Lögrétta - 31.08.1926, Blaðsíða 1
Innheimtft og afgreiðsla
í Þingholtsstrœti l
isími 1 fcö.
LOGRJETTA
Útgefandi og ritstjóri
l’orsteinn Oíslason
Þingholtsstræti 17.
Sími 178.
XXI. ár.
Reykjarík, þriðjudaginn 31. ágúst 1926.
36. tbl.
I
lim víða veröld.
Síðustu fregnir.
Bretska kolaverkfallið heldur
enn áfram, en nýjar sáttatilraunir
eru nú aftur isagðar í aðsígi. — 1
Ungverjalandi er nýlega fallinn
hæstarjettardómur í seðlafölsun-
armálinu. Tveir aðalmennirnir,
Windisgratz og Nadossy, voru
dæmdir í fjögurra ára fangelisi. —
I Grikklandi eru enn nokkrar við-
sjár. Kondylis, sem nú er tekinn
við stjóm, hefur óskað þess, að
fiokkar tækju þátt í stjórnar-
myndun, og, kveðst ætla að láta
almennar kosningar fara fram inn-
an 8 mánaða. — Sagt er, að Mus-
solini hafi látið handtaka sjö-
hundruð ítalska jafnaðarmenn fyr
ir samtök þeirra um það, að reyna
að stofna lýðveldisflokk í land-
inu. — Sagt er að í Tyrkjaveldi
hafi nýlega verið hengdir tveir
fyrverandi ráðherrar og tveir
þingmenn, sakaðir um þátttöku í
samsæri gegn Mustapha Kemal.
Ennþá er þráttað um aukning
föstu fulltrúasætanna í Þjóða-
bandalaginu, og hótar nú Pólland
að ganga úr skaftinu, en únslit
málsins standa nú fyrir dyrum.
----o---
Skólamál.
Eins og kunnugrt er hafa all-
miklar umræður staðið austan-
fjalls undanfarið út af skólamál-
um. Hefur Lögr. skýrt nokkuð
frá þeim málum áður. Hefur
skólastofnun austur þar verið all-
lengi á döfinni. Á árunum 1908—
1913 voru ýmsar ráðstafanir gerð-
ar til þess að koma á fót sam-
eiginlegum skóla fyrir alt Suður-
láglendið. Var þá Stórólfshvoll
keyptur í þeim tilgangi, en úr
frekari framkvæmdum varð ekki
og lá málið niðri á styrjaldarár-
unum. Það, sem síðan hefur í mál-
inu gerst er flestum kunnugt. Ný-
lega er kominn út bæklingur um
þessi skólamál og er þar í nefndar-
álit um þau, dagsett á sýslu-
mannssetrinu Efra-Hvoli 11. apríl
s. 1. og undirritað af Björgvin
sýslumanni Vigfússyni, Eyjólfi
Guðmundssyni og Guðm. Erlends-
syni. Er þar gert ráð fyrir sjer-
stökum skóla fyrir Rangæinga, og
stungið upp á sjerstöku skipulagi
á honum, jafnframt því sem mál-
ið er rætt í heild sinni. Er þetta
í nefndarálitinu kallað vinnuskóla-
fyrirkomulagið. Eru teknir hjer
upp um það nokkrir kaflar, því
víða er nú hugsað og talað um
þessi mál hjer, en nefndarálitið
aðeins isent sem einskonar brjef
til Rangæinga og því í fárra hönd-
um annara. Að málinu að öðru
leyti verður síðar vikið.
Hið nýja fyrirkomlag er í því
fólgið, að lýðskólar verði reistir
að minsta kosti í hverri sýslu,
þegar sýslufjelagið með meiri
hluta atkvæðabærra manna til
sýslunefndar, samþykkir það fyr-
irkomulag, að allir ungir menn á
aldrinum 18—19 ára inni af hendi
skylduvinnu innan sýslu í þarfir
sýslunnar og skólans 7 vikna tíma,
að vorlagi, án annars kaupgjalds,
fyrir utan fæði, en þess, að þeim
hinurn sömu ungu mönnum standi
til boða frí kensla í bóklegum og
verklegum efnum, og frítt hús-
næði á nefndum skóla næsta vet-
Nýja brúin á Hjeraðsvðtnunum.
Brúin í smíðum.
Brúarvígslan.
11. júlí s. 1. vígði Sigurður
sýslumaður Sigurðsson frá Vigur
í umboði landsstjórnar og sýslu-
nefndar nýja brú yfir vesturós
Hjeraðsvatna í Skagafirði, að við-
stöddu fjölmenni. Brúin er öll 173
m. löng, með stöplunum til end-
anna, en þeir eru 20 m. sá að
austan, en 40 m. sá að vestan,
svo brúin sjálf á milli þeirra er
ur á eftir 6 mánaða tíma, og við
þenna sama skóla verði sameinuð
námskeið fyrir ungar stúlkur á
sama aldri í matreiðslu og hús-
stjórn og öðru verklegu og bók-
legu, eftir því sem kringumstæð-
ur leyfa. Þó verði að sjálfsögðu
undanþegnir vinnunni allir þeir,
er aðra skóla stunda þann tíma,
er vinnan fer fram.
