stauning for- sætisráðherra Dana og frú hans, Petersen deildarstjóri forsætis- ráðaneytisins, og Reventlow greifi, deildarst j óri utanríkisráðaneytis- ins. Varnarmálaráðherrann danski, Rasmussen, kemur hingað einnig innan skamms, Zahle fyrv. for- sætisráðherra o. fl. Dánarfregn. Fyrir skömmu varð bráðkvaddur uppi á Akranesi Sig- urður Jónsson smáskamtalæknir, aldraður maður og mörgum kunnur af lælkningum sínum. Brúin á Hjeraðsvötnin, vestari kvísl þeirra, verður vígð sunnu- daginn 11. þ. m. Nýr íþróttavölluv og stór var vígður hjer nýlega af borgar- stjóra og formanni íþróttasam- bandsins, A. V. Tulinius, og um leið hófst allsherjaríþróttamót. Nýi völlurinn er miklu stærri en sá gamli, en óánægja er þó með hann að ýmsu leyti hjá sumum i þróttamönnum. Út úr ógöngunum. — Hvað kemur í stað þingræðisins, heit- ir nýútkomið rit eftir Guðm. prófessor Hannesson. Dr. Mauric Cachen, fi anskur ! norrænufræðingur er nýlega dá- j inn. Hann hafði m. a. skrifað doktorsritgerð um norræna drykkjufórnarsiði, og þótti merk- ur maður. Síldareinkasaian. Atvinnumála- ráðaneytið hefur tilkynt það, að lagaheimildin um einkasölu á sáld verði ekki notuð nú. Um Bjöm K. Þórólfsson meist- ara og bók hans „Um íslenskar orðmyndir á 14. og 15. öld“ hef- ur prófessor Finnur Jónsson m. a. skrifað svo: „Björn hefur í riti sínu samið yfirlit yfir hljóð- in og málmyndirnar á nefndu tímabili og sýnt breytingar þær er orðið hafa. Hann hefur sjálfur gert frumrannsóknir um þær og safnað til ritsins úr rímum og skjölum og gert það vel og áreið- anlega. Efninu er skipað eins og SchannongB Monnmenforretn. 0. Farimagsgade 42, K.höfn. Stærsta og góðfrægasta leg- steinasmiðja á Norðurlönduin. Umboðsmaður á Islandi. Snæbjörn Jónsson, Holtsg. 7B (simi 1986), Reykjavik Óðínn. Ýmsir af eldri árgöng- um hans, svo sem 4.—9. árg. fást með miklum afslætti, allir 6 á kr. 10,00. Síðustu árg., frá 17.—21. árg., fá nýir og gamlir kaupendur einn- ig með miklum afslætti,alls 5 á kr. 20,00. Allir árgangarnir frá upp- hafi, 21 árg., (inní vanta nokkur blöð af fyrsta árg. og fjölgar vantandi tölublö smátt og smátt) eru seldir á kr. 50,00. KENSLUBÆKUR Steingr. Arasonar: Landafræði, Reikningsbók, Litla skrifbókin, Lesbók fyrir byrjendur og Sam- lestrarbókin nýja. Afgreiðsla hjá Sveinabókbandinu Laugaveg 17B Reykjavík. Tapast hefur steingrár hestur fimm vetra, stór og fallegur, ó- merktur. Sá er kynni að verða hans var, er vinsamlegast beðinn að gera aðvart á Varmá í Mosfellssveit. gerist í málfræðisbókum. . . Bók- in er yfir höfuð ágæt það sem hún næg og verður fræðimönnum að miklu gagni. Hún er samin með róttækri þekkingu og góðri skynsemi; höf. er laus við öfgar og öfuglyndi sem oft ber allmikið á hjá sumum, er hafa ekki nægi- lega almenna málfræðisþekkingu. . . . Óskandi væri, að höf. fengi tóm til að halda þessum rann- sóknum sínum áfram. Ben. G. Waage er nýkjörinn for- seti I. S. í. Er hann einn af áhuga- mestu íþróttamönnum landsins. Minningarsjóði Hannesar Haf- stein hefir nýlega hlotnast arfur eftir ungfrú Kristínu Eggertsdótt- ur, veitingakonu á Akureyri, er ljest 27. febr. 1924. Hún hafði arfleitt tjeðan