Lögrétta - 17.08.1927, Side 1
LOGRJETTA
XXII. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 17. ágúst 1927.
43. tbl.
Um víða veröld.
Upton Sinclair
um amerískan ósóma og auðvald.
Talsvert er talað vestur í
Ameríku um nýja bók, sem út er
komin fyrir nokkru eftir Upton
Sinclair og heitir Olía. Sinclair
er hjer nokkuð kunnur, því þýdd-
ar hafa verið eftir hann á ís-
lensku ' þrjár bækur, Á refilstig-
um, Koli konungur og Smiður er
jeg nefndur. Hafa í bókum hans
verið miklar og bersöglar árásir
á ýmislegt það, sem honum hef-
ur virtst fara aflaga og öfugt í
amerískri menningu og þjóðlífi.
Mjög fræg varð t. d. á sínum tíma
bókin um sláturhúsin í Chicago
og kom hún af stað miklum og
flóknum málaferlum af hendi
hins opinbera, sem enduðu með
því að staðfesta rjettmæti ádeilu
Sinclairs. Hann hefur einnig
skrifað allhvassyrt um ameríska
stórblaðamensku o. fl. Hann er
yfirleitt í fremstu rithöfunda
röð, mikið lesinn og mikið hat-
aður og lætur til sín taka marg-
vísleg mál og leggur djarflega
til þeirra þótt stórmenni eigi í
hlut. Kom það fram t. d. þeg-
ar Rúmeníudrotning var á ferð
um Bandaríkin nýlega, og að vísu
ekki ávalt sjerlega drotningarlega,
að því er mörgum þótti. Að
ýmsu leyti er Sinclair þó meiri
bardagamaður en listamaður í
bókum sínum.
Síðasta bók Sinclairs fjallar
um olíumálin, sem nákvæmlega
var sagt frá í Lögrjettu á sín-
um tíma og mikið voru rædd í
stjórnartíð Hardings forseta.
Flæktust eins og kunnugt er,
inn í þau mál sumir helstu olíu-
kongar vestra og einnig ráðherr-
ar og höfðu þeir misbeitt stöðu
sinni allhatramlega og mútur og
fjárdráttur fór fram í stórum
stíl, eftir því sem þá var sagt, en
alt lognaðist síðan út af að mestu
leyti. Þessi mál eru uppistaðan í
bók Sinclairs og eru að vísu ljótt
dæmi um misjöfn áhrif auðvalds-
ins á amerísk stjómmál. En á
ýms önnur mál er einnig vikið,
s. s. nokkuð á kynferðislíf, tak-
mörkun bamsfæðinga o. sl. Þetta
var svo notað sem ástæða til þess
að kæra bókina fyrir klám. Var
hún gerð upptæk og mál hafið á
hendur útgefandanum í Boston.
Varð af þessu gnýr allmikill og
þó nokkuð auglýsinga- og skmm-
kendur í aðra röndina á hjer-
lendan mælikvarða, eftir því sem
af er sagt. Tók Sinclair sjálfur
mikinn þátt í þessum deilum, og
var þó á ýmsan hátt heft at-
hafnafrelsi hans. M. a. fór hann
Stephan G. Stephansson, skáld.
Símfregn sagði frá því, að 9.
þ. m. hefði látist að heimili sínu
vestur í Ameríku Stephan G.
Stephansson skáld. Fyr höfðu
borist frjettir um það, að hann
væri farinn að heilsu og allþungt
haldinn og kom dánarfregnin því
ekki alveg að mönnum óvörum.
Stephan G. eins og hann var
venjulega nefndur í daglegu tali,
var fæddur að Kirkjuhóli í
Ll1 — j I ' II
Skagafirði 3. okt. 1853, en fór
ungur vestur, um tvítugt (1873)
og var þar bóndi síðan, lengst af
(eða frá 1889) í Albertafylki og
stundum við óblíðu og erfiðan
kost landnemans. En á síðari ár-
um hafði hann komið sjer allvel
fyrir og átti dágott bú og bæ.
Kona hans, sem lifir hann, heitir
' Helga Jónsdóttir og eignuðust
þau 8 böm og eru 6 þeirra á
lífi. Frá því St. G. St. fluttist
fyrst vestur um haf, mun hann
ekki hafa komið heim hingað
nema einu sinni, er honum var
boðið hingað í heiðursskyni árið
1917. Var hann þá sæmdur heið-
urslaunum af Alþingi og gerður
heiðursfjelagi Bókmentafjelags-
ins.