Að skólar þessár verði bygðir
fyrir ríkissjóðsfje, en sýslumar
beri kostnaðinn af árlegum rekstri
þeirra og annist stjórn þeirra með
þeim takmörkunum og skilyrðum,
er yfirstjóm kenslumála í landinu
kynni að setja samkvæmt lögum.
Þessi hugmynd vor byggist á
því, að þegaf um reglulega lýð-
mentun (mentun fjöldans) er að
ræða, en ekki mentun eða ;
búningsmentun opinberra starfs-
manna þjóðfjelagsins, þá er mest
rjettlæti í því fólgið, að hver sú
kynslóð, er sjálf verður persónu-
lega aðnjótandi þeirrar fræðslu,
isem hjer er stefnt að — og mætti
heita hin æðri lýðmentun, í mót-
setningu við barnafræðsluna —
beri sjálf að mestu kostnaðinn,
sem þessi fræðsla hefur í för með
sjer, þegar hún er þess megnug.
Hitt virðist miklu fremur eiga
skylt við þjóðnýtingu og jafnaðar-
mensku, þegar öll kostnaðarbyrð-
in við unglingafræðsluna er lögð
á herðar eldri kynslóðarinnar.
Þessu rjettlæti viljum vjer ná,
með því að skylda hvern 18—19
ára karlmann, með þeirri undan-
tekningu, 'Sem að framan segir, til
að inna af hendi skylduvinnu sem
skólagjald í þarfir sýslunnar og
skólans, það þýðir, í þarfir eigin
menningar og jafnaldra sinna, en
gefa þeim öllum kost á, er vilja,
að taka út borgun fyrir vinnuna
í verklegu og bóklegu námi, í
skóla innan sýslunnar næsta vet-
ur á eftir.
En af „praktískum" ástæðum
113 m. Brúarbreiddin er að utan-
máli 3,30 m., en brúarpallurinn
sjálfur milli brúna 3 m. Brúin
stendur á 8 'Stöplum, en hver
stöpull hvílir aftur á 5 stólpum
eða staurum og brúin því öll á
40 staurum úr jámbentri stein-
steypu. G.Z.hefur haft yfirumsjón
smíðinnar og teiknað brúna. Hún
hefur kostað um 100 þús. krónur.
viljum vjer þó ekki beinlínis
skylda neinn til að fara í skól-
ann, teljum, að hver nemandi
hafi meira gagn af því námi, sem
hann sækist eftir, sem iðgjaldi
fyrir unnið verk, heldur en því
námi, sem væri haldið að honum
án eftirsóknar af hans hálfu.
Vilji því einhver frekar ráða sig
t. d. á togara en fara í skólann,
þá er honum; það frjálst og opn-
ast þá „pláss“ fyrir þá, sem vilja
eyða tveimur vetrum til námsins.
Hinsvegar teljum vjer þessa fyrir-
framgreiðslu fyrir námið næga
trygging þess, að skóli vor standi
aldrei tómur. Vjer treystum því,
að kynningin af jafnöldrunum í
vinnunni og eigin hagsmunir veki
hjá ungmennunum ríka löngun til
að hittast aftur í skólanum með
vetrinum. Á þenna hátt vinst það,
að öll kynslóðin (karlkynslóðin til
að byrja með), ein eftir aðra fari
í sama skólann, svo enginn þurfi
að öfunda annan eða þykjast öðr-
um meiri fyrir skólag'önguna eina.
Jafnvel þótt vjer skoðum vinn-
una að vorinu aðallega sem skóla-
gjald, þá má þó haga henni þann-
ig, líkt og þegnskylduvinnunni
hans Hermanns, að hún verði isem
nokkurskonar verklegur skóli fyr-
ir nemendurna í þeim skilningi,
að þar gefist gott tækifæri til
þess að kenna unglingum að
strita með viti. 1 skólanum höf-
um vjer hugsað os® að einhverju
leyti verklegt nám í smíðum.
Sömuleiðis teljum vjer nauðsyn-
legt að kenna hverjum manni
undirstöðuatriði í bókhaldi.
Með þessu fyrirkomulagi, sem
byrjar með verklegu námi og
stendur yfir allan skólatímann
samhliða bóklegri fræðslu í
„praktískum" og þjóðlegum efn-
um, viljum vjer stefna að þvi
takmarki, að áhrif iskólans verki
ekki öfugt við tilganginn, þann
að skapa reglusama, starfsama,
Sjera Páll Sigurðsson í Bolungarvík.