sjóð að skuldlaus- um helmingi eigna sinna eftir sinn dag. Skiftum á búinu var lokið 13. f. m. og reyndist helmingur þess, að skuldum og kostnaði frá- dregnum, kr. 16453,81, sem nú hefir verið lagt við sjóðinn. Prentsmiðjan Acta. leiddi að örðugt var að hafa nægilegt vatn. Efnaðri hús- in, höfðingjar bæjarins, þar á meðal veitingahús Thenar- diers, borguðu fjórðungssúu fyrir vatnsfötu manni, sem hafði tekið að sjer að sækja það, og græiddust honum 8 súur á dag við þá verslun, en hann vann ekki lengur en til klukkan sjö á kvöldin á sumrum og til klukkan fimm a vetrum, og þegar dimt var orðið og hlerar komnir fyr- ir gluggana, urðu menn að sækja vatn sitt sjálfir, ef þeir þurftu þess með, eða vera án þess. Þetta var orsökin til mestu skeflingar Cosettu litlu. Thenardierhjónin höfðu sem sje gagn af henni á tvenn- an hátt; fyrst og fremst ljetu þau móður hennar borga með henni, og annarsvegar notuðu þau hana sem þjón- ustustúlku. Þessvegna hjeldu þau henni, eftir að móðir hennar var hætt að borga, og hún varð sem þjónustu- stúlka að sækja vatn, þegar þess þurfti með. Cosetta var feikilega hrædd við að fara út að lindinni, þegar dimt var, og sá þessvegna ávalt um það, að ekki skorti vatn í húsinu. Það var óvenjulega fjörugt í Montfermeil um jóla- leytið 1823. Veturinn hafði verið mildur lengst af, hvorki snjókoma nje frost. Nokkurir trúðar frá Paris höfðu fengið leyfi til þess að setja tjöld sín á aðalgötu bæjarins, og hópur af umferðasölum hafði isett búðir sínar á kirkju- torgið og alla leið inn í hliðarstrætið, sem veitingahús Thenardiers var við. Gistihúsin og veitingakrárnar voru fullar, og lífið í þessum bæ, sem vanalega var kyrlátur, var nú kátt og háreyst. Jólakvöldið sjálft sátu nokkurir menn, ökumenn og umferðasalar, að drykkju í veitingastofu Thenardiers, sem var upplýst af fjórum eða fimm kertum. Hún líktist öllum öðrum veitingastofum; þar voru borð, tinkrúsir, flöskur, menn, sem drukku og reyktu, lítil birta og mikill hávaði. Madama Thenardier hafði eftirlit með kvöldverð- inum, sem var á eldinum. Herra Thenardier drakk með gestum sínum. Cosetta sat á sínum vanastað undir eld- húsborðinu við reykháfinn. Hún var klædd í tötra og var berfætt í trjeskónum. Hún prjónaði sokka handa annari Thenardierungfrúnni við birtuna frá eldinum. Lítill ketl- ingur ljek sjer undir stólunum. í herberginu við hliðina heyrðist til tveggja fjörlegia barnaradda, er hlógu og töl- uðu; það voru þær Eponine og Azelma. Rjett hjá reyk- háfnum hjekk keyri. Við og við yfirgnæfði barnsöskur hávaðann í veitingastofunni. Það var lítill drengur, sem madama Thenardier hafði eignast fyrir nokkrum árum — hún skildi ekkert í því, hvernig það hafði viljað til, sagði hún, það hlaut að hafa verið kuldinn, sem olli þessu —, hann var nú rúmra þriggja ára að aldri. Móðir hans hafði haft hann á brjósti, en henni var illa við hann. Þegar pilturinn öskraði altof mikið, sagði Thenardier: „Drengurinn þinn er að skæla; gáðu að hvað gengur að honum“. — „Æ“, svaraði móðir hans, „mjer dauðleiðist hann“; og vesalings lítil yfirgefin veran hjelt áfram að liggja og skæla í myrkrinu. Lesarinn hefir hingað