Stephan G. Stephansson var
löngu orðinn kunnur meðal Is-
lendinga austan hafs og vestan
fyrir kveðskap sinn og viður-
kendur eitt af öndvegisskáldum
þjóðarinnar. Hann orkti mikið
fram á síðustu ár og var alloft
mikið um kveðskap hans talað
og deilt. Bestu kvæði hans ýms
em jafnframt meðal bestu kvæða
í síðari tíma kveðskap íslenskum,
oft sjerkennileg og þróttmikil í
hugsun og foifmi, S. s. bálkurinn
Á ferð og flugi, sem er besta
verk hans.
Það er annars ekki unt I
stuttu máli, að lýsa kveðskap
hans eða æfistarfi. Hafa greinar
um hann og myndir af honum
birtst t. d. í Iðunni og Óðni. En
hans er nú minst af mörgu ljóð-
elsku fólki, sem góðskálds og sem
eins hins besta fulltrúa vestur-
íslenskrar menningar. Hann kvað
hafa flutt með sjer nokkuð af ís-
lenskri mold þegar hann fór
hjeðan 1917 og sett í heimilis-
grafreit sinn vestra, þar sem
hann mun nú sjálfur vera lagst-
ur. Hann hvílir því í íslensk-
vígðri mold og Islendingur vildi
hann sjálfur vera fyrst og
fremst, þótt erlendis eyddi hann
aldri sínum og sannaði einnig á
sjálfum sjer að
Þótt þú langförull legðir
sjerhvert land undir fót
bera hugur og hjarta
samt þíns heimalandsmót.
nii nf' mé' <* I. ii ~ 1 ni|~i
út á götur og gatnamót og bauð
bók sína og ásamt henni Hamlet
og Biblíuna með þeim ummælum
að þær bækur báðar væru stór-
lega klámfengnar, eftir þeim
skilningi, sem lagður væri í sína
bók.
Ekki er það kunnugt hjer
hvernig málarekstri þessum hef-
ur lyktað, vísast hefur hann
lognast út af þegar nýjabrumið
var farið af honum. En sjálfsagt
þarf ekki að líða á löngu uns
Sinclair getur fundið nýtt
hneyksli og siðsamir lesendur
nýja hneykslanlega bók um það
og getur þá sami leikurinn haf-
ist á ný og lognast út af á ný.
Sacco og Vanzetti-málin
hafa undanfama daga og vikur
orðið hatrömmustu æsingamál
tveggja heimsálfa. En málavextir
eru þeir, að menn þessir sem eru
Italir, og kommúnistar að stjórn-
málaskoðun, voru grunaðir um
það, að vera valdir að morðum,
sem mikið var um talað fyrir
nokkrum árum í Bandaríkjunum.
Eftir mikið og flókið málastapp
voru þeir dæmdir sekir og til líf-
láts. En margir töldu éftir sem
áður, að þeir væru saklausir, en
álitu að stjórnmálahatur hefði
m. a. haft áhif á dóminn. Var
þess krafist að málið yrði tekið
upp að nýju og gekk í löngu
þófi og árangurslitlu, en þó var
aftökunni slegið á frest. Svo
gerðust þau tíðindi, að maður
einn úr þorparafjelagi þar vestra,
sem dæmdur var fyrir morð,
Celestino Madeiros, bar það fyrir
rjetti, að ítalarnir væru ranglega
dæmdir, því óaldarflokkur sá sem
hann tilheyrði væri valdur að
glæpum þeim, sem þeim væru
eignaðir. Thayer heitir dómarinn,
sem dæmdi þá og vildi hann
engan trúnað á þetta leggja og
átti aftakan fram að fara, en urðu
æsingar af og frestaði þá ríkis-
stjórinn, sem Fuller heitir, henni
um skeið, eða til 10. þ. m. En þá
urðu enn miklar óeirðir og upp-
þot í ýmsum stórbæjum í Ameríku
og Evrópu og var þess krafist,
að málið yrði rannsakað að nýju.
Meðal þeirra lögfræðinga, sem lát-
ið hafa málið til sín taka vestra
er sonur Hjálmars Brantings,
fyrv. forsætisráðherra Svía og
telur hann þá fjelaga ranglega
dæmda. Eftir nokkuð þjark ákvað
hæstirjettur Bandaríkjanna fyrir
skömmu, að málið skyldi tekið
upp á ný, en alóvíst er talið í síð-
ustu fregnum, að mennimir sleppi
við líflát. Em sterk varðhöld