Síðastliðið vor kom heim frá
Ameríku sjera Páll Sigurðsson,
sem undanfarin 10 ár hafði ver-
ið prestur Garðarsafnaðarins ísl. í
Norður-Dakota, og varð prestur
í Bolungarvík. í Heimskringlu |
frá 9. júní er sagt frá heimför
hans að vestan , og hvernig safn-
aðarfólk hans þar hafi kvatt
hann. Sjest þar, að hann hefur
verið sjerlega vinsæll maður og
talinn kennimaður ágætur. — í
fyrsta. lagi flutti fólk það, sem
hann hafði fermt á árunum 1917
til 1926 honum mjög alúðlegt
þakkarávarp, ásamt góðum minn-
ingargjöfum. Þar næst var hon-
um haldið kveðjusamsæti að
Brown, Man., af safnaðarfólki
og nægilega upplýsta (upplýsing
er væri sæmileg til að byggja á
framhald með sjálfsmentun)
bændastjett, er helgi landbúnaðin-
um alla krafta sína með áhuga
og þrautseigju.
Verkefnið fyrir skólavinnuna
álítum vjer yfrið og ótakmarkað,
ætlum vjer að sá tími sje skamt
framundan, að þjóðin gjöri sig
ekki ánægða með minna, en vel
færa bílvegi til aðdrátta, en það
er hvorttveggja, að stofnkostnað-
ur slíkra vega er mikill og svo
kemur viðhaldið árlegt og í sí-
fellu.
Sýnist þá ekki annað úrræði
betra nje minna duga, en ein kyn-
slóðin eftir aðra leggi hönd á
verkið.
Mun í allflestum sýslum lands-
ins eigi veita af minna en 40
mönnum 7 vikna tíma á hverju
ári, bara til sýsluveganna einna,
og sýnist þá eigi þýðingarlaust
að eiga þenna flokk ungra manna
ávalt vísan.
Yrði þá gangur málsins sá, að
fjeð til veganna fengist á sama
hátt og áður með sköttum eða
álögum á eldri kynslóðina, en
skólanefndin fengi verkalaun
hinna ungu í sínar hendur, og
notaði þeim til náms á næsta
vetri.
Hver kynslóð eftir aðra lærði
á þenna hátt að skilja nauðsyn
vegaviðhaldsins, um leið og sjálf
vinnan við þetta verk væri sem
lærdómstími fyrir hana alla æf-
ina, þegar á þyrfti að halda.
hans og öðrum bygðarbúum og af-
hent fjárupphæð að skilnaði. En
aðalkveðjusamsætið var haldið á
Garðar 24. maí af söfnuðum hans
í Norður-Dakóta, á Garðar, í Ey-
forð og Mountain. Var þar fjöldi
fólks saman kominn. Forseti Garð
arsafnaðar setti samkomuna og
afhenti sjera Páli fjársjóð að gjöf
frá söfnuðinum, og önnur fjár-
upphæð var honum afhent frá
Kvenfjelagi safnaðarins. Margar
ræður voru fluttar og segir í
Heimskringlu, að á mörgum hafi
mátt heyra, að sjera Páll væri
þeim kærastur þeirra presta, sem
þar hefðu starfað og að þeir teldu
hann besta piestinn, sem þeim
söfnuði hefði þjónað.
n jrin »^wiiy~n in tr if * n n
Annars geta verkefnin verið
margvísleg og ótæmandi í jafn
strjálbygðu og lítt ræktuðu landi
og móðurjörð vor er, bæði fyrir
karla og konur, en í bili ætti að
duga að „realisera“ fyrirkomulag-
ið fyrir karlkynið.
iStöku maður hefur látið sjer
um munn fara, að skólaskyldu-
vinnan væri þvingun; en það
álítum vjer ekki. Það mætti með
isama rjetti segja að alt uppeldi
og allur agi, og lögboðin skóla-
skylda sje þvingun, en það er
heldur ekki rjett, því hjer eiga
menn á uppeldisaldri hlut að máli,
og er hjer jafnframt verið að
borga mönnum fyrir það sem
þeim er sagt að gjöra, með þeim
gjaldeyri, isem getur gefið hundr-
aðfaldan ávöxt. — Gjaldeyririnn
er aukin þekking og siðbætandi
áhrif, og trúa vor er, að þeir
mundu fáir unglingamir, sem
vildu kalla vinnuna þvingun,
þegar þeir kæmu aftur af skól-
anum.
-----o-----------------
Bannbandalag er nýlega stofn-
að hjer í bænum, fyrir forgöngu
stórtemplars, að sögn. Hafa þeg-
ar gengið 1 bandalagið níu fjelög,
þar á meðal Prestafjelagið, Al-
þýðusamband íslands, Trúboðsfje-
lagið og Bandalag kvenna. Form.
fjel. er sjera Guðm. Einarsson á
Þingvöllum, fulltrúi Prestafjelags-
ins.
-----o-----------------