til aðeins sjeð utan á vangann á Thenardier; það er kominn tími til þess, að hann fái að sjá þessi virðulegu hjón frá öllum hliðum. Thenardier var nýorðinn fimtugur, madama Thenar- dier var nálægt fertugu, svo að hvorugt hafði undan neinu að kvarta með aldur hins, því að fjörutíu ár hjá kvenmanninum eru sama sem fimtíu ár hjá karlmannin- um. Lesarinn minnist þess ef til vill, er vjer kyntum hon- um madömu Thenardier; vjer gátum þess að hún væri hávaxinn, ljóshærður, andlitsrjóður, feitur, holdmikill, þreklegur, ruddalegur en samt sem áður hvatlegur kven- rnaður. Hún sá um alt innanhúss, bjó um rúmin, hjelt stofunum hreinum, sá um þvottinn, var í eldhúsinu, hún var regn hússins, sólskin þess og djöfull. Cosetta var eina þjónustustúlkan hennar, mús í þjónustu fíls. Allir fóru að skjálfa,þégar heyrðist til frúarinnar.Andlit hennar,sem var alþakið rauðum dílum, líktist fleytisleif. Hún var með skegg. Hún var eins og þorpari frá París í kven- mannsfötum. Hún bölvaði eins qg háseti og hrósaði sjer af að geta brotið hnetu með hnefahöggi. Ef hún hefði ekki oft verið að tönlast á aðalglamri úr skáldsögum, sem hún hafði lesið, og sýnt þar með tilgerðina, hefði engum konnð til hugar að hún væri kona. Madama Thenai'dier var samsteypa af tilgerðarstelpu og fiskikerlingu. Þegar hún var að tala, sögðu menn: Þetta hlýtur að vera her- maður. Þegar hún var að drekka, sögðu menn: Þetta lilýtur að vera ökumaður. Þegar menn sáu, hvernig hún fór með Cosettu litlu, sögðu þeir: Þetta er þá böðull. Þeg- ar hún var kyr, skagaði tönn fram úr munni hennar. Thenardier var lítill, magur, gugginn, vaxtarljótur, beinaber manngarmur, veiklulegur útlits, þó að hann væri við bestu heilsu. Hann var síbrosandi af tómri kurt- eisi og vai' kurteis við alla, jafnvel betlarann, sem hann neitaði um skilding. Hann hafði marðaraugu og líktist mentuðum manni. Hann drakk með ökumanninum, en enginn hafði sjeð hann drukkinn. Hann reykti úr feikna stórri pípu. Hann gekk í vinnuskyrtu og innanundir henni var hann í gömlum, svörtum fötum. Hann vildi láta telja sig bókmentaðan mann og kvaðst hneigjast að efnis- hyggju, og vitnaði hann jafnan til ýmsra manna til stuðn- ings sínu máli, svo sern Voltaires, Raynals, Parnys og þó að einkennilegt megi virðast, hins heilaga Ágústínusar. Ilann fullyrti að hann hefði sína sjerstöku heimspeki. Að öðru leyti var hann mikill óþokki. Hann ljetst, eins og les- arinn minnist, hafa verið hermaður og sagði frá því hvað hann hefði sýnt mikla hreysti í orustunni við Waterloo —- þar hefði hann verið liðþjálfi í einhverju tvífylki — er hann hefði varið herforingja nokkum, með því að hlífa honum fyrir kúlnahríðinni með sínum eigin líkama. Það var þessi atburðuj', sem átt var við á áburðarmikla skild- inu, og hjeraðsbúar nefndu veitingakrána „Liðþjálfann frá Waterloo“. Hann var frjálslyndur og Bonapartesmað- ur. Orð ljek á því í þorpinu, að hann hefði lært til prests, en sannleikurinn var víst sá, að hann hafði aldrei lært annað en að vera veitingakrármaður. Þetta marg- brotna óþokkamenni var að líkindum Flæmingi og var